ferðamenn – Lifðu núna

Mun spara stóru orðin um heimska ferðamenn
Sigrún Stefánsdóttir

Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi skrifar.

Þegar verið er að mæra ellina er margt jákvætt dregið fram. Þar á lista er viska, þroski, víðsýni, umburðarlyndi og fleira og fleira. Nú horfist ég í augu við að ég ekki fengið neitt af þessu í nesti inn í ellina. Þegar ég var stelpa sagði mamma oft við mig að ég virtist ekki læra neitt af reynslunni. Þetta var ekki meint sem hól. Því miður er þetta víst satt.

Þessi staðreynd rann upp fyrir mér nú í vikunni, þegar ég var komin í sjálfheldu í fjallshlíð í útjaðri framandi borgar á Spáni. Ég hef margoft undrast heimskulega hegðan erlendra ferðamanna á Íslandi. Hvað voru þeir að æða upp um fjöll og firnindi þegar allra veðra var von? Hvað voru þeir að hugsa þegar þeir lögðu af stað í smábíl á sumardekkjum út í bylinn? Hvaða erindi áttu þeir upp á jökulrönd? Þessir ferðamenn ætlast svo til þess að íslenskar björgunarsveitir leggi líf sitt í hættu við að bjarga þeim.

Ef ég hefði verið heima á Íslandi hefði ég sennilega hringt í 112 og beðið um hjálp í vikunni. En þó svo björgunarsveitirnar okkar séu alltaf tilbúnar til þess að fara í útkall hefði það sennilega tekið of langan tíma fyrir þær að koma mér og sambýlismanninum til hjálpar á sillu í snarbrattri Spánarhlíðinni þar sem við vorum í sjálfheldu.

Við gerum fátt ánægjulegra en að fara í göngur. Dagurinn var bjartur og fagur eftir rigningu næturinnar. Þessa vikuna er einmitt ár síðan ég fékk nýjan mjaðmarlið og lífið dásamlegt. Við gengum og gengum upp, upp, upp í mót. Loks ákveðum við að snúa við. Ég kem auga á hliðarveg sem var freistandi þar sem hann hvarf inn í skógi vaxna hlíðina. Ég gaf mér að hann myndi leiða okkur farsællega til mannabyggða. Maðurinn var tregur til en lét undan sannfæringarkrafti mínum.

Ferðin niður byrjaði þokkalega. Síðan þrengist slóðinn og hvarf nánast. Blautur og háll. Við fórum að klöngrast fram af hverri sillunni á eftir annarri og klettum. Enn var ég full af sannfæringarkrafti eða þar til ég sá viðvörunarskilti um grjóthrun og mynd af manneskju að fljúga aftur á bak fram af klettum. Maðurinn minn klöngrast á undan og réttir mér arminn. Skórnir mínir voru hálir sem áll og með engri viðspyrnu. Ég rann af stað og stöðvast ýmist á trjágrein eða steini. Ég notaði greinar, grasbrúska og allt sem til féll til að hanga á til þess að koma í veg fyrir að fara á hraðferð á afturendanum niður í hið óþekkta. Áfram er haldið. Svo kemur að því að hann vill snúa við. – Svarið var að ég treysti mér ekki til þess. Ég komst hvorki upp né niður. Við vorum í sjálfheldu. Sigrún Stefánsdóttir, þú ert 78 ára og ert komin í sjálfheldu. Hvað er að þér? Þú lærir aldrei neitt, eins og hún mamma mín hélt fram.

Nú sit ég og rifja upp þessa ömurlegu ferð sem staðfestir að við komumst loks niður. Við illan leik. Ég er með harðsperrur um allan skrokkinn og auman afturenda. Húkandi á sillunni áttaði ég mig á því að ég hafði ekki hugmynd um hvert neyðarnúmerið á Spáni væri né hvar við værum eiginlega stödd. Á sillunni fór ég að velta því fyrir mér hvort væri betra að ég slasaðist eða maðurinn minn upp á björgunarferlið. Þori ekki segja frá svarinu. Hvenær yrði okkar saknað? Hver ætti að leita að tveimur heimskum gamalmennum frá Íslandi?

Maðurinn minn horfði gagnrýnum augum á útganginn á mér að klöngri loknu. Hann taldi ráð að ég tæki jakkann minn og bindi hann um mig miðja. Ég var ekki til í það heldur settist á stein., fór úr buxunum, snéri þeim við og fór aftur í þær úthverfar. Þannig skrölti ég skömmustuleg í gegnum bæinn, heim í sturtu og í hrein föt.

Undirrituð, menntaður íslenskur leiðsögumaður, mun  framvegis spara stóru orðin þegar birtast fréttir af erlendum ferðamönnum sem lenda í hremmingum í íslenskri náttúru.

Sögur, samvera og tónlist í Bakkastofu
Skyggnst inn um jólaglugga að utan í Bakkatofu. Útstillingin minnir á jólaútstillingar í Rammagerðinni í æsku Ástu og Valgeirs og fólk sem komið er yfir miðjan aldur man eftir.

Á Eyrarbakka fyrir miðju þorpi stendur hús sem eitt sinn var Kaupfélag Árnesinga. Nú hefur hlutverk þess breyst í menningarhúsið Bakkastofu þar sem gestir geta upplifað innilega stund saman undir sagnaflutningi og lifandi tónlist.

Hjónin Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson tóku sig upp fyrir um 14 árum og settust að á Eyrarbakka þaðan sem Ásta Kristrún á ættir sínar að rekja. Þau komu sér fyrir með menningarmiðlun að leiðarljósi. Þangað fylgdi þeim húsbúnaður sem þau höfðu átt til langs tíma og kom að mestu frá fjölskyldu Ástu Kristrúnar og eru sum hver 2-300 ára gömul.

Heimili þerra hjóna er hlaðið fallegum munum úr lífi Ástu og Valgeirs. Á þessari mynd er rússnesk jólakirkja og þegar tendrað er á kertunum snýst hreyfillinn fyrir ofan. Í horninu má sjá styttu af tónlistargyðju sem Ásta gaf bónda sínum (deus de music). Þarna má sjá glitta í Ólínu Þorvarðardóttur sem var eitt sinn gestur í Bakkastofu.

Á efri hæð hins gamla Kaupfélags, fyrrum lúxusíbúð kaupfélagsstjóra hjónanna, er að finna einskonar einkasafn gamalla muna. Biskupaskápurinn úr Skálholti sem trónir í enda stofunnar er til dæmis um 300 ára gamall.

