Borgin og blómin – Lifðu núna

Reykjavík í nýju ljósi
Á nýopnaðri sýningu á Borgarbókasafninu Grófinni býður listakonan Una Erlín gestum og gangandi að upplifa Reykjavík í nýju ljósi.

Borgin og blómin nefnist ný sýning listakonunnar Unu Erlínar sem hefur verið opnið á Borgarbókasafninu Grófinni. Á sýningunni má sjá verk sem byggja á ljósmyndum af mannvirkjum og gróðri í Reykjavík, teknar á tímabilinu 25. maí til 25. ágúst.

Myndirnar eru framkallaðar með svokallaðri cyanotype aðferð, þar sem að ljósnæmt efni gerir myndinina sýnilega með geislum sólarinnar. Myndefni af mannvirkjum og gróðri er skeytt saman og þannig myndast súrrealísk draumaveröld þar sem að hið manngerða og hið náttúrulega blandast saman, en með verkunum veltir listakonan upp þeirri spurningu hvort hægt sé að upplifa fegurð náttúrunnar innan borgarmarkanna.

Una Erlín er nýútskrifuð úr BA námi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur mikin áhuga á náttúru og útivist og eyðir miklum tíma á grænum svæðum borgarinnar.

Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins og stendur yfir til 24. október.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!

Um sýninguna:

https://borgarbokasafn.is/borgin-og-blomin