ferðalög – Lifðu núna

„Annað hvort að fara núna eða ekki“
Hjónin Sigríður Guðmundsdóttir og Kristján Eysteinsson hafa dvalið langdvölum í löndum sem eru Íslendingum almennt framandi og fjarlæg. Það var vegna starfa sinna en nú þegar bæði eru hætt að vinna hafa þau valið að skoða sig enn frekar um í heiminum og eru nýkomin úr ferð til Kína og höfðu áður skoðað Japan. Sigríður er hjúkrunarfræðingur og Kristján tæknifræðingur. Hún vann lengi fyrir Rauða krossinn og kom að björgunar- og hjálparstarfi víða en hann vann lengi fyrir dönsku þróunarsamvinnustofnunina Danida meðal annars í Tanzaníu.

En hvað fannst þeim um Kína?

„Það var svo margt að upplifa og allt svo nýtt og stórkostlegt á hverjum degi,“ segir Sigríður. „Þegar maður kemur heim verður maður að fara í gegnum myndirnar og bæklinginn til að rifja það allt upp.“

Í vinnu þinni fyrir Rauða krossinn fórstu víða og um slóðir sem fáir Íslendingar feta. Var þetta samt allt nýtt fyrir þér?

„Jú, það er rétt ég var að vinna fyrir Rauða krossinn en ég var aðallega í Afríku,“ segir hún. „Ég var reyndar í Thailandi þegar Khmera-stríðið var. Það var mín fyrsta ferð. Það var í kringum 1980 og fólkið flúði stríðið yfir til Thailands. Kristján bjó líka í Tanzaníu í mörg ár.“

„Þetta var eftir að Nyerere tók við völdum,“ segir hann. „Allt innviðakerfið var í rúst. Þarna er framleitt gríðarlega mikið af kaffi og alls kyns landbúnaðarvörum og kaffiverksmiðjur, sementsverksmiðjur og fleira var komið í niðurníðslu eftir langvarandi óstjórn. Danida tók að sér að endurreisa þessi fyrirtæki. Við vorum þarna margir og var dreift út um landið. Ég byrjaði í Tabora sem er inni í m  iðju landi og þar vorum við að koma upp kaupfélagi sem var með alls kyns rekstur og vann mikið fyrir bændur. Svo flutti ég aftur upp til Kilimanjaro-héraðs til Moshi og þar vorum við að vinna í kaffibransanum.“

Sigríður nýtur sólarinnar á Kínamúrnum.

Ferðin í tilefni starfsloka Sigríðar

Það má víst með sanni segja að þið séuð ekkert ókunnug því að fara um framandi slóðir. Ykkur munaði kannski ekkert um að skella ykkur til Kína?

„Nei alls ekki,“ segir Sigríður. „Þetta kemur svolítið í kjölfar þess að ég var að hætta að vinna og mig langaði að fara til einhvers lands sem ég hefði ekki farið til áður. Við byrjuðum á að fara til Japans. Við lögðum af stað þangað tveimur eða þremur dögum eftir að ég hætti að vinna og svo kom þessi Kínaferð upp í hendurnar á okkur. Kína er náttúrulega svo magnað land og stórt og mig hefur alltaf langað að koma þangað. Okkur fannst alveg tilvalið að skella okkur.“

„Við sjáum ekki eftir því,“ bætir Kristján við. „Þetta var alveg stórmögnuð ferð. Japansferðin auðvitað líka.“

„Ferðirnar voru ólíkar þótt þær væru skipulagðar á svipaðan hátt,“ heldur Sigríður áfam. „Þessi tvö lönd eru bara svo ólík, landslagið og menningin.“

Var eitthvað sem stendur upp úr? „Í Japan fannst mér vegakerfið alveg stórkostlegt. Vegirnir voru á mörgun hæðum og keyrðum við í Tokyo stundum í sömu hæð og 4 eða 5 hæð í háhýsi“ segir Sigríður. „Það var svo mikið af brúm og maður fór undir eina og yfir aðra. Þetta var einhvern veginn svo magnað en það var margt annað líka.“

„Já, og svo bora þeir göng í gegnum hvert einasta fjall svo það er greið leið á nánast á jafnsléttu um allt,“ bætir Kristján við.

„En hvað Kína varðar er ég ekki viss um að við séum sammála um hvað stóð upp úr,“ segir hún. „Það er svo margt, á hverjum degi fór maður í ný verkefni og mér fannst allt vera stórkostlegt. En mér fannst Avatar-fjöllin mögnuð og að sjá Terra Cotta herinn var ótrúlegt. Ég sá fyrir stuttu heimildamynd á netinu um tilurð þeirra. Þetta er ótrúlegt. Svo var tilfinningin að standa á Torgi hins himneska friðar alveg sérstök. Það er einhver ólýsanleg tilfinning sem kemur þegar maður er fýsískt á staðnum. Ég fylgdist vel með þegar stúdentauppreisnin var. Ég var þá stödd í London hjá vinkonu minni og BBC var með beina útsendingu frá þessum atburðum allan daginn. Mér fannst alveg magnað að koma og standa þar. Kristín A. Árnadóttir stóð líka mjög vel sem fararstjóri og það setti punktinn yfir i-ið að hún sagði okkur alls konar sögur af því sem hún hafði upplifað sem sendiherra í Peking og það gat magnað upp upplifunina af hverjum stað. Það var mjög skemmtilegt.“

Hjónin á Torgi hins himneska friðar með Maó í bakgrunni.

Á mynd af sér með Maó í bakgrunni

„Ég er sammála Siggu í því að Avatar-fjöllin voru stórbrotin og að fara þar upp var heilt ævintýri,“ segir Kristján. „Það vakti líka sérstaka athygli hjá mér hvað kurteisin er mikil alls staðar og hvað Kínverjar eru hjálpsamir á allan hátt. Það var svo margt í ferðinni sem var algjörlega nýtt fyrir sjónum okkar, eins og Terra Cotta-herinn. Mér fannst algjör upplifun að hafa tækifæri til að koma þangað. Ég tek líka undir með Siggu að það var gaman að koma á torg hins himneska friðar og fá tækifæri til að stíga þar niður fæti. Ég á mynd mér með stóru myndina af Maó formanni í bakgrunni. Það er ekki ónýtt að eiga slíka minningu. Torgið er gríðarlega stórt og ég var svolítið hissa á að ekki var fleira fólk á ferðinni um það en raun bar vitni.“

„Já, smáatriðin á hverjum hermanni voru einstök. Sumir voru ungir, aðrir voru með hrukkur og höfuðbúnaðurinn og búningarnir gáfu til kynna hvaða stöðu þeir gengdu í hernum. Þetta var allt úthugsað,“ segir Sigríður.

„Ég held að Kristín hafi komið að skipulagningu þessarar ferðar og reynsla hennar af því að búa þarna í nokkur ár nýst mjög vel. Það var hver dagur einstakur og gerólíkur þeim fyrri. Allt var einhvern veginn alveg eins og best verður á kosið,“ segir Kristján.

Glerbrúin sem Sigríður lét leiða sig yfir með lokuð augu.

Lokaði augunum og lét leiða sig yfir glerbrú

En eruð þið farin að hugsa fyrir næstu ferð? „Nei reyndar ekki,“ segir Kristján.

„Við erum reyndar að fara til Sikileyjar í haust,“ skýtur kona hans inn í. „Það er fjörutíu manna hópur sem fer eitthvert saman á hverju ári og fer annað hver ár erlendis og hitt innanlands. Annað er ekki skipulagt.“

„Þetta eru hjúkkur sem útskrifuðust saman og við karlarnir fáum að sigla með,“ bætir Kristján við.

En hafið þið hugsað ykkur að fara aftur á svona fjarlægar og framandi slóðir? „Já, það kemur alveg til greina. Reyndar var Kristján að stinga upp á að færum bara til Tene á næsta ári. Maður verður að gera það líka. Það verður nú að segjast að flugið tekur á. Til Japans er tólf tíma flug frá Helskinki í beinu flugiog það er pínu strangt en annað hvort er að fara núna eða ekki.“

„Svona langt flug kemur fram í flugþreytu og það tekur alveg sólarhring að jafna sig,“ segir Kristján. „Sérstaklega fyrir gamlingja eins og okkur en allir þessir staðir sem við komum á, allar þessar borgir höfðu séreinkenni hver fyrir sig og alltaf eitthvað nýtt að

sjá.“

„Svo fórum við að djúpum dal sem er þrjúhundruð metra djúpur og það var glerbrú yfir. Ég er frekar lofthrædd og lokaði augunum og lét leiða mig yfir. Svo þurfti ég að fara til baka og þá horfði ég bara beint fram en var rosalega stolt af mér þegar ég var komin yfir. En eftir á var þetta óskaplega gaman og minningarnar lifa. Maður getur talað um afrekin sín,“ segir Sigríður.

Avata-fjöllin eru tignarleg og fögur.

Engin mengun í Peking

„Já, og að hafa stigið fæti á Kínamúrinn og klappað honum aðeins. Við gengum ekki langt, enda er hann lengri en 5 km,“ heldur Kristján áfram.

„Eitt kom mér nokkuð spánskt fyrir sjónir og það var að engin mengun var í Peking. Við höfðum búist við að mengunarský væri yfir borginni en loftið var alveg hreint. Þar er svo mikið af rafbílum orðið,“ segir Sigríður.

Þau eru sammála um að bæði í Japan og Kína hafi allt verið óvenjulega hreint og snyrtilegt og hvergi hægt að sjá að hlutirnir séu látnir drabbast niður.

„Á þessum stöðum sem við vorum á urðum við ekki vör við mengun eða óþrif og ekki í Shanghai heldur. Japan er hreinna og við fórum með innfæddum leiðsögumanni um þar og hann sagði að fólk mætti jafnvel hálftíma áður en vinnudagur þess hefst til að sópa og laga til í kringum vinnustaðinn. Það eru ekki ruslafötur úti á götum þar, þú tekur allt rusl með þér heim. Það er mikill agi í Japan og þar eru allir í röðum. Þú ert ekkert að troðast framfyrir þar nema inn í lestina áður en hurðin lokast,“ segir Sigríður.

„Sjálfstjórnin hjá hverjum einstaklingi og virðingin fyrir umhverfinu og almannarými er mjög mikil í Japan,“ bætir Kristján við.

Tindar Avatar-fjalla huldir þoku.

