Stykkishólmur – Lifðu núna

Einar á Einarsstöðum fyllti mig von og sjúkdómurinn stoppaði mig aldrei eftir það
Guðmundur Kolbeinn Björnsson, eða Kolli eins og flestir kalla hann, er fæddur 1959 og er því orðinn 63 ára gamall. Kolli er skírður í höfuðið á afa sínum sem var alltaf kallaður stóri Kolli og Guðmundur Kolbeinn litli Kolli. Kollanafnið festist því við Kolbein og hann er hæstánægður með það.

Kolbeinn og Guðlaug í garðinum heima.

Kolbein var aðeins 24 ára gamall þegar hann fékk dóminn um að einkenni, sem hann fann fyrir, stöfuðu líklega af því að hann væri kominn með MS sjúkdóminn. Hann vissi nú lítið um þann sjúkdóm annað en að hann ætti á hættu að verða hreyfihamlaður ef illa færi. Eftir langt símtal við lækna í Reykjavík sagði læknirinn í Stykkishólmi: ,,Þetta er svo sem allt í lagi á meðan þú getur staðið á tánum en ef þú getur það ekki getur þú  búist við að hætta að anda“. ,,Ég stóð á tánum alla þá helgi,“ segir Kolbeinn.

Hann hafði þá eignast tvö börn með eininkonu sinni, Guðlaugu Ágústsdóttur, en þau  höfðu hist í Hollywood við Ármúla þegar Kolli var í vélstjóranámi í Reykjavík 1979. Þar sem tvö af þremur börnum voru þegar fædd þegar þarna var komið sögu var útlitið ekki bjart þegar læknirinn í Stykkishólmi sagði honum eftir skoðun að eftir honum biði pláss á Landspítalanum og hann skyldi taka flugvélina suður þann dag.

Er Kolli kominn á geðdeildina?

Kolbeinn var þá sendur á taugadeild Landspítalans sem, vegna húsnæðisskorts, var staðsett í sama húsnæði og geðdeildin. Þá flaug

Kolbeinn í vélarrúmi ferjunnar Baldurs 2009.

fiskisagan um að Kolli hefði sést á geðdeildinni. Það var nú fjarri lagi að Kolli væri á geðdeild því hann hélt andlegri heilsu mjög vel þótt erfitt hefði verið að sætta sig við dóminn. Einkennin, sem komu fyrst fram, voru doði í fótum sem fljótlega færðu sig upp upp eftir líkamanum. Sjón á vinstra auga skertist, máttur í vinstri fótlegg og hægri hendi.

Þessi einkenni gengu til baka að nokkru leyti en Kolli var alltaf að bíða eftir lækningu sem lét á sér standa. Þegar hann var búinn að vera í fjóra mánuði á spítalanum var hann orðinn óþreyjufullur að halda áfram að lifa með sínu fólki þrátt fyrir skerðinguna sem þegar var orðin. ,,Þeir voru auðvitað að gera á mér alls konar rannsóknir og prufur sem ekkert kom út úr annað en þeir fundu skemmd ofarlega í mænunni sem var orsökin. Mér leið ekki vel að horfa upp á sjúklingana sem lágu á deildinni því þarna voru auðvitað verstu tilfellin. Þar sem mér þótti lítið vera að gerast hjá mér vildi ég nýta far hjá föður mínum sem hafði komið í bæinn en hann var að flytja jarðbor á flutningabíl til Reykjavíkur. Systir mín hafði boðið okkur feðgum í mat og ég segi við pabba: ,,Ætli ég ætti ekki bara að koma mér þér norður,” en foreldrar hans bjuggu í Reykjadal. Pabbi segir þá ,,jú jú, komdu bara með mér. Ég tilkynnti þeim á spítalanum þessa ákvörðun mína og fékk samþykki læknanna fyrir því að fara. Við lögðum af stað morguninn eftir og þegar við vorum komnir upp að Korpúlfsstöðum ók pabbi bílnum út í kant og sagði: ,,Jæja, takt þú nú við”. Og ég ók bílnum langleiðina norður.“

Einar á Einarsstöðum vill hitta þig

,,Við komum heim um miðja nótt og þegar ég vaknaði um morguninn segir mamma við mig: ,,Einar á Einarsstöðum vill hitta þig strax” en

Kolbeinn 25 ára í lögreglustarfi í Stykkishólmi.

hann var miðill og bjó í sömu sveit og þau. Ég fór til Einars og sat með honum í tvo klukkutíma. Þá segir hann við mig: ,,Þú verður aldrei góður Kolli minn en þú verðu betri en þú ert núna. Leggðu þig eftir hádegið og hugsaðu til mín. Ég gerði eins og hann sagði og ég get svarið það að ég vaknaði nýr maður. Líðanin var miklu betri þótt einkenni sjúkdómsins væru enn til staðar. Þarna fékk ég von sem dugði mér til að halda áfram því eðlilega sóttu þungar hugsanir á mig þarna 25 ára gamlan, tveggja barna föður. Af því ég trúði Einari fékk ég vissu um að lífið væri ekki búið og ég gæti haldið áfram með mínu fólki og hér er ég enn,” segir Kolbeinn og brosir breitt. Einar var lækningamiðlill og hvort sem eitthvað er til í sögum um handanheima eða ekki þá gaf Einar Kolbeini trúna sem hann þurfti til að geta haldið áfram sem hann gerði sannarlega.

Lífið heldur áfram

Þegar Kolbeinn kom svo heim til Stykkishólms eftir fundinn með Einari á Einarsstöðum hringdi læknirinn á staðnum í hann og sagði

honum að það vantaði  sjúkraflutning ofan úr Helgafellssveit. ,,Ég sagði honum að ég vissi nú ekki hvað ég ætti að gera í því vegna þess að væri nú bara að koma heim af spítalanum eftir fjóra mánuði. Þá segir læknirinn: ,,Já, líttu á Kolbeinn, lífið heldur áfram og þú þarft að taka þátt í því.” Svo ég þurfti bara að sjá um þennan flutning og taka þannig þátt í lífinu áfram. Og síðan eru liðin 40 ár,” segir Kolbeinn ánægður. Eftir þetta var Kolbeinn með sjúkraflutning eina viku í mánuði næstu 20 árin ásamt því að gera jarðýturnar út, m.a. hjá Vegagerðinni og í verkefni út um allt Snæfellsnes.

