jóga – Lifðu núna

SYSTRASAMLAGIÐ – Vilja hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft
Pylsuskúrinn sem varð að allsherjar heilsuskúr þar sem fékkst hollustufæða og jógavörur. Systurnar ráku fyrirtækið þar í tæp fjögur ár eða þar til þær fluttu Systrasamlagið að Óðinsgötu 1.

Það var sumarið 2013 sem systurnar Jóhanna og Guðrún Kristjánsdætur sáu möguleikana í því að bjóða sund- og ræktarfólki úti á Seltjarnarnesi upp á eitthvað annað en pylsur að lokinni líkamsræktinni. Það var samt faðir þeirra, Kristján Jóhannsson heitinn, prentari og útgefandi, sem upphaflega kom auga á tækifærið sem fólst í skúrnum við sundlaugina. ,,Við vorum öll mikið í sundi og ræktinni og gengum fram hjá pylsuvagninum oft í viku,“ segja þær Guðrún og Jóhanna. ,,Pabbi hafði skynjað hugarheim okkar í nokkurn tíma en einmitt á þessum tímapunkti lágu leiðir okkar systra saman því Jóhanna hafði nýhætt hjá Heilsuhúsinu og ég hafði verið starfandi í blaðamennsku og síðustu sjö árin í Listahátíð,“ segir Guðrún. ,,Ég var byrjuð að hugsa hvað ég ætti að gera næst þegar pabbi segir einn daginn: ,,Heyriði stelpur, sjáið þennan kofa sem stendur þarna auður. Það þarf að gera eitthvað við hann.“  Pabbi var rosalegur Seltirningur og lét verkin alltaf tala. Hann hafði séð um bæjarblaðið í mörg ár og var mörgum hnútum kunnugur í bænum. Hann gekk síðan í málið, talaði við mann og annan og úr varð að við fengum að leigja skúrinn því til stóð að rífa hann. Þetta átti bara að vera gjörningur til eins sumars en hér erum við enn,“ segja þær systur og brosa.

Eru ekki grænmetisætur

Þær systur eru ógiftar en eiga hvor sitt barnið, Jóhanna strák og Guðrún stelpu sem hafa bæði hafa tekið þátt í uppbyggingu Systrasamlagsins sem þær eru sammála um að sé búið að vera ómetanlegt.

Jóhanna helsar ungum viðskiptavini á opnunardegi Systrasamlagsins sumarið 2013.

„Þessi vegferð hefur verið erfið en skemmtileg. Við höfum alveg spurt okkur nokkrum sinnum hvort þetta sé nokkuð að ganga hjá okkur því að stofna og reka fyrirtæki er ekkert gamanmál. Svo lentum við í því að Óðinsgatan var grafin þannig að fólk átti í erfiðleikum með að koma til okkar í langan tíma og það hjálpaði ekki nýstofnuðu fyrirtæki. En með mikilli vinnu hefur þetta gengið,“ segja þær. Þær hugsa eðlilega mikið um það sem þær láta ofan í sig og segjast borða allt. Þær gæta þess þó alltaf að grænmeti stærsti hluti máltíða og leggja áherslu á að allt hráefni sé gott og eins hreint og frekast er kostur.

„Við verjum báðar miklum peningum í mat, þ.e.a.s. í gott hráefni sem kostar meira. Það er okkar lífsstíll og það gerum við frekar en að eiga stór hús eða stóra bíla,“ segja þær brosandi.

Fengu upphringingu frá öðrum bæjarfélögum

Systurnar ákváðu strax að taka ,,andann með í efnið“ þegar þær stofnuðu Systrasamlagið en það er einmitt hugmyndafræði Systrasamlagsins. ,,Að hafa andann með í efninu tengist því að njóta lífsins og nærast vel,“ segja þær.

Það var svo 15. júní 2013 sem pylsuskúrinn var opnaður á ný og nú voru skilaboðin önnur. Þær voru búnar að breyta skúrnum í lítinn kaffistað þar sem hægt var að kaupa búst, croissant og samlokur. ,,Við skárum lúguna út sem hafði verið á sjoppunni svo fólk gæti gengið inn þar sem mætti fólki holl næring, jógadýnur og svo bættist við jógafatnaður og vítamín.“ Viðskiptavinir þeirra voru oftast að koma úr einhvers konar líkamsrækt og þær segja að það hafi verið hvetjandi fyrir þær að heyra að fólkið hafi horft á þennan litla skúr þar sem þau voru á hlaupabrettinu og hlökkuðu til að geta keypt sér hollt búst eða góðan kaffibolla. „Þetta sama fólk saknar okkar vissulega því við trúum því að slíkur staður sé meira viðeigandi en pyslusjoppa við líkamsræktarstöð.“  Þarna voru systurnar í næstum fjögur ár og reyndu mikið að fá að halda starfseminni áfram og byggja nýjan skúr. „Það var komið á plan hjá bænum að rífa skúrinn og það var ekki tauti við þá komandi. En síðan var svo fallegt að við fengum símhringingu frá bæjarstjórum Garðabæjar og Hafnarfjarðar þar sem þeir óskuðu eftir að við flyttum starfsemina í þeirra bæjarfélag. Okkur þótti mjög vænt um það. En þá kom kunningjakona okkar og spurði okkur hvort við hefðum áhuga á að flytja starfsemina niður á Óðinsgötu 1 þar sem hún var að standsetja hús og við ákváðum að taka því tilboði. Auðvitað tók tíma að venja viðskiptavini við nýja staðsetningu, sérstaklega þegar við þurftum líka að kljást við uppgröft Óðinsgötunnar líka en þetta tókst. Auðvitað með gífurlegri vinnu en puðið er að skila sér,“ segja þær systur og eru mjög ánægðar með hvernig hugmyndafræði þeirra hefur verið tekið.

Jóga og hugleiðsla viðurkenndur lífsstíll

Í Systrasamlaginu er hægt að koma í hugleiðslu á föstudagsmorgnum klukkan 10 en þær segja að stór hópur hugsi nú orðið meira um heilsuna en áður og þar segja þær að covid hafi breytt viðhorfi margra. „Sem betur fer eru fleiri farnir að taka ábyrgð á eigin heilsu,“ segja systurnar. „Við höfum fengið viðskiptavini sem hafa sagt okkur frá því að læknir þeirra hafi sagt þeim frá okkur og ráðlagt að koma og fá hjá okkur alls konar bætiefni. Þetta gleður okkur mjög og segir að læknar séu farnir að átta sig á mikilvægi þess sem við stöndum fyrir. Geðlæknir, sem var að fást við líðan unglings, ráðlagði honum til dæmis að prófa að taka ákveðna jurt sem fengist í Systrasamlaginu svo við finnum að það er sannarlega meiri meðvitund lækna um valkosti við hefðbundin lyf.

Skemmtileg skilaboð eru á veggjum kaffihússins.

Að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft

Guðrún segist hafa verið að horfa yfir öxlina á systur sinni í langan tíma og fengið að lokum bót meina sinna með því að hlusta á það sem náttúrulækningarnar sögðu. ,,Ég var tilbúin að prófa aðrar leiðir áður en ég tæki hefðbundnu lyfin sem mér hafði verið ráðlagt að taka við magaveseninu sem ég var að kljást við,“ segir hún.

Með aðstoð Jóhönnu komst Guðrún að því að hún var með mjólkuróþol. ,,Það var orðið ljóst að ég þoldi ekki mjólk og þá voru góð ráð dýr því mjólkurvörur höfðu verið stór hluti af fæðu minni eins og svo  margra. Ég þurfti til dæmis að fá mitt kaffi við skriftirnar og ég notaði mjólk út í það. Þá var sojamjólk komin á svæðið og ég gat skipt kúamjólkinni alveg út og eftir nokkurn tíma hafði ég losnað við magaverkinn. Hallgrímur Magnússon læknir flutti svo í sömu götu og foreldrar okkar og auðvitað smituðumst við líka af hans lífsviðhorfi en Jóhanna hafði þó starfað í Heilsuhúsinu löngu fyrir þann tíma. Allt kom þetta saman til að aðstoða okkur í nýrri vegferð,“ segja systurnar.

„Við ráðleggjum fólki oft að fara til læknis og láta mæla sig og koma svo til okkar. Við viljum auðvitað ekki taka ábyrgð á sjúkdómum en okkar nálgun getur sannarlega hjálpað, til dæmis þegar fólk þarf að taka mikið af lyfjum því mörg þeirra eyða nauðsynlegum efnum úr líkamanum og þá er betra að taka vítamín inn samhliða.“

Hreyfing, mataræði og andleg heilsa

Jóhanna segir að þegar hún hafi verið að byrja í þessum fræðum hafi verið talað mest um hreyfingu og mataræði til að halda góðri heilsu. Nú sé vitað að andlega heilsan sé ekki síður mikilvæg. „Þegar fólk kemur til okkar í mikilli streitu ráðleggjum við þeim sannarlega að prófa Joga Nidra. Streita kemur nefnilega í veg fyrir að líkaminn geti sjálfur tekið við og lagað það sem aflaga fer og jóga er því sannarlega undirstaða vellíðunar.

