Halldór Guðmundsson – Lifðu núna

Laxness í áhugaverðu ljósi
Verið velkomin í kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudagskvöldið 23. júlí þar sem gengið verður um slóðir rithöfundarins Halldórs Laxness og verka hans.

Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur og höfundur ævisögu Halldórs Laxness, leiðir göngufólk um slóðir ævi og verka nóbelskáldsins í miðbæ Reykjavíkur. Sagt verður frá fæðingarstað Halldórs og nokkrum stöðum í miðbænum þar sem hann bjó ungur eða var tíður gestur.

Halldór skrifaði ekki margar Reykjavíkursögur, en komið verður við á söguslóðum Brekkukotsannáls og Atómstöðvarinnar, meðal annars. Varpað verður ljósi á tengsl Halldórs við höfuðstaðinn, þar sem bjuggu ekki nema tæplega sjö þúsund manns, þegar hann fæddist.

Gangan hefst kl. 20:00 við Laugaveg 32 og tekur um eina og hálfa klukkustund.

Ókeypis er í gönguna og fer hún fram á íslensku.

Kvöldgangan er hluti af viðburðarröðinni Kvöldgöngur sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina og eru með öllu gjaldfrjálsar

Nánar um gönguna á fimmtudag og heildardagskrá kvöldganga hér:

https://borgarbokasafn.is/kvoldgongur

Rauðisandur uppáhaldsstaður Halldórs Guðmundssonar
„Hvort þykir þér vænna um pabba þinn eða mömmu?“ var gamall kunningi móður minnar vanur að spyrja okkur krakkana ögn hranalega þegar hann leit við heima, og við náttúrlega öll kjaftstopp. Eins verður mér við að svara spurningunni um hver sé uppáhaldsstaður minn á landinu. En ég ætla samt að nefna Rauðasand á sunnanverðum Vestfjörðum. Hann uppfyllir öll skilyrði slíks staðar: það er ekki fyrirhafnarlaust að komast þangað, náttúrufegurðin er stórkostleg og það fylgja honum sögur, sumar hrikalegar.

Það er yfir heiði og niður brattan og krókóttan fjallveg að fara. Lofthræddu fólki eins og mér hefur þá jafnan gefist best að keyra sjálft, en rétt er samt að geta þess að vegurinn hefur batnað töluvert frá því ég fór hann fyrst. En þá opnast líka tilkomumikil og breið vík, umgirt fjöllum. Vestan megin eru björg, Brekkuhlíð og síðan Keflavíkurbjarg og enn vestar Látrabjarg, austan megin Stálfjallið og síðan hinar snarbröttu Skorarhlíðar, kenndar við eyðibýlið Skor, þaðan sem Eggert Ólafsson lagði af stað í sína hinstu för.

En tilkomumest er að líta yfir ströndina, tíu kílómetra langa gullna strönd sem skiptir litum eftir birtu og er stundum roðagyllt af ótal skeljabrotum. Þetta er áhrifamikil tilbreyting frá því svarta grjóti sem annars umlykur Ísland að mestu. Ströndin er líka breið, það er aðgrunnt og hún veit mót suðri og í góðu veðri er frábært að busla þarna í sjónum og ekkert afrek sem þarf að undirbúa með námskeiðum hjá sjósundsfélaginu.

Þessum afskekkta stað, eins og öllum stöðum á Íslandi, fylgja líka margar sögur og sú frægasta og um leið myrkasta er kennd við bæinn Sjöundá. Þarna á hjara veraldar var tvíbýli og í upphafi 19. aldar bjuggu á helmingi bæjarins hjónin Bjarni Bjarnason og Guðrún Egilsdóttir með þremur börnum sínum, en á hinum helmingnum Jón Þorgrímsson og Steinunn Sveinsdóttir með fimm börnum. En sú sambúð stóð ekki lengi og var ekki farsæl. Steinunn og Bjarni felldu hugi saman eins og sagt er og myrtu fyrst Jón og hrintu niður björg og drápu nokkru síðar Guðrúnu með eitri. Þau voru dæmd til dauða. Bjarni margstrauk úr fangelsinu en Steinunn ól þar barn og dó síðan skyndilega af ástæðum sem aldrei hafa skýrst. Í Reykjavík fékkst enginn til að vera böðull Bjarna og að lokum var hann fluttur til Kristianssand í Noregi þar sem beið hans skelfileg aftaka.

Um þetta alræmda morðmál skrifaði Gunnar Gunnarsson sitt magnaðasta verk, skáldsöguna Svartfugl sem fyrst kom út 1929 í Danmörku og hlaut afbragðsviðtökur. Hann byggði stóra hluta verksins á réttarskjölum en tókst um leið að skapa óhugnanlegt andrúmsloft kúgunar, bælingar og hræsni sem situr lengi í lesandanum. Þessa bók má taka með sér þegar rölt er út að rústum Sjöundár frá bænum Melanesi, þar sem hefur verið byggð upp góð aðstaða fyrir ferðamenn. Það er upplagt tækifæri til að hugleiða það erfiða og á stundum hrikalega mannlíf í stórbrotinni umgjörð sem Íslandssagan var.

