Mál gegn skerðingunum – Lifðu núna

Verður máli Gráa hersins vísað frá?
Það ræðst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur hvort ríkinu tekst að fá máli Gráa hersins vegna skerðinganna vísað frá.  Skerðingarnar í almannatryggingakerfinu hafa verið mjög umdeildar áratugum saman. Mál Gráa hersins snýst um hvort það standist eignaréttarákvæði og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að skerða ellilífeyri vegna lífeyrissjóðsréttinda með þeim hætti sem gert hefur verið á umliðnum árum. Það er að segja um 45% af lífeyristekjum og um tæp 57% þegar tekið er tillit til heimilisuppbótar. Ríkislögmaður hefur gert athugasemdir við formhlið málsins. Í greinargerð hans er ekki gerð krafa um frávísun en fullyrt að vísa beri málinu frá dómi án slíkrar tillögu. Hvað dómarinn gerir í málinu ræðst eftir hádegið í dag, þegar fjallað verður um það í Héraðsdómi.  Um 45.000 manns hér á landi eru 67 ára og eldri. Þeir fá ekki allir greiðslur frá Almannatryggingum eða TR, enda er nokkur hópur manna sem hefur það háar tekjur, að hann fær engar greiðslur þaðan. Aðrir fá tekjur sínar ýmist bæði frá lífeyrissjóðum og Almannatryggingum (TR), eða eingöngu frá Tryggingastofnun eigi þeir engin lífeyrisréttindi. Mikil óánægja með skerðingarnar, er ástæða þess að Grái herinn telur brýnt að fá úr málinu skorið fyrir dómstólum. Verði málinu visað frá Héraðsdómi, mun Grái herinn kæra þá niðurstöðu til Landsréttar.

Málssókn gegn ríkinu eina úrræðið
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík sem haldinn var í síðustu viku, samþykkti ályktun þar sem lýst var fullum stuðningi við málssókn Gráa hersins gegn stjórnvöldum og hvatti eftirlaunafólk í landinu til að flykkja sér á bak við hana. Síðan segir orðrétt í ályktuninni.

Tilgangur málssóknarinnr er að fá úr því skorið hvort skerðing almannatrygginga standist stjórnarskrá og mannréttindasáttmála. Eftirlaunafólk hefur ekki yfir að ráða neinum þvingunarúrræðum til að knýja á um úrlausn mála sinna gagnvart stjórnvöldum. Málssókn gegn ríkinu er því aðfrð sem eftirlaunafólk neyðist nú til að grípa til, þar sem ekki virðast vera líkur á að aðrar og hefðbundnari aðferðir muni bera árangur.

Fundurinn fagnar mjög þeirri ákvörðun stórnar VR að gerast fjárhagslegur bakhjarl Málsóknarsjóðs Gráa hersins  og tryggja með því að mögulegt verður að reka málið fyrir öllum dómsstigum þar til lokaniðurstaða fæst.