tækni – Lifðu núna

Sjálfstæði fólgið í því að kunna á nýja tækni
Að undanförnu finnst manni að hvert sem litið er og hvenær sem kveikt er á útvarpi sé verið að tala um gervigreind. Ýmist að lofsama hana, vara við henni eða biðja fólk að undirbúa sig undir komu hennar og að því er virðist af máli margra yfirtöku alls samfélagsins. En er gervigreindin eitthvað til að hafa áhyggjur af og hvers vegna ættum við sem eldri erum að setja okkur inn í þessa nýju tækni? Stefán Atli Rúnarsson hefur sett sig rækilega inn í hverju búast má við af gervigreindinni og hann býður upp á námskeið í að nota hana m.a. fyrir eldra fólk.

Fyrst af öllu liggur auðvitað beinast við að spyrja hvers vegna ættum við sem eldri erum að læra að nota gervigreind, við erum hætt að vinna og kunnum flest að nota google og tölvupósta?

„Ég held að gervigreind snúist ekki fyrst og fremst um vinnu heldur um að auðvelda daglegt líf,“ segir Stefán Atli. „Rétt eins og margir lærðu á tölvupóst, netbanka og Google getur gervigreind orðið hjálpartæki sem sparar tíma, útskýrir hluti á einfaldan hátt og hjálpar fólki að halda áfram að vera virkt í samfélaginu.

Margir nota hana til dæmis til að: fá hjálp við að skrifa texta eða tölvupósta, skipuleggja ferðalög, skilja flókin hugtök, finna uppskriftir eða hugmyndir, þýða tungumál eða einfaldlega spyrja spurninga sem þeir hefðu áður þurft að leita lengi að svörum við.

Það er líka ákveðið sjálfstæði fólgið í því að kunna á ný tæki. Tæknin heldur áfram að þróast og ég tel mikilvægt að eldri kynslóðir séu þátttakendur í þeirri þróun en ekki skilin eftir á hliðarlínunni.“

Ekki alltaf mjög áreiðanleg

Í umræðum um gervigreindina hefur komið fram að hún leitast alltaf við að svara jafnvel þótt hún hafi ekki svörin alveg á reiðum höndum. Hvernig getum við vitað hvort svör frá gervigreind séu áreiðanleg?

Þetta er líklega mikilvægasta spurningin af öllum. Gervigreind getur verið mjög hjálpleg en hún getur líka haft rangt fyrir sér. Hún er ekki „alvitur sannleiksvottur“ heldur kerfi sem vinnur úr gríðarlegu magni upplýsinga og reynir að setja saman líklegt svar. Þess vegna þarf alltaf að beita gagnrýninni hugsun, sérstaklega þegar um er að ræða heilsufarsráð, lögfræðileg mál, fjármál, eða annað sem getur haft mikil áhrif á fólk.

Ég ráðlegg fólki oft að hugsa um gervigreind eins og mjög klárt aðstoðarfólk: hún getur hjálpað mikið, gefið hugmyndir og sparað tíma, en maður þarf samt að meta upplýsingarnar sjálfur og bera þær saman við traustar heimildir.

Best er að spyrja fleiri en einnar spurningar, bera svör saman við traustar vefsíður, skoða hvort heimildir fylgi og treysta ekki öllu blindandi bara vegna þess að það „hljómar sannfærandi“.“

Gríðarleg söfnun persónuupplýsinga

Margir óttast þá miklu upplýsingaöflun sem gervigreindin stundar og telja að umfang hennar geti kostað okkur ansi mikið þegar upp er staðið. Hver er þín skoðun á því?

„Ég tel að þetta sé raunverulegt áhyggjuefni sem við eigum að ræða opinskátt,“ segir hann með áherslu. „Mörg tæknifyrirtæki safna gríðarlegu magni upplýsinga um notendur sína og það á ekki bara við um gervigreind heldur líka samfélagsmiðla, leitarvélar og snjallsíma. Við höfum í raun verið að „borga“ fyrir ókeypis þjónustu með upplýsingum um okkur sjálf í mörg ár.

Þess vegna skiptir máli að fara varlega með persónulegar upplýsingar, setja ekki viðkvæm gögn inn í opin kerfi og vera meðvitaður um hvað maður er að samþykkja.

Á sama tíma held ég að lausnin sé ekki að hræðast tæknina heldur að læra á hana. Því betur sem fólk skilur hvernig kerfin virka, því betur getur það tekið upplýstar ákvarðanir.“

Uppspretta hugmynda og góð hjálp við textavinnslu

Að hvaða leyti er gervigreind hjálpleg?

„Mér finnst stærsti styrkur gervigreindar vera sá að hún getur sparað tíma og aukið aðgengi að upplýsingum. Hún getur hjálpað fólki að skrifa texta, draga saman upplýsingar, skipuleggja verkefni, læra nýja hluti, fá hugmyndir, þýða tungumál og einfalda dagleg verkefni.

Fyrir suma getur hún líka minnkað ákveðinn tæknikvíða. Fólk sem hefur átt erfitt með tölvur getur til dæmis spurt gervigreind á venjulegu máli: „Hvernig sendi ég mynd?“ eða „Hvernig virkar þetta?“ og fengið svar á mannamáli.

Ég hef líka séð hvernig hún getur hjálpað fólki að halda huganum virkum, læra nýtt og jafnvel efla sjálfstraust sitt gagnvart tækninni.“

Gagnrýnin hugsun mikilvægust

Er eitthvað sem við öll þurfum að læra varðandi þessa tækni?

„Já, ég held að það mikilvægasta sé að læra að spyrja spurninga, hugsa gagnrýnið og skilja að tæknin er verkfæri — ekki staðgengill fyrir mannlega dómgreind.

Við þurfum ekki öll að verða sérfræðingar í forritun eða tölvunarfræði. En ég held að það verði sífellt mikilvægara að kunna að meta upplýsingar, greina milli staðreynda og rangfærslna og skilja hvernig tæknin hefur áhrif á samfélagið okkar.

