Jónína Leósdóttir – Lifðu núna

Vinsælir höfundar lesa úr nýjum verkum
Rithöfundarnir Benný Sif Ísleifsdóttir og Jónína Leósdóttir mæta í bókakaffi á Borgarbókasafninu Árbæ mánudaginn 19. október kl. 16:30 og lesa úr og segja frá nýjustu bókunum sínum.

Jónína Leósdóttir er margreyndur höfundur og hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal vinsælu glæpasagnaseríunar um Eddu. Það er stutt í hið spaugilega í verkum Jónínu og það á einnig við um glæpasögurnar hennar. Í bókakaffinu mun Jónína segja frá nýjustu bók sinni Algjör Perla sem kom út fyrr á árinu.

Benný Sif Ísleifsdóttir hefur skrifað fyrir bæði börn og fullorðna og hlotið lof lesenda jafnt sem gagnrýnenda fyrir verk sín. Skáldsögur Bennýjar eru örlagasögur fólks úr íslenskum veruleika og er nýjasta bókin engin undantekning. Vetrarþrestir er söguleg skáldsaga sem gerist árið 1969 og fjallar um fólk á krossgötum sem leggur allt í sölurnar í von um að tengjast og tilheyra öðrum.

Um viðburðinn:

https://borgarbokasafn.is/events/4a38ec22-09cb-4ec7-bd35-07ae7634a0a1,20261019

Hún Perla er algjör perla
Mikil lifandis býsn er alltaf gaman að fá í hendur nýja bók eftir Jónínu Leósdóttur. Maður veit að síðurnar iða hreinlega af lífi og fjöri. Bráðskemmtilegar persónur stíga fram og Jónína er hreinlega sérfræðingur í að bregða upp spegli fyrir okkur íslensku kerlingarnar að skoða okkur í. Maður kannast við sumar týpurnar og þekkir sjálfan sig í öðrum. Algjör Perla er engin undantekning frá þessari reglu og hún Perla er sko algjör perla.

Sagan byrjar með látum. Perla Kristófersdóttir liggur á Landspítalanum lömuð á vinstri hlið eftir heilablóðfall og fyrsta hugsunin er að hún verði að komast sem fyrst á fætur til að geta flutt líkið af heimili sínu. Hamingja og velferð fjölskyldu hennar er í húfi og lesandinn umsvifalaust spenntur. Hvernig stendur á að virðuleg kona á sjötugsaldri geymir lík heima hjá sér? Af hverjum er það? Og hvar er það? Er ekki hætta á að aðrir finni það? Öllum þessum spurningum er auðvitað svarað eftir því sem sögunni vindur fram og þótt enginn geti verið fylgjandi því að hylmt sé yfir glæp er eiginlega ekki annað hægt en að halda með Perlu og óska þess að henni takist ætlunarverkið þrátt fyrir fötlun og aðra erfiðleika, eins og óvæntan leigjanda sem flytur inná hana og er leigufrír.

Þetta er ekki hefðbundin sakamálasaga í venjulegum skilningi þótt lík komi við sögu. Hér er engin rannsókn í gangi, ekki leit að morðingja heldur þvert á móti, spennan felst í því hvort okkar kona komist upp með fela glæp. Eins og í öðrum bókum Jónínu er fléttan drifin áfram af þessum dásamlegu persónum samúð lesandans með þeim. Nú og svo eru auðvitað allar óborganlegu uppákomur sem alltaf henda í bókum Jónínu, eitthvað sem er með ólíkindum en gæti sannarlega gerst í íslenskum raunveruleika. Algjör Perla er hrein skemmtun frá upphafi til enda.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Edda er komin aftur!
Edda á Birkimelnum er komin aftur á stjá og er jafn hvatvís, afskiptasöm, stjórnsöm, forvitin og bráðskemmtileg og áður. Það er hreinlega eins og að bjóða gamla vinkonu velkomna í kaffi að opna Voðaverk í Vesturbænum. Edda á sér marga aðdáendur og þessi skemmtilega persóna mótast betur og betur í hverri bók Jónínu Leósdóttur um hana. Að þessu sinni rannsakar Edda árás á ungan dreng á Tómasarhaganum og forvitnast um hvers vegna þekktur fjölmiðlamaður er að lauma umslögum inn um bréfalúguna hjá ungri konu.

