minnka við sig – Lifðu núna

Vinæl hverfi þegar minnka á við sig
Er húsnæðið orðið of stórt?

Þegar við erum komin á miðjan aldur fara margir að hugsa sér til hreyfings. Börnin flytja að heiman hvert af öðru og húsnæðið, sem hefur þjónað fjölskyldunni vel, verður skyndilega of stórt. Þá fer lífið að snúast of mikið um þrif því rykið safnast áfram í öll herbergin. Þá er betra að minnka við sig húsnæðið, sérstaklega á meðan fólk er enn heilsuhraust, því meira vit er í að nota peningana sem fást á milli í að eignast eða gera það sem hugurinn hefur lengi staðið til. En hvernig er best að haga málum þegar fólk hefur verið lengi á sama stað og hvert er best að fara?

Jónas Jónasson.

Samkvæmt fasteignasalanum Jónasi Jónassyni hjá Valhöll fasteignasölu eru margir á þessum aldri ekki tilbúnir að fara úr einbýli í fjölbýli. Hjá þeim hópi eru minni raðhús eða minni einbýli vinsæl en þannig húsnæði liggi ekki endilega á lausu.  Fyrir þá sem vilja fjölbýli eru íbúðirnar við Valsheimilið og Kirkjusandinn vinsælar en þar er verð mjög svipað. ,,Töluverður verðmunur er á hverfum en þó minni þegar kemur að nýjum eignum,“ segir Jónas. ,,Þegar fólk er tilbúið að fara í fjölbýli þá eru íbúðir sem tengjast þjónustu vinsælar og eru mörg hverfi sem koma til greina til dæmis Smárahverfið, Mjóddin, Mörkin, Hraunbær og Sjálandið í Garðabæ en  í þessum hverfum eru fallegar blokkir með lyftu og góðu aðgengi.“

Jónas segir að mjög lítið hafi verið að gerast í Vesturbænum til þessa en nú sé verið að byggja á gamla Byko-reitnum vestur í bæ. Hann gerir ráð fyrir að það verði dýrari eignir sem fari í sölu þar líkt og annað sem hefur verið byggt á því svæði.

Yngra fólk segir Jónas að fari frekar í úthverfin þar sem það fær meira fyrir peninginn og nóg pláss er fyrir börnin.

Er kominn tími til að minnka við sig?
Þegar börnin eru farin að heiman og menn eru komnir á eftirlaun, fara margir að líta í kringum sig og velta fyrir sér hvort það sé kominn tími til að selja húsið eða stóru íbúðina þar sem börnin ólust upp og minnka við sig. Er kannski best að drífa í að selja sem fyrst? Það er ekki við því að búast að fasteignaverð hækki mikið hér á landi á næstunni, hækkanir eru að minnsta kosti hægari núna, en þær voru síðast liðinn áratug. Þannig að það er líklega allt í góðu lagi að taka sér tíma í að skoða húsnæðismálin. Á vef eftirlaunafólks í Bandaríkjunum www.aarp.com er fólki ráðlagt að leggja málin vel niður fyrir sér, áður en það tekur þessa stóru ákvörðun. Bent er á  nokkur atriði sem fólki er ráðlagt að skoða sérstaklega. Við stiklum hér á stóru í greininni og höfum einnig staðfært hana með tilliti til íslenskra aðstæðna.

