málverk – Lifðu núna

„Draumurinn að halda sýningu á Íslandi“
Á Borgarbókasafninu Spönginni stendur nú yfir áhugaverð sýning á verkum listakonunnar Dariya Tumanova undir yfirskriftinni Í ljóma liðinna tíma.

„Það hefur lengi verið draumur minn að halda sýningu á Íslandi og sjá hvernig íslenskir áhorfendur upplifa myndirnar mínar,“ segir listakonan Dariya Tumanova, sem hefur opnað sýninguna Í ljóma liðinna tíma á Borgarbókasafninu Spönginni.

Á sýningunni gefur að líta vatnslitamyndir af fornbílum, en listakonan kveðst vera heilluð af viðfangsefninu. „Mér finnst hver og einn þessara gömlu bíla hafa sinn eigin svip og sinn eigin persónuleika. Nútímabílar eru vissulega þægilegri en þeir líkjast hver öðrum svo mikið að ég á stundum erfitt með að finna minn eigin bíl á bílastæði,“ segir hún og hlær.

Dariya tekur fram að sýningin í Spönginni snúist þó ekki eingöngu um fornbíla heldur heldur um minningar, menningu og þann ljóma sem fortíðin getur enn varpað á daglegt líf okkar.

Dariya, sem er frá Úkraínu, hefur starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkennari um árabil og sýnt verk í Úkraínu, Þýskalandi og á Ítalíu.

Í ljóma liðinna tíma er fyrsta sýning Dariya á Íslandi og segist hún vera glöð með bæði að geta unnið að listsköpun sinni hérlendis og deilt útkomunni með Íslendingum.

Sýningin stendur yfir til 28. ágúst.

Öll hjartanlega velkomin.

Blómin í listinni
List Eggerts Péturssonar er heillandi og einstök. Bæði lærðir og leikir geta sökkt sér ofan í verk hans og fundið þar fegurð og uppsprettu alls konar vangaveltna. Fyrir listunnanda sem aðeins hefur áhugann að vopni er hvert eitt málverk eins og safn ævintýra. Bók um Eggert í jólabókaflóðinu var þess vegna einstakur fengur.

Þetta er sérlega vönduð og falleg útgáfa, skreytt ótal myndum og greinarnar eru aðgengilegar og vel skrifaðar. Hér fæst gott yfirlit yfir feril listamannsins í inngangi Þorláks Einarssonar og grein Þrastar Helgasonar ritstjóra er í senn áhugaverð greining og vel unnin hugleiðing um ástæður þess að verk Eggerts höfða svo sterkt til áhorfenda. Þröstur segir meðal annars:

„Málverk Eggerts lýsa mun fremur innhverfum módernískum ljóðum sem snúast um eitt hugtak eða hugmynd og hafa takmarkaða og á einhvern hátt skerta – truflaða vísun til ytri heims.“

Það að líkja málverkum Eggerts við ljóð og innhverfa íhugun skálds er sérlega viðeigandi. Blóm hafa frá örófi alda verið mönnum innblástur alls konar listsköpunar og kveikja fyrir ímyndunaraflið. Þau hafa sitt eigið táknmál og þeim hafa verið eignaðir yfirnáttúrulegir eiginleikar í þjóðsögum og sögnum. Fólk færir öðrum blóm til að hugga, tjá ást sína, fagna og fegra mannlífið. Eggert staðsetur sín blóm úti í náttúrunni, umskapar íslenska móa og hraunbolla og býr þar til fjölbreytilegan og dásamlegan heim.

Í bókinni er 109 myndir af málverkum Eggerts sem hægt er að sökkva sér ofan í, skoða og finna ávallt nýjar myndir og smáatriði sem áður fóru framhjá rýnandanum. Það hversu vel er að verki staðið í öllu hér og bókin vel unnin magnar upplifunina og gerir bókina að listaverki í sjálfu sér.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Sýnd veiði en ekki gefin
Sara Oskarsson opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti fimmtudaginn 18. janúar kl.15-17.

Á sýningunni sem nefnist ÍSTAKA, eru verk eftir Söru, unnin á striga og panel með olíu og vaxi. Verkin eru úr nýrri borgar-seríu innblásin af dýnamíkinni hjá Tjörninni í Reykjavík.

Titill sýningarinnar vísar til ístöku á tjörninni sem fór fram í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar. Ísinn var notaður í íshúsin í Reykjavík og til að ísa fisk fyrir siglingar með glænýjan fisk.

Ístaka var erfiðisvinna í kulda og trekki. Ísinn var högginn þar sem að hann var tærastur og bestur og síðan sprengdur frá ísbrúninni með járnkörlum. Íshellunum var svo raðað á sleða sem hestar drógu að geymslum íshúsa.