Hittust á balli í Hollywood

1979 fór Kolbeinn í Vélskólann í Reykjavík og þá var Hollywood aðal ballstaðurinn. Þar hittust þau Guðlaug og eitt leiddi af öðru. Til urðu

Kolbeinn og Guðlaug á Akureyri nýlega í skemmtiferð kirkjukórsins í Stykkishólmi.

fljótlega tvö börn  fædd 1980 og 81 og svo það þriðja 1990 og nú eiga þau 7 barnabörn.

Þegar Kolbeinn veiktist þurfti hann að hætta náminu í Vélskólanum en ákvað að ef hann kæmist út úr þessum erfiðleikum sem steðjuðu að honum og hann lifði þetta af myndi hann leita  allra ráða til að gera eitthvað allt annað en hann hefði verið að gera fram að til þessa í lífinu. Einn daginn, fjórum árum síðar, kom hann svo auga á auglýsingu þar sem verið var að auglýsa þrjár jarðýtur og verkstæðishús í Stykkishólmi til sölu og hann ákvað að kaupa pakkann. Þarna var hann orðinn 28 ára, þau Guðlaug búin að kaupa húsið sem þau búa enn í, og nú sá hann tækifæri í því að gera út jarðýtur. Þar sem hann var að læra vélvirkjun þegar hann veiktist og hafði ungur farið að aðstoða föður sinn á jarðýtum fannst honum þetta liggja beint við.

Mikil fjárfesting kallaði á mörg störf

Kolbeinn í gröfu sinni við vinnu við Stóragarð í Flatey á Breiðafirði.

Þar sem Kolbeinn fjárfesti á stuttum tíma bæði í húsnæði og fyrirtæki þurfti hann eðlilega að vinna mikið. Hann lét það samt ekki aftra sér frá því að taka þátt í öðru sem honum var treyst til.

Hann var til dæmis í stjórnstöð Björgunarsveitarinnar Berserkir og tók þátt í og skipulagði leitir og nefnir til dæmis Haförn sh árið 1983 og  flugslysið í Ljósufjöllum 1986 þegar vél flugfélagsins Ernis brotlenti í Ljósufjöllum á Snæfellsnes en þangað sést vel úr Stykkishólmi. Slysið var hörmulegt og leiddi af sér breytingar á reglugerðum og vinnubrögðum við leit og björgun.

Sjúkdómurinn stoppaði Kolbein aldrei í neinu

Kolbeinn í fulltrúaráði Slysavarnafélags Íslands.

Kolbeinn segir að sjúkdómurinn hafi eðlilega háð sér nokkuð en aldrei stoppað sig í neinu. Hann var í fulltrúaráði Slysavarnafélagsins

gamla og lenti þess vegna í fyrstu stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar eftir að félögin sameinuðust.  Önnur störf sem hann sinnti voru afleysingar í lögreglu og héraðslögregluþjónn, dælumaður í Slökkviliði Stykkishólms og félagi, formaður og gjaldkeri í Leikfélaginu Grímnir.

Kláraði námið í Vélskólanum

Þegar Kolbeinn hætti árið 2000 í ,,vinnuvélabrasinu” eins og hann orðar það, fór hann í Vélskólann til að klára námið sem hann hafði ekki

Útskrift 2005, Kolbeinn úr Vélskólanum í Reykjavík, sonur hans úr sama fagi frá Akureyri og dóttirin stúdent frá Borgarholtsskóla í Reykjavík.

náð að klára á sínum tíma og lauk því 2005. ,,Einn kennaranna vildi hjálpa mér því ég átti orðið erfitt með að skrifa. Til þess þurfti ég að fara til taugalæknis og fá vottorð og sá læknir sagði mér að kannski ætti ég að hætta þessu brasi og fara bara á örorkubætur sem ég ætti rétt á. Ég vildi það alls ekki og með hjálp kláraði ég prófin og vann í mörg ár eftir það sem vélstjóri á Breiðafjarðarferjunni Baldri eða til 2015. Samstarfsmenn mínir á bátnum komu mér til hjálpar ef með þurfti  svo þetta gekk alltaf vel og var alltaf skemmtilegt.

Kominn í pólitík

Í miðju viðtalinu bankaði kona á dyrnar sem var komin til að óska Kolbeini til hamingju með afmæli hans sem var daginn áður. Hún vildi ekki stoppa þegar hún heyrði að Kolbeinn væri í viðtali en hann notaði tækifærið og fékk hana til að skrifa undir sem meðmælandi því hann var beðinn um að gefa kost á sér á lista H-listans, sem er listi framfarasinnaðra í Stykkishólmi. Hann segist nefnilega reyna að segja aldrei nei þegar hann er beðinn um greiða svo nú var leitað til hans aftur en hann hefur áður tekið að sér pólitísk störf. Hann segist hafa gaman af þessu stjórnmálavafstri, það haldi honum upplýstum og það sé alltaf gaman að vinna með hugsjónafólki.

Kolbeinn og Guðlaug með börnum sínum þremur. Mynd tekin í Barcelona í brúðkaupi eldri sonar þeirra.

,,Það er samfélagsleg skylda mín að taka þátt ef til mín er leitað,” segir Kolbein og brosir. Hann er í Lions og Frímúrarareglunni og er búinn að syngja í kirkjukórnum í Stykkishólmi frá 1986 sem hann segir að sé óhemju gaman.

En nú er Kolbeinn hættur daglegri vinnu en er alls ekki hættur að lifa lífinu lifandi þrátt fyrir að sjúkdómurinn hafi nú tekið sinn toll. ,,Það er bara svo margt sem ég get gert og af hverju ætti ég þá að einblína á það sem ég get ekki gert?” spyr þessi kraftmikil maður sem hefur lifað með sjúkdómi sínum mestalla ævina en aldrei látið bugast.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar

Viðtal af vef Lifðu núna.

Vilja ögra sér á nýja vegu eftir starfslok
Gunnar Gunnarsson og Ágústína Guðmundsdóttir voru kennarar í Stykkishólmi í 34 ár. Gunnar kenndi myndlist, Ágústína íþróttir o.fl. Þau nýttu sér 95 ára regluna svonefndu og hófu töku lífeyris strax og færi gafst. Þau eru nýflutt til Akureyrar, þar sem synir þeirra tveir og barnabörnin fjögur bjuggu fyrir.