Tenging við náttúruna

Inn af verslun Systrasamfélagsins er gengið inn á lítið kaffihús og út á útisvæði þar sem notalegt er að sitja, alltaf nema þegar rignir.

„Á föstudögum kl. 10 höfum við líka boðið upp á fría hugleiðsluíma sem Thelma Björk Jónsdóttir hefur leitt og með henni er stundum Edda Björgvinsdóttir leikari. Þetta höfum við boðið upp á frá 2017 og er okkar framlag til betri líðanar þeirra sem sækja okkur heim. Þessum jógatímum er líka streymt svo fleiri geti notið.“

Tilgangurinn ekki að safna auði

Guðrún og Jóhanna eru með alveg sömu gildi í lífinu en eru samt ólíkar. Þær komu hver úr sinni áttinni þegar faðir þeirra leiddi þær saman í þessu merkilega fyrirtæki. Eitt af því sem þær leggja mikla áherslu á er að allt sem þær selji sé hreint og lífrænt. „Tilgangurinn hjá okkur er ekki að „besta okkur“ frá ári til árs heldur að reka fyrirtæki sem gengur vel svo við höfum í okkur og á því það dugar okkur alveg. Það er ekki í lagi að krafan um að stækka sífellt og selja meira sé aðalatriðið. Við verðum að staldra við og skoða hvað er þess virði að verja dýrmætum tíma sínum í.“

Gjörunnar vörur

„Við vitum núna að við eigum öll að minnka neyslu gjörunna matvara því búið er að sanna að þær eru ekki góður fyrir okkur en það eru líka til gjörunnin vítamín. Það eru vítamín sem í er blandað efnum til að gera þau auðveldari og ódýrari í framleiðslu.“

Þær systur komu sér í samband við fyrirtæki sem heitir Viridian og segja að allt sem þeir framleiði sé unnið með ráðleggingum frá vísindamönnum. „Vítamín frá þeim eru ekki með aukaefnum til að gera þau ódýrari í framleiðslu og þess vegna borgar fólk heldur meira fyrir þau. Við seljum vörur okkar ekki í stórmörkuðum því það hefur ekkert upp á sig að stilla dýrari vöru upp við hlið ódýrari nema henni fylgi útskýringar og fræðsla. ,,Allt kostar sitt en við erum sannfærðar um að þessi valkostur verði að vera til á markaðnum,“ segja þær og eru ánægðar með að þrátt fyrir hrakspár peningaafla hafi fyrirtæki þeirra gengið.

Frægir sækja Systrasamlagið heim

Pierce Brosnan og eiginkona hans Keely Shaye Smith komu í kaffihús Systrasamlagsins í Íslandsheimsókn sinni.

Systurnar segja að augljóslega hugsi stórir hópar fólks meira um leiðir til að halda líkamanum í góðu formi en aðrir og þar í hópi séu leikarar og annað listafólk, bæði íslenskt og erlent. Það fólk segja þær að séu tíðir gestir Systrasamlagsins og rifja upp stundina þegar Pierce Brosnan og eiginkona hans voru allt í einu stödd í kaffihúsi þeirra. ,,Það var einstaklega ánægjuleg stund. Fólk sem er vant því að aðrir standi á öndinni og stari á það kann að meta rólegheitin og venjulegheitin á litlu íslensku kaffihúsi. Þegar hjónin komu inn voru tvær litlar stelpur staddar á kaffihúsinu með foreldrum sínum og allt í einu byrjuðu þær að syngja lag úr kvikmyndinni Mamma Mia sem þær höfðu greinilega nýverið séð og Brosnan leikur aðalhlutverkið í. Honum þótti vænt um að sjá að þessi aldurshópur hefði lært lög úr myndinni og tók undir með þeim,“ segja þær hlæjandi.

Hagvöxtur verður að vera mælanlegur á mannlega vellíðan

Guðrún segir frá heimildaþáttum sem er að finna á Sarpi RÚV og fjalla um Bútan, land sunnan við Tíbet. „Þar hefur fólk komist að því að hamingja verði að vera hluti í hagvexti,“ segja þær systur. „Bútan er ekki ríkt land en þar er lögð mikil áhersla á hamingju og velferð þegnanna. Katrín Jakobsdóttir var búin að átta sig á því að hagvöxturinn yrði að vera mælanlegur á mannlegri vellíðan líka og vonandi átta fleiri stjórnmálamenn sig á þessu mikilvæga atriði,“ segja þessar kraftmiklu systur sem hafa helgað líf sitt boðskapnum um mikilvægi þess að hjálpa líkamanum til að hjálpa sér sjálfur og taka andann alltaf með í efnið.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Rykið dustað af lífsgleðinni
Gyðjur og goð í trúarbrögðum heimsins hafa yfirleitt hver sitt verkefni og almennt fellur í hlut gyðjanna að varðveita friðinn, kærleikann, heimilisánægjuna og viskuna. En þær eiga líka til kjark, baráttuvilja og stjórnkænsku. Á Gyðjudögum leitast Marta Eiríksdóttir við að draga fram þessa þætti í skapgerð skjólstæðinga sinna og tengja konur við guðsneistann innra með sér. Hún býður einnig upp á jógaþjálfun fyrir konur á breytingaskeiði, flytur fyrirlestra um orkuljósin sjö innra með hverjum einstakling og skrifar bækur. Hennar sjöunda bók er nú í smíðum.

Sumir vilja meina að breytingaskeiðið sé gjöfulasti tíminn í ævi hverrar konu. Þá rýmkist sá tími sem hún hefur aflögu til að sinna hugðarefnum sínum og jafnframt leysist úr læðingi gífurlegur sköpunarkraftur. Það má eiginlega segja að Marta sanni þessi kenningu. Frá miðjum aldri hefur hún kosið að sinna sjálfri sér á alveg nýjan hátt og deila með öðrum upplifunum og afrakstri tilrauna sinna. Marta er jógadanskennari en hvenær kynntist hún jóganu fyrst?

„Ég byrjaði í Hatha jóga árið 1987 í jógastöðinni Heilsubót en þá var ég á fyrsta ári í Kennaraháskóla Íslands og einhver hafði talað um hvað jóga væri gott fyrir námsmenn því það hjálpar til við einbeitingu og hjálpar manni að halda innri ró í gegnum krefjandi nám eða aðstæður í lífinu. Ég heillaðist strax í fyrsta jógatímanum og hef stundað jóga síðan þá og er í dag sjálf að kenna jóga og jógadans en það lærði ég í Bandaríkjunum. Þangað hef ég svo leitað reglulega í endurmenntun á þessu sviði til þess að vera ferskur jógakennari. Það má segja að aðalsmerki mitt sé dansmeðferð með aðferðum jóga en ég hef notað dansinn bæði til þess að hjálpa konum að opna fyrir kraftinn sinn en einnig til þess að styrkja jákvæða sjálfsmynd. Dansinn opnar hjarta okkar og eykur lífsgleði en það er reynsla mín og þeirra kvenna sem ég hef dansað með í gegnum árin bæði hér heima og erlendis.

Ég er einnig leiklistarkennari og hef fléttað þeim verkfærum inn í lengri námskeið sem ég hef haldið með konum en ég vinn aðallega með konum því þær eru opnar fyrir þessu ævintýralega og vilja efla anda sinn og næmi. Þær vilja hafa gaman og upplifa töfra lífsins,“ segir Marta brosandi.

Gyðjur finna gleðina innra með sér

Fyrir utan jógakennsluna hefur þú haldið námskeið undir yfirskriftinni Gyðjur & gleði og þau hafa notið mikilla vinsælda. Hver er hugmyndin að umgjörð og uppbyggingu þeirra?

„Árið 2005 fór ég fyrst á Snæfellsnes með Erni Jónssyni sjúkranuddara en við unnum þá saman þar að helgarnámskeiði með körlum og konum,“ segir hún. „Það var magnað námskeið en svo fannst mér ég ætti að halda áfram ein með svona helgar fyrir konur. Námskeið okkar Arnars Jónssonar snérist um að efla orku líkamans með dansi og jóga, slökun og nálarstungum og fleiru. Tilgangur okkar var að auka jákvæðni og styrk þátttakenda, námskeið sem tókst mjög vel.“

Á útnesjum Íslands er náttúran mögnuð og kraftar hennar auðsæir. Marta hefur undanfarið verið á Suðurnesjum með námskeið sín, nánar tiltekið á Garðskaga og það þrátt fyrir að jörð skjálfi og reglulega gjósi í næsta nágrenni. Hvernig er það eru konur ekkert uggandi þarna á útnesinu?