Var þetta allt saman hið kalsamasta verk og erfitt enda vont að ná haldi á blautum ísnum. Jakarnir voru vegnir upp á skörina með ísstöngum og áfram á sleðana. Hestar siluðust í átt að litlu steinbryggjunni, eftir henni upp tjarnarbakkann og síðan á ákvörðunarstað. Þetta var oft hið tafsamasta ferðalag því ísstykkin vildu velta af sleðunum.

Íshúsið Herðubreið sem stendur við tjörnina hýsir nú Listasafn Íslands.

Sara sem er fædd Reykjavík og á ævilangar minningar þaðan gerir tjörnina og umhverfi að viðfangsefni sínu og líkir starfi og viðleitni málarans við ákveðna „ístöku“.

Að fanga augnablik, stemmningu, hugmyndir, birtu og sál – að skapa eitthvað úr nærumhverfi sínu við hin ýmsu skilyrði. Að fanga það sem er hvikult. Sýnd veiði en ekki gefin.

Einmanaleikinn í málverkum
Aðspurður um list sína og sköpun var Edward Hopper vanur að svara: „Það er allt þarna á striganum.“ Hann þótti stóískur og jarðbundinn í viðhorfum sínum til lífsins og jafnframt hlédrægur, hreinskiptinn og skemmtilegur húmoristi. Þessi einstaki málari endurspeglaði daglegt líf bandarísku þjóðarinnar í byrjun 20 aldar og óvenjuleg næmni skín úr myndum hans.

Hann var meistari í að nota birtu til að undirstrika og koma á framfæri stemningu. Málverk hans endurspegla sýn hans á amerískt líf bæði til sveita og í borgum. Edward Hopper var fremur íhaldssamur í skoðunum og sætti sig við hlutina eins og þeir voru. Raunsæi er áberandi í verkum hans  án þess að hann sé beinlínis að reyna hafa áhrif eða breyta. Þetta hefur verið túlkað sem skortur á hugsjónum en í yfirlýsingu sem hann skrifaði um list sína segir hann að stórkostleg list hljóti alltaf að vera tjáning á innra lífi listamannsins og hans persónulegu sýn á veröldina. Hann talar um kraft ímyndunaraflsins sem ómissandi hreyfiafls í verkum listamanna sem engin tækniþekking geti í raun komið í staðinn fyrir. Hann telur einnig að ekki eigi að reyna að beisla ímyndunaraflið með vitrænum vangaveltum. Innra líf mannsins sé víðfeðmt ríki sem nái ekki eingöngu til þess að örva samsetningu lita, forma og skipulags.

Undirmeðvitundin smitast á strigann

Í þessari hugmyndafræði felst ákveðin hugsjón og vitað er að Edward var mjög áhugasamur um kenningar Freuds um undirmeðvitundina, enda hafa margir þóst skynja í verkum hans boðskap og einkum og sér lagi geta lesið úr ótal smáatriðum sem slæðst hafi inn í verkið þótt málarinn hafi ekki endilega ætlað sér að skila með þeim táknrænni merkingu.

„Það var svo loks árið 1923 að Eward náði að slá í gegn. Hann kynntist konu sinni Josephne Nivison þetta ár en hún var alger andstæða hans að því leyti að hún var opin, félagslynd og átti auðvelt með að kynnast fólki.“

Edward Hopper er best þekktur fyrir olíu- og vatnslitamyndir sínar en hann vann þónokkuð oft með ætingar. Í skissubókum hans er sömuleiðis að finna margar einkar fallegar og fínlegar blýantsteikningar sem hafa vakið athygli listfræðinga þó listamaðurinn sjálfur hafi aldrei ætlað að sýna þær opinberlega. Hann vann sérstaklega með fleti og skipulagði málverkið út frá ákveðinni flatarmálsfræði. Manneskjum var síðan raðað inn í flötinn á þann hátt að þær röskuðu ekki jafnvæginu. Hann var ákaflega nákvæmur í öllum vinnubrögðum og hann sagði að það tæki sig langan tíma að fá hugmyndir og hann þyrfti síðan að hugsa lengi um þær áður en hann gæti farið að vinna. „Ég byrja ekki að mála fyrr en ég hef sett allt vandlega niður fyrir mér í huganum. Það er allt í lagi með mig þegar ég kem að trönunum.“

Edward fæddist þann 22. júlí 1882 í Nyack í New York.. Smábæ þar sem allt snerist um snekkjusmíðar. Faðir hans hét Garret Henry Hopper en móðir hans Elizabeth Griffiths Smith. Pabbi hans var fatakaupmaður og móðir hans erfði talsvert fé og hjónin voru því nokkuð velstæð. Þau tilheyrðu baptistakirkjunni og voru ákaflega trúuð. Konurnar í Hopper-fjölskyldunni voru sterkir persónuleikar og móðir hans, amma og systir voru ráðandi á heimilinu.

Einmanaleikinn er oft sár og raunverulegur í verkum Edwards Hopper.