Reiknaðu út hversu mikið þú átt  í eigninni

Eitt sinn var hugmyndin sú að eftirlaunafólk gæri selt stóru eignirnar sínar, minnkað við sig og átt afgang til að njóta lífsins á efri árum. Þetta hefur breyst. Þegar fólk fer á eftirlaun í dag, skuldar það oft dágóðar upphæðir í húsnæðinu og á þar af leiðandi ekki endilega svo mikið í því. Við þær aðstæður er kannski ekki skynsamlegt að selja og flytja. Okkur á Lifðu núna er þó kunnugt um tvö tilvik, þar sem fólk sem er komið yfir miðjan aldur, seldi eignir hér með verðtryggðum lánum og flutti til Jótlands í Danmörku. Einnig eru dæmi um að eftirlaunafólk flytji til Spánar eða Berlínar og það segir að eftirlaunin endist betur þar. Á aarp vefnum er mönnum ráðlagt að láta verðmeta húsið sitt tímanlega, eða nokkru áður en þeir hugsa sér að setja það á sölu. Einnig að fá reiknað út hversu mikið fer í sölulaun vegna íbúðarinnar  og hversu mikið í kostnað við viðgerðir sem þarf að ráðast í til að gera eignina söluvænlegri. Þá má heldur ekki gleyma kostnaðinum við að flytja. Stundum passa gömlu húsgögnin ekki í nýja húsnæðinu og þá þarf að kaupa ný.  Stendur gamla húsið eða íbúðin undir þessum kostnaði?

Finndu nýja íbúð áður en þú selur

Hafa skal í huga að það getur verið meira mál en menn halda að finna nýtt húsnæði. Menn þurfa að fara vel yfir það hvernig húsnæði þeir vilja fá og hvar – og líka hvað þeir eru tilbúnir að borga fyrir það.  Vilja þeir kaupa íbúð í nýbyggðu húsi eða eldra húsnæði? Þarf íbúðin að vera í Reykjavík, eða má hún vera á höfuðborgarsvæðinu? Í Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Hveragerði eða Selfossi? Allt þetta skiptir máli, því fasteignaverð er ákaflega mismunandi eftir stöðum. Við skoðuðum nokkrar nýjar þriggja herbergja íbúðir, á höfðuborgarsvæðinu,  á Selfossi og í Reykjanesbæ. Íbúðirnar voru valdar af handahófi og eiga það eitt sameiginlegt að vera nýjar, byggðar á síðustu tveimur árum. Verðið var þannig:

Reykjavík, Arnarhlíð, 82 fm. – Kr. 53.9 milljónir.

Kópavogur, Nýbýlavegur, 83.6 fm. – 49.9 milljónir.

Hafnarfjörður, Herjólfsgata, 92.5 fm. – Kr. 55.9 milljónir.

Reykjanesbær, Dalsbraut, 82 fm. – 32.7 milljónir

Selfoss, Álalækur, 97.3 fm. – Kr. 35.9 milljónir.

Á AARP vefnum er þeim sem hugsa sér að flytja í annað hverfi en þeir hafa búið í, eða í annan bæ, ráðlagt að skoða aðstæður á nýjum stað vel, áður en þeir drífa í að kaupa. Jafnvel að dvelja í bænum í eina eða tvær vikur, til að átta sig á hvort þeim líkar staðurinn eða ekki. Það er mikilvægt að rasa ekki um ráð fram, því ákvörðunin getur haft mikil áhrif á allt þitt líf á næstu árin eða áratugina.

Hafðu samaband við endurskoðanda eða TR

Ótrúlegt en satt, það kann að hafa áhrif á eftirlaun þín frá Tryggingastofnun ríkisins, ef þú skiptir um húsnæði. Það er ekki líklegt, ef menn selja íbúðarhúsnæði sem þeir hafa átt til margra ára, en það er sjálfsagt að ganga úr skugga um það áður en menn selja, hvort það geti haft áhrif á eftirlaunin þeirra og skattana. Það verður að athuga þetta vel. Fáðu endurskoðanda til að fara yfir málið og talaðu líka við Tryggingastofnun ríkisins til öryggis.

Hvað kostar að vera áfram í húsinu?

Það er rétt að íhuga að það kostar líka sitt að búa áfram í gamla húsnæðinu. Gerðu lista yfir viðhaldskostnað í íbúðinni eða húsinu þar sem þú býrð. Líka kostnað sem mun falla til eftir 5 ár, eða 10 ár. Þarf að skipta um þak, eða setja stólalyftu á milli hæða í húsinu? Allt kostar þetta og það hjálpar fólki við að vega og meta kostina við að selja og flytja, að setja þennan kostnað inní jöfnuna.