Ásta segir sögur og gestir Bakkastofu njóta aðventunnar og jólastemningarinnar sem ríkir í húsinu. Á bak við jólatréð glittir í Biskupaskápinn frá Skálholti sem er frá 17. öld.

Hér upplifa gestir gamla tímann í stofum sem sem enn er búið í og eru fullar af lífi og sögum en Ásta Kistrún er þekkt fyrir sínar lifandi sögustundir. Nú þegar aðventan nálgast eru stofurnar klæddar í sinn árlega jólabúning, skreyttar jólamunum sem sumir teygja aldur sinn aftur fyrir barnæsku Ástu Kristrúnar og einnig til uppvaxtarára hennar.

Á neðri hæð Bakkastofu þar sem verslun kaupfélagsins sjálf var til húsa, er nú móttökustofa og sófasalur sem tileinkuð eru tónlistinni. Gömlu búðargluggarnir við götuna fá á sig andblæ liðinnar aðventutíðar með jólasveinum, Betlehemsstjörnum og geithöfrum. Hvort sem það eru börn eða fullorðnir sem staldra við, upplifa þau án efa jólaljósið innra með sér. Gestafjöldi og gestir eru af öllum toga, fjölskyldur, vinir, félagasamtök og svo má lengi telja. Bakkastofa rúmar allt að þrjátíu gesti en þegar þeir eru fleiri getur dagskráin breyst í einskonar hringekju með Bakkastofu sem upphafsreit en gestgjafarnir flytja gesti sína á milli staða í þorpinu. Síðan njóta gestgjafar Bakkastofu hinnar fallegu og hljómgóðu Eyrarbakkakirkju en hún er einskonar tónleikahús þorpsins.

Þá státar þorpið af hinum rómaða veitingastað Rauða húsinu sem er á Gamla torginu og þar má svo sannarlega njóta vellystinga. Rauða húsið er við torgið og líka hið sögufræga hús „Húsið“ sem nú er Byggðasafn Árnesinga.

,,Heimurinn kemur til okkar“

„Það er einstaklega gefandi að fá til okkar erlenda gesti í bland við Íslendingana. Fjölbreytileikinn í þjóðerni þeirra er mikill og sumir hverjir koma meira segja beint frá fjarlægum heimalöndum sínum eins og Ástralíu, Kína, Japan og víðar. Það er ljóst að orðspor Íslands og Íslendinga hefur borist víða,“ segir Ásta Kristrún. „Að hitta landann í því návígi sem við bjóðum í dagskrám Bakkastofu er alveg einstök upplifun. Sögustund, samvera og tónlist er blanda sem hreyfir svo sannarlega við erlendum gestum okkar ekki síður en landanum. Nálgun okkar er að vera frjáls í fasi og mynda tengsl eins og kostur er.

Tónlistin sem við bjóðum enskumælandi gestum er úr SAGA MUSICA bálki Valgeirs, en þar eru textarnir á ensku og eru einskonar örsögur úr minni Íslendingasagna. Ég flyt stuttar hnitmiðaðar kynningar á undan hverju lagi og undirbý þannig upplifun áheyrenda og innlifun,“ segir Ásta Kristrún.

Mynd af tveimur Stuðmönnum og mökum og Ágústi Guðmundssyni sem leikstýrði Með allt á hreinu. Þau komu saman í léttu útgáfuhófi en öll fögnuðu þau útgáfu af enhverju tagi.

„Það merkilega við sögur og sögustundir er hversu þær tendra á sögum sem búa innra með gestum. ,,Allir búa yfir sögum en eru mismeðvitaðir um þær en samtölin, sem fá sitt pláss í Bakkastofu leiða oft til frásagna gestanna og kveikja sagnaneistann hjá þeim og margir hverjir koma þá sjálfum sér á óvart,“ segir Ásta Kristrún og brosir.

Jólagluggar í Bakkastofu. Gömlu búðargluggarnir við götuna fá á sig andblæ liðinnar aðventutíðar með jólasveinum, Betlehemstjörnum og geithöfrum.

Andstæðurnar

„Oftar en ekki koma gestir kappklæddir inn úr kuldanum á þessum árstíma inn í hlýjuna í Bakkastofu og njóta þess að hlýða á sögur tengdar jólum við kertaljós og drekka ef til vill heitan súkkulaðidrykk, óáfenga eða áfenga jólaglögg og eitthvað gott að maula með,“ segir Ásta. „Þegar Valgeir tekur svo fram gítarinn og flytur blandað efni úr eigin smiðju eða lög í anda jóla og nýárs gerist eitthvað gott.“

Ásta kemur fram í kjól af móðurömmu sinni

Ásta Kristrún segist nýta í sögum á þessum tíma hina ómetanlegu bók Árna Björnssonar „Saga daganna,“ þar sem hann gerir hefðum ýmissa daga og hátíða einstök skil. Þar má koma gestum skemmtilega á óvart um hina ýmsu siði og uppruna þeirra.

Skipta með sér verkum og vinna vel saman

Ásta segir að undanfarin ár, eftir að Valgeir hóf að glíma við veikindi, hafi hennar hluti í dagskrám orðið stærri sem gestgjafi, sögukona og veitingastjóri. „Gestir sem koma til okkar fá alltaf einhverjar veitingar en það er nauðsynlegt þar sem þeir koma oft langa vegu. Þá er gott  að  fá einhverja hressingu.“ Aðspurð sagði Ásta Kristrún að á nýafstöðnum tónleikum með Stuðmönnum í Hörpu hafi Valgeir ekkert dregið af sér í söng og slætti þrátt fyrir yfirstandandi krabbameinsmeðferð og í raun heldur ekki í þau rúmu þrjú ár sem hann hefur glímt við veikindin.

Upplifunargjöf

Nú á tímum, þegar fólk er orðið meðvitaðra um mikilvægi samveru  og jákvæðra upplifana, er farið að líta til dagskráa Bakkastofu sem mögulega „upplifunargjöf“. „Við höfum þegar haldið eina slíka fyrir þessi jól,“ segir Ásta. „Það var fyrir fjölskyldu norðan úr landi sem kom til okkar en amman og afinn hafa haft þann háttinn á að gefa uppkomnum börnum sínum þannig jólagjöf. Ömmu- og afabörnin fengu auðvitað að koma með  en við höfum ýmislegt áhugavert fyrir ungu kynslóðina að fást við ef þau hafa ekki úthald í það sem heillar þá fullorðnu.

Svo gerist oft að börn gefa foreldrum sínum upplifun í Bakkastofu. Þau njóta upplifunarinnar ríkulega og þær stundir hafa alltaf verið geysilega vel heppnaðar,“ segir Ásta.