„Þeir fóru báðir í M.A., fundu sér maka á Akureyri og ílentust þar,“ segir Gunnar í samtali við Lifðu núna. „Þegar vinnuskyldum okkar í Stykkishólmi lauk var því nærtækast fyrir okkur Gústu að flytja líka til Akureyrar, þar sem börnin og barnabörnin búa.“ Þau keyptu sér útsýnisíbúð í nýbyggingu ofarlega í bænum. Þaðan er stutt í brekkurnar í Hlíðarfjalli, sem kemur sér vel á veturna enda eru þau bæði mikið útivistarfólk. Nú seinustu árin hefur golfíþróttin reyndar orðið að mun meiri ástríðu hjá þeim hjónum. Þegar blaðamaður hitti Gunnar á heimili þeirra á Akureyri var eiginkonan stödd í golfferð vinkvennahóps á Spáni. Og stutt í að Gunnar færi sjálfur út, þar sem honum bauðst að stökkva í skarðið fyrir kunningja sem komst ekki í löngu bókaða golfferð.

„Flugvizkubit“ hamlar ferðagleði

Gunnar við sýnishorn verka sinna á nýja heimilinu á Akureyri.

Meðal þess sem þau hjónin nýta semsagt frelsið sem fylgir eftirlaunaaldrinum í, er að láta eftir sér að fara til dæmis í svona golfferðir til útlanda. Þau vilji gjarnan ferðast meira – en óneitanlega finnist þeim loftslagsváin kalla á að þau leggi sitt af mörkum með því að fljúga minna; „flugvizkubit“ er með öðrum orðum að hamla því að einhverju leyti að þau láti ferðadrauma sína rætast.

En ferðadraumarnir takmarkast ekki við útlönd. Þau ætli t.d. að halda sig mikið á Austurlandi í sumar, sem þau þekki einfaldlega lítið og vilji kynnast betur. Þau séu búin að kaupa sér rafmagnsreiðhjól og hyggi á að nota þau mikið í sumar. Myndlistin er heldur aldrei langt undan þar sem Gunnar er; með auknum frítíma vonast hann til að geta gert meira af því að mála. Hann hefur mest unnið með vatnsliti í sinni eigin listsköpun og hefur reyndar haldið sýningar á verkum sínum nýlega og verið með myndir á samsýningum víða.

Sjáum lífið í þremur skeiðum

„Við sjáum lífið í þremur skeiðum. Á því fyrsta er maður alltaf að læra eitthvað nýtt, takast á víð nýjar áskoranir. Allir möguleikar opnir. Annar kaflinn er rútínuskeiðið: „Vinna, borða, sofa, ala upp börnin“. Á þessu skeiði flýgur tíminn og heilinn einhvern veginn að mestu á sjálfstýringu. Ef maður heldur þannig áfram á þriðja æviskeiðinu veit maður ekki af fyrr en maður er dauður,“ segir Gunnar. Þau Gústa hafi því einsett sér að láta þriðja æviskeiðið líkjast því fyrsta meira; sækja í stöðugt nýjar áskoranir, læra eitthvað nýtt, helzt á hverjum degi, og halda þannig heilabúinu virku og kviku. „Með því að prófa meðvitað stöðugt nýja hluti þá verður lífið líka áhugaverðara, innihaldsríkara,“ segir hann.

Vinnumaður í sveit frá sjö ára aldri

Gunnar er fæddur árið 1956 og er þar með 66 ára á þessu ári. Hann er uppalinn í Vesturbæ Reykjavíkur, en í föðurættina er hann ættaður úr Ingólfsfirði á Ströndum og Hafnarfirði, og í móðurættina til Húsavíkur. Frá sjö til fjórtán ára aldurs var hann í sveit á sumrin, frá sauðburði til sláturtíðar, á Heiðarbæ I í Þingvallasveit. Tengingin við Þingvallasveitina kom til í gegnum föður hans sem fæddist í Reykjavík árið 1917, en móðir hans, föðuramma Gunnars, lét skíra soninn í höfuðið á tveimur konum sem hún stóð í þakkarskuld við – Guðrúnu Jónasson og Gunnþórunni Halldórsdóttur sem ráku verzlun í Reykjavík á þessum tíma en áttu líka jörðina Nesjar við suðvestanvert Þingvallavatn og dvöldu þar á sumrin. Drengurinn fékk nafnið Gunnar Rúnar, og kvað vera fyrsti Rúnarinn í nafnasögu Íslendinga.

Vatnslitamynd eftir Gunnar af Heiðarbæ, máluð 1993.

Hann ólst að hluta upp á Nesjum, og þegar Gunnar sonur hans, viðmælandi vor, var sex ára kom hann fyrst á nágrannabæinn Heiðarbæ, þá með eldri bróður sínum Ólafi sem var orðinn vinnumaður þar. Gunnar yngri tók svo við sem vinnumaður hjá Jóhannesi bónda á Heiðarbæ I árið 1963 og gegndi því starfi til ársins 1970. „Við vorum tveir strákar vinnumenn þarna saman og lutum verkstjórn Sveinbjörns Jóhannessonar, sem tók síðar alveg við búrekstrinum af föður sínum. Þetta voru langir vinnudagar. Við vorum í alls konar verkum; í fjárhúsunum, í girðingarvinnu, strax frá því ég var átta eða níu ára vann ég flest verk sem þurfti dráttarvél í,“ segir Gunnar frá eins og ekkert væri sjálfsagðara en að barn á þessum aldri ynni svo krefjandi vinnu. „Svona var þetta nú bara á þessum tíma.“

Gunnar hugsar til þessara æskusumra sinna á Heiðarbæ með hlýju, þótt vinnan hafi stundum verið krefjandi fyrir svo ungan dreng. Hann hafi lært heil ósköp á þessu, enda Sveinbjörn einstaklega laginn að kenna góð vinnubrögð. Hann minnist líka skemmtilegra útreiðartúra, á Þingvelli, í Kárastaðasjoppuna, á kappreiðar á Laugarvatnsvöllum – og bátsferða á vatninu að vitja um net, stangveiði af klettunum á vatnsbakkanum og fleiru og fleiru. Og hlýs faðms Margrétar, konu Jóhannesar bónda.

Hitti Stykkishólmsmær í Stokkhólmi

Gunni og Gústa á góðri stund.