Að selja og gerast leigjandi?

Þú skalt ekki útiloka að selja húsið þitt og gerast leigjandi, segir í aarp greininni. Það er spurning hvort það á við hér á Íslandi þar sem leiguhúsnæði er bæði ótryggt og dýrt. Sumir hafa valið þá leið að kaupa sér íbúð í Búseta til að greiða upp skuldir eða losa peninga, eða festa sér íbúðir í tengslum við hjúkrunarheimili eins og til dæmis Mörk. Það ræðst hugsanlega af því á hvaða aldri fólk er, hvaða kostur er bestur fyrir hvern og einn. En hér gildir sem fyrr, það þarf að skoða þetta vel áður en ákvörðun er tekin.

Notaðu eignina til að búa í haginn

Ef þú velur að gerast leigjandi, geturðu notað það sem þú færð fyrir húsið, til að bæta við eftirlaunin, segir í bandarísku greininni. Það er líka hægt að hugsa sér að nota peningana sem sparast við að vera um kyrrt á gamla heimilinu,  til að kaupa aðstoð, ef menn þurfa á henni að halda þegar aldurinn færist yfir.  Er hugsanlega aukaherbergi í íbúðinni sem er hægt að leigja út í framtíðinni, ef þú þarft að aukapeningum a halda? Það er nytsamlegt að líta á húseignina sem leið, til að skapa sér þær aðstæður sem menn kjósa að búa við í framtíðinni, segir að lokum í greininni.

Minnkuðu við sig eftir 45 ár í sama húsi
Vésteinn hefur miklar mætur á ljóði eftir séra Bjarna Gissurarson í Þingmúla, sem hann orti á 17. öld. Á filmu í glugga á dyrum sem liggja út í bakgarð hafa þau látið setja tilvitnun í þetta ljóð: Hvað er betra en sólarsýn – Hún vermir, hún skín, og hýrt gleður mann.

Vésteinn Ólason prófessor og Unnur A. Jónsóttir kennari og veflistakona eru bæði fædd sólarárið 1939 og eru því 78 ára gömul. Þau líta á það sem nýtt upphaf að vera að flytja í nýtt og minna húsnæði eftir að hafa búið í sama húsi við Nýlendugötu í 45 ár en tóku ákvörðun fyrir skömmu að selja það. Hugmyndin kviknaði fyrir tveimur árum að minnka við sig eftir að hafa fylgst með nokkrum jafnöldrum þeirra gera það sama.

Höfðu gott af stigaklifri en yngjast ekki héðan af

Húsið, sem þau eru að flytja úr, er á þremur hæðum, en þau segja að þau hafi kannski bara haft gott af stigaklifri fram að þessu en ljóst sé að þau yngist ekki. Börnin þeirra tvö voru á fyrsta og þriðja aldursári þegar þau fluttu inn og nú eru komin  þrjú barnabörn. Húsið hélt vel utanum þau og vinnuaðstaða var öll hin besta en Vésteinn stundar enn töluverð fræðistörf og Unnur vefur alls kyns listaverk á vefstól sem hún segist þó þurfa að selja vegna plássleysis á nýja staðnum, en er ákveðin í að kaupa annan minni sem komist fyrir.

Þau Vésteinn og Unnur létu breyta nýja húsnæðinu verulega.

Kynntust í menntó

Þau Vésteinn og Unnur kynntust í Menntaskólanum á Laugarvatni þar sem þau stunduðu bæði nám. Hann var búsettur í Árnessýslunni þá og hún í Vestmannaeyjum. Það lá því beint við fyrir bæði að fara á Laugarvatn í menntaskóla. Eftir stúdentsprófið og eitt ár í Reykjavík tóku þau síðan að sér kennslu við grunnskólann í Vestmannaeyjum veturinn 1960-61. Nemendur þeirra þá voru 5 árum yngri en þau og eru nú orðið rígfullorðið fólk, komið á eftirlaun, segja þau hlæjandi. Þau segjast vera mjög heppin með heilsuna.

