svefn – Lifðu núna

Vaknar þú eldsnemma á morgnana sama hvað?
Sumir vakna klukkan fjögur eða fimm á morgnana og geta ekki sofnað aftur. Þetta gerir það að verkum að fólk er dauðþreytt allan daginn og ef það leggur sig tekst því jafnvel ekki að sofna fyrr en seint en vaknar samt sem áður á sama tíma að morgni. Eftir svolítinn tíma er viðkomandi svo gersamlega örmagna. Þessi svefntruflun er algeng meðal eldra fólks. Hægt er að venja líkamann af þessu og ná að stilla líkamsklukkuna að nýju.

Ein ástæða þess að þetta gerist er að virkni hringrásar heilans sem fer af stað þegar við göngum til náða og reynum að sofna minnkar þegar við eldumst. Önnur ástæða er sú að líkamsklukkan eða dægursveiflan sem við upplifum hvert og eitt á okkar hátt færist framar með árunum. Til dæmis er mjög algengt að unglingar þurfi að sofa lengur frameftir á morgnana en fullorðið fólk og eldri einstaklingar verða oft kvöldsvæfari og vakna fyrr en þeir gerðu þegar þeir voru yngri. Hliðarverkun af þessari eðlilegu þróun líkamsklukkunnar er að sumt fólk fer að vakna sífellt fyrr og oft án þess að hafa náð fullum nætursvefni.

Í sumum tilfellum hafa lyf þessar aukaverkanir og einnig geta sumir sjúkdómar eða kvillar aukið líkurnar á að fólk vakni fyrr. Þar á meðal má nefna, stoðkerfisverki, blöðruvandamál og kæfisvefn. Meðal lyfja er geta valdið svefntruflunum af þessu tagi eru beta-blokkarar en þeim fylgja einnig í sumum tilfellum erfiðar draumfarir, þunglyndislyf og þvagræsilyf.

Svefnþörfin minnkar ekki

Margir telja að svefnþörf fólks minnki með hækkandi aldri en svo er ekki. Allar rannsóknir benda til að fólk þurfi jafnmikinn svefn á efri árum og miðaldra. Börn og unglingar þurfa meiri svefn og í sumum tilfellum þarf fólk á þrítugsaldri meiri svefn en fólk á fertugsaldri. Svefnþörf er hins vegar einstaklingsbundin að einhverju leyti en almennt sé þurfa flestir 7-8 klukkustunda svefn á nóttu.

En hvað er hægt að gera til að tryggja sér lengri samfelldan svefn ef hann er brotakenndur eða fólk vaknar alltaf eldsnemma að morgni? Það langar fæsta að vakna í kolniðamyrkri þegar allir aðrir sofa og engin ástæða er til að fara á fætur. Það að velta sér og snúa og berjast við að sofna aftur er líka bæði ergilegt og erfitt.  Svefnsérfræðingar ráðleggja fólki að fara á fætur fremur en að veltast um og ergjast. Að fara á fætur þýðir hins vegar ekki að fara í fulla virkni. Best er að flytja sig fram í stofu eða þægilegan stól og lesa eða hlusta á rólega tónlist, hugleiða kannski í stutta stund og ef það nægir til að fólki syfji aftur fara þá inn og leggjast aftur.

Það má líka reyna að fara seinna í rúmið á kvöldin í stað þess að láta eigin löngun til að sofna stjórna. Ef fólki tekst að halda þeim takti í einhvern tíma getur það leitt til þess að líkamsklukkan endurstilli sig. En svo er nokkur góð almenn ráð við svefnvanda sem geta hjálpað í þessum tilfellum.

Vertu í myrkrinu

Hættu að horfa á sjónvarp eða tölvuskjá í það minnsta klukkustund áður en þú ferð í rúmið á kvöldin.  Ekki hafa sterkt ljós kveikt í svefnherberginu á kvöldin og ef næturljós er kvikt í íbúðinni komdu því fyrir frammi á gangi eða á stað þar sem það er ekki líklegt til að skína í augun á þér.

Ekki sofa lengur en 20-25 ef þú leggur þig á daginn

Mörgum finnst nauðsynlegt að leggja sig yfir daginn eða taka svokallaða kraftdúra eða power naps. Ef þú ert í þeim hópi gættu þess þá að sofa aldrei lengur en 20-25 ef þú gerir það er það mjög líklegt til að hafa áhrif á nætursvefninn. Það skiptir einnig máli hvenær þú leggur þig. Stuttur dúr eftir hádegi hefur lítil áhrif á nætursvefn en ef þú sofnar í eftirmiðdaginn er það líklegt til að trufla nætursvefninn.

Er kvöldmatartíminn að trufla þig?

Flestir borða núorðið stærstu máltíð dagsins á kvöldin. Hugsanlega hentar þér ekki að borða mikið svo seint á daginn. Þú getur prófað að borða kvöldmatinn fyrr t.d. klukkan sex ef hann hefur hingað til verið klukkan sjö eða til sjö ef þú borðar átta. Það gæti líka verið gott að borða léttari mat t.d. salöt, fisk eða hvítt kjöt fremur en rautt kjöt og minnka skammtinn..

Forðastu kaffi eftir hádegi

Sumir þola ágætlega að drekka kaffi á kvöldin en aðrir geta helst ekki fundið lykt af kaffi öðruvísi en það hafi áhrif á svefn. Ef þú ert í þeim hópi sem hefur reynslu af því að koffein haldi fyrir þér vöku ættir þú að prófa að hætta að drekka kaffi eftir hádegi. Það er mjög einstaklingsbundið hvernig fólk vinnur úr kaffeini og hve fljótt það er að losa sig við það. Að drekka kaffi á kvöldin hefur einnig áhrif á blöðruna og líklegt að þú þurfir að vakna til að pissa, jafnvel nokkrum sinnum yfir nóttina.

Ekki stunda líkamsrækt á kvöldin

Að stunda líkamsrækt eða gera æfingar er ekki heppilegt að gera þær á kvöldin. Líkamsrækt eykur orku og eykur flestum kraft. Þess vegna eru flestir hressari, vökulli og einbeittari eftir líkamsrækt. Það segir sig sjálft að það er ekki gott að ætla að sofna strax eftir það.

