hraði – Lifðu núna

Getum við hægt á tímanum?
Finnst þér tíminn fljúga frá þér? Ef svo er ættir þú að skoða nokkrar góðar leiðir til að nýta tímann betur og breyta til þannig að það hægi á og hver stund nýtist betur. Meðal þess sem sérfræðingar ráðleggja er að brjóta upp rútínuna, gera nýja hluti og fara út fyrir þægindarammann öðru hvoru. Þannig getur manneskja „blekkt“ heilann þannig að hann hægi á tímaskyninu.

Við stynju öll reglulega yfir hve hratt tíminn líður. Barnabörnin eru varla fædd í þínum huga þegar þau bjóða þér í fermingarveislu og börnin þín eru allt einu tekin að grána í vöngum og búa sig undir að fara á eftirlaun. Þetta er mjög eðlileg tilfinning og það er alveg rétt að með aldrinum virðist tíminn hlaupa hraðar en áður Allt hefur þetta með það að gera hvernig heilinn skynjar tíma. Því fleiri sterkar minningar sem heilinn geymir, því lengur virðist tíminn vera að líða. Sem börn upplifðum við nýja hluti oft og því fannst okkur tíminn hægari þá. Með öðrum orðum þetta tengjist endurtekningu. Því eldri sem við verðum, því rútínukenndari verður lífið, þannig að tíminn líður án þess að við séum meðvituð um hann. Þegar við upplifum eitthvað í fyrsta skipti, eins og börn gera oft, erum við hins vegar meira til staðar í því og þá virðist tíminn lengri.

Þess vegna er okkur ráðlagt að prófa oftar eitthvað nýtt. Til dæmis gæti fólk prófað að bursta tennurnar með þeirri hendi sem það notar sjaldnar, gengið eða ekið nýja leið á kaffihúsið sitt eða út í búð, samið ævintýri og lært það utanbókar til að segja barnabörnunum söguna. Nýjar upplifanir skapa þá tilfinningu að tíminn sé lengur að líða.

Tíminn hleypur þegar það er gaman

En er ekki alltaf sagt tíminn líði hratt þegar við erum að skemmta okkur og gera eitthvað sem gaman er að? Jú, það er vissulega rétt að vissu marki. Þegar við erum upptekin af því sem við erum að gera, einbeitum okkur eingöngu að því finnst okkur tíminn hafa flogið þegar við lítum upp og sjáum að nokkrar klukkustundir eru síðan við síðast litum á úrið. Og tíminn líður hægt þegar manni leiðist. En þetta snýst algjörlega við þegar við horfum til baka og rifjum upp þessar stundir. Minnið deyfir leiðindin en varðveitir góðu stundirnar. Þær virðast þess vegna tíðari og lengri. Vilji fólk líta um öxl á efri árum og finnast líf þeirra hafa verið innihaldsríkt og gott ætti það því að rækta sambönd við aðra sem mest og best. Þær stundir sem við verjum með þeim sem okkur þykir vænt um eru nefnilega þær sem við munum lengst og geymast í minninu sem okkar bestu. Þegar fólk ræktar góð sambönd, líkamlega heilsu sína, ver tíma úti í náttúrunni, á góðar samræður við aðra og gerir hluti fyrir aðra, þá festist í sessi sterkar, innihaldsríkar minningar sem aftur gera það að verkum að tíminn líður hægar í huga okkar.

Hvernig á að fá sem mest út úr tímanum og lífinu:

Stígðu reglulega út fyrir þægindarammann: Í hvert skipti sem þú stígur út fyrir þægindarammann gerir þú hluti sem láta tímann líða lengri og innihaldsríkari. Vertu opin/n fyrir nýjum, örlítið ógnvekjandi upplifunum. Ef þú ert félagslynd manneskja ættir þú að efla þig með því að fara eitthvert og gera eitthvað ein/n. Ef þú ert hlédræg/ur farðu þá út á meða fólks og blandaðu geði við aðra.

Gerðu núvitundaræfingar: Núvitund er bæði holl og mikilvæg fyrir líkamann og það er skynsamlegt að læra nokkrar núvitundaræfingar til að þjálfa sig í að vera meira til staðar hér og nú. Þær geta falist í að einbeita sér að því að taka djúpa, rólega andardrætti af og til. Eða að vera hundrað prósent einbeittur að því að horfa á matinn sem þú ert að fara að borða, borða hægar og virkilega finna bragðið. Þú getur líka verið alveg meðvitaður um líkama þinn af og til.

Skrifaðu dagbók: Skrifaðu dagbók á hverjum degi! Og sem bónus geturðu tekið myndir og safnað minningarhvötum sem þú límir inn í bókina. Það geta verið aðgöngumiðar á söfn, leikhúsmiði, servíetta merkt uppáhaldsveitingahúsinu eða teikning frá barnabarni. Að handskrifa texta virkjar aðrar stöðvar í heilanum en þær sem vinna þegar þú skrifar á lyklaborði. Dagbókin er einnig gott tækifæri til að rifja upp góðu stundir dagsins og í hana geta menn leitað aftur og aftur til að rifja þær upp. Það skapar þá tilfinningu að þú hafir lifað margt, nýtt tímann og hann virðist þar af leiðandi hægari.

