Jane Austen – Lifðu núna

Jane Austen 250 ára arfleifð – Afmælishátíð í Kópavogi og víða um heim
Í dag 16. desember eru 250 ár frá fæðingu Jane Austen.  Jane er í dag talin einn áhrifamesti klassíski rithöfundur Breta. Hún kláraði sex bækur á stuttri ævi, þrjár hafa verið þýddar á íslensku, Hroki og hleypidómar, Aðgát og örlyndi og Emma.

Aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi býður til afmælishátíðar í dag klukkan sex, á Bókasafni Kópavogs undir forsvari Kristínar Lindu sálfræðings sem er formaður klúbbsins. Áhrif Jane á nútímabókmennir og listir, kvikmyndir og þætti, eru óumdeild. Til að mynda byggði Helen Fielding, skapari Bridget Jones, sögu sína á bók Jane, Hroka og hleypidómum.  Fjöldi fólks sækir heim söguslóðir Jane á Englandi ár hvert, núna eru íslenskar konur hver af annarri að bóka sig í heillandi ferð með Kristínu Lindu og ferðaskrifstofunni Skotgöngu um heimaslóðir Jane í maí.

Um heim allan starfa Jane Austen aðdáendaklúbbar og verk hennar og ævi endurspeglast í margskonar menningu og listum núna 250 árum eftir fæðingu hennar. Verið er að mynd nýja kvikmynd byggða á Aðgát og örlyndi, þar sem Daisy Edgar-Jones er í hlutverki Elinor og valdir stórleikarar í hverju hlutverki. Netflix er að vinna að nýrri þáttaröð sem er byggð á Hroka og hleypidómum. BBC hefur á þessu ári gert og sýnt tvær þáttaraðir sem tengjast Jane beint, Miss Austen og Jane Austeen: Rise of a Genius. Nú er unnið að nýrri seríu að hálfu BBC, The Other Bennet Sister.

Í október var afhjúpuð ný stytta af Jane í fullri stærð við Winchester dómkirkjuna í Hampshire sem sýnir hana standa við pena skrifborðið sitt sem sjá má í safninu um Jane. Á árinu hefur komið út fjöldi nýrra bóka um Jane, ævi hennar, verk hennar og allskonar afsprengi af hugarheimi hennar og verkum um heim allan, bæði skáldsögur og fræðibækur. Það er því ljóst að um heim allan er lifandi áhuga á Jane, verkum hennar, ævi og samtíma, líka á Íslandi en haldnir hafa verið margir viðburði í tilefni af afmæli Jane þetta árið, í Kópavogi, á Akureyri og Selfossi svo eitthvað sé nefnt.

Kristín Linda er sálfræðingur hjá Huglind, fyrirlesari og fararstjóri hjá Skotgöngu. Hún tekur á móti einstaklingum í sálfræðimeðferð, handleiðslu og ráðgjöf í Reykjavík og á Selfossi og heldur námskeið og fyrirlestra hérlendis og erlendis.

Sjálfsræktin í fótsporum Jane Austen
Núna í maí hélt hópur íslenskra kvenna í nokkurskonar pílagrímsför í fótspor hinnar þekktu skáldkonu Jane Austen í Englandi. Í ár eru einmitt liðin 250 ár frá fæðingu Jane, höfundar hinna feikivinsælu klassísku bóka, Hroki og hleypidómar, Aðgát og örlyndi og Emmu, svo þær þrjár sem þýddar hafa verið á íslensku séu nefndar. Það er ferðaþjónustufyrirtækið Skotganga sem býður upp á Jane Austen ferðir í fararstjórn Ingu Geirs og Kristínar Lindu formanns Aðdáendaklúbbs Jane Austen á Íslandi.

Kristín Linda í dómkirkjunni í Winchester þar sem Jane Austen var lögð til hinstu hvílu.

Það er skemmtilegt, einmitt nú á 250 ára árstíð rithöfundarins, að dýfa sér inn í heim Jane Austen (1775-1817). Hún er í dag talin einn áhrifamesti klassíski rithöfundur Breta. Jane kláraði sex bækur á stuttri ævi sem allar eru endurútgefnar aftur og aftur á ýmsum tungumálum heimsins. Vinsældir hennar margfölduðust í kjölfar sjónvarpsþátta BBC, Hroka og hleypidóma 1995 og hefur ekkert lát orðið á þeim síðan. Áhrif hennar á nútímabókmennir og listir, kvikmyndir og þætti, eru óumdeild. Til að mynda byggði Helen Fielding, skapari Bridget Jones, sögu sína á bók Jane, Hroka og hleypidómum.

