spádómar – Lifðu núna

Af spádómum, getgátum og svindlurum
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Mamma var forlagatrúar og sagði oft við okkur systurnar: „Mennirnir ákveða en guð ræður.“ Vegna þessarar trúar hennar á að mönnunum væru mörkuð örlög var hún þess fullviss að til væri fólk sem sæi fram í tímann. Ég smitaðist af þessu um tíma og sem unglingur og ung kona skrapp ég oft til spákonu. Það reyndist hins vegar hin versta tímasóun í öllum tilfellum.

Eitt hið fyrsta sem gerði mér ljóst að sumar spákonur stunduðu varla meira en getgátur  var sú staðreynd að þær gátu ekki látið nafnið mitt vera. Ég heiti Steingerður og engum dettur í hug að foreldrar með fullu viti eða að minnsta kosti með snefil af ást og umhyggju fyrir unganum sínum skíri barnið sitt öðru eins nafni. Þess vegna kom ævinlega að þeim tímapunkti í spánni að þær töluðum um konuna sem ég væri skírð eftir. Stundum töldu þær hana ömmu mína og skiptu snögglega yfir í frænku þegar ég sagði að hvorug amma mín hefði borið nafn neitt líkt mínu. Iðulega fóru þær þá að lýsa henni og töldu sig sjá lágvaxna konu í peysufötum eða upphlut. Það vill hins vegar svo til að nafnið mitt er algerlega út í loftið og komið til vegna þess að mömmu fannst það fallegt.

Hún hafði reyndar lesið Kormákssögu sem unglingur og heillast af ljóðunum sem Kormákur orti til Steingerðar sinnar og þá ákveðið með sjálfri sér að skíra dóttur sína þessu nafni ef hún eignaðist eina slíka. Hún átti raunar fimm en ég var sú næstelsta og fékk nafnið. Í okkar ætt er því engin önnur Steingerður og er frændi minn þó kominn með ættartréð aftur að árinu 452 fyrir krist. Í minni ætt er sömuleiðis leitun að lágvöxnum konum þannig að það er algjör ráðgáta hver þessi lágvaxna peysufatapía sem stundum klæðist upphlut er. Ef þessar „skyggnu“ konur hefðu séð Steingerði hans Kormáks væri hún væntanleg klædd að sið fornkvenna fremur en í miðalda og seinni tíma búninga.

Ein spákona sem ég fór til sá mann á jeppa sem myndi heilla mig upp úr skónum og það svo mjög að ég yfirgæfi eiginmanninn fyrir hann. Ég hangi nú með þeim sama enn en hann er búinn að kaupa sér gamlan jeppa. Kannski sá spádómur hafi þar með ræst. Ein spáði mér fimm börnum. Þau eru tvö og ekkert bólar á einu enn. Að vísu á maður alltaf að líta þetta jákvæðum augum þannig að kannski taldi hún gæludýrin með, kettina mína og hundinn með en þá ættu börnin mín að vera níu og þar af sjö látin.

Ég kættist auðvitað ógurlega þegar ein spáði mér frægð og frama, önnur sá glæstan feril í stjórnmálum, sú þriðja sá að ég myndi ævinlega vera í hjálparstarfi og láta gott af mér leiða á mörgum sviðum. Mér var líka sagt að ég væri kennari í eðli mínu og fyrr eða síðar myndi ég fara að kenna börnum og eignast þakkláta nemendur sem myndu hugsa vel um mig í ellinni. Falleg framtíðarsýn en það er þá ekki seinna vænna en venda sínu kvæði í kross. En ef allt þetta á eftir að rætast er ég ekki viss um að mér endist ævin til að framkvæma allar spárnar.