Slepptu öllum skjátækjum og lestu bók: Góð kvikmynd getur myndað sterka minningu í heilanum, en að megnið af þeim tíma sem við eyðum fyrir framan skjái hverfur án þess að við byggjum upp nýjar minningar. Betra er að lesa bók og mun frekar ef þú ert ekki bókaormur, þá er lestur sérstaklega áhrifaríkur. Í heilanum myndast ný upplifun sem festist í minninu. Lestur virkar líka vel fyrir þá sem lesa mikið, einmitt vegna þess að heilinn vinnur úr bókum miklu hægar en því sem menn sjá á skjá. Það er líka mælt með að lesa upphátt fyrir einhvern, til dæmis geta pör skiptst á að lesa upphátt fyrir hvort annað og að lesa fyrir börn skapar einstaka nánd.

Víkkaðu sjóndeildarhringinn í fríi: Ef þú ferð til Gran Canaria á hverju ári og gerir alltaf það sama, þá er það vissulega fínt, en með því að hrista aðeins upp í frírútínunni er mögulegt að skapa bæði áhrifaríkar minningar og finnast maður hafa hægt á lífinu svolitla stund. Í stað þess að liggja við sömu sundlaugina á Gran Canaria í tvær vikur væri hægt að leigja íbúð og bóka gistingu á tveimur stöðum á eyjunni. Að fara í bátsferð til næstu eyja, gönguferð á ókunnum slóðum, læra að standa á brimbretti eða fljúga í flygildi. Gaman væri líka að heilsa fólkinu við næsta borð á veitingastaðnum og bjóða því upp á bjór. Lykilatriðið er að vera opin/n fyrir bæði nýju fólki og nýjum upplifunum – og ekki síst að breyta því hvernig maður hefur alltaf gert hlutina.

Hversu erfið þarf æfingin að vera?
Lengi var mantra íþróttaþjálfara gjarnan; „No pain, no gain“. Þeir hvöttu fólk stöðugt til að reyna meira á sig og hætta ekki fyrr en sviði í vöðvum og mæði voru við að ganga frá fólki. En er það nauðsynlegt? Er hreyfing gagnslaus og betur heima setið ef menn ekki hamast þar til blóðbragðið í munninum er viðvarandi? Svarið er nei. Það þarf alls engan hamagang eða læti til að viðhalda vöðvum, liðleika og góðri líðan. Það nægir að hjartslátturinn hækki í 20-30 mínútur en menn þurfa alls ekki að leggja harðar að sér en svo að þeir geti með góðu móti talað við æfingafélagana meðan á æfingunni stendur.

Skjaldbakan og snigillinn eru þrautseig kvikindi þótt þau séu hæg og þau komast í mark ekkert síður en hlébarðinn og hérinn. Með hækkandi aldri tapast margt smátt og smátt og það er mikilvægt að þekkja mörk sín. Til dæmis skerðist jafnvægi hjá mörgum og það getur skapað hættu við hlaup, fjallgöngur og göngur upp og niður stiga. Göngur á láglendi eru ekkert síður ánægjulegar og það má auka brennsluna með því að sveifla handleggjunum eða stunda stafagöngu. Það er líka ekkert að því að ganga um innandyra, til dæmis í stórverslunum. Skrefin þar eru drjúg og ekki síðri æfing en margt annað.

Sund er góð hreyfing og hefur þann kost að það er almennt ekki mikil hætta á að slasa sig. Vatnsleikfimi er auðveld og árangursrík og ekki síður að synda nokkur hundruð metra á hverjum degi. Það gott að hjóla og núorðið eru skemmtilegir hjólastígar um alla borg. Til að viðhalda vöðvastyrk er gott að lyfta lóðum einu sinni til tvisvar í viku. Rannsóknir sýna að áreynsluminni hreyfing á hverjum degi skilar sama árangri til lengri tíma og þrjár erfðar æfingar í viku.

Stöðugur og hóflegur hraði bestur

Mestu skiptir að halda stöðugum en hóflegum hraða á göngu, sundi eða á hjóli. Hálftími á dag er nóg og vísindamenn telja að slík hreyfing sé heppileg fyrir fólk eftir sextugt og í raun betri en mikil áreynsla. Mælt er með: Vatnsleikfimi, göngu á stigvél, róðarvél, jóga eða léttum lóðum í daglegum æfingum. Gott viðmið til að gæta þess að fara ekki fram úr viðmiðinu er að tala upphátt við sjálfan sig eða félaga sinn og ef þú getur það án þess að mæðast eða eiga í erfiðleikum með að tala ertu á réttri leið. Í sundi er viðmiðið hversu oft þú þarft að anda. Ef þér finnst lungun vera að springa eftir fyrstu ferðina þarftu að hægja á.

Að virða meðalhófið við val á líkamsrækt og æfingum hefur einnig þann kost að andleg líðan batnar verulega. Ef fólk kýs að æfa utandyra hefur það enn meiri og betri áhrif á heilann og eykur til muna framleiðslu vellíðanarboðefnaframleiðslu líkamans. Þar skiptir hreina loftið og birtan mestu. Ennfremur þjálfar það hugsun og andlega krafta að ganga um úti í náttúrunni. Það að ferðast yfir krefjandi og óslétt landsvæði, eins og eru víða hér á landi, kallar nefnilega á útsjónarsemi og stöðuga athygli. Að ganga yfir þýfðan móa er líka fyrirtaksþjálfun fyrir jafnvægið. Við það má bæta að það gefur aukið sjálfstraust og gleði að finna að maður getur enn farið ferða sinna nokkuð vandræðalaust úti í náttúrunni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.