Svefn er mjög persónubundinn og engin ein leið hentar öllum. Ekkert kraftaverkalyf er til sem bætir svefn og heit mjólk, kamillute eða slökunaræfingar geta hjálpað mörgum en ekki öllum. Kvíði og þunglyndi geta valdið svefntruflunum og sú orsök er undirliggjandi hjá einhverjum ætti viðkomandi að leita sér hjálpar sem fyrst. Hugræn atferlismeðferð nýtist mörgum og hægt er að halda áhyggjudagbók þ.e. skrifa niður það sem veldur kvíða á kvöldin og setja upp áætlun um hvernig hægt er að leysa það. Svefnlyfjanotkun er mikil hér á landi en svefnlyf ættu alltaf að vera síðasta úrræðið og ekki nota nema stuttan tíma.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Heitar nætur – lítill svefn
Eitt af þeim ráðum sem sérfræðingar gefa fólki til að bæta svefninn er að tryggja að hitastig í svefnherberginu sé ekki yfir 18° C. Á heitum sumardögum getur reynst erfitt að tryggja að ekki sé kæfandi hiti innandyra á kvöldin og ef fólk hyggur á ferðalög um Evrópu þessa dagana ætti það að athuga hvort ekki sé örugglega loftkæling á þeim gististöðum sem það hefur valið.

En hvaða áhrif hefur hitinn á svefn? Jú, hann bæði eykur líkur á að fólk vakni oftar og nái ekki nægilega góðum djúpsvefni. Þegar við eldumst verður líkaminn viðkvæmari fyrir öllum hitabreytingum. Við finnum meira fyrir bæði hita og kulda. Svalt loft í svefnherberginu eða þægilegur hiti, hvorki of heitt né of kalt er þess vegna besta valið. Þegar sólin skín allan daginn er gott að draga myrkrunartjöld fyrir svefnherbergisgluggana til að hindra að sólin hiti allt innandyra. Um leið og kvölda tekur og fer að draga úr hitanum má opna gluggana og hleypa svalara lofti inn og búa þannig til kjöraðstæður fyrir góðan nætursvefn.

Í Evrópu eru litlar viftur uppseldar í nánast öllum verslunum og fólk hefur komið þeim fyrir í öllum herbergjum híbýla sinna. Ef slíkar viftur er að finna þar sem gist er á ferðalagi má setja klaka í skál og koma henni fyrir beint fyrir framan viftuna og fá þannig enn betri kælingu í herbergið.

Breyttu um sæng á sumrin

Það skiptir miklu máli hvers konar rúmföt og sængur menn velja yfir sumarið. Silki, gæðabómull og bambus eru efni sem tempra vel hitann og virka því svöl þrátt fyrir að heitt sé í veðri. Það getur borgað sig að fjárfesta í hágæða rúmfötum til að nota í sumarhitum og eins kjósa margir að skipta út dúnsænginni á sumrin og kjósa í staðinn þynnri sængur eða þunn teppi. Hið sama gildir um náttföt. Ef þau eru úr góðum náttúrulegum efnum tempra þau hitann en sumir kjósa að sofa naktir þegar hitinn er hvað mestur.

Ekki margir vita að fæturnir stjórna heilmiklu þegar kemur að góðum nætursvefni. Á veturna er mikilvægt að tryggja að þeir séu ekki of kaldir og á sumrin að þeir séu ekki of heitir. Fæturnir eru nefnilega nokkurs konar hitamælir líkamans og með því að stinga þeim undan sænginni á sumrin er frekar hægt að tryggja að líkaminn verði ekki of heitur og á veturna koma þeim tryggilega fyrir undir sænginni svo þeir verði ekki of kaldir. Ef það dugar ekki til er hægt að leggja kaldan, rakann klút á fæturna, hálsinn og úlnliðina áður en lagst er til svefns. Styst er að æðaslættinum eða púlsinum á þessum líkamshlutum og með því að kæla þá lækkar líkamshitinn. Þótt það kunni að vera freistandi að fara í kalda sturtu þegar hitinn er hvað mestur ætti alls ekki að gera það á kvöldin. Moðvolg sturta eða bað er hins vegar ágætt ráð til að lækka líkamshitann sérstaklega þegar komið er inn eftir heitann dag. Köld sturta getur virkað kælandi til að byrja með en orðið til þess að hitinn rýkur upp þegar farið er í rúmið.

Haltu rútínunni

Að sofna á sama tíma á hverju kvöldi og vakna á sama tíma er mjög mikilvægt upp á að halda góðum svefni. Þegar fólk er á ferðalögum eða veðrið gott er rosalega freistandi að vaka lengur. Íslenskar sumarnætur eru fallegar en að njóta þeirra getur reynst dýrkeypt ef það setur svefninn úr skorðum. Rútínan stillir líkamsklukkuna og viðheldur skynjun okkar á hvenær tímabært er að hvílast og hvenær að vakna. Allar breytingar á umhverfi, jafnvel stutt ferðalög, geta haft áhrif á skynjun okkar hvað þeta varðar en með því að viðhalda ströngum aga hvað svefntímann varðar aðlagast líkaminn breyttum aðstæðum fyrr og hvíldin verður betri. Þess vegna ætti fólk að hreyfa sig á morgnana og yfir daginn en draga úr virkni í eftirmiðdaginn og taka því rólega á kvöldin.

Mataræði getur einnig skipt sköpun hvað varðar góða slökun á kvöldin. Menn ættu að forðast að borða þungar máltíðir í miklum hita og þá sérstaklega í kvöldmat. Eins eru sterkkryddaðir réttir og mjög sætir algjört eitur þegar kemur að því að hvílast. Þungur matur krefst mikillar orku til að menn nái að melta hann vel og krydd örva meltinguna. Sykurinn veldur því að blóðsykur rýkur upp og það kallar á hreyfingu og virkni. Hugurinn jafnt sem líkaminn leitast við að vinna úr allri þessari orkuríku fæðu. Líkamshitinn hækkar samhliða brennslunni og  fólki getur orðið óbærilega heitt. Léttur matur og lítið snakk er því lykilatriði á heitum sumarkvöldum.