Margar spákonur byrjuðu á að lýsa persónu minni og ég verð að játa að þar gerðu þær mikið gagn. Því auðvitað sáu þær hvílík mannkostamanneskja ég væri og alla þessa gífurlegu hæfileika sem ég hafði til að bera. Það voru notalega smyrsl á sárin fyrir ungling með fremur lélega sjálfsmynd. Þegar þær tóku að lýsa fjölskyldu minni fór hins vegar að versna í því, ég átti allt frá einu upp í sjö systkini. Nokkrar sáu yndislegan bróður sem myndi styðja mig allt lífið. Ég á fjórar systur sem vissulega hafa allar reynst mér dásamlega vel en bróðirinn góði er ekki til.

Nú orðið fer ég ekki til spákvenna eða miðla og er alveg hætt að trúa að líf okkar sé markað fyrirfram af öðru en þeim eðlisgáfum sem okkur voru gefnar. Við verðum að vinna úr þeim aðstæðum sem koma upp eftir bestu getu og hvert framhaldið verður ræðst af hvaða viðhorf við tileinkum okkur. Enginn er fæddur til að ná langt, verða ríkur, frægur eða einmitt öfugt við þetta. Allir hafa í sér neista sem geta orðið að báli og allir einhverja tilhneigingu til sjálfseyðileggingar. Víst væri það gaman að vita nákvæmlega hvar maður væri staddur eftir tíu ár og í hvernig aðstæðum. Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara. Latneska orðatiltækið sem seinna varð að söngtexta: Que sera sera eða það sem verður verður er fín lífsspeki og okkur áreiðanlega ekki ætlað að skyggnast of langt fram framtíðina.

„Víst væri það gaman að vita nákvæmlega hvar maður væri staddur eftir tíu ár og í hvernig aðstæðum. Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara.“

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu nún skrifar.

Til gamans gert um áramót
Margir telja nauðsynlegt að gera eitthvað alveg sérstakt til hátíðabrigða um áramót. Sumir dusta rykið af dansskónum sínum og fagna nýju ári með gleði og gamni, aðrir kjósa að safna um sig vinum og ættingjum og gleðjast saman og sumir vilja helst taka það rólega. Hvað sem þú kýst eru hér nokkrar skemmtilegar leiðir til að gera áramótin eftirminnileg.

Nýársnóttin er töfratími. Þá fá skepnur mál, álfar flytjast búferlum og ýmsar verur vakna af dvala. Þá er kjörin tími til að skemmta sér með gömlum vinum, heilsa nýjum og leyfa sér að brjótast úr viðjum vanans. Breyttu á einhvern hátt út af venjunni og gerðu eitthvað sem þú ert alls ekki vön. Ef þú ert vön að vera frekar íhaldssöm í notkun á andlitsfarða, reyndu þá eitthvað alveg nýtt. Notaðu gylltan eða silfurlitan glitrandi augnskugga, eldrauðan varalit eða glimmermaskara, farðu í pallíettukjól eða bara hvað sem er til að þú sjálf finnir að þú takir á móti nýju ári opin fyrir nýjungum.

Áramót marka nýtt upphaf. Þegar klukkan slær tólf er reglulega gaman að lyfta glösum og skála fyrir nýju ári en einnig í þakklæti fyrir það sem liðið er. Þá er við hæfi að vera svolítið meyr en jafnframt geislandi af gleði. Mjög margir taka upp kampavínsflösku klukkan tólf að miðnætti og skála fyrir nýju ári. Ef þið viljið reyna eitthvað nýtt má nudda barm glassins með appelsínu- eða sítrónusafa og þrýsta glasinu síðan ofan í sykurkarið. Sykurinn situr þá eftir á barminum og gefur skemmtilegt yfirbragð svo má skreyta glasið með appelsínu- eða sítrónusneið.

Kampavín blandað ýmsum líkjörum er einnig mjög gott. Kirsuberjalíkjör og kampavín er kokkteillinn Kír en eins má blanda ferskjubrandíi, perulíkjör eða yfirleitt hvaða ávaxtalíkjör sem er saman við freyðivínið til að gera það bragðsterkara og til að fá á það nýjan lit. Hlutföllin eru 1 hluti af líkjör á móti 2 hlutum af kampavíni.

