aukakíló – Lifðu núna

Svona náði ég af mér aukakílóunum
Jóhanna M. Einarsdóttir

Jóhanna Margrét Einarsdóttir ritstjóri skrifar

Margir setja sér markmið í upphafi nýs árs og það gerði ég í fyrra. Ákvað að létta mig eða taka til í holdafarinu eins og hún Steinunn Þorvaldsdóttir líkamræktarkennari sagði svo eftirminnilega í pistli á Lifðu núna á síðasta ári. Það gerðist hins vegar ekkert nema ég lét mig dreyma um að léttast en það léttist víst enginn af draumunum einum saman. Sumarið leið og ég var jafn þung og í upphafi árs.

Undanfarin misseri hef ég af og til verið í tímum hjá líkamsrækt JSB í Lágmúlanum. Þar komst ég ekki hjá því að heyra um TT námskeiðin, frá Toppi til táar. Hafði raunar hitt konur sem höfðu náð undraverðum árangri í að léttast á þessum námskeiðum. Ég ákvað að slá til og hóf leika um mánaðamótin ágúst/september. Það voru þrír morguntímar í viku og svo mátti mæta í opna tíma eða tækjasalinn þegar maður vildi. Auk þess var fundur með Báru einu sinni í viku þar sem hún kenndi okkur sitthvað nytsamlegt sem lýtur að þyngdartapi.

Ég ákvað að mæta þrisvar í viku, fannst það alveg nóg. Í annarri viku fjölgaði ég skiptunum upp í fjögur og í þeirri þriðju í fimm skipti á viku. Mér fannst einfaldlega tímarnir svo fjölbreyttir og skemmtilegir að mig langaði að mæta oftar. Það gekk hins vegar brösuglega með þyngdartapið.  Í byrjun léttist ég  ekki neitt, en ég þyngdist ekki heldur. Að þremur vikum liðnum og svo sem einu kílói var ég farin að örvænta. Þetta var ekki það sem ég sá fyrir mér þegar ég lét mig dreyma um að megrast á ógnarhraða og ná fyrri þyngd á undraskömmum tíma. Samt fannst mér ég vera að gera allt rétt, borðaði eins og spörfugl og hreyfði mig helling. Ég bar mig upp við Báru og kennarana og kvartaði sáran. Svarið sem ég fékk var að ég borðaði annaðhvort of mikið eða hreyfði mig ekki nóg. Svo var stungið upp á því að ég fjölgaði dögum þar sem ég borðaði létt og léti súpu eða annað léttmeti duga í kvöldmat. Það hreif.

Ég byrjaði að léttast og eftir sex vikur var ég orðin tæpum fjórum kílóum léttari en í upphafi. Þetta var langt í frá línuleg létting, ég þyngdist og léttist á víxl -en kílóunum fækkaði smátt og smátt. Ég ákvað að taka annað sex vikna námskeið og það gekk ágætlega þangað til í áttundu viku, þá hætti ég að léttast. Hélt þó áfram að mæta vel og borða skynsamlega. Svona gekk þetta í þrjár vikur en þá  fór kílóunum aftur fækkandi.  Í þrettándu viku voru tæp tíu kíló farin. Ég orðin öll önnur búin að ná mínum markmiðum og komin í „rétta þyngd“. Ég ákvað samt að halda áfram og klára sextán vikur. Ég léttist um rúmt kíló til viðbótar, ákvað gera það svo ég hefði upp á eitthvað að hlaupa um jól og áramót sem var mjög góð ákvörðun því ég þyngdist um næstum tvö kíló í fríinu.

