dagdvöl – Lifðu núna

Málefni aldraðra flytjast milli ráðuneyta
Á vef Stjórnarráðsins birtist í dag tilkynning um nýja skipan þjónustu við aldraða. Málefni aldraðra að undanskilinni heilbrigðisþjónustu flytjast nú til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Húsnæðismál öldrunarstofnana verða hér eftir á forræði þess, sömuleiðis Framkvæmdasjóður aldraðra og dagdvalarrými. Í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins kemur eftirfarandi fram:

Forsetaúrskurður um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráðinu tekur gildi á morgun, líkt og greint er frá í frétt á vef forsætisráðuneytisins í dag. Ýmsar breytingar verða á skiptingu öldrunarmála milli heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem fær jafnframt nýtt heiti, þ.e. félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Hér er gerð nánari grein fyrir því hvað í breytingunum felst varðandi málefni aldraðra.

Eins og segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins flytjast málefni aldraðra, að undanskilinni heilbrigðisþjónustu, frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Í því felst eftirfarandi:

Húsnæðismál öldrunarstofnana verða á hendi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, í stað heilbrigðisráðuneytisins áður. Í því felst m.a. uppbygging hjúkrunarheimila, skipulag, áætlanagerð,  samningar um framkvæmdir og allt þar að lútandi.

Framkvæmdasjóður aldraðra flyst til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og eru veittir styrkir úr sjóðnum til framkvæmda við byggingu og endurbætur á t.d. hjúkrunarheimilum, dagdvölum aldraðra, þjónustumiðstöðvum o.fl. skv. reglugerð um sjóðinn.

Þjónusta við aldraða

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið ber samkvæmt forsetaúrskurðinum ábyrgð á opinni öldrunarþjónustu sem skilgreind er í lögum um málefni aldraðra. Í því felst að félagsleg heimaþjónusta verður á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytisins líkt og verið hefur og sama máli gegnir um ábyrgð á þjónustumiðstöðvum aldraðra sem sveitarfélögin starfrækja og þjónustuíbúðum aldraðra. Dvalarrými sem hafa verið á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins og þjónusta þeim tengd flyst til félags- og húsnæðismálaráðherra og sömuleiðis ábyrgð á almennum dagdvalarrýmum og þjónustu þeirra. Verkefnið Gott að eldast fellur einnig hér undir.

Heilbrigðisráðuneytið ber áfram ábyrgð á samningum við hjúkrunarheimili um rekstur þeirra og veitingu þjónustu og eftirlit með þjónustunni. Það ber einnig ábyrgð á heilbrigðistengdri heimaþjónustu við aldraða, þ.e. heimahjúkrun og annarri heilbrigðisþjónustu í heimahús. Slík þjónusta er víðast skipulögð og veitt af heilsugæslunni, nema þar sem um er að ræða samþætta heimaþjónustu. Heilbrigðisráðuneytið mun áfram bera ábyrgð á þjónustu í sérhæfðum dagdvalarrýmum.

Starfshópur um framgang og eflingu dagdvala á landsvísu
Rannsóknir hafa sýnt að fólki líður almennt betur og það heldur lengur heilsu sé því fært að búa á eigin heimili langt fram eftir aldri. Liður í því að tryggja að fólk geti verið heima er að það hafi aðgang að dagdvöl. Stað þar sem það getur verið yfir daginn, notið félagsskapar, aðstoðar og matar. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna að framgangi aðgerðar A.3 í áætluninni Gott að eldast sem fjallar um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu. Fréttatilkynning þess efnis birtist á síðu stjórnarráðsins í dag. Í henni segir:

Áformað er að gera fleirum kleift að nýta dagdvalarþjónustu, m.a. með öflugu samstarfi milli dagdvala og heimaþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir eldra fólks sem býr heima og fjölskyldur þess, sem eykur möguleika einstaklinganna á að búa lengur heima í stað þess að flytja á hjúkrunarheimili.

Gott að eldast, er aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna áranna 2024-2027 um þjónustu við eldra fólk, sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023. Alls telur hún 19 aðgerðir sem eru ýmist á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins eða félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem standa saman að aðgerðaáætluninni. Sveigjanlegri þjónusta

Starfshópnum er m.a. ætlað að endurskilgreina hlutverk dagdvala og markmið þjónustunnar þannig að hún styðji betur við þarfir fólks. Einnig að skýra hverjum þjónustan er ætluð og hvernig mat á þjónustuþörf skuli framkvæmt. Hópurinn á einnig að greina þörf fyrir almenn og sérhæfð dagdvalarrými og sömuleiðis þörf fyrir dagdvalarþjónustu með sveigjanlegan og/eða lengri opnunartíma. Á þessum grunni verði unnið að samningum um sveigjanlegum dagdvölum um allt land og að minnst 100 slík rými verði komin í notkun fyrir árslok 2027.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Þura B. Hreinsdóttir, fulltrúi Gott að eldast, formaður hópsins

Stefán Jóhannsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands

Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu

Hrönn Ljótsdóttir, tilnefnd af Landspítala, félagsráðgjafasviði

Lilja Petra Ólafsdóttir, tilnefnd af velferðarsviði Reykjavíkurborgar, heimaþjónustu

Berglind Magnúsdóttir, fulltrúi Gott að eldast

Elsa B. Friðfinnsdóttir, án tilnefningar.

Starfsmaður hópsins er Herdís Björnsdóttir, fulltrúi Gott að eldast

Starfshópurinn skal taka til starfa 1. nóvember 2024 og skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 1. mars 2025.