kvillar – Lifðu núna

Stólar á hreyfingu og rauðvín
Það fylgja því ýmsir kostir að eldast, eins og fram kom í grein hér á Lifðu núna nýlega. En það er eins og með allt annað, því fylgja líka augljósir ókostir, eins og þeir að færni og geta minnkar. Einn viðmælandi Lifðu núna sagði til dæmis „Maður verður að láta af ýmsu sem áður var auðvelt viðfangs“ og annar sagði að takmörkun á líkamlegri getu og meiri veikindi, væru fylgifiskar þess að eldast.

Á sama hátt og kostirnir við að eldast eru margþættir eru gallarnir það líka. Ýmsir líkamlegir kvillar sem maður taldi að aldrei mundu hrella mann, maður yrði nefnilega alltaf sprækur og alheill, fara að gera vart við sig, bæði hjá manni sjálfum og samferðafólkinu. Þetta minnir mann óneitanlega á að það er farið að hausta og óveður geta skollið á hvenær sem er.

Þessi reynsla getur kallað fram kvíða og oft finnur maður meðal vinna sinna að þeir óttast ellina.  Á margan hátt finnst mér það raunsærra viðhorf en að afneita henni eins og sumir gera.

Einn úr hópnum sem rætt var við sagðist sjá ákveðna ókosti við að eldast, þótt það fylgdi að hann kysi fremur að horfa á kostina en ókostina.

Gallarnir eru hins vegar augljósir- minna þrek og þar af leiðandi framtakssemi. Því verður maður að velja vel hvernig maður ver tíma og kröftum. Heilsan er auðvitað lykilatriði og maður verður að vera þakklátur sé hún í góðu lagi hjá manni sjálfum og manns nánustu.

Það var líka bent á að fólk missti hæfnina eða viljann til aðlögunar þegar æviárunum fjölgar, en viðmælendur Lifðu núna bentu líka á fleiri hliðar málsins.

Ég lít ekki á það sem  galla að eldast. Eitt er hins vegar tölfræðilega augljóst: Meiri líkur eru á heilsubresti þegar fram líða stundir. Það veit ég fullvel. Danskur öldrunarlæknir, sem kom til Reykjavíkur í fyrirlestrarferð fyrir nokkru, ráðlagði fólki á efri árum að hreyfa sig, drekka rauðvín (í sæmilegu hófi) og ráða krossgátur. Ég hef ekki komist almennilega upp á krossgátur en stóla á hreyfingu og rauðvín.

Samfélagið setur einstaklinga til hliðar til dæmis varðandi atvinnuþáttöku sagði einn úr hópnum.  Og annar sagði að eftir því sem aldurinn færðist yfir missti fólk færni, kjark og þor til að gera ákveðna hluti sem það hefði alltaf gert. Það hræddist meira hið óþekkta og óvissa. Hann sagði einnig að það væri mikil hætta á að eldra fólk einangraðist og missti samband við umheiminn með aldrinum. En það er líka skemmtilegt hvaða augum menn líta aldurinn, allt eftir því á hvaða aldri þeir eru sjálfir.

Faðir minn lést af völdum hjartaáfalls 56 ára. Mér fannst hann ekki beinlínis gamall þá en að hann væri vissulega kominn vel af léttasta skeiði. Nú erum við fjórir synir hans orðnir 56 ára eða eldri og höfum fyrir löngu skynjað að maðurinn var á besta aldri þegar hann mætti örlögum sínum. Meira að segja 65 ára fólk eru unglömb svo lengi sem það vill sjálft.

Einn  viðmælandanna sem er kominn á eftirlaun sagðist finna fyrir því að hann gæti ekki lengur gert ýmislegt sem hann hristi fram úr erminni áður.

Maður er hættur að geta unnið alls konar verkefni með vinstri höndinni eftir tólf á miðnætti! Og ef maður ætlar að halda boð fer maður að undirbúa með góðum fyrirvara í stað þess að vinda sér út í búð um sexleytið og vera tilbúinn með ljúffengt gestaborð um átta. Þú getur ekki gert eins margt í einu, eiginlega gerir maður bara eitt í einu!

Gleymska er líka fylgifiskur aldurs, reyndar er það kallað að vera utan við sig í mínum hópi, og margir segjast alltaf hafa verið það, bara pínu meira með aldrinum. Það má öllu nafn gefa!

Sjón og heyrn raskast oft en gallinn við skerta heyrn, þrátt fyrir hjálp heyrnartækja, er að erfitt getur verið að fylgjast með samtölum, svo ekki sé talað um leikhús, kvikmyndir og þar fram eftir götunum.

Sumir vilja þá draga sig í hlé sem er slæmt því maður er manns gaman og mikilvægt á efri árum að einangra sig ekki.

Einn galli í viðbót sem margir kvarta yfir og það er að þeim finnst þeir hafa svo óskaplega mikið að gera eftir að þeir hættu að vinna. Þetta er nú reyndar oft sagt til gamans!

Við ljúkum svo þessari litlu umfjöllun um ókostina við að eldast með þessum ummælum.