„Ekki hef ég orðið vör við það. Ég hef alltaf haft áhuga á að vinna með fólki, sérstaklega konum því þær eru opnari fyrir öllu því andlega en ég er næm sjálf og nýti mér gjafir mínar til þess að hjálpa öðrum að líða vel. Fyrir mörgum árum kenndi ég í grunnskóla, en ég er grunnskólakennari að mennt, og strax þá vildi ég aðstoða nemendur mína í að vera besta útgáfa af sjálfum sér. Til þess notaði ég leiklist og margt fleira óhefðbundið. Þegar skólastofan veitti mér ekki nógu mikið rými til að vaxa þá menntaði ég mig meira á þessu sviði sem tilheyrir jóga, hugleiðslu og fleira. Ég fór til Bandaríkjanna og lærði jógadans og sálardans, hefðbundið jóga og jógaflæði. Ég blanda þessu öllu saman og fæ út töfra sem hreyfa við þeim sem koma til mín á námskeið. Allt sem hjálpar okkur að byggja okkur upp elska ég og nota dansmeðferð og tónlist til þess. Að hjálpa konum að uppgötva kraftinn sinn, andlegt jafnvægi sitt og tengja betur við innri röddina sína er verkefni mitt, að tengja þær við rödd Sálarinnar því þá líður okkur best þegar við erum tengdar,“ segir Marta.

Dansinn töframeðal

„Dans er mitt „medicine“ til að hjálpa öðrum, mínar töfragáfur, eins og indjánar myndu kalla það,“ heldur hún áfram. „Ég hef margra ára reynslu af námskeiðahaldi en þau miðast öll við að efla þátttakendur með óhefðbundnum aðferðum, aðallega dansi og jóga. Hugleiðsla er partur af þessu og hvíld en hún er mjög áríðandi til að kveikja á heilunarmætti líkamans. Í hvíld, í þögninni talar guðsröddin hið innra við okkur og bendir á leiðina sem passar okkur best hverju sinni. Við erum alltaf á hreyfingu, lífið er á hreyfingu, við erum ekki sú sama í dag og við vorum fyrir ári. Þess vegna koma konur aftur og aftur til mín á þessa gyðjuviðburði því þær fá alltaf eitthvað nýtt inn í tilveru sína til að efla hamingju og lífsgleði sem er aðaltilgangur námskeiðsins.

Ég er einnig viðburðarstjórnandi að mennt frá HÍ en var í raun farin að búa til viðburði löngu áður en sú diplómagráða krýndi mig formlega. Við eigum að vera glöð, það er fæðingarréttur okkar allra en að ná að tileinka sér það er þjálfun og konur fá þessa þjálfun með í kaupbæti. Margar konur þrá að gefa sér þessa hvíld frá heimilinu. Konur eru alltaf að hlúa að öðrum en þarna fá þær að hlúa að sjálfri sér. Þetta er það fyrsta sem þær upplifa, að forgangsraða sjálfri sér framar og betur því það er bara svoleiðis að þegar þú ert vel nærð og ánægð þá gefurðu meira af þér til þeirra sem standa þér næst. Þær læra að hlúa betur að málfari sínu, hvernig við tölum, hvað við segjum, setjum inn í lífið okkar með orðanotkun okkar. Þær átta sig á þessu þegar við erum í nærandi samverustund og ræðum málin.

Margar umbreytast og fara að hreyfa sig meira eftir þessa upplifun, búa til skemmtilegra líf og gera meira sem veitir þeim ánægju. Það gerist ýmislegt eftir svona sjálfsvinnu, sumt er stórt og annað smátt en það er í raun að átta sig á því hvað maður þráir en hefur ekki leyft sér eða bara gleymt sjálfri sér í hringiðu og önnum dagsins,“ segir Marta.

Nauðsynlegt að skemmta sér

Þú talar um að efla konur, styrkja þær og gefa þeim kraft til að nýta eigin hæfileika. Hvað heldur aftur af flestum að þínu mati?

„Samviskubit og fórnfýsi dettur mér strax í hug og stundum höft sem þær hafa skapað sér sjálfar með hugsunum sínum,“ segir Marta ákveðin. „Margar konur á mínum aldri eiga svo miklu meira inni en þær nota sér til framdráttar í lífi sínu. Mér finnst sjálfri líf mitt hafa byrjað eftir fertugt þó ég hafi samt notið þess að vera móðir og eiginkona. Það var samt alltaf eitthvað sem beið mín, innri rödd sem sagði mér að það væri meira sem ég ætti að gera á þessari jörð á meðan ég væri hérna. Lífið á að vera skemmtilegt segi ég og við eigum að njóta okkar og geisla. Konur á mínum aldri eru burðarbitar samfélagsins og fjölskyldna sinna. Þær hafa skilað góðu verki innan veggja heimilisins en þá er að gera góða hluti í samfélaginu í kringum sig og kannski þess vegna fara konur oft í pólítík eftir fertugt og ná árangri.

Eftir að ég varð fertug og eldri, var ég nógu þroskuð til þess að vita að ég mætti gefa mér tíma fyrir mig og rækta mig. Sumar konur sætta sig bara við það að vera mömmur og ömmur en huga ekki að sjálfri sér í leiðinni þegar þær eldast. Ég held að við konur getum bæði verið ömmur og mömmur og einnig gefið okkur sjálfum tíma til að leika okkur. Við verðum að skemmta okkur án þess að fá samviskubit en margar konur þjást af samviskubiti ef þær taka sér frí frá fjölskyldunni og hlúa að sjálfri sér eða gera vel við sig. Mér finnst aldurinn eftir barneignir og þegar við erum komnar á ömmualdur vera frábært tímabil í lífi kvenna. Ég er alveg á því að sinna fjölskyldunni vel og það nærir okkur einnig að baða okkur í kærleikanum sem við fáum flestar með nánum ástvinum okkar. En við þurfum líka að muna eftir okkur og hleypa hæfileikunum út í umhverfi okkar.

Breytingaskeið opnar stundum fyrir daprar hugsanir hjá konum en mér finnst þetta tímabil í lífi okkar eiga að vera þegar við komum út í lífið og segjum hér er ég og þetta get ég! Konur á þessum aldri eru yfirleitt frábærir starfskraftar, verða sjaldan veikar og þurfa heldur ekki að vera heima með veikt barn. Þær hafa þroska og getu til að sækja það sem þær vilja í lífi sínu, fanga drauma sína því flestar hafa það gott fjárhagslega og eru lausar við barnastúss og það sem fylgir annasömum yngri árum. Guð bjó okkur til svona en ég held að hann vilji að við gerum meira en að ala börnin okkar upp og passa svo barnabörnin. Ég held að aðalblómatími konunnar sé hreinlega eftir fimmtugt.“

Afkastamikill rithöfundur

Líklega væri flestum nóg að hafa umturnað lífi sínu á þennan hátt en Marta er einnig sískrifandi. Hvað rak þig að tölvunni til að setja saman sögur?

„Ég hef skrifað sögur síðan ég var lítið barn. Þetta er einn af þessum meðfæddu hæfileikum mínum en ég held að okkur sé öllum gefið eitthvað einstakt í fæðingargjöf. Ég segi að við finnum þær gjafir með því að veita eftirtekt því sem okkur finnst gaman að gera. Við eigum marga leynda hæfileika held ég. Hjá mér er það meðal annars að skrifa. Ég er íslenskukennari að mennt og hef alltaf haft gaman af málinu okkar ylhýra. Ég hafði hugsað um það í þó nokkur ár að skrifa bók um líf mitt til að byrja með og þá útfrá því hvað ég hafði lært í þessum lífsins skóla. Þegar við hjónin fluttum út til Noregs þá var ég atvinnulaus til að byrja með og ákvað að tíminn væri kominn til að semja bók og það gerði ég. Fyrsta bókin sem ég skrifaði þar heitir Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins og kemur líklega út með vorinu 2025 en hún er einskonar sjálfshjálparbók, skrifuð árið 2012. Ég þorði ekki að gefa hana út strax þá heldur gaf ég út aðrar bækur í millitíðinni.

Ég skrifaði þessa sjálfshjálparbók samt annarri á ensku, einhvers konar útgáfu af henni beint á ensku og nefndi Becoming Goddess – Embracing Your Power! Ég gaf þá bók út hjá bókaforlagi sem Louise Hay sáluga átti og rak fyrir nýja höfunda en þessa útgáfu bókarinnar ensku kostaði ég sjálf. Þetta var heilmikið ævintýri sem leiddi mig á You Can Do It! ráðstefnu Hay House i Washington árið 2012 þar sem ég kynnti bókina mína við mjög góðar undirtektir. Þetta sama ár gaf ég einnig út æskuminningar úr bítlabænum Keflavík en þaðan kem ég. Í dag er ég sem sagt að hreinrita og klára mína sjöundu bók en ætlunin er að hún komi út með vorinu,“ segir Marta.