Bakpokinn öruggur þótt hann hafi gleymst

Og fleira var eftirtektarvert hvað varðar mannfólkið og menninguna. „Var það ekki í Kína að þú gleymdir bakpokanum þínum inni á veitingastað?“ Spyr Sigríður mann sinn. Hann samsinnir því. „Leiðsögumaðurinn sagði okkur að hafa ekki áhyggjur af því,“ heldur hún áfram, „það myndi enginn taka þetta svo við löbbuðum til baka og þá var þjónustufólkið búið að taka hann til hliðar og rétti okkur. Mér fannst líka ótrúlegt hvað við sáum litla fátækt. Það er mikið af háhýsum og þau eru dálítið í Sovíet-stíl en í sumum gluggunum sá maður svolítið draslaralegt fyrir gluggunum og innan við þá. En hvert sem við fórum í lestum, keyrandi og gangandi sá maður enga fátækt en nota bene við vorum auðvitað túristar. Auðvitað hefur efnahagsástand þessa stóra lands batnað mjög mikið og ég held að breytingin sé umtalsverð.“

„Það vakti athygli mína þegar við vorum að fara milli borga með lest, vorum á leið til Shanghai, og við keyrðum í fleiri klukkutíma eftir flatneskju þar sem bændur voru að rækta korn og hitt og þetta. Húsin virtust vera þokkaleg, öll í sama stíl og maður sá

hvergi drasl og rusl. Það var eins og það hefði verið ryksugað og tekið til þarna allt í kring. Hvergi var að sjá bílhræ eða annað drasl sem maður sér hér um allar sveitir. Það var minnisstætt, eins og allt annað sem við upplifðum,“ segir Kristján að lokum og það er augljóst að þau eru tilbúin í næsta ferðalag hvort sem það verður til Tene eða Timbuktú.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ný upplifun menning og saga í Kína
„Það kvað vera fallegt í Kína“ orti Tómas Guðmundsson á síðustu öld og þótt hann hafi ekki viljað færa sig úr vesturbænum í Reykjavík var hópurinn sem fór þangað með Kristínu A. Árnadóttur ekki sammála. Úrval Útsýn bauð uppá sína fyrstu ferð til Kína með fróðleiksþyrsta ferðalanga í vetur og Kristín var fararstjóri í ferðinni.

Kristín A. Árnadóttir fyrrverandi sendiherra.

Ferðin var mjög vel heppnuð og farþegarnir voru mjög ánægðir. Nú er annað Kínaævintýri í uppsiglingu, 15 daga ferð þar sem einnig verður komið við í Hong Kong, fyrrum breskri nýlendu, og Makaó, gamalli portúgalskri nýlendu. Hvort tveggja eru nú iðandi heimsborgir þar sem kallast á gamli tíminn og nútíminn. Fyrir liggur að kínverska flugfélagið Air China mun í haust hefja beint flug til Íslands með millilendingu í Kaupmannahöfn og það gerir ferðalagið enn þægilegra og styttra en áður. Úrval Útsýn ryður brautina á ný og býður nú uppá framangreinda 15 daga ferð í beinu flugi til Kína 1. nóvember. Þá er ennþá milt haust á þeim slóðum og þægilegt ferðaveður, meðalhiti að degi til 17-21 stig.

Og aftur hefur Kristín samþykkt að vera fararstjóri. Hún er þaulreynd Kínakona, og það liggur beint við að heyra í henni hljóðið, um fyrri ferðina og þá sem í uppsiglingu er.

„Ferð okkar til Kína í mars var mögnuð upplifun, jafnvel fyrir mig sem hef komið oft á þá staði sem við heimsóttum. Ég held að við höfum öll verið sammála um að þegar til Kína var komið hafi tekið við hreint ævintýri frá upphafi til enda,“ segir hún. „Auk þess að skoða hefðbundna túristastaði, sögufræga staði, borgir og náttúrufegurð til fjalla sem engu er lík, skoðaði hópurinn jarðhitaver í Xián sem reist var og starfar í samvinnu Íslendinga og Kínverja, jarðhitaver sem er eitt af mörgum sinnar tegundar í Kína, og er nú samanlagt langstærsta húshitunarkerfi heimsins sem þjónar milljónum heimila. Ísland hefur, í gegnun Jarðhitaskólann, menntað fjöldann allan af sérfræðingum sem nú bera hróður Íslands víða.

En hæst bar auðvitað ótrúleg náttúrufegurð, líkt og af öðrum heimi, og innsýnin í fornt en háþróað menningar- og tæknisamfélag. Hver dagur var nýtt ævintýri fyrir sjónskyn, bragðskyn og hugræn áhrif. Skyggnst var aftur í tímann í fimmþúsund ára sögu og menningu Kína, en jafnframt fram í tímann því Kína virðist vera komin lengra en öll önnur ríki sem ég þekki til í nýtingu og þróun tækni í samfélagsuppbyggingu. Ég neita því ekki að það fór aðeins um mann; hvernig gat allt þetta gerst á svo stuttum tíma? Á sama tíma og vestræn markaðsuppbygging á sér stað í Kína er staðinn vörður um auðuga menningararfleifð. Það sáum við í heimsóknum okkar í mannvirki keisaratímans hof og garða. Miklu hefur verið kostað til varðveislu menningararfsins.“

Verður nóvemberferðin eins og sú fyrri, sömu staðir heimsóttir?

„Að hluta já, en þó eru nokkrar breytingar og fleiri staðir heimsóttir. Ég lagði mikla áherslu á að bæta við náttúruparadísinni Guilin og gömlu nýlenduborgunum Hong Kong og Makaó sem nú eru hluti af Kína. Þegar fólk er komið yfir hálfan hnöttinn er mikilvægt að nýta ferðina eins vel og kostur er. Og það gerum við nú þannig að ferðin er aðeins lengri en sú fyrri. Siglingum á ám og vötnum er bætt við, auk Hong Kong sem var bresk nýlenda frá 1842-1997 og Makaó sem var undir portúgalskri stjórn í nokkrar aldir. Nú eru bæði sérstjórnarsvæði innan Kína. Þar bætast nýjar víddir í ferðina og ný upplifun, menning og saga.“

En segðu mér Kristín, mig minnir að þú hafir sagt Lifðu núna þegar við hittumst á förnum vegi fyrir ári eða tveimur að þú væri komin á eftirlaun, komin í „atvinnuleyfi“ eins og þú orðaðir það, en það lítur út fyrir að þú sért á ferð og flugi með farþega Úrvals Útsýnar. Ertu þá ekki hætt að vinna?

„Tja, ég ætlaði nú bara að taka þessa einu ferð til Kína i vor en svo finnst mér bara svo gefandi og gaman að vera með fólki og nýta reynslu mína í þeim löndum þar sem ég þekki best til. Ég fór tiltölulega snemma í atvinnuleyfið, leyfið frá atvinnunni, þannig að ég er enn í fullu fjöri og vel bara að gera það sem mér finnst skemmtilegt að gera. Vel og hafna. Lifi í núinu,“ segir Kristín og hlær.

https://www.uu.is/packages/details.aspx?searchSessionID=2501008&destinationID=174515&packageType=__44334e&packageID=__353831

Að ýla uppi á kassa
Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi skrifar.

Á dögunum var háttvirtur alþingismaður, Guðmundur Ingi Kristinsson, að kvarta yfir hvimleiðu þukli sem hann verður fyrir þegar hann fer í gegnum öryggisleit á flugvöllum. Hann segir þuklið fara versnandi eftir því sem hann fari í fleiri aðgerðir með tilheyrandi nöglum, skrúfum og síðast gangráði. Ég er ekki oft sammála ráðherranum fyrrverandi. Í þetta sinn tek ég hins vegar undir orð hans um þuklið en það var kannski ekki þörf á að fara með málið inn á gólf hjá hinu háa Alþingi. Það er önnur saga.

Öryggisleit er aldrei skemmtileg, sérstaklega þegar biðraðirnar eru langar og maður enn hálfsofandi. Farðu úr yfirhöfninni. Taktu af þér beltið.  Af með armbandsúrið. Tölvan upp úr tösku. Sími í körfuna. Snyrtivörur í plastpoka og svo framvegis. Stundum slapp maður í gegn, stundum ekki.

En nú er öldin önnur. Ég er komin með málm í mjöð og er því komin í þennan sama hættulega hóp og Guðmundur Ingi. Það kemur alltaf viðvörunarhljóð í hliðinu. Ég reyni ekki lengur að taka af mér úrið eða annað sem gæti komið leitarvélinni úr jafnvægi. Ég ýli samt. Ég bendi á hægri mjöðm og þá hefst ballið.

Ég fór út í gegnum Keflavíkurflugvöll fyrir nokkrum vikum. Ég ýli og ung stúlka var kölluð til. Hún benti mér á að fara úr skónum. Hún káfaði fyrst á mér að framan og svo að aftan. Til og með spangirnar í brjóstahaldarnum vöktu grunsemdir. Síðan fór hún og kom með leitartæki og endurtók sama leik. Loks var borið á mig duft til þess að kanna hvort ég væri með fíkniefni. Ekkert slíkt fannst. Þá var blóðþrýstingurinn orðinn all hár.

Á meðan þetta gekk yfir lá dótið mitt, tölvan, vegabréfið, síminn með krítarkortinu og allt annað  eftirlitslaust úti á enda á færibandinu fyrir hunda og manna fótum.

Allra leiðinlegasti staðurinn er nýja flugstöðin á Akureyri, í mínum eigin heimabæ þar sem allir þekkja alla. Millilandaflugstöðin hefur verið töluvert til umfjöllurnar fyrir undarlega hönnum. Það mætti ætla að arkitektinn hafi aldrei farið í millilandaflug. Eitt af því sem hann virtist gleyma var hópurinn með málmliðina. Eftir ýlið í málmleitarhliðinu er þér vísað að enda færibandsins og sagt að fara úr skónum og upp á kassa. Þar stendur maður á kassanum með útbreiddan faðminn meðan „hreinu“ farþegarnir streyma fram hjá svo nærri að maður gætir heilasað þeim öllum með handabandi. Augnaráðið sem mætir manni á kassanum er þrungið spurningunni hvort Sigrún hafi þurft nýja mjöðm eða var það kannski hné?  Síðan hefst þreifing og leitarvél. Eftir að hafa klöngrast niður af kassanum eru það skórnir og leit hefst að stól til þess setjast á og koma sér í þá og bölva í hljóði.

