Nifnungahringurinn – Lifðu núna

Stórvirki listasögunnar dregin saman í tveggja tíma hláturskast!
Borgarleikhúsið sendi frá sér fréttatilkynningu um væntanlega sýningu þar í vetur. Gleðisveitin Hundur í óskilum ætlar að flytja Niflungahring Wagners í einu lagi með sínu lagi eða eins og segir í fréttatilkynningunni:

Enn og aftur mæta þeir í Borgarleikhúsið. Hundur í óskilum ríður aldrei vafurlogann þar sem hann er lægstur. Síðast fór hann flikkflakk og heljarstökk í öllum herklæðum í gegnum Njálu á hundavaði. Nú tekst hann á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners – eins og hann leggur sig.

Þetta epíska stórvirki sem tónskáldið samdi upp úr íslenskum fornaldarsögum er fjórar óperur: Rínargullið, Valkyrjan, Sigurður Fáfnisbani og Ragnarök og tekur að jafnaði jafn mörg kvöld í flutningi. En Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson ásamt Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur geysast með himinskautum í gegnum allt verkið á einni kvöldstund og má með sanni fagna því að loksins, loksins sé Niflungahringurinn allur kominn heim – á sjálfa sögueyjuna.

Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en um leikmynd og búninga sér Þórunn María Jónsdóttir.

Frumsýning 24. október.