rúllutertubrauð – Lifðu núna

Rúllubrauðterta á kaffiborðið
Brauðtertur eru ferskar og góðar og þykja ómissandi á veisluborð hér á landi. Þær eru auðvitað bæði stórar og seðjandi þannig að flestir hika við að borða þær milli stórhátíða og annarra tilefna í fjölskyldunni en rúllubrauðtertur eru viðráðanlegar og sérlega góðar skoðum nokkrar leiðir til að bæta slíku gómsæti á kaffiborðið á sunnudögum til að fá tilbreytingu og einhvað verulega gott fyrir sjálfan sig og gesti.

Skagenfylling:

2 harðsoðin egg, smátt söxuð

170 g af smátt söxuðum humarhölum

100 g af rjómaosti með dillbragði

1 msk. af rauðum hrognum eða kavíar

1 dl af sýrðum rjóma (crème fraîche)

½ dl af majónesi

Aðferð:

Hrærið saman rjómaostinum, sýrða rjómanum og majónesinu og blandið síðan humrinum og kavíarnum saman við. Smyrjið á rúllutertubrauðið og rúllið því upp. Berið síðan majónesi utan á tertuna og skreytið hana með því sem ykkur þykir best t.d. humarhölum og agúrkusneiðum, sítrónum, rækjum, hvítlauksostbitum eða hverju því sem ykkur dettur í hug að passi vel með fyllingunni.

Annar möguleiki: Lifrarkæfufylling

200 g af lifrarkæfu

1½ msk. af sýrðum rjóma (crème fraîche)

½ dl af sýrðri agúrku (sætsúrri, saxaðri gúrku)

Smyrjið rúllutertubrauðið með lifrakæfu, raðið ofan á sýrðu gúrkunni og rúllið upp. Berið sýrða rjómann utan á það og skreytið

Grunnblanda af sósu fyrir brauðtertur:

½ dl af léttþeyttum rjóma

1 dl af sýrðum rjóma (crème fraîche)

½ dl af majónesi

Aðrar hugmyndir að fyllingum og skreytingum:

Rækjur

Reyktur lax

Skinka

Egg

Dill

Gúrka

Tómatar

Vínber

Ferskjur

Apríkósur

Aspas

Graslaukur

Vorlaukur