Ekki stilla loftkælingu of lágt

Á ferðlögum til heitari landa hættir Íslendingum til að stilla loftkælinguna á gististaðnum of lágt. Ferðalangarnir koma inn sjóðheitir eftir daginn og telja að best sé að kæla sig niður eins fljótt og hægt er. Það getur hins vegar orðið til þess að þeir nái ekki að sofna og alls ekki sofa vel.  Loftslagið í herberginu ætti að vera milt en alls ekki of kalt. Það eina sem það skilar er að fólk vaknar á næturna skjálfandi af kulda og fer að leita að auka teppum eða klæða sig í föt til að hlýja sér. Best er að stilla loftkælinguna á 20°-21° C og minnka frekar hitann rétt fyrir svefninn ef fólki finnst enn of heitt.

Drykkir sem bæta svefninn
Góður nætursvefn er undirstaða góðrar heilsu. Margir glíma við svefnerfiðleika, eiga erfitt með að sofna og sofa stutt í einu. Margvísleg ráð geta dugað til að bæta gæði svefnsins þar á meðal að drekka ákveðna drykki fyrir svefninn.
Kamillute er einnig þekkt fyrir sömu verkun og raunar þykir gott að drekka heita drykki fyrir svefninn. Það róar taugakerfið. Margir kjósa glas af heitri mjólk, kakó eða jurtate önnur en kamillute.

Þessir drykkir eiga það hins vegar sameiginlegt að vera fyrst og fremst tæki til að hjálpa fólki að sofna. Súr kirsuber eða tart cherry eins og þau heita á ensku innihalda melantónín og margvísleg andoxunarefni. Safi úr þeim þykir því hollur og glas af honum getur hjálpað fólki að sofna á kvöldin og sofa lengi. Ýmsar rannsóknir benda til að safi úr súrum kirsuberjum hafi þau áhrif að fólk nái dýpri svefni, nái REM-stiginu, og þar með betri hvíld.

Góðir drykkir fyrir svefninn og verkun þeirra

Safi úr súrum kirsuberjum inniheldur melantónín en framleiðsla þess minnkar í heilanum með árunum. Melantónín hjálpar fólki að slaka á, sofna og ná djúpsvefni.

Heit mjólk inniheldur tryptófan en melantónín er afleiða þess efnis. Það er notalegt að drekka glas af heitri mjólk á kvöldin, því fylgir góð slökun og í mjólkinni eru einnig margvísleg næringarefni.

Kamillute inniheldur efnið apigenin en það efni hefur góð áhrif á taugakerfið. Með aðstoð þess er hægt að ná ró og slökun. Sumum finnst líka ilmurinn af kamillujurtinni sefandi.

Helgibasilíka er skyld basilíku en önnur jurt engu að síður. Hún hefur sterkara og piparkenndara bragð en venjulegri basilíku. Te af helgibasilíku vinnur gegn streituhormóninu kortisól í líkamanum og getur því hjálpað til bæði við svefn og almenna slökun.

Ástríðuávöxtur inniheldur efni sem ýta undir framleiðslu taugaboðaefna í heilanum sem hafa róandi og slakandi áhrif. Það að drekka safa sem inniheldur ástríðuávöxt getur því hjálpað fólki að ná að sofna á kvöldin.

Flest bendir þó til að þótt heitir drykkir og ákveðnar jurtir geti hjálpað fólki að sofna viðhalda þær ekki svefni né ýta undir að manneskjan nái djúpsvefni að undanskildum súru kirsuberjunum. Flestar rannsóknir benda til að safi úr þeim hafi lengri áhrif á taugakerfið en almennt gengur og gerist með aðrar sefandi jurtir.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Blekktu heilann til að slaka á
Margir eiga erfitt með að slaka nægilega vel á til að geta sofnað á kvöldin. Fólk snýr sér í rúminu í leit að þægilegri stellingu og hugurinn er á fljúgandi ferð. Það er verið að rifja upp atburði dagsins og skipuleggja morgundaginn, jafnvel gráta gömul mistök eða kvíða því að þau kosti viðkomandi lífsgæði og ánægju á næstu árum. Ef þú ert í þeim hópi sem á erfitt með að sofna prófaðu þá snjallt blekkingarbragð sem þróað var að Luc P. Beaudoir doktor í vitsmunafræðum við Simon Fraser-háskólann.

Bragðið felst í því leið hugann að öðru vandamáli til að kveða niður raddirnar í hausnum og bægja kvíðanum frá. Veldu þér fimm stafa orð, t.d. flóki, veltu fyrir þér hugtakinu í svolitla stund og sjáðu fyrir þér flækju. Taktu svo fyrsta stafinn í orðinu, þ.e. f og finndu önnur orð sem byrja á f, fagur, fastur, fleiri og svo framvegis. Næst tekur þú l og gerir það sama, lok, lás, lestur, læti og heldur áfram koll af kolli þar til stafirnir í orðinu eru uppurnir.

Í grunninn snýst þetta um að með því að einbeita sér að öðru en þeim hugsunum sem halda manni vakandi nærðu að slökkva á heilanum. Hjálpa honum að slaka á. Þessi aðferð er nógu flókin til að hugurinn reikar ekki sífellt til að baka að því sem er að halda þér vakandi. Auk þess er kostur að orðin eru óskyld, við erum ekki að leitast við að tengja, búa til heilstæða hugsun eða sögu heldur eingöngu velta upp orðum af handahófi. Og í því felst galdurinn að halda orðunum og ímyndunum sem þau kveikja eins tilviljanakenndum og hægt er.

Ekki telja kindur

Einfaldari leið til að vinna með þessa slökunaraðferð er einfaldlega að byrja á A í stafrófinu og feta sig svo áfram þar til maður vonandi sofnar. Þá má velja sér ákveðinn flokk t.d. ávexti og byrja á ananas, appelsína og halda áfram að banana, döðlum og eplum. Dýr eða matartegundir væru líka þægilegir flokkar því öll þekkjum við mörg heiti sem falla þar undir. Best er að orðin séu ekki of flókin og alls ekki velja sér flokka sem eru líklegir til að leiða þig inn á braut  hugsana um pólitík, loftslagsvandann eða önnur alvarleg umfjöllunarefni. Ef hugurinn heldur hins vegar áfram að flökta til baka að áhyggjum eða öðrum hugsunum sem halda þér vakandi og í viðbragðsstöðu er um að gera að byrja bara aftur og aftur, toga hann til baka að leiknum.