Það er margt framundan hjá Mörtu ef þú vilt kynnast henni betur: Föstudagskvöldið 10.janúar verður hún með fræðsluerindi um nýjustu bók sína Orkuljósin sjö hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands í Reykjavík. Laugardaginn 18.janúar eftir hádegi verður hún með Jógadansnámskeið, ferðalag í gegnum orkustöðvar líkamans, einnig hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

„Við þurfum að hægja á“
Guðrún Arnalds kynntist óhefðbundum lækningum af eigin raun þegar hún var 17 ára og fékk aðstoð við að laga blöðrur á eggjastokkum. Eitt leiddi af öðru og hún ákvað að læra hómópatíu og heildræna ráðgjöf. Hún fór síðan að stunda jóga þegar hún gekk í gegnum erfiðleikatímabil í lífi sínu og fann hvernig líkamlegur og andlegur styrkur hennar jókst í kjölfarið. Nú er hún að fara gegnum í breytingaskeiðið og hugleiðslan, jógað og heildræn sýn á heilsuna hafa auðveldað henni að takast á við einkennin og dregið úr þeim. Hún telur að konur þurfi að vera betur upplýstar um hvað sé að gerast í líkamanum og vita að hægt sé velja náttúrulegar leiðir til að fara í gegnum þetta skeið.

Ein systra minna stundi gjarnan þegar hún var á breytingaskeiði: „Ég vildi að maður réði í hvað maður breytist á þessu blessaða skeiði.“ Hvað geta konur gert og haft í huga til þess einmitt að stjórna í hvað þær breytast?

„Undirliggjandi hjá flestum konum er streita og hún magnar upp öll einkennin,“ segir Guðrún. „Bara það að finna leiðir til að takast á við og minnka streitu er stórt skref í rétta átt. Hvort sem maður velur að fara náttúrulegu leiðina eða taka viðbótarhormón þarf að huga að heildinni, mataræði, hreyfingu og slökun. Á breytingaskeiði verða konur viðkvæmari fyrir streitu, meltingin verður veikari og við þurfum að finna taktinn upp á nýtt.

Margar konur hafa sagt mér að það hafi komið þeim á óvart hve margt breyttist á breytingaskeiði. Þær fundu einkenni sem þær áttu alls ekki von á. Sumar konur fara auðvitað auðveldlega í gegnum þetta og finna ekkert fyrir því en oft tengja þær ekki ýmis einkenni við þær breytingar sem eru að verða í líkamanum heldur eitthvað allt annað. Þær fara hugsanlega til læknis til að fá svör og fá þau margvísleg. Konur tala lítið saman og partur af því að fara í gegnum þetta skeið er einmitt að ræða um það. Ég uppgötvaði þegar ég fór að tala við aðrar konur að ég var ekki einsdæmi. Ég hafði fram að því haldið að ég væri ein um að finna fyrir mörgum þeim einkennum sem ég fann fyrir.“

Flókin umræða þvælist fyrir

Við tölum oft um að þeir tímar sem við lifum séu hraðir, streituvaldandi og miklar kröfur gerðar til fólks. Getur það gert okkur erfiðara að fara í gegnum breytingaskeiðið?

„Mér finnst oft þvælast fyrir þessi flókna umræða um öll þessi hormón. Hún varð til þess að mér fannst eitthvað óaðlaðandi að fara að setja mig inn í og afla mér upplýsinga um breytingaskeiðið. Hormónakerfið er margbrotið og stundum gæti litið út fyrir að við þurfum að vera með læknapróf til að skilja þau.

Ef við tölum annars vegar um vestræna nálgun og svo austræna nálgast bæði ayurveda og kínverskar lækningar þetta á mun einfaldari og aðgengilegri hátt. Þar er talað um tvenns konar hormón, kynhormón og streituhormón. Flestir þekkja hugtökin yin og yang þá eru kynhormónin yin og streituhormónin yang. Yin stendur fyrir sköpun, innsæi, slökun og flæði. Yang er hitandi, drífandi kraftur. Við þurfum bæði. Yin og yang. Hreyfing sem er drifin áfram af keppni og mikilli áreynslu, óhófleg kaffidrykkja, mengandi umhverfi og mikil streita eru allt þættir sem búa til Yang af vondum gæðum.

Í stað þess að læra að stjórna hverju hormóni fyrir sig þá miðar austræn nálgun frekar að því að bæta umhverfi þeirra í gegn um næringu og lífsstíl. Og hafa þannig jafnvægisgefandi áhrif á hormónabúskapinn.

Ef við erum búnar að ganga mikið á þá þætti í líkamanum sem sjá um að takast á við streitu erum við illa undirbúnar að takast á við breytingaskeiðið. Við erum með tóman tank og allt verður miklu erfiðara. Þess vegna er mikilvægur hluti af þessu að undirbúa sig. Vita hvert maður er að fara eða réttara sagt hvað bíður manns á þessu skeiði og vera byrjaður að undirbúa sig áður en það hefst. Í því felst að vera búin að taka svolítið til í sínu lífi og finna sinn takt. Ef við horfum á eldri menningarsamfélög sjáum við að viðhorf okkar til þessa skeiðs er allt annað en þar. Þegar konur eldast er borin mun meiri virðing fyrir þeim en gengur og gerist í vestrænum samfélögum, enda fara konur ekki eins illa í gegnum þetta skeið.

Þessi viðhorf og þessi læknisfræðilega nálgun hér á Vesturlöndum, eins og þetta sé sjúkdómur sem þurfi að lækna og að hlutverk eða tilgangur konunnar rýrnar, setur okkur í veikari stöðu. Kannski fá konur meira rými til að fara í gegnum þetta og taka sér sinn tíma í þessum eldri menningarsamfélögum. Þetta eru heilmiklar breytingar sem eru að verða í líkamanum. Stelpur á kynþroskaskeiði sveiflast mikið á þeim tíma og verða oft mjög þreyttar. Konur upplifa einnig þessar sveiflur í orku og líðan á meðgöngu. Þess vegna þurfum við að taka tillit til þess og vera meðvitaðar um að þetta er tímabil þar sem við þurfum að hlúa sérstaklega að okkur og ekki gera þær kröfur til okkar að við séum súperkonur. Breytingaskeiðið gefur okkur í raun færi á að endurforgangsraða. Ég hef heyrt konur segja að þær þurfi að kynnast líkama sínum upp á nýtt meðan á breytingaskeiði stendur og eftir að því lýkur. Þetta er aðeins breyttur fasi í lífinu,“ segir Guðrún.

Guðrún með Kolbeini dóttursyni sínum.

Hvalaamma leiðir hjörðina

„Ayurveda, systurvísindi jógafræðanna, kennir okkur að við göngum í gegn um þrjú stig í lífinu,“ heldur hún áfram. „Barnæskan er tími vaxtar og þroska. Ayurveda tengir þennan tíma við Kaffa eða jörð og vatn. Fullorðinsárin eru tími árangurs og framkvæmda og tengist Pitta, sem stendur fyrir eld og vatn. Þetta eru blæðingaárin okkar. Seinna á ævinni kemur tími fyrir nýjar áherslur, sköpun og innsæi. Tími til að vinna úr lífsreynslu okkar og umbreyta henni í visku. Þetta er tími Vata, sem er loft og ether.

Það eru ekki margar dýrategundir sem lifa eftir að æxlunarhlutverki þeirra lýkur. Vísindin þekkja bara þrjár. Ein bjöllutegund og tvær hvalategundir, háhyrningar og flipahvalur. Hjá háhyrningum hefur amman, sú kýr sem ekki lengur ber kálfum, alveg sérstakt leiðtogahlutverk. Hún hjálpar til og fylgir sínum afkvæmum og styður við. Hún kann vel á hvar bestu fæðuna  er að finna og hefur visku að miðla alveg eins og við getum nýtt okkar reynslu og þekkingu sem safnast yfir ævina.“

Guðrún og Kolbeinn.

Hugleiðsla og öndunaræfingar hjálpa

Nú hefur þú stundað jóga mjög lengi. Hjálpaði það þér að vinna gegn þessum einkennum breytingaskeiðsins sem þú minntist á eða þurftir þú að breyta æfingunum þínum?

„Alveg tvímælalaust en ég fór að sækja meira í hugleiðsluna og hún hjálpaði mér mjög mikið,“ segir Guðrún. „Ég fór einnig að gera fleiri öndunaræfingar og ég sæki ekki í eins kraftmikla jógaiðkun. Ég sæki í svona aðeins mýkri iðkun. Vísindarannsóknir sýna að jógaiðkun getur aukið estrogen í líkamanum.“

Það þarf að huga að mataræði á breytingaskeiði. Konur þurfa að huga vel að prótíninntöku sinni og gæta þess að fá nóg af öllum næringarefnum. Sumar matartegundir innihalda náttúrulegt estrógen, er kannski gott ráð að borða meira af slíkum mat?

