Sögusvið – Lifðu núna

Myndir og texti í skapandi samtali
Vatnslitafélag Íslands opnar nú áttundu árlegu samsýningu sína á Borgarbókasafninu Gerðubergi. Sýningin Sögusvið vísar til tengingar málaralistar og bókverka. Kannað er hvernig myndir geta sagt sögur og texti vakið upp hughrif og nýja merkingu. Hér fléttast saman myndir og texti í skapandi samtali.

Verið velkomin á opnun sýningarinnar laugardaginn 21. nóvember kl. 14.

Á jarðhæð Gerðubergs eru sýnd á sjöunda tug verka félagsmanna, valin af alþjóðlegri dómnefnd. Í bókasafninu á annarri hæð má sjá vatnslitamyndir listakonunnar Erlu Sigurðardóttur en myndskreyting bóka var stór þáttur í listamannsferli hennar.

Vatnslitafélag Íslands var stofnað í febrúar 2019. Eins og nafnið gefur til kynna, er félagið opið öllum sem stunda vatnslitamálun. Félagar eru nú um 270 talsins á aldrinum 18 til 95 ára og eru ýmist atvinnumenn eða áhugamenn í listinni. Tilgangur félagsins er að efla stöðu vatnslitamálunar og stuðla að samvinnu félagsmanna á því sviði. Félagið stendur fyrir listviðburðum með fjölbreyttri fræðslu og sýningarhaldi.

Sýningarnefndina í ár skipa Derek Karl Mundell, Gréta Sörensen, Guðrún Sigurðardóttir, Louise Le Roux og Vilborg Gunnlaugsdóttir.

Í apríl var auglýst eftir myndum meðal félagsmanna Vatnslitafélags Íslands fyrir samsýninguna 2026. Hverjum félagsmanni var boðið að senda inn ljósmyndir af 1-3 verkum.

Dómnefndina þetta árið skipa Ingunn Erna Stefánsdóttir, Jo Lewis (UK) og Sara Vilbergsdóttir. Þær fengu hver um sig 183 nafnlausar ljósmyndir og vissu ekki hver var höfundur hvers verks. Sýningarnefndin fól þeim að velja um 65 verk svo að þau gætu myndað góða heild og sýnt vel þá breidd sem vatnsleysanleg efni á pappír hafa.

Sýningin stendur frá 21. nóvember 2026 – 6. febrúar 2027.

Ókeypis er inn og eru öll hjartanlega velkomin.