Glæpur að mismuna vegna aldurs

„Að mismuna einhverjum vegna aldurs, sama hvort það er í atvinnu, vegna fjármála eða annars er alríkisglæpur í Bandaríkjunum,“ segir Pétur Sigurðsson fasteignasali á Flórída í grein í Fréttablaðinu.  Í greininni gerir hann umæli Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætirsráðherra um að ríkisstjórnin sé að skoða þann möguleika að banna húsnæðislán til fólks, ef það getur ekki greitt lánið upp áður en það er komið á ellilífeyrisaldur að umtalsefni.

Pétur segir að í Bandaríkjunum myndi þetta flokkast sem mismunun vegna aldurs. „Hér í Bandaríkjunum ræður greiðslugeta fólks því hvort það fær lán eða ekki. Aldur, kyn, litarháttur, uppruni, trú, hjúskaparstaða eða hvort tekjurnar koma frá hinu opinbera má ekki ráða því hvort þú ert lánshæfur eða ekki. Það eru tvenn alríkislög sem fjalla um þessa þætti, annað er lagaflokkur sem fjallar um lánsmöguleika fólks og hinn lagaflokkurinn er hluti af húsnæðislöggjöfinni hér. Báðir þessir lagaflokkar voru settir til þess að koma í veg fyrir mismunun eins og ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar virðist ætla að leggja fyrir Alþingi,“ segir Pétur.

„Ég hélt að svona forræðishyggjustjórnarhættir væru fyrir löngu aflagðir og hefðu að mestu leyti horfið á svipuðum tíma og Berlínarmúrinn féll. Hafi ríkisstjórnin áhyggjur af því að fólk geti ekki séð fjárhag sínum borgið, því býður hún þá fólki ekki upp á námskeið í fjármálalæsi, námskeið eða kynningar á nauðsynlegu lágmarksviðhaldi húsa og svo framvegis? Það er ekki hlutverk ríkisstjórna að ráðskast með eða skipuleggja fjárhag heimilanna. Ég er að velta því fyrir mér hvað er hérna um að vera. Er íslenska þjóðin orðin svona ósjálfstæð, að ríkisstjórnin þurfi að ákveða fyrir hana hvað henni er hollt eða ekki, eða er ríkisstjórnin búin að missa sambandið við þjóðina og lifir í sínum eigin sýndarveruleika, spyr hann að lokum. Grein Péturs er hægt að lesa hér í heild.

Ritstjórn ágúst 11, 2016 11:18