Gisting og upplifun

Á Eyrarbakka eru líka góðir gistimöguleikar og Ásta Kristrún segir að margir hafi nýtt sér möguleikann að gera skemmtilega helgarferð úr jólagjöfinni. „Tímasetning dagskráa getur verið allskonar. Sumir vilja koma kl. 11 að morgni og byrja hjá okkur í Bakkastofu í huggulegheitum. Síðan fer fólk oft í göngutúr um þorpið, skoðar til dæmis jólatrjáasafnið í „Húsinu“ þar sem Ásta, langamma mín fæddist og ég er skírð í höfuðið á,“ segir Ásta.

Mynd tekin fyrir jólatónleika í Tryggvaskála um síðustu jól.

„Í Húsinu bjó mitt fólk,“ bætir hún við. „Afi minn og amma fluttu hingað saman, hún frá Húsavík en hann frá Hafnarfirði, en þau eru meðal annars þekkt fyrir að hafa breytt verslunarháttum á Eyrarbakka. Fram að því hafði einokunarverslun ríkt á Íslandi og illa verið farið með landann. Afi minn, Guðmundur Thorgrimsen, hafði lært verslunarfræði í Köben og kynntist þar Sylvíu ömmu minni. Sylvía hafði farið þangað með ömmu sinni 14 ára gömul og verið sett beint í danskan barnaskóla og tónlistarnám. Hún var orðin virtur konsertpíanisti 25 ára gömul þegar hún giftist afa þar ytra.

Jólastemmning í Bakkastofu. Hún varð síðan

Hópurinn – Myndin er tekin fyrir utan Rauða húsið og má sjá erlenda gesti með ármótablys. Gestir í gegnum ferðaskrifstofu sem Bakkastofa starfar með koma tvisvar í mánuði allan ársins hring og á jólum og líka í tengslum við nýja árið – Þeir gestir koma hvaðanæva að úr heiminum.

Hún var síðan virtur brauðryðjandi tónlistar hér Suðurlandi. Allir hennar afkomendur urðu síðan tónlistarfólk, þar á meðal faðir minn Ragnar Tómas Árnason. Svona kemur tónlistin fyrst inn í mitt líf,“ segir Ásta Kristrún. „Húsið og saga fjölskyldu minnar hér á Eyrarbakka var segullinn sem fékk okkur Valgeir og afkomendur okkar til að flytja hingað og stunda menningarmiðlun eins og fjölskylda mín gerði á 19. öld,“ segir Ásta stolt.

Ásta tekur við fyrirspurnum og bókunum á netfanginu bakkastofa@gmail.com og taka má fram að allar dagskrár eru sérsniðnar.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Hremmingar ferðamanna í íslenskum sturtuklefum
Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaráðgjafi skrifar.

Þegar ég ferðast með Bandaríkjamenn um fallega landið okkar eru tvö umræðuefni efst á baugi. Annars vegar er það samanburður á þeim löndum sem þeir hafa heimsótt. Sumir eru með allt upp í 30 lönd á listanum. Baðherbergin á Íslandi eru hitt umræðuefnið. Sérstaklega eru það sturturnar sem vekja athygli. Tókst að skrúfa frá heita vatninu? Hvernig virkjar maður sturtuhausinn og hve langt út á gólf rennur vatnið? Flæddi vatn að klósettinu eða fór það alla leið fram á gólf í herberginu?

Þetta eru auðvitað mikilvægar spurningar og mikilvægi þeirra er undirstrikað í skriflegu mati ferðalanganna þegar heim er komið. Oft eru þessir þættir ofar á blaði en hvort náttúruupplifunin hafi staðið undir væntingum.

Þessi gamla góða virkar þó svo að klefinn fá kannski ekki nein hönnunarverðlaun.

Þegar þessi salernismál eru rædd við mig reyni ég að bjarga mér með því að vitna í Hávamál þar sem er talað um mikilvægi þess að ferðalangar séu opnir fyrir nýjum áskorunum. Þessi tilraun mín til að afsaka sturturnar á íslenskum hótelum virkar stundum en oftast ekki.

Ég man eftir því þegar ég fór fyrst út í heim, tuttugu ára gömul. Ég fór frá Akureyri til Arkansas í  Bandaríkjunum. Mállýskan þar átti ekkert sameiginlegt við þá ensku sem ég lærði í MA, enda skildi ég nánast ekkert. Þarna lenti ég í samskonar basli og ferðamennirnir mínir. Ég kunni ekki að skrúfa frá og tókst ekki að koma vatni í sturtuhausinn í fallega baðherberginu. Sjálfstraustið var í lágmarki og ég gat því ómögulega beðið heimafólkið um að hjálpa mér. Ég skrifaði þetta allt á eigin heimsku.

Útgáfurnar af sturtum á íslenskum hótelum eru endalausar. Íslenskir handverksmenn virðast ekki hafa áttað sig á því að það væri æskilegt að gólfflöturinn í sturtuklefum hallaðist í átt að niðurfalli. Framleiðendur á sturtuhurðum hafa líka séð burt frá því að gott væri að þær næðu niður að gólfi. Það væri líka æskilegt að þurfa ekki að hafa meirapróf í krönum til þess að koma rennsli í gang af hæfilega heitu vatni. Glerhálu gólkflísarnar eru svo annar kapituli.

Ég gisti á fallegu hóteli á Vesturlandi um daginn. Þegar við vorum búin að ljúka morgunþvotti var gólfið rennblautt og þrjú handklæði dugðu alls ekki til við að bregðast við vandanum. Sturtuferðinni lauk með ískaldri gusu þar sem við snérum húninum aðeins of langt. Heima er best, hugsaði ég þegar sturtuferðinni var lokið.

Ég er ekki mikið fyrir reglugerðir. En stundum óska ég þess að það væru til reglugerðir um staðlaðan, einfaldan búnað sem gilti yfir landamæri, um hönnun og hagkvæmni tækja sem ætluð eru fyrir baðherbergi á hótelum. Þá kæmist íslenska náttúrufegurðin kannski ofar á blað en hremmingar ferðalanga í íslenskum baðherbergjum.

Ullarævintýrið – prjónaði lífsins peysu ofan frá
Rútumynd: Hér sést „Rjúpan“ í góðu yfirlæti á hlaðinu hjá Önnu Birnu í Varmahlíð undir Eyjafjöllum.