Gervigreind mun líklega verða jafn stór hluti af daglegu lífi á næstu árum og internetið varð á sínum tíma. Þá finnst mér mikilvægt að fólk fái tækifæri til að kynnast henni á eigin forsendum, án hræðslu en líka án blindrar trúar,“ segir Stefán Atli að lokum en nefna má að hann hefur haldið námskeið fyrir að má bæta við að ég hef haldið námskeið fyrir yfir 1500 eldri borgara hjá félögum eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu og víðar.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Stafræna byltingin étur börnin sín
Líklega hefur ekki farið framhjá neinum að stafræn bylting hefur átt sér stað á undanförnum árum. Nú þarf ekki lengur að sækja þjónustu í stofnanir, allt fer fram á netinu, gegnum tölvupósta, snjallmenni eða lokaðar síður. Hver og einn einstaklingur þarf orðið að henda reiður á ótal aðgangsorðum, kunna að fara með rafræn skilríki og skrá sig inn af öryggi. Kannski er ekkert undarlegt að þetta sé farið að valda mörgum þeirra sem ólust upp við annars konar samskipti miklum áhyggjum.

Nýlega birti norska tímaritið, Vi over 60, niðurstöðu könnunar sem gerð var af Mannréttindastofnun Noregs (NIM). Þar kom í ljós að einn af hverjum fjórum einstaklingum hefur áhyggjur af að lenda í stafrænni útilokun á efri árum þ.e.a.s. að missa tökin á allri þessari nýju tækni og komast ekki að bankanum sínum, nauðsynlegum samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk og upplýsingum frá stofnunum eða viðskiptum við þær. Svo virðist samkvæmt könnuninni að margir upplifi nú þegar hindranir þegar þeir nýta sér stafræna opinbera þjónustu. Kai Spurkland, forstöðumaður NIM, segir í viðtali við tímaritið að könnunin sýni fram á dekkri hliðar stafrænu byltingarinnar.

Útilokun viðkvæmra hópa

Stafræn útilokun er félagslegt vandamál sem hefur áhrif á ekki bara aldraða. Fleiri en eldri borgarar óttast að vera skildir eftir á stöðinni þegar stafræna lestin fer af stað og ýmsir jaðarhópar finna nú þegar fyrir þessu. Helstu niðurstöður könnunarinnar sýna að:

1 af hverjum 4 óttast að detta út úr samfélaginu þegar þeir eldast vegna þess að þeir geti ekki nýtt sér stafræna þjónustu hins opinbera í framtíðinni.

1 af hverjum 5 hefur átt í vandræðum með að nota þjónustu hins opinbera á síðasta ári eða þekkir einhvern sem hefur átt í vandræðum með að nota slíka þjónustu.

Flestir segjast eiga í vandræðum með að nota banka og heilsusíður á vegum opinberra heilbrigðisstofnana. Ástæður þess segir fólkið vera m.a. tungumálaörðugleika, skort á nauðsynlegum búnaði til að geta tengst internetinu og vanþekkingu á hvað þeir þurfa að gera.

Viðkvæmir hópar eru einkum berskjaldaðir fyrir stafrænni útilokun, í þeim hópi má telja þá sem vegna erfiðrar fjárhagsstöðu hafa ekki aðgang að bestu tækni, innflytjendur eða þá sem ekki hafa að móðurmáli tungumálið sem talað er í landinu, fólk með fötlun, fólk sem glímir við andlega sjúkdóma og þá sem ekki hafa tileinkað sér þá tækniþekkingu sem nauðsynleg er til að komast í samband við hið opinbera. Kai Spurkland bendir á í viðtalinu að opinber þjónusta verður að vera aðgengileg öllum. Yfirvöldum ber skylda til að auðvelda öllum íbúum að tjá sig og taka við upplýsingum samkvæmt sjöttu málsgrein 100. greinar stjórnarskrár norska ríkisins.

Menn eiga rétt á upplýsingum og þjónustu

„Í dag eru internetið og stafrænar lausnir miðlægur hluti allra innviða hins opinbera í flestum vestrænum ríkjum. Stafrænn aðgangur og hæfni til að tileinka sér þá tækni sem hann krefst eru í auknum mæli forsenda fyrir þátttöku í samfélaginu. Könnunin sýnir að þetta er ekki eitthvað sem allir búa yfir,“ segir Spurkland við Vi over 60.

Hann bendir á að aðgangur að opinberri þjónustu sé einnig grundvallaratriði til að vernda fjölda annarra réttinda, svo sem réttinn til heilsu og rétt barna til að tjá sig. Þegar stafræn breyting tekur ekki tillit til varnarleysis viðkvæmra hópa getur hún ógnað ýmsum mannréttindum og leitt til mismununar gagnvart hópum sem eru þegar í viðkvæmri stöðu. Mannréttindasáttmálar skylda yfirvöld til að tryggja að opinberar upplýsingar og þjónusta séu aðgengileg öllum íbúum en Spurkland telur að þar vanti á í Noregi. Það er full ástæða til að velta fyrir sér hvernig þessum málum er háttað hér á landi. Líklegt er að sömu hópar og í Noregi finni sig útilokaða frá almennri þjónustu hér á landi.

Samkvæmt greininni í Vi over 60 stefnir Noregur að því að verða stafrænasta land heims fyrir árið 2030. Það hefur marga jákvæða þætti í för með sér. Stafrænar lausnir gera opinbera þjónustu aðgengilegri á öllum tímum dagsins en það má ekki gleyma að upplýsingar og þjónusta á stafrænu formi eru enn ekki innan seilingar allra. Kai Spurkland telur að um 850.000 manns séu í viðkvæmri stöðu gagnvart stafrænum lausnum í Noregi. Hann hvetur yfirvöld þar í landi til að beita sér fyrir því að tryggja að stafræn þjónusta sé þannig hönnuð og að eins margir og mögulegt er geti skilið og notað hana og sömuleiðis að gera sér grein fyrir að sumir munu aldrei geta notað stafræn verkfæri á sama hátt og stærsti hluti þjóðarinnar. Fyrir þá hópa verður að þróa betri lausnir en þær sem bjóðast í dag. Það væri forvitnilegt að vita hve stór hópur Íslendinga býr við stafræna útilokun og hvernig því fólki gengur að nálgast þá þjónustu og þær upplýsingar sem það á rétt á að fá.