Ég las það í blöðunum að Kaupmannahafnarflugvöllur hafi nýverið endurnýja leitarbúnað og stytt þar með leitarferlið um þriðjung að mig minnir. Fyrir var hann samt einn af þeim flugvöllum sem afgreiddu mig og mína málmmjöðm á methraða. Ég hef líka haft góða reynslu af flugvöllum í Bretlandi en einna verst vegnar mér í mínu eigin föðurlandi.

Reynslan hefur sýnt mér að þetta er ferli er verst á vorin, þegar sumarstarfsfólkið er að sanna hæfni sína. Stundum þarf ég að fara úr skónum – stundum ekki. Stundum er ég tékkuð bak og fyrir – stundum ekki þó svo að ég ýli. Stundum eru það karlar sem þukla en oftast ekki. Þessir ferlar vekja upp ýmsar spurningar hjá mér. Sú mest brennandi er hvort íslenskir millilandaflugvellir þyrftu ekki að endurskoða búnaðinn sem notaður er á þennan hættulega hóp. Það mætti til dæmis nota tekjurnar sem koma inn af flugstöðvabílastæðunum í þetta þarfa verkefni.

Gjálfrandi öldur og innblásnir elskendur
Nokkrir staðir í heiminum eru ekki bara fallegir heldur hafa eitthvað við sig, einhverja töfra sem gera það að verkum að fólk kemur þangað aftur og aftur. Garda-vatn er einn þeirra. Þangað hafa listamenn leitað eftir innblæstri, elskendur eftir skjóli og mataráhugafólk eftir næringu.

Þetta stærsta vatn Ítalíu er lygnt og djúpt og þótt það sé oft borið saman við Como-vatn og sitt sýnist hverjum um hvort er fegurra, er hér afslappaðra andrúmsloft og einhver ólýsanlegur friður yfir öllu. Í Sirmione við Garda-vatn bjó rómverska skáldið Catullus og var innblásinn af umhverfinu. Það er næsta víst að hann sat og horfði út á vatnið þegar hann skrifaði: „Gjálfrandi gárur vatnsins míns titra af hlátrinum sem liggur í leyni í vatninu þínu.“

Hér er gott útsýni til fjalla þótt þau séu ekki jafnhá og ítölsku Alparnir við Como-vatn og sítrónulundir allt um kring. Enda var það hér sem Goethe dvaldi þegar hann orti: „Þekkir þú land þar sem gul sítrónan grær.“ Í dagbók sína skrifaði hann: „Mikið vildi ég að vinir mínir gætu verið með eitt augnblik til að njóta útsýnisins sem við mér blasir. Ég hefði getað verið í Veróna í kvöld en vildi ekki missa af að sjá Garda-vatn og hið dásamlega landslag við strendur þess. Ég hef hlotið ríkuleg laun fyrir að leggja þessa lykkju á leið mína.“

Skáldin flykkjast að

Hann er ekki eina skáldið sem naut verunnar hér. D.H. Lawrence flýði frá Englandi með ástkonu sinni Friedu Von Richthofen. Hún var þýsk aðalskona, rithöfundur og þýðandi. Meðal annars þýddi hún þýskar bækur og ævintýri. Hún giftist Ernst Weekly, breskum textafræðingi sem var fjórtán árum eldri en hún og átti með honum fjögur börn. Það neistaði strax á milli þegar hún hitti DH Lawrence þegar hann kom í heimsókn til Ernst, fyrrum kennara síns. Þau urðu elskendur og stungu af Þýskalands þegar hneykslið yfir sambandi þeirra varð óbærilegt í Bretlandi.

Þar var D.H. Lawrence sakaður um njósnir en faðir hennar var valdamikill og náði að koma í veg fyrir að hann væri handtekinn en aftur lögðu þau á flótta og gengu yfir Alpana til Ítalíu. Skilnaður Friedu frá eiginmanni sínum gekk í gegn árið 1914 en hún varð að afsala sér börnum sínum. Það var venja að ef annar aðili í hjónabandi hélt framhjá fékk hann ekki forsjá barnanna nema með samþykki hins svikna og Ernst neitaði að láta hana hafa börnin. Frieda og Lawrence giftu sig og bjuggu sæl við Garda-vatn. Þar skrifaði Lawrence Sons and Lovers en talið er að Lady Chatterley’s Lover sé að nokkru leyti byggð á sambandi þeirra. Þau sneru aftur til Bretlands þegar fyrri heimstyrjöldin braust út en í stríðslok fóru þau til Bandaríkjanna og ferðuðust víða þar. D.H. Lawrence lést árið 1930 svo þau fengu ekki langan tíma saman.

Að Garda-vatni kom einnig Somerset Maugham og síðar Graham Greene. Enda er eitthvað við vötn sem bæði nærir og veitir innblástur. Hljóðið þegar aldan brotnar við ströndina, himininn sem speglast í vatninu og hvítfextar öldur þegar vindurinn ýfir yfirborðið. Allt er þetta heillandi og áhrifamikið.

Maturinn maður minn!

Matarmenningin við vatnið er einnig ótrúleg. Hvergi í heiminum er að finna fleiri veitingahús með Michelin-stjörnur á jafn litlu svæði. Flest eru fjölskyldurekin veitingahús, með persónulegan stíl og tekið er á móti gestum af hlýju og yndislegri gestrisni.  Flestir matreiðslumenn hér nýta sér hráefni úr nærumhverfinu og byggja á aldagömlum hefðum og uppskriftum. Til hvers að breyta því sem virkar. Hér er risotto vinsæll réttur og gjarnan með smurosti og sardínum úr vatninu.

Garda-vatn er sælustaður og Ítalía dásamlegt land. Þar er að finna allt það sem ferðamaðurinn óskar sér að upplifa og meira til. Hvert hérað hefur sín sérkenni og alls staðar er margt merkilegt að skoða. Mannkynssöguna má lesa úr gömlum byggingum og öðrum merkum fornleifum, listaverk skreyta hvern krók og kima, maturinn er hollur og góður og dverghagir handverksmenn bjóða vörur sínar til sölu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

https://uu.is/ferd/perlur-gardavatns-og-verona-2/

Norskt ævintýri
Notodden virðist við fyrstu sýn eins og hver annar smábær í Noregi. Stór silfraður hljóðnemi á hringtorgi í miðbænum gefur hins vegar vísbendingu um að svo er ekki. Notodden er blúsbærinn. Þar hefur verið haldin blúshátíð fyrstu helgina í ágúst í aldarfjórðung. Þekktustu blústónlistarmenn heimsins hafa troðið þar upp gegnum tíðina og nú orðið er eftirsótt að koma þar fram. Hér er sem sagt Mekka blústónlistar í Noregi.

Notodden er bær á Þelamörk en sumir hafa lýst því héraði sem Noregi í hnotskurn. Þar er að finna helstu einkenni landsins alls samanþjöppuð á litlu svæði. Þröngir jökulgrafnir dalir með ógnardjúpum kyrrum vötnum í botninn. Til að Íslendingar átti sig á landslaginu má segja að héraðið skarti ótal útgáfum af Skorradal. Skógurinn hylur allar neðstu hlíðar fjallanna sem teygja sig hátt til himins og þar er finna ótal spennandi gönguleiðir og fjallstoppa sem vert að sigra. Einn þeirra er  Gaustatoppen, 1833 m hátt fjall en ekið er upp í 1260 m hæð og gengið þaðan.

Radarstöðin sem Þjóðverjar reistu á toppi fjallsins.

Af Gaustatoppen má sjá yfir 1/6 hluta Noregs á góðum degi svo ef menn hyggjast sigra fjallið er eins gott að fylgjast með veðurspá og vera viss um að ekki verði skýjað. Það þarf einnig að gæta þess að ekki er endilega sama veður niðri í dalnum og er á toppi fjallsins. Í heimstyrjöldinni síðari notfærðu Þjóðverjar sér hæð fjallsins til að setja upp radarstöð og byggðu lyftu inni í því til að auðvelda sér uppgönguna. Lyftan hefur nú verið opnuð almenningi og þeir sem ekki skilja þá undarlegu þörf að klöngrast upp grýttan ógreiðfæran stíg til þess eins að njóta útsýnis geta sótt það fyrirhafnarlaust með aðstoð tækninnar.

Fjöllin í Noregi eru fellingafjöll, þ.e. þau myndast þegar jarðskorpuflekar þrýstast saman og landið lyftist upp í stað þess að síga eins hér gerist. Við þessar aðstæður verða fjöllin há og Alparnir og Himalayafjöll eru önnur dæmi um afleiðingar áreksturs flekanna. Bergið í norska fjallinu er samanpressaður sandsteinn eða quartzite, ein harðasta bergtegund í heimi. Göngufólk kemst líka fljótt að raun um að stórgrýtið er ekki þægilegt undir fæti. Á toppnum er lítill skáli þar sem göngumóðum er boðið að kaupa heitt kakó og vöfflur

Verksmiðja NorskHydro í Rjukan þar sem Þjóðverjar framleiddu þungt vatn í seinni heimstyrjöldinni.

Í fótspor Þelamerkurhetjanna

Þegar komið er niður af Gaustatoppen er örstutt að aka til Rjukan, þorpsins þar sem NorskHydro framleiddi þungt vatn í verksmiðju sem Þjóðverjar lögðu mikið upp úr að ná á sitt vald. Fræg er sagan af norsku andspyrnumönnunum sem sprengdu upp framleiðslusalinn til að koma í veg fyrir að nasistum tækist að búa til atómsprengju fyrstir allra. Ekki tókst betur til en svo að Þjóðverjar fluttu nýjar vélar til Rjukan og framleiðsla var komin aftur á fullan skrið örfáum dögum seinna. Þá brugðu Norðmennirnir á það ráð að sprengja upp ferjuna sem flytja átti þunga vatnið fyrsta áfangann á leiðinni til Þýskalands. Um þessa atburði var gerð Hollywood-kvikmyndin Hetjurnar frá Þelamörk með Kirk Douglas og Richard Harris í aðalhlutverkum.

Nú á dögum er fyrst og fremst kyrrð og fegurð yfir Rjukan. NorskHydro hefur snúið sér að annars konar verkefnum og atvinnuleysi mikið í þeim bæjum sem byggðust upp í kringum rekstur orkuveranna. Ferðaþjónusta er  þó vaxandi atvinnuvegur hér og margt sem dalirnir og fjöllin hafa upp á að bjóða.