Hildigunnur Fönn Haukdsdóttir er komin á miðjan aldur, er hagfræðingur og er að ná sér í lögfræðiréttindi líka. Þetta hljómar svona eins og Hildigunnur sé ofurkona en svo er alls ekki. Hún hefur bara nýtt tækifærin sem henni hafa boðist í lífinu. Sum voru góð en önnur vond en hún nýtti sér þau líka. Þegar eiginmaðurinn skildi við hana tók hún nokkrar afdrifaríkar ákvarðanir. Hún ætlaði ekki að láta bugast, fór ein í ótrúlega skemmtilegan hjólatúr í Puglia á suður Ítalíu, keypti sér rútu og tók meirapróf. Í raun má segja að ævintýrin hafi hrúgast inn síðustu árin, óteljandi ferðalög m.a. til Afríku og Qatar, viku prjóna- ,,retreat” á lítilli eyju utan við Washington State  fyrir utan hefðbundnari ferðalög til Evrópu sem hún fór í. ,,Og ekki má gleyma hjólaferðinni miklu þegar hjóladellan heltók mig þarna um 2014 og ég hjólaði í kringum Ísland á 10 dögum.,” segir Hildigunnur og frá henni stafar kraftur.

Ákvað að láta áfengi vera

Hildigunnur ákvað líka að hún skyldi láta áfengi alveg vera þangað til hún væri búin að ná áttum. Það gerði hún og niðurstaðan var frísk kona á besta aldri sem sannaði fyrir sjálfri sér og öðrum að hún var engum háð. Hildigunnur hafði flutt rúmlega tvítug til Bandaríkjanna með þáverandi eiginmanni sínum og barni þeirra þar sem hann var að fara í nám. Þau eignuðust síðan þrjú börn til viðbótar, það síðasta þegar Hildigunnur var 28 ára gömul.

Fann fyrir mikilli leti

Íslenska kindin sem hefur haldið okkur á lífi í gegnum árhundruðin.

Þegar Hildigunnur eignaðist fjórða barnið kom í ljós að skjaldkirtill hennar var vanvirkur og er nú alveg ónýtur. ,,Það var skýringin á því að mér þótti ég vera rosalega löt því ég hafði mig ekki í að gera neitt,” segir hún. ,,Fram að því hafði kirtillinn farið upp og niður í virkni og þegar ég var hress notaði ég tækifærið og tók kúrsa í hagfræði þarna úti sem ég fékk svo metna þegar ég kom heim og gat klárað.”

Erfiður tími fyrir Íslendinga

Að loknu hagfræðinámi um fertugt fór Hildigunnur að vinna m.a. í bönkunum og síðast hjá Íbúðalánasjóði. Þar starfaði hún í 4 ár eftir hrun og sá tími var mjög erfiður. ,,Ég var aðstoðarmaður forstjóra og ritari stjórnar sjóðsins. Samstarfsfólkið var mjög skemmtilegt en vinnustaðurinn var niðurdrepandi. Starfið fólst í að reyna að hjálpa fólki með lánin sín, yfirtaka húsnæði ef það gat ekki borgað og smám saman fór ég að finna fyriróróleika. Mér fannst eins og allir hefðu verið að stofna fyrirtæki og búa til eitthvað sjálfir en ég hafði aldrei búið neitt til nema börnin mín,” segir Hildigunnur og hlær. ,,En þau eru auðvitað mesti fjársjóðurinn þegar upp er staðið.” Hildigunnur á fjögur börn og barnabörnin eru orðin 6 og á þeim öllum er mikill samgangur.

,,Að sjálfsögðu finnst þeim geggjað að fara í rútuferð með ömmu. Síðasta sumar fór fjölskyldan í dagsferð í Borgarfjörðinn þar sem komið var við hjá Hraunfossum, leikið við geiturnar í  Háafelli, farið í reiðtúr á Sturlureykjum og endað í Kraumu. Það verður að sjálfsögðu önnur ferð í sumar þar sem að útreiðartúr verður aðalmálið og svo fléttast inn í daginn eitthvað skemmtilegt.”

,,Besta myndin! Tekin í saumaklúbbi hjá mér, gestir voru amerískar konur í 15 daga prjónaferð. Þessar ferðir eru svo fábærar og ég hlakka til þegar ferðir geta hafist að nýju.“

Ferðaiðnaðurinn í miklum vexti

,,Á þessum tíma var ferðaiðnaðurinn á blússandi fart og óneitanlega þótti mér spennandi að bera þar niður en vissi bara ekki hvernig,“ segir Hildigunnur. ,,Þá sagði einhver si svona: ,,Heyrðu, þú ættir nú bara að kaupa þér rútu og fara að gera út á ferðamenn,” og mér þótti hugmyndin fáránleg til að byrja með. En eftir nokkra umhugsun fór hugmyndin að skjóta rótum og nokkrum mánuðum síðar var ég komin til Póllands að kaupa rútu. Það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina,” segir hún og brosir út að eyrum.

Hildigunnur kynntist síðan öðrum manni og sá er af erlendu bergi brotinn. ,,Það var kostur að hann hafði ekki verið þátttakandi í lífi mínu áður svo við kynntumst með alveg hreint blað. Við gátum þess vegna byggt upp nýtt samband óháð fortíðinni.”

Mætti fordómum

Hildigunnur náði sér í Meiraprófið en það gekk ekki þrautalaust. Ekki af því hún gæti ekki tileinkað sér fræðin heldur af því hún mætti fordómum.

Myndin er tekin í Þingborg Ullarvinnslu og sýnir fallegu litina frá Slettuskjótt.

,,Það var rosalega ásókn í meiraprófið á þessum tíma en mér tókst að skrá mig á eitt náskeið í júlí 2017. Rútan hafði komið til landsins í apríl svo ég ætlaði mér að ná sumrinu á eftir. ,,Skömmu áður en námskeiðið átti að hefjast hringdi í mig maður frá skólanum og spurði: ,,Er ég að tala við Hildigunni, þessa sem ætlar að fara í Meiraprófið?” Svo bætti hann við: ,,Ertu alveg viss um að þú viljir gera þetta?” Ég sagði já, svolítið hissa. ,,En þú veist að þetta er mjög erfitt,” segir hann og heldur áfram að telja úr mér kjarkinn og þá var mér farið að detta í hug að þetta væri símahrekkur. En svo var alls ekki svo ég spyr hann bara hreint út: ,,Ertu að spyrja að þessu af því ég er kona?” Nei, svaraði hann með semingi. ,,Það er kennitalan sem vefst fyrir mér.” Svo bætti hann við að þegar fólk væri komið á ,,okkar” aldur  þá færi að verða svolítið erfitt að læra. Þegar ég hitti manninn fann ég út að hann var 81 árs. Hann hlýtur því að hafa mislesið kennitölu mína því á þessum tíma var ég ekki orðin fimmtug,“ segir hún og hlær. ,,En þó svo hafi verið átti maðurinn ekkert með að draga úr mér kjarkinn að taka prófið,” segir Hildigunnur ákveðin. Ég sagði við hann að ég væri búin að kaupa rútuna og að ég ætlaði að taka þetta próf og bætti við að mér muni örugglega ganga vel. ,,Já, sjáum til með það,” sagði maðurinn þá og hafði greinilega ekki trú á mér. Á þessum tíma var að koma holskefla af konum að taka Meiraprófið og ég geri ráð fyrir að hann hafi bara verið svona gamall í hugsun. Svo voru auðvitað margir  eldri karlar á námskeiðinu. Ég tók prófið og stóð það með glans og gat farið að aka með ferðamenn um sumarið.”