Já, Edda sleppir engu tækifæri til að stinga nefinu ofan í annarra manna koppa en hún er líka umhyggjusöm og hefur raunverulega þörf fyrir að hjálpa. Það kemur vel í ljós þegar bæði Iðunn og Viktor þurfa sárlega á henni að halda. Jónína skrifar þessar bækur af dásamlegri kímni og léttleika. En þær eru líka trúverðugar, fjalla iðulega um mikilvæg málefni á borð við jafnrétti, mismunun, fordóma og ofbeldi. Edda gæti verið konan í næsta húsi og hún minnir okkur á að allt sem gerist í næsta nágrenni við okkur kemur okkur við. Samfélagið á að láta sig varða um aðra. Hún Edda okkar gengur auðvitað iðulega of langt og hreinskiptni hennar er ekki öllum að skapi en ef fleiri Eddur gengju um ekki bara á Melunum heldur líka í Vogunum, Hlíðunum og Bökkunum er alveg hugsanlegt að sumum fyndust þeir ekki alveg einir.

Það er líka áhugavert að velta fyrir sér hvers vegna bækur um útsjónarsama og gáfaða eldri borgara að leysa sakamál séu svona vinsælar? Mrs. Marple Agöthu Christie er án efa sú þekktasta í þessum flokki en margar hennar líkar hafa komið fram áður en Edda á Birkimelnum fór að líta í kringum sig í Vesturbænum. Kannski finnst okkur þetta gefa fyrirheit um að ekki séu öll ævintýri á enda þótt aldur færist yfir og auðvitað er mjög rökrétt að gefa sér að fólk missi ekki athyglisgáfuna og ályktunarhæfnina með aldrinum en hins vegar aukast líkur á að aðrir vanmeti hina gráhærðu. Að lokum er vert að nefna þeim til gleði sem deila áhuga og aðdáun undirritaðrar á rosknum, snjöllum spæjurum í sakamálasögum að væntanleg í ár er kvikmynd gerð eftir fyrstu sögu Richards Osmans um Fimmtudagsmorðklúbbinn. Leiðtogi þeirra er Elizabeth Best fyrrum leynþjónustukona bæði hugvitsöm og klók en hin sem hún hefur valið með sér hafa öll einstaka eiginleika til að bera sem hjálpa sannarlega þegar kemur að því að leiða allt til farsælla lykta. Aðalleikarar myndarinnar eru ekki af verri endanum eða Helen Mirren, Ben Kingsley, Celie Imrie, Pierce Brosnan og Jonathan Price.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Í leit að samviskulausum kúgara
Þvingun eftir Jónínu Leósdóttir er skemmtilega fléttuð sakamálasaga. Styrkur Jónínu sem höfundar liggur ekki hvað síst í frumlegri og trúverðugri persónusköpun og hér er heilt gallerí af áhugaverðum karakterum. Hún er einnig lipur stílisti og kímnin kraumar ávallt undir niðri.

Sálfræðingurinn Adam og Soffía rannsóknarlögreglukona bregðast við hvort á sinn hátt þegar Magga dóttir þeirra finnur látinn mann í sumarbústað á Þingvöllum. Fljótlega kemur í ljós að þræðir málsins teygja sig inn í lúxusskrifstofurými á besta stað í Reykjavík en þar leigja saman og nýta sér hæfileika hvers annars fjölhæfir einyrkjar. Soffía, hvatvís að vanda, má ekki vera að því að bíða eftir að sönnunargögnin hrannist upp svo hún fær Adam með sér til lesa í viðbrögð allra er þar vinna. Allir skammast sín fyrir eitthvað og það geta óprúttnir aðilar nýtt sér til að kúga aðra. Adam og Soffía sannfærast fljótt um að þau eiga í höggi við samviskulausan og mjög kænan einstakling.

Jónína leiðir lesandann áfram og rekur þræðina einn af öðrum þar til þeir vindast saman. Hún reiðir sig ekki endilega á að halda fólki svo spenntu að það geti vart setið kyrrt heldur mun fremur á forvitni lesandans og vakandi áhuga á að skilja og skynja hvað rekur persónurnar áfram og til að gera það sem þær gera. Í einu orði sagt stórfín bók og mjög ánægjulegt að verja tíma í að lesa hana. Að lokum er svo ekki úr vegi að hvísla því að öðrum aðdáendum Jónínu að gömul vinkona okkar stingur upp kollinum í þessari bók og setur sinn óviðjafnanlega svip á hluta sögunnar.

„Starfslok? Almáttugur, nei,“
Jónínu Leósdóttur rithöfund þarf ekki að kynna. Bækur hennar hafa séð til þess að hún er öllum Íslendingum kunn. Undanfarin ár hefur Jónína sent frá sér spennusögur þar sem í aðalhlutverki eru mjög sérstæðar og heillandi persónur. Þær bætast í áhugaverðan hóp spæjara sem halda lesendum við efnið stundum heilu og hálfu næturnar.

