Ferðaskrifstofa eldri borgara – Lifðu núna

Niko heimilt að nota vörumerkið Ferðaskrifstofa eldri borgara.
Upp kom deila fyrr í vetur á milli Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og fyrirtækisins Niko sem rekur Ferðaskrifstofu eldri borgara. Félag eldri borgara taldi notkun ferðaskrifstofunnar á heitinu Ferðaskrifstofa eldri borgara og merki sem líktist mjög merki félagsins, til þess fallið að valda ruglingi hjá eldra fólki.  Ferðaskrifstofan sagðist hins vegar lengi hafa boðið ferðir fyrir eldri borgara og benti á að starfsemi þessara aðila væri gerólík, félagið hefði til að mynda ekki leyfi til reksturs ferðaskrifstofu.  Neytendastofa hefur nú úrskurðað í málnu. Hún telur ljóst að þessir aðilar séu ekki keppinautar á markaði enda sé aðalstarfsemi Niko sala á pakkaferðum og ferðatengdri þjónustu og félagið hafi ferðaskrifstofuleyfi frá þar til bæru yfirvaldi, sem FEB eða Ferðaklúbbur FEB hafi ekki. Síðan segir orðrétt í úrskurðinum.

Að mati Neytendastofu eru nokkur líkindi með heitunum en stofnunin getur ekki fallist á að líkindi með myndmerkjum þeirra séu svo mikil að hætta sé á ruglingi milli þeirra. Þá verður ekki framhjá því litið að heiti beggja aðila eru afar almenn og lýsandi fyrir starfsemi þeirra, hvort sem litið er til einstakra orða í heitunum eða samsettra heita.

Neytendastofa sér ekki ástæðu til frekari aðgerða í þessu máli, en hægt er að áfrýja því til úrskurðarnefndar neytendamála eða höfða dómsmál, sé Félag eldri borgara ósátt við niðurstöðuna.

Sigurður K Kolbeinsson kann á klukku
Hjónin Sigurð Inga Guðmundsson og Ólöfu Skúladóttur hafði alltaf langað til Færeyja. Þegar þau sáu auglýsta ferð þangað á vegum Hótelbókana síðast liðið haust, ákváðu þau að slá til. „Maður hefur alltaf heyrt talað um Færeyjar og ein ömmusystir mín giftist færeyskum manni, Jóhannesi Paturssyni á Kirkjubæ. Afkomendur hennar hafa verið áberandi í færeysku samfélagi og má þar nefna stjórnmálamanninn Erlend Patursson og listamanninn Trónd Patursson.  Mig hafði alltaf langað að koma á Kirkjubæ og hitta eitthvað af þessu fólki“ segir Sigurður Ingi um tildrög þess að þau fóru til Færeyja síðast liðið haust. Sigurður K. Kolbeins var fararstjóri í ferðinni og þau hjónin urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum með ferðina „Stundum fer maður af stað með svo miklar væntingar að maður verður fyrir vonbrigðum. Í þetta sinn bjuggumst við miklu, en fengum svo miklu meira“, segir Sigurður Ingi. „Ferðin var öll svo vel skipulögð. Það stóðust allar tímasetningar og þjónustan, matur á hótelum og skoðunarferðir, þetta var hreint út sagt frábært. Það má hann Sigurður eiga að hann kann á klukku“ segir Sigurður Ingi um skipulag ferðarinnar.

Hótelbókanir/ Ferðaskrifstofa eldri borgara, sem Sigurður K. Kolbeinsson rekur, býður nú sérstaka eldri borgara ferð til Færeyja 22.-26.júní. Flogið verður frá Keflavík til Færeyja og gist þar í fjórar nætur, á Hótel Brandan, en það er nýtt fjögurra stjörnu hótel í Þórshöfn.  Ferðin kostar 179..500 krónur á manninn, miðað við tvo í herbergi.