Las á kvöldin og fór í gegnum söguna

,,Þessi vinahópur fór með mér allan hringinn og var svo skemmtilegur, hlógum bókstaflega í 8 daga.“

Hildigunnur hefur alltaf haft áhuga á Íslendingasögunum og hefur brennandi áhuga á Egilssögu og Njálu. Hún hefur nýtt sér þá kunnáttu í ferðum með túristana. Í byrjun hringdi hún í nokkur fyrirtæki og lét vita af sér. ,,Ég sat svo og beið og var að farast úr stressi, en svo einn daginn byrjaði síminn að hringja. Þá fór boltinn að rúlla og fyrsta sumarið gekk mjög vel. Alveg þangað til í mars í fyrra þegar covid skall á og ferðamennirnir hurfu. Þessi beygja sem ég tók í lífinu hefur auðgað líf mitt óendanlega mikið og ég hlakka svo mikið til að takast á við verkefni framtíðarinnar.”

Ullarævintýrið frá byrjaði þegar covid skall á

Hér má sjá prjónavinkonu frá US í svo fallegri peysu að Hildigunnur mátti til með að taka mynd.

,,Vetrarferðirnar voru stórkostlegar og útlendingarnir voru algerlega agndofa yfir fegurð landsins okkar. En svo þegar

,,Þessi vinahópur fór með mér allan hringinn og var svo skemmtilegur, hlógum bókstaflega í 8 daga.“

allt datt niður í mars í fyrra bjó ég til ullarævintýrið og sú dagsferð er komin til að vera, bæði fyrir Íslendinga og útlendinga. Ferðin er kynning á íslensku ullinni frá kind til klæða og Íslendingar hafa haft mjög gaman af

þessari ferð. Þetta er dagsferð um Suðurlandið með viðkomu hjá Hespu á Selfossi, Ullarvinnslunni Þingborg, Uppspuna smáspunaverksmiðju og Spunasystrum að Hárlaugsstöðum. Hádegishlaðborð með kaffi og desert er á Miðási, hrossaræktarbúi. Við endum á að fara að Hárlaugsstöðum þar sem Silla, eða Sigurlaug Guðmundsdóttir, tekur á móti okkur en þar hittast Spunasysturnar sem koma saman og lita ullina og spinna og hanna peysurnar sjálfar.”

Föngulegur hópur prjónandi stúlkna í Ullarævintýrinu síðasta sumar.

Fór í sjö dagsferðir í fyrrasumar

Hildigunnur náði að fara í 7 dagsferðir með hópa í fyrrasumar áður en covid stoppaði allt. Svo fór hún í eina tveggjadaga ferð á ION hótel þar sem með í för var prjónagúrú sem var með kynningu. Nú er Hildigunnur farin að taka við pöntunum fyrir þetta sumar og líka sumarið 2022. ,,Ferðin 2022 er 16 daga ferð sem bandarísk ferðaskrifstofa pantaði fyrir 20 manns og þar verður ekkert til sparað. Þetta er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í svona ferðum og er að byrja að bjóða Íslandsferðir.

Ég hef boðið upp á prjónaferðir í nokkur ár og yfirgnæfandi meirihluti hefur verið konur. Í seinni tíð hafa fleiri karlmenn bæst í hópinn og í sumar er eiginmaður einnar konunnar að koma með í annað sinn. Í fyrri ferðinni kom hann með fyrir eiginkonuna og hafði eiginlega ekki nennt en nú ætlar hann ekki að missa af næstu ferð.

Rjúpa travel

Uppáhaldsfugl Hildigunnar er rjúpan og þess vegna nefndi hún fyrirtæki sitt eftir þessum fallega en klunnalega fugli. ,,Rjúpan hefur verið jafn lengi hér hjá okkur og refurinn eða í tíu til ellefu þúsund ár. Hún er ótrúlega seig og dugleg, annars væri hún ekki búin að búa hér svo lengi. Útlendingum þykir gaman að kynnast íslenskum orðum og máta sig við þau. Þess vegna valdi ég fallegt

íslenskt nafn á fyrirtæki mitt.

,,Hér má sjá einn fjörugasta hópinn sem ég hef fengið frá Bandaríkjunum á heimleið eftir dagsferð um Borgarfjörðinn.“

En af hverju lögfræði?

Hildigunnur ákvað að fara í lögfræði af því hún hafði ekkert að gera í covid. ,,Ég fékk þessa hugdettu og lét slag standa og ætla að vera með rútuna sem hliðargrein. Ég sagði engum frá því að ég hefði skráð mig til að byrja með af því ég verð orðin sextug þegar ég klára og fannst eins og það væri svo mikið,” segir Hildigunnur og brosir. ,,En svo fór ég að hugsa til Bandaríkjanna þar sem þeir sem gegna æðstu embættum eru fullorðnir eins og Janet Yellen fjármálaráðherra 75 ára, Nancy Pelosi forseti fulltrúadeildar 81 árs og forsetinn Joe Biden 79 ára. Eigum við ekki bara að miða okkur við þetta fólk og halda ótrauð áfram,” segir Hildigunnur Fönn sem kemur auga á tækifærin og lætur engan telja úr sér kjark og segist eiginlega vera að prjóna lífið áfram eins og peysu ofan frá.

