Jazztónleikar – Lifðu núna

Jazztónleikar í Spönginni
Borgarbókasafnið Spönginni býður upp á notalega tónleika- og samverustund fimmtudaginn 20. nóvember kl. 13:15 – 14:00 þegar vinkonurnar og tónlistarkonurnar Sigrún Erla Grétarsdóttir og Birna Kristín Ásbjörnsdóttir flytja skemmtilega blöndu af jazz- og dægurlögum.

Á efnisskránni verða sígildar íslenskar perlur eins og Heyr mína bæn, Ó þú, Vetrarsól og fleiri góðir smellir.

Alla fimmtudaga á þessum tíma hittist hannyrðahópur á safninu og eru gestir og gangandi því hvattir til að taka með sér handavinnu og prjóna á meðan þeir njóta góðrar tónlistar – þótt það sé alls ekki skilyrði!

Um tónlistarkonurnar

Birna Kristín Ásbjörnsdóttir er píanóleikari með menntun í klassískum og rytmískum píanóleik og stundar nú nám við Listaháskóla Íslands. Hún hefur komið víða við í jazztónlist og semur auk þess og flytur möntru- og heilunartónlist.

Sigrún Erla Grétarsdóttir er söngkona með menntun í jazzsöng og rytmískri tónlistarkennslu. Hún hefur komið fram á fjölmörgum viðburðum og tónleikum og er virkur meðlimur Jazzkvenna, þar sem verk tónlistarkvenna á borð við Ellu Fitzgerald eru heiðruð.

Leiðir Sigrúnar og Birnu lágu saman í námi við Tónlistarskóla FÍH. Þar hófu þær samstarf sem þær hafa haldið áfram með reglulegum tónleikum og tónlistarflutningi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins: www.borgarbokasafn.is