Ný bók, Þvingun, um Adam sálfræðing og Soffíu rannsóknarlögreglukonu er nýkomin. Er alltaf eins að fylgja nýrri sögu úr hlaði eða venst þetta með árunum?

„Út í hvað ertu nú búin að koma þér, Jónína?“ Þessi hugsun helltist yfir mig þegar ég stóð fyrir framan fullan sal af bóksölum árið 1988 og átti í fyrsta sinn að segja frá bók eftir sjálfa mig,“ segir hún. „En ég dembdi mér bara út í djúpu laugina, þetta tilheyrir jú starfinu. Það hjálpaði mér þó örugglega að hafa verið í framboði hjá Bandalagi jafnaðarmanna í þingkosningum 1983 og að hafa stjórnað viðtalsþáttum á Bylgjunni fyrsta árið sem hún starfaði.

Það verður aldrei hversdagslegt að fá nýja bók í hendurnar, ekki einu sinni þótt ég hafi núna upplifað það í 21. skipti. Ég verð heldur aldrei öruggari, hvorki með sjálfa mig eða nýjustu bókina, þótt ferilinn spanni áratugi. Það er alltaf jafn spennandi en um leið örlítið ógnvekjandi að allir geti kynnt sér hvað þú hefur verið að skrifa og haft skoðun á því.

Og svo er það þetta með að fagna nýju verki. Það hættir ekki heldur þótt bækurnar losi tvo tugi. En á það að gerast þegar handritinu er skilað til ritstjóra eftir lokalagfæringar, þegar ég fæ fyrsta eintakið í hendur, þegar bókinni er dreift í búðir eða er vissara að bíða eftir dómum í fjölmiðlum? Með aldrinum hef ég áttað mig á að það er ekki hægt  að fagna of oft svo ég nota öll þessi tækifæri og fleiri til.“

Áhugavert að skrifa fyrir ungt fólk

Þú hefur skrifað fjölbreyttar bækur og ekki haldið þig við eina tegund eða eina grein bókmennta. Hvað finnst þér skemmtilegast að skrifa?

„Ég er svo heppin að mér finnst alltaf langskemmtilegast að skrifa þá bók sem ég er með í vinnslu hverju sinni. En ef ég yrði að velja ákveðna bókmenntagrein væru það ungmennabækur. Það er svo áhugavert að skrifa fyrir ungt fólk.

Ég hef skrifað fimm skáldsögur fyrir þennan aldurshóp og naut þess mjög að fylgja bókunum eftir með heimsóknum í skóla og félagsmiðstöðvar. En ég fylgist ekki nógu vel (= ekkert) með tækniþróuninni til þess að geta skrifað á trúverðugan hátt um tæknivætt líf nútíma-ungmenna. Svo ungmennabækurnar verða ekki fleiri.“

Leiddist út í glæpi

Spæjararnir sem leysa mál í þínum sögum eru sérstakir. Edda á Birkimelnum ellilífeyrisþegi og verðugur fulltrúi Íslands í hópi slíkra en Agatha Christie, Alexander McCall Smith og Richard Osman og Anna Ólafsdóttir Björnsson hafa öll skapað skarpgreinda einstaklinga sem leysa glæpi á elliárum. Soffía og Adam eru hins vegar á miðjum aldri. Glæpasögur njóta mikilla vinsælda og undanfarið hefur aukist virðing manna fyrir þessari bókmenntagrein. Hvað varð til þess að þú fórst að skrifa þannig sögur?

„Ég leiddist út á glæpabrautina fyrir átta árum af því að glæpasögur henta sérlega vel því umfjöllunarefni sem ég hef mestan áhuga á, samskiptum fólks og sálarlífi. Þegar einhver ógn steðjar að þjappar það fólki saman og styrkir sambönd … ja, eða splundrar þeim. Og þar með myndast ýmsir áhugaverðir möguleikar fyrir höfundinn.

Glæpir henta líka vel til að knýja söguþráð áfram og skapa spennu – til þess er leikurinn jú gerður. Samt eru glæpir ekkert sérstakt áhugamál mitt, þeir eru einfaldlega hentugt tæki og gera mér kleift að láta reyna hressilega á sögupersónurnar. Það er ekkert grín að lenda í glæpasögu!“

Alltaf bæði með belti og axlabönd

Hvernig vinnur þú þessar bækur? Er fléttan komin fyrirfram eða veistu ekki hver endirinn verður þegar þú ferð af stað?