Um könnunina

Verian framkvæmdi könnunina fyrir hönd NIM í mars 2025, í gegnum Gallup Panelet hjá Kantar Media. Yfir 1.000 manns svöruðu könnuninni, sem var unnin með dæmigerðu úrtaki íbúa 18 ára og eldri.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Afi og amma og frumskógar tækninnar
Afar og ömmur hafa alltaf gegnt hlutverki uppfræðara í lífi barnabarnanna. Þau hafa líka séð um barnagæslu og umönnun frá örófi alda. Tæknin hefur hins vegar bæði flækt og bætt þessi hlutverk. Með tækninni er hægt að halda sambandi við barnabörn búsett í fjarlægu landi en hvað á að gera þegar börnin virðast ekki hafa neinn áhuga á öðru en símanum?

Þeim finnst leiðinlegt að spila, feluleikur barnalegur, allar bækur lélegar og ekkert gaman að vera úti. En tölvuleikurinn í símanum er frábær sem og myndböndin á YouTube, TikTok og hvað þeir heita allir þessir miðlar. Það er hægt að sýna áhuga á því sem barnið er að gera og reyna að taka þátt í því. Með því móti er komið í veg fyrir að barnið horfi á eitthvað sem ekki hæfir aldri þess og þroska. Það er líka hægt að tala um það sem barnið sér og gerir. Það hjálpar því að vinna úr hlutunum vitsmunalega.

Það getur líka verið erfitt að feta línuna milli hins ásættanlega og hins sem þau alls ekki vilja. Þegar þau stálpast vilja þau til dæmis að amma og afi fylgist með þeim á SnapChat eða TikTok? Það ber að virða rétt þeirra til einkalífs og það borgar sig alltaf að spyrja þau áður en þeim er send vinabeiðni eða ýtt á follow-takkann. Afi og amma ættu ekki setja þau í þá stöðu að þurfa að neita vinabeiðni frá þér eða loka á þig. Þeim finnst það kannski óþægilegt og eru hrædd um að það virki eins og höfnun á ykkur. Hins vegar finnst þeim líka óþægilegt að vita að þið lesið og sjáið einhvern fíflagang þeirra og vina þeirra.

Ljósmyndir á samfélagsmiðlum

Myndir á samfélagsmiðlum eru vandmeðfarnar og opna á fleira en fólk grunar. Til dæmis geta menn reiknað út hvar viðkomandi er staddur á einhverri tiltekinni stundu eða hvar hann býr þegar myndir birtast ítrekað af heimilinu. Eftir að búið er að hlaða upp myndum verður það ekki aftur tekið. Óravíddir Internetsins gleypa þær og geyma. Í Bandaríkjunum eru dæmi þess að óprúttnir aðilar hafi út frá myndum fundið út hvar fólk býr og í hvaða skóla börnin ganga og nálgast þau eftir það.

Í raun er alltaf viðkvæmt hvernig myndir, hversu oft og hvar má birta myndir af börnum. Sumir foreldrar vilja alls ekki að afi og amma birti myndir af börnunum þeirra á samfélagsmiðlum og það ber að virða. Þótt myndirnar fari ekki endilega á flakk eða komi fyrir augu óæskilegra manneskja er ekki víst að barnið kunni þér þakkir síðar fyrir að birta alls konar myndir sem því þykja vandræðalegar, ljótar eða sýna minningar sem það vildi halda prívat.

Prívatsíður fyrir myndir og myndbönd

Flestir samfélagsmiðlar gera fólki kleift að loka aðgangi almennings að ákveðnu efni og deila því aðeins með nánum vinum eða ættingjum. Það er sjálfsagt að notfæra sér þann valmöguleika þegar kemur að myndefni af barnabörnunum. Á YouTube eða Vimeo er hægt að deila myndböndum án þess að aðrir en þeir sem fá boð um það sjái. Þar er hægt að lesa kvöldsögu fyrir barnabarnið, segja því frá einhverju skemmtilegu sem henti þig og færa því fréttir af öðrum í fjölskyldunni. Þá getur barnið horft á þetta eins oft og það vill og sent þér efni til baka án þess að nokkur annar komi þar að.

Í dag eru smáskilaboð algengasti samskiptamáti manna á milli. WhatsApp, Messenger, Signal, Telegram og fleiri eru notuð óspart um allan heim og billjónir skilaboða fara um þau daglega. Meðal unglingur í dag fær á þriðja hundrað skilaboð daglega í gegnum símann sinn. Rafræn skilaboð eru góð leið til að hafa samband og minna barnabörnin á sig. Þau eru líka ódýr ef þau búa í öðru landi. Nú er hægt að senda litlar skemmtilegar myndir emoji með til að gera skilaboðin líflegri og gleðja börnin. En það þarf að gæta þess að gera ekki of mikið af þessu og trufla þau. Eins ættu afi og amma aldrei að senda eitthvað sem getur reynst vandræðalegt fyrir barnið ef vinir þess sjá það.

Það er sjálfsagt að nýta sér tæknina til að njóta samveru með barnabörnunum og skapa tengsl við þau en enginn ætti samt að hætta að reyna að kynna þau fyrir veröld sem var. Þeirri veröld sem afi og amma ólust upp í, með bókum sem haldið var á og lesið upphátt úr, útileikjum, spilum og notalegri nánd.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Sjúklingar virkir þátttakendur í öflugu appi Landspítala
Á Landspítala hafa þau Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls-, nef- og eyrnalækninga, og Adeline Tracz, teymisstjóri nýþróunar, þróað app sem er ætlað fyrir sjúklinga sem þiggja þjónustu á Landspítala. Landspítali var valið UT-fyrirtæki á síðasta ár fyrir stafræna þróun og er app þeirra Adeline og Arnars sannarlega hluti af þeim árangri.

Þau segja öll rafræn framfaraskref á spítalanum snúast um að gera skráningu sjálfvirka og auka upplýsingaflæði milli sjúklinga og starfsfólks. Þau auðveldi vinnu og auki hagræðingu en ekki síður öryggi sjúklinga og tryggi sem besta meðferð og sjúklingaappið er liður í því. Fólk hefur tekið appinu fagnandi en yfir 180.000 Íslendingar eru komnir með aðgang að Landspítala-appinu og  u.þ.b. 1.900 sjúklingar nota appið daglega.

Arnar Þór Guðjónsson

Kveikjan að appinu varð til í flugvél

Hver var kveikjan að því að búa til þetta app?

