Eva Björk Ægisdóttir – Lifðu núna

Spennandi tilraun sem tekst vel
Starf rithöfundarins er í hugum fólks einmanalegt og flestir sjá fyrir sér mann einn að störfum, ígrundandi löngum stundum og á gangi talandi við sjálfan sig. Kannski á þetta vel við en ekki alltaf. Þau Eva Björg Ægisdóttir og Jérôme Loubry hafa tekið höndum saman og skrifað saman glæpasögu, Myrkravald. Þau feta þar með í fótspor margra para sem skrifa saman en munurinn á þeim og flestum öðrum slíkum er að þau voru hvort í sínu landi meðan á vinnunni stóð og tala ekki sama tungumál.

Það er nokkuð algengt að pör standi að baki vinsælum sakamálasögum og nefna má t.d. Nicci French, en það eru hjónin Nicci Gerrard og Sean French sem eru að baki því nafni, Sjöwall og Wahlöö voru sömuleiðis hjón, Liv Constantine er skáldanafn systranna, Lynne og Valerie Constantine, að baki Lars Kepler eru hjónin Alexander og Alexandra Ahndoril og ekki má gleyma þeim Katrínu Jakobsdóttur og Ragnari Jónassyni sem eru vinir. Án efa væri hægt að finna fleiri samhenta einstaklinga sem hafa kosið að fara þá leið að skrifa í sameiningu en þessi tilraun þeirra Evu Bjarkar og Jérôme er bráðskemmtileg.

Reyndar var það að undirlagi stjórnenda glæpasagnahátíðarinnar Quais du polar að þau settust hvort við sína tölvu og hófu að skiptast á köflum. Sú hátíð er haldin í Lyon ár og hvert og allt að 100.000 manns koma þangað árlega til að njóta þess að skoða og lesa nýútkomnar glæpasögur.

Myrkravald er stutt en þéttskrifuð og spennandi saga. Hún kemur ekki sérlega mikið á óvart en höfundum tekst engu að síður að halda lesendum við efnið. Það er oft skemmtileg þraut þegar pör skrifa að velta fyrir sér hvort þeirra hafi lagt til hvaða hluta en hér fer það ekki á milli mála. En bókin er fínasta afþreying og bráðsnjöll tilraun.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.