daglegt líf – Lifðu núna

Kjólahönnuðir sem Katrín kann að meta
Margar konur kunna mjög vel við að klæðast kjólum. Þeir eru vissulega þægilegir og eitt af því góða við slíkan klæðnað er að auðveldlega er hægt að breyta hversdagslegum kjól í sparilklæði með réttum fylgihlutum. Ein þeirra kvenna sem ber kjóla mjög vel er Katrín hertogaynja af Cambridge. Hér eru nokkrir breskir kjólahönnuðir í miklu uppáhaldi hjá henni. Þessi vörumerki eru svokölluð „slow fashion“ eða hægunnin tíska. Það þýðir að þeir leggja sig fram um að vinna á sjálfbæran hátt. Efnin eru valin með tilliti til þess að kolefnasporið sé sem minnst, sniðin eru klassísk svo flíkin endist lengur og hún er unnin á staðnum.

Meadows

Meadows er bandarískt fyrirtæki en á sér systur í Bretlandi L F Markey. Merkið er þekkt fyrir rómantískan, gamaldags fatnað. Sniðin eru kvenleg og falleg, útsaumur algengt skraut á blússum og kjólum. Mynstruð efni, fellingar og pífur eru sömuleiðis ómissandi hjá Meadows. Þeir segja að fatalínur þeirra sæki innblástur í þjóðsögur og ævintýri.

Rat & Boa

Rat & Boa hannar fyrir djarfar nútímakonur. Vinkonurnar, Valentina Muntoni og Stephanie Cara Bennett eru stofnendur og eigendur fyrirtækisins. Þær vilja skapa kvenleg og falleg föt, kjóla sem draga fram helstu kosti kvenlíkamans og fegra hann. Einkunnarorð þeirra snúast um að skapa minningar og þær vilja styrkja konur, efla sjálfstraust þeirra og opna augu þeirra fyrir eigin fegurð. Að auk leggja þær sig fram um að velja náttúruleg efni og huga vel að umhverfisvernd í allri sinni starfsemi.

Seraphina

Tímalaus fegurð er markmið Seraphinu. Sumarlína hennar er mjúk og hlýleg. Mildir pastellitir ríkjandi, rendur og blómamynstur. Í kjól frá Seraphinu er hægt að mæta í vinnuna, fara í kokteilboðið, spássera niður í bæ og skella sér í brúðkaup. Alls staðar eiga þeir jafnvel við.

Juliet Dunn

Juliet sækir innblástur til Austurlanda og hefur hafið mussurnar til vegs og virðingar aftur. Kjólar með pífum, útsaumi og böndum minna óneitanlega á hippatímann en passa sérstaklega vel í garðpartí og á sundlaugabakkann.

Sir the Label

Sir the Label er ástralskt merki. Púffermar, stuttir toppar og lagskiptir kjólar eru áberandi í sumarlínu þeirra. Markmiðið er að búa til og skapa fatnað sem hægt er að vera í hvar sem er. Skilin milli hversdagsflíka og spariklæðnaðar eru máð út. Kjólarnir þeirra eru kvenlegir og smart.

Ephmera

Ephmera er spennnadi merki. Það var stofnað af fyrrverandi nemanda Yves Saint Laurent Nicole Banning. Hún segist heillast af sveitastíl og leitast við að gefa honum franskt yfirbragð og glæsimennsku. Þótt kjólarnir hennar séu flottir er ekkert sem slær út sundboli frá henni.