Gott að eldast – Lifðu núna

Starfshópur um framgang og eflingu dagdvala á landsvísu
Rannsóknir hafa sýnt að fólki líður almennt betur og það heldur lengur heilsu sé því fært að búa á eigin heimili langt fram eftir aldri. Liður í því að tryggja að fólk geti verið heima er að það hafi aðgang að dagdvöl. Stað þar sem það getur verið yfir daginn, notið félagsskapar, aðstoðar og matar. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna að framgangi aðgerðar A.3 í áætluninni Gott að eldast sem fjallar um eflingu og þróun dagdvala á landsvísu. Fréttatilkynning þess efnis birtist á síðu stjórnarráðsins í dag. Í henni segir:

Áformað er að gera fleirum kleift að nýta dagdvalarþjónustu, m.a. með öflugu samstarfi milli dagdvala og heimaþjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir eldra fólks sem býr heima og fjölskyldur þess, sem eykur möguleika einstaklinganna á að búa lengur heima í stað þess að flytja á hjúkrunarheimili.

Gott að eldast, er aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna áranna 2024-2027 um þjónustu við eldra fólk, sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023. Alls telur hún 19 aðgerðir sem eru ýmist á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins eða félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem standa saman að aðgerðaáætluninni. Sveigjanlegri þjónusta

Starfshópnum er m.a. ætlað að endurskilgreina hlutverk dagdvala og markmið þjónustunnar þannig að hún styðji betur við þarfir fólks. Einnig að skýra hverjum þjónustan er ætluð og hvernig mat á þjónustuþörf skuli framkvæmt. Hópurinn á einnig að greina þörf fyrir almenn og sérhæfð dagdvalarrými og sömuleiðis þörf fyrir dagdvalarþjónustu með sveigjanlegan og/eða lengri opnunartíma. Á þessum grunni verði unnið að samningum um sveigjanlegum dagdvölum um allt land og að minnst 100 slík rými verði komin í notkun fyrir árslok 2027.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Þura B. Hreinsdóttir, fulltrúi Gott að eldast, formaður hópsins

Stefán Jóhannsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands

Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu

Hrönn Ljótsdóttir, tilnefnd af Landspítala, félagsráðgjafasviði

Lilja Petra Ólafsdóttir, tilnefnd af velferðarsviði Reykjavíkurborgar, heimaþjónustu

Berglind Magnúsdóttir, fulltrúi Gott að eldast

Elsa B. Friðfinnsdóttir, án tilnefningar.

Starfsmaður hópsins er Herdís Björnsdóttir, fulltrúi Gott að eldast

Starfshópurinn skal taka til starfa 1. nóvember 2024 og skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 1. mars 2025.

Gott að eldast
Gott að eldast er yfirskrift stjórnvalda yfir verkefni er lúta að því að búa í haginn fyrir eldra fólk á Íslandi. Nýlega birtist á vef stjórnarráðs Íslands eftirfarandi fréttatilkynning:

Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn, sem tekur gildi 1. janúar 2025, er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, „Gott að eldast“, sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

Markmið samningsins er að veita heildræna og skilvirka félags- og heilbrigðisþjónustu í heimahúsum, með það að markmiði að tryggja örugga búsetu eldri borgara og að þeir geti dvalið heima við sem eðlilegastar aðstæður. HVE mun annast rekstur þjónustunnar.

Í gegnum samstarfið verður lögð áhersla á að veita þjónustu og umönnun á einum stað, þar sem félagsleg þjónusta, heimahjúkrun og dagdvöl verða sameinuð. Markmið er að bæta nýtingu fjármuna og mannafla, innleiða velferðartækni og fjarheilbrigðisþjónustu.

Undirbúningur framkvæmdar þjónustunnar er hafinn og aðilar munu vinna að því að tryggja að núverandi þjónusta verði aðlöguð að nýju mati á þörfum þjónustunotenda.

Samningurinn gildir til 31. desember 2027 og verður endurskoðaður árlega í samræmi við þróun þjónustunnar og þarfir eldri borgara í Húnaþingi vestra.

Fjöldi manna tók þátt í Haustdegi Gott að eldast
Á vef stjórnarráðsins er að finna fréttatilkynningu og myndir frá Haustdegi Gott að eldast. Margt fólk tók þátt í deginum en þar var farið yfir árangur undanfarinna ára og verkefni framundan:

Haustdagur Gott að eldast fór fram á dögunum en þar kom saman fólk héðan og þaðan af landinu sem tekur þátt í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög voru í fyrra valin til þátttöku í verkefnunum og á haustdeginum hittist fólk af öllum svæðunum í fyrsta skipti.