Þau Gunnar og Ágústína kynntust í Stokkhólmi í Svíþjóð, þangað sem Gunnar hafði farið til að vinna við smíðar en líka halda áfram námi í húsasmíði. Þegar kom að því að taka sveinspróf í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík vildi svo til að á nákvæmlega sama tíma fór fram inntökupróf í Myndlistar- og handíðaskólann, sem hann var hvattur til að fara í. Einn leiðbeinenda hans í Iðnskólanum sagði: „Þú átt að gera það sem ástríða þín segir þér!“

Úr varð að hann tók á endanum myndmenntakennarapróf, og Ágústína íþróttakennarapróf nokkru áður. Eftir útskrift úr Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni kenndi hún einn vetur á Eskifirði, en það var áður en þau Gunnar kynntust. Systir Gunnars, Lóa, og Ágústína voru hins vegar vinkonur frá því í Gagnfræðaskólanum við Lindargötu,sem síðar rann inn í Fjölbrautaskólann við Ármúla. Ágústína fór síðan í framhaldsnám til Kanada, og svo til Svíþjóðar þar sem hún ætlaði að læra jazzballett hjá rússneskum kennara. „En það varð lítið úr því,við Gunni kynntumst og urðum strax ástfangin,“ segir hún.

Heim komin kenndi Ágústína um tíma í Ísaksskóla í Reykjavík. Eftir útskrift Gunnars úr myndmenntakennaranáminu kenndu þau einn vetur í Þorlákshöfn. Þá var eldri sonur þeirra fæddur. Svo höguðu örlögin því þannig að á sama tíma var verið að leita að myndmennta- og íþróttakennurum í Stykkishólmi, heimabæ Ágústínu. Þau réðust því þangað og skutu þar rótum – í 34 ár eins og fyrr segir.

Þegar Lifðu núna náði tali af Ágústínu voru þau hjón nýkomin úr tíu kílómetra göngu í Eyjafirði. „Þetta er allt annað líf, að búa steinsnar frá fjölskyldum sona okkar,“ segir hún, ánægð með flutninginn til Akureyrar.

Gunnar, Ágústína og synirnir Rúnar og Guðmundur Ólafur.

Auðunn Arnórsson, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.

Áður en verkurinn tekur völdin
Jósep hefur miðlað heilbrigðisstarfsmönnum af áratuga reynslu sinni.

„Síðast þegar ég vissi voru bakvandamál algengasta orsök örorku hjá fólki undir 45 ára aldri á Íslandi,” segir Jósep Ó. Blöndal læknir en hann hefur sérhæft sig í háls- og bakvandamálum. Jósep bætir við að bakvandamál séu nú af mörgum talið dýrasta heilbrigðisvandamálið í hinum vestræna heimi.

Jósep hefur helgað líf sitt þessu stóra heilsufarsvandamáli og stóð ásamt sjúkraþjálfaranum Lucia de Korte fyrir stofnun deildar á St.Franciskusspítala í Stykkishólmi

Lucia de Korte og Jósep á 25 ára starfsafmæli.. Þau stóðu saman að stofnun deildarinnar.

sem sinnir þessu vandamáli, en Jósep lét af störfum 2017. Deildin er hin fyrsta sinnar tegundar í Evrópu, að því er best er vitað, upphaflega skipulögð eftir fyrirmyndum í San Francisco, London og Brisbane í Ástralíu.

Jósep hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig við getum hjálpað okkur sjálf við að reyna að koma í veg fyrir þetta algenga vandamál. Hann segir ýmislegt hægt að gera til að hjálpa bakveikum en um fram allt þurfti fólk að átta sig á að það beri sjálft ábyrgð á líkama sínum og eigi bara eitt bak.

Jósep lærði læknisfræði á Íslandi og í Danmörku og síðan almennar skurðlækningar í Svíþjóð og starfaði þar um árabil.

Allir með slitbreytingar

Jósep með Franciskusnunnum.

Jósep segir að ef myndað væri bak á 100 manns á aldrinum 20-60 ára, sem aldrei fyndu til, kæmi í ljós að allir væru með slitbreytingar, 30 væru með brjósklos og margir með útbunganir og mænugangsþrengsli.

Þetta séu allt  breytingar, sem geta verið algjörlega einkennalausar og svo fari það mikið eftir því hvað við erum dugleg um ævina að stunda reglulega hreyfingu og yfirleitt forðast kyrrstellingar hvort við finnum nokkurn tíma fyrir þessum breytingum.

„Og best er að átta sig snemma á að offors í æfingum er ekki gott því það getur komið niður á okkur þegar við eldumst. Ganga og sund eiga að vera á stundaskrá allra sem oftast og svo er skíðaganga afbragðs hreyfing,” segir Jósep. „Skíðagangan er besta alhliða hreyfingin og styrkir í raun alla vöðva líkamans, nema tunguna eins og Magnús Scheving Latabæjarmaður sagði einhvern tímann,” segir Jósep.

2400 ára gömul sannindi

Hippókrates, faðir læknavísindanna, var uppi 460 – 370 fyrir Krists burð og sagði meðal annars: „ Ef við gætum séð til þess að hver einstaklingur fengi hæfilega

Hippokrates var uppi fyrir 2400 árum.

næringu – ekki of mika, ekki of litla – og hæfilega hreyfingu – ekki of litla, ekki of mikla – værum við búin að finna öruggustu leiðina til góðrar heilsu”. Með öðrum orðum sagði Hippokrates fyrir um 2400 árum einmitt það sem við þykjumst vera búin að finna út í dag að sé svarið við mögum vandamálum nútímamannsins,” segir Jósep. „Næstur á eftir Hippokrates var Claudius Galenos sem uppi var 129 til 216 eftir Krist. Hann var forngrískur læknir, rithöfundur og heimspekingur en kenningar hans voru ríkjandi í læknisfræðinni í rúmlega 1400 ár en hann er talinn einn merkasti læknir fornaldar. Kenningum hans – og uppistaðan í þeim var vessakenning forngrískrar læknisfræði – var ekki umbylt fyrr en á endurreisnartímanum. Og þegar kaþólskan tók við var grunnafstaðan sú  að veikindi tengdust syndugu líferni. Þá urðu til  aðferðir eins og að taka fólki blóð eða láta það laxera, allt til að hreinsa út.”

John F. Kennedy gott dæmi um bakveiki

John F. Kennedy barðist við bakveiki til dauðadags.