Fjöldi fólks gengur í fótspor Jane á Englandi ár hvert og um heim allan starfa Jane Austen aðdáendaklúbbar. Í janúar á þessu ári var stofnaður aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi, af Kristínu Lindu sálfræðingi, 198 manns mættu á stofnfund í Bókasafni Kópavogs sem sýnir lifandi áhuga á Jane, verkum hennar, ævi og samtíma hér á landi enda gullakista sem dásamlegt er að sækja í ánægju og lífsspeki. Í öllum bókum Jane er persónuþroski lykill að farsæld og hamingju. Söguhetjurnar þurfa að líta í eigin barm, endurskoða hugsanir sínar, viðhorf og skoðanir, eða eins og sagt er nú á tímum að stunda sjálfsvinnu, til að geta öðlast hamingjusamt líf. Það er því ekki að undra þó fólk nútímans sæki í þessa gullakistu þar sem spennandi söguþráður og rómantík leiðir lesandann áfram um leið og hugurinn opnast fyrir margskonar, heimspeki, visku og sjálfsræktar pælingum.

Meðal viðfangsefna Jane á því sviði er sá ágalli að dæma fólk á hæpnum forsendum, að telja sig vita betur og leitast við að stjórna öðrum, fljótfæri og hvatvísi, hlédrægni og vangeta til að standa með sjálfum sér á öflugan hátt og sú þröngsýni sem fylgir því að setja sig á háan hest. Sannarlega allt eiginleikar í fari mannsins ekki síður í samtíma okkar en samtíma Jane og boðskapur hennar um að slípa sjálfan sig, endurskoða hug sinn, hverfa frá ranghugmyndum og koma fram við sjálfan sig og aðra af sanngirni, réttsýni og góðvild heillandi og mikilvægur.

Kristín Linda og Inga í garði Jane Austen.

Það er töfrum líkast að ferðast um England að vori í góðum hópi þar sem sameiginlegt áhugamál tengir fólk saman og upplifanir af stöðum og sögu margfaldast upp í félagsskapnum og ný kynni verða til. Margir hafa upplifað að fara í hópi í ferðir á fótboltaleiki eða tónleika en nú er nýtt tækifæri í boði fyrir þá sem ekki hafa áhuga á því, nú eða bara til viðbótar, að fara saman; Í fótspor Jane Austen.

Bókmenntarýnar hafa haldið því fram að vinsældir Jane nú á 21. öldinni snúist um þörf fólks í krefjandi og hröðu samfélagi til að flýja inn í ákveðna fantasíu. Heimur Jane Austen hefur allt til að bera, aðra sögulega vídd, mikilfenglegar persónur, spennu, ást og húmor. Í amstri daganna þar sem sorglegar og kvíðavaldandi fréttir af ýmsum toga berast okkur daglangt er sannarlega heilsusamlegt og nauðsynlegt að hverfa við og við inn í annan heim. Taka sér alvöru raunveruleikahvíld og láta hugann berast til Englands, nú eða bara fara þangað í alvörunni, í fótspor Jane Austen þar sem Elizabeth Bennet mætir Darcy í blautu hvítu skyrtunni.

Kristín Linda Jónsdóttir hjá Huglind er sálfræðingur, fyrirlesari og fararstjóri hjá Skotgöngu. Hún tekur á móti einstaklingum í sálfræðimeðferð, handleiðslu og ráðgjöf bæði í Reykjavík og Selfossi og heldur námskeið og fyrirlestra hérlendis og erlendis.

Nýtti „Kófið“ til að þýða sígilda skáldsögu
Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, þýðandi og ritstjóri, er á 79. aldursári og ekkja síðan árið 2019 þegar eiginmaður hennar til 53 ára, Gunnar Karlsson sagnfræðiprófessor, féll frá. En hún lætur sannarlega ekki deigan síga. Hún hefur nýlokið við að þýða skáldsöguna Sense and Sensibility eftir enska nítjándu aldar rithöfundinn Jane Austen, en hún hafði áður þýtt þekktustu skáldsögu Austen, Hroka og hleypidóma.

Silja segir að þessi nýjasta þýðing sín sé svo að segja afurð „Kófsins“, það er að  segja hún notaði næðið í kórónuveirufaraldrinum til að einbeita sér að því að klára að þýða þessa bók, sem hún hafði lengi haft hug á en ekki haft tíma til. „Þetta er bók sem ég hef haldið uppá í sextíu ár,“ segir hún. Bókin kemur út í haust undir hinum vandlega valda íslenzka titli Aðgát og örlyndi. Eitt af verkefnum sumarsins framundan hjá Silju er að lesa þýðinguna inn á hljóðbók.

Einmana morgnar

Silja segir það hafa í raun ekki breytt miklu fyrir hennar daglegu rútínu að verða ekkja, þar sem þau Gunnar hafi alla tíð lifað býsna sjálfstæðu lífi hvort um sig. Mest verði hún vör við einmanaleika á morgnana, þegar þau hjónin áttu oft beztu stundirnar saman yfir morgunkaffinu. Hún sakni líka sérstaklega liðsinnis hans í þýðingarvinnunni, en þau höfðu þann háttinn á að þegar hráþýðingin lá fyrir las Silja hana upphátt og Gunnar hlustaði og fylgdist með á frumtextanum. Þau ræddu síðan öll álitamál í þýðingunni.

Silja, fyrir miðju, með afkomendunum og Gunnari (1.f.v.) sem féll frá árið 2019.

„Hann var alveg einstaklega glöggur á blæbrigði í merkingu orða. Þetta var mjög skemmtilegur þáttur í þýðingarvinnunni,“ segir Silja og bætir við að sem betur fer eigi hún eftir sem áður góða að. Tengdasonur hennar, Jón Yngvi Jóhannsson, og dóttirin Sigþrúður eru bæði sérfróð um bókmenntir og þýðingar og tóku í vinnunni við handritið að Aðgát og örlyndi yfir þetta hlutverk sem Gunnar gegndi áður. „Þau voru næstum því eins gagnrýnin og Gunnar,“ segir hún kímin.

„Þegar maður er að þýða bækur sem eru ætlaðar til ánægjulestrar fyrir almenning er mjög mikilvægt að sjá textann ekki bara á prenti, heldur heyra hann lesinn upphátt,“ segir Silja ennfremur um þennan þátt þýðingarvinnunnar. Það skipti máli að heyra hljóm textans, og með því að lesa hann upphátt sé oft hægt með mjög litlum breytingum að láta hann hljóma betur.

Þýðandi, rithöfundur, ritstjóri

Silja hefur fengizt við þýðingar í meira en hálfa öld. Fyrsta bókin sem kom út í þýðingu hennar var 16 ára eða þar um bil, kynfræðslurit fyrir unglinga eftir dönsku blaðakonuna Lizzie Bundgaard, en íslenzka útgáfan kom út árið 1972. Silja hlaut Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á Wuthering Heights eftir Emily Brontë árið 2006 og tvær aðrar þýðingar hennar hafa hlotið tilnefningu til Íslensku þýðingarverðlaunanna.

Það er reyndar ekki aðeins fyrir þýðingar sem Silja hefur hlotið æðstu viðurkenningar. Fyrir Skáldið sem sólin kyssti, ævisögu Guðmundar Böðvarssonar sem kom út árið 1994 hlaut Silja Íslensku bókmenntaverðlaunin og hlaut þau verðlaun aftur, ásamt öðrum, fyrir bókina Kjarval  árið 2005. Árið 2004 fékk hún Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu og 2015 var hún sæmd Fálkaorðunni fyrir framlag sitt til íslenzkra bókmennta.

En Silja hefur komið víðar við á ferlinum. Á yngri árum skrifaði hún í Þjóðviljann og var ritstjóri hans um örstutt skeið. Og á blómaskeiði DV, undir ritstjórn Jónasar Kristjánssonar, var hún menningarritstjóri þess blaðs. „Ég vona að ég móðgi engan þegar ég leyfi mér að fullyrða að árin á DV hafi verið bezti tími ævi minnar hvað vinnu snertir,“ segir hún. Sem menningarritstjóri hafi hún getað „gert hvað sem mig langaði til“. Hún hafði á þessum tíma her gagnrýnenda á sínum snærum, í öllum listgreinum. „Þetta var svo gefandi starf þar sem ég gat beitt öllu því sem ég kunni.“ Nú sé fjölmiðlalandslagið gerbreytt og því miður allt of lítið um metnaðarfulla menningargagnrýni.

Silja sinnir enn verkefnum fyrir síðasta vinnuveitanda sinn, Forlagið. Og eins og kunnugt er hefur hún lengi verið sérlegur ráðgjafi og yfirlesari allra texta Bubba Morthens, hvort sem þar er um að ræða lagatexta, ljóð eða aðra textagerð. „Textarnir frá Bubba koma í skorpum,“ segir hún. „Það er mest að gera þegar annaðhvort plata eða bók eru á leiðinni en þá er líka gaman.“

Söngkonan Silja

Silja um tvítugt.

Silja á sér einnig söngferil sem ekki hefur farið mikið fyrir. Hún kom fyrst fram opinberlega á fimmtánda ári þegar hún söng gamanvísur á Arnarhóli frammi fyrir tuttugu þúsund áhorfendum á 17. júní skemmtun 1958, en þeirri skemmtun var jafnframt útvarpað. Tveimur árum síðar var hún svo ein níu efnilegra dægurlagasöngvara sem kynntir voru á skemmtun í Austurbæjarbíói haustið 1960 en þar söng hún ásamt fleirum á svipuðu reki við undirleik KK-sextettsins, en hópurinn hafði verið valinn úr hópi fjörutíu ungmenna sem upphaflega mættu í prufur. Söngvararnir níu, þar á meðal Þorsteinn Eggertsson og Mjöll Snæhólm, sungu einnig með sveitinni á fáeinum dansleikjum fyrr um sumarið, meðal annars í Selfossbíói og Hlégarði í Mosfellssveit.

Ekkert varð úr að Silja legði sönginn fyrir sig – „skólafélagarnir í MR gerðu svo mikið grín að mér,“ segir hún til skýringar á því. En eins og haldið er til haga á vefsíðunni Glatkistan söng hún þó eitt lag á plötunni Hvað tefur þig bróðir? sem Herstöðvarandstæðingar sendu frá sér árið 1982. Það lag, Vögguvísa róttækrar móður var svo endurútgefið á safnplötunni Baráttusöngvar fyrir friði og þjóðfrelsi árið 1999.

Valdi á milli myndlistar og söngs

Silja segir að þegar hún varð sjötug og hætti í fastri skrifstofuvinnu hjá Forlaginu hafi hún þurft að velja hvað hún myndi nýta aukinn frítíma sinn til – fyrir utan að stunda mátulega heilsurækt. Hún iðki pilates í World Class, sem hafi reynzt sér vel. „Þessi leikfimi hefur haldið mér við, það skiptir svo miklu máli að hreyfa sig eðlilega, þá tekur fólk síður eftir hrukkunum og hvíta hárinu!“

En á þessum tímamótum stóð hún annars frammi fyrir erfiðu vali: „Mér datt í hug að fara að fást aftur við myndlist, eins og ég gerði þegar ég var unglingur“, segir hún, en þar sem heimili hennar sé fullt af bókum sem muni væntanlega lenda á afkomendunum að ráðstafa þegar þar að kemur vildi hún ekki „bæta gráu ofan á svart með því að skilja eftir mig bunka af málverkum líka“. Hún hafi því valið tónlistina framyfir myndlistina og gekk í kór eldri kvenna, Senjóríturnar, sem er afsprengi Kvennakórs Reykjavíkur og er nú undir stjórn Ágotu Joó.

Silja er reyndar starfandi formaður kórsins eins og er. Að hennar sögn eru nú um 55 konur virkar í honum, en þær hafi verið allt að sjötíu þegar flestar voru. „Covid-tíminn tók sinn toll,“ segir hún, en eins og gilti um aðra kóra í landinu lá starfsemi hans að mestu niðri vegna sóttvarnaráðstafana síðustu tvö árin. Nú sé starfsemin þó öll að færast í fyrra horf – þær hafi haldið stórskemmtilega tónleika laugardaginn fyrir pálmasunnudag með Bubba Morthens og flottu tríói. Sem formaður kórsins vill hún gjarnan nota tækifærið og vekja athygli á því að í haust séu opnar stöður fyrir nýliða í öllum röddum. Umsækjendur þurfi bara að vera orðnir 60+!

Frá tónleikum Senjorítanna í Langholtskirkju 9. apríl síðastliðinn. Bubbi mundar gítarinn.

Auðunn Arnórsson, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.