„Ég undirbý mig mjög vel áður en ég byrja að skrifa. Sá hluti vinnunnar getur tekið margar vikur en þá veit ég líka nákvæmlega hvert ferðalaginu er heitið, hverjir verða með í för og hver bakgrunnur þeirra er. Höfundurinn þarf t.d. að vita mun meira um persónurnar en kemur fram í sögunni,“ segir Jónína. „Líklega er ég bara þessi týpa sem alltaf er með bæði belti og axlabönd, stíg varlega til jarðar og æði helst ekki út í neina óvissu. Ég elska gott skipulag og syrgi enn sænska búð sem var í gömlu Borgarkringlunni fyrir langa löngu, hún kallaðist Ordning & Reda eða Röð & Regla. Dásamleg verslun fyrir ferkantað fólk eins og mig.

Ég hélt samt að mér tækist ágætlega að fela þessa þörf mína fyrir röð og reglu þar til eitt barnabarnið spurði mig um daginn: „Amma, ert þú eitthvað OCD?“ Ég sprakk auðvitað úr hlátri. Bragð er að þá barn finnur.“

Hikar við að drepa einhvern

Í glæpasögum er nauðsynlegt að drepa einhvern. Hikar þú áður en þú velur fórnarlamb morðingjans, þ.e. finnst þér auðveldara að drepa illmenni en einhvern saklausan og góðan?

„Já, hvort ég hika! En ekki endilega út af því hvort einhver vondur eigi að fá makleg málagjöld eða hvort rétt sé að einstakur ljúflingur lendi í hremmingum að ósekju.

Það hefur mikið verið rætt og ritað um það á síðustu árum að of margar konur séu fórnarlömb í glæpasögum og að titlar slíkra bóka innihaldi of oft orð sem vísa til kvenna eða stúlkna. Sumsé, að það sé gert út á illa meðferð á konum. En þetta er hálfgert jarðsprengjusvæði því ekki er heldur gott að skrifa bara um konur sem gera körlum mein eða karla sem ráðast aðeins á aðra karla. Og hvað með hinsegin persónur? Fyrir ömmu sem er kannski „eitthvað OCD“ getur þetta orðið hið flóknasta mál.“

Hvernig kviknaði hugmyndin að Þvingun?

„Hugmyndin er aðallega sprottin af því að mig langaði að færa hættuna nær aðalpersónunum tveimur, fyrrverandi hjónunum Adam og Soffíu. Þess vegna hefst bókin með því að dóttir þeirra blandast í morðmál. Eflaust eru verklagsreglur lögreglunnar þannig að í raunveruleikanum hefðu þau ekki fengið að rannsaka mál sem þau tengjast á þennan hátt. En Soffía finnur smugu til að halda um taumana þrátt fyrir að dóttir hennar sé lykilvitni. Hún er jú dálítil jarðýta og þetta er litla Ísland. Já, og auðvitað skáldsaga.“

Ekki hætt að vinna

Ertu með nýja bók í smíðum þegar eða ertu farin að hugsa um starfslok og eftirlaun?

„Starfslok? Almáttugur, nei. Þótt jafnaldrar mínir séu unnvörpum að hætta á vinnumarkaðnum og dásami það mjög, þá get ég ekki hugsað mér að hætta að skrifa. Barasta alls ekki, ef ég hef líkamlega og andlega heilsu til,“ segir hún með áherslu. „Ég hef fundið enn betur núna að undanförnu hvað þessi þörf mín fyrir að vinna og skapa er sterk því í margar vikur hef ég glímt við brjósklos, vefjagigt og fleira sem hefur truflað mig talsvert. Þetta hefur verið langt og erfitt tímabil og það hefur sýnt mér það sem ég vissi reyndar fyrir – þ.e. að það forðar mér frá að verða döpur og hundleiðinleg ef ég get skrifað á hverjum degi, gengið 5-7 þúsund skref daglega og gefið út eina bók á ári.

Það er auðvitað ekkert hollt að hanga yfir tölvu í marga klukkutíma á dag, skrokkurinn lætur mig sannarlega vita af því. En hinn harðstjórinn í lífi mínu, skrefateljarinn, minnir mig reglulega á að standa á fætur og ganga. Svo á ég hitapoka sem mýkir á mér bakið og góða gönguskó með sérhönnuðu innleggi.