Já, það getur hjálpað mikið. Þetta er kallað Phytoestrogen. Sojabaunir og linsubaunir eru mjög ríkar af þeim, alls kyns fræ, sérstaklega hörfræ og spírur. Við þurfum líka að gæta vel að blóðsykrinum eftir að breytingaskeiðið hefst og við þurfum helst að sleppa alveg sykri. Meltingin okkar er veikari meðan á því stendur og við þolum verr eitthvað sem við þoldum áður. Eitt af því sem ég gerði mér grein fyrir var að ég fékk blöðrubólgu af sykuráti og þegar ég fór að tala um þetta sögðu margar konur það sama. Við þurfum að forðast allt sem er bólguvaldandi, sykur og kaffi eru þar á meðal. Best er sleppa kaffinu eða drekka það bara á morgnana, sérstaklega ef konur eru að glíma við svefntruflanir. Kaffi kallar svolítið eftir einhverju sætu eða ákveðnum mat sem maður fer að sækja meira í. “

Guðrún með syni sínum, Ragnari Hrafni á Hveravöllum.

Þurfum að sigra fullkomnunaráráttuna

Meðal þeirra fæðutegunda sem innihalda náttúrulegt estrógen eru hveitklíð, margir ávextir, hafrar og bygg. Margar konur kjósa að setja eitthvað af þessu í búst á morgnana. Vanvirkni í skjaldkirtli er meðal þess sem margar konur glíma við og það getur byrjað í blábyrjun breytingaskeiðsins áður en önnur einkenni koma í ljós.

„Já þetta tengist oft streituhormónum,“ segir Guðrún. „Þegar eggjastokkarnir byrja hægt og rólega að draga úr starfsemi sinni þá eiga nýrnahetturnar að taka við hlutverki þeirra og framleiða hormónin sem eggjastokkarnir hætta að framleiða. Ef nýrnahetturnar eru undir álagi vegna langvarandi streitu þá ráða þær ekki vel við þetta nýja hlutverk. Hitakóf er í raun afleiðing af krónískri streitu. Og sömuleiðis mikið af því orkuleysi sem konur finna oft fyrir á breytingaskeiðinu. Það má því segja að mörg þeirra einkenna sem eru kennd við breytingaskeiðið stafi af yfirkeyrðum nýrnahettum eða krónískri streitu.“

Það eru miklar kröfur gerðar til kvenna á þessum árum. Þær eru margar í ábyrgðarmiklum störfum, barnabörnin eru farin að koma, foreldrar og eldri ættingjar þarfnast umönnunar og þær reyna að halda öllum þessum boltum á lofti.

„Einmitt, ég sé dóttur mína núna reyna að sigrast á þessari fullkomnunaráráttu og gera ekki svona miklar kröfur til sjáfrar sín. Því meira sem maður nær að vera búin að vinna með þetta áður en maður kemst á breytingaskeiðið því betra. Þunglyndi er líka mjög algengur fylgikvilli og sjálfsvíg aukast meðal kvenna á þessum tíma. Það er því mikilvægt að taka þetta alvarlega og hlúa vel að sér. Margar konur velja hormónameðferð og það getur hjálpað mikið ef einkennin eru ólíðandi. En það er ekki lausn þótt gott sé að geta leitað einhverra slíkra leiða. Þær leysa hins vegar ekki rót vandans og getur í sumum tilfellum orðið til þess að við sniðgöngum það sem við þurfum að gera eða hægja á,“ segir Guðrún en hún hyggst bjóða konum á breytingaskeiði fjögurra vikna frítt námskeið núna í mars.

Hér er hlekkur á frekari upplýsingar: https://namskeid.andartak.is/fritt-netnamskeid

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Æfingar til að koma sér í gang á morgnana
Regluleg líkamsrækt er öruggasta og besta leiðin til að tryggja hreysti og vellíðan. Margir byrja daginn á að gera nokkrar auðveldar en áhrifaríkar æfingar. Þær koma bæði líkama og huga í gang og skapa meiri orku og úthald yfir daginn. Gefðu þér tíu mínútur til að fara í gegnum þær á hverjum morgni og þú finnur mjög fljótt muninn.

Upphitun

Kettir og hundar byrja ævinlega á að teygja sig þegar þeir standa upp eftir notalegan blund. Það má margt læra af dýrum og með því að teygja á fótum, handleggjum og baki um leið og menn rísa upp úr rúminu ná þeir að hita líkamann, liðka og koma honum í gang. Síðan má gera 15-20 hnélyftur, nokkur sprellikarlahopp og hlaupa á staðnum. Þegar blóðrásin er komin í gang má snúa sér að næstu æfingu.

Tréð

Jógastaðan tréð æfir jafnvægi, vöðvastyrk og einbeitingu. Lyftu fyrst öðrum fæti og leggðu ilina á lærið, stattu þannig í 30-60 sekúndur allt eftir hvað þú ert fær um. Gerðu það sama hinum megin og reyndu að auka tímann um nokkrar sekúndur á hverjum degi.

Hundurinn

Jógastaðan hundurinn er einstaklega góð til að auka blóðstreymi til heilans og hita hann upp fyrir átök dagsins. Leggstu á magann á dýnu á gólfinu og lyftu síðan upp rassinum og reistu þig hægt og hægt upp þar til bæði fætur og hendur eru fullkomlega bein. Haltu hryggnum beinum og höfuðið í beinni línu með þannig að nefið vísi í átt að fótunum. Haltu þessari stöðu í 30-60 sekúndur og reyndu að bæta tímann á hverjum degi.

Dauð padda

Jóga staðan dauð padda felst í að leggjast á bakið á dýnu í gólfinu lyfta fótunum og beygja hnén í níutíu gráður og taka síðan með höndunum um iljarnar. Slakaðu alveg á og einbeitu þér að því að finna alla hryggjarliði snerta dýnuna. Þetta er ein besta æfing sem hægt er að gera ef menn eru viðkvæmir í baki eða finna fyrir stirðleika í mjóbaki. Haltu stöðunni í 30-60 sekúndur.

Hnébeygjur

Í lokin er svo gott að gera 15-20 hnébeygjur, eins djúpar og hægt er. Stattu með fætur í sundur um það bil 30 cm bil á milli. Haltu handleggjunum beinum fram og beygðu þig síðan i hnjánum eins og þú sért að fara að setjast á stól. Rassinum er skotið út en bakið er beint og höfuðið í beinni línu frá hryggnum. Spenntu kviðvöðva til að halda við bakið og styrkja hreyfingua. Hnébeygjur auka liðleika og mýkja vöðvana.

Af hverju jóga?
Auður Bjarnadóttir jógakennari var atvinnudansari í mörg ár en þegar dansinn var farinn að taka toll af líkamanum fann hún jógað sem vissa heilun. ,,Ég fann leið til að verða mýkri við líkamann og sálina því klassíski dansheimurinn er harður og erfiður. Þarna var ég orðin rúmlega þrítug og leitaði að leið til að láta mér líða betur. Ég fór í mikla sjálfsskoðun og spurði sjálfa mig: Hver er ég ef ég er ekki dansari? Jógað hjálpaði mér sannarlega í þeirri leit,“ segir Auður. ,,Það var þess vegna ekki aldurinn sem sagði til sín heldur meðferðin á líkama mínum. Þá kom jógað sterkt inn og gerði það að verkum að ég náði mér og hélt áfram í jógakennaranám. Svo kom að því að ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki árið 2002 sem ég kallaði Jógasetrið, jóga fyrir alla, “ segir Auður.

Jóga sameinar það sem nauðsynlegt er fyrir líkamann

Við spurningunni af hverju maður á endilega að fara í jóga var svar Auðar: ,,Maður á ekkert endilega að gera það. Ég held að fyrst og fremst sé mikilvægt að hreyfa líkamann eins og manni finnst skemmtilegast. Ég fann út fyrir mig að jóga sameinar allt það sem við eigum að einbeita okkur að varðandi líkamann, ekki síst þegar árin færast yfir. Jóga byggist á öndun, hreyfingu, dansi, teygjum, hugleiðslu og slökun og er heildræn nálgun fyrir bæði sál og líkama. Ég er með hóp sem ég kalla 60 + og er sniðinn að fólki á miðjum aldri og yfir. Í kringum þennan hóp er mikil gleði því hann er orðinn fjölmennur og allir farnir að þekkjast vel. Það er spjallað og farið í kaffi á eftir og allir fá nokkuð út úr jógatímanum.“

Mamma fyrirmyndin

Mæðgur: Ólöf Pálsdóttir og Auður Bjarnadóttir

Móðir Auðar er fyrirmyndin hennar þótt hún hafi ekki farið í jóga fyrr en Auður stofnaði sína eigin jógastöð. ,,Mamma hóf sína jógaiðkun hjá mér þegar hún var 90 ára og hætti 92 ára,“ segir Auður og brosir. ,,Mamma er dæmi um fullorðna manneskju með góða heilsu af því hún hefur haft gaman af að hreyfa líkamann alla ævi. Hún var alltaf í Kramhúsinu hjá Hafdísi og síðari ár hefur hún gert æfingar sjálf. Ég hringdi til dæmis í hana á covidtímabilinu og þá sagði hún mér að nú væri hún búin með morgunleikfimina, svo gerði hún sjónvarpsleikfimina og svo væri hún búin að gera jóga með mér á netinu og þá var klukkan tvö. Þessi á milli fer hún á stig-vél sem hún pantaði sér sjálf á netinu og fékk hana heimsenda. Hún notar hana  á kvöldin og stígur á meðan hún horfir á sjónvarpið frekar en vera aðgerðarlaus að horfa. Við montum okkur mikið af henni börnin hennar og af því hún stundar þetta reglulega þá veit líkaminn svo vel hver munurinn er á hreyfingu eða kyrrsetu,“ segir Auður.

