Eldsins ógn – Lifðu núna

Fádæma vel unnin bók um verstu hörmungar Íslandssögunnar
Í Eldsins ógn fjallar Illiugi Jökulsson um Skaftárelda og móðuharðindin. Þessar ógnvænlegu náttúruhamfarir sem nánast þurrkuðu út þjóðina og allan búsmala landsins. Margar sögur lifa í munnmæli frá þessum tíma, bæði hetjusögur og skelfilegar frásagnir af örlögum manna og dýra. Illugi vinnur fádæma vel úr öllu og gerir þessa sögu aðgengilega og áhugaverða.

Illugi er frábær rithöfundur og hefur lag á að koma hlutunum til skila á skilmerkilegan og skýran hátt, tekur hann fram að hann hafi skrifað bókina fyrir almenning. Honum tekst að gera efnið mjög aðgengilegt og stundum spennandi. Bók eins og þessi á líka sérstakt erindi í dag þegar nýlega hafa gengið yfir eldsumbrot á Reykjanesskaga og ekki alveg víst að þaðan sé ekki frekari tíðinda að vænta. Þeir atburðir hafa sannarlega minnt okkur á í hvers konar landi við búum og hvað getur gerst hér.

Allir Íslendingar þekkja frásagnir af móðuharðindunum og margir hafa lesið um þau og vita þess vegna vel hversu eyðileggjandi þau voru. Eldarnir stóðu yfir í á þriðja ár og harðindin eftir það í um það bil tvo áratugi. Stundum er talað um að meira en öld hafi tekið að byggja aftur upp bústofn og bæi sem þá fóru í eyði.

Illugi tengir hamfarirnar hér á landi við atburði úti í heimi og gerir manni ljóst hversu víðtæk og margvísleg áhrif þeirra voru. Þótt Íslendingar hafi borið hitann og þungann af hörmungunum fer ekki hjá því að svo stórkostleg eldsumbrot nái ekki að teygja arma sína víða. Hann nýtir sér samtímaheimildir um eldanna m.a. ævisögu séra Jóns Steingrímsonar með eftirtektarverðum hætti.

Það verður einnig að nefna hversu einstaklega vel þessi bók er úr garði gerð. Umbrotið er sérlega fallegt, hún prýdd ótal myndum og kápan án efa eins sú allra fallegasta í jólabókaflóðinu að þessu sinni. Illugi hefur unnið mikið og gott verk með því að skrifa þessa bók og hún ætti að vera til á öllum heimilum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.