Með aðgerðaáætluninni Gott að eldast taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Ein meginaðgerð áætlunarinnar er að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir hvað þetta varðar og flétta saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin. Öll þjónusta fyrir eldra fólk í heimahúsum er þá á hendi eins aðila.

Haustdagurinn var fyrir starfsfólk þeirra svæða sem taka þátt í þróunarverkefnum um samþætta þjónustu og kynnti það hvert fyrir öðru hvernig gengið hefði og hvað væri fram undan í vetur. Þá fluttu ráðherrar Gott að eldast ávörp en það eru þeir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

Eldra fólk virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr

„Haustdagurinn gekk afar vel og það var magnað að sjá og heyra hvernig gengur að samþætta heimaþjónustuna vítt og breitt um landið. Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt og eldra fólk er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr, auk þess að búa miklu lengur heima en áður. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta og að því vinnum við nú hörðum höndum ásamt breiðfylkingu af fólki út um landið,“ segir Berglind Magnúsdóttir, verkefnastjóri Gott að eldast.

Á haustdeginum voru einnig flutt erindi um heimaendurhæfingu, vitundarvakningu um félagslega einangrun, tölfræði frá KPMG, áhugaverðar áherslur í þjónustu við eldra fólk og framtíðarsýn Gott að eldast. Þá sýndi starfsfólk Gott að eldast myndband með yfirliti yfir áfanga síðustu mánaða.

Haustdeginum lauk með hraðstefnumóti þar sem þátttakendur kynntust fólki frá öðrum svæðum á landinu og eignuðust vini í verkefninu.

Sjá nánar: Dagskrá haustdagsins 2024

Fundarstjórar voru þau Líney Úlfarsdóttir og Svavar Knútur.

Allt sem þú vilt vita um efri árin á einum stað
Væri ekki dásamlegt að hafa á einum stað allar þær upplýsingar sem mann vantar? Jú, sannarlega og island.is kemst næst því að vera sá draumastaður. Þær Berglind Magnúsdóttir og Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir sérfræðingar hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu segja að einn liður í Gott að eldast, aðgerðaráætlun ríkistjórnarinnar í málefnum eldra fólks, sé einmitt ein upplýsingagátt fyrir allt landið þar sem hægt sé að fá svar við langflestum ef ekki öllum þeim spurningum sem brenna á fólki varðandi lífið eftir sextugt.

Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur og sérfræðingur í félags- og vinnumálaráðuneytinu.

„Þessi aðgerðaráætlun snýst um þjónustu við eldra fólk,“ segir Berglind. „Skipuð var verkefnastjórn af heilbrigðiráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra, til 4 ára, til að vinna að gerðaáætlun og svo til að fylgja henni eftir. Til grundvallar vinnu lágu skýrslur og stefnur unnar fyrir stjórnvöld á síðustu árum, svo ekki var verið að byrja á grunninum, heldur skoðað hvað hefði verið lagt til og úr urðu nítján aðgerðir. Þeim er skipt upp í fimm þætti en gróflega má tala um tvo áhersluþætti,  annars vegar að efla heimaþjónustu m.a með því að samþætta hana og búa einnig um hnútana að hægt sé að hlúa að innviðum heimaþjónustunnar.

Hinn stóri vinkillinn er svo hvernig fækkum viðþeim sem þurfa að flytja á hjúkrunraheimili. Þá erum við að horfa á heilbrigða öldrun Þetta eru þessi tvö meginþemu annars vegar að bæta heimaþjónustuna til að seinka  eða koma í veg fyrir að fólk verði að flytja á hjúkrunarheimili og að stefna að því að við séum með heilbrigðara eldra fólk. Það er langtíma verkefni og snýst um alhliða heilsueflingar, andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar.

Svo kemur að því sem bæði íbúar  og starfsfólk í öldrunarþjónustu hafa ítrekað bent á og það er hversu erfitt það er að fá upplýsingar um hvað eina sem varðar þetta æviskeið.  Annað hvort er maður sjálfur í þörf fyrir þjónustu eða er aðstandandi þeirra sem þurfa á þjónustu að hadla. Það gerist oft ótrúlega hratt að þörf sé fyrir þjónustu og þá ríður á að vera fljótur að afla nauðsynlegra upplýsinga. Þessi upplýsingagjöf hefur ekki verið nógu góð og ein af aðgerðum aðgerðaáætlunar hefur verið að búa til eina upplýsingagátt fyrir allt landið þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar varðandi réttindi, þjónustu og hvert á að leita og að þar sé hægt að komast í netspjall og símasamband. Gott að eldast og Ísland.is hófu formlegt samstarf  um þetta á síðasta ári og voru þær  Guðrún Björg og Vilborg Gunnarsdóttir ráðnar sérstaklega til að vinna að þessari aðgerð.“

Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir sérfræðingur hjá félags- og vinnumálaráðuneyti.