Það lokast ýmsir kaflar í lífinu við það að eldast og aðferðir við að ná markmiðum breytast. Hreysti og úthald er auðvitað ekki eins mikið og áður og það þarf meira að sinna þessum þáttum. Í þessu samhengi finnst mér verða æ mikilvægara að sjá það sem við höfum en ekki að einblína á það sem var einu sinni hægt að gera. Að sjá glasið sitt sem hálf fullt en ekki hálf tómt. Það er svo sannarlega fullt af möguleikum í lífinu þótt ég fari ekki lengur á skíði eða út að hlaupa.

Hópurinn sem fékk spurningar sendar frá Lifðu núna er þessi: Atli Rúnar Halldórsson, Elín Siggeirsdóttir, Eyþór Elíasson, Margrét Björnsdóttir, Sylvía Guðmundsdóttir,  Valgerður Magnúsdóttir og Þorbjörn Guðmundsson.

Kæfisvefn – eða ertu að eldast?
Amma mín sem er á níræðisaldri segir stundum að það að verða gamall sé algjört víti. Öldrunin er ekki aðeins pirrandi, heldur sé hún uppsöfnuð hnignun sem hefur veruleg áhrif á líf, heilsu og lífsgæði. Hvernig væri ef við gætum losnað við eitthvað af þeim vandamálum sem öldrunin felur í sér? Enn betra, ef við gætum snúið þróuninni við að einhverju leyti? Svo merkilega vill til að það er hægt að líta á kæfisvefn sem óvæntan bandamann í baráttunni við fjölmarga kvilla sem hingað til hafa verið tengdir öldrun en mætti losna við með árangursríkri meðferð, segir svefnsérfræðingurinn, Brandon R. Peters á vef Huffington Post. Lifðu núna stytti og endursagði grein Peters.

Svefn breytist með aldri

Það er ljóst að svefntíminn breytist með hækkandi aldri. Árið 2015 breytti National Sleep Foundation í Bandaríkjunum afstöðu sinni til svefntíma fullorðinna. Áður var fólki ráðlagt að sofa 7 til 9 tíma á sólarhring en nú er eldra fólk hvatt til að reyna að sofa í 7 til 8 tíma. Styttri svefntími er talinn mikilvægur þáttur í baráttunni við viðvarandi svefnleysi. Ef þú þarft 7 tíma svefn á efri árum en eyðir samt 8 og jafnvel 9 tímum að jafnaði í rúminu er hætt við því að þú sért oftar vakandi á nóttunni og þurfir lengri tíma til að sofna. Vaknirðu er ekki ósennilegt að þú þurfir lengri tíma til að sofna aftur, sérstaklega árla morguns. Þessi slitrótti svefn veldur svo því að fyrr er farið í háttinn að kvöldi eða það verður erfitt að vakna á sama tíma alla morgna. Það að eyða mjög löngum tíma í rúminu umfram eðlilegan svefntíma getur gert svefnleysið verra.

Svefngæðum hrakar með aldri

Það er líklegra að eldra fólk þjáist af kvillum sem hafa slæm áhrif á svefn þess. Svo sem ýmisskonar verkjum, aukaverkunum af lyfjum eða tíðum þvaglátum.  Fótaóeirð og kæfisvefn eru dæmi um kvilla sem hrjá eldra fólk frekar en yngra. Kæfisvefninn er athyglisverður frá sjónarhóli læknisfræðinnar því hann getur valdið sjúkdómseinkennum sem læknar gætu ranglega talið að tengdust eðlilegri öldrun.

Lítum á nokkur dæmi:

Hrotur

Tíð þvaglát um nótt

Dagsyfja

Blundað eða dottað

Svefnleysi

Slitróttur svefn

Vaknað mjög snemma að morgni

Brjóstsviði að kvöldi

Hjartsláttaróregla

Tönnum gníst

Geðræn vandamál eins og kvíði og þunglyndi.

Gleymska

Auk þessa getur ómeðhöndlaður kæfisvefn valdið  hækkun á blóðþrýstingi, hjartavandamálum og sykursýki. Þá lækkar kæfisvefn sársaukaskyn og flýtir elliglöpum. Hversu marga aldraða þekkir þú með einhvern þessara kvilla? Örugglega marga.

Að snúa á kæfisvefninn

Aðalmunurinn á einkennum kæfisvefns og einkennum náttúrulegrar öldrunar er sá að meðhöndlun kæfisvefns leysir vandamálin. Ef þú ert syfjaður á daginn vegna kæfisvefns að nóttu hverfur sú syfja um leið og kæfisvefninn hverfur. Sama á við um blóðþrýstingsvandamál.  Hugsanlega eru svefntöflur ekki orsök ótímabundinna elliglapa heldur kæfisvefn. Það eru til árangursríkar meðferðir við kæfisvefni.

En fyrst verður fólk að fá það staðfest að það sér í raun haldið kæfisvefni og þá þarf að leita til sérfræðinga til að fá úr því skorið. Að því loknu er viðeigandi meðferð hafin.

Kæfisvefn er læknanlegur. Leitaðu læknis ef þú ert með einkenni, láttu prófa þig og fáðu meðhöndlun. Sjáðu svo hvort einhver þessara öldrunareinkenna hverfa. Með meðhöndlun gætir þú ekki aðeins bætt árum við líf þitt heldur einnig lífi við árin sem þú átt eftir.

Já, amma var meðhöndluð og henni líður miklu betur, segir Brandon R. Peters í lok greinar sinnar.