Bjarni Harðarson – Lifðu núna

Meðal friðsamra bænda og hættulegra eiturlyfjabaróna
Þegar ekki gefst kostur á að ferðast sjálfur er næstbesti kosturinn að grípa ferðabók og ferðast í huganum á framandi slóðir. Það er svo ekki amalegt þegar höfundurinn er frábær ferðafélagi og opnar augu manns fyrir nýstárlegum sjónarhornum í mannlífi og umhverfi. Bjarni Harðarson gerir það listavel í Aleinn og mállaus.

Undanfarin ár hefur færst í vöxt að fólk kjósi að ferðast eitt. Ástæðurnar eru margvíslegar og margir segja að með því að vera einn á ferð dýpki upplifunin af umhverfinu og þeir kynnist fólki á annan hátt. Hvort svo er, er ekki gott að segja en Bjarni Harðarson er óvenjulega fundvís á áhugaverð sjónarhorn, litríkar mannlífsmyndir og skemmtilegar uppákomur. Bjarni hefur einstaka frásagnargáfu sem nýtur sín sérlega vel í Aleinn og mállaus.

Fyrsta frásögnin í bókinni segir af dvöl höfundar á samyrkjubúi í Ísrael árið 1982. Samyrkjubúin voru tilraun með búskaparform sem reynslan sýndi að gafst ekki vel. Bjarni strýkur þaðan og flækist um hér og þar í Ísrael og Palestínu og ræður sig í lausaverkefni hér og þar. Hann fær einnig birtar greinar um ferðir sínar í Morgunblaðinu. Ekki er að efa að dvölin þar ytra hafi verið ómetanlegur sjóður í reynslubanka ungs manns og hið sama gildir um ferðlag hans um Indland árið 1985 en þá ferð fór hann raunar ekki einn heldur í félagi við Björn Þorgilsson. Engu að síður reyndi þar á útsjónarsemi og dugnað beggja. Bjarni er þá starfandi blaðamaður og skrifar greinar um upplifun sína í Helgarpóstinn.

Það er hins vegar fullorðinn maður sem snýr aftur til Indlands árið 1997 í brúðkaupsferð með Elínu eiginkonu sinni og sér að margt er lítið breytt. Þau hjónin heimsækja einnig gamla miðstöð Dana frá nýlendutímanum sem minnir á að það voru fleiri en Bretar sem hér seildust til valda. En þarna eru líka ferðasögur frá Perú, Pakistan, Póllandi, Rússlandi og  Kólumbíu.  Margbreytilegu landslagi og mannlífi bregður fyrir augu og einnig brotum úr sögu landanna, þjóðsögum þess og sögnum.

Bjarni er ótrúlega fundvís á skrítna og skemmtilega hluti í tilverunni og einstaklega orðheppinn. Þetta samanlagt gerir þessa bók að sérlega ánægjulegri afþreyingu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Að eiga afmæli á jóladag
Mynd tekin 1966. Frá vinstri talið Atli bróðir Bjarna, Kristín Þóra systir hans í fangi Sigurrósar Guðlaugsdóttur ömmu, Bjössi frændi, Bjarni Sæmundsson afi með alnafna sinn í fanginu og sjálfur er Bjarni lengst til hægri og horfir  afglapalega út í loftið að eigin sögn.

“Mér þótti óneitanlega kostur að eiga afmæli á jóladag þegar ég var barn,” segir Bjarni Harðarson bóksali og fyrrum þingmaður. “Það er nefnilega þannig að börn geta ekki beðið eftir að rífa jólapakkana upp á aðfangadag og svo fylgir þessi tómleikatilfinning þegar það er búið. Ég var alveg eins en þá man ég að ég hugsaði alltaf að þetta væri allt í lagi af því ég fengi fleiri pakka á morgun,” bætir hann við og hlær.

“En svo eftir að ég náði fullorðinsárum hefur mér þótt afar þægilegt að eiga afmæli þennan dag því þá hef ég eiginlega sloppið við þetta vesen sem afmælisdögum fylgir gjarnan. Fyrir svona átjándu aldar mann eins og mig er bara erfitt að þurfa að halda upp á afmælið sitt ár eftir ár. Það á í raun bara að vera fyrir kóngafólk að eiga afmæli,” segir Bjarni og hlær. En hann segir að enn þá sé þetta þannig að hann fái alltaf pakka á jóladagsmorgunn og þykir það mjög notalegt.

Svo segir Bjarni frá því að afi hans, sem hann heitir í höfuðið á, hafi alltaf komið í heimsókn á jóladag. “Við vorum þrjú systkinin og ég er í miðjunni og þau eiga afmæli í janúar. Mér þótti þessi afi minn alltaf vera mikill karakter og mikil barnagæla. Mér var seinna bent á að ég hafi líklegast verið í miklu uppáhaldi hjá honum vegna nafnsins,” segir Bjarni og hlær. “Aðrir upplifðu hann ekki alveg eins og ég. Það var örugglega langt út fyrir hans ramma að kaupa gjafir og pakka inn, það var verk ömmu, en hann kom alltaf á hækjunum í heimsókn á jóladag. Við systkinin vorum gjarnan að leika okkur á afmælisdaginn minn og þá tók afi þúsundkrónaseðil  upp úr veskinu og það gerðist ár eftir ár. Hann hafði alltaf sama formálann um að það væri ekki hægt að skipta þessu jafnt af því við vorum þrjú en einingarnar tíu. Þess vegna ætti ég að fá einum fleiri af því ég ætti afmæli þennan dag. Þau fengu þá bara þrjú hundruð hvort en ég fékk fjögur hundruð. Þannig að það voru ýmsir kostir við að eiga afmæli þennan dag. Ég setti þetta sem sagt alltaf í samhengi við afmælið að ég fékk meira en hinir og annað var aldrei sannað.”

Bjarni segir að þessi afi hans hafi verið mikil fyrirmynd fyrir hann. “Hann lagði sig í framkróka um að kenna mér að vera skrýtinn og það tókst. Hann var þessi týpa sem iðkaði sérvisku. Ég dvaldi oft hjá þeim í Hveragerði og eitt sinn var ég að lesa skáldsögu eftir Jules Vernes þegar afi kom og sló með hækjunni undir kjölinn á bókinni sem þeyttist út í vegg. Hann spurði hvaða vitleysu ég væri að lesa þarna, fór í bókaskápinn og náði í stóran bunka af “Íslenskri fyndni”. Við settumst þá hvor á móti öðrum og lásum saman íslenska fyndni. Ég er enn að lesa þessi hefti eftir rúmlega hálfa öld og enn að reyna að átta mig á hvað er fyndið við þau. En það er svo merkilegt að þau eru ávanabindandi.” segir Bjarni hlæjandi  og ætlar halda áfram að vera skrýtinn.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.