Annars á sjúkraþjálfarinn, sem ég hitti vikulega, mestan þátt í að halda mér gangandi … í bókstaflegri merkingu. Ég veit ekki hvar ég væri án hennar. Kannski liggjandi í kör. Og nú er ég sko ekki að grínast.

En ég er auðvitað þakklát fyrir að hafa getað unnið svona lengi við það sem mér finnst skemmtilegast af öllu. Það eru algjör forréttindi. Svo krossa ég bara fingur og tær upp á framhaldið og vona það besta.“

Þetta eru lokaorð Jónínu að þessu sinni en hún hefur auðheyranlega ekki sagt sitt síðasta orð og nú er bara að njóta þess að lesa Þvingun og bíða síðan spennt eftir næstu bók.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu  núna.

Ellilífeyrisþegar í ævintýraleit
Í fyrra kom út skáldsagan, Sólrún, eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur. Þetta er falleg skáldsaga um aldraða konu sem ákveður að láta sig hverfa og halda í leit að ævintýrum. Þetta er alls ekki fyrsta skáldsagan þar sem aðalpersónan er komin af léttasta skeiði og margir bókaunnendur geta áreiðanlega talið upp margar slíkar. Þær eru hluti af nýrri tegund bóka þar sem eldra fólk er viðfangsefnið og engu líkara en að skáldsagnahöfundar séu í auknum mæli að kveikja á því að það leynist víða fjörugur og skapandi hugur bak við hrukkótt andlit.

Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf og Hin ótrúlega pílagrímssaga Harolds Fry  nutu mikilla vinsælda þegar þær komu út. Hið sama má segja um hina fallegu sögu Kristínar Steinsdóttur, Á eigin vegum, sem frábær leikgerð var gerð eftir og sýnd í Borgarleikhúsinu. Eftir sama höfund er svo einnig, Ekki vera sár, um Imbu sem er komin á eftirlaun og þarf að ákveða hvað hún vill gera við árin sem hún á eftir. Þessar bækur eigia sameiginlegt með Sólrúnu, að í þeim er þema sem snertir á tilbreytingar- og tilgangsleysi sem eldra fólk finnur fyrir. Ýmist er því er komið fyrir á stofnunum þar sem tíminn líður hægt eða það býr eitt og á sér fá áhugamál. Þegar það tekur málin í sínar hendur og gerir eitthvað til að skapa sér áhugaverðara og skemmtilegra líf verður úr ævintýri og uppgjör sem skilar aðalsöguhetjunni aukinni lífsfyllingu. Í þessu sambandi verður líka að minna á, Maður að nafni Ove og Britt Marie var hér en þær eru báðar eftir Fredrik Backman.

Auðvitað eru svo til ótal bækur um gamalt fólk sem lítur til baka yfir farinn veg en meginpartur sögunnar gerist á meðan það var ungt. Þar eru bækur eins og Fried Green Tomatoes at the Whistle Stop Café, eftir Fanny Flagg, The Remains of the Day, eftir Kazuo Ishiguru, Memoiries of a Geisha, eftir Arthur Golding og Water for Elephants eftir Söruh Gruen. Ótal fleiri má ábyggilega telja upp. En svo eru gamlingjarnir sem neita að gefast upp fyrir ellinni og í þeirra hópi er gamli fiskimaðurinn í, Gamli maðurinn og hafið, eftir Ernst Hemingway og Martha Anderson í Kaffe med rån en sú bók fékk í enskri þýðingu titilinn, The Little Old Lady who Broke all the Rules, eftir Catharina Ingelman-Sundberg. Svo vinsæl varð bókin að höfundur hefur skrifað tvær aðrar um sömu persónur.

Hópurinn á sænska elliheimilinu kallast svo ágætlega á við Fimmtudagsmorðklúbb, Richards Osmans. En þar segir af breskum ellilífeyrisþegum sem búa í þorpi fyrir eldri borgara og skemmta sér við að leysa sakamál. Á íslensku hafa komið út þrjár bækur um hópinn, Fimmtudagsmorðklúbburinn, Maðurinn sem dó tvisvar og Skotið sem geigaði. Og þegar þau hafa verið nefnd verður auðvitað að minna á að við Íslendingar eigum okkar eigin spæjara sem komnir eru af léttasta skeiði. Þær Jónína Leósdóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson eiga heiðurinn af þeim en Edda á Birkimelnum og Linda Lilja og Gabríel hafa öll til að bera óvenjulega skarpa athyglisgáfu og ályktunarhæfni. Jónína hefur skrifað fimm bækur um Eddu en Anna tvær um sitt par.