,,Næsta ævintýri verður í sumar þegar ég fer til San Francisco að hitta allar mínar prjónavinkonur, en ég hef kynnst ógrynni af æðislegum konum í gegnum prjónaferðirnar. Þar mun ég einnig fara um vesturströndina og kynna mig og ferðirnar mínar og að sjálfsögðu flettast inn í ferðina

Fallega logo Rjúpunnar með holtasóley og rjúpnalaufum.

vínræktarhéruð í Napa og Sonoma og margt fleira. Það er aldrei að vita nema að það verði einhvern daginn skipulögð prjónaferð á vesturströnd Bandaríkjanna. Svo blundar alltaf í mér að fara í menningar- og matarupplifunarferð með hóp um Puglia á Ítalíu því það er alveg einstakt svæði,” segir þessi lifandi kona sem er með hugmyndir sem verða að komast í framkvæmd svo við hin getum tekið þátt.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Gráhærðir ferðamenn fjölmenna til Tenerife
Þeir eru áreiðanlega fáir hér á Íslandi sem þekkja ekki einhvern sem hefur farið til Tenerife í vetur, eða ætlar að fara til Tenerife í vetur, til að stytta skammdegið. Heilu flugvélafarmarnir lenda með stuttu millibili á flugvöllum eyjarinnar þessar vikurnar, sneisafullar af fölum ferðamönnum sem mjög margir eru komnir yfir miðjan aldur. Tenerife er lítil eyja og flugvellirnir eru bara tveir.  Helsti kosturinn við Tenerife er veðrið og svo eru baðstrendurnar þar mjög góðar.

Það er ekki slæmt að leigja sér hjól til að skoða sig um, en kannski full mikil umferð á stígunum

Sumir ferðamennirnir eru búnir að fara til Tenerife ár eftir ár og mjög margir þeirra velja að vera á hótelum á Amerísku ströndinni eða Adeje ströndinni.  Þar er hótel við hótel og allt sniðið að þörfum ferðamannsins, sem getur dólað sér þarna í algerri gerviveröld. En það sem gerir það þess virði, er auðvitað veðrið, sólin og sjórinn, en hitastigið er yfirleitt öðru hvoru megin við 20 gráðurnar. Margir eru tilbúnir til að borga fyrir það og óneitanlega er þetta rólegt líf, alger slökum og á við dvöl á heilsuhæli. Það er í það minnsta skoðun blaðamanns Lifðu núna, sem dvaldi nýlega á Tenerife í tvær vikur – nánar tiltekið á Adeje ströndinni.

Þar var áberandi, hversu margir ferðamannanna voru komnir á efri ár, misjafnlega mikið þó. Enda er unga fólkið kannski bundnara heimavið á þessum árstíma. Með börnin sín í skólum og sjálft í vinnu. En blaðamaður rakst á nokkra Íslendinga sem eru komnir á eftirlaunaaldur og fara jafnvel árlega til Tenerife eða Kanarí. Kanaríeyjarnar eru sex talsins og er Tenerife þeirra stærst. Hún er þó ekki stærri en svo, að hægt er að aka umhverfis hana á nokkrum klukkutímum. Strætisvagnasamgöngur eru líka góðar og ekkert mál að fara í strætó um alla eyjuna. Það kostar sáralítið. Það var líka áberandi hvað verð á mat er miklu lægra en við eigum að venjast.

Tónlistarhúsið í Santa Cruz. Eftir arkitektinn Santiago Calatrava

Þó ferðamannastraumurinn sé gríðarlegur á eyjunni, er hægt að komast útfyrir hringiðu ferðamanna með því að leggja leið sína upp í fjöll.  Þar er hægt að komast í skemmtilegar gönguferðir og fara í lítil þorp, sem eru oft byggð eins og í tröppum, því undirlendi er lítið á Tenerife. Blaðamaður Lifðu núna brá sér í strætó til höfuðborgar eyjunnar og sótti þar heim tónlistarhúsið sem er nokkurs konar Harpa þeirra Tenerife búa og mjög nýstárlega bygging.  Langflestar íslensku ferðaskrifstofurnar bjóða uppá ferðir til Tenerife og það gera að sjálfsögðu líka erlendar ferðaskrifstofur. Blaðamaður hitti eldri konu sem kom frá London með ferðaskrifstofunni Thomas Cook og var mjög ánægð með hana.  Þá eru ferðaskrifstofur á Norðurlöndunum sem bjóða uppá Tenerife ferðir. Það er ástæða til að bera saman verð og gæði allra þessara ferða.

Það á ekki að refsa fólki sem vill vinna
„Ef maður er fullfrískur og vill vinna, hvers vegna ekki?“, segir Birgir Þórðarson leiðsögumaður, en hann hóf nýjan starfsferil eftir að hann hætti störfum hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands rúmlega sjötugur.  Hann segir að Heilbrigðiseftirlitið hafi haldið því að starfsmönnum sínum að huga  vel að undirbúningi starfsloka og það hafi verið farið að ympra á málinu þegar hann var 65 ára. Þegar hann var orðinn sjötugur, varð úr að hann tæki að sér ákveðið verkefni fyrir Heilbrigðiseftirlitið, eftir að því lauk hætti hann  svo störfum þar.

Vissu ekki hvað umhverfismál snerust um

Birgir var gerður að heiðursfélga í Félagi heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa á síðasta ári

„Þá var ég farinn að velta fyrir mér ferðamennskunni, en fyrir löngu síðan eða á árunum árið 1964 –’69 vann ég hjá Loftleiðum um hríð.  Það var í millibilsástandi áður en ég fór í framhaldsnám til Kanada í umhverfis- og skipulagsfræði. En þegar ég kom heim frá námi skildi enginn hvað ég var að tala um „umhverfisfræði“.  Menn töldu helst fyrir mig að fara vinna við  landgræðsluna eða skógrækt, en það var um það bil það, sem umhverfismál á Íslandi snerust um á þeim tíma“, segir Birgir sem ákvað að fara aftur til Kanada á meðan menn væru að átta sig á því á Íslandi hvað umhverfismál væru.

Fyrsta umhverfisverkefnið var á Keflavíkurflugvelli

Heimkominn fór Birgir að vinna í fiski, en sá þá auglýsingu frá Hollustuvernd ríkisins þar sem auglýst var eftir sérfræðingi í hávaðaverndarmálum. Verkefnið var á Keflavíkurflugvelli og snerist um að mæla hávaða frá flugumferð. Það hentaði honum vel, því hann hafði einmitt skrifað ritgerð  í náminu um hávaða frá flugvellinum í Montreal.  Þegar verkefninu á Keflavíkurflugvelli lauk, ílentist Birgir hjá Hollustuvernd.  Hann starfaði við mengunarvarnamál, eiturefnavarnir, úrbætur í sorphirðu og fleira og sá meðal annars um að koma Norræna umhverfismerkis kerfinu á hér á landi í samstarfi við þáverandi viðskiptaráðuneyti, en þetta var fyrir daga umhverfisráðuneytis á Íslandi.