Allir þekkja brandarana þar sem einstaklingur liggur uppi í rúmi og telur kindur. Sú aðferð kann að henta sumum en fyrir flesta er sú ímynd of fjarstæðukennd til að hún haldi athygli þeirra til lengdar. Að kalla fram og búa til orð eftir tilteknu kerfi er mun líklegri til að halda huganum uppteknum nægilega lengi til að þreyttur líkaminn geti slakað á og manneskjan náð að sofna.

Af hverju virkar þetta?

Þessi aðferð virkar og hjálpar fólki að slaka á því verkefnið er akkúrat nógu ögrandi og krefst einbeitingar en er ekki líklegt til að senda þig inn í vítahring erfiðra hugsana. Heilinn fær nóg að gera en verkefnið er ekki of erfitt. Margir gera þau mistök þegar þeir reyna að slaka á eða beita hugleiðsluaðferðum að leitast við að reyna að neyða heilann til að hugsa enga hugsun. Það er ákaflega óraunhæft og erfitt. Þess vegna þarf að gefa honum nægilegt fóður en rétta fóðrið.

Þessi aðferð líkt og aðrar slökunarleiðir batnar og virkar betur því oftar sem manneskjan notar hana. Smátt og smátt verður heilinn betri í að kalla fram orð og ímyndir og slökunin kemur því fyrr og verður betri.

Virkar þetta alltaf?

Nei þetta virkar ekki alltaf en það gera engar aðferðir. Líkaminn og hugurinn taka mið af tilfinningum okkar og það er miserfitt að ná stjórn á þeim. En því meðvitaðri sem við erum um hvað er að gerast í lífi okkar og hvers vegna við eigum í innri baráttu af einhverjum toga því betur gengur að ná jafnvægi. Að vinna með huganum á þann hátt sem gert er með þessari aðferð, cognitive shuffling eða vitsmunalegum undanbrögðum hjálpar oft og mörgum finnst hún nytsamleg. Þetta getur einnig verið mjög góð leið til að ná að sofna aftur ef maður vaknar upp um miðja nótt.

Mjög margir iðka hugleiðslu á einn eða annan hátt í daglegu lífi og hún hjálpar fólki að halda hugarró og jafnvægi bæði í daglegu lífi og á kvöldin þegar gengið er til náða. Með æfingunni nær manneskjan auðvitað betra valdi á eigin hugsunum og nær þannig að stjórna tilfinningaflæðinu og streitunni í líkamanum.

Hugleiðsla og cognitive shuffling eru þannig gagnleg hjálpartæki sem koma að góðum notum þegar margt er í gangi og þess vegna erfitt að slaka á. Ef vandinn er ekki tímabundinn og einstaklingar glíma við varanlegar svefntruflanir ættu þeir hins vegar alltaf að leita til heilbrigðisstarfsfólks til að að fá ráð.

Er hægt að vinna upp glataðan svefn?
Margir búa við síendurteknar svefntruflanir eða varanlegt svefnleysi. Menn reyna oft að bæta sér upp lítinn svefn með því að leggja sig yfir daginn en finna þá að erfiðlega gengur að sofna á kvöldin. Þá skapast vítahringur og manneskjunni finnst hún aldrei ná fullri hvíld. En hvað er til ráða? Er hægt að vinna upp glataðan svefn?

Já, að einhverju leyti er það hægt en best er auðvitað alltaf að ná samfelldum svefni yfir nóttina. Svefntruflanir eru af ýmsum toga. Sumir eiga erfitt með að sofna, aðrir vakna við minnsta hljóð og vaka þá einhverja klukkutíma í senn og enn aðrir glíma við að sofna alls ekki fyrr, vaka heilu og hálfu næturnar og líða svo út af í algjörri örmögnun einhvern tíma yfir daginn.

Að taka sér hádegislúr eða eftirmiðdagsdúr getur að einhverju leyti bætt upp svefntap næturinnar. Lúrinn verður hins vegar alltaf styttri en sá svefn en þær svefnstundir sem manneskjan missti um nóttina. Stuttir dúrar hjálpa hins vegar til að halda fólki gangandi yfir daginn og hjálpa því að finna næga orku til að geta sinn því sem það þarf að sinna. En það er erfitt að vakna aldrei úthvíldur að morgni og finna sig tilbúinn til að takast á við daginn.

Enn eru skiptar skoðanir á því meðal sérfræðinga í svefni og þeirra sem rannsaka svefn hvort það sé æskilegt að leggja sig yfir daginn og hvort stuttir lúrar geti hjálpað þeim sem glíma við svefnvanda. Sumir telja að týndar svefnstundir frá fyrri dögum verði aldrei bættar með meiri svefni daginn eftir. Mun líklegra sé að með því að sofa meira á daginn sé fólk eingöngu að skapa áframhaldandi truflun á nætursvefninum og glataður svefn sé að eilífu glataður. Aðrir telja að betra sé að fá einhverja hvíld og gera líkamanum þannig kleift að halda áfram.

En ástæðan þess að fólki líður miklu betur eftir langan hádegislúr er sú að hann er nógu langur og djúpur til að viðkomandi nái djúpsvefnfasa og líkaminn nái því að hvílast. Niðurstöður norskrar svefnrannsóknar frá árinu 2018 staðfesti að svo væri. Hún sýndi að ef manneskja fær of lítinn svefn á virkum dögum getur það að ná svolitlum aukasvefni um helgar haft jákvæð áhrif á heilsuna.

„Ég finn það gegnum svefninn“
Svefninn hefur verið mönnum gáta, galdur og umhugsunarefni frá aldaöðli. Líklega er ekkert okkur jafnmikilvægt og að ná góðri hvíld. Skáldin vissu það, Davíð Stefánsson til dæmis en hann orti um konuna sem kynti ofninn hans og móðurina sem vakti í rökkrinu eftir rokkarnir voru þagnaðir og reyndi að svæfa barnið sitt.

Jón frá Ljárskógum bað hins vegar hinn ljúfa blæ að syngja sig í svefn og Snorri Hjartarson sagði svefninn ylfrjóan og góðan. Og það er hann. Yljandi vegna þess að hvíldin er dásamleg og frjór vegna þess að hann nærir sköpunarkraftinn. Svo ótalmargt gerist meðan við sofum. Börnin stækka í svefni, frumurnar endurnýja sig, vöðvarnir hvílast og búa sig undir átök næsta dags og undirmeðvitundin vakir og sendir okkur skilaboð gegnum drauma.