Fá rýnihópa til að hjálpa

„Við reynum að draga saman allt sem okkur dettur í hug bæði hvað varðar farsæl eldri ár, réttindi og þjónustu, eftirlaun, lífeyri, heilsueflingu, félags- og þjónustumiðstöðvar, búa heima með stuðningi, breytingar á heilsufari, stuðningur við aðstandendur, lífshlaup og góð ráð,“ segir Guðrún Björg. „Það sem við erum að gera núna er að setja upp tiltölulega stutta texta um hvern lið og vísa síðan í frekari upplýsingar með tenglum á aðra vefi eins og heilsuveru og fleira.

Við höfum fengið gagnlegar ábendingar héðan og þaðan en finnst það ekki ganga nógu hratt svo við verðum með tvo rýnihópa á næstunni bæði með starfsmönnum í öldrunarþjónustu og eldra fólki. Tilgangurinn er að fá ábendingar um hvað brennur helst á fólki og hvernig eigum við að gera þetta. Við ætlum líka að fá til okkar aðstandendur því við teljum að vefurinn muni einnig þjóna þeim. Þetta er þannig uppbyggt að meðan þú ert enn tiltölulega hress getur þú farið í fyrri partinn en svo fer að koma að þjónustu og þá geta aðstandendur komið inn og skoðað hvað þeir geti gert. Í bígerð er einnig að koma með spjallmenni en þar erum við komin með ákveðinn pakka, spurningar og svör. Svo eru heilar undirsíður um margt eins og lífeyrismál vegna þess að þau eru svo stór.“

Meðal þess sem rætt er á vefnum er öryggi á heimilum og þar er rætt um ofbeldi og hvernig má fá aðstoð.

„Við hittum fólk frá Neyðarlínunni og settum inn tengil á upplýsingar sem þeir hafa safnað um ofbeldi og við reynum að gera það hvenær sem við getum,“ segir Guðrún Björg. „Við erum búnar að bæta inn tenglum á þjónustumiðstöðvar og ég var að bæta inn í upplýsingum um orlofsdvöl aldraðra á Löngumýri í Skagafirði. Við reynum að vinna þetta frekar hratt og síðan er líka til á ensku. Því miður vantar enn töluvert af efni á ensku á sumum þeim vefjum sem við tengjum á en fólk getur auðvitað sett efnið í þýðingarforrit Google.“

Vitundarvakning um félagslega einangrun

„Annað sem mun fylgja þessari aðgerðaráætlun er vitundarvakning,“ bætir Berglind við. „Það má skipta málflokknum upp í praktíska hluti eins og sjá má á síðunni og svo hitt huglæga sem mun ef til vill taka langan tíma. Það snýst um að vekja fólk til vitundar um allt sem varðar heilbrigða öldrun. Þá viljum við ná til fólks mun yngra, kannski bara rétt um fimmtugt og spyrja það hvernig það vilji verja sínum efri árum. Hvar vilt þú vera þegar þú verður sjötíu og fimm ára? Við munum hefja  vitundarvakninguna með því að  fjalla um félagslega einangrun. Verið er að  vinna fagefnið, svara því hvað er félagsleg einangrun, hvernig má þekkja einmanaleika og áhættuþætti er þetta varðar í samfélaginu. Við getum öll verið vakandi fyrir þessu og í framhaldinu verða haldnir fundir út um allt land.“

Þetta er mjög spennandi einkum í ljósi þess að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuni hefur lýst því yfir að einmanaleiki sé faraldur á Vesturlöndum. Við getum áreiðanlega öll gert betur í að rækta náin tengsl og komið vel fram við náungann. Gefið okkur tíma til að spjalla, heilsa og láta okkur nágrannana varða.

„Við erum alltaf að leita að góðum ráðum,“ segir Berglind. „Við viljum gjarnan geta hjálpað þegar fólk þarf á einhverju sértæku að halda til dæmis ef það er að leita að gervigæludýrum, klukku sem sýnir hvort er dagur eða nótt, einföldum símum eða hvert hægt sé að fara með þvottinn. Við erum í raun að leita allra leiða til að koma af stað vitundarvakningu um breytingar í samfélaginu sem tengjast efri árunum.