Birgir segir öfluga ferðaþjónustu á Suðurlandi

Ein reglugerð varð að næstum 200

Hann varði stærstum hluta starfsævinnar í umhverfismálin.  „Ég var í 8 ár hjá Hollustuvernd, þegar ég hóf störf voru í gildi hér ein lög á sviði umhverfis- og hollustháttamála, Lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og ein heilbrigðisreglugerð sem byggði á þeim. Fjótlega bættust við þrjár reglugerðir, um mengunarvarnir, matvælaeftirlit og mjólkurframleiðslu. Síðar komu EES reglugerðarbálkarnir á færibandi, ég taldi reglugerðirnar þegar ég hætti og þá voru þær orðnar hátt í 200, flestar mjög sértækar“.

Eiturefni fengust í kaupfélaginu

Birgir segir að mestu breytingarnar í umhverfismálunum hafi orðið í sorphirðumálum, fráveitumálum og notkun eiturefna. Þegar hann hóf störf, voru steyptar gryfjur fyrir úrgang eða ruslinu fleygt í sjóinn. „Það var bara kveikt í þessu og reykjarbólstrar voru alls staðar. Fráveitu hreinsivirki  þekktust ekki. Holræsamálin voru þannig að það lágu rör úr öllum bæjum niður í næstu fjöru eða á.  Íslendingar voru t.d. enn að nota PCB kælimiðla í alla stærri rafspenna, en þá var búið að banna efnið í flestum löndum.  Það var  t.d. hægt að kaupa eiturefni til sauðfjárbaðana í kaupfélaginu. Það var notað við sauðfjárböðun, en við losun á baðvatninu í bæjarlækinn drapst allt lífríkið  í læknum og menn furðuðu sig á hvað hefði orðið um alla fiskana í læknum“, segir hann.

Leitaði aftur í ferðamennskuna

Norðurljósin seljast grimmt og engin furða

„Ég ákvað svo að skipta yfir í heilbrigðiseftirlit og fara frá Hollustuvernd.  Var orðinn þreyttur á sífelldum ferðalögum erlendis í tengslum við starfið.  Það var auglýst starf heilbrigðisfulltrúa á Selfossi og ég var svo heppinn að fá það. Það var lúxusvinna að vera heilbrigðisfulltrúi og ég fór um allt hálendið, til dæmis við að undirbúa starfsleyfi fyrir virkjanir.  Ég hafði farið í nám um  mat á umhverfisáhrifum framkvæmda  í University of Aberdeen í Skotlandi og kom það sér vel við starfsleyfavinnslu og umsagnir um umhverfismat t.d. virkjana á Suðurlandi“, segir Birgir.  „Ég hafði alltaf haft gaman af að fara með fólk um landið og segja frá og þannig leitaði ég aftur í ferðamennskuna. Mér finnst gaman að vinna og horfði á þessa byltingu í ferðaþjónustunni sem er mjög öflug á Suðurlandi. Þróunin hófst þar fyrir rúmum 20 árum. Heilbrigðiseftirlitið þjónustaði mörg af fyrirtækjunum,  þannig að ég sá hvað ferðaþjónustan var í góðri þróun“.

Að vera á réttum stað á réttum tíma

Birgir fór því í Ferðamálaskóla Íslands, en það er einkaskóli, sem hann segir bæði skemmtilegan og góðan skóla. „Þar var ég í tvo vetur og fékk réttindi bæði sem leiðsögumaður innanlands og fararstjóri erlendis“. Birgir sem hefur eins og aðrir ákveðnar áhyggjur af uppbyggingu innviða í ferðaþjónustunni segir að það hafi verið mikið að gera í leiðsögn í sumar. „Ég er búinn að vera alveg á fullu síðan ég byrjaði sem leiðsögumaður, en það er full mikið að fara ferð eftir ferð án hlés. Ég veiti leiðsögn bæði á norsku og ensku og hef mikið verið með japanska hópa. Það reynir oft á tímastjórnun í þessum ferðum,  að vera á réttum stað á réttum tíma og ef hópurinn er stór getur það verið snúið. Eins þarf alltaf að hafa öryggismálin í fyrirúmi, svo fólk fari sér ekki að voða. Ég hef hugsað mér að starfa við þetta áfram, en í hófi“.

Ásamt japönskum samstarfsmönnum

Vitlaus hagfræði að refsa fólki fyrir að vinna

En Birgir segist vera búinn að fá bréf frá Tryggingastofnun ríkisins þar sem honum var tilkynnt að hann þyrfti að greiða ellilífeyrinn tilbaka. „Já þeir voru snöggir að senda  ávítunarbréf strax um mitt ár, það var ekkert verið að bíða eftir áramótum og hugsanlegu tekjuuppgjöri !  Þeir kröfðust þess að ég borgaði megnið af ellilífeyrinum  tilbaka, ég þénaði of mikið í leiðsögninni. Merkilegast er að með því að vinna borga ég 1,5 sinnum meira  í skatt af vinnunni en ég fæ í lífeyri ! Þetta verður að lagfæra, þannig að fólki sé ekki refsað fyrir að vinna. Það eru margir sem reka sig á þetta og þetta er hreint arfa vitlaust út frá hagfræðisjónarmiðum. Ég er ekki að tala um að eldri borgara vinna  eigi að vera skattfrjáls, en það á ekki að refsa fólki sem hefur gott og gaman af að vinna. Mér finnst reglurnar skrítnar, frekar heimskulegar og vonandi kemur ný ríkisstjórn einhverri glóru í þetta mál, þannig að einstaklingar sem eru sæmilega frískir og vinnuglaðir megi halda áfram störfum sem þeim líkar, á efri árum“.

Lækningajurtir og hómópatía

Heilsudrykkir eru ær og kýr Birgis

Birgir fór óvenjulega leið í námi. Þegar hann var ungur drengur var hann í sveit á sumrin og fékk þar landbúnaðar- og ræktunar áhuga og fór í Bændaskólann á Hólum. Þaðan fór hann í garðyrkjunám í Noregi og seinna til náms í Kanada.  Hann hefur mikinn áhuga á lækningamætti jurta og var nýlega  fyrirsæta í auglýsingu, þar sem hann auglýsir sænska mjólkursýrugerilinn Probi Mage LP299V®,  en það er einn af þessum góðu meltingargerlum segir hann, sem virkar svo sannarlega.  „Ég hef reyndar menntað mig í hollustufræðum jurta og lærði hómópatíu um tíma þó ég lyki því námi að vísu ekki“.

Góð ristilheilsa mikilvæg

Birgir segir að Probi Mage LP299V® gerillinn sé ristilheilsumál. „Góð melting og hraustur ristill er einn grunnurinn að góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Þess vegna fékk ég áhuga á sænska gerlinum. Það hafa verið gerðar miklar rannsóknir á honum, með mjög jákvæðum niðurstöðum varðandi virkni og gæði.  Gerillinn gerir meltinguna betri, jafnari  og kemur í veg fyrir hægðavandamál“, segir hann.  Og þar með er ekki öll sagan sögð af heilsufarsáhuga Birgis, því hann hefur þróað margar tegundir af lífrænt vottuðum jurtadrykkjum, sem „bruggmeistari“ hjá sprotafyrirtækinu Arctic Mood , sem  fást í verslunum  undir merkinu Arctic Mood. Þar á meðal er Flensute, sem margir hafa áreiðanlega mikinn áhuga á, á þessum árstíma.

Orti ódauðleg ljóð um andvökunætur
Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur

Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur skrifar

Ég átti því láni að fagna að heimsækja Kanada, nánar tiltelkið Alberta, í byrjun september. Alberta er næstvestasta ríki Kanada, og þar er að finna hin tignarlegu og stórbrotnu Klettafjöll.  Við ferðuðumst um helstu þjóðgarða ríksins, Banff þjóðgarðinn og Jasper þjóðgarðinn. Við dvöldum einnig í samnefndum  bæjum, Banff og Jasper, sem eru einna vinsælustu ferðamannabæir Alberta, en þeir taka á móti um það bil 4 milljónum ferðamanna á ári.- Geri aðrir betur.- Banff er einna þekktastur fyrir menningasetur sem þar er rekið og heitir einfaldlega Banff Center, og helgar sig vísindum og listum.- Á hverju hausti er, til að mynda, haldin þar mikil kvikmynda-og bókmenntahátíð, sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn og rithöfundar hafa oftar einu sinni tekið þátt í.

Klettafjöllinn eru háreist og búa yfir mörgum jöklum með tilheyrandi skriðjöklum, jökulám, fossum og jökullónum. Ferðamenn streyma á þessa staði í milljónatali til að njóta fegurðarinnar, en þar er ákaflega vel búið að ferðamannastöðum til að tryggja sem minnstan ágang á náttúruna og er það gert með girðingum og steinlögðum gönguslóðum. Mér varð hugsað til ferða minna um Ísland í sumar um vinsæla ferðamannastaði, eins og til dæmis Jökulsárlón, en þar völsuðu ferðamenn um víðan völl og spurning um hvenær umhverfi þess verður svo niðurnítt, að skömm verði af.

Þótt mér hafi fundist ákaflega gaman að njóta hinnar miklu náttúrufegurðar þjóðgarðanna tveggja, réði Íslendingurinn í mér því, að það sem mér fannst mest til koma í ferðinni um Alberta, var Íslendingabyggðin á sléttunni í Alberta, nánar tiltekið smábærinn Markerville og nánasta nágrenni hans, en í sjö kílómetra fjarlægð frá Markerville, er að finna heimili Klettafjallaskáldsins góða, Stephans G. Stephanssonar.

Úr húsi skáldsins

Heimilið hans hefur verið  gert að safni, sem er opið yfir sumarmánuðina og vorum við svo lánsöm  að ná að komast þangað á síðasta opnunardegi ársins. Það var sterk upplifun að koma í hús skáldsins, en þar var lágt til lofts, og varla hægt að segja að þar hafi verið vítt til veggja. Auk stofu og eldshúss voru þar þrjú lítil svefnherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi þar sem börnin sváfu saman í einu rúmi, dæturnar þrjár niðri, en synirnir tveir uppi á háalofti.

Heimilið var nokkuð vel munum búið, þar var til dæmis píanó, sem ein af dætrum skáldsins lék á af mikilli list, en fallegustu munirnir voru gjafirnar sem sveitungar Stephans gáfu honum, þegar hann heimsótti æskustöðvarnar í Skagafirði árið 1917.

Auk þess að leggja áherslu á skáldskap Stephans G., þá varð leiðsögukonunni tíðrætt um hversu framsækinn Stephan var.  Hann var í fyrsta lagi trúleysingi, og var í nöp við boðskap Lúthersku kirkjunnar, en bærinn Markerville skartar einmitt íslenskri lútherskri kirkju. Sem tákn um afstöðu hans, lét hann ekki grafa sig né sína, í kirkjugarðinum í Markerville, sem ber hið tignarlega heiti Tindastóll, heldur í fjölskyldugrafreit, sem við heimsóttum og gaman var að skoða.

Legsteinn Stephans í fjölskyldugrafreitnum

Í öðru lagi var Stephan G. ekki aðeins mikill kvenréttindasinni, heldur líka friðarsinni og var opinberlega í andstöðu við þátttöku Kanadamanna í fyrri heimstyrjöldinni.  Stríðsrekstur  kallaði, að mati Stephans,  fram það versta í fari manna og leiddi aldrei til góðs. Stephan stóð fast við sínar skoðanir, þó óvinsælar væru, og neitaði meðal annars að þiggja sokkaprjónavél af kanadíska ríkinu, en sokkaprjónavélar voru gefnar ókeypis á hvern bæ undir þeim formerkjum að húsfreyjurnar prjónuðu sokka og sendu til kanadískra hermanna á vígvellinum. Stephan sagði nei takk og greiddi fyrir sína sokkaprjónavél sjálfur!

Það jaðraði við landráð að vera á móti þátttöku Kanada í stríðinu og vildi leiðsögukonan meina að það hefði verið mesta mildi að Stephan var ekki sóttur til saka sem landráðsmaður. Síðan bætti hún því við, að Stephan hafi ekki aðeins verið of framsækinn fyrir sinn tíma, heldur væri hann það enn. Enda er Alberta eitt íhaldsamasta ríki Kanada, en þar eru miklar olíulindir og ráða olíufurstar oft gangi mála þar.

Eftir heimsókn mína á heimili Stephans G., heimili landnemans, sem þrælaði myrkranna á milli og orti ódauðleg ljóð um andvökunætur, varð mér hugsað til allra innflytjendanna á Íslandi. Eins og Stephan G. þá hafa þeir yfirgefið föðurlönd sín, vegna erfiðleika heima fyrir, skorts á atvinnutækifærum og almennu vonleysi um framtíð sína og afkomenda sinna.

Eins og Stephan G. , þá gera þeir sér vonir um betra líf í nýju landi og eins og hæfileikamenn-og konur á borð við Stephan, leyndust í hópi íslenskra útflytjenda, þá leynist án efa hæfileikafólk í röðum innflytjenda á Íslandi. Hver veit nema sá dagur rísi á Íslandi að opnað verði byggðarsafn helgað Pólverjum og öðrum innflytjendum á Íslandi og í hópi merkustu listamanna landsins verði að finna listamenn af erlendum toga.