Allir sem eru á TT fá matarplan til að styðjast við og fjöldann allan af góðum uppskriftum. Ég fylgdi planinu gróflega, borðaði að vísu sjaldnar en gert var ráð fyrir, tók svokallaða 17:7  föstu, en hún er þannig að maður fastar í 17 tíma, en má boða innan 7 tíma rammans. Það hentaði mér einfaldlega að gera þetta þannig. Öðrum hentar kannski eitthvað annað. Hver og einn verður að finna sinn takt. Það er ekkert einfalt að ætla að skafa af sér aukakílóin en það hefst. Mér fannst ég líka læra margt nytsamlegt á TT námskeiðunum svo sem að taka léttan dag á eftir matarmiklum degi. Yfirleitt veit fólk hvort það er að fara í veislur eða í matarboð með einhverjum fyrirvara. Ég fór í mínar veislur og í flest þau matarboð sem ég var boðin í. Ég undirbjó mig hins vegar undir boðin, með því að taka tvo til þrjá létta daga áður og fá mér að borða heima áður en ég mætti. Eitt til tvö egg eða hafragrautssletta kemur í veg fyrir að maður freistist um of. Svo er það framhaldið, nú er ég ekki lengur á TT og hef ekki það utanumhald sem ég hafði þar. Ég ætla hins vegar að halda áfram að mæta í ræktina fjórum til fimm sinnum í viku og vigta mig reglulega. Ég veit að fenginni reynslu að það er auðveldara að ná af sér tveimur til þremur kílóum sem geta safnast upp þegar maður fer í frí, heldur en ef maður leyfir þessu að danka og kílóin verða tíu, tuttugu eða enn fleiri. Svo er að viðhalda þessu þyngdartapi um það mun ég skrifa annan pistil í vor.

Varar við öfgum í mataræði
Það þarf skipulag til að megrast. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf að borða minna, helst minna en 2000 hitaeiningar á dag. Menn þurfa að vera duglegir að hreyfa sig og huga vel að næringunni. „Það eru engar aðrar töfralausnir til“, segir Bára Magnúsdóttir hjá JSB við konurnar sem mættu hjá henni eftir áramótin til að léttast. Hún segir meginatriðið að taka ákvörðun um að megrast „Þið léttist ekki ef þið viljið það ekki“ bætir hún við. Hún segir að ekkert sé jafn óhollt og að burðast með aukakílóin. Varðandi mataræðið varar hún við öfgum á borð við að sykur sé eitur. „Við þurfum að borða sykur“, segir hún „ og við þurfum að borða hveiti. Það er ekki hveitinu að kenna að við borðum of mikið brauð“ En það sé ágætis regla að forðast mjölmat, sætindi og fitu. Hún vill einnig taka pasta, kartöflur og hrísgrjón út fyrir sviga. Menn þurfi að passa sig á hitaeiningunum í þessum mat, en það sé hægt að lifa á honum eingöngu. En borði menn kartöflur og pasta og ALLT annað með þannig að hitaeiningarnar verði of margar „þá fitna þeir“ segir hún. Bára mælir með því að allir drekki sítrónuvatn daglega. „Það hreinsar og líkaminn starfar örar“, segir hún. Lýsið sé líka ómissandi. „Allir Íslendingar taka lýsi“ segir Bára. „Við sem búum hér í þessu myrkri verðum að gera það. Við þurfum að lifa við það að við höfum ekki sól, en við höfum lýsið og fyrir 50 árum vissi fólk það“. Bára ráðleggur 1-2 skeiðar af venjulegu þorskalýsi daglega. Hún segir konurnar eiga að ráða því hvort þær taki einhver bætiefni á meðan þær séu að megra sig. Venjuleg manneskja þurfi ekki nema 2200-2400 hitaeiningar á sólarhring, en vilji helst innibyrða 3400. „Svo eru helgar vikulega, jól og áramót, fimmtugsafmæli og þorrablót og þessu verðum við að stjórna segir Bára.