Tröllin voru stungin svefnþorni meðan einhver karlsson fór um helli þeirra, rændi og ruplaði og bjargaði prinsessum úr haldi. Líklega vildu flestir eiga þannig þarfaþing og geta stungið sjálfan sig þegar hvíldin virðist víðs fjarri og engin leið að sofna. Hver sá sem hefur verið andvaka veit hvað svefninn er dýrmætur. Sá sem hefur misst svefn í langan tíma og upplifað heilsutengd vandamál vegna þess veit að svefninn er undirstaða góðrar heilsu.

En það er hægt að vera sofandi á marga vegu. Menn geta flotið sofandi að feigðarósi í margvíslegum skilningi. Verið sinnulausir gagnvart eigin ástandi og aðstæðum og sjá þess vegna allt fara á versta veg. En þeir geta einnig verið sofandi gagnvart líðan sinna nánustu og ekki áttað sig á að þar er einhver að glíma við erfiðan hjalla.

En hér eru nokkur góð ráð til að koma á og viðhalda góðum svefnvenjum:

Hreyfðu þig á hverjum degi en ekki rétt fyrir svefninn

Farðu á fætur á sama tíma dag hvern

Ekki drekka kaffi eða kóladrykki eftir klukkan 16.

Reykingar hafa ekki góð áhrif á svefninn.

Hafðu milt ljós í svefnherberginu og byrjaðu að slaka á og skrúfa þig niður klukkustund áður en þú gengur til náða.

Tölvur og önnur skjátæki eiga ekki heima í svefnherbergjum.

Sjáðu til þess að það sé svalt í svefnherberginu á kvöldin og á nóttunni

Augngríma og eyrnatappar eru góð hjálpartæki ef fólk er viðkvæmt fyrir ljósum og hljóði.

Ekki líta á klukkuna ef þið vaknið um nóttina.

Lærið slökunaræfingar og notið þær óspart til að sofna og ef þið vaknið.

Svefnlyf eru ekki varanleg lausn, leitið því annarra og betri aðferða til að bæta svefninn.

Áfengi er ekki svefnlyf og áfengissvefn veitir ekki nauðsynlega hvíld.

Sumum finnst gagnlegt að gera öndunaræfingar eða stunda hugleiðslu fyrir svefninn.  Flóuð mjólk er gott og náttúrulegt svefnlyf.

Sumir fara í heitt á bað á kvöldin áður en þeir skríða undir sængina. Það veitir góða slökun, eins að lesa góða bók og hlusta á rólega tónlist.

Það er ekki gott að fara svangur í rúmið. Ávextir, brauðsneið eða glas af ávaxtaþeytingi er fín máltíð fyrir svefninn.

Dragðu úr áhyggjum þínum. Finndu tíma yfir daginn eða á kvöldin til að fara yfir verkefni næsta dags og skipuleggja það sem gæti valdið þér streitu á svefntíma.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Gott skipulag í svefnherberginu bætir svefninn
Svefnherbergi eru hvíldarstaðir. Þangað á að vera hægt að sækja ró og frið. Margir velja þess vegna hlýja liti á veggina, gluggatjöld í stíl og falleg rúmteppi. Litrík rúmföt lífga einnig upp á og púðar, plöntur og myndir. Það verður hins vegar að gæta þess að óreiðan verði ekki of mikil og best að halda svefnherberginu eins vel skipulögðu og hægt er.

Fallega skipulagt svefnherbergi

Hlutir hafa lag á að safnast upp. Oft er eins og að einn hlutur kalli á annan og þegar búið er að koma einhverju fyrir er öðru iðulega bætt við. Ljósmyndir af ástvinum, bækur, tímarit og skrautmunir fylla oft gluggakistur, hillur og náttborð fyrr en varir. Til að forðast að ofhlæði er ágætt að setja sér reglur, t.d. að aldrei megi vera fleiri en tvær bækur á náttborðinu, aldrei tölvur í svefnherbergi og ljósmyndir má hengja á einn vegg og búa þannig til stað fyrir minningar og njóta þess að hafa sína nánustu nærri þegar gengið er til náða.

Margir kjósa að skipta skrautmunum reglulega út. Einhverjir þrír til fjórir hlutir skreyta þá gluggakistur eða hillur en er pakkað í kassa eftir árstíðum og eitthvað annað sett upp í staðinn. Það getur líka verið skemmtilegt að færa til. Taka muni úr stofunni og setja inn í svefnherbergi og öfugt. Það er hins vegar alltaf gott að takmarka hve margir hlutir mega vera á hverjum stað. Til að fá frekari tilbreytingu er auðvelt að skipta út gluggatjöldum, rúmteppum og púðum. Eldra fólk ætti að varast að setja föt, mottur eða annað á gólfið í svefnherberginu. Gott er að hafa stól til að leggja fötin á eða koma fyrir snögum á bak við hurðina. Sumir hafa fataprest í svefnherberginu. Það getur beinlínis verið hættulegt að stíga á sokk á gólfinu og renna til þegar fara þarf á klósett á næturna eða ef lausar mottur renna undan fæti þegar gengið er um á daginn.

Fataskápurinn

Í mörgum svefnherbergjum eru fataskápar. Á mörgum heimilum eru þeir yfirfullir og þess vegna erfitt að hafa yfirsýn yfir fötin sem í þeim eru. Það er gott að fara reglulega yfir alla skápa og fara með í endurvinnslu það sem ekki passar eða þú notar sjaldan. Þá er best að taka út öll fötin og sortera í nokkrar hrúgur. Sú fyrsta ætti að vera allar þínar uppáhaldsflíkur, sú næsta það sem ekki passar og sú þriðja það sem sjaldan er notað en er þó nauðsynlegt að eiga. Þegar búið er að raða þessu svona upp er auðvelt að taka það sem út af stendur og skipta því upp í ónýtt, má henda og það sem ætti að fara í Rauða kross gáminn. Ef eitthvað af þessu fellur í flokkinn, get ekki gert upp við mig hvort ég á að eiga eða ekki, fáðu þá góðan vin í lið með þér og biddu hann að segja þér hreinskilnislega hvort þetta á heima í skápnum eður ei. Ef þú átt einhverjar hönnunarflíkur sem þér finnst þú ekki geta gefið frá þér, endilega reyndu að selja þær.