Það er undurfallegt við Gavlesjöen.

Undurfagurt stöðuvatn og Heiðmörk Notodden-búa

Í nágrenninu er að finna dásamlegt kyrrt stöðuvatn Gavlesjöen og rétt við vatnið er notalegur veitingastaður þar sem njóta má alls þess góða sem héraðið hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Tynnemyra heitir Heiðmörk Notodden-búa, dásamlegt útivistarsvæði með tjörnum skreyttum vatnaliljum, fallegum gróðri og notalegum áningarstöðum. Frá Notodden er stutt að aka inn í Kivledalinn. Þjóðsaga segir af þremur ungum meyjum er leituðust við að tæla fólkið í dalnum frá kristni til heiðni. Þær léku undurfagra söngva á lúðra sína meðan fólkið var í messu og það vildi út. Presturinn sá að við þetta varð ekki unað svo hann kvað meyjarnar inn í bergið í fjallinu fyrir ofan kirkjuna og næmt fólk telur sig sjá andlit þeirra í klettunum. Þar vex líka hinn glæsilegi steinbrjótur inn, klettafrú, og minnir á meyjarnar þrjár sem urðu Grieg seinna innblástur að flottu tónverki. Á Þelamörk er að finna ótal fleiri fallega og heillandi staði og þar geta áhugasamir náttúruunnendur notið sín löngum stundum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Rómantík, saga og menning
Hún þykir ein rómantískasta borg Ítalíu og þótt það felist ákveðin þversögn í því að tala um rómantík á stað sem er svo nátengdur einna sorglegustu ástarsögu allra tíma en engu að síður er það svo. Elskendur hafa leiðst um steinlögð strætu Verónu frá því Rómeó og Júlía var fyrst frumsýnt og enn í dag kjósa pör þessa borg til að minna sig á hversu gott það er elska.

En burtséð frá fjölskylduerjum og harmrænum endi á ástum unglinga er eitthvað heillandi við Verónuborg. Gömul stræti, falleg hús, hlýleg kaffihús og andrúmsloft langrar sögu sem dásamlegt er að anda að sér. Ævafornar rústir mannvirkja minna á að þarna hafa menn byggt sér ból og notið gæða landsins frá örófi alda. Þessi borg er ekki risastór og yfirþyrmandi. Hún umfaðmar ferðalanginn og það er auðvelt að rata þarna um.

Eitt af því sem einkennir ítalskar borgir eru torgin. Þessi opnu svæði sem eru skreytt listaverkum og bjóða alla velkomna. Þar er alla jafna iðandi mannlíf og ótal veitingastaðir allt í kring. Þar er gott að slaka á yfir kaffibolla meðan menn plana daginn. Fyrst af öllu er auðvitað að heimsækja rómverska hringleikhúsið. Það er miðsvæðis og því einkar góður viðmiðunarstaður til að leggja af stað út frá og snúa aftur að þegar leiðangri lýkur. Að standa í miðju hringleikahúsi er líka einstök tilfinning. Það er eins og tíminn hverfi og maður standi og njóti augnabliksins meðan aldirnar þjóta hjá. Ímyndunaraflið fer á flug og maður sér fyrir sér skylmingaþræla í blóðugri baráttu fyrir lífi sínu, dramatíska sjónleiki leikna fyrir áhorfendur og söngvara að þenja raddböndin. Enn í dag eru settar upp sýningar á sumrin í þessu ævaforna leikhúsi.

Það er alltaf upplifun að komast í snertingu við svo gömul mannvirki. Þau kveikja aðdáun á hugviti mannsins og færni. Að hugsa sér að þessir steinar hafi verið mótaðir og þeim raðað saman í þetta listaverk af fólki sem ekki hafði stórvirkar vinnuvélar í þjónustu sinni það er einstakt afrek. Að vita að enn þann dag í dag er hringleikahúsið lifandi hluti af daglegu lífi Verónabúa og byggingin notuð gerir þetta enn áhrifameira og áhugaverðara.

Torre dei Lamberti eða Lamberti Tower-turninn

Til að fá sem besta útsýn yfir Verónaborg er kjörið að heimsækja Lamberti-turninn. Hann er 84 m á hæð og býður upp á einstakt útsýni til allra átta.

Museo di Castelvecchio eða Castelvecchio-safnið

Safnið stendur á bökkum Adige-árinnar og staðsetningin ein er þess virði að sjá og njóta. En innan dyra er að finna einstök listaverk og safnið sjálft er í gömlu virki sem er athyglisverð bygging í sjálfu sér. Arkitektinn Carlo Scarpa var fenginn til að endurhanna virkið og gera það að listasafni og honum hefur tekist einstaklega vel til. Hann passaði að varðveita söguna og víða má sjá merki um gamlar væringar á steinveggjunum. Listaverkin sem skreyta veggina gefa svo gestum færi á að njóta, ígrunda og hrífast af mannsandanum eins og hann birtist í tímalausum listaverkum.

Galleria d’Arte Moderna Achille Forti eða Achille Forti-nútímalistasafnið

Þetta safn er í gamalli rómverskri höll Palazzo della Ragione. Hér er að finna ítalska nútímalist og að njóta hennar skapar skemmtilega viðbót við listina í Castelvecchio.

Styttan af Júlíu í litla portinu við hús Capulet-fjölskyldunnar.

Casa di Giulietta – Húsið hennar Júlíu

Þótt við vitum að Rómeó og Júlía hafi verið skáldsagnapersónur er samt eitthvað svo ánægjulegt að ímynda sér að hér hafi hún búið og út þessar svalir hafi hún stigið til að hlýða ástarorð Rómeós. Þetta þrönga litla port er eitthvað svo notalegt og hentugt fyrir unglingspilt sem bíður með öndina í hálsinum eftir að sjá stúlkunni sinni bregða fyrir bak við gluggatjöldin. Nú og svo skemmir ekki að snerta hægra brjóst styttunnar af Júlíu enda á það að færa þeim sem það gerir lukku í ástamálum. Það hversu núið og skínandi þetta brjóst er að sýnir að margir hafa látið á það reyna hvort þessi trú sé verðskulduð.

Teatro Romano e Museo Archeologico – Rómverska leikhúsið og fornminjasafnið

Skammt frá miðbænum er Teatro Romano og við hlið þess er fornminjasafnið. Þar er hægt að verja góðum tíma í að reika um fornar rústir og ganga milli sýningagripa fornminjasafnsins og reyna að endurskapa fortíðina í huganum. Hægt er að fara upp á þak safnsins með lyftu og njóta þess að horfa yfir borgina.

Duomo di Verona – dómkirkjan í Veróna

The Duomo di Verona er minni en margar slíkar kirkur víða annars staðar en innandyra er ljúft andrúmsloft kyrrðar og fegurðar. Ekki þarf að borga inn svo það er kjörið að njóta þess að setjast á einn kirkjubekkjanna og íhuga um stund.

Ponte Scaligero – Scaligero-brúin

Það er eitthvað hrífandi við brýr. Þær eru í senn vitnisburður um verksvit mannsins og nauðsynlegar samgönguæðar. Sumar eru svo fallegar að það er ekki hægt annað en fagna því að einhver hafi lagt á sig þá vinnu að hanna þær og byggja. Það á við um Scaligero-brúnna. Að ganga yfir hana er svolítið eins og fara með tímavél aftur til miðalda og dást að smáatriðunum í steinverkinu og listrænum útfærslum í byggingastílnum. Adagio-áin rennur svo með sínum eilífa nið undir fótum ferðalangsins.

Piazza dei Signori – Guðstorgið

Piazza dei Signori er eitt af þessum einstöku ítölsku torgum. Allt í kring eru hallir frá endurreisnartímanum og þær minna á óhóf og ofgnótt aðalsmanna fyrri tíma. En mikið skelfing eru þessar byggingar glæsilegar og flottar.

Hvar er best að borða í Veróna?

Osteria Sottocosta

Er staðsett í lítilli hliðargötu rétt við Piazza delle Erbe sem er skemmtilegt markaðstorg í miðbænum. Þetta er lítill og hlýlegur staður en maturinn einstaklega góður. Pastað er búið til daglega á staðnum og frábært að prófa einhvern hefðbundinn verónskan pastarétt.

Filippini Caffè Brasserie

Filippini Caffè Brasserie er notalegt kaffihús og kjörið að grípa þar góðan espresso að morgni áður en haldið er út í daginn og kíkja við í eftirmiðdaginn til að hvíla sig á labbinu og fá sér kaffi og með því.

Trattoria al Pompiere

Hér er að finna ekta ítalskan mat eins og hann gerist bestur. Það jafnast ekkert á við þessa einföldu en bragðgóðu eldamennsku.

Locanda 4 Cuochi

Locanda 4 Cuochi nýtur gríðarlegra vinsælda og er einn af þessum stöðum þar sem þarf að panta borð. En það er vel þess virði að gera það. Hægt er að panta tasting menu kokksins eða smakkmatseðil kokksins og þá fá menn marga litla rétti og geta notið þess að smakka marga af hefðbundnum réttum Veróna og nágrennis.

Antica Bottega del Vino

Bottega del Vino er gamall og virtur vínbar þar sem njóta má allra þeirra fjölmörgu víntegunda sem framleiddar eru í nágrenninu. Þjónarnir eru fróðir og vita hvað þeir syngja þegar kemur að því að mæla með vínum fyrir hvern og einn viðskiptavin. Hér má smakka Amarone, Valpolicella, rauðvín og hvítvín allt úr nágrenninu.

Caffè Borsari

Þetta indæla kaffihús er í miðbænum og það er eins og stíga aldir aftur í tímann að ganga þar inn um dyrnar. Innréttingarnar eru glæsilegar og andrúmsloftið svo einstakt að mann langar ekki að fara þaðan.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

https://uu.is/ferd/perlur-gardavatns-og-verona-2/

Komin heim – og langar aftur
Nanna Rögnvaldardóttir rithöfundur skrifar.

Ég er komin heim eftir fimm frábærar vikur í Portúgal, þar af fjórar á Azoreyjum, eina á meginlandinu. Ég flaug frá Ponta Delgada á Sao Miguel 22. janúar til Lissabon – ekki alveg slysalaust reyndar, því að mér tókst að detta tvisvar á leiðinni, fyrst eldsnemma morguns á regnblautri og hálli steinlagðri gangstétt í Ponta Delgada þegar ég var að drösla töskunni á leigubílastæði. Og svo í rúllustiga (neðst í honum til allrar hamingju) á Lissabonflugvelli. Eða sko, taskan mín datt og ég ofan á hana svo að þetta var henni að kenna en ekki mér. Hún eyðilagðist en ég ekki. Bara peysan mín, sem festist í rúllustiganum.