Unnur býr til púða með stórskemmtilegum mynstrum, sannarlega öðruvísi listaverk.

Var þetta erfið ákvarðanataka?

Lokaverkefni Unnar í vefnaði í Ósló 1989 nefnir hún Hrútaþing og þarf nafnið ekki skýringa við.

“Ekki svo mjög,” segja þau, “Aðdragandinn var ansi langur. Við vorum búin að halda húsinu vel við og við ákváðum að selja áður en þörf væri á meiri framkvæmdum. Svo fannst okkur gott að vera enn með fullu viti og hafa krafta til að ganga frá öllu dótinu sem hafði safnast í gegnum árin frekar en að leggja það á aðra. Við erum mjög ánægð með þetta húsnæði við Klapparstíginn, erum enn í 101 og verslum á sömu stöðum svo breytingin er ekki svo mikil.” Á veggjum nýja heimilisins eru glæsileg málverk sem þau Unnur og Vésteinn  hafa safnað í gegnum árin og svo njóta þau þess að hafa enn eitt listaverkið í glugga sem snýr út að Esju, og það er síbreytilegt. Og svo er stutt bæði í Hörpu og Þjóðleikhúsið frá nýja heimilinu þeirra sem þau segja að sé mikill kostur enda hafi þau sérlega gaman af því að sækja bæði tónleika og leikhús.

Hafa ferðast mikið

Vésteinn skrifaði formála við útgáfu Eddukvæða.

Unnur skar út gestabók þeirra hjóna.

Eftir háskólanám voru þau Vésteinn og Unnur í 5 ár í Noregi og eitt ár í Kaliforníu. Á þeim árum lærði Unnur að vefa. Vésteinn var lektor við Kaupmannahafnarháskóla eftir nám við Háskóla Íslands og kenndi seinna við háskóla bæði í Noregi og Bandaríkjunum, en lengst var hann prófessor við Háskóla Íslands. Síðustu tíu árin, áður en hann hætti að vinna, var hann forstöðumaður Árnastofnunar. Þau hjónin eru reyndar aldeilis ekki hætt að vinna því Vésteinn fæst töluvert við fræðistörf ennþá, skrifaði meðal annars langan formála að útgáfu Eddukvæða sem kom út fyrir tveimur árum og í framhaldi af því vinnur hann við ýmis verkefni því tengd, og Unnur vinnur í höndunum allskonar dýrgripi.

Fóru í minna og ætla að ferðast fyrir mismuninn
Jenný Sigurbjörnsdóttir

„Við fluttum 1.mars og byrjuðum á því að fara frá kössunum til Tenerife í 10 daga til að hvíla okkur eftir allt þetta umstang“,segir Jenný G. Sigurbjörnsdóttir lyfjatæknir, en hún og maðurinn hennar Þorgrímur Baldursson rafiðnaðarfræðingur hjá Isavia, ákváðu fyrir nokkru að minnka við sig. Þau seldu raðhús sem þau áttu í Lindahverfinu í Kópavogi og keyptu sér stóra tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í einu af elstu húsunum í Lundi í Kópavogi. Þau bjuggu í raðhúsinu í 17 ár, fluttu þangað þegar drengirnir þeirra tveir voru orðnir stálpaðir. Í dag eiga þau tvær afa- og ömmustelpur.

Mikill léttir að losna við skuldirnar

„Við erum farin að eldast og ég er ekki líkamlega sterk, þannig að það lenti á manninum mínum að sjá um allt í raðhúsinu þar sem við bjuggum. Það var kominn tími á viðhald og allt sem því fylgir og hann hafði áhuga á að skipta og fara í minna húsnæði, þar sem hann þyrfti sem minnst að gera. Ég var alveg sammála því.  Svo sáum við líka fram á að geta fengið peninga á milli og látið drauma okkar um að ferðast rætast. Við höfum bæði gaman af ferðalögum“, segir Jenný. „Við borguðum upp allar skuldir og erum alveg skuldlaus núna. Það munar ansi miklu og mikill léttir að losna við það. Það er þá ekki stöðugt verið að borga af lánum. Það munar um það og ekki sjálfgefið að hafa peninga til að geta ferðast“.