Lítil hreyfing getur orsakað verki

Auður segir að í jóganu sé sagt að aldurinn mælist ekki í árum heldur í ástandi hryggjarins. Lífsferillinn komi fram í hryggnum. Hún segir það mikinn misskilning þegar fólk heldur að best sé að hlífa sér til að vera verkjalaus því langoftast sé hreyfingin svarið en ekki kyrrstaðan. ,,Við förum að missa bringuna saman, það hefur áhrif á öndun, þá tognar hakan fram og það hefur áhrif á hálsinn sem spennist upp af því höfuðið er svo þungt. Við þurfum ekki að lenda í þessu ástandi ef við erum meðvituð,“ segir hún ákveðin.

Gengur berfætt í grasinu

Auður tengist fallegri náttúrunni á Corfu þar sem hún leiðir jóga einu sinni á ári.

Auður fer daglega niður að sjó þar sem er grasflöt og gengur berfætt þar í u.þ.b. 20 mínútur, sama hvernig viðrar. ,,Mér líður eins og ég sé að koma úr sjósundi eða kaldri sturtu þegar ég kem úr þeirri göngu,“ segir Auður. Ein af uppáhaldsmyndum Auðar fjallar einmitt um þessa jarðtengingu sem henni þykir fást með því að ganga berfætt í grasinu en myndin nefnist ,,Earthing“.

Kvart-bindindi

Auður segir að rannsóknir sýni að við hugsum 60 – 70% neikvæðar hugsanir á dag. 90% af þeim eru sömu hugsanir og í gær. Hún notar þessar staðreyndir í jógakennaranáminu sem hún heldur reglulega. ,,Það sér það hver maður að það er frekar leiðinlegt og lítið skapandi þegar staðreyndirnar eru skoðaðar,“ segir Auður. ,,Við þurfum að taka okkur taki við að vanda okkur við jákvæða hugann því það er auðveldast í heimi að fara í rennibraut neikvæða hugans. Ég er núna til dæmis í kvart-bindindi í 40 daga þar sem ég kvarta alls ekki. Þetta er mjög góð æfing því auðvitað þurfum við stundum að segja að eitthvað sé að og þarfnist breytinga en þá er ég meðvituð um hvernig ég geri það. Það er nefnilega hægt að vera uppbyggilegur í umvöndunum en það er sannarlega líka hægt að vera niðurrífandi. Það er svona meðvitund sem er svo gagnleg,“ segir Auður Bjarnadóttir sem fann sína leið að vellíðan í gegnum jógað. Hún  predikar ekki um það heldur leyfir hún þeim, sem vilja fara sömu leið og hún, að vera með.

Að sögn Auðar eru þúsundir rannsókna sem sýna fram á  góð áhrif hugleiðslu. ,,Jóga nidra ( Jógískur svefn ) er dásamleg liggjandi leidd hugleiðsla og auðveldari þegar aldurinn færist yfir og fólk fer að eiga erfitt með setur. Mjög gott að nota til að sofna eða ef maður vaknar upp,“ segir hún að lokum.

Við látum hér fylgja vefslóð á eina Jóga Nidra hugleiðslu með Auði:

https://open.spotify.com/episode/1fUeRJrLwTha6985w7SVH1?si=ui3LWrO0T5y2ud_6_UjN8g

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Kynntust í gegnum blaðaauglýsingu og skoða nú lífið saman í hálfleik
Á 25 ára brúðkaupsafmælinu.

Edda Borg Ólafsdóttir og Bjarni Sveinbjarnarson eru bæði orðin miðaldra, hún að verða 55 ára og hann 58. Þeim líður vel í því hlutverki og njóta lífsins eins og kostur er þrátt fyrir MS-sjúkdóminn sem Edda lifir með. Þau eiga sameiginlegt að hafa helgað lífið tónlist, hún píanóleik og hann bassaleik, og það var einmitt tónlistin sem leiddi þau saman fyrir 39 árum og fjórum börnum síðar. „Við kynntumst eiginlega í gegnum blaðaauglýsingu,“ segja þau hlæjandi. Það gerðist þó ekki alveg átakalaust því Bjarni var þá 19 ára og Edda 16. Hann rak einn daginn augun í auglýsingu þar sem auglýst var eftir bassaleikara í hljómsveit Axels Einarssonar.

Pabbi þurfti að keyra mig í giggin

„Ég hafði byrjað 16 ára að spila djass með gömlu körlunum eins og Guðmundi Ingólfs og Stjána Magg í Djúpinu sem var tónleikastaður í kjallaranum á Horninu við Hafnarstræti. Ég var þá ekki með bílpróf svo pabbi þurfti að keyra mig í giggin. Þetta þótti mér óskaplega skemmtilegur tími og ómetanlegt núna að hafa spilað með þessum gömlu kempum.“ En svo langaði Bjarna að kynnast rokkinu og poppinu meira og rak þá augun í auglýsinguna afdrifaríku. „Þar var verið að auglýsa eftir bassaleikara, söngvara og píanóleikara fyrir eitthvert tilefni. „Ég svaraði og var boðaður á æfingu og þar var Edda,“ segir Bjarni.

Fyrsti áreksturinn

Edda er frá Bolungarvík þar sem faðir hennar rak tónlistarskólann og varð síðar bæjarstjóri. Hún byrjaði sex ára að læra á píanó en faðir hennar sendi hana til Ragnars H. Ragnar á Ísafirði og taldi það betra. Edda kom svo að verða 16 ára til Reykjavíkur til að fara í menntaskóla og sá þá þessa sömu auglýsingu og Bjarni. „Ég var eiginlega búin að gleyma umsókninni því nokkrir mánuðir höfðu liðið og ég var skyndilega boðuð á æfingu,“ segir Edda. „Ég þurfti að fara í prufu af því þeir þekktu ekkert til mín en þeir komust að því að ég kunni að spila eins og ég hélt fram í umsókninni og var ráðin. Síðan var blásið til æfingar og þar hittumst við Bjarni. Það var ákveðið að renna í lag og þá kom fyrsti áreksturinn,“ segir hún og hlær. Edda er klassískt menntuð en Bjarni djassmenntaður og þegar spila átti saman sérstaka hljóma voru þeir ekki þeir sömu frá þeirra bæjardyrum séð. „Okkar fyrstu kynni voru raunverulega þegar við vorum að rífast um þetta og okkur þótti hitt mjög leiðinlegt og þvert. En hér erum við í dag, 39 árum síðar,“ segir Bjarni brosandi.

Edda og Bjarni 1983, nýbúin að finna hvort annað.

Bless, sé þig eftir ár

Þegar Edda og Bjarni byrjuðu saman eftir rifrildið um hljómana hafði Bjarni verið kominn af stað með umsókn í tónlistarskóla sem heitir MI, Musicians Institute í Hollywood í Bandaríkjunum. Hann segist hafa verið svaka kaldur og hélt sig við planið og fór út með þeim orðum að þau myndu svo bara sjást eftir ár. „Ég fór út en það endaði auðvitað fljótlega með himinháum símareikningum. „Kúlið“ var nú ekki meira en svo að ég kom heim og við giftum okkur við fyrsta tækifæri og Edda kom síðan með mér út,“ segir Bjarni. „Ég var þá nýorðinn tvítugur og Edda 17 ára. Hún þurfti meira að segja að fá undanþágu frá dóms- og kirkjumálaráðherra svo við gætum gifst og það gekk.“

Skiljum bara ef þetta virkar ekki

Edda og Adrian Uni, fyrsta barnabarnið.