En þetta slapp nú allt saman og ég hafði afsökun til að kaupa mér nýja tösku, nýja peysu og þar sem nýja taskan var ívið stærri en sú gamla (sem hafði verið troðfull) gat ég leyft mér að skreppa aðeins á útsölur í höfuðborginni og kaupa mér tvo Desigual-kjóla og smávegis fleira. Ég ætlaði sko ekki að versla neitt en þegar maður er á ferðinni á útsölutíma og er allt í einu komin með smávegis töskupláss …

Minnismerkið um landafundi Portúgala og alla sæfarana.

Ég var í Lissabon í fjóra daga og þar rigndi meira en á Azoreyjum. Gerði svosem ekkert markvert þar nema ég fór út í Belém að skoða hið stórfenglega minnismerki um landafundi Portúgala. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á landafundatímanum og landafundamönnum svo að það var eitthvað fyrir mig.

Síðustu þrjá dagana í ferðinni var ég hins vegar í Estoi, litlu þorpi rétt fyrir norðan Faro í Suður-Portúgal. Ég hafði ekkert ætlað þangað, ætlaði til Tavira, hafði rekist á mjög gott tilboð á lúxushóteli þar í tengslum við Svartan föstudag fyrr í vetur. En þegar til kom þurfti að loka hótelinu vegna viðhalds (það er í húsi frá 16. öld) og mér var boðið enn meira lúxushótel í sömu keðju þarna í Estoi, Pousada Palacia de Estoi, á sama verði og hitt en enn betra herbergi. Ég þáði það, þóttist vita að það yrði frábær afslöppun áður en ég færi heim – sem reyndist rétt.

Hótelið Pousada Palacia de Estoi, sambland af gömlum og nútímalegum glæsileika.

Aðalbyggingin er sem sagt 19. aldar glæsihýsi (eða höll, eins og nafnið segir) en gistiherbergin eru í nýrri álmu sem fellur þó ótrúlega vel inn í umhverfið og ég fékk stórt herbergi með útsýni yfir appelsínulundi og alls konar lystisemdir, svo að ég naut dvalarinnar sannarlega. Það rigndi alla dagana þrjá en ekki stanslaust svo að ég gekk töluvert um þorpið og skoðaði rómverskar rústir sem eru þarna rétt hjá.

Í appelsínulundunum í Estoi voru trén bókstaflega að sligast undan ávöxtunum.

Ég fór suður eftir með lest, finnst mjög þægilegt að ferðast með lest í Portúgal – já, og athugið eitt: Ef þið eruð að panta lestarferð skuluð þið endilega gá að því hvort er mikið dýrara að ferðast á fyrsta farrými en almennu. Ég borgaði fjórum evrum meira (fyrir 3½ tíma lestarferð) á fyrsta farrými; mun þægilegri og rýmri sæti. Þurfti ekki að fara til baka því að ég flaug heim frá Faro í gegnum Gatwick (gisti þar eina nótt á Premier-hótelinu).

En svo að ég geri nú upp þetta rúmlega fimm vikna ferðalag, eða aðallega mánuðinn sem ég var á Azoreyjum:

Í þjóðgarðinum Ribeira dos Calderoes á Sao Miguel.

Eyjarnar eru yndislegar. Ég er viss um að þær eru enn yndislegri á öðrum árstímum (minni rigning, meiri sól, meira af blómum, eitthvað hlýrra, meiri afþreying í gangi) en þá eru líka fleiri ferðamenn og verðlag á ýmsu er hærra. En þær eru ótrúlega grænar og gróðursælar, mikið af frábærum gönguleiðum, gott fólk, góður matur og gott andrúmsloft. Veðrið er milt (hitinn fór aldrei undir 12 gráður þegar ég var þar).

Ef þið eruð að leita að sólböðum og baðstrandalífi er betra að fara annað – það er svosem til þarna á sumrin en ekki mikið um það. En ef þið eruð að leita að fallegri og fjölbreyttri náttúru, gönguleiðum (einföldum jafnt sem erfiðum), mannlífi, sögu, þess vegna einveru – þá get ég mælt með Azoreyjum af heilum hug.

Það kom mér á óvart hve ólíkar eyjarnar eru hver annarri. Fyrirfram hafði ég einhvernveginn sett þær allar undir sama hatt og jú, vissulega er ýmislegt líkt með þeim en þær eru hver með sínu sniði, allar níu. Eða að minnsta kosti þessar fimm sem ég heimsótti – og ég er eiginlega ákveðin í að heimsækja hinar fjórar seinna og kynnast töfrum þeirra. Og skoða eitt og annað betur á stærri eyjunum, einkum Sao Miguel.

Ég hef verið spurð hvaða eyju mér hafi litist best á en ég get ekki gert upp á milli þeirra. Ég myndi kannski velja Terceira vegna sögunnar og gömlu bygginganna í Angra, Pico vegna hinnar einstöku vínræktarsvæða, Faial vegna strandgötunnar, grasagarðsins og góðra gönguleiða í grennd við bæinn, Sao Jorge vegna náttúrufegurðarinnar og Sao Miguel vegna fjölbreytileikans – en mér fannst þær allar hafa svo marga kosti.

Grasagarðurinn í Horta á Faial.

Ef þið skylduð eiga eftir að leggja leið ykkar þangað og ætlið bara að vera í viku eða svo mæli ég með að halda ykkur við Sao Miguel, en bæta við einni eyju fyrir hverja 2-3 daga þar fram yfir. Ég var lengur, 6-7 daga á Terceira, Pico og Faial, 8 daga á Sao Miguel en bara tvo á Sao Jorge.

En ég var líka önnum kafin við að skrifa, notaði gjarna rigningardaga til þess – og svo kvöld og morgna – og tókst líka að ljúka uppkasti að næstu skáldsögu. Eyjarnar voru frábært umhverfi til skrifta. Ég fór gjarna í langar gönguferðir um miðjan daginn ef ekki rigndi mikið (og eina þar sem rigndi mjög mikið og ég kom heim eins og hundur af sundi dreginn) og þar sem ég var ekki með neinn göngufélaga notaði ég þær til að hugsa um söguna, plana atbuðarás, velta fyrir mér möguleikum – og kom oft heim með nærri fullburða kafla eða kaflabrot í kollinum.

Þetta var einn mesti rigningardagurinn á eyjunum. Samt voru tvær bjartsýnismanneskjur í Horta – ég, sem fór í langa gönguferð, og svo var einhver sem hafði hengt út stórþvott.

Á flestum eyjanna er lítið um ferðamenn á þessum árstíma, nema helst á Sao Miguel, þar var slæðingur – en varla meira en það. Í tveimur tilvikum var ég eini gesturinn á hótelinu eða allavega í álmunni þar sem herbergið mitt var. Á Pico, Faial og Sao Miguel gisti ég í íbúðum og eldaði að mestu sjálf ofan í mig en þegar ég borðaði á veitingahúsum var ég í nokkrum tilvikum eini gesturinn á staðnum, a.m.k. hluta máltíðarinnar. Og einu sinni borðaði ég á fínu veitingahúsi þar sem voru ellefu gestir en sex einkennisbúnir þjónar. Þá var nú snúist í kringum mann.

Ef ykkur þykir erfitt að fara ein(n) út að borða, þá get ég fullyrt að það er ekkert erfiðara að vera ein í salnum en ein við borð. Þægilegra, jafnvel.

Ég hef verið spurð: Og hvað kostuðu nú herlegheitin? Hvað kostar svona ferð, með eyjahoppi eða ferðalögum á milli staða, er þetta ekki rándýrt?

Það finnst mér eiginlega ekki. Ég hefði reyndar á öllum stöðunum getað fundið mun ódýrari gistingu en eins og ég sagði í fyrstu eða annarri greininni (áður en ég fór af stað) reyni ég fyrst og fremst að finna húsnæði – hvort sem það er hótel eða íbúð – sem mér líst mjög vel á og uppfyllir ákveðin skilyrði en er ekkert endilega rosalega ódýrt. Það tókst mér í þessu tilviki, ég var mjög ánægð með allt sem ég hafði valið mér. Ég var snemma á ferðinni að panta en afpantaði seinna í einhverjum tilvikum þegar ég fann annað sem mér leist enn betur á.

Azores Book Hotel, þar sem ég var um jólin. Setustofan var líka bókasafn.

Ég leita hins vegar gjarna að sem ódýrustu flugi (en passa að reikna allan aukakostnað inn í fargjaldið), vil þó helst ekki næturflug eða að koma á áfangastað seint að kvöldi. Ef ég get fundið gistingu á hóteli á flugvellinum eða rétt við hann notfæri ég það mér oft og slepp þá við að koma örþreytt og pirruð á ákvörðunarstað í myrkri.

Heildarkostnaðurinn við flugferðirnar var að þessu sinni um 158.000. Keflavík – Amsterdam – Angra do Heroismo og heimferðin: Ponta Delgada – Lissabon og Faro – Gatwick – Keflavík þar af samtals 108.000. Ég gisti eina nótt á Star Inn við flugvöllinn í Lissabon og aðra á heimleið á Premier á Gatwick (tel það með hótelkostnaði). Flug milli eyjanna var svo samtals um 50.000 (Angra – Madalena, Horta – Ponta Delgado, Ponta Delgado – Sao Jorge, Sao Jorge – Angra – Ponta Delgado). Þetta eru einar tíu flugferðir, meðalverð 15.800 (en svo þarf ég nú að kolefnisjafna þetta eitthvað). Ferjan á milli Madalena og Horta kostaði 6 evrur.