Stór pallur í suður

Tveggja herbergja íbúðin í Lundi er alveg sérstaklega rúmgóð og  skemmtileg. Þar er allt sem tvær manneskjur þurfa og bílageymsla í kjallaranum. Þau eru á jarðhæð, með pall sem snýr í suður og ætla að reisa þar skjólvegg.  Jenný segist nefnilega helst sakna garðsins og blómanna úr raðhúsinu. „Ég ætla að hafa blóm í pottum hérna úti yfir sumarið, það er svo gaman að hafa blómstrandi blóm. Það er alveg hægt þar sem eru pallar og svalir. Ein vinkona mín er með skrúðgarð á svölunum hjá sér“, segir hún.

Saknar ekki þess sem er farið

Hún segist verða að viðurkenna að það hafi verið átak að flytja. Þau hafi verið búin að vera svo lengi á sama stað og  átt svo mikið dót. „Það kemst bara ekki fyrir, maður verður að losa sig við helling“, segir hún. Þau gátu selt einhverja muni á sölusíðunum á netinu og fóru líka með mikið dót í Góða hirðinn.  „Börnin hafa ekki áhuga á þessu dóti. Það er enginn áhugi á einhverju sem mér finnst æðislegt“, segir Jenný og brosir og bætir við að það sé ekki hægt að vera með of mikið drasl í eftirdragi. Sumir hafi haldið því fram að barnabörnin gætu haft áhuga á þessum munum síðar, en það sé ekki á vísan að róa með það. Og hún sér ekki eftir að hafa losað sig við ýmsa muni „Ég er að minnsta kosti ekki farin að sakna þess sem er farið“, segir hún.

Maður hendir ekki bókum

Eins og svo margir sem minnka við sig, ráku þau Jenný og Þorgrímur sig á að það er erfitt að koma bókunum fyrir og líka erfitt að losa sig við þær. „Við erum búin að gefa mikið af bókum og Bókasafnið tekur við barna- og unglingabókum. Við höfum auglýst bókasöfn og þau hafa selst á netinu fyrir lítinn pening“, segir Jenný.  Þau Þorgrímur erfðu bæði mikið af bókum eftir foreldra sína. „ Þetta er mjög erfitt, maður er alinn upp við það að maður hendir ekki bókum og ég held að við höfum ekki hent neinni“, segir hún.  Þau dreymir um að kaupa sér bókaskáp með glerhurðum og einn veggur í íbúðinni bíður bókstaflega eftir honum. Jenný segir að það verði ekki mikið mál að fylla hann af bókum.

Lundur 3 í Kópavogi þar sem Jenný og Þorgrímur keyptu íbúð

Hefði ekki viljað vera eldri að minnka við sig

Þau fóru yfir allar sínar eigur þegar þau fluttu. „Það tekur sinn tíma en þá er það líka frá“, segir Jenný. Hún segir að það fylgi ein geymsla íbúðinni og allt verði að komast í hana „Og það kemst býsna mikið í hana“, bætir hún við.  Hún segir að það hafi verið mjög skrítið á nýja staðnum fyrst eftir að þau fluttu, en hann venjist vel. „Það var mikið veðursælla í Lindunum en hér“, segir hún. Hún segir líka að hún hefði ekki viljað vera mikið eldri, að minnka við sig, því þetta sé heilmikið fyrirtæki. Þau hjónin eru rétt rúmlega sextug.  En nú bíða þeirra spennandi ferðalög um heiminn og skemmtilegar samverustundir með fjölskyldunni og afa- og ömmustelpunum.  Mest langar þau að fara til Afríku, en þangað hafa þau aldrei komið þrátt fyrir heimshornaflakk á síðustu árum.

