Dagur B. Eggertsson – Lifðu núna

„Vona að Arna vilji ennþá búa með mér“
Fjölbreyttari búsetuúrræði fyrir eldra fólk voru umræðuefnið á Fundi fólksins á sunnudaginn, en fundurinn var haldinn um helgina í Reykjavík. Þátttakendur í umræðunni voru Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, og Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður í Landssambandi eldri borgara. Þau voru í lok umræðunnar spurð að því hvernig þau myndu vilja búa þegar þau eltust. Svör þeirra koma hér fyrir neðan.

María Fjóla Harðardóttir:

Ég myndi vilja fá að velja mína búsetu sjálf, hvort sem ég er í mínu eigin húsnæði eða öðru. Það yrði að vera húsnæði sem ég kemst vel um sjálf, með eða án hjálpartækja, eða þar sem ég er örugg og gæti fengið þjónustu. Að öðrum kosti vildi ég geta valið mér það hjúkrunarheimili sem ég vildi búa á og á þeim stað sem ég vildi eiga heima.

Þorbjörn Guðmundsson:

Ég er ekki tilbúinn að fara inn á stofnun, án þess að ég vilji gera lítið úr því. Ég vil búa í umhverfi sem er allra líkast því sem ég er í nú. Það er svolítið skrítin tilfinning á hverjum morgni þegar ég sest og fæ mér morgunkaffið, að þá eru allir að fara í vinnuna. Ég sit einn eftir. Það er dálítið erfitt.

Það sem er mikilvægast að gerist núna eftir kosningar er að það verði sett ráðuneyti sem sér um þennan málaflokk. Það eru núna tvö eða þrjú ráðuneyti sem fara með málefni eldra fólks. Það er algjörlega útilokað kerfi. Þetta ætti að vera forgangsatriði núna, að þegar ný ríkisstjórn sest að völdum, þá fái þessi málaflokkur mjög skýra stöðu í stjórnkerfinu.

Dagur B. Eggertsson:

Minn óskastaður yrði Reykjavík og ég vona að ég verði ekki úr hófi leiðinlegur og að Arna vilji búa með mér ennþá. Þetta eru lykilþættirnir. Ég hugsa að ég þurfi lyftuhús og ég vona að það verði stutt í alla þjónustu, stutt á barinn, og stutt í samneyti við annað fólk, það er það sem gefur lífinu gildi í dag og alla daga, og það mun án efa ekki minnka þegar árin færast yfir.

Fasteignagjöld Reykvíkinga lækkuð og felld niður hjá þeim tekjulægstu
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði til í borgarráði í morgun, að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík, yrði lækkaður úr 0.2% af fasteignamati í 0.18%, eða um 10%. Þá voru samþykktir auknir afslættir af fasteignagjöldum og fráveitugjöldum til eldri borgara og öryrkja sem mið taka af tekjum þeirra.  Dagur segir þessa lækkun til komna vegna mikilla hækkana á fasteignaverði á undanförnum árum, en fasteignaskattar taka mið af metnu virði fasteignar. „Þessi lækkun er til þess gerð að milda áhrifin af fasteignaverðshækkunum en auk þess erum við að taka sérstakt tillit til aldraðra og öryrkja með auknum afsláttum,“ segir Dagur.

Afslættir til eldri borgara og öryrkja :

Viðmiðunartekjur

I. Réttur til 100% lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að 3.910.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 5.450.000 kr.

II. Réttur til 80% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 3.910.000 til 4.480.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 5.450.000 til 6.060.000 kr.

III. Réttur til 50% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.480.000 til 5.210.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 6.060.000 til 7.240.000 kr.

Áhrif skattalækkunarinnar á borgarsjóð eru um 456 milljónir á næsta ári en uppsafnaður munur til loka ársins 2022 um 2,6 milljarðar króna  miðað við fimm ára fjárhagsáætlun borgarinnar.

Tillaga um fasteignaskatta er hluti af fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem tekin verður til fyrri umræðu í borgarstjórn 7. nóvember nk.

Ókeypis menningar- og heilsukort fyrir fólk á besta aldri
Dagur B. Eggertsson

Borgrárráð samþykkti nýlega tillögu Dags B. Eggertssonar borgarsjóra um að taka upp  Menningar- og heilsukort eldri borgara í Reykjavík frá og með komandi hausti. Kortið á að nýtast öllum Reykvíkingum sem hafa náð 67 ára aldri til að fá endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum og menningarstofnunum sem reknar eru af borginni. Þessir afslættir hafa þegar verið innleiddir í fjárhagsáætlun ársins, en töluverð brögð eru að því að eldri borgarar þekki ekki til þessara fríðinda eða nýti sér þau ekki til heilsubótar og menningarauka. Í greinargerð sem lögð var fram með tillögunni segir að tillaga um „frístundakort eldri borgara“ hafi verið ein af tillögunum sem starfshópur um heilsueflingu aldraðra vann undir forystu Ellerts B. Schram, núverandi formanns Félags eldri borgara (FEB) í Reykjavík og nágrenni. Með nýju Menningar- og heilsukorti Reykjavíkurborgar er tekið undir áðurnefnda tillögu. Þegar kortið verður orðið að veruleika má tengja það frekari fríðindum líkamsræktarstöðva eða fyrirtækja sem veita eldri borgurum afslætti og verði það útfært og innleitt í samráði við FEB.