Sigríður Dúa Goldsworthy – Lifðu núna

Getur ekki labbað fram hjá blokk án þess sögur kvikni í höfðinu
Sigríður Dúa Goldsworthy er listræn kona með ríkulega sköpunargáfu. Hún hefur skrifað ljóð og sögur um árabil en það vakti verulega athygli þegar hún skrifaði bók um hræðilega atburði sem hent höfðu í hennar eigin fjölskyldu. Sú saga hafði djúpstæð áhrif á marga og gaf tilefni til að ræða hvernig heilbrigðiskerfið hefur tekið á andlegum veikindum hér á landi. Sigríður Dúa er enn að skrifa og í ár sendir hún frá sér nýja bók og svo málar hún með vatnslitum.

Fyrir þremur árum kom út áhrifamikil bók þín um raunverulega atburði, morð sem framin voru í Dillonshúsi við Suðurgötu fyrir rúmum sjötíu árum. Sigurður Magnússon lyfjafræðingur drap þá eiginkonu sína Huldu Karen Larsen og þrjú börn þeirra, Magnús, Sigríði Dúu og Ingibjörgu Stefaníu. Hin myrtu tengdust þér fjölskylduböndum og þú fórst að skrifa ekki hvað síst fyrir áeggjan ömmu þinnar og móðursystur en þær vildu varðveita minningu þeirra sem þarna létust. Áður hafðir þú ort ljóð og skrifað um ættfræði. Var eitthvað sem kom þér á óvart þegar þú byrjaðir að skrifa svona bók?

„Fyrsta bókin mín kom út 2013. Hún heitir Flöskuskeytið og er um stelpuna Dísu,“ segir Sigríður Dúa. „Fjölskylda hennar missa, í hruninu, stóra húsið sem foreldrar hennar byggðu, og fjölskyldan flytur í blokk í Reykjavík. Systkini Dísu aðlagast nýjum aðstæðum vel en ekki hún. Henni líður mjög illa og ekki auðveldar það lífið að vera nýja stelpan í bekknum. En þegar allt virðist vonlaust gerast atburðir sem koma lífinu í betra horf aftur, og ævintýrum sturtar inn í tilveruna. Þegar ég skrifaði hana var ég að hugsa um að börn gætu haft gagn af því að heyra sögu stelpu sem lenti í aðstæðum sem e.t.v. svipaði til einhvers sem þau hefðu lent í. Því ég held að oft hafi ekkert verið spáð mikið í hvaða áhrif hrunið hafði á mörg börn.

Það er gífurlega mikill munur á því að skrifa skáldsögu eða ævisögu. Þegar ég skrifa skáldsögur þá leyfi ég sögunni að flæða. Oft koma þá atburðir inn í söguþráðinn sem ég sá ekki fyrir og eins tek ég út atriði, allt eftir hvernig sagan er að þróast. Ævisögur eru margfalt meiri vinna. Og að mörgu leyti líkari einhverskonar bókhaldsfærslum. Allt er byggt á gögnum og tímalínan má ekki ruglast né má maður vera að fara með frásögnina frá þeim gögnum sem maður hefur til að vinna eftir. Það þarf að staðreyndaprófa allt sem hægt er, t.d. ef einhver sagði mér eitthvað þá leitaði ég í skriflegum heimildum til að sannprófa það. Þetta er mjög mikil vinna sem ekki má sleppa. Það sem báðar tegundir af skrifum eiga þó sameiginlegt er ferlið sem gerist áður en skrifað er. Byggja upp grind. Hvað á að skrifa um? Hvert er upphafið og hver er endirinn? Hvað á sagan að vera löng og hvernig skiptirðu henni til að passa í þann ramma?“

Sigríður Dúa með Huldu Karen systur sinni í útgáfuhófi Glottir tungl.

Þarf að hafa góðan gagnrýnanda

Þú ert menntaður kennari og félagsráðgjafi. Hefur sú menntun komið sér vel við þegar þú fórst að skrifa?

„Ekki menntunin sjálf sem slík, frekar að hafa verið í námi,“ segir Sigríður Dúa. „Því fyrir mér þá er sögugerð tækluð á sama hátt og stórar ritgerðir. Ramminn, lengdin, hvaða atriði tekin eru með og hvernig þau eru tengd saman. Svo og hvað ertu lengi að gera X og hvað þarftu þá langan tíma í verkið? Og ekki má gleyma nauðsyn þess að hafa góðan gagnrýnanda. Sem les verkið og bendir á allt sem þú hefur ekki séð, þó að þú sért búin að lesa það tíu sinnum! Þarna þýðir ekkert að fara í fýlu. Heldur verður maður að spyrja sig er þetta rétt og hvernig bæti ég verkið?