Enginn vandi að fitna aftur
Það er mikið rætt um holdarfar í hinum vestræna heimi, þar sem ofgnóttin af öllu hefur leitt til þess að margir missa heilsuna vegna offitu. Íslendingar hafa líka verið að þyngjast. Margir velta ugglaust fyrir sér hvað þeir eigi að vera þungir, hver sé hin rétta þyngd. Bára Magnúsdóttir hjá JSB segir að það fari eftir hæðinni. Ef manneskja er 1.70 m á hæð, er þumalputtareglan sú að hún eigi að vera 70 kíló. „En þá er hæsta tala sem hún má fara í 75 kíló“ segir Bára. Lægsta tala sé hins vegar 60 kíló. Ef menn fari undir það séu þeir farnir að fara illa með líkamann. En flestir finni hvaða þyngd hentar þeim og finni við hvaða aðstæður líkaminn starfi best. „Allir þurfa að missa 10-15 kíló. Allir. Námskeiðin hjá mér eru þjónusta, alveg eins og við kaupum þá þjónustu að lita rótina á hárinu. Fólk kemur aftur og aftur og það ber að líta á þetta sem þjónustu. Þó þú missir 50 kíló, er ekki hægt að lofa því að þú fitnir ekki aftur. Það er enginn vandi að fitna aftur, við skulum horfast í augu við það. Þetta er allt undir okkar stjórn. Ef við eyðum hálfri ævinni í yfirþyngd, þá er allt betra en að gera ekki neitt“. Bára áréttar við konurnar, sem koma til hennar, að þær hafi það algerlega í hendi sér hvort þær léttist eða ekki. Það sé þeirra ákvörðun. Enginn þurfi að vera í yfirþyngd nema sá sem vilji það. Meginmálið er að innibyrða ekki fleiri en 14000 hitaeiningar á sjö dögum og styrkja líkamann til að koma sér í gott form.

Þarf ekki að bera veislurnar utaná sér um ókomna tíð
„Ég hef borðað alltof lítið, ég hef eyðilagt brennsluna“, er setning sem Bára Magnúsdóttir hjá JSB segist stundum heyra. Þessu vísar hún alveg á bug. Ef við fitnum er það af því að við borðum of mikið en ekki of lítið“,segir hún og segir að það sé auðvelt að borða minna. „Meðalmanneskja þarf 2400 hitaeiningar á dag og ef við borðum minna en það verðum við svangar. Þess vegna skiptir ekki öllu máli hvort við borðum aðeins minna, eða hvort við minnkum matinn hressilega og léttumst, við verðum ekkert svengri fyrir það“, segir hún við konurnar sem sækja námskeið hjá henni til að losa sig við aukakílóin. Það sé jafnvel nóg að fá sér vatnssopa sé maður svangur. „Líkaminn á nóg, hann getur þá bara tekið af hægra lærinu“, segir hún og skellir sér á lær. Hún talar líka um sjö daga regluna. Þá skiptir máli hversu margar hitaeiningar þú innibyrðir sjö daga í röð. Ekki í einn og einn dag, heldur sjö daga. „Oft þegar maður er farinn að standa í stað, án þess að það sé meiningin, er gott að grípa til sjö daga reglunnar til að koma sér í gang aftur. Það ef nefnilega svo stutt bilið milli þess að standa í stað og að léttast“.

Ef þú ert undir 14 þúsund hitaeiningum í 7 daga í röð eru mestar líkur á að þú léttist.

Ef þú ferð í 16 þúsund hitaeiningar á sjö dögum, eru mestar líkur á að þú standir í stað.

Ef þú ferð í 17-20 þúsund hitaeiningar á dag, eru mestar líkur á að þú þyngist.

„Allir sem við þekkjum eru ofaldir“,segir Bára „líkaminn hefur svo mikla aðlögunarhæfni“. En hún segir að menn eigi að miða fæðuinntökuna við eina viku í einu, eða sjö daga. Ef menn borða of mikið einn dag vikunnar, er hægt að borða minna næsta dag og jafna þetta út, þannig að hitaeiningarnar fari ekki yfir 14000 á 7 dögum. „Þannig kemst maður í gegnum allar veislur lífsins án þess að bera þær utaná sér um ókomna tíð“, segir Bára.

