huggun – Lifðu núna

Óvæntur gestur veitir huggun í sorg
Ástralska leikkonan Rebecca Gibney gekk í gegnum mikla sorg fyrr í sumar. Fyrst lést móðir hennar, Shirley, 91 árs að aldri þann 21. júní síðastliðinn og aðeins þremur vikum síðar einn hennar bestu vina Sam Neill. Rebecca var gersamlega miður sín og hélt heim á búgarð sinn í Nýja Sjálandi til að hvílast og ná sér þar beið hennar óvæntur gestur, gestur sem veitti huggun í sorginni.

Rebecca með Shirley, móður sinni.

Rebecca er margverðlaunuð leikkona í heimalandi sínu og hefur leitt ótal mjög vinsælar þáttaraðir þar á meðal má nefna, Under the Vines, Halifax og Winter. Hún hefur einnig leikið gestahlutverk í NCIS Sydney, Brokenwood Mysteries og Low Down Dirty Criminals. Rebecca ólst upp við mikið ástríki af hendi móður sinnar og þær voru alla tíð nánar. Þær hafa oft talað um hið sterka band sem bindur þær í viðtölum og Rebecca sagt að móðir hennar sé jafnframt hennar besta vinkona, helsti ráðgjafi og fyrirmynd.

Shirley steig fram í metoo og sagði frá grófri kynferðislegri misnotkun sem hún varð fyrir af hálfu föður síns í æsku og þær mæðgur voru áberandi í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi í Ástralíu. Fjölskyldan þekkti vel söguna áður en hún steig fram en Shirley tókst að vinna úr áfallinu með hjálp trúarinnar. En varla hafði Rebecca kvatt móður sína þegar annað áfall reið yfir. Sam Neill lést óvænt úr lungnabólgu. Leikarinn hafði barist við eitlafrumukrabbamein en það leit út fyrir að hann hefði haft sigur í þeirri baráttu.

Steggurinn Sir Sam innan um Shirleyjarnar.

Endurnar á tjörninni

Sam Neill var hins vegar náinn vinur Rebeccu og allrar fjölskyldu hennar. Það var óhjákvæmilegt að þau rækjust hvort á annað enda bæði risar í kvikmynda- og sjónvarpsbransanum í Ástralíu. Þau voru bæði alin upp á Nýja Sjálandi og elskuðu náttúru landsins. Rebecca á búgarð þar og þangað hélt hún til að ná sér eftir að sorgin hafði bankað svo hastarlega að dyrum.

Á landareigninni er tjörn og þar býr flokkur hvítra anda. Shirley, móðir Rebeccu elskaði endurnar og gaf þeim daglega þegar hún var í heimsókn. Þær voru þess vegna nefndar Shirleyjarnar en þegar Rebecca gekk að tjörninni í þetta sinn hafði bæst í hópinn, blásvartur steggur synti á meðal Shirleyjanna og þær flykktust í kringum hann ánægðar með veru hans. Rebecca táraðist og steggurinn var umsvifalaust nefndur Sir Sam. Hún skrifaði færslu um þetta á facebook síðu sína sem flaug umsvifalaust um alla Ástralíu og þykir til marks um hvernig hægt er að finna óvænta huggun í sorg og sumir telja að þarna sé ekki um neina tilviljun að ræða heldur sé hinn látni vinur hennar að láta vita af sér.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.