Mjósleginn og feiminn húmoristi

Í fyrstu sjálfsmyndum sínum sýndi Hopper sjálfan sig sem mjósleginn, slánalegan og frekar óaðlaðandi ungling en þótt hann hafi verið hávaxinn og feiminn heillaðust flestir af næmu skopskyni hans sem kemur vel fram í málverkunum. Hann ætlaði sér að verða skipaarkitekt en hætti við og ákvað að læra myndlist. Foreldrar hans heimtuðu að hann legði fyrir sig hagnýtt listnám svo hann hefði einhver ráð með að sjá f yrir sér ef í harðbakkann slægi. Hann hóf listnámið í bréfaskóla en fór síðan í fullt nám í New York Institute of Art and Deaign.

Á mótunarárunum heillaðist Edward mjög af Ralph Waldo Emerson og las bækur hans spjaldanna á milli. Þónokkur áhrif frá frönsku meisturunum Édouard Manet og Edgar Degas má greina í fyrstu myndum hans en síðar fór að kveða við sérstæðan og persónulegan tón. Einn kennara hans, Robert Henri, hvatti nemendur sína til að fara út í veröldina og hræra svolítið upp í henni. Hann minnti þá einnig reglulega á að það væri ekki viðfangsefni myndarinnar sem skipti máli heldur hvernig þeim liði gagnvart því og þriðja lexía hans var: „Gleymið listinni og málið myndir af því sem vekur áhuga ykkar í lífinu.“ Robert kenndi námskeið þar sem teiknað og málað með lifandi fyrirsætur í salnum en það reyndist hinum fastheldna Edward erfitt í fyrstu einkum ef módelin voru nakin. Allt vandist þetta þó og boðskapur Roberts Henris síaðist inn.

Að námi loknu fékk Edward vinnu á auglýsingastofu og gerði þar forsíður á fagtímarit, myndskreytingar og fleira. Hann fyrirleit hins vegar starf sitt en neyddist til að gegna því til að hafa í sig og á.  Á þessum árum tókst honum þrisvar að ferðast til Evrópu til að soga í sig listina þar og kynntist m.a. verkum Picassos í París. Hann sá einnig Næturverðina eftir Rembrandt á slíku ferðalagi og heillaðist gersamlega. Enduróm af þeim áhrifum er að finna í hans eigin verki Night Hawks eða Næturhaukar/Nátthrafnar.

Raunsæislistamaður með næmt auga

Ólíkt flestum samtímamönnum sínum reyndi Edward sig lítið við abstraktlist. Hann sat löngum stundum á kaffihúsum, í leikhúsum og annars staðar þar sem fólk kom saman og málaði síðan raunsæjar myndir af því sem fyrir augu bar. Hann leigði sér stúdíó í New York árið 1912 en varð áfram að vinna við myndskreytingar í lausamennsku til að eiga salt í grautinn. Næstu árin voru honum erfið. Honum tókst að selja mynd sína Sigling á hinni þekktu Armory- sýningu árið 1913 en langt var þar til nokkur fór að veita myndlist hans athygli.

„Hann telur einnig að ekki eigi að reyna að beisla ímyndunaraflið með vitrænum vangaveltum. Innra líf mannsins sé víðfeðmt ríki sem nái ekki eingöngu til þess að örva samsetningu lita, forma og skipulags.“

Faðir hans lést sama ár og það gerði Edward kleift að flytja í íbúð í Greenwich Village sem var helsti suðupunktur listalífs í Bandaríkjunum á þessum árum. Hann bjó þar það sem eftir var ævinnar en um þetta leyti hóf hann að gera ætingar meðfram málverkunum. Hann fékk einnig vinnu við að gera auglýsingaplaköt fyrir kvikmyndaver og þótt hann væri almennt ekki hrifinn af slíkum störfum var hann einlægur aðdáandi kvikmynda og það gerði honum vinnuna bærilegri.

Það var svo loks árið 1923 að Eward náði að slá í gegn. Hann kynntist konu sinni Josephne Nivison þetta ár en hún var alger andstæða hans að því leyti að hún var opin, félagslynd og átti auðvelt með að kynnast fólki. Hún var einnig listamaður en gaf eigin feril upp á bátinn til að einbeita sér að því að koma verkum manns síns á framfæri. Hún kom sex af vatnslitamyndum hans inn á sýningu í Brooklyn Art Museum og safnið keypti eina þeirra. Eftir þetta tók boltinn að rúlla og Hopper-hjónin nutu fjárhaglegrar velgengni og stöðugleika allt fram að andláti Edwards árið 15. maí árið 1967. Ekki var langt milli þeirra hjóna því Josephine dó tíu mánuðum síðar. Þau arfleiddu Whitney Museum of America af málverkasafni sínu sem samanstóð af yfir 3000 verkum.