Ekki föðurættinni að kenna að þú fitnar
Bára Magnúsdóttir hjá Dansrækt JSB í Reykjavík hefur árum saman hjálpað konum að léttast og er núna með stóran hóp kvenna sem beitir hennar aðferðum til að grennast. Þetta eru engin geimvísindi. Það gildi að borða minna og hreyfa sig. „Það eru hitaeiningarnar sem stjórna holdarfarinu, en næringin sem stjórnar heilsunni og útlitinu“ segir hún. „Það er hægt að borða lífrænt ræktaða fæðu og það er hægt að lifa á kóki og súkkulaðikexi – og grennast! Ég get verið þvengmjó og alveg að deyja úr aumingjaskap“ segir Bára sem fordæmir allar öfgar. Ekki borða þetta og ekki hitt, sykur er eitur. Hún blæs á svoleiðis bull.  Áður fyrr lifðu menn á því sem náttúran gaf. Þeir gátu borðað og fitnað þegar fæðan var næg á sléttunni, en lifað á forðanum þegar hún var minni og þá grenntust þeir. Þetta var nauðsynlegt.   Meðalmanneskjan þarf 2400 hitaeiningar á dag. En ef menn ætla að grennast þurfa þeir að borða minna en 2000 hitaeiningar daglega, kannski 1500-1800. Menn eiga ekki að sögn Báru að borða meira en 14000 hitaeiningar á sjö dögum. Ef við borðum of lítið léttumst við, segir hún. Það er nefnilega ekki galli að fitna, það er hæfileiki líkamans til að bregðast við og ef við gefum honum minna en hann þarf, fer hann að taka af forðanum „Það er ekkert óskiljanlegt við það að við fitnum og það er ekki af því að allir í föðurættinni séu feitir. Þú fitnar ekki af því sem aðrir borða. Þú átt nóg með þig, þó þú farir ekki að fitna af því sem föðurbróðir þinn borðar“, segir Bára og hlær.

Áður en þú veist af eru aukakílóin orðin 10
Bára Magnúsdóttir hjá Dansrækt JSB í Reykjavík segir að fólk fitni mest í janúar og ágúst. „Það er mánuðinn eftir jólin því fólk heldur áfram að leyfa sér að borða of mikið og mánuðinn eftir sumarleyfin, sem það sama gildir um“, segir Bára. Hún hefur í mörg ár haldið námskeið og hjálpað konum sem það vilja, að grennast, og nýlega voru tugir kvenna á fundi hjá henni, sem ætla að losa sig við aukakílóin. Hennar uppskrift er einföld. Ef fólk fitnar er það að borða meira en það þarf á að halda og þarf að temja sér að borða minna. Annars bætast aukakílóin smám saman við, það kemur eitt ár og svo annað og svo enn annað. Menn finna að þeir bæta á sig. „Æi þessi jakki er orðinn þröngur“, segja menn kannski án þess að gera nokkuð í málinu og eftir 10 ár eru aukakílóin orðin 10-15. „Ef þetta gerði ekkert til værum við ekki að tala um það, en þetta hamlar okkur“, segir Bára. Hún segir að kona í yfirþyngd vilji ekki fara í ákveðin föt og ekki fara í sólarlandaferðir. Þegar hún hins vegar ákveði að snúa af þessari braut og grennast þá geti hún klætt sig eins og hún vill og farið þangað sem hana lystir. Fyrsta skrefið til að grennast, sé að taka ákvörðun um að það og síðan þurfi að bretta upp ermar. „Við verðum að horfast í augu við hlutina“ segir Bára „og svo þarf að mæta, þetta er ekki fjarnám það verður að mæta á staðinn“. Bára segir að yfirþyngdin sé vond fyrir heilsuna, einkum stoðkerfið. Hún bendir á hversu mikilvægt það er að halda líkamanum í góðu formi, þannig að fólk geti gert það sem það langar til. Líkaminn sé stórkostlegur og það taki hann ekki langan tíma að megrast. Fólk finni svo hvað því líður miklu betur þegar það er komið í gott form.