Af því að ég er að segja frá kostnaðinum við Azoreyjaflakkið sleppi ég gistikostnaði vikuna sem ég dvaldi á meginlandinu úr útreikningunum. Gistikostnaður á Azoreyjum og tveimur flugvallarhótelum var samtals 451.400 krónur. Þetta er fyrir 35 nætur, sem þýðir tæpar 13.000 krónur á nótt. Öll herbergin/íbúðirnar sem ég gisti í voru a.m.k. tveggja manna svo að ef ég hefði verið með ferðafélaga hefðum við sloppið með kannski 7.000 kr á mann fyrir nóttina. Ódýrasta gistingin var Ladeira Loft, 100 fm. íbúð í Ponta Delgada, 10 nætur á 89.000, verulega fín íbúð rétt hjá miðbænum með stórum suðursvölum, þvottavél, uppþvottavél og öllum búnaði. Dýrasta gistingin var á lúxushótelinu Terra Nostra Garden Hotel í Furnas, 23.400 fyrir eina nótt (alveg þess virði samt, aðgangur að baðlaugum og öllu innifalinn).

Morgunsólin af svölunum á Ladeira Loft.

Sem sagt, Azoreyjahlutinn af ferðinni var þá um 609.000, eða um 17.400 krónur á dag. Við það bætist auðvitað matarkostnaður (ekki sérlega mikill, ég eldaði líka mikið ofan í mig), skoðunarferðir (tvær, samtals 24.000, önnur að vísu farin í rigningu og þoku svo að ég sá frekar lítið af Terceira en hin, á Sao Miguel, var sannarlega peninganna virði), leigubílar (um 30.000, þar af 12.000 til og frá Furnas, hitt aðallega að og frá flugvöllum), lestarferð (2600 kr, 3½ klst á 1. farrými). Einhverjir smápeningar í aðgangseyri hér og þar (eldri borgarar fá víðast hvar helmingsafslátt).

Svo að nei, mér fannst þetta nú ekkert svo dýrt þegar upp var staðið. Hefði getað verið mun ódýrara – aðallega gistingin – en ég vildi nú bara hafa það nokkuð gott. (Svo bættist við 108.000 í gistikostnað fyrir vikuna í Lissabon og Estoi.)

Svo er bara að fara að hugsa um næstu vetrarferð …

Leyndardómasetrið og næturböð
Nanna Rögnvaldardóttir rithöfundur skrifar.

Nú er ég búin að yfirgefa Azoreyjar – að sinni, langar mig til að segja, því að ég er næstum viss um að ég á eftir að koma þangað aftur. Ég á jú enn eftir að heimsækja fjórar af eyjunum níu og á öllum þeim sem ég heimsótti eru svo margir staðir sem mig langar til að sjá og kynnast. Ég er þó ekki alveg búin að yfirgefa Portúgal enn, er í Lissabon þegar þetta er skrifað en ætla að eyða síðustu dögunum í Estoi, smáþorpi rétt hjá Faro. (Nei, ekki í sólbaði þótt þetta sé á Algarve, það er spáð rigningu allan tímann sem ég verð þar.)

Ég var semsagt í tíu daga í Ponta Delgada á eynni Sao Miguel, eða öllu heldur: ég hafði bækistöð þar, því að ég fór tvisvar í burtu og eyddi 1-2 nóttum annars staðar en skildi mestallan farangurinn eftir í íbúðinni sem ég leigði í Ponta Delgada. Það er mjög þægilegt ef hægt er að koma því við og þarf ekki að þvælast með allt saman með sér.

Ég hafði ákveðið fyrir nokkru að ég ætlaði að heimsækja meira en helming eyjanna; var búin að ganga frá flugferðum og gistingu á fjórum þeirra, Terceira, Pico, Faial og Sao Miguel, en var í vafa um hvort ég ætti að velja Sao Jorge eða Santa Maria sem þá fimmtu. Sú fyrrnefnda varð fyrir valinu en eftir á að hyggja hefði ég kannski frekar átt að fara þangað frá Faial og þá með ferju. Eyjarnar þrjár, Pico, Faial og Sao Jorge eru nálægt hver annarri (oft kallaðar Þríhyrningurinn) og á milli þeirra ganga ferjur allt árið.

Á jarðhæð hússins hafði meðal annars verið hesthús og mylla. Mylluhjólið er þar enn – í setustofu gestanna – en engin hross.

En í staðinn flaug ég þangað frá Ponta Delgada og gisti tvær nætur. Ég var mjög spennt fyrir gistingunni sem ég hafði fundið. Hún var á gömlu höfðingjasetri rétt hjá flugvellinum, í yfir 500 ára gömlu húsi, Quinta dos Misterios, sem mætti þýða sem „Sveitasetur leyndardómanna“. Ég er sannfærð um að húsið á marga leyndardóma en engir þeirra upplýstust þó fyrir mér. Þarna hefur sama ættin búið frá upphafi og gamla konan sem á og rekur gistiheimilið sem er þar núna er að mér skilst afar fróð um sögu hússins og það er fullt af antikmunum og alls konar gripum úr eigu ættarinar. Því miður treysti hún sér ekki til að tala mikla ensku, annars hefði ég orðið stórum fróðari.

Ég var eini gesturinn í húsinu, enda komst ég að því seinna að gistiheimili er eiginlega lokað fram í febrúar, líklega hafði gleymst að láta booking.com vita … En ég fékk frábæran viðurgjörning og allur maturinn á veglegu morgunverðarborðinu var annaðhvort gerður á staðnum eða var a.m.k. frá eyjunni. „Mitt hús er þitt,“ sagði blessuð konan hvað eftir annað og vildi allt fyrir mig gera.

Húsið var við hliðina á flugvellinum en engin truflun að honum, þarna lenda yfirleitt tvær flugvélar á dag. Svo eru um 5 km til höfuðstaðarins, þorpsins Velas. Ég gekk þangað en þar sem Sao Jorge er hálend og fjöllótt eyja, græn upp á hæstu tinda en víða þverhnípt í sjó fram eða a.m.k. sæbrött, lá vegurinn sem ég þurfti að ganga hátt uppi í fjalli svo að gangan tók meira á en ég hafði haldið. Þar sem farið var að rigna örlítið tók ég því leigubíl til baka.

„Rauða torgið“ í Velas. Hér var allt rautt, bekkir, ljósastaurar, hús, blóm, tré …

Á þessum árstíma er mjög fátt um ferðamenn, kannski enginn nema ég; allavega var ég eini gesturinn á veitingahúsinu þar sem ég borðaði hádegismat.

Daginn eftir gekk ég í andstæða átt, álíka langt, og skoðaði þorpið Urzelina, sem er þekkt fyrir það að árið 1808 fór meirihluti þess undir hraun í eldgosi. Þess skjást þó engin merki núna, allt er grænt og þakið gróðri – eyjan er ótrúlega frjósöm og gróðurinn sem kýrnar hér bíta þykir gefa af sér sérlega góðan ost, sem eyjan hefur verið fræg fyrir allt frá landnámi á 15. öld. Ég smakkaði Sao Jorge-ost sem búinn var að þroskast í tvö ár og get vottað að hann var einstaklega góður.

Gróðurinn á þessum frjósömu eyjum er fljótur að fylla húsarústir.

Ég hefði gjarna viljað vera lengur á þessari fallegu eyju, sem er meðal annars fræg fyrir fallegar og skemmtilegar gönguleiðir, en líklega er heppilegast að hafa þá yfir bíl að ráða til að geta komist á þá staði þar sem best er að hefja göngurnar.

Ég flaug svo aftur til Ponta Delgada og tveimur dögum seinna fór ég til Furnes. Ég sagði frá Furnes, jarðhitanum þar og hverasvæðinu á dögunum en nú ætlaði ég ekki að skoða hveri. Ég hafði pantað gistingu á lúxushótelinu Terra Nostra, sem ekki aðeins stendur í stórum og ótrúlega fallegum skrúðgarði – ofan í eldgíg, allt þorpið Furnes stendur í eldgíg og ekki nema nokkur hundruð ár síðan þar gaus síðast – heldur eru í hótelgarðinum náttúrulaugar, stór laug með heitu vatni, brúnu af járni og öðrum efnum (gæti kallast Brúna lónið) og stórir og skemmtilegir heitir pottar. Ekkert nýtt fyrir Íslending kannski en þetta var samt mjög ólíkt því sem ég þekkti að heiman.

Brúna lónið. Bunurnar eru mismunandi kraftmiklar, sumar eins og öflugt vatnsnudd.

Garðurinn og böðin eru opin almenningi (gegn gjaldi) á daginn en á kvöldin og alla nóttina geta hótelgestir nýtt sér þetta. Það var sérstök upplifun að fara í laugina alein seint að kvöldi; dauf lýsing, rétt nóg til að maður sæi hvar laugin var. Svo er líka innisundlaug, nudd og fleira.

Hótelið er flott hús í art deco-stíl en með öllum nútímaþægindum og ég naut þess að vera þar en aðalástæðian til þess að ég hefði gjarna viljað vera lengur en eina nótt var þessi ótrúlega fallegi og gróskumikli garður sem umkringir það. Ég hefði líka verið til í að fara í gönguferðir um þorpið og nágrennið en til þess vannst ekki tími.

Úr hótelgarðinum.

Ég hafði ætlað að taka rútu til Furnes báðar leiðir en almenningssamgöngur á Azoreyjum eru ekkert sérstakar, leigubílar hins vegar tiltölulega ódýrir, og þegar ég komst að því að leigubíll frá Ponta Delgada til Furnes (45 km) kostar ekki nema 40 evrur hvora leið tók ég þann kostinn – ég var jú að fara að gista á flottu hóteli.  Svo er fínt veitingahús þarna, þar sem ég borðaði um kvöldið. Ellefu gestir en heilir sex einkennisklæddir þjónar að snúast í kringum mann.

Kvöldverður á veitingahúsi hótelsins.

Þarna á hótelinu skrifaði ég líka lokasetningarnar í fyrsta uppkastinu að næstu skáldsögu minni. Mér hefur gengið afskaplega vel að skrifa á eyjunum, eins og reyndar þegar ég var álíka lengi í Norður-Portúgal í fyrravetur. Kannski er eitthvað í andrúmsloftinu hér, ég veit það ekki, en þó er fátt sem minnir á Ísland á 18. öld.

En þessi sólarhringur  í Furnas var frábær endir á mánaðardvöl á Azoreyjum.

„Kína er ævintýraland og engu öðru líkt“
Kristín A. Árnadóttir starfaði stærstan hluta starfsferilsins í utanríkisþjónustunni og var meðal annars sendiherra Íslands í Finnlandi, Austurríki og Kína. Hún hætti að vinna fyrir tveimur árum og segir að það hafi gefið henni frelsi til að upplifa og njóta á nýjan hátt og nú hlakkar hún til  að leyfa öðrum að njóta með sér þess ævintýris að upplifa þá vöggu menningar sem finna má í Kína.