Ég var spurð að því um daginn hvort skáldsögurnar væru byggðar á minni reynslu, svo er alls ekki. Ég get ekki labbað fram hjá upplýstri blokk að vetrarlagi án þess að búa til sögur í huganum um hverja íbúð! Allt eftir hvernig ljósið er inni, gardínan, mynd sem sést á vegg eða hvort sjónvarpið sé í gangi. Ég ræð ekkert við þetta, allt verður að sögum í huganum á mér.“

Kannski ekki undarlegt að umhverfið kveiki sífellt nýjar hugmyndir því Sigríður Dúa býr í álfabænum Hafnarfirði. Umhverfið þar er töfrandi og hún ekki ein um að verða fyrir áhrifum. En í nýjustu bók hennar, Glottir tungl, segir frá menntaskólastúlkunni Bergdísi sem verður ástfangin af pilt sem reynist vera álfur. Eins og nærri má geta er þessi ást hvorki einföld né hættulaus en grunninn að sögunni sækir Sigríður Dúa í gömul íslensk ljóð og kvæði, oft um álfa. Hún notar þau til að styðja við söguþráðinn m.a. í þeirri von að vekja áhuga yngra fólks á fallegu, gömlu íslensku ljóðunum/ kvæðunum.

„Ungmennabókin mín, Glottir tungl, er búin að vera að velkjast um í höfðinu á mér lengi. Ég á reyndar þrjár mismunandi útgáfur af henni. Sú fyrsta er mjög dökk og endaði illa. En flestir sem lásu hana sögðu nei, það vill enginn lesa bók sem endar illa. Ég held að dóttir mín hafi verið sú eina sem hafði gaman af henni, aðalega vegna þess, hvað varð um englaeyðurnar í þeirri útgáfu. Svo varð sagan mjög sykurhúðuð og að endingu kom þessi sem nú er orðin bók, hún er einhvers konar millivegur. Ég skrifaði hana núna sem ungmennabók því að það vantar fleiri íslenskar bækur fyrir unglinga. En þær bækur virðast ekki ná upp á pallborðið hjá bókmennta-gúrúunum hér. Sem er ekki til að auka áhuga fólks á að skrifa fyrir þann aldurshóp. Samt þekkjum við öll spennandi ungmennabækur eins og Hungurleikana, Narníu-bækurnar eða Harry Potter.

Það má segja að ég sé alin upp á sögum um álfa og huldufólk og bý álfabænum. Þannig að það að skrifa Romantasy, Rómans + fantasíu, sögu þar sem álfar og menn rugla saman reytum sínum, var einhvern vegin rétt, svo koma fleiri dularfull fyrirbæri við sögu eins og englaeyður. En þær elta álfa og drepa þá ef þær ná til þeirra. Ég nota svo gömul íslensk ljóð og kvæði, oft um álfa til að styðja við söguna. Þetta geri ég til að kynna þessi gömlu kvæði fyrir nýrri kynslóð og vonandi vekja áhuga þeirra á þessum fallegu ljóðum/kvæðum sem eru að hverfa úr vitund Íslendinga. Ég held að Glottir tungl sé í raun bók sem allir hefðu gaman af, burt séð frá aldri.“

Á gangi í hrauninu í Hafnarfirði.

Veiktist af Lúpus á miðjum aldri

Mikill vendipunktur varð í lífi þínu þegar þú veiktist alvarlega. Getur þú lýst því nánar?

„Það var gífurlegt áfall að veikjast svona mikið á miðjum aldri,“ segir Sigríður Dúa. „Eitt sinn átti ég ekki svo mikið sem Treo heima hjá mér og það næsta sem ég vissi var að ég var komin með fullt af allskonar lyfjum til að reyna að tækla gigtar og sjálfs- ofnæmissjúkdóm, sem á þessum tíma lagðist mjög mikið á jafnvægistaugina í eyranu á mér. Sjúkdóm sem gerði það að verkum að varnarkerfi líkama míns skynjaði líkamann sem aðskotahlut og réðst því á hann. En ég var svo lánsöm að verða sjúklingur hjá Gerði Gröndal lækni á Borgarspítalanum, sem er okkar helsti sérfræðingur í Lúpus SLE.

Þetta alvarlega ástand varð til þess að ég gat ekki lengur unnið 8-17 klukkustundir. Reyndar missti ég alveg úr heilu vikurnar, fyrstu árin sem ég var veik. Mér leið þá flestum stundum, eins og ég væri illa sjóveik. Gubbandi með svima, stóð ekki í lappirnar og þoldi ekki heldur ljós, eða hljóð. En í dag er ástandið orðið töluvert betra svo lengi sem ég gæti að mér.