Furður ævinnar
Það er næstum algilt þegar við lesum sjálfsævisögur, hvort heldur Nonna eða Sigurð A. Magnússon eða Bíbí sem Vigdís Grímsdóttir skráði svo listavel, að okkur þykir fyrsti hlutinn bestur. Sennilega er það vegna þess að hann einkennist af leit, óvissu, spennu: hetjan okkar er að finna sjálfa sig, eins og nú er sagt, búa sér til sjálfsmynd. En eftir að það hefur tekist þekkjum við sjónarhornið, vitum meira á hverju við eigum von, „séð og lifað” tekur við af óvissuleiðangri bernsku og unglingsára. Þegar að er gáð er þetta svolítið í samræmi við líffræðilögmálin: Eftir tuttugu og fimm ára aldur fer okkur aftur í flestu, hvort heldur líkamlega eða til höfuðsins. En það er í fullkominni andstöðu við hvernig við viljum sjá ævi okkar: við gerum allt til að telja okkur trú um að okkur hljóti að fara fram allt til loka.

Þetta eru tvær línur: Önnur liggur hægt en örugglega upp á við, uns henni lýkur skyndilega. Hin rís bratt en liggur svo hægt og alveg jafn örugglega niður á við. Þegar við búum okkur til þá sögu sem við teljum okkur trú um að sé ævi okkar, eins og það var eitt sinn orðað, þá viljum við endilega að hún fylgi fyrri línunni en allar líkur eru á að hún fylgi þeirri seinni. Þetta er áskorunin: alla ævina erum við að reyna að rísa gegn lögmálum lífsins. Við viljum alltaf bæta einhverju við okkur, vera á uppleið. Sumir gera það t.d. með því að vera sífellt á námskeiðum um ólíklegustu hluti sem minnir mig stundum á þá sem eru alltaf í megrun; þetta eru tilbrigði við að sitja kyrr í sama stað og samt að vera að ferðast, eins og Jónas orti forðum.

En þessi viðleitni er góð að því leyti að þannig erum við alltaf að reyna að koma okkur sjálfum á óvart, og það er lykilatriðið. Vitlausasta útgáfan af línunni sem liggur hægt en örugglega upp á við allt til loka er það sem kallað er framabraut. Ekki það að ég hafi verið neitt skárri en margur annar hvað það varðar að fá vinnuframlag metið í bílastyrkjum, skipuritum, ferðalögum, símtólum og starfslokasamningum (það síðasta er dapurlegast: að láta borga sér fyrir að vinna ekki). Síðast var ég forstjóri Hörpu í tæp fimm ár og það var að flestu leyti gaman: Stórkostlegt hús, yndislegt samstarfsfólk, frábær kynni af ólíku tónlistarfólki og dálítið óheppilegt eignarhald. En svo gafst mér kostur á vinnu í Noregi, án sérstakra forréttinda en kannski nær mínum áhugamálum og ég sló til. Ég var orðinn sextugur en rak sjálfan mig til að kynna mér nýtt land, nýja menningu, nýtt tungumál (sem ég leysti með því að tala dönsku með íslenskum hreim), nýtt samstarfsfólk, jafnvel nýja vini. Ekki að það sé svo merkilegt að fara til Noregs, en þar með hljóp snurða á æviþráðinn, svo ég haldi mér við þá líkingu, og mér tókst að koma sjálfum mér á óvart. Kannski getur bara sá sem er forvitinn og undrast bætt við sjálfsmynd sina, í stað þess að telja hana fullskapaða, hvíla í sjálfum sér og miðla af visku sinni; mikið sem slíkt fólk getur orðið þreytandi. Það er oft talið barnalegt að undrast, andspænis þeim sem allt þykjast hafa séð áður, en það er besti hæfileikinn sem við getum tekið með okkur ævina alla og forsenda þess að við getum búið til áhugaverða ævisögu, þótt ekki væri nema handa okkur sjálfum.

Loks eru þessar einföldu vinnureglur sem við fornvinur minn komum okkur saman um tvítugir; væri annar staðinn að því að brjóta þær mátti hinn leggja hann umsvifalaust inn: Maður skyldi aldrei móðgast yfir því að vera ekki boðinn í kokkteilboð og aldrei telja menntaskólaárin besta tíma ævinnar. Með aldrinum er ég farinn að færast hættulega nærri hinu síðarnefnda en ég ætla ekki að segja honum frá því.