Fataskápa þarf að þrífa reglulega til að forðast skápalykt og leyfa þeim að standa tómum og opnum í einn dag. Þá er komið að raða inn og best að flokka fötin, t.d. buxur, toppar, peysur, skyrtur, pils, kjólar og svo framvegis. Sumir raða eftir litum eða hvað passar saman, síðan eru fötin brotin saman eða hengd upp eftir atvikum. Þetta hefur þann kost að eigandinn veit hvað er í hvaða skúffu og á slánni. Það er einnig augljóst þegar skápurinn er opnaður. Eftir að svona gott skipulag er komið á er fínt að fylgja reglunni, einn inn, annar út þ.e. ef keypt er flík verður að rýma fyrir henni með því að taka eitthvað annað úr skápnum og henda eða fara með í endurvinnslu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Er svefninn ekki eins góður og var?
Ef þér finnst þú ekki sofa jafnvel og áður er mjög líklegt að það sé einmitt raunin. Algengt er að eftir því sem fólk eldist minnki gæði svefnsins. Jafnvel þótt fólk sé að öðru leyti heilsuhraust sofa margir mun verr en áður eftir fimmtugsaldur. Svefnmynstrið breytist einnig, fólk vaknar oftar á næturna og sumir sofa færri klukkustundir en áður meðan aðrir sofa fleiri.

Fólki er gjarnan skipt í A-, B- og  C-týpur hvað varðar svefnmynstur. A er sá hópur fólks sem fer snemma að sofa og vaknar við eldhresst við fyrsta hanagal en B eru þeir sem vilja kúra á morgnana en eru upp á sitt besta á kvöldin og fram eftir nóttu. C eru svo þeir sem geta lagað sig að báðum þessum mynstrum án þess að finna mikið fyrir því. C-týpur eiga einnig auðveldara með að þola svefnleysi og sumir í þeim hópi virðast komast af með mun styttri svefn en aðrir.

Það má einnig draga fram nokkrar fleiri týpur hvað varðar svefnmynstur. Þeir sem sofna um leið og þeir leggja höfuðið á koddann og hinir sem þurfa að velta sér og snúa í góðan tíma áður en þeir finna réttu stellinguna og ætla aldrei að ná að koma sér í ró og sofna. Svo eru það þeir sem alltaf vakna úthvíldir og tilbúnir í daginn og þeir sem á hverjum morgni verða að liggja í góða stund áður en þeir komast fram úr. Svo er það hópurinn sem ekki getur sofið þegar það er bjart og þeir sem ekki geta sofið nema heima hjá sér í eigin rúmi. Já, það er margt mannanna bölið. En ef þú hefur áhyggjur af svefninum og telur þig ekki fá næga hvíld gæti verið tímabært að leita til sérfræðinga. Ýmsar breytingar og sjúkdómar geta haft áhrif á svefngæði.

Kæfisvefn

Ef þú átt erfitt með að koma þér fram úr á morgnana og finnst þú aldrei vakna endurnærð/ur er hugsanlegt að þú þjáist af kæfisvefni. Kæfisvefn er ástand þar sem fólk hættir að anda af og til yfir nóttina og hrýtur mikið. Þetta veldur því að fólk nær ekki hinum djúpa REM-svefni sem öllum er nauðsynlegur. Margir eru með kæfisvefn án þess að vita af því. Ef maki þinn hefur ekki kvartað undan hrotunum eru helstu einkennin mikil þreyta á morgnana og allan daginn. Fólk sofnar stundum oft yfir daginn en á samt ekki í erfiðleikum með að sofna á kvöldin. Kæfisvefn má meðhöndla með svefnöndunartæki sem heldur öndunarveginum opnum og tryggir nægt súrefnisflæði inn í líkamann alla nóttina eða bitgómi ef um vægari útgáfu þessa vanda er að ræða. Öndunarfærin eru nátengd hjartanu og æðakerfinu. Þess vegna er mjög líklegt að hjartasjúkdómar valdi kæfisvefni eða öðrum svefnvandamálum. Ýmist stafar kæfisvefn af því heilinn segir ekki lungunum að anda eða að hálsinn lokast og kemur í veg fyrir að loft nái ofan í lungun. Svefninn verður því slitróttur og kæfisvefn getur leitt til hjartasjúkdóma sé hann ekki meðhöndlaður. Margir mæla með því að minnka saltneyslu, breyta mataræði og auka hreyfingu til að auka blóðflæði um líkamann og þjálfa öndunarfærin.

Breytingaskeiðið

Algengt er á breytingaskeiði að konur finni fyrir margvíslegum svefntruflunum. Hitakóf á næturna eyðileggja nætursvefni hjá hópi kvenna á breytingaskeiði. Þær vakna rennandi blautar af svita og í sumum tilfellum kveður svo rammt að að skipta þarf um rúmföt á rúminu. Þær sem ekki finna fyrir hitakófum eiga sumar til að vakna engu að síður oft á nóttu og geta stundum ekki sofnað aftur. Aðrar vakna eldsnemma á morgnana og finnst þær úthvíldar en um það leyti sem þær þurfa í vinnuna hellist þreytan yfir og þær finna að líkaminn er ekki úthvíldur. Ef þetta ástand varir lengi getur það valdið kvíðavandamálum og þunglyndi.

Kvíðinn eykur svo á svefntruflunina því konan kvíðir fyrir að fara að sofa og það getur orðið til þess að hún verður andvaka. Læknar meðhöndla vanda af þessu tagi oft með hormónameðferð til að draga úr hitakófum og vægum kvíðalyfjum.

Heilabilun

Heilabilun er yfirheiti notað til að lýsa því hvernig heilastarfsemi eldra fólks veikist og breytist. Einkennin geta verið væg en einnig mjög alvarleg og spanna allt frá minnistruflunum yfir í persónuleikabreytingar og ranghugmyndir. Heilbilun stafar af taugahrörnun í heilanum og mismunandi er hvaða svæði heilans verða verst úti og hvar bilunin byrjar. Svefntruflanir eru meðal fyrstu einkenna heilabilunar og þær aukast eftir því sem sjúkdómurinn versnar. Fólk með heilabilun á oft mjög erfitt með að sofna. Sofnar og vaknar upp illa áttað og óttaslegið. Heilabilun hefur áhrif á melatónínframleiðslu heilans en það boðefni hjálpar okkur að sofna og sofa alla nóttina. Raunar minnkar framleiðsla melatóníns með árunum hjá öllum og margir kjósa þess vegna að taka inn melatónín af og til og laga þannig svefninn. Svefnleysi eykur einnig líkur á að fólk þrói með sér heilabilun og getur hraðað hrörnunarferlinu.