Jósep segir að gott dæmi um ranglega meðhöndlaðan baksjúkling sé John F. Kennedy Bandaríkjaforseti. „Kennedy var meðhöndlaður kolrangt en það var auðvitað af því menn vissu ekki betur og voru að prófa sig áfram. „Kennedy varð bakveikur ungur, líklega eftir íþróttameiðsl um tvítugt. Hann vildi fara í herinn en var dæmdur of veikur í baki til þess. Þá var hann látinn fylgja prógrammi þar sem hann var látinn hreyfa sig, ganga, lyfta, synda o.s.frv. Þetta gerði hann í eitt ár eða svo og var þá talinn tækur í herinn. Í hernum datt hann og meiddist  á baki sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Við tók þrautaganga á hækjum og í hjólastól, stöðugir verkir, dagleg neysla sterkra verkjalyfja, sprautur í bakið og fjórar ónauðsynlegar skurðaðgerðir, þar af tvær, sem gengu svo nærri lífi hans, að kaþólskur prestur var látinn lesa honum síðustu sakramentin. Allt þar til Hans Kraus, stórkostlegur austurrískur læknir og sjúkraþjálfari – og brautryðjandi í klettaklifri! – tók hann að sér. Kraus tók lyfjakokteil af Kennedy sem  fyrri læknir hans, hafði útvegað honum. Í þeim kokteil var m.a. morfín og kókaín og ýmislegt annað góðgæti, en læknirinn, sem ávísaði þessari blöndu, missti reyndar lækningaleyfið nokkrum árum seinna. Eftir að Kennedy varð forseti, var Janet Travell sérlegur baklæknir hans og sprautaði hann með staðdeyfilyfi svo til daglega. Það segir sína sögu, að hún kallaði sig “The Trigger Point Queen”!

Staðreyndin er sú að lyf eiga auðvitað við í stuttan tíma til að ráða við bráða verki. En að ætla sér að meðhöndla króníska verki með lyfjum er beinlínis hættulegt eins og dæmin hafa ítrekað sannað.

Kennedy batnaði í annað sinn þegar Hans Kraus setti hann í æfingaprógram en hann var skotinn áður en hann náði fullum bata. Það er að segja – honum batnaði tvisvar. Fyrst þegar hann var látinn í æfingaprógram og svo aftur þegar hann var látinn í æfingaprógram. Þá áttuðu einstaka fagmenn og -konur sig á að þarna væri e.t.v. komið svarið við bakverkjum mannskepnunnar. „Af hverju var þessu þá ekki haldið á lofti og þá myndu bara allir lagast í bakinu?” var spurt. Svarið er sennilega einfalt:  á því myndi enginn græða nema sjúklingurinn! Það gengur ekki í markaðssamfélagi, og það sem tekur við í staðinn næstu áratugi, einkum í Bandaríkjunum, eru lyf og skurðaðgerðir en hvort tveggja er ábatasamara fyrir marga, en til lengdar bara ekki fyrir sjúklinginn,” segir Jósep.

Ábyrgðin er hjá okkur sjálfum

Jósep í skurðaðgerð á SFS.

Jósep segir að til að ná bata verði baksjúklingar að átta sig á eigin ábyrgð við að hafa áhrif á bakveiki, líkt og marga aðra sjúkdóma. „Ranghugmyndir eru útbreiddar, og sú stærsta er líklega að best sé að hvíla sig ef bakverkur gerir vart við sig. Það er eiginjlega þvert á móti – bezt er að halda áfram að hreyfa sig, jafnvel þó maður finni til – hættan á maður skemmi eitthvað er nánast engin”. Bandaríski læknirinn Margaret Caudill – Slosberg skrifaði frábæra bók sem hún nefnir „Managing your pain before it manages you” eða “Að taka stjórnina sjálfur áður en verkurinn tekur af þér völdin.” Það er þessi hugsunarháttur sem virkar best,” segir Jósep.

Menningar- og lífsstílsvandamál

„Við vitum vel að skyndibitafæði og hreyfingarleysi eru orsök helstu lífsstílssjúkdóma sem hrjáir mannkynið í dag,” segir Jósep. „Samt heldur mikill hluti mannkyns áfram að haga lífi sínu svona. Það er sama hvað við fagfólkið görgum hátt, við náum ekki eyrum unga fólksins sem fer með ósiðina með sér inn í fullroðinsárin og næsta kynslóð verður svo á enn verri stað.”

Stólarnir stuðluðu að hreyfingarleysi

„Auðvitað er erfitt að benda á eitthvað eitt sem veldur bakverk nema ef um slys er að ræða,” segir Jósep. „En fæstir sem þjást af bakverk geta rakið verkinn til slyss. Hippokrates talar ekki mikið um bakverki sem slíka en hann skrifaði mikið um skekkjur sem stöfuðu eflaust oft af berklum sem lögðust í efstu hryggjarliðina og ollu því að fólk fékk kryppu eða herðakistil. Mig grunar að bakverkir hafi verið lítt þekktir fram að landbúnaðarbyltingunni fyrir 10.000 árum þegar menn fóru að stunda akuryrkju og húsdýrahald. Fram að því höfðu þeir mest stundað veiðimennsku og forðasöfnun. Þarna gerbreytir maðurinn um lifnaðarhætti og gríðarlegar breytingar verða á félagslegum aðstæðum, fæðuvali o.s.frv.. Seinna  kemur svo iðnbyltingin, eða fyrir um 200 árum, og upp úr því kom stóla- og borðasamfélagið.”

Stólar eiga að vera óstöðugir og baklausir

Galen Cranz í heimsókn á SFS.

Stóllinn sem Jósep situr á ef hann er við tölvuvinnu.

