Eljer Borch – Lifðu núna

Vélvirkjaneminn með vélbyssuna
Síðasti spellvirkinn er einstök heimildasaga um starf dönsku andspyrnuhreyfingarinnar í seinni heimstyrjöldinni. Höfundurinn Anders Hauch Fenger gengur svo langt að segja að hann telji að hugrekki þeirra sem fóru gegn ofurefli þýska hersins hafi komið Danmörku á kortið og sýnt heiminum að þar færi þjóð meðal þjóða. Danir væru verðmætir bandamenn.

Það er vel hugsanlegt að hann hafi rétt fyrir sér, í það minnsta er öruggt að ekki er hægt annað en að dást að fólki sem er tilbúið að fórna svo miklu fyrir aðrar manneskjur og málstað sem það trúir á er aðdáunarvert og ekki hægt annað en að bera virðingu fyrir því. Bæði Norðmenn og Danir sýndu ótrúlega útsjónarsemi og skipulagningu í starfi andspyrnunnar gegn hernámi Þjóðverja.

Í Síðasta spellvirkjanum kynnast lesendur Eljer Borch, manni sem í dag er níutíu og átta ára og hefur aldrei fengist til að tala um tímann þegar hann ungur lærlingur í vélaverksmiðju í Danmörku stríðsáranna tók þá ákvörðun að ganga til liðs við BOPA, einn arm dönsku andspyrnuhreyfingarinnar. Eljer lætur til leiðast að tala við blaðamanninn Anders fyrir þrábeiðni barnabarns síns, Josefíne og vegna þess að þrettán ára drengur, Jonathan, skrifar honum bréf til að þakka honum fyrir sitt framlag í stríðinu.

Eljer er kominn af verkafólki. Pabbi hans var meindýraeyðir og dó langt fyrir aldur fram vegna eitursins sem hann notaði til að eyða veggjalús í íbúðum lágstéttafólks. Móðirin er saumakona og verulega reynir á hana eftir að faðirinn fellur frá. Eljer á átta systkini og þau fara öll ung að vinna. Móðirin reynir eftir fremsta megni að veita þeim einhvers konar menntun og heldur Eljer í skóla þótt kennarinn hans mæli með öðru. Heima fyrir er komið fram við systkinin af sanngirni og virðingu en það er ekki endilega það viðmót sem mætir þeim í skólanum eða vinnunni. Eljer þróar með sér skarpa dómgreind og djúpstæða réttlætiskennd. Kannski var það ástæða þess að hann ákveður að taka til vopna gegn innrásarliðinu.

Anders Hauch Fenger nær að fanga andrúmsloft stríðsáranna í Danmörku einkar vel. Hann fer yfir stjórnmál þessa tíma af innsæi og segir frá grimmdarverkum danskra nasista, undirlægjuhætti danskra stjórnmálamanna, þeim sem kusu að leika tveimur skjöldum og þeim sem reyna í lengstu lög að fara með veggjum, taka ekki afstöðu. Umfram allt nær hann að skýra hvers vegna ungur maður er tilbúinn að leggja sig í stórhættu til að koma dæld á stríðsvél Þjóðverja. Hann dregur einnig upp mjög skýra og raunsanna mynd af Eljer Borch, bæði ungum og öldnum. Þetta er mjög athyglisverð saga og fengur fyrir þá sem hafa áhuga á því að velta fyrir sér hugrekki og hvað rekur fólk til að berjast fyrir málstað sem það virkilega trúir á.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.