Safnaðu saman þeim lögum sem þú telur að hafi sett svip á árið sem er að líða og haft áhrif á líf þitt. Reyndu að komast yfir að spila þau öll áður en klukkan slær tólf.

Láttu það eftir þér að kaupa þér frábæran kjól fyrir gamlárskvöld og ef þú hefur tök á að sveipa þig glæsilegri slá, loðfeldi eða setja upp silkisjal. Mundu að lífið er núna og óþarfi að geyma sér góðar upplifanir því engin veit hvað morgundagurinn ber í skauti sínu.

Spádómar eru skemmtilegur samkvæmisleikur. Allir eiga spil og allir geta lagt lögn en ef rúnir eru til á heimilinu má spyrja þær hvað framtíðin beri í skauti sínu. Sumir eiga líka tarot spil og það getur verið gaman að leggja niður eina lögn af þeim á gamlárskvöld. Heimilisfólk getur jafnvel spreytt sig á að spá fyrir hvert öðru. Þeir sem ekki treysta sér til þess geta farið inn á vefinn façade.com og látið spá fyrir sér.

Tímamót sem þessi eru líka til þess að gera upp fortíðina og losa sig við öll gömul leiðindi úr fortíðinni og líta bjartari augum til framtíðar. Ef fólk er hjátrúarfullt má benda á að ýmsir litir eru líklegri til að bera með sér gæfu en aðrir. Kínverjar segja að rautt sé gæfulitur og í Kína klæðist brúður rauðu á heiðursdegi sínum. Ef lukkan sem fylgir litnum er látin liggja milli hluta eru rauðklæddar konur yfirleitt glæsilegar.

Taktu upp þann sið að halda dagbók og byrjaðu á gamlárskvöld. Gerðu það í þeim tilgangi að muna betur það góða sem gerist í lífi þínu og til að festa þér betur í minni ýmsar lexíur sem þú lærir á hverjum degi.

Hvar er fjórða barnið?
Guðrún GuðlaugsdóttirGuðrún Guðlaugsdóttir

Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður skrifar

gudrunsg@gmail.com

„Þegar ég verð áttatíu og sex ára fer ég fyrst að lifa. Þá mun ég kynnast tvítugum manni og við tökum saman og eigum hamingjusamt samlíf,“ sagði kona í rauðri dragt, þar sem ég sat við hlið hennar í sófa í hátíðarlegri móttöku.

„Þegar ég var tuttugu og eins árs flugfreyja sagði landsþekkt spákona mér þetta,“ bætti hún við og brosti blítt.

Við sem vorum í kring horfðum hissa á hana.

„Mér fannst þetta auðvitað voðalega ótrúlegt þá, en núna þá er ég farin að hlakka mikið til. Ég er jú orðin sextíu og sex ára. Sem sagt; þessi maður sem ég á að kynnast þegar ég verð áttatíu og sex ára er að fæðast á þessu ári.“

„Ég hef nú aldrei heyrt annan eins spádóm,“ sagði ein konan. „Varstu ekki hissa?“

„Jú, auðvitað var ég hissa, að þurfa að bíða fram á elliár til að kynnast stóru ástinni, ekki síst af því að maðurinn á að vera svona ungur. Þetta verður þá sextíu og sex ára aldursmunur. Þetta verður fjör,“ sagði sú í rauðu dragtinn og saup á sódavatnsglasi sínu.

Þessi sem sagt fjörlegi spádómur leiddi huga minn að löngun ungs fólks til þess að fá að vita eitthvað um framtíð sína. Þótt margt hafi breyst í samfélaginu hefur þetta ekki breyst. Ungt fólk vill reyna að skyggnast inn í framtíð sína.

Bollaspádómar eru ein þeirra leiða sem notaðar eru til að spá um framtíðina. Ég átti góða vinkonu sem var áratugum eldri en ég. Hún var lunkin bollaspákona. Oft sat ég við eldhúsborðið hennar og hlustaði á hvernig hún las úr hinum mismunandi blettum og rákum í bollanum mínum. Ég drakk ekki kaffi á þeim tíma – nema kolsvarta kaffið í spábollanum svo ég gæti fengið spádóm.