Jósep segir að hryggurinn í okkur sé í raun hannaður í ferfætling en var reistur upp fyrir um það bil sex milljónum ára. „Við það kemur mikið  álag á neðstu hryggjarliðina   –     þeir fara t.d. að bera helminginn af líkamsþunganum. Þetta kemur einna harðast niður á liðþófunum, sem hafa fátt sér til varnar, enda án blóðrásar. Þegar við sitjum, aukum við þetta álag um 40%, en þegar við erum á göngu eykst álagið ekki nema um 15%. Þegar við hönnum stóla eigum við auðvitað að herma eftir ástandinu sem líkaminn er í á göngu. Einn besti sérfræðingur í hönnun stóla sem ég þekki er Galen Cranz, prófessor í arkitektúr við Berkley háskóla en hún hefur skrifað fína bók um hönnun stóla. Hún heimsótti Háls- og bakdeildina í Stykkishólmi fyrir allmörgum árum, og hugmyndir hennar koma heim og saman við þær hugmyndir, sem við í teymi deildarinnar gerðum okkur um bestu hönnun stóla – best væri að stóll væri baklaus, í vægum framhalla og óstöðugur þannig að hann fylgi hreyfingum þess sem á honum situr – hér er alls ekki átt við stól á hjólum. Ég er búinn að sitja á þannig stól í 20 ár og hef reynsluna af því að þannig seta er betri fyrir bakið en sérhannaður stóll sem er með sérstakan stuðning við bakið,” segir Jósep og það er staðreynd sem fáir vilja heyra því mikil vinna hefur verið lögð í að hanna stóla sem styðja nógu vel við bakið. „Ef Guð almáttugur hefði ætlað okkur að vera með stuðning við bakið hefði hann látið okkur fæðast með hann. Í  rauninni gerði hann einmitt það sem er vöðvakerfið sem styður við hryggsúluna. Það er eitt mikilvægasta vöðvakerfið  í líkamanum og mjög áríðandi að halda þeim vöðvum virkum,” segir Jósep og leggur áherslu á orð sín.

Orsök bakvandamála

Jósep og hryggur.

„Öll bakvandamál byrja líklegast í liðþófunum neðst í bakinu eða neðst í hálsinum,” segir Jósep. „Vandinn er sá að það er engin blóðrás í brjóskinu á milli liða. Það er hins vegar lifandi vefur og þess vegna þarf liðþófinn að betla næringu úr blóðrás beinanna ofan og neðan hryggjarliðanna       og skila úrgangi sömu leið. En til þess að þetta geti gerst verðum við að vera á hreyfingu eða liggjandi. Rannsóknir á músum og rottum hafa sýnt fram á að ef við setjum liðþófa dýranna undir fast, stöðugt álag eykst frumudauði og það sama gerist væntanlega hjá okkur mannfólkinu.”

Lærði af Gísla á Uppsölum

Jósep var sjúkrahúslæknir á Patreksfirði í sex ár og var þá læknir Gísla á Uppsölum. Hann segir skemmtilega vítamínsögu af Gísla: „Hallgrímur heitinn Magnússon geðlæknir leysti

Gísli á Uppsölum.

mig stundum af á þessum tíma. Ég hafði alltaf farið reglulega til Gísla á Uppsölum til að athuga með hann af því hann bjó einn. Þegar ég kom úr einu fríinu hafði Hallgrímur farið í eftirlitsferðina til Gísla og sagði mér að hann vantaði greinilega vítamín, kallinn. Hann hafi því gefið honum vítamíntöflur til inntöku. Ég hafði efasemdir um að Gísli myndi taka pillur, en nokkrum mánuðum seinna var ég á reglulegri eftirlitsferð og kom þá við hjá Ólafi Hannibals á næsta bæ við Uppsali. Þar var staddur vetrarmaður Ólafs, Stefán á Lambeyri, en Stefán var álíka sérkennilegur maður og Gísli og heimsótti hann oft. Stefán sagði mér að Gísli hefði tekið mikið mark á Hallgrími sem von var, og gert eins og hann hafði mælt fyrir um og tekið tvær töflur. „Þá fékk Gísli skitu. Þá beið hann í nokkra daga og tók þá eina pillu,” segir Stefán. „Þá fékk hann aftur skitu. Gísli fór þá út í fjárhús og gaf gemlingnum tvær pillur. Gemlingurinn hrækti þessu út úr sér hið snarasta af fyrirlitningu. Gísli tók þá pilluglasið og gróf það úti og sagði: „Það sem gemlingurinn vill ekki borða getur ekki verið gott fyrir mig,” og tók aldrei vítamínpillur eftir það.  Hins vegar tók hann mixtúru, sem við Jón Þórðarson, apótekari, blönduðum og heitir “Mixtura Uppsaliensis”! „Gísli varð 79 ára gamall og ég fullyrði að hann hafi verið hamingjusamur þegar hann dó,” segir Jósep. Hann lamaðist á Þorláksmessu, 1986, og við fluttum hann á spítalann. „Ég sagði starfsfólkinu á sjúkrahúsinu að það ætti ekki að setja Gísla í bað af því það vildi hann ekki heldur bara snyrta hann, klippa neglur og greiða. Hann var orðinn alveg eins og lord að lokinni snyrtingu um það bil viku seinna, og þá vissi ég að hann var tilbúinn að mæta guði sínum. Gísli dó þá um nóttina.

Gísli hafði verið mjög frískur alla tíð og lifað mest á því sem hann sótti í náttúruna allt í kringum hann en leitaði lítið  lengra. Það var helst kjöt, fiskur og grænmeti og ber, allt sem óx í námunda við Uppsali.

Ég hef verið að kanna hvers konar mataræði sé best fyrir okkur og hef komist að raun um að við séum einmitt sköpuð til að borða þá fæðu sem vex í kringum okkur. Og þegar allt kemur til alls er það „maturinn hennar ömmu” sem við þrífumst best á,” segir Jósep og segist nú borða flest en uppistaðan sé nú samt „maturinn hennar ömmu” líkt og Gísli í Uppsölum hafi gert alla tíð. Hann drekki líka mikið kaffi, og lætur fylgja, að enginn drykkur innihaldi eins mikið af andoxunarefnum.

Hreyfingarleysið allraversti óvinurinn

Jósep ólst upp á Siglufirði og var barn að aldri þegar síldarævintýrið stóð sem hæst. Hann fór 9 ára gamall að vinna í síldinni og var þrettán ára þegar hann byrjaði að stafla mjölpokum. Það gerði hann í 5 mánuði á

Jósep með skurðhjúkrunarfræðingnum Sr.Renée.

ári í sex sumur í röð. Sú vinna virðist hafa styrkt Jósep því hann fékk ekki í bakið fyrr en nú nýverið, 73 ára gamall. Það gerðist þegar hann fór að aðstoða dóttur sína við að rífa upp runna í garði hans í Stykkishólmi sem henni þótti tilvalið að gera til að rýma fyrir matjurtaræktun. „Ég vildi auðvitað aðstoða hana af því þetta var í mínum garði og vann allan daginn við að rífa runnana upp með rótum. Daginn eftir var ég kominn með bakverk en hann hvarf sem betur fer á nokkrum dögum,” segir Jósep og brosir.