Parkinsons-sjúkdómurinn

Parkinsons-sjúkdómurinn er hrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á hreyfigetu fólks. Vöðvarnir stirðna og sumir fá óviðráðanlegan skjálfta í útlimi. Fólk með Parkinsons sefur oft ekki vel vegna þess hve stirðir og aumir vöðvarnir eru og það finnur ekki svefnstellingu sem er þægileg og þeim líður vel í.  En jafnvel á fyrstu stigum sjúkdómsins finnur fólk fyrir aukinni þreytu á daginn og erfiðleikum með sofna á kvöldin. Líklegt er talið að það tengist þeim breytingum sem verða á boðefnastarfsemi heilans í tengslum við sjúkdóminn. Það getur hjálpað að leita til svefnráðgjafa og finna leiðir til að bæta svefngæðin í samstarfi við hann.

Nú vita vísindamenn að ónógur svefn getur beinlínis valdið heilsufarsvandamálum og aukið líkur á að fá alvarlega sjúkdóma. Góð hvíld er líkamanum nauðsynleg til endurnýjunar og viðhalds og ef hún næst ekki hefur það mjög fljótt áhrif á alla líkamsstarfsemi.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Fæða og jurtir sem hafa áhrif á svefninn
Margir upplifa svefntruflanir og erfiðleika með að sofna einhvern tíma á ævinni. Hvíldin er mikilvæg og það hefur mikil áhrif á heilsuna ef þessar truflanir eru langvarandi. Það er mögulegt að ýmislegt í fæðunni hafi áhrif á hversu vel eða illa fólki gengur að sofa. Skoðum fyrst nokkrar fæðutegundir sem hafa vond áhrif á svefninn.

Gamall ostur

Kjöt

Poppkorn

Sykur

Appelsínur og aðrir sítrusávextir

Tómatar

Kaffi og allir koffeindrykkir

Alkóhól

Í gömlum osti er efni sem heitir týramín en það er amínósýra sem reyndar er í fleiri fæðutegundum en í það miklu magni í gömlum ostum að það getur hækkað blóðþrýsting og valdið hraðari hjartslætti og þar með gert mönnum erfiðara fyrir að sofna.

Það kann að koma mörgum á óvart að sjá á þessum lista kjöt, poppkorn og tómata. Skoðum fyrst kjöt. Hátt hlutfall af prótíni er í kjöti og meltingarkerfið þarf mikla orku til að melta það. Ef kjöt er borðað á kvöldin fer starfsemi meltingarkerfisins á fullt en þegar fólk sefur hægist á allri starfsemi líkamans og kjötið er þá sjaldnast fullmelt þegar menn vakna á morgnana. Þetta getur truflað svefninn þannig að menn ná ekki fullri hvíld.

Trefjarnar í poppkorni örva meltingarkerfið og það er aldrei gott að örva starfsemi líkamans rétt áður en farið er að sofa. Ef þú ert einn af þeim sem finnst gott að borða snakk á kvöldin og velur poppkorn sem hollan kost ættir þú að skoða að velja eitthvað annað. Í tómötum og sítrusávöxtum er sýrur sem geta valdið bakflæði og brjóstsviða. Koffein og sykur veldur álagi á taugakerfi líkamans sem getur gert það að verkum að ekki næst sú slökun sem nauðsynleg er til að sofa vel.

Streita og fæða

Mataræði hefur mun getur ýmist nært taugakerfið eða valdið þar ójafnvægi. Gott er að velja fæðutegundir sem eru ríkar af B-vítamínum til dæmis, egg, lax, jógúrt, avókadó, gróft korn og lifur. Kalkríkur matur eins og mjólk og mjólkurvörur er góður með árunum til að styrkja bein en hann hefur einnig góð áhrif á taugakerfið. Það hefur magnesíum líka og margir taka orðið inn magnesíum en þeir sem vilja fá það úr fæðunni ættu að borða banana, hnetur, baunir og fræ. Omega 3 fítusýrur eru bráðhollar og draga úr streitu og vanlíðan. Þær er að finna í fiski og fiskmeti, innmat og ýmsum fræjum. Hafrar draga líka úr streitu og eru ákaflega hollir fyrir taugakerfið.

Það skiptir miklu máli að hafa reglu á öllum hlutum, fara að sofa á sama tíma, vakna á sama tíma og borða á sama tíma. Sykur, koffín og önnur örvandi efni valda miklu álagi á taugakerfið og geta skapað streitu. Það er líka mikilvægt að hreyfa sig, njóta þess sem veitir þér ánægju og vera úti í náttúrunni.

Góð ráð til að koma á jafnvægi

Ef svefninn hefur verið í ólagi er gott að draga úr koffínneyslu til að koma á jafnvægi að nýju. Draga verulega úr öllu sætindaáti. Ekki borða seint á kvöldin, draga úr neyslu og kolvetnum m.a. brauði og kartöflum.

Róandi jurtir

Nokkrar jurtir virka róandi og geta hjálpað fólki að sofna, ýmist með því að drekka þær í tei eða anda að sér ilminum af þeim. Þessar jurtir eru m.a. slakandi og róandi:

Lavender

Kamilla

Lindiblóm

Hjartafró

Járnurt

Humall

Garðabrúða

Ástríðublóm

Hægt er að fá te sem innihalda þessar jurtir í flestum heilsuvörubúðum. Margir kjósa að hafa litla púða með lavender á náttborðinu eða inni í skáp þar sem þeir geyma sængurfötin. En te af þessum jurtum virka slakandi og menn drekka þau gjarnan klukkustund áður en þeir ætla að fara að sofa.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Er hægt að sofa of mikið?
Afleiðingar svefnleysis á heilsu eru vel þekktar en minna hefur farið fyrir því að rannsakað sé hvaða áhrif það hefur á fólk að sofa of mikið. Nýlega gerðu vísindamenn við sálfræðideild háskólans í Cambridge rannsókn í samstarfi við Institute of Science and Technology for Brain-Inspired Intelligenge við Fudan háskóla í Shanghai á einmitt þessu. Niðurstaða þeirra var að sjö klukkustunda svefn á sólarhring væri æskilegastur fyrir fólk eldra en fjörutíu ára.

