Tæplega 200 áhugasamir kaupendur

Gísli Jafetsson

Gísli Jafetsson

„Við munum keppast við að byggja hagkvæmt. Okkar hlutverk er að gera góða samninga við verktaka,“ segir Gísli Jafetesson framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík. Fyrsta skóflustungan að byggingu 52 íbúða í Árskógum 1-3 í Mjódd var tekin í gær. Íbúðirnar sem verða byggðar verða frá 65 fermetrum og upp í 130 fermetra og er áætlað að bygging þeirra taki 1,5 til 2 ár. Gísli segir að 195 séu komnir á lista yfir áhugasama kaupendur. Eftir tvo mánuði verður farið að ræða við þá sem sýnt hafa áhuga á að kaupa og þá ætti að fara að skýrast hvað íbúðirnar koma til með að kosta.

FEB hefur frá upphafi byggt rúmlega 400 íbúðir fyrir félagsmenn sína.  Síðasta húsið var byggt í Fagrabergi í Breiðholti árið 2013, en í því húsi eru 50 íbúðir.  Íbúðirnar sem byggðar verða í Árskógum eru eingöngu ætlaðar félagsmönnum í Félagi eldri borgara í Reykjavík.  Kaupendur geta ekki selt íbúðirnar fyrstu þrjú árin og ef þeir vilja selja eftir það hefur félagið eftirlit með endursölu íbúðanna. Verð þeirra er framreiknað upphaflegt söluverð, bundið þróun vísitölu neysluverðs.  Það verður óheimilt að leigja íbúðirnar í skammtímaleigu eða til gistiþjónustu.

 

 

 

 

 

 

 

Ritstjórn ágúst 24, 2016 11:57