„Hugmyndin að appinu varð eiginlega til um borð í flugvél og byggir á svipaðri hugmynd og boðið er upp á í lengri flugferðum að sjúklingur geti, líkt og flugfarþegi, séð fyrirliggjandi dagskrá, rannsóknir, hvaða læknir sé ábyrgur, séð tilkynningar, matseðil og heimsóknartíma, en einnig haft samskipti við hjúkrunarstarfsfólk viðkomandi deildar í gegnum skilaboð. Þessi myndlíking um ferðalag leiddi okkur áfram og inn í fyrstu skrefin í átt að verkefninu. Við veltum fyrir okkur hvort sjúklingar mættu ekki vita hvað væri í gangi meðan á spítaladvölinni stæði og hefðu rétt á að sjá gögn um sjálfa sig og sjá þau í rauntíma,“ segir Arnar.

Þau Adeline og Arnar segja að ríkisstjórnin hafi verið með fjárfestingarátak 2020 til að auka nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og nam upphæðin sem í boði var allt að 15 milljónum króna. Þau sóttu um og fengu stærsta styrkinn til að vinna að appinu. Þar sem það tókst vel að búa til app fyrir inniliggjandi sjúklinga á háls-, nef- og eyrna-, lýta-, bruna- og æðaskurðdeild A4 hefur Landspítalinn ákveðið að halda áfram á þróa appið fyrir alla sjúklinga. Appið hefur verið í stöðugri þróun síðustu fjögur ár með einni nýrri útgáfu á mánuði.

Í júní 2023 var appið opnað fyrir alla sjúklinga Landspítala.

https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/fraedsluefni/landspitalaappid/

Adeline Tracz

Veitir innsýn og bætir upplifun sjúklinga

Markmiðið með appinu, að sögn Adeline og Arnars, er að gefa sjúklingi betri innsýn inn í meðferð sína, bæta upplifun hans, auka öryggistilfinningu og gera honum kleift að taka virkari þátt í eigin meðferð.

Sjúklingur getur skoðað tímabókanir, rannsóknarniðurstöður, lyfjaupplýsingar, nöfn ábyrgra aðila, lífsmörkin og leyft aðstandanda fylgjast með skurðaðgerðum í rauntíma. Haustið 2022 var innskráningarþjónusta og umboðskerfi Stafræns Íslands innleitt inn í appið sem gefur sjúklingum mögulegt að veita öðrum umboð og gerir foreldrum og forráðamönnum kleift að fá aðgang að appinu fyrir börn sín.

Þróaðir hafa verið spurningalistar sem starfsfólk getur sent til sjúklinga í appið áður en sjúklingur t.d. mætir í aðgerð. Svör sjúklinga úr appinu vistast jafnóðum í sjúkraskrá sjúklings og hjálpa starfsfólki að undirbúa betur innskrift fyrir aðgerð.

Þá geta allar konur haft samband beint við Brjóstamiðstöð með því að senda skilaboð til að lýsa einkennum og fá tíma og niðurstöður algengustu blóðprufurannsókna á Landspítala voru frá og með 13. júní 2023 aðgengilegar tveimur sólarhringum eftir komu. (https://www.landspitali.is/um-landspitala/fjolmidlatorg/frettir/stok-frett/2023/06/20/Algengustu-blodprufunidurstodur-sjuklinga-komnar-i-Landspitalaappid/)

Flest sýkla- og veirufræðisvör eru strax aðgengileg í appinu og verið er að innleiða þjónustukannanir strax eftir útskrift í appinu.

Sjúklingurinn virkur þátttakandi

Verkefni það sem Arnar og Adeline hafa verið að vinna að ásamt teymi Adeline á þróunarsviði, Haraldi Orra Haukssyni, Kristmundi Ólafssyni,  Jóni Gunnari Hannessyni og Ólafi Óskari Ómarssyni, snýst um að gera sjúklingum Landspítala mögulegt að nálgast upplýsingar um innlögn og komur þeirra í gegnum app og er tilgangurinn meðal annars sá að sjúklingurinn hafi upplýsingar um stöðu sína og viti hvað fram undan sé á meðan dvöl hans á spítalanum stendur en sá tími getur verið krefjandi fyrir sjúklinginn. Þau segja að þessi lausn efli sjálfsöryggi og ábyrgð sjúklings sem síðan skili sér í heilsteyptara ferli.

Auðkenning notanda er gerð með rafrænum skilríkjum og hver notandi hefur einungis aðgang að upplýsingum sínum og þau taka fram að mati á öryggi appsins hvað snertir vernd persónuupplýsinga sé að ljúka.

Þegar blaðamaður spyr á hvaða hátt appið sé frábrugðið fyrirliggjandi kerfi segja þau að ekkert hafi verið til fyrir inniliggjandi sjúklinga, appið sé ekki síður fyrir sjúklinga en starfsfólk og með því sé ætlunin að gera þá að virkum notendum.

„Þetta er mjög öflugt og frumlegt app og við vitum ekki til þess að svona app hafi verið útfært áður, alla vega ekki á Norðurlöndunum,“ segir Adeline.

Hverju á sú framþróun sem felst í appinu að skila?

„Sjúklingurinn mun upplifa að hann sé nátengdur meðferðarteyminu, hann sé upplýstur um það sem verið er að gera og um það sem er fram undan í sjúkrahúslegunni og eftirmeðferð. Meiri sjálfvirkni og aukið gagnsæi í upplýsingagjöf mun skila sjúklingum Landspítala bættri þjónustuupplifun og einnig skila stofnuninni sparnaði,“ segir Arnar.

Upplýsingar í appi eru verðmæt gögn

Búið er að tryggja það sem snýr að gagnaöryggi, sem þýðir að gögnin séu aðgengileg og áreiðanleg og upplýsingar rétt tengdar í öllum tölvukerfum Landspítala. Þetta er meðal annars hlutverk samþættingarlags Heilsugáttar. Gögnin geta innifalið mikilvægar upplýsingar sem hægt er að nota til að bæta ýmsa þætti bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk auk þess sem skráðum upplýsingum fylgir meira öryggi. Og nú í fyrsta sinn geta sjúklingar bæði fylgst með því sem fyrirhugað er að gera og skráð líðan og starfsfólk séð hvort verið er að biðja um vatnsglas eða láta vita af sárum verk.