Lengi hefur verið vitað að ónógur svefn veldur margvíslegum truflunum á daglegu lífi fólks. Það verður erfiðara að einbeita sér, matarlyst eykst eða minnkar, verkir frá stoðkerfi aukast og hættan á slysum verður mun meiri. Langtíma áhrif svefnleysis eru svo auknar líkur á að þróa með sér hjarta- og æðasjúkdóma, heilabilun, ofþyngd, kvíða og þunglyndi.

Góður nætursvefn er mikilvægur grunnur heilbrigðis sama á hvaða aldursskeiði fólk er og lengi hefur það verið viðfangsefni heilbrigðisstétta að finna leiðir til að tryggja eldri skjólstæðingum sínum endurnærandi svefn á næturna, enda verða langtíma svefnvandamál algengari þegar fólk eldist. Margt eldra fólk sefur lengi en nær ekki djúpum svefni svo hvíldin verður ekki næg. Eftir því sem ástandið varir lengur þess meiri áhrif hefur svefnleysið á heilann.

Áhrif á heilastarfsemi

Ef fólk sefur meira eða minna en sjö klukkustundir samfellt á sólarhring hefur það mjög fljótt áhrif á vitsmunalíf þess samkvæmt niðurstöðum kínversku og bresku vísindamannanna sem gerðu ofangreinda rannsókn. Þátttakendur í Kína og Bretlandi voru allir yfir fertugu og 40.000 þeirra undirgengust mælingar á heilastarfsemi. Eftir að hafa skoðað þau gögn komust vísindamennirnir að því að meiri eða minni svefn en þessar æskilegu sjö klukkustundir höfðu mjög fljótt áhrif á minni, skerpu, athyglisgáfu og lausnahæfni þátttakenda. Þetta átti við um bæði kínversku og bresku þátttakendurna.

Svefnleysi og of mikill svefn hafa sem sé sömu áhrif, hvoru tveggja sljóvgar og dregur úr hæfni mannsins við daglegar athafnir. Vísindamennirnir komust að þeirri niðurstöðu að þeir sem sofa of mikið skerða hæfni sína til að ná djúpsvefni ekkert síður en þeir sem ekki geta sofið. Líkaminn þarf að vera í ákveðnu þreytuástandi til að hið djúpa og endurnærandi REM-svefnstig náist og vari nægilega lengi. Á því stigi framleiðir heilinn sterkju, amyloid, en það er prótín sem er nauðsynlegt heilafrumum til að viðahalda hæfni sinni til hugsunar og úrvinnslu upplýsinga. Það virðist einnig vera að of langur eða of stuttur svefntími hafi áhrif á hæfni líkamans til að hreinsa út úrgangsefni og þess vegna geti eiturefni fremur safnast upp hjá þeim sem ekki ná æskilegum svefntíma á hverjum degi.

Leiðir til að bæta svefninn

Hvort sem fólk sefur of mikið eða of lítið er margt sem það getur gert til að bæta svefnmynstrið þar á meðal er eftirfarandi:

​Skapaðu þér svefnrútínu. Það er mjög erfitt fyrir líkamann að hvílast ef fólk vaknar aldrei á sama tíma og fer að sofa á mismunandi tímum líka. Með því að setja sér fasta fótaferða- og háttatíma og halda sig alltaf við þá er hægt að bæta svefninn mikið. Þótt af og til bregði út af og fólk eigi erfitt með svefn um tíma hjálpar rútínan einnig að yfirvinna slík tímabil. Líkamsklukkan aðlagar sig mjög fljótt að fastri rútínu og við erum fyrirfram prógrammeruð til að sofa á næturna þegar er dimmt. Sumrin á Íslandi hafa áhrif á líkamsklukkuna í hjá sumum einstaklingum en ef þeir halda fast í sínar venjur lagast það yfirleitt fljótt.

​Ekki leggja þig yfir daginn.Að leggja sig ofurlitla stund er freistandi, sérstaklega ef fólk hefur sofið illa en dúrar á daginn hafa vond áhrif á getu fólks til að sofna á kvöldin og sofa samfleytt alla nóttina. Ef þreytan er of mikil ætti fólk að leggja sig ofurlitla stund eftir hádegismat en alls ekki seinna en klukkan 15 og ekki sofa lengur en tuttugu mínútur. Svokallaðir orkudúrar, þegar fólk rétt lokar augunum eru oftast nóg til að hægt sé að ljúka deginum og þeir hafa minni áhrif á nætursvefninn.

​​Skapaðu góðar aðstæður í svefnherberginu.Margir þurfa að snúa sér, veltast um í rúminu, kýla koddann í lag og marg hrista sængina til að finna þægilega stellingu og ná þeirri slökun sem nauðsynleg er til að sofna. Margt af þessu má koma í veg fyrir með því að til dæmis kaupa heilsukodda en þeir halda höfðinu í æskilegustu hvíldarstellingu, hafa nægilega kalt í svefnherberginu, taka inn magnesíum á kvöldin til að koma í veg fyrir fótaóeirð og slaka vel á í um það bil hálftíma til klukkutíma áður en farið er í háttinn. Mjög margir fara beint inn í rúm eftir að hafa horft á sjónvarp eða lokið einhverjum verkefnum. Hugurinn er þá enn á fullu að vinna úr þeim upplýsingum sem teknar voru inn. Góð leið er að hlusta á rólega tónlist, lesa eða gera rólegar teygjuæfingar í þrjátíu mínútur áður en haldið er inn í rúm. Forðist sömuleiðis skær ljós og blá ljós frá öllum skjám áður en þið farið að sofa. Ljósin hafa þau áhrif á heilann að hann telur kominn tíma til að vakna.

​Drekkið ekkert sem inniheldur koffín eða ethanól fyrir háttinn. Koffíndrykki ætti ekki að drekka eftir klukkan fjögur á daginn og áfenga drykki í miklu hófi. Hvoru tveggja eru örvandi efni og það verður erfitt að ná hvíld og slökun hafi fólk neytt slíkra drykkja rétt áður en það fer að sofa.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.