Eldri feður – Lifðu núna

Ekkert mál að verða faðir 59 ára
Jörgen De Mylius

Útvarpsmaðurinn Jörgen De Mylius var kominn á sextugsaldur og átti þrjú uppkomin börn. Hann eignaðist nýja konu, nokkru yngri, en hann og hún vildi eignast fleiri börn. Rætt var við Jörgen á vef danska ríkisútvarpsins. „Allt í einu stóð ég frammi fyrir spurningunni á ég að eignast eitt barn til viðbótar,“ segir hann og það gerði parið. Þá var Jörgen 55 ára. Fjórum árum síðar eignuðust þau annað barn sem í dag er orðið ellefu ára gamalt. Yngri en yngstu barnabörnin hans. „Ég er nýbúinn að vera í foreldraviðtölum í skólanum með henni,“ segir hann og bendir á að tímarnir hafi breyst og fólk lifi orðið lengur. „Ég man þegar ég eignaðist annað barnið mitt þá var umræða um það í blöðunum að maður væri eigingjarn. Að eignast barn væri að vera eigingjarn. Það er rugl.“

Nýbökuðum feðrum á aldrinum 50 til 59 ára hefur fjölgað um 162 prósent síðustu þrjá áratugi í Danmörku. Flestir þeirra áttu börn á yngri árum og eyddu ómældum tíma í að skipta um bleyjur og koma syfjuðum börnum af stað á morgnana. Flestir þeirra hlökkuðu til að börnin yrðu meira sjálfbjarga. Jörgen hafði hins vegar engar áhyggjur af þessu þegar hann átti yngri börn sín. „Ég átti  ekki í neinum vandræðum með að skipta um bleyjur. Föðurhlutverkið hefur ekkert vafist fyrir mér. Þvert á móti. Ég hef fengið að upplifa að verða faðir á tveimur mismunandi tímaskeiðum og er þakklátur fyrir það.“ Hann ráðleggur hins vegar eldri mönnum sem vilja eignast börn að spyrja sig að því hvort þeir séu nógu hraustir, hvort þeir hafi arfgenga sjúkdóma og hvort þeir telji sig geta sinnt föðurhlutverkinu. „Ef þeim finnst þeir geta þetta er allt í lagi fyrir þá að eignast börn. Það er hvers og eins að meta það fyrir sjálfan sig,“ segir hann.

Eldri feðrum fjölgar
Fjöldi eldri karlmanna sem eignast börn hefur aukist mikið í Danmörku.  Þetta kemur fram á vef danska ríkisútvarpsins. Þar segir að fleiri og fleiri karlar sem eru komnir yfir fimmtugt og sextugt eignist börn.  Það má sjá svipaða þróun hér ef tölur Hagstofunnar eru skoðaðar, en fjölgunin er þó mun minni hér en í Danaveldi. Sextugir karlar sem eignast börn eru fáir hér á landi.

Fimmtugum feðrum fjölgar um 65%

Meðalaldur karla í Danmörku þegar þeir verða feður, er 33, 5 ár. En stöðugt fleiri karlar eignast börn síðar á ævinni. Frá 1986 – 2015 jókst fjöldi feðra á aldrinum 50-59 ára um 162%. Fjöldi feðra sem eignuðust börn rúmlega sextugir á þessu sama tímabili jókst um 176%.  Árið 1986 eignuðust 23 karlmenn á aldrinum 50-59 ára börn hér á Íslandi, en í fyrra árið 2015 voru feður sem eignuðust börn á þessum aldri 38. Það er 65% aukning í barneignum eldri karlmanna.  Fyrir nær þrjátíu árum, árið 1986 var einn faðir sem eignaðist barn þegar hann var sextugur, en þetta ár var enginn íslenskur faðir skráður eldri en það þegar hann eignaðist barn. Árið 2015 voru hins vegar 7 íslenskir feður sem eignuðust börn þegar þeir voru á aldrinum 60-69 ára.

Sextugir karlar lifa lengur en áður

Danska ríkisútvarpið ræðir við Lísbeti B. Knudsen félagsfræðing við háskólann í Álaborg um ástæður þessa. Hún segir að fleira og fleira fólk, skipti um maka á lífsleiðinni og oft vilji menn eignast barn með nýjum maka. Hún segir að það sé líka auðveldara núna fyrir sextuga karla að eignast börn, því þeir lifi lengur en áður.

Eldri feður kunna að hafa meira að gefa

Kenneth Reinicke sem er vísindamaður við Háskólann í Hróarskeldu og rannsakar stöðu karla, segir að eldri feður geti haft meira að gefa en yngri feður, því þeir hafi reynslu af því að vera feður. Á móti komi að eldri feður muni ekki eiga jafn mörg ár með barninu sínu og yngri feðurnir.