„Verðmæti gagna felst í notkun þeirra – með því að frelsa gögn úr lokuðum kerfum spítala og birta þau í appi erum við að búa til verkfæri sem mun leiða til umbyltingar á spítalanum þar sem það stuðlar að því að efla öryggi og sjálfstraust sjúklinga. App-kóðinn er eign Landspítala, og eftir fjögurra ára þróun hefur notkun appsins aukist hægt og bitandi,“ útskýrir Adeline.

Appið er í stöðugri framþrónun og þau segja að fram undan sé að því að bjóða upp á að bóka tíma í nokkrum sérgreinum fyrir sjúklinga sem eru í eftirliti. Bjóða upp á að lýsa ástæðu komu á meðan sjúklingur bíður á bráðamóttöku, svo dæmi sé tekið. Fyrir sjúklinga sem eru undir ströngu eftirliti, eins og hjartasjúklinga, verður einnig hægt að samþykkja að láta lífsmarkagögnin úr snjallúrum eða mælitækjum sem sjúklingur á heima flæða beint í gegnum appið til Landspítala. Veflausn spítalans, Heilsugátt, mun gera starfsfólki kleift að fylgjast með gögnum og birta viðvörun ef þörf krefur.

Arnar og Adeline segja að vitanlega hafi verið ýmsar áskoranir í ferlinu eins og að hanna innskráningu með rafrænum skilríkjum, velja dulkóðunaraðferð, hanna samþættingu, ýmiss konar app-þjónustu og útlitið en að allt þetta hafa tekist einstaklega vel.

Appið er auðvelt í notkun og allt viðmót mjög einfalt og leiðir fólk vel áfram en blaðamaður fékk að prófa og getur fullyrt að svo sé.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.

Aldrei klikka á einhvern link
Nýlega varð Lifðu núna fyrir því að brotist var inn á facebook-síðu vefjarins og við tók margra vikna barátta við að ná henni til baka. Einhver óprúttinn aðili í Bandaríkjunum náði að fá stjórn á síðunni og gerði tilraun til að ná til sín peningum gegnum auglýsingareikninginn. Góðu fréttirnar eru að ritstjórninni tókst að ná síðunni aftur en þær slæmu að falskir póstar og netsvindl verða sífellt vandaðri svo erfiðara og erfiðara reynist að verjast því.

Falskir póstar í umferð frá alls konar virtum fyrirtækjum hafa aldrei verið fleiri en nú. Þetta er plága sem herjar á allan heiminn jafnt og víða í þriðja heims ríkjum eru símaver þar sem fólk vinnur beinlínis við það allan daginn að tæla saklaust fólk á Vesturlöndum til að gefa peninga ýmist til einstaklinga eða meintra góðgerðafélaga.

Á bak við flesta netreikninga eru kreditkort og þau eru fjársjóðskistan sem þessir svindlarar eru að sækjast eftir að komast í. Þótt flestir séu fljótir að uppgötva svindlið ná þeir engu að síður samt einhverju áður en það gerist og það dugir til að gera þetta að arðbærum „bisness“.

Ástarsvindl

Verst að tegund svindls af þessu tagi eru menn sem herja á einmana manneskjur um allan heim, hefja netspjall við þær, byggja upp samband og leika sér að tilfinningum þeirra. Oft ná slíkir svindlarar ævisparnaði fórnarlamba sinna áður en þau átta sig á að þau eru leiksoppar óvenjulega samviskulausra manneskja. Hér á landi ná þessir ástarsvindlarar tugum milljóna af hrekklausu fólki. Í Fréttablaðinu birtist frétt árið 2021 um að tuttugu tilkynningar um svindl af þessu tagi hefðu borist lögreglu á því herrans ári en vitað er fæst fórnarlömb svona glæpa tilkynna þá. Skömmin er of mikil til þess. Að auki er tilgangslítið að kæra því þótt hægt sé að hafa upp á símaverinu eða tölvunni að baki svindlinu er sjaldnast hægt að koma nokkru réttlæti yfir svindlarana og peningarnir eru að eilífu glataðir.

Algengasta svindlið er að senda pósta í nafni einhvers fyrirtækis. Oft er um að ræða virt fyrirtæki eða stofnanir í því landi sem um ræðir. Allir hér á landi kannast við svindlpósta í nafni Íslandspósts en íslenskir bankar hafa einnig verið notaðir í þessum tilgangi. Facebook er vinsælt meðal svindlara og póstar um að reikningi þínum verði lokað bregðist þú ekki strax við eða að þú verðir að staðfesta reikninginn þinn ekki seinna en strax því eitthvert efni inn á honum stríði gegnum reglum facebook-samfélagsins eru meðal þess algengasta.

Viðvörunarbjöllur ættu þegar að taka að hringja þegar eitthvað er sagt áríðandi eða svo aðkallandi að bregðast verði við strax. Í netheimum er gerast hlutirnir ekki svo hratt. Hið sama gildir ef menn eru beðnir að staðfesta kort sín eða greiða fyrir eitthvað eins aukapóstburðargjöld. Um leið og beðið er um slíkti hugsið ykkur vandlega um. Það er líka góð og gullin regla að klikka aldrei á neinn link nema að vel athuguðu máli.

Hvað ástarsvindlið varðar er gott að hafa í huga þá gömlu speki ef eitthvað virkar of gott til að vera satt er það oftast of gott til að vera satt. Stundum er tilgangurinn með þessu öllu hins vegar hálfóskiljanlegur. Fyrir nokkru tröllreið facebook svindl þar sem fólk fékk vinabeiðnir frá einhverjum sem umsvifalaust eftir að þær voru samþykktar sendi skilaboð og bað um símanúmerið þitt. Stundum komu þessar beiðnir reyndar frá fólki sem þegar voru vinir viðkomandi á facebook og hann þekkti vel. Hakkarnir höfðu þá þegar komist yfir reikning hans. Fólki var talin trú um að um facebook-leik væri að ræða og það beðið að slá inn kvóta. Þegar það hafði verið gert höfðu svindlararnir náð yfirráðum yfir reikningi þínum. En í þessum tilvikum virtust menn ekki vera á höttunum eftir peningum, í það minnsta heyrðist ekki um það talað en margir lentu í miklum vanda við að ná stjórn á síðunum sínum aftur.

