Gerið heimilið að öruggum stað fyrir barnabörnin

Flestum öfum og ömmum finnst gaman að fá baranbörnin í heimsókn. En afar og ömmur likt og foreldrar þurfa að huga að því að heimili þeirra sé öruggur staður fyrir börnin. Á vefnum aarp.org birturst á dögunum leiðbeiningar um hvernig hægt sé að gera heimilið að öruggum stað fyrir barnabörnin.

  1. Geymdu lyf á öruggum stað. Helst í læstum lyfjaskáp. Margt eldra fólk geymir lyf á náttborðinu eða á eldhúsborðinu þar sem börn ná auðveldlega í þau. Í 38 prósent tilvika í Bandaríkjunum þar sem börn verða fyrir eitrunum af völdum lyfja, eiga lyf afa og ömmu hlut að máli.
  2. Hreinlætisvörur svo sem þvottaefni, uppþvottalögur og efni sem notuð eru í uppþvottavélar geta reynst ungum börnum sérlega hættuleg. Oft er þessum vörum pakkað í skrautlegar umbúðir og vökvinn er oft á tíðum fallegur á litinn. Þær vekja því forvitni ungra barna sem halda að þær séu sælgæti. Hreinlætisvörur ætti að geyma hátt upp í skápum eða í læstum skáp.
  3. Ekki ætti að leggja börn upp í rúm með púðum og tuskudýrum. Börn geta auðveldlega kafnað sé karfan eða rúmið fyllt með mjúkum hlutum. Best er að leggja barnið á bakið, eða á hliðina og breiða yfir það sæng eða teppi.
  4. Húsgögn geta reynst ungum börnum hættuleg. Skörp horn á borðum eða flatskjáir sem ekki eru tryggilega festir. Börn hafa gaman að því að príla. Festið því flatskjái tryggilega svo börn geti ekki slasað sig á þeim. Losið ykkur við borð með skörpum hornum. Ekki gleyma innstungum, það fást lokar til að setja í þær og setjið barnalæsingar á skúffur og skápa svo börnin geti ekki klemmt sig.
  5. Hjólastólar og göngugrindur eru ekki leikföng. Ef þið leyfið börnunum að leika sér að þessum hlutum fylgist þá með þeim.
  6. Gömul leikföng. Fólk geymir oft gömul leikföng til að eiga handa baranbörnunum. Gangið úr skugga um að leikföngin séu örugglega heil áður en þið látið börnin fá þau.
  7. Ef þið eigið gæludýr leyfið þá börnunum ekki að vera með þau án eftirlits. Á hverju ári koma 77 þúsund börn yngir en 10 ára á slysadeilir bandrarískra sjúkrahúsa með bit eftir hunda.
  8. Gættu þess að heiti heiti potturin sé tómur og það sama gildir um baðkarið. Ung börn geta auðveldlega farið sér að voða í mjög grunnu vatni. Ef þið leyfið börnunum að leika sér í heita pottinum eða baðkarinu víkið þá aldrei frá þeim
  9. Þegar þið eldið gætið þess þá að börnin geti ekki náð í potta eða pönnur. Snúið handföngunum inn til að minnka hættuna á að börnin geti teygt sig pottana eða pönnurnar. Allt of mörg dæmi eru um að börn hafi skaðbrennst eftir að hafa teygt sig í heita potta og pönnur á eldavélinni.

 

Ritstjórn október 19, 2016 11:12