Eftir að ég varð sjálf eldri hef ég talsvert fengist við að spá í bolla fyrir ungar konur og jafnvel menn í nærumhverfinum. Nú er það ég sem les úr blettum og rákum fyrir áhugasamt ungt fólk sem situr forvitið við eldhúsborðið mitt.

Þetta eru yndislegar stundir og góð leið til þess að ná sambandi við þá yngri í umhverfinu, fá að vita hvað þeir eru að hugsa og hvert hugur þeirra stefnir til framtíðar.

En maður verður að vanda sig. Fyrir nokkrum mánuðum spáði ég fyrir ungri stúlku að hún myndi gifta sig í kirkju með viðhöfn og eignast fjögur börn, gæfan myndi fylgja henni og svo sá ég líka myndarleg „peningabrjóst“ sem eru dökk þúfulíki með litlum toppi á. Slíkt er fyrirheit um peninga. Beinar rákir með góðu dökku höfði merkja fólk. Sé um að ræða rák með höfði sem er í 45 prósent vinkli merkir það ófríska konu.

Jæja. Fyrir nokkrum dögum kom þessi sama stelpa til mín og vildi fá spádóm. Ég útbjó sterkt kaffi, hún drakk það og velt bollanum vel milli handanna, blés svo í hann í kross og sneri honum þrisvar yfir höfði sér og setti hann svo á ofninn. Við spjölluðum svo glaðlega saman ásamt einni dóttur minni og biðum eftir að bollinn yrði þurr.

Þegar bollinn var loksins orðinn þurr tók ég að spá. Þá fór nú að slá í bakseglin. Ég sagði henni að ég sæi þrjú börn.

„Hvað? Hvar er fjórða barnið?“ sagði stúlkan hneyksluð.

„Eee – það er kannski bara ekki fætt,“ sagði ég í tilraun til snarreddingar.

„Og hvar er kirkjan?“ sagði stúlkan ögrandi.

„Ég sé því miður ekki kirkjuna núna. Sennilega er þetta þegar þú ert búin að gifta þig og eignast þrjú börn og eitt er ófætt,“ svaraði ég og var nú komin í vörn.

„Þetta sætti ég mig ekki við. Þú getur ekki breytt spádómnum svona,“ sagði stúlkan og stóð upp með nokkrum „pilsaþyt“.

Þetta mál bjargaðist með lagni en breytir ekki því að gott er að leggja á minnið hvað maður sér í bollum hvers og eins. Það afstýrir vandræðum. Hins vegar erum við mjög góður vinkonur, ég og stúlkan og eiga spádómarnir sinn hlut í þeim góðu kynnum. Fyrir skömmu frétti ég að hún væri komin í samband. Of snemmt er að spá fyrir um kirkjuna og barneignirnar – en við skulum sjá til. Kannski lít ég í bolla fyrir hana hvað líður.

Fyrir okkur sem eldri eru er þetta skemmtileg aðferð til að halda sambandi við unga fólkið í nærumhverfinu. Til eru bækur um ýmiskonar leiðir til að spá, svo sem í bolla, spil og fleira. Þetta er fín aðferð til samvista. Alltaf verður þó að leggja ríka áherslu á að þetta sé aðeins tilraun og til skemmtunar. Spádómurinn sem ég minntist á í upphafi þessa pistils slær þó öllum spádómum við sem ég hef heyrt af um dagana – og átti þar þó hlut að máli sprenglærð og mjög þekkt spákona. Nú bíður konan í rauðu dragtinni þolinmóð og nær vonandi hinum eftirsótta áttatíu og sex ára aldri. Hún er þegar búin að hugsa sér út mannsefni. Það er drengur sem senn fæðist dóttur vinkonu hennar. Hún telur að það sé skemmtileg fjölskylda að tengjast og dóttir vinkonunnar verði hin ákjósanlegasta tengdamóðir.