Slitbreytingar Jóseps sjálfs

„Ég er með mjög slitinn hrygg en slitbreytingar sem slíkar valda ekki endilega verkjum,” segir Jósep. „Ef bakverkir væru slitsjúkdómur væri allt gamla fólkið að drepast, en svo er ekki. Bakverkir eru algengastir á aldrinum 20-55 ára og ná hámarki við 42 ára aldur. Ráðið við þessum verkjum er sannarlega ekki að leggjast fyrir. Og annað mikilvægt atriði sem fólk þarf að skilja er að hreyfingin er líka mjög mikilvæg til að beinin haldi styrk sínum. Ef komin er beinþynning þá geta bakverkir komið vegna beinþynningar og þá fara hryggjarliðirnir að kikna og fólk bognar, en það veldur ekki endilega verkjum. Frænka mín blessunin, 93 ára, lést í fyrra og hún var orðin alveg eins og spurningarmerki í laginu en hún kvartaði ekki yfir bakverk. Ef hún hefði hins vegar dottið hefði hún stjakað við sínum slitna hrygg, og hugsanlega fengið bakverk upp úr því. ” segir Jósep og ætlar að halda áfram að láta gott af sér leiða í bakvandamálum þjóðarinnar á meðan hann heldur starfsþreki, okkur hinum til mikillar gleði.

Jósep spilar á píanó í tómstundum

Jósep 14 ára við Petrovpíanóið í sal Gagnfræðaskóla Siglufjarðar.

Jósep tók lokapróf í klassískum píanóleik 2006, en var á yngri árum rokkpíansisti, undirleikari skemmtikrafts o.fl. Hann er einn af meðlimum hljómsveitarinnar „Stormar“, sem enn er virk, en þeir félagar spiluðu saman á 7. Áratugnum og endurvöktu bandið 1992. Hann spilar töluvert undir hjá kórum og söngvurum sem og með félögum í Hólminum, þegar svo ber undir, og er svo heppinn að hafa með sér sérlegan aðstoðarmann og stílista sem er 13 ára dótturdóttir hans. Jósep hefur heyrt hana hvísla á tónleikum:  „Afi, farðu úr jakkanum“. „Þá hafði jakkinn verið krumpaður og listrænu auga stílistans var misboðið og henni þótti skárra að ég færi bara úr honum“.

Hætti að drekka fyrir 26 árum síðan

Ein merkasta uppgötvun sem Jósep hefur gert í lífinu er hversu gott var að losna við áfengið úr lífi sínu fyrir 26 árum. „Það var eitt mesta gæfuspor sem ég hef tekið,” segir Jósep. „Þegar áfengið er farið að valda manni meiri vandræðum en ánægju er sjálfhætt. Það er hörkuvinna og vanlíðan sem fylgir því að vera alkohólisti. Svo man ég vel stundina þegar ég áttaði mig á því hvað er mikil vellíðan að vera ekki þræll áfengisins. Og síðan hef ég ekki drukkið,” segir Jósep og er hæstánægður með lífið og tilveruna.

Sólveig Baldusdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.

Signý Pálsdóttir kveður ráðhúsið eftir tæp 20 ár
Signý á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs sem þá var í Ingólfsnaustum

Þegar Signý Pálsdóttir skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg, gekk út af skrifstofunni sinni í ráðhúsinu í gær, lauk 19 ára starfi hennar hjá borginni. Hún segist skilja skrifstofuna eftir í góðum höndum, en Sif Gunnarsdóttir sem var síðast forstjóri Norræna hússins í Færeyjum tekur við af henni. Signý ætlar að fara á eftirlaun 68 ára, þó hún hefði getað unnið til sjötugs. „ Ég hætti að eigin ósk og langar til að njóta frelsisins eftir að hafa unnið mikið alveg frá því ég var 25 ára gömul“, segir hún.

Tækifæri til að rækta sjálfa sig, fjölskyldu og vini

Signý sér tímann framundan í hillingum. „Það verður dásamlegt að ráða sínum tíma sjálfur, hvenær þú vaknar og hvað þú gerir það sem eftir lifir dagsins. Þú getur valið og hafnað, hvort sem það er leikur eða einhver verkefni.  Það er gott að vera engum háður, hvorki kerfi né stjórnmálamönnum sem embættismaður. Ég sé fram á fleiri tækifæri til að rækta sjálfa mig andlega og líkamlega og  einnig fjölskylduna og vini mína.  Allt þetta þrennt, hefur oft þurft að sitja á hakanum vegna vinnu. Ég ætla ekki að kveðja þennan heim, án þess að hafa náð að gera það. Hjúkrunarfræðingar segja að á dánarbeði sjái enginn eftir því að hafa ekki unnið nóg, en mjög margir sjái eftir að hafa ekki sinnt sínum nánustu betur“.

Signý og Árni, ásamt golfvinunum Þóreyju Aðalsteinsdóttur og Baldri Gíslasyni

Mun sníða sér stakk eftir vexti

„Þó ég sjái fram á tekjulækkun, eftir að hafa greitt í mörg ár í misgóða lífeyrissjóði, mun ég sníða mér stakk eftir vexti“, segir Signý hvergi bangin. Hún er við öllu búin enda í  þremur golfklúbbum, Golfklúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbi borgarstarfsmanna og svo eru hún og maður hennar, Árni Möller, nýgengin í Nesklúbbinn á Seltjarnarnesi.  Henni finnst golfið „fáránlega skemmtilegt“ og segist hafa stundað það lengi, eða alltof lengi miðað við getu!  Það var Árni sem gaf henni fyrsta golfsettið, en hann var að hennar sögn alinn upp í golfi.

Menn verða oft félagar í golfinu

„Ég leit á golfið sem leik og góðan félagsskap. Það er það skemmtilega við golfið. Maður kynnist fólki af öllum stéttum með ólíkan bakgrunn. Menn verða oft félagar, bæði innan og utan vallar. Það myndast hópar, bæði kvennahópar og parahópar“.  Hún er þakklát Árna fyrir að hafa kynnt hana fyrir golfinu. „Það reynir bæði á hug og hönd og svo er það útiveran. Menn fara líka í golfferðir. Vinahópar sækja gjarnan golfvelli út fyrir bæjarmörkin og svo eru utanlandsferðir einu sinni til tvisvar á ári“.