Þegar maður spyr fólk sem hættir að vinna snemma, kannski sextíu og fimm ára, hvað ætlar þú að gera næstu tuttugu og fimm, þrjátíu árin verður oft fátt um svör. En ef maður spyr hvað gerðir þú fyrir þrjátíu árum telur það upp ótal hluti, ég stofnaði fyrirtæki, svo voru börnin, húsnæðið og fjölskyldan. Ég hitti nýlega mann sem er sextíu og fjögurra ára og stóð á þessum tímamótum og hann svaraði: „Nú ég ætla að vera í golfi.“ „Já, gott og vel,“ sagði ég, „Hvað ætlar þú að gera? Þú átt framundan ótal góð ár.“ Við erum fyrsta kynslóðin til að upplifa starfslok meðan enn er eftir nóg þrek. Kynslóðir á undan voru bara orðnar lúnar og oft heilsulausar þegar kom að því að hætta að vinna. Við þurfum að vekja fólk til umhugsunar um að það þarf að undirbúa starfslokin og getur jafnvel kosið að vinna lengur.“

Þetta verða lokaorðin að þessu sinni en upplýsingagáttin https://island.is/lifsvidburdir/ad-eldast er opin og þar er að finna margt gagnlegt og þar er þægilegt að leita.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Gott að eldast á island.is
Á vef stjórnarráðsins er að finna fréttatilkynningu um verkefnið Gott að eldast á Íslandi og hvar megi nálgast frekari upplýsingar um þá þjónustu og aðstoð sem stjórnvöld hafa þegar komið í gagnið í tengslum við verkefni. Eftirfarandi er tekið af vef Stjórnarráðsins:

Upplýsingar um hvað eina sem tengist þjónustu fyrir eldra fólk, réttindum þess og heilsueflingu má nú í fyrsta sinn nálgast á einum stað á vefnum island.is undir heitinu Að eldast. Hingað til hafa upplýsingarnar verið dreifðar hér og þar og gjarnan flókið fyrir eldra fólk og aðstandendur þess að nálgast þær.

Ætlunin er að island.is verði til framtíðar sá vettvangur sem fyrstur kemur í hugann hjá einstaklingum sem leita sér upplýsinga um ýmsa þjónustu. Vinnan við upplýsingagáttina á island.is er hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast sem er samstarfsverkefni félags- og vinnumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins.

Ein stærsta breytingin á samsetningu samfélagsins næstu árin er fólgin í því að þjóðin er að eldast. Í því felst ekki einungis áskorun heldur einnig tækifæri.

Hvað get ég fundið á island.is?

Með því að fara inn á island.is og smella á Að eldast má nálgast yfirgripsmikla umfjöllun um fjölbreytta þætti. Þar á meðal eru eftirfarandi atriði:

Heilsuefling

Eftirlaun og lífeyrir eldra fólks

Sérkjör og afslættir fyrir eldra fólk

Íbúðir fyrir eldra fólk

Félags- og þjónustumiðstöðvar

Að búa heima með stuðningi

Dagdvalir og dagþjálfun

Heilbrigðisþjónusta

Breytingar á heilsufari eldra fólks

Stuðningur við aðstandendur

Við lífslok

Góð ráð fyrir eldra fólk

Í ítarlegri umfjöllun í hverjum flokki er lesandanum síðan beint í réttar áttir.

„Markmiðið er að öllum verði gert kleift að ná í upplýsingar á einum stað, bæði um eðli ýmissa þjónustuþátta og um framboð og aðgengi að þeim á viðkomandi svæði. Takmarkið er safna saman öllu því sem stuðlar að betri heilsu á efri árum og þeirri þjónustu sem mögulega er hægt að fá þegar frá líður,“ segir Berglind Magnúsdóttir, verkefnastjóri Gott að eldast.

„Við eigum von á því að þetta muni breyta því hvernig fólk nálgast upplýsingar og einfalda til muna bæði líf eldra fólks hér á landi og aðstandenda þeirra. Enda er leiðarljósið skýrt: Það á að vera gott að eldast.“

Að viðhalda færni sem lengst

Á Íslandi, eins og víðar, er von á mikilli fjölgun eldra fólks á næstu áratugum. Það kallar á vitundarvakningu sem stuðlar að breyttum viðhorfum og bættum lífsstíl til að viðhalda færni sem lengst.

Lengi hefur verið mýta að þegar fólk eldist verði það „byrði“ á samfélaginu. Kostnaðarábatagreining og mælaborð sem KPMG vann fyrir Gott að eldast, sýnir hins vegar að svo er langt í frá.

Þá sýna æ fleiri rannsóknir fram á hvað lífsstíll skiptir gríðarmiklu máli til að viðhalda líkamlegri og andlegri heilsu.