Skoðaðu netföng að baki pósta

Nokkrar öryggisreglur er gott að hafa í huga hvað sem verið er að gera á netinu. Skoðaðu alltaf netföngin að baki öllum póstum sem þú færð. Fyrirtæki senda venjulega úr póstforritum sem sett eru upp í þeirra nafni og þá er það jafnan í netfanginu. Hvað íslensk fyrirtæki varðar er þetta auðvelt, landsbankinn.is, posturinn.is, islandsbanki.is og svo framvegis. Outlook.com er ekki öruggt netfang sé um að ræða erlend stórfyrirtæki.

Ef einhver linkur fylgir pósti frá sendanda sem þú þekkir ekki aldrei klikka á hann nema að vel athuguðu máli. Staðfestu fyrst með símtali í fyrirtækið sem sett er að baki eða einhvern tæknivísan aðila að skilaboðin séu raunverulega frá þeim sem þau eru sögð vera frá.

Gott er líka að staðfesta alltaf að þær netsíður sem verslað er við séu virtar og selji góðar vörur. Margir hafa lent í að panta eitthvað fallegt á netinu en fá annað hvort aldrei vöruna eða eitthvað sem líkist ekki einu sinni því sem pantað var. Neytendur um allan heim hafa brugðist við þessu með því að tilkynna síður og nú er oftast hægt að gúggla netverslanir og fá umsagnir um þær, góðar og slæmar.

Það er einnig gott að hafa vírusvörn í tölvunni og skanna hana af og til. En umfram allt flýta sér hægt og taka öllu á veraldarvefnum með ákveðinni tortryggni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Tapað fyrir tækninni
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Sumir tala vélamál. Þetta fólk þarf ekki annað en líta á flóknar vélar til að skilja hvernig þær vinna og hvað þarf til að ná út úr þeim hámarksafköstum. Aðrir eru með þeim ósköpum gerðir að þeir mega ekki líta á nokkra maskínu öðruvísi en svo að kvikindið bili eða taki upp á einhverjum skelfilegum skammarstrikum. Ég er í síðari flokknum.

Fyrir nokkrum dögum komst ég að því að ég er ekki ein um þetta. Sennilega er þetta ættgengur andskoti þegar allt kemur til alls. Kona mér náskyld er mikill tungumálasnillingur. Hún talar sjö en eitt þeirra er alls ekki vélamál. Blessunin varð nefnilega fyrir því óláni að skyndilega tók tölvan hennar upp á að svara öllu gúgli á finnsku. Hið hljómmikla tungumál Tégners og Sibeliusar er ekki eitt af þeim sjö sem hún hefur á valdi sínu þannig að í hvert sinn sem hinn alvitri Google er spurður ráða situr konan og klórar sér í höfðinu yfir flóði upplýsinga sem hún sér enga leið til að notfæra sér.

Þetta skyldmenni mitt sver og sárt við leggur að enga skipun hafi það gefið eða fiktað í nokkrum takka sem valdið gæti þessu uppátæki tölvunnar. Ég trúi því. Mín fyrsta tölva var illkvittið og andstyggilegt fyrirbæri. Reglulega át hún af viðurstyggilegri og miskunnarlausri græðgi heilu og hálfu skjölin. Ekki var nokkur leið að finna neitt af þessu aftur og ég horfði á eftir mínum fegurstu setningum og snilldarlegustu hugmyndum hverfa í iður vélarskrímslisins. Trúið þeim sem reynsluna hefur, svoleiðis er ekki hægt að fyrirgefa.

Fædd á rangri öld

Ég hef aldrei náð fullu valdi á neinu tæki. Gömlu símtækin voru frábær að mínu mati því þau gerðu ekki aðrar kröfur til manns en þær að festa ekki puttana í götunum þegar skífunni var snúið. Pínulitlu takkarnir á nútímasímum eru ávísun á vandræði og ég hef lent í að skella á mikilvægt fólk, heyra skyndilega rödd mína hrópa úr hátalara sem ég ætlaði sannarlega ekki að taka í gagnið og fá ýmis undarleg píp og bíbb inn í samtöl mín.

Farsímarnir mínir hafa líka lifað af hremmingar sem slíkum tækjum er alla jafna ekki ætlað að ganga í gegnum. Meðal þeirra eru nokkurra klukkustunda vist í ísskápnum, bað, hálfsteiking á eldavélinni og óteljandi högg eftir að hafa fallið úr mismunandi mikilli hæð. Ég dáist reyndar að seiglu þeirra og aðlögunarhæfni en verð að viðurkenna að stundum pirra þeir mig ósegjanlega þegar ég ætla til dæmis að senda SMS-skilaboð og kvikindin kveikja hvað eftir annað á myndavél sem ég kæri mig alls ekkert um að nota.

Eitt sinn átti ég líka myndbandstæki sem hægt var að stilla á upptöku fram í tímann. Það fannst mér mikill kostur og ætlaði einu sinni að notfæra mér þennan hæfileika. Skemmst er frá því að segja að tækið bar aldrei sitt barr eftir þá tilraun og fór tvisvar í viðgerð. Ég missti auðvitað af þættinum góða. Þegar ég vann í banka á sínum tíma opnuðum við eitt sinn sérríflösku á föstudegi til að skála fyrir góðum árangri deildarinnar. Mér tókst að hella úr mínu staupi yfir reiknivélina mína sem umsvifalaust tók að æla upp pappírsborðanum sem sýndi einhver furðutákn sem hvergi var að finna á töluborðinu. Táknin líktust helst litlum köllum með kínverska hatta. Ég lyfti upp reiknivélinni og horfði sorgmædd á sérríið leka úr henni niður á borðið. Það var ekki fyrr en tveimur vikum seinna að ég þorði að játa brot mitt og senda hana í viðgerð. Samstarfskonur mínar bentu reyndar á að skynsamlegra væri sennilega að koma henni á Vog.

Nei, ég hef líklega ekkert erindi á tækniöld. Ég þrái einföld tæki. Hugsið ykkur til dæmis ef til væri saumvél þar sem efninu væri troðið í annan endann, ýtt á takkann buxur og út um hinn kæmi þessi fína flík. Dásamlegt væri líka ef maður gæti talað við tölvuna sína í stað þess að þurfa stöðugt að passa sig á að ýta ekki á einhverja tvo eða þrjá takka samtímis sem gæti valdið því að margra daga vinna ónýttist eða sjálfur Google tæki upp á að tala óskiljanlegt mál. Já, veröldin væri áreiðanlega betri staður ef ekkert tæki hefði fleiri takka en tvo og gæti lesið hugsanir eigandans.