Það var mjög erfitt líka andlega að vera kippt svona úr daglegu lífi, vera bara settur á hliðarlínuna. En svo fór ég að hugsa. Hvað get ég gert, þá klukkutíma sem ég er í lagi? Ég get vissulega ekki unnið hefðbundna 8-17 klukkustunda vinnu en hvað get ég? Jú, ég get skrifað þegar ég er frísk. Hvort sem það er klukkutími klukkan sex að morgni eða tveir tímar. Og það var í þessu ástandi sem ég skrifaði fyrstu bókina mína, Flöskuskeytið. Ég einangraðist líka mjög mikið, allir sem ég þekkti voru að vinna. Svo ég skráði mig á vatnslitanámskeið. Varð að hætta, því námskeiðið var seinni partinn og þá var ástandið á mér alltaf orðið mjög slæmt. En mér var bent á, að það væri námskeið fyrir eldri borgara á morgnana einu sinni í viku. Ég fékk leyfi til að vera þar og varð yngsti eldri borgarinn. Þar gat ég oftast mætt. Og þessi hópur hittist enn í dag, nú utan skóla, einu sinni í viku og vatnslitar saman. Við erum löngu búin að tengjast sterkum vináttuböndum.“

Mun skrifa svo lengi sem heilsan leyfir

Þetta hefði líklega reynst flestum nægt verkefni að takast á við en örlögin áttu enn uppi í ermi sér enn einn spaðaásinn.

„Svo þegar Lúpusinn var kominn í farveg, fór ég að eiga mjög erfitt með gang, og versnaði stöðugt,“ heldur hún áfram. „Þá kom í ljós að mjaðmaliðirnir voru báðir orðnir ónýtir í mér. Hvort það var út af öllu stera átinu sem tengdist Lúpusnum eða tilviljun veit ég ekki. En þarna hugsaði ég mikið um að ég væri ekki að yngjast og yrði að standa við að skrifa sögu fjölskyldunnar í Dillonshúsi. Tók það fastari tökum en ég hafði gert áður og bókin kom út 2023 og svo aftur 2025 eftir að hún vann Storytel-verðlaunin sem besta ævisagan. En í millitíðinni eða árið 2024 var skipt um báða mjaðmaliðina í mér. Ég var þá orðin þannig að ég komst varla milli herbergja fyrir verkjum og stirðleika, því það var bara bein í bein og útkalkaðir nabbar. Það var líka lífsreynsla. Því nú fann ég á eigin skinni hve illa er hugsað um þarfir hreyfihamlaða, þá sértstaklega hvað varðar fá bílastæði og slæmt aðgengi um Reykjavík. En það hugsa fáir um svona hluti fyrr en þeir finna fyrir því sjálfir. Við ættum virkilega að skammast okkar og bæta aðgengi fatlaðra um allan bæ.“

Það er þakkarvert að Sigríður Dúa skildi ná að skrifa sögu fjölskyldunnar í Dillonshúsi, ekki bara vegna þess að slíkir atburðir mega ekki gleymast heldur einnig vegna þess að bókin hratt af stað umræðu um hvernig búið er að andlega veiku fólki hér á landi, umræðu sem ekki sér fyrir endann á. Það var einnig ákaflega lærdómsríkt að heyra hvernig fjölskylda Huldu Karenar, móðursystur Sigríðar Dúu, tók á þeim harmleik sem varð í litla húsinu við Suðurgötu. Minningum hinna látnu var ávallt haldið á lofti og Sigríður Ögmundsdóttir móðir Huldu Karenar og Ásdís Karlsdóttir systir hennar hötuðust ekki út í Sigurð. Þær skildu að veikindin höfðu ráðið mestu um það sem hann gerði. En aftur að nútíðinni og höfundinum sem nú er búin að senda frá sér nýja bók. Sérðu fyrir þér að halda áfram ritstörfum þótt eftirlaunaaldurinn sé tekinn að nálgast?

„Bækur og sögur hafa alltaf heillað mig. Já, ég held að ég haldi áfram að skrifa á meðan ég hef heilsu til þess. Mér finnst svo gaman að skrifa og sjá sögur verða til, heyra svo frá fólki sem hafði gaman af að lesa þær! Þegar ég var að kenna sagði ég einu sinni við bekkinn minn að það eina sem ég hafði gert sem mér fannst skemmtilegra en að kenna þeim, var að vera í skóla sjálf. Ég get sagt svipað um bækur. Það eina sem mér finnst skemmtilegra en að lesa sögur er að skrifa sögur sjálf,“ segir hún að lokum.