Hækka verður lífeyri í 400 þúsund á mánuði

Björgvin Guðmundsson

Ný ríkisstjórn verður að bæta kjör aldraðra og öryrkja verulega til viðbótar við þá litlu breytingu, sem samþykkt var á Alþingi áður en því var slitið fyrir kosningar, segir Björgvin Guðmundsson í grein í Fréttablaðinu í dag.

„Staðan núna er þessi: Aldraðir og öryrkjar, sem aðeins hafa lífeyri frá TR, hafa aðeins 185 þúsund á mánuði eftir skatt, giftir en einhleypir hafa 207 þúsund kr. eftir skatt. Þessar upphæðir hækka í 195 þúsund kr. eftir skatt um áramót fyrir gifta og í 227 þúsund á mánuði eftir skatt fyrir einhleypa. Þetta eru svo lágar upphæðir, að þær duga ekki til framfærslu. Samkvæmt neyslukönnun Hagstofu er meðaltalsneysla einhleypinga 321 þúsund kr. á mánuði, án skatta. Þessi upphæð er lágmark fyrir lífeyrisþega; samsvarar 400 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt.

Ný ríkisstjórn þarf að hækka lífeyrinn í þessa upphæð. Auk þess þarf að draga meira úr skerðingum tryggingalífeyris vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni. Að mínu mati og Félags eldri borgara í Reykjavík á að afnema skerðingar lífeyris TR vegna lífeyrissjóða og vegna tekna af vinnu og fjármagni í tveimur til þremur áföngum. Það er óeðlilegt að skerða lífeyri eldri borgara hjá almannatryggingum vegna þess að hann fái greiðslur úr lífeyrissjóði.

Almannatryggingarnar eiga að vera viðbót við lífeyrissjóðinn. Þetta verður að leiðrétta. Það þolir enga bið. Aðrar skerðingar á einnig að afnema. Með nýjum lögum um almannatryggingar var skerðing aukin vegna atvinnutekna; frítekjumark lækkað úr 109 þúsund kr. á mánuði í 25 þúsund kr. Það er afturför. Margir eldri borgarar, sem hafa verið á vinnumarkaðnum, hafa stigið fram og skýrt frá því að þeir geti ekki haldið áfram vinnu eftir þessa miklu skerðingu.

Vonandi hefur ný ríkisstjórn meiri skilning á kjörum eldri borgara en fráfarandi ríkisstjórn,“ segir Björgvin ennfremur í grein sinni. Greinina í heild er hægt að lesa hér. 

Ritstjórn desember 8, 2016 11:21