Raunir tækniidjótsins
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Á facebook þar er lífið, vinirnir, samskiptin, gleðin og árangurinn. Já, ég þori að fullyrða þetta eftir að hafa verið útilokuð frá facebook í viku og beinlínis svelt af þeim vettvangi og nú skal ég segi ykkur söguna af hvernig það vildi til.

Á laugardaginn var laumaðist ég, eins og ég geri gjarnan, inn á vinnupóstinn minn. Er auðvitað að reyna að gæta jafnvægis milli vinnu og einkalífs, svona eins og flestir, en af og til blæs egóið svo hressilega út að ég tel mig fullkomlega ómissandi og þá henda mig svona útkikk eða innkikk kannski réttara sagt. Í pósthólfinu var að finna bréf frá facebook þar sem mér var tilkynnt að efni á síðu Lifðu núna stríddi gegn reglum samfélagsins á þeim miðli og innihéldi sviksamlegt, dónalegt, hatursfullt, meiðandi eða pólitískt efni og þar sem starfsmenn Elons Musk tæku alvarlega þá skyldu sína að vernda saklausa notendur fyrir dónakerlingum eins og mér yrði síðunni lokað brygðist ég ekki við póstinum og óskaði eftir endurskoðun.

Almennt er ég löghlýðin og samviskusöm svo mér datt ekki í hug að láta sem ég sæi ekki jafnbrýnt og aðkallandi erindi svo ég smellti á hlekkinn sem fylgdi, fékk upp hólf þar sem mér var gert í 500 orðum að gera grein fyrir syndum mínum og hvernig ég hygðist gera yfirbót. Ég tíundaði að sjálfsögðu sakleysi mitt og hélt því fram fullum fetum að fátt móðgandi eða illkvittnislegt væri að finna á Lifðu núna, eiginlega þvert á móti. Þarna væri að finna áhugavert, fróðlegt og skemmtilegt efni og bað síðan auðmjúklega um að menn í tæknihöll facebook endurskoðuðu álit sitt á minni ritstjórnarstefnu og litu til mín í náð.

Að þessu loknu taldi ég mig nokkuð góða og beið syndaaflausnar. Þess í stað birtist reiðileg tilkynning á skjánum. Hér með er þessari síðu lokað enda efni hennar slíkt að ekki sæmir sómakærum facebook-notendum að berja það augum. Og svo varð allt svart.

Frá þeirri stundu hefur líf mitt, vakandi og sofandi snúist um að ná aftur facebook. Allan daginn, aftur og aftur, hef ég farið sama hringinn. Sent beiðni um breytt lykilorð, breytt notendanafn, opnun, náð og miskunn en tölvan hélt áfram að segja nei. Ég var útskúfuð, hötuð og smáð. Ég er mögulega tæknifatlaðasta manneskja norðan Alpafjalla. Helst vegna þess að ég hef nákvæmlega engan áhuga á hvernig vélar virka, geri bara þá kröfu að þær hlýði þegar ég bið um eitthvað. Ef ég ýti á takka ætlast ég til að eitthvað gerist og ef það bregst er ég fyrst allra til að æpa: „Bilað, ónýtt, út með það.“ En nú var það ekki í boði. Margra ára vinna lá undir. Ég beit því á jaxlinn og hélt áfram að hrópa: „Sesam opnist þú!“ Leitaði meira að segja til tækniseiðkonu í öðru landi en þessi móri, nú eða skotta, sem hlaupin var í facebook fékkst ekki einu sinni kveðin niður með öllum hennar fjölvísu ráðum.

Nú voru góð ráð dýr. Ég hélt áfram að reyna og sko, fyrir einhverja ótrúlega töfra lauk Sesam upp dyrum sínum og ég komst inn á mánudagsmorgni eftir að hafa verið heila helgi án facebook. En þar með var björninn ekki unninn. Lifðu núna síðan var enn lokuð. Aðeins ég gat séð hana og notið hennar. Og aftur var haldið af stað sama hringinn, enn einn snúninginn. Á föstudegi, tæpri viku eftir að ég missti facebook var tölvunni svo komið í gjörgæslu tæknisnillings hjá Tölvuaðstoð. Úrvinda kona hélt heim, þess fullviss að hún stefndi hraðbyri í kulnun en með veika von í hjarta um að galdramaður þessi gæti komið hlutunum í samt lag.

Síðastliðinn mánudag var ljóst að jafnvel öflugur seiðkarl af hæstu gráðu í tæknikunnáttu gat ekki tjónkað við facebook. Tölvan var sótt og framlág kona skreiddist heim þess fullviss að málið hefði siglt í endanlegt og varanlegt strand. Eftir svefnlausa nótt hugkvæmdist mér loks að reyna að kaupa „boost“ á eina greinina á síðu Lifðu núna. Þá fékk ég þau skilaboð að ég gæti ekki keypt auglýsingu á efni sem ekki væri aðgengilegt í því landi sem ég hygðist dreifa því í. Ef ég vildi breyta þessu var mér ráðlagt að fara í Page settings og opna fyrir aðgengi í fleiri löndum. Þetta gerði ég og eftir langa leit fannst flipi með yfirskriftinni Country. Smellt var á hann og viti menn Lifðu núna var einungis aðgengilegt í Bandaríkjunum. Þessu var snarlega breytt og nú er allur heimurinn undir. Lifðu núna er öllum opið. En mikið hefði nú verið gaman og gott að uppgötva þetta fyrr. Lexían sem ég lærði af bröltinu er hins vegar tvíþætt, annars vegar að smella aldrei á nokkurn link eða tengill nema að vel athuguðu máli og hins vegar að gefast aldrei upp í baráttunni við blessaða eða bölvaða tæknina.

Broskarl úr bankanum
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ég er nú svo gömul sem á grönum má sjá og hef þess vegna farið í gegnum nokkrar samskiptabyltingar. Þegar ég var að alast upp var síminn vissulega kominn inn á hvert heimili en það var dýrt að hringja og þótt sumir trúi því ekki þá kostaði meira að hringja til Vopnafjarðar en í vesturbæinn. enn meira að hringja til Danmerkur og guð hjálpi þeim sem átti ættingja í Afríku. Bréfaskriftir voru því helsta samskiptaleiðin milli landshluta og landa.

