bókmenntasaga – Lifðu núna

Margbrotið og innhaldsríkt líf í bókum
Líf í bókum eftir Halldór Guðmundsson er bókmenntasaga Íslands eins og hún á að vera. Bækurnar og/eða handritin eru settar í samhengi við það sem var að gerast í samfélaginu á hverjum tíma, höfundarnir kynntir og fjallað um áhrif skrifanna á lesendur, menn og málefni. Halldór hefur lag á að rekja söguna á líflegan og skemmtilegan hátt og senda huga lesenda á flug um brennandi Kaupmannahöfn, forn klaustur, baðstofur og bókaskápa í stofu betri borgara. Allt rúmast þetta nefnilega í heimi bókanna.

Það er ekki hægt að fjalla um bækur án þess að setja þær í samhengi við náttúru landsins, umhverfi, viðhorf, lífshlaup og aðstæður þeirra sem skrifuðu. Úr því spretta nefnilega hugmyndirnar og þess vegna lifa bækur, þær miðla til okkar sammannlegum tilfinningum, upplifunum og hugmyndum. Í þessari frábærlega vel unnu bók er gríðarlegan fróðleik að finna, mikilvægan, áhugaverðan og inn á milli gómsæta bita af alls konar upplýsingum um ævi og tengsl margra skálda og rithöfunda. Halldór gleymir ekki konum og dregur fram miklu fleiri skrifandi konur en sést hafa í nokkurri íslenskri bókmenntasögu fram til þessa.

Víða má sjá þess stað að ill örlög stjórna eða að fólk tekur afdrifaríkar og hræðilegar ákvarðanir sem öldur yfir tíma og rúm. Það verður seinni tíma skáldum uppspretta frábærra listaverka. Ari sýslumaður í Ögri gleymist til að mynda aldrei. Þau grimmilegu fjöldamorð sem hann stóð fyrir á baskneskum skipsbrotsmönnum er áreiðanlega versta illvirki Íslandssögunanr. Einn maður stóð gegn honum og fordæmdi glæpinn. Það kostaði hann mikið og það varð Sjón uppspretta að skáldsögunnar Rökkurbýsnir. Gunnar Gunnarsson fann einnig sagnabrunn í voðaverkum á Sjöundá á Rauðasandi í Svartfugli, Hannah Kent lýsir inn í sál Agnesar Magnúsdóttur í Náðarstund og margar fleiri slíkar mætti nefna. Ekki hvað síst vegna þess hve oft þessi skáldverk varpa nýju ljósi á atburðina og lesandinn fær iðulega samúð með gerendunum.

Halldór fer yfir þessi ríflega þúsund ár sem byggð á Íslandi hefur varað og tínir til svo ótal margt um tengsl okkar við umheiminn, hvernig áhrif frá Evrópu bárust hingað og líka hvernig Íslendingar unnu úr þeim og gerðu að sínum. En þetta er ekki bara saga bóka og tengsla þeirra við mannlíf og staði. Hér er einnig reynt að kafa ofan í menningararfinn og hvers vegna Íslendingar urðu svo elskir að sögum og því að flétta saman orðum, er það keltnesku ræturnar sem ráða því, náttúran og umhverfið eða eitthvað allt annað? Halldór skrifar einstaklega skemmtilegan og læsilegan stíl og það er hrein unun að lesa þessa bók.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.