Börnin, Torfi Frans, Guðrún Jóhanna og Melkorka Tekla Ólafsbörn ásamt barnabörnunum

Getur dvalið meira hjá börnunum í útlöndum

Signý ólst upp í stórri fjölskyldu í Skerjafirði, en hún er dóttir hjónanna Páls S Pálssonar hæstarréttarlögmanns og Guðrúnar Stephensen kennara. „Ég kem úr átta systkina hópi sem hefur haldið mjög vel saman. Ég á þrjú börn og 5 barnabörn og Árni tvo syni. Tvö barnanna búa erlendis og ég sé fram á að geta dvalið meira hjá þeim eftir að ég fer á eftirlaun og haft meiri samskipti við barnabörnin“. Spurð hvort það hafi ekki verið óvanalegt á þessum tíma að börnin væru átta í einni og sömu fjölskyldunni, sagði Signý að svo hefði verið, en hér hefði verið „babyboom“ eftir stríð. „Útskriftarhópurinn minn úr MR hélt að hann væri stærsti árgangur skólans frá upphafi, en reyndist vera sá næst stærsti“, segir Signý „Það er ótúlegt að við séum núna að undirbúa 50 ára stúdentsafmæli á næsta ári“.

Nemendur drukku bjór í tímum

Signý kynntist fyrri manni sínum , Ólafi H. Torfasyni rithöfundi, fjölmiðlamanni og kvikmyndafræðingi  Í MR og saman héldu þau til náms í Kaupmannahöfn, eftir að hafa kynnt sér námið í Háskóla Íslands í einn vetur. „ Ég ætlaði í leiklist en þá var ekki leiklistarskóli hér og innritaði mig í leikhúsfræði“, segir Signý. „Þetta var í kjölfar 68 byltingarinnar og í heimspekideildinni í Köben var allt með öllu frjálslegra sniði en verið hafði í HÍ. Mér brá að sjá  nemendur drekka bjór í tímum og rífa kjaft við kennarana,“ segir hún. Þetta voru spennandi tímar og stöðugur straumur ungra Íslendinga lá til Kaupmannahafnar. Þau Ólafur bjuggu miðsvæðis og það var afar gestkvæmt. „Ég var farin leggja alltaf nokkra diska aukalega á borð, því við vissum aldrei nema óvænta gesti bæri að garði“, rifjar Signý upp.

Börnin í Stykkishólmi ásamt lítilli frænku

Var opinberun að flytja út á land

Eftir Kaupmannahafnardvölina réði unga parið sig sem kennara í Stykkishólmi. Á þeim tíma þurfti ekki að hafa kennsluréttindi til að taka að sér slík störf og kaupið var gott. Þau áttu þá orðið tvö börn og það þriðja bættist fljótlega við.  „Það var opinberum fyrir okkur að búa úti á landi og frábært að ala upp börn í Stykkishólmi. Þetta var okkar besti skóli, að kynnast lífinu í litlum bæ á landsbyggðinni. Þarna var mikið félagsstarf og ég var í Leikfélaginu Grímni, leikstýrði, lék og sinnti formennsku.“ Signý segist þannig hafa kynnst vel þversniðinu af bæjarbúum og fengið marga til að stíga á svið sem ekki höfðu gert það áður.

Skemmtilegasti vinnustaðurinn

En Signý var alltaf spennt fyrir að vinna í leikhúsi og þegar hún sá auglýst starf leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar sótti hún um og fékk það. Fjölskyldan flutti þá aftur í danskan bæ, sem var tíu sinnum stærri en Stykkishólmur, en sagt var um báða bæi að þar væri töluð danska á sunnudögum.  Signý segir að Leikfélag Akureyrar sé skemmtilegasti vinnustaður sem hún hafi unnið á og hefur hún þó lagt gjörva hönd á margt.  Þegar Ólafur vildi flytja suður eftir fjögur ár, hætti hún hjá leikfélaginu, varð leikhúsritari Þjóðleikhússins, en var ráðin aftur norður fimm árum síðar. Þá voru þau hjónin skilin. En starfið fyrir norðan varði þá ekki nema tvö ár.  „Það var karlmönnum að kenna í bæði skiptin að ég hætti“ segir Signý og brosir. En hún hafði þegar hér var komið sögu kynnst bónda á Suðurlandi, fyrrnefndum Árna Möller og tók sig upp enn á ný og flutti til hans á Þórustaði í Ölfusi.

Brúðkaup Signýjar og Árna. Sr. Hjálmar Jónsson gaf þau saman

Gæti verið að grúska allan daginn

Signý var um tíma „free lance“. Hún skrifaði og leikstýrði og gerð einnig útvarps- og sjónvarpsþætti, þar til hún varð framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík. Því starfi gegndi hún í fimm ár þar til hún var ráðin til að stýra menningarmálum Reykjavíkurborgar árið 1999.  Formlegu starfi er lokið, en hún er bæði í norrænu og íslensku dómnefndarverkefni og segist ekki leggja tærnar alveg upp í loft. Hún hefur til dæmis gaman af alls kyns grúski. „Ég gæti þess vegna verið að grúska heima hjá mér, í myndum, textum og sendibréfum allan daginn. Ég er með myndasöfn sem þarf að skanna og vinna úr. Svo hef ég alltaf haft gaman af að skrifa“.  Hún sér líka fram á að geta lesið meira, þegar hún verður komin á eftirlaun. „Frá því ég varð læs 4ra ára gömul hefur það verið mín besta skemmtun að lesa“, segir hún.

Leikhússtjóri LA kvaddur 2002 en Viðar Eggertsson tók við.

Fljótandi leikhús og tónleikasalur

Signý segir að samskipti við listamenn í öllum listgreinum, sé það sem standi uppúr á hennar starfsferli. Þó hún hafi ekki sjálf orðið listamaður, hafi það gefið henni mikið að hafa samskipti við listamenn og fylgjast með því sem þeir séu að gera. En svo á hún sér draum, sem hún á kannski eftir að láta rætast. „Það er að festa kaup á afskráðu skipi og hafa það við Grandann, stutt frá þar sem ég bý. Þar myndi ég reka leikhús og tónleikasal. Á sumrin myndi skipið sigla hringinn í kringum landið með leiksýningar og tónleika. Þá væri líka hægt að búa í skipinu árið um kring“, segir Signý dreymin. Miðað við feril hennar fram til þessa, þyrfti  ekki að koma á óvart þó draumur hennar um fljótandi leikhús og tónleikasal ætti eftir að verða að veruleika í fyllingu tímans.

Hér má sjá skemmtilegar myndir úr albúmi Signýjar.