Nú þegar þú hefur ákveðið að taka að þér þetta verkefni hvernig hefur þú hugsað þér að skipuleggja ferðina og hvað ætlar þú helst að sýna fólkinu?

Kristín A. Árnadóttir fyrrverandi sendiherra.

„Ferðin er skipulögð af Úrval Útsýn og fólkið þar hefur valið einmitt að fara á þá staði sem ég hefði valið sjálf ef ég hefði skipulagt ferðina. Það er flogið til höfuðborgarinnar  Beijing og þaðan, eftir viðburðaríka daga, er tekin hraðlest, sem ferðast á hraða ljóssins liggur við, til Xi’an. Það er forn borg á silkileiðinni, ein af stærstu miðstöðvum á þeirri fornu leið. Þar fundu bændur árið 1974 einar merkustu fornleifar tuttugustu aldar,  leirherinn. Sá einstaki herafli var gerður fyrir Qin Shi Huang einn af keisurum keisaraættanna í Kína árið 221 f. Krist. Hann hefur talið öruggara að fara inn í eilífðina eða lífið hinum megin með öflugan her til að tryggja sér sömu völd þar og í jarðlífinu. En hermennirnir eru mörg þúsund styttur í fullri raun stærð og enginn eins. Þetta eru stórkostlegt hagleiksverk. Auk þess má í Xi’an sjá margt annað sem minnir á hina fornu menningu Kínverja en einnig sögulegar minjar um byggðir og menningu múslima því þarna mættust tveir heimar.

Frá Xi’an er farið til staðar sem ég hef ekki komið á og er ein af náttúruperlum Kína og staður sem mig langaði mikið að skoða áður en ég fór þaðan en varð ekki af. Í Zhangjiajie standa saltstólpar, einstakt náttúrufyrirbæri sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta sér maður hvergi annars staðar í heiminum eftir því sem ég kemst næst. Þar er líka lengsta glerbrú í heimi. Fólk getur farið upp með kláfum og gengið yfir hana en þarna er náttúran og sagan í fyrirrúmi.

Næst verður haldið til Shanghai en það er lifandi, iðandi viðskiptaborg sem býr líka yfir óstjórnlega mörgum perlum bæði hvað varðar sögu og menningu. Shanghai er stór hafnarborg og enn í dag er gríðarleg umferð um höfnina. Þar fyrirfinnst allt milli himins og jarðar. Í Kína mætast á einstakan hátt austur og vestur, fortíð, nútíð og framtíð. Allt okkur afar framandi hér í  norðrinu, í bland við ævintýri hins framandi austurs á tímum keisara, krefjandi tímar umbyltinga og menningarbyltingar, og samtími og framtíð þar sem tækninýjungar virðast skýjum ofar, ef svo má segja. Frá Shanghai er svo haldið aftur til Bejing og þar lýkur þessari tólf daga ferð.“

Glerbrúin í Zhangjiajie. Það er ekki fyrir hugdeiga að ganga þarna yfir.

Bjóst við að Kínverjar höfnuðu henni

Þú varst sendiherra í Kína á árunum frá árinu 2010-2014. Hvernig kom að til að þú tókst það að þér?

„Það er saga að segja frá því,“ segir Kristín og brosir. „Össur Skarphéðinsson var utanríkisráðherra og ég var stödd á Kastrup-flugvelli á leið heim af helgarnámskeiði hjá Dalai Lama þegar ráðuneytisstjórinn hringir í mig og segir að ráðherra hafi beðið sig að spyrja mig að því hvernig mér lítist á að fara til Kína þá um haustið. Dalai Lama er auðvitað eins og rauð dula framan í kínversk stjórnvöld svo ég var viss um að Kínverjarnir myndu hafna mér. Sagði já og Dalai Lama flaug svo með sömu vél og ég átti far með heim til Íslands í mjög umdeilda heimsókn. Við tók nokkurra vikna ferli og ég var með hnút í maganum þar sem ég bjóst allt eins við því að verða fyrsti sendiherrann í sögu Íslands sem gistiríki hafnaði. En þeir samþykktu mig. Ég þorði ekki að anda þessu á meðan ég var í Kína. Ákveðin rauð flögg tengdust Dalai Lama, Tibet og Falun Gong, svo  dæmi séu tekin.“

Kristín hlær við en heldur svo áfram. „Hins vegar átti ég gott tímabil í Kína og það sem meira er Ísland átti gott tímabil í öllum samskiptum við Kína á meðan ég var þar. Í staðinn fyrir að utanríkisráðherra væri að senda mig út fyrir sína ystu sjónarrönd kom hann mjög oft í heimsóknir, forseti Íslands og aðrir ráðamenn líka. Ferill Jóhönnu Sigurðardóttur, sem þá var forsætisráðherra, endaði á því að hún kom í opinbera heimsókn til Kína ásamt eiginkonu sinni Jónínu Leósdóttur og það var alveg gríðarlega gaman og krefjandi  að undirbúa þá heimsókn. Ég þurfti svolítið að takast á við um kínverska utanríkisráðuneytið um hvernig tekið skyldi á móti samkynhneigðum forsætisráðherra sem var í fylgd eiginkonu sinnar og það stóð oft mjög tæpt. En á endanum varð þetta var ógleymanleg heimsókn. Kínverjar stóðu mjög vel að henni og sýndu þeim báðum og Íslandi um leið mikinn sóma.“

Leirherinn í X’an.

Ísland eina Norðurlandið sem á sér nafn á kínversku

Íslendingar almennt þekkja lítið til í Kína og byggja kannski mest á sögusögnum og staðalmyndum þegar þeir ímynda sér þetta gríðarstóra land. Hvernig upplifðir þú Kínverja og kínverskt mannlíf?

„Þetta er auðvitað heilt haf af fólki og mannlífið fjölbreytt. Í mínum huga eru Kínverjar mjög kurteisir og vilja helst aldrei styggja neinn. Jafnvel þótt þú berir fram svolítið galna hugmynd segja þeir ekki nei heldur reyna að skoða málin og finna aðra leið til að láta mann skilja að betra sé að gera þetta aðeins öðruvísi. Kurteisi er ríkjandi öðru fremur og forvitni. Þeir sýna okkur Íslendingum einstakan skilning og virðingu. Ísland, eitt Norðurlandanna, á sér nafn á kínversku. Það heitir Bing Dao en það þýðir bara íseyjan. Margir hafa velt fyrir sér hvers vegna Íslandi einu er þessi sómi sýndur. Líklega eru margar ástæður fyrir því, ein kann að vera sú að Ísland er minnst og nyrst en þeir eru stærstir og mestir. Kína, Zhounggou á kínversku þýðir miðríkið. Þeir sjá landið sitt sem miðju alheimsins.

Ég hef ekki komið til Kína síðan 2014 þegar ég lauk starfi mínu þar en ég átti ógleymanlegan tíma þar.  Það var svo margt að gerast á meðan ég var þar. Íslendingar eru í samstarfi við kínverska orkurisann, Sinopec. Þeir hafa byggt jarðhitavirkjanir til húshitunar og kerfið er orðið það stærsta í heiminum. Þeir nota jarðhitann til að hita húsin og kæla þau á sumrin. Ég vonast til að við getum fræðst um aðferðir þeirra í ferðinni en þeir eru með stóra stöð í Xi’an en það verður að koma í ljós hvort af því getur orðið. Ekki er víst að við höfum mikinn tíma til að gera margt fyrir utan þetta frábæra prógramm.

Fólk hefur líka lýst áhuga á að sjá íslenska sendiráðið og sé þess nokkur kostur mun ég leita eftir því. Mig langar líka að koma þangað sjálf. Ég var sendiherra í Kína þegar við ákváðum að flytja sendiráðið í hús sem Eistland var að byggja. Húsið var gríðarlega stórt og þeir vildu gjarnan leigja okkur. Norrænu ríkin og Eystrasaltsríkin sem kallast NB8 voru að leita leiða til að þétta samvinnuna og böndin. Okkur var einnig uppálagt að leita allra leiða til að lágmarka kostnað og nýta sameiginlega aðstöðu. Við höfum verið í þessu húsi frá árinu 2014 eða 2015 en ég kom þar síðast meðan það var enn í byggingu og gekk um með öryggishjálm á höfði.“

Í Shanghai er iðandi mannlíf, áhugaverð menning og ein stærsta höfn í heimi.

Vildi njóta góðu áranna

Kristín hætti að vinna árið 2023 þá sextíu og sex ára gömul. „Mig langaði að ná að njóta þessara góðu ára til fulls,“ segir hún. „Meðan heilsan er enn góð frá því maður hættir að vinna og þar til Elli kerling fer að taka mann glímutökum þá á maður að skoða allar leiðir til að njóta, ferðast og skoða sig um í heiminum. Og ef einhver myndi spyrja mig af hverju hann ætti að fara til Kína myndi ég svara, það að fara í atvinnuleyfi eða leyfi frá atvinnunni gefur manni stórkostlega möguleika og valkosti. Þeir sem eru búnir að vinna í áratugi, skila sínu á vinnumarkaði og öðrum skuldbindingum ættu ekki að hugsa sig um þegar býðst ferð eins og þessi. Ef menn hafa á annað borð áhuga á að kynnast þessu stóra, stóra landi og þeirri einstöku fimm þúsund ára menningu sem þar er þá er þetta frábært tækifæri. Þetta fimm þúsund ára heimsveldi og hagur þess fer vaxandi í heiminum í dag.“

Kristín hefur ferðast mjög víða, ekki bara sér til ánægju heldur einnig á vegum vinnunnar. Hún segir að þrátt fyrir að í vinnuferðum hafi hún oft séð meira af fundarsölum, hótelherbergjum og flugvöllum en landinu sjálfu hafi þær engu að síður gefið henni tækifæri til að upplifa samskipti við aðrar þjóðir. „Þegar maður ferðast undirbýr maður sig alltaf og maður fer að hugsa um viðkomandi land, menningu þess og setur sig inn í stjórnarfar. Svo er tíminn sem fer í undirbúning, jafnvel tihlökkun, dýrmætur. Gleymum ekki að hugurinn ber mann hálfa leið.“

Kína á þó sérstakan stað í hjarta hennar. „Allt er svo stórt og stórfenglegt í Kína en samt svo mikil fegurð í því smáa,“ segir hún. „Þeir nostra við öll smáatriði og unnið er af einstakri kostgæfni. Kína er ævintýraland og engu öðru líkt.

