Jórunn Viðar – Lifðu núna

Frábær saga einstakrar hæfileikakonu
Að uppgötva fjölhæfan og stórkostlegan listamann að nýju og fá dýpri innsýn inn í líf hans og störf er alltaf ómetanlegt. En þegar um er að ræða konu sem hingað til hefur verið of hljótt um vekur það margfalda gleði. Þá er hægt að njóta ánægjunnar af því að loks fái viðkomandi að njóta sannmælis og að fella þetta púsl í íslenskri listasögu á sinn réttmæta stað. Árni Heimir Ingólfsson hefur skrifað ævisögu Jórunnar Viðar píanóleikara og tónskálds af mikilli list og svo lipurlega að það er hrein unun að lesa.

Jórunn hefur einstakan hæfileika, fullkomið tóneyra. Þetta er ákaflega sjaldgæfur eiginleiki en talið er að einn af hverjum tíu þúsund hljóti slíka vöggugjöf. Í hennar tilfelli fylgir að hún elskar tónlist og nýtur þess að skapa hana. Hún byrjar að læra á píanó hér heima og er svo heppin að hingað hafa flust erlendir tónlistarmenn sem settu svip sinn á tónlistarlíf bæjarins. Nokkrir Íslendingar hafa einnig sótt sér nám í tónlist utanlands og þetta fólk í raun lagði grunn að þeim tónlistararfi sem nútímakynslóðir njóta og sáu til þess að hér getur ungt fólk nært þessa hæfileika.

Katrín, móðir Jórunnar, er auðvitað lærður píanóleikari og kenndi á hljóðfærið en Jórunn sækir sína menntun til annarra. Í raun háir það henni að mamma hennar er kennari því hún kemst sjaldan að píanóinu á heimilinu til að æfa sig. Árið 1937 heldur Jórunn út til Berlínar í tónlistarnám en verður að hverfa heim aftur tveimur árum síðar vegna heimstyrjaldarinnar. Aftur fær hún tækifæri til náms árið 1943, í það sinn við Juilliard listaháskólann í New York. Þar leggur hún meðal annars stund á tónsmíðar.

Jórunn byrjaði snemma að semja eigin tónlist en hún hefur geldur þess að vera kona. Hefðbundið kvenhlutverk, móðir, húsmóðir, eiginkona kemur í veg fyrir að hún geti æft sig eins og hún hefði viljað og fengið það næði sem nauðsynlegt er til að skapa. Engu að síður liggja eftir hana mörg fallegt sönglög og stærri tónsmíðar sem menn eru að enduruppgötva og njóta í dag.

Árni Heimir hefur skrifað einstaklega fróðlega og aðgengilega bók. Þótt hér sé ferill Jórunnar og listsköpun í forgrunni er þetta ekki eingöngu ævisaga tónskálds heldur einnig saga konu, tónlistarlífs á Íslandi og tíðaranda langt fram eftir nítjándu öld. Bókin er sérlega vel unnið og allir notið þess að lesa hana því hún er ekki síður persónlýsing  og Jórunn er heillandi manneskja. Árni Heimir á þakkir skildar fyrir að hafa ráðist í þetta verk og þetta er frábær ævisaga. Auk þess er ekki hægt annað en að nefna hve einstaklega falleg kápa bókarinnar er. Hún er af Aðalsteini Svan Sigfússyni en Jóhanna Sigurjónsdóttir tók ljósmyndina.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.