Margbrotna systir mín – Lifðu núna

„Eftir sérhvert áfall opnuðust nýjar dyr“
Mér finnst að þegar Sæunn Kjartansdóttir talar eða réttara sagt skrifar eigi allir að leggja sig eftir þeim orðum. Hún fer ævinlega á dýptina og öll umfjöllum hennar um sálarlíf mannsins er skynsamleg og áhugaverð. Að þessu sinni sendir Sæunn frá sér ævisögu systur sinnar Margrétar Kjartansdóttir og titillinn er Margbrotna systir mín – Saga Margrétar. Hér er farið yfir ævi merkrar konu, talað um áföll, sorgir, sigra, glímu við fíkn og hvernig margskonar hæfileikar koma henni að notum.

Margrét er ótrulega þrautseig og seiglan skilar henni áfram í gegnum allt það er lífið hendir í fangið á henni eða hún skapar sér ef marka má viðhorf hennar sjálfrar til þeirrar hringrásar sálarinnar sem okkur er ætlað að ganga í gegnum. Með sanni má segja að fáir eigi að baki jafnfjölbreytta og litríka ævi og Margrét. Hún varð að sætta sig við að geta ekki eignast börn þótt hún þráði það heitast af öllu. Mennirnir í lífi hennar berjast við eigin djöfla og samböndin við þá færa ekki þá hamingju sem hún hafði vonast eftir.

En þessi kona er vinnuþjarkur, ótrúlega útsjónarsöm og dugleg manneskja sem ekki bara sér tækifæri hvarvetna heldur hefur hæfnina og úthaldið til nýta sér þau. Hún ræður sig kokk á sjó til afla nægilegs fjár til að halda í íbúðina sína en stundar einnig kaupmennsku og vegna þess hversu gott auga hún hefur fyrir því sem er fallegt og áhugavert nær hún að græða vel á því. Hún treystir hins vegar öðrum um of, sýnir ekki nægilega varúð í samskiptum við aðra. Það kemur henni rækilega í koll. En í stað þess að gefast upp finnur hún leið til sætta sig við orðinn hlut og bæta líf sitt verulega.

Sæunn er skrifar þessa bók af fádæma innsæi og skilningi. Víða í bókinni eru rakin samtöl þeirra systra um hvers vegna líf Margrétar þróast einmitt á þennan hátt og þær fara yfir þá leiðarsteina sem Margrét hefur náð að stíga yfir. Ég hef aldrei verið sammála því að við getum ekki lært af reynslu annarra og ég tel að þessi bók sé ein sönnun þess. Þótt við tökum ekki endilega sömu lexíu úr atburðum og sá sem gekk í gegnum getur innsýn í sársauka þeirra, ótta, öryggisleysi og sú leið sem þeir velja til að spyrna sér frá botninum upp á yfirborðið kennt okkur ótrúlega margt. Að tengja saman tilfinningalegar upplifanir okkar úr æsku við samskipti okkar við aðra á fullorðinsaldri er einnig verðmætt vilji menn skilja sjálfa sig. Kannski er mikilvægasta lexían að ekki borgi sig að setja ævinlega hausinn undir sig og vaða áfram gegnum allt án þess að sjást fyrir. Af og til getur munað öllu að staldra við, hugsa og skoða sjálfan sig og eigin þátt í sínum örlögum. Já, það borgar sig að hlusta þegar Sæunn Kjartansdóttir talar og eins og Margrét systir hennar segir þá opnast nýjar dyr eftir sérhvert áfall og ævintýri bíða ævina á enda.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.