Tíu stefnumótaráð fyrir konur fimmtugar og eldri

Lisa Copeland

Lisa Copeland

Lisa Copeland, rit- og  pistlahöfundur er sérfræðingur í ráðgjöf til einstaklinga sem eru á lausu. Greinar eftir hana má meðal annars nálgast á vef Huffington Post. Við rákumst á þessa grein eftir hana þar sem hún gefur konum á miðjum aldri ráð um hvernig þær eigi að bera sig að langi þær að komast í samband.

  1. Settu þér stefnumótamarkmið til lengri og skemmri tíma og skrifaðu þau niður. Skammtímamarkmið mín voru annars vegar að hitta nýja og athyglisverða menn og hins vegar að skemmta mér vel á stefnumótum. Langtímamarkmiðið var að vera í föstu langtímasambandi. Hvort tveggja virkaði vel fyrir mig og getur gangnast þér á sama hátt þegar þú byrjar þína vegferð.
  2. Hættu að búa þér til afsakanir til þess að fara ekki á stefnumót. Ég heyri konur segja: „Nú er ekki rétti tíminn“ eða þær telja sig þurfa að losna við 5 kíló áður en þær geta svo mikið sem hugsað um stefnumót. Þessi hugsanagangur orsakast af ótta. Ef þér líður svona er best að taka mjög lítil skref og láta nægja að kíkja aðeins á eina stefnumótasíðu á netinu. Þegar þú hefur tekið eitt skref og uppskorið einhver viðbrögð er næsta skref mun auðveldara.
  3. Að skilja tungutak karlmanna. Það að skilja ekki það sem karlmenn segja og heyra gæti verið sú fyrirstaða sem kemur í veg fyrir að þú kynnist góðum manni. Karlmenn eru ekki vanir því að tala um tilfinningar sínar en þeir eru samt mun meiri tilfinningaverur en þig grunar. Þeir vita einfaldlega ekki hvernig á að tjá tilfinningar sínar, þökk sé uppeldi þeirra.
  4. Hættu að gera allar þessar kröfur um hvað einn maður verður að uppfylla, bara til þess að komast á stefnumót með þér. Það er miklu mikilvægara að finna mann sem fær þig til að hlæja og opna þig heldur en að finna mann sem er yfir 180 cm á hæð.
  5. Farðu út úr þægindahringnum og farðu á stefnumót með mönnum sem falla ekki að þinni venjulegu manngerð. Sú manngerð hefur jú hingað til ekki gert þig glaða svo því ætti slíkur maður að gleðja þig nú?
  6. Hvort sem þú hugsar að þú getir eða getir ekki hefurðu rétt fyrir þér. Henry Ford sagði þetta um bílaframleiðslu. Þetta á reyndar við um alla þætti lífsins, líka það að finna góða menn og fara með þeim á stefnumót.
  7. Láttu hjartað en ekki hugann ráða. Það er ekki víst að hjarta þitt samþykki manninn sem hugur þinn velur. Mundu að hugur þinn reynir ávalt að halda þér öruggri og innan þægindaramma þíns. Hjarta þitt vill að þú upplifir ást og aðdáun sem eru eiginleikar sem þú vilt að séu til staðar í langtímasambandi.
  8. Hættu að vera ósýnileg á netinu og uppfærðu prófíl þinn á netinu með mjög góðum myndum og hlýlegum orðum. Karlmenn ganga fyrir því sýnilega og vilja sjá þig og fallegt bros  en ekki myndir af kettinum þínum, útsýni úr síðasta sumarfríi eða af uppáhaldsfötum þínum hangandi á herðatré.
  9. Stefnumót geta verið erfið og þreytandi. Það er mikilvægt að taka sér hlé frá þeim hvenær sem þú þarft á hvíld að halda og tengjast öðrum hlutum sem hafa gildi í þínu lífi. Að því loknu verður þú tilbúin í næsta stefnumót.
  10. Skemmtu þér og njóttu þess að kynnast einhverjum nýjum og athyglisverðum. Allir eiga sér sögu, þitt hlutverk er að komast að því hver saga hans er. Það gerir stefnumótið mun skemmtilega.

 

 

Ritstjórn júlí 20, 2016 12:26