Það var mjög vinsælt á þessum árum að eiga pennavini. Ég átti fimm, meðal annars í Sandgerði, Bretlandi og Svíþjóð og á Vopnafirði. Maður lagði mikinn metnað í þessi skrif, keypti dýrum dómum falleg bréfsefni í Pennanum, sem þá hafði ekki spyrst við Eymundsson, og reyndi svo að skrifa eitthvað áhugavert og skemmtilegt. Stundum var það þrautin þyngri, einkum og sér í lagi þegar baksað var við að skrifa á erlendu tungumáli því orðaforðinn var takmarkaður.

Svo kom að því að í skólanum var þess krafist að við lærðum vélritun og undirstöðu viðskiptabréfasmíða. Þetta fannst okkur vinkonunum arfavitlaus námsgrein, enda ætluðum við að ekki verða einkaritarar eins eða neins. Svona getur framtíðin oft verið óljós og duttlungafull því auðvitað var þetta blessað fag svo eitt það gagnlegasta.

Ég fór að vinna í banka og þar reyndi á kunnáttuna í viðskiptabréfaskiptum. Formið var fast og niðurnjörvað og ef vikið var frá því þótti það ekki svaravert. Ég varð fljótt sérfræðingur í ávörpum, tilvísunum í eldri bréf, númermeringum mála og kveðjum er hæfðu hverju tilefni. Allt var þetta ritað á rafmagnsritvél og mikið var bankastarfsmaðurinn þakklátur þegar Tip Ex fann upp kalkipappír er hægt var að leggja á blaðið, slá á bókstafinn aftur þannig að hann yrði hvítur og þannig leiðrétta innsláttarvillur.

Telex og fax voru í næsta herbergi og þar var hægt að senda bréfin milli landa án aðstoðar póstþjónustunnar og vá, hvað þetta var ofboðslega framúrstefnulegt og stórkostlegt. Síminn var áfram dýr og aldrei notaður nema í neyð. Á þessum tíma var gert stólpagrín að myndsímum í sjónvarpsþætti. Rosalega fyndið að ná hugsanlega manneskju í rúminu gegnum slíkan síma, með rúllur í hausnum og maska í andlitinu. Dyrasímar með myndavél voru líka uppspretta slíkrar kátínu því auðvitað fannst okkur fjarstæðukennt að einhver myndi nokkru sinni geta leyft sér svo rándýran lúxus og hvað þá að þörf væri fyrir hann. Já, það er oft sannleikur í gömlum máltækjum, þeirra á meðal sá hlær best sem síðast hlær.

Svo komu tölvurnar, tölvupósturinn, netið og samskiptamiðlarnir. Þvílík bylting. Aldrei hefði manni dottið í hug að handan við hornið væru tölvur með myndavélum sem gerðu manni kleift að spjalla augliti til auglitis við fólk hinum megin á hnettinum. En allt er þetta orðið að veruleika og komið til að vera og með því nýjar og mjög svo varasamar leiðir til tjáningar. Já, ég er að tala um tjákn. Hverjum hefði dottið í hug að það að senda einhverjum fallega mynd af eggaldini fæli í sér vafasöm skilaboð, jafnvel tilboð. Ég veit alls ekki hvað epli þýðir á þessu nýja tungumáli og enn síður hvort óhætt er að senda litla teikningu af reiðhjóli. Og hvað þýðir krúttlegi bleiki kolkrabbinn?

Allar reglur og formfesta virðist flogið út um gluggann. Kurteislegu, auðmjúku og yfirveguðu ávörp viðskiptabréfanna eru liðin tíð. Sama um kveðjurnar og vinsamlegu beiðnirnar um að viðkomandi sinni nú vinnu sinni og reyni að leysa með þér vandamálið sem upp kom. Engum dettur heldur í hug að senda bréf milli landa með fréttum af sundnámskeiðinu sem hann er á og hvernig gekk í enskutíma í skólanum. Eiginlega gekk alveg yfir mig um daginn þegar ég átti í tölvupóstsamskiptum við bankann minn og starfsmaðurinn sem hafði leyst fyrir mig málið sendi mér glaðlegan, gulan broskarl í lokin. Söng ekki Þursaflokkurinn einhvern tíma; Nútíminn er trunta. En það á þó ekki alveg við því nútímatæknin er gæðingur sem skeiðar fram úr hverri aflóga bikkjunni á fætur annarri og þær eiga ekki annað val en haltra þar á eftir í veikri von um að þeir síðustu verði einhvern tíma fyrstir. Í millitíðinni ætla ég að forðast tjáknsendingar eins heitan eldinn.

Hvernig met ég tölvukunnáttu mína?
Það eru ekki nýjar fréttir fyrir lesendur Lifðu núna að það er mikilvægt að viðhalda og helst stöðugt vera að bæta færni sína í að nýta sér tölvutæknina. Án slíkrar viðleitni er hætt við að maður verði fljótt utangátta í samfélaginu, sem verður stafrænna með hverjum deginum. Og sú þróun á bara eftir að halda áfram sbr. umræðuna um gervigreind og fjórðu iðnbyltinguna.

Ein aðgengileg og áhugaverð leið til að leggja mat á færni sína á þessu sviði er „Stafræna hæfnihjólið“ svonefnda. VR heldur Stafræna hæfnihjólinu úti, en það er ókeypis sjálfsmatspróf sem maður tekur á vefnum til að kortleggja stafræna hæfni sína. Í prófinu eru „sextán hæfnisvið greind á þínu persónulega hæfnihjóli,“ eins og því er lýst á síðunni stafaenhaefni.is. Á grundvelli niðurstaðna úr prófinu eru dregin út þrjú svið sem próftaka er ráðlagt að einbeita sér að því að styrkja. Með þær ráðleggingar í farteskinu er auðveldara að meta hvers konar endurmenntunarnámskeið hentar best til að styrkja sig á einmitt þeim sviðum þar sem skóinn helst kreppir.

Um stafræna hæfnihjólið

Markmiðið með stafræna hæfnihjólinu er að veita yfirsýn yfir hvaða mismunandi stafrænu hæfnisvið eru til og skipta máli, ásamt beinum uppástungum um hvernig auka megi hæfni á mikilvægustu sviðunum.

Stafræna hæfnihjólið var búið til af Center for digital dannelse, sem frá árinu 2009 hefur einbeitt sér að málefnum er varða stafræna hæfni og fræðslu því