Meinloka að skoða bara flottustu lúxus nýbyggingarnar
Það er erfiðara að losa fé, kaupi fólk nýjar íbúðir eins og fást til dæmis í Sjálandshverfinu í Garðabæ

Margir kvarta yfir því þegar kemur að því að minnka við sig húsnæði að húsið eða húsnæðið sem þeir eiga, dugi ekki fyrir nýrri og minni íbúð.  Ásdís Ósk Valsdóttir fasteignasali hjá Húsaskjóli, segir það meinloku í fólki, að skoða bara flottustu lúxus nýbyggingarnar, þegar það standi á þessum tímamótum. „Menn geta fengið nýja 200 fermetra penthouse íbúð á 145 milljónir króna og fá bara 80 milljónir fyrir húsið. Það er ljóst að það er töluvert þarna á milli“, segir hún.  Hún segir að hún hafi ásamt sínum viðskiptavinum verið að skoða svolítið 10-15 ára gamlar íbúðir. Það séu ennþá nýbyggingar, flottar íbúðir og ekki komið viðhald á þær og ekkert framundan.  Þannig sé hægt að fá 100 fermetra íbúðir og borga um 40 milljónir króna fyrir þær, þegar verðið sé 55-60 milljónir í nýbyggingum.

Hægt að losa jafnvel tugi milljóna

„Mér finnst fólk kannski ekki vera að skoða þennan möguleika nægilega mikið, að fara í aðeins eldra húsnæði, þá er hægt að losa peninga“, segir Ásdís.  Hún segir að menn eigi að byrja á því að spyrja sig, hverjar þarfirnar séu.  „Er ég að selja til að minnka við mig, til að losa pening, eða er ég að selja til að fara í glænýtt viðhaldsfrítt húsnæði? Ég myndi byrja því. Það er auðvelt í dag ef þú átt einbýlishús, þau eru að seljast á góðu verði,  að minnka við sig og losa jafnvel tugi milljóna“, segir hún.

Sérstök svæði og blokkir við Sunnuhlíð

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi, telur að sveitarfélögin séu að horfa á þarfir eldra fólks þegar kemur að skipulagsmálunum.  Það séu sérstök hverfi eða reitir í Kópavogi ætlaðir fyrir eldri borgara. Hann nefnir sem dæmi fjölbýlishúsasvæðið í kringum Boðaþing. Þar sé að finna bæði hjúkrunarheimili og  þjónustu af ýmsum toga við eldri borgara, svo sem  félagsmiðstöð. „Það hverfi er skilgreint fyrir þá sem eldri eru, eins svæðið í kringum Sunnuhlíð.  Svo eru reyndar blokkir í kringum Sunnuhlíð sem eru ekki skilgreindar fyrir eldri borgara, en mér sýnist að nánst allir sem flytja þangað séu eldri borgarar“.

Situr í eignunum þótt öll börnin séu flutt að heiman

Ármann segir að ákveðið byggingarform henti fólki líka misjafnlega, eftir því á hvaða aldri það er. Hann nefnir turnana í Lundi sem dæmi, en þeir eru 10-15 hæðir. Þar eru dýrar íbúðir sem voru ekki endilega hugsaðar fyrir eldri borgara, sem sækjast hins vegar eftir að búa þar. „Barnafólk virðist ekki vilja fara í turnana, það er kannski eðlilegt og ekki þægilegt að vera hátt uppi, þegar börnin eru út á lóð“.  Hann segist taka undir með Ásdísi að menn séu kannski fullmikið að einblína á þessar tilteknu íbúðir.  Ásdís er þeirrar skoðunar að eldra fólk fari of seint af stað að minnka við sig. „ Menn sitja í 300 fermetrum þó öll börnin séu flutt að heiman. Fólkið situr í eignunum í 20 30 ár, eftir að yngsta barnið fer að heiman.

Með því að smella hér, getur þú séð viðtalið við þau Ásdísi og Ármann í heild. En textinn hérna fyrir ofan er einungis útdráttur í viðtalinu sem var tekið fyrir Hringbraut.