Þetta verður stórkostleg ferð. Það er flogið til Bejing í gegnum Ósló og Dubai og flogið með Emirates en það er samkvæmt minni reynslu eitt besta flugfélag í heimi hvað varðar þjónustu og allan umbúnað. Þetta er auðvitað langt ferðalag en búið að búa þannig um hnúta að það verður mjög þægilegt og það er einn miði alla leið sem skiptir rosalega miklu máli því þá þarf fólk ekki að tékka sig út og inn aftur. Við dveljum í um það bil þrjá daga á hverjum áfangastað.“

Hlakkar þú til ferðarinnar? „Já, ég hlakka alveg gríðarlega til,“ segir hún með áherslu. „Ég hlakka til að koma aftur, koma á þessa staði og til þess að leiða hópinn og miðla upplýsingum og vekja athygli á einu og öðru. Ég hlakka líka til að þeirra samskipti sem við komum til með eiga, tuttugu og fimm Íslendingar sem þekkjast kannski ekki mikið en munu kynnast og deila upplifunum, reynslu og þekkingu.“

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Græn eyja og gufustrókar
Nanna Rögnvaldardóttir rithöfundur skrifar.

Já, þá er það Græna eyjan, Sao Miguel, nánar tiltekið stærsti bærinn þar, Ponta Delgada, miðstöð stjórnsýslu Azoreyja og eini bærinn á eyjunum sem hefur yfir sér einhvern borgarbrag, þótt íbúarnir séu ekki nema tæplega sjötíu þúsund. Hér eru háhýsi og stórir hótelkassar niðri við höfnina og þar eru byggingarkranar því að verið er að byggja fleiri stórhýsi.

Hér blandast saman nýtt og gamalt.

En þar rétt hjá er líka gamli miðbærinn, sem er einstaklega fallegur, með bæði breiðum og mjóum göngugötum og torgum, lögðum með mynstruðum steinhellum; þar eru kaffihús og veitingahús, litlar verslanir, kirkjur og minnismerki og þar iðar allt af lífi, að minnsta kosti þegar veðrið er gott og ekki rignir. Og veðrið er búið að vera nokkuð gott þá daga sem ég hef verið hér, hvað sem verður seinni hluta dvalarinnar. Þetta eru nú einu sinni Azoreyjar og þar rignir vissulega ansi oft, ekki síst á veturna.

En það er ekki kalt, ekki á íslenskan mælikvarða. Ég er ekki viss um að hitinn hafi farið niður fyrir 12°C á neinni eyjanna sem ég hef verið á, hvorki á nóttu né degi, en reyndar heldur ekki upp fyrir 18°C. Venjulega er hann á bilinu 14-17°C, sem Íslendingnum finnst nú nokkuð notalegt.

Ég kom hingað með flugi frá Horta mánudaginn 12. janúar í alveg ágætis veður og er hér í afskaplega góðri íbúð rétt við miðbæinn. 80 fermetrar, stórar suðursvalir sem ég er búin að nota töluvert af því að veðrið hefur boðið upp á það, eldhús með öllum þægindum (þvottavél, uppþvottavél, gaseldavél, örbylgjuofn, nefndu það bara …) og að öllu leyti bara lúxus. Og fyrir þetta er ég að borga 8900 krónur á dag.

Ananas á bændamarkaðnum. Ótrúlega bragðgóður, sætur og safaríkur.

Rétt hjá mér er stór, yfirbyggður bændamarkaður með miklu úrvali af alls konar ótrúlega fersku og góðu grænmeti og ávöxtum, þar á meðal ananas sem er ræktaður hér á eyjunni og er hreint dásamlegur; ávextirnir eru fremur litlir og einstaklega sætir og bragðgóðir. Svo eru líka bananar, sem vaxa mjög víða bæði hér á Sao Miguel og á flestum hinna eyjanna líka. Þið skulið aldrei trúa túristabæklingum eða öðrum sem reyna að segja ykkur að Ísland sé mesti bananaframleiðandi Evrópu af því að bananar eru ræktaðir í gróðurhúsi í Hveragerði. Það er mikið ræktað af banönum bæði hér og á Madeira. Og þeir eru mjög góðir.

Bananaklasi – þessi óx reyndar í Madalena á Pico. Flestir klasarnir sem ég hef séð hér eru pakkaðir inn í blátt plast þar sem þeir hanga á trjánum til að þeir þroskist betur.

Af því að ég er hér í miðbænum og drjúgur spölur út í sveit eða upp á næstu eldfjöll hef ég haldið mig við að ganga hér um nágrennið, um miðbæinn, meðfram höfninni og svona – jú, og svo gekk ég í mallið, það er nefnilega verslunarmiðstöð í göngufjarlægð héðan, Parque Atlántico; ég fór þangað af því að mig vantaði sundbol, gleymdi mínum heima og það er planið að fara í heita laug hér í næstu viku, áður en ég yfirgef eyjarnar.

En á miðvikudaginn fór ég svo í dagsferð með leiðsögumanni. Við vorum bara tvö, ég og roskinn Kanadamaður af portúgölskum ættum. Hann sagðist vera vanur að fara til Florida á veturna en nú dytti sér það ekki í hug út af Trump. Leiðsögumaðurinn var ungur og hress og þetta voru fínir ferðafélagar. Við fórum um austurhluta eyjarinnar – ég hafði reyndar pantað ferð um vesturhlutann því að ég er svo að fara aftur austur á bóginn eftir helgi – en það hafði enginn annar pantað ferð um vesturhlutann þennan dag og ferðaskrifstofan fer ekki með bara einn farþega (já, það getur svo sem verið einn gallinn við að vera ein á ferð) svo að ég ákvað að slá til og fara í austurför. Og sá svosem ekki eftir því, þetta var mjög skemmtilegt. Og veðrið var ágætt; nokkrir litlir rigningarskúrir (í karlkyni, ég er að norðan) og þoka á fjallstoppum sem greiddist þó úr á milli.

Tröppur upp að kapellu á fjallinu fyrir ofan Vila Franca do Campo.

Við spjölluðum mikið saman í ferðinni og leiðsögumaðurinn þreyttist ekki á að segja okkur hvað Evrópusambandið hefði gert mikið fyrir eyjarnar; benti okkur á hina og þessa vegi og brýr og fleira sem sambandið hafði styrkt. Svona rétt eins og öll jarðgöngin á Madeira. Þá kom upp úr dúrnum að Kanadamaðurinn var mikill Evrópusinni líka, einn þeirra sem vilja að Kanada gangi í Evrópusambandið. Mér leist vel á það.

Við byrjuðum á að aka upp á fjall og horfa yfir bæinn Vila Franca do Campo, sem var fyrsti höfuðstaður Sao Miguel, stofnaður á 15. öld. Árið 1522 bjuggu þar um 5000 manns og þetta var langstærsta þéttbýli á eyjunum. En þá reið yfir mikill jarðskjálfti og kom af stað gífurlegri aurskriðu (það höfðu verið miklar rigningar dagana á undan). Þetta var um miðja nótt, nánast hvert hús fór á kaf í skriðuna og flestir íbúar dóu. Ponta Delgada var gerð að höfuðstað en Vila Franca byggðist aftur smám saman og varð miðstöð appelsínu- og ananasræktar.

Gufan rís beint upp úr trjágróðrinum.

Næsti áfangastaður, þorpið Furnas, er ofan í risastórum eldgíg, eða raunar eru þetta tveir samvaxnir gígar. Þarna gaus síðast árið 1630 en frjósemin er mikil og gígurinn er algrænn frá botni til hárra barmanna. Þarna er stöðuvatn og svo margir hverir og heitar lindir, ekki síst í þorpinu sjálfu, sem byggir allmikinn ferðamannaiðnað á jarðhitanum. Þorpið er þó að flestu leyti ólíkt Hveragerði og það er gaman að sjá muninn. Við gengum þarna um, skoðuðum hveri og heita læki, ótrúlega fallega garða og fengum að smakka ölkelduvatn úr mismunandi lindum, og borðuðum svo á veitingahúsi rétt (blöndu af ýmsum kjöttegundum og grænmeti) sem var eldaður yfir nótt í hverahita.

Skrúðgarður ofan í eldgíg.

Ég fer svo aftur til Furnas í næstu viku og gisti þá á hóteli sem er umlukið frægum garði með heitum tjörnum og leirpollum. Segi væntanlega frá því seinna.

Við ókum svo upp á gígbrúnina til að njóta útsýnis yfir gíginn/gígana. Það gekk misjafnlega því að þokan ýmist byrgði sýn niður eftir eða henni létti svo að við sáum þvert yfir gíginn og allan gróðurinn. Þaðan var svo ekið til Ribeira dos Calderoes, sem er hreint ótrúlega fallegt svæði ofan í gili eða dalklofa, með fossum, lækjum, gömlum steinhúsum, vatnsmyllum og fleiru – allt umlukið afar gróskumiklum trjám og alls konar grænum jurtum sem við Íslendingar þekkjum margar hverjar helst sem pottablóm. Ég hefði alveg getað eytt mun lengri tíma þar.

Gömul mylluhús og fleira í Ribeira dos Calderoes.

Við ókum svo um norðurströndina og forum á nokkra útsýnisstaði; gengum meðal annars upp á hæð þar sem var bæði pínulítil kapella og turn eða skýli sem eitt sinn var notaður til að svipast um eftir hvölum í sjónum. Þegar hvalur sást var kveiktur eldur og hvalveiðibátunum beint að bráðinni. Við sáum líka teplantekrur og fleiri áhugaverða staði.

Héðan var skyggnst eftir hvölum.

Það sem mér er þó minnisstæðast er allur gróðurinn og nú skil ég af hverju Sao Miguel kallast græna eyjan – jafnvel þótt sumar hinna séu býsna grænar líka. Nú er hávetur en ég veit að í vor og sumar bætast miklu fleiri litir við þann græna því að þá koma öll blómin. Ég er eiginlega farin að sjá að ég verð að koma í aðra ferð seinna …

Ég mun þá líka eiga eftir að heimsækja fjórar af eyjunum níu. Ég er núna á þeirri fjórðu en þegar þetta birtist verð ég væntanlega komin til þeirrar fimmtu – ég ætla að skreppa til Sao Jorge og vera þar í tvær nætur. Kem svo aftur hingað til Sao Miguel.