Innifalið: Flug og flugvallarskattar, gisting á Hotel Brandan m/morgunverði og 2ja rétta kvöldverði 3 kvöld af 4 ásamt íslenskri fararstjórn og leiðsögn.  Allur rútuakstur í skoðunarferðir auk aksturs til og frá flugvelli við Vaagar.

Skráning í ferðina fer fram með því að smella hér og senda tölvupóst með nafni, síma og kennitölu. Einnig er hægt að hafa samband við Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301.  Öllum fyrirspurnum um ferðina er svarað samdægurs.

Við skráningu þarf að greiða 69.500 kr. staðfestingargjald – sjá skilmála  hér.  Innleggsreikningur er: 0586-26-6855, kt. 590110-1750. Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingar á netfangið hotel@hotelbokanir.is  Eftirstöðvar, kr. 110.000 þarf að gera upp 45 dögum fyrir brottför.  Hægt er að greiða með peningum eða kreditkorti.

Morgunverður er innifalinn í verðinu og einnig þrír kvöldverðir.  Ferðast verður í rútu, vítt og breitt um Færeyjar og er rútuaksturinn í skoðunarferðirnar innifalinn í verðinu. Ferðafólkið fær síðan einn heilan dag til að skoða sig um í Þórshöfn. Fararstjóri er Sigurður K. Kolbeinsson.

Skráning í ferðina er á netfangingu hotel@hotelbokanir.is eða hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301. Öllum fyrirspurnum um ferðina er svarað samdægurs.

Ferðaskrifstofa eldri borgara ekki nýtt félag
Sigurður K Kolbeinsson

Niko ehf., eigandi vörumerkjanna Ferðaskrifstofa eldri borgara og Hótelbókana.is gerir athugasemdir við grein sem birtist á Lifðu núna nýlega, en þar var meðal annars sagt frá yfirlýsingu Félgs eldri borgara í Reykjavík, sem snerist um Ferðaskrifstofu eldri borgara. Sjá hér. Sigurður K. Kolbeinsson eigandi Niko ehf. telur að í yfirlýsingunni og greininni sé  beinlínis farið rangt með staðreyndir.  Það sé engu að síður rétt að FEB hafi  ekkert með rekstur Ferðaskrifstofu eldri borgara að gera frekar en rekstur annarra ferðaskrifstofa á Íslandi. Orðrétt segir í athugasemdum Sigurðar.

Ferðaskrifstofa eldri borgara er ekki nýtt félag heldur hefur fyrirtækið rekið ferðaþjónustu fyrir eldri borgara í 16 ár eða síðan 2004, upphaflega í Kaupmannahöfn og gekkst þá fyrir Aðventuferðum eldri borgara ásamt Icelandair og Emil Guðmundssyni undir vörumerkinu Hótelbókanir.is  Fyrirtækið átti samstarf við Félag eldri borgara í Reykjavík á árunum 2018 og 2019 um kynningu ferðanna fyrir félagsmenn FEB og gekk það samstarf mjög vel.  Það er því fjarstæðukent að halda því fram að FEB hafi gengist fyrir þessum ferðum.  Aðventuferðirnar verða áfram með sama sniði frá 15. nóvember 2020, 17. árið í röð og rekstur ferðanna verður alfarið í höndum Ferðaskrifstofu eldri borgara.

Í kjölfar starfsloka framkvæmdastjóra FEB breyttist mikið og var þá leitað eftir áframhaldandi samstarfi við FEB með það fyrir augum að tryggja félaginu tekjur af sölu ferða okkar auk þess að koma félaginu til aðstoðar þar sem FEB er ekki handhafi ferðaskrifstofuleyfis en slík staða getur valdið  óöryggi hjá farþegum. Boði okkar var hafnað af hálfu framkv.stjórnar FEB.