Edda segir hlæjandi frá því að þau hafi verið svo ung að í þeirra augum hafi þetta ekki verið neitt mál. „Við sögðum bara: „nú, ef þetta virkar ekki þá bara skiljum við,“ en hér erum við enn.“ Edda fór svo með Bjarna út og hann kláraði námið og þau komu heim 1985. Þá skráði Edda sig í tónmenntakennaradeildina hér heima. „Það var svolítið sjokk að finna út þá að ég var orðin ófrísk að fyrsta barninu okkar og ég á fyrsta árinu í náminu,“ segir Edda. „Mamma varð enn sjokkeraðri og hélt að nú væri framtíð mín ráðin og ég færi bara að hlaða niður börnum og hræra í pottum og myndi ekki geta menntað mig neitt. En við eignuðumst Söndru 1986 og ég kláraði tónmenntakennaradeildina og þegar ég útskrifaðist þaðan réði ég mig sem Tónmenntakennara við Seljaskóla. Þar fann ég þörfina á tónlistarkennslu í hverfinu og það varð úr að við stofnuðum þennan skóla, Tónskóla Eddu Borg. Hann hefur því verið starfræktur í 32 ár og á þessum tíma stækkaði fjölskyldan en börnin eru fædd 1986, 1990,1997 og svo örverpið, sem býr enn heima, 2002.“

Spiluðu í Klúbbnum og á Broadway

Þau Edda og Bjarni upplifðu ævintýrið sem átti sér stað á aðalstöðunum því þau voru bæði í aðalhljómsveitunum í Klúbbnum og svo á Broadway. Allt frá því þau stofnuðu tónskólann hafa þau sinnt kennslu ásamt því að koma fram við ýmis tækifæri. Bjarni kenndi í tónlistarskóla FÍH frá 1986 til 2000 en er nú kominn meira inn í rekstur tónskóla þeirra.

Bjarni við mynd af Yogananda í Mother Center SRF.

MS kveður dyra og andlegu málefnin líka

Edda greindist með MS-sjúkdóminn 2007 en þá var hún aðeins 41 árs gömul og það hefur breytt lífi fjölskyldunnar umtalsvert eins og gefur að skilja. Það tók lækna um 10 ár að greina endanlega hvað hrjáði hana en þetta byrjaði allt eftir skíðaferð með krakkana á nýársdag 1998. Þegar þau komu heim úr þeirri ferð sagði Edda við Bjarna að það væri skrýtið hvað hún væri mikið dofin af kuldanum. „Eftir á að hyggja voru þetta fyrstu einkennin,“ segir Edda en bætir við að það hafi verið talsverð þrautaganga og segir til dæmis frá því þegar hún hitti þáverandi taugalækni sinn í Domus Medica og var með nýfæddan son þeirra Bjarna með sér. „Ég datt í tröppunum og varð skelfingu lostin við tilhugsunina um hvað hefði getað gerst ef barnið hefði ekki verið svona vel varið. „Ég var gráti næst þegar ég kom inn til hans og ég fann að honum þótti ég nú helst til móðursjúk. Þá skipti ég um taugalækni sem greindi mig rétt. Það var að vissu leyti léttir því ég gat þá brugðist rétt við þessum vágesti sem MS getur verið. Ég finn fyrst fyrir einkennum 1997 og svo líða 10 ár þegar endanleg greining kemur. Ég hef verið heppin en fyrir utan góða læknishjálp get ég nefnt tvennt sem hefur hjálpað mér að fást við sjúkdóminn. Í fyrsta lagi er ég geysilega vel gift, því Bjarni er búinn að standa með mér eins og klettur.“

Tilviljun réði för

Edda og Bjarni með Los Angeles í bakgrunni.

Skemmtileg tilviljun átti sér stað þegar Edda var á leiðinni til Boston 1993 í söngkúrs á Berklee. „Ég fékk símhringingu þar sem var verið að bjóða mér í bókaklúbb á vegum Birtings, áhugafólks um andleg málefni. Þeir gáfu út alls konar bækur og ég sagði strax að ég væri nú ekki alveg til í að gerast meðlimur en gæti trúað að maðurinn minn væri frekar til svo ég skráði hann í þennan félagsskap að honum forspurðum. En af því við vorum á leiðinni út á flugvöll í stressi gleymdi ég að segja Bjarna frá þessu.“ Svo kvöddust þau á vellinum og eftir nokkrar vikur fóru að berast alls konar bækur heim. Þegar Bjarni minntist á það við Eddu, sem þá var í Boston, mundi hún loks eftir að hafa skráð hann í þennan félagsskap. Þar með fór hann að lesa um andleg málefni og jóga og segir að eftir það hafi ekki verið aftur snúið. „Þá byrjaði ég að finna svör við spurningum um tilveruna sem höfðu leitað á mig frá því ég var ungur maður. Mér finnst eins og ég hafi gengið inn um hlið og upp hafi lokist dyr sem höfðu verið lokaðar fram að því. Síðan hefur þetta verið mitt stærsta áhugamál,“ segir Bjarni. Þau leita mikið til LA en þar er félagsskapurinn „Self realization fellowship“ m.a. starfræktur, en hann var stofnaður 1920 af Paramahansa Yogananda og er nú með útibú um allan heim. Þar fær Bjarni svalað forvitni sinni um andleg málefni sem hann segir að nýtist sér mikið í daglegu lífi. „Áður en ég kynntist þessum félagsskap var ég að eltast við alls konar gildi sem ég hélt að væru mikilvæg. Smám saman áttaði ég mig á hvað skipti máli í þessu lífi og hvað ekki. Ég er enn að komast að ýmsu sem skiptir máli og ég get ekki hugsað mér lífið án þessara pælinga.“ Edda segir að hún fylgi Bjarna nokkuð í leitinni að því sem skiptir máli í lífinu og það sé búið að hjálpa sér mikið í baráttunni við MS-sjúkdóminn.

Edda og börnin í brúðkaupi Söndru Borgar. Ernir Snær, Edda, Sandra Borg, Friðrik Salvar og Kristófer Bjarni.

Vill ekki að sjúkdómurinn taki yfir

Edda tók meðvitaða ákvörðun um að láta sjúkdóminn ekki buga sig og hefur haldið áfram að lifa lífinu eins lifandi og frekast er kostur. Hún segist vera búin að vera mjög góð af MS-sjúkdómnum þar til fyrir tveimur árum þegar hún fékk sjónhimnulos á öðru auganu. Það er óskyldur sjúkdómur MS og Edda segir að hægt hefði verið að bjarga sjóninni ef nauðsynleg aðgerð hefði verið framkvæmd strax. „En af því beðið var í fjóra daga eftir lækni til að framkvæma aðgerðina varð óafturkræf skemmd á auganu. Það var klúður og er hundfúlt af því það jók á skerðinguna sem ég verð að sætta mig við. En það er eins með þann sjúkdóm og MS að ég ákvað að láta hann ekki buga mig af því það er ekkert við þessu að gera. Ég ákvað að njóta frekar þess sem ég hef og það er allnokkuð,“ segir Edda ákveðin. „Auðvitað koma tímar þegar yfir mig hellist söknuður yfir því sem ég hafði en það þýðir ekkert að grafa sig í þá ömurlegu hugsun. Það er svo margt jákvætt og gefandi í lífi mínu að það væri nú meira vanþakklætið að neita að koma auga á það.

Ég kynntist bók sem heitir The Healing Code og hef ég stundað þá hugleiðslu sem fram kemur í bókinni og ég vil meina að þessi heilunar-hugleiðsla hafi einnig hjálpað mér mikið.“

Herbalife hefur hjálpað

Með hluta barnanna: Bjarni, Sandra Borg, Edda Borg, Kristófer Bjarni og Ernir Snær.

Edda er eins og margir að vilja gera allt sjálf. „Þegar við stofnuðum skólann vandist ég á að vera allt í öllu. Ég var skólastjórinn, ritarinn og ræstingakonan, raðaði stundaskránum fyrir kennarana. Ritarinn, sem ég réði með mér fyrir 11 árum, spurði mig þegar hún var búin að vera í nokkra daga: „Fyrirgefðu Edda, hafðirðu hugsað þér að ég myndi gera eitthvað hérna,“ og þá þurfti ég að læra að haga mér upp á nýtt,“ segir Edda og brosir.

Edda segist hafa verið svo heppin að hafa kynnst Herbalife 1999. „Það, ásamt því að vera svona vel gift, hefur hjálpað mér í baráttunni við MS-sjúkdóminn. Ég stend í þeirri meiningu að þessi góða næring hafi hjálpað mér gífurlega í baráttunni við sjúkdóminn,“ segir Edda. „Um aldamótin vorum við Bjarni að spila mjög mikið, oft langt fram á nótt, og svo þurftum við að hafa krafta fyrir þrjú börn á daginn. Þá kom Herbalife svo skemmtilega inn því þegar ég hætti að spila svona mikið þá minnkaði innkoman en Herbalife bjargaði okkur. Við vönduðum okkur við þennan rekstur og hann vatt upp á sig og gengur bara mjög vel núna.

„Ég reyni að gera allt sem ég get til að hugsa vel um mig í baráttunni og Herbalife hefur hjálpað mér í því.“

Edda og Bjarni með góðri vinkonu og munki SRF í Mother Center SRF, Mt. Washington í LA.