Hótelbókanir.is sáu um rekstur og umsjón Færeyjaferðar á síðasta ári að beiðni FEB og var óskað eftir því að þeim ferðum yrði haldið áfram og verðum við með 2 slíkar í ár, í mars og október. FEB var boðið samstarf um þær ferðir auk þóknunar en það boð var ekki þegið þrátt fyrir mikið lof okkar farþega á ferðatilhögun, skipulag og fararstjórn á síðustu ferð.

Gísli Jafetsson sem starfaði sem framkvæmdastjóri FEB í rúm 5 ár, hefur verið ráðinn til að sinna sérstökum verkefnum fyrir Ferðaskrifstofu eldri borgara, aðallega á sviði fararstjórnar og mun hann hefja störf í mars n.k.

Ferðaskrifstofa eldri borgara óskar stjórn og félagsmönnum FEB velfarnaðar á næstu  árum og verður ávallt reiðubúin til að þjónusta FEB og félaga þess sem og alla aðra eldri borgara hvar sem á landinu þeir búa.

Félag eldri borgara hefur ekkert með nýja ferðaskrifstofu að gera
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur sent frá sér yfirlýsingu um ferðamál.

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) hefur fengið fyrirspurnir frá félagsmönnum sínum vegna auglýsingar um Færeyjaferð frá nýstofnaðri Ferðaskrifstofu eldri borgara sem birtist um síðustu helgi.

FEB vill af þessu tilefni taka fram að þessi nýstofnaða ferðaskrifstofa er ekkert á vegum Félags eldri borgara i Reykjavík og nágrenni, er ekki í neinu samstarfi við FEB og félaginu að öllu leyti óviðkomandi.

Sem fyrr þá mun Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni efna til fjölbreyttra ferðalaga fyrir félagsmenn sína á nýbyrjuðu ári, bæði innanlands og utan. Þegar er búið að ákveða ferð til Pétursborgar í Rússlandi á vordögum, þegar allt verður í blóma þar eystra, og innan tíðar verður ferðaáætlun sumarsins kynnt

Á vefsíðu Landssambands eldri borgara er svo spurt, Hvað er Ferðaskrifstofa eldri borgara? Svarið er eftirfarandi:

Ferðaskrifstofan er nýstofnuð og er hluti af Niko ehf. sem meðal annars rekur vefsíðuna Hotelbokanir.is þar sem boðið er upp á, eins og nafnið bendir til, að finna hagstæð kjör fyrir fólk sem er að leita sér að skammtímagistingu á ferðalögum erlendis. Eigandi fyrirtækisins er Sigurður K. Kolbeinsson sem hefur m.a. gert nokkrar þáttaraðir af Lífið er lag fyrir sjónvarpsstöðina Hringbraut. Þar er fjallað um málefni eldri borgara frá ýmsum hliðum. Þættirnir hafa m.a. verið styrktir af LEB og FEB – Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.

FEB í Reykjavík hefur um árabil staðið fyrir ferðalögum bæði innanlands sem utan landsteinanna og hafa þær notið mikilla vinsælda. Vinsælustu ferðir utanlands síðustu ár, hafa verið ferðir á vorin til Færeyja og Pétursborgar í Rússlandi sem og aðventuferð til Kaupmannahafnar í Danmörku.

Nú hyggst hin nýja ferðaskrifstofa höggva í sama knérunn og býður upp á nákvæmlega samskonar ferðir utan landsteinanna. Það vekur einkum athygli að ferðaskrifstofan hefur fengið til liðs við sig Gísla Jafetsson sem til skamms tíma starfaði sem framkvæmdastjóri FEB í Reykjavík og lét nýlega af störfum þar. Gísli hefur því í farteskinu viðtæka þekkingu og reynslu af þessum ferðum og mun væntanlega nýtast hinni nýju ferðaskrifstofu vel.

Eins og fram kemur í yfirlýsingu FEB í Reykjavík þá hyggst félagið halda áfram að bjóða upp á sínar vinsælu ferðir og ef eitthvað er að auka frekar ferðaframboð sitt fyrir eldri borgara.