Að horfa á lífið utan frá

Nú þegar þau Edda og Bjarni eru orðin miðaldra hafa þau lært af lífinu og endurmetið gildi sín svolítið. Sumpart af því að þau hafa þurft að horfast í augu við veikindi Eddu en líka af því þau hafa borið gæfu til að sjá lífið utan frá. Bjarni hefur leitað í fræði indverska munksins Paramahansa Yogananda og fundið í þeim svör við mörgu sem á hann hefur leitað. Sú leit Bjarna hefur hjálpað Eddu og saman horfa þau björtum augum til framtíðar.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna, skrifar

Friðrik Karlsson tónlistarmaður
Ástríða er lykillinn að árangri

Friðrik Karlsson tónlistarmaður er einn af þeim sem hefur unnið talsvert á bak við tjöldin á meðan aðrir hafa verið meira áberandi. Hann hefur samt komið ótrúlega víða við en flestir kenna þennan gítarleikara við hljómsveitina Mezzoforte. Friðrik bjó í 16 ár í London þar sem hann var að vinna með þeim sem voru sannarlega í efsta laginu í breskum tónlistarheimi.

Óhætt er að segja að flug Friðriks hafi hafist fyrir alvöru þegar hljómsveitin Mezzoforte fór til London að taka upp plötuna Garden party 1983 en þá var hann 23 ára gamall. Þar kynntist hann upptökustjóra sem fékk hann í fleiri verkefni og það endaði með því að Friðrik flutti með fjölskylduna til London þar sem þau bjuggu í 16 ár.

Á þeim tíma spilaði Friðrik í leikhúsum, inn á plötur fjölda tónlistarmanna eins og Kate Bush þegar hún kom aftur fram eftir langt hlé. Svo spilaði hann í mörg ár í þáttum hjá Simon Cowell eins og Ex factor og Britain“s got talent og líka í söngleikjum Andrew Lloyd Webber svo nokkuð sé nefnt. Friðrik segir að tækifærin sem hann fékk á þessum tíma hafi verið ómetanleg því allir draumar hans á tónlistarsviðinu hafi í raun ræst. ,,Ég fékk tækifæri til að spila með stjörnum sem ég hélt að væru langt fyrir ofan mig en var allt í einu orðinn jafningi þeirra á tónlistarsviðinu. Þessu fylgdi auðvitað mikil pressa sem fékk mig til að leita leiða til slökunar,“ segir Friðrik. Ásamt tónlistarstörfum í London fór Friðrik því snemma að semja slökunartónlist í leit sinni að jafnvægi. ,,Ég fór í jógatíma 1998 og þótti tónlistin í tímanum svo leiðinleg að ég ákvað að gera bara mína eigin slökunartónlist,“ segir Friðrik og brosir. Þetta vatt upp á og nú er hann búinn að gefa út 40 slíka diska sem eru spilaðir í 100 löndum í alls konar bakgrunnskerfum. Þetta er bæði hugleiðslutónlist og líka hraðari tónlist sem spiluð er í líkamsræktarstöðvum, kaffihúsum, Bláa lóninu og Sky lagoon svo nokkuð sé nefnt. Og nú síðast heyrist tónlist Friðriks í Lyfju apótekunum um allt land. ,,Á tímum covid jókst hlustun á slökunartónlist mikið svo ég hef haft mikið að gera,“ segir Friðrik hæstánægður. Hægt er að heyra slökunartónlist hans á streymisveitunum Spotify og Apple music.

Friðrik lærði innhverfa íhugun 1987 þegar þau fræði voru að byrja að ryðja sér til rúms á Íslandi. Hann hefur lagt stund á margs konar andlega vinnu eins og NLP sem er þýðing á neuro linguistic programming eða undirmeðvitundarfræði. ,,Það eru fræði sem hjálpa manni að ráða bót á gömlum hegðunarmynstrum. Ég fór í tíma hjá ráðgjafa úti í Bretlandi og þótti þetta mjög praktísk fræði þar sem manni er kennt að uppræta alls konar vond mynstur. Hegðunarmynstrin eru í undirmeðvitundinni og í ljós kemur að sumt af því sem við höfum lært sem börn er að elta okkur langt fram á fullorðinsár. Þetta er hægt að uppræta með mikilli vinnu sem borgar sig auðvitað. Óttatilfinningu má oft rekja til áfalla í æsku og þá er jafnvel hægt að fara inn í þá tilfinningu og breyta henni. Mér þykja þessi fræði geysilega spennandi og þau virka fyrir mig. Það var til dæmis ekki eðlilegt að finna fyrir gífurlega miklu stressi þótt ég væri mjög vel undirbúinn. Það passaði ekki og þá þurfti ég að fara inn á við og finna ástæðurnar fyrir stressinu og mér tókst það með mikilli vinnu.“

Friðrik breytti alveg um lífsstíl við það að missa heilsuna fyrir nokkrum árum. ,,Mitt vandamál var að ég hafði frá fimmtán ára aldri hagað lífi mínu þannig að slæm líkamsstaða við spilamennsku og vondur lífsstíll endaði með sliti í baki sem orsakaði mikla verki. Ég var hættur að geta beygt mig niður eða lyft nokkru af því ég var alltaf að forðast verki. Afleiðingin var að líkaminn rýrnaði og ég fitnaði fyrir utan að vera farinn að bryðja verkjapillur. Ég lenti með öðrum orðum í vítahringnum sem svo margir kannast við. Ég leitaði þá leiða út úr vandanum og auðvitað var hjálpin þarna. Ég fór meðal annars á Háls- og bakdeildina í Stykkishólmi þar sem ég fékk mjög mikla hjálp. Á þeim tíma var ég meira að segja kominn á þunglyndislyf af því ég vissi ekki hvað var að gerast. Á því var líka tekið og í framhaldi fann ég góðan einkaþjálfara sem ég hitti reglulega. Hann hjálpaði mér að byggja vöðvana upp aftur og breyta um lífsstíl. Eftir á að hyggja  reynist þetta bakvandamál mitt hafa verið blessun en ekki bölvun því ég er í mun betra formi núna en fyrir tíu árum,“ segir Friðrik ánægður. ,,Ég er ákveðinn í að halda mér í þessu formi áfram en það þýðir að ég geri æfingar á hverjum einasta degi og líður miklu betur.“ Friðrik hefur meira að segja hækkað um rúman sentimetra af því að nú réttir hann úr bakinu og veit að leiðin til bata er ekki að leggja sig, minnka hreyfingar og taka pillu. Leiðin fyrir hann var að hreyfa sig út úr vandanum.

Friðrik fór alla leið í lífsstílsbreytingunni og tók áfengi og tóbak út úr lífi sínu. Sambýliskona hans, Laufey Birkisdóttir snyrtifræðingur, gerði slíkt hið sama. ,,Áður verðlaunaði ég mig alltaf með því að detta í það eftir góða vinnutörn en núna dugar góður kaffibolli,“ segir Friðrik og brosir. ,,Síðan eru liðin fimm ár og ég sé núna hvað áfengið bjó til mörg vandamál í líf mínu þótt ég hafi ekki fengið neina skilgreiningu með áfengisneysluna. Ég ákvað bara að prófa nýjan lífsstíl og sé ekki efir því.“

Allt sem Friðrik er að gera núna er afrakstur þess sem hann hefur gert um ævina. Hann segist hafa notið þess ríkulega að vinna með tónlistarfólkinu í London en nú er hann búinn að vera að spila fyrir aðra frá því hann var 15 ára og finnur að ástríða hans liggur annars staðar. Hann átti sér alltaf draum um að geta starfað alþjóðlega og sá draumur rættist en nú vill hann haga lífi sínu eftir eigin höfði.

,,Ég held að ástríða sé forsenda þess að okkur gangi vel í lífinu,“ segir Friðrik. ,,Þegar ég lenti í þessu bakvandamáli var ástríða mín heilsan og þá náði ég að ráða við það vamdamál. Það er svo mikilvægt að fá verðlaun fyrir vinnuna hver sem hún er og betri líðan voru stærstu verðlaunin þá. Það er alveg sama hversu mikla peninga fólk fær í hendurnar ef ástríðuna vantar og nú ligggur ástríða mín í vinnunni við að semja, selja og markaðssetja slökunartólist. Mér líður mjög vel með það á þessum tímapunkti.“

Þegar Friðrik er spurður hvort hann sjái fyrir sér starfslok rifjar hann upp sögu frá því fyrir nokkrum árum:

,,Til mín kom einu sinni tryggingasölumaður í London sem vildi selja mér starfslokatryggingu. Hann var búinn að stilla pappírunum upp og var að fylla þá út þegar hann spyr mig: ,,Hvenær ætlarðu svo að hætta að vinna.“ Ég sagðist nú ekkert vita um það, líklega verði það bara þegar ég geti ekki lengur spilað á hljóðfærið og finni ekki lengur ástríðuna.  ,,Já, og hvenær verður það?“ heldur hann áfram að spyrja. Við komumst aldrei lengra með þá tryggingu,“ segir Friðrik og hlær og er enn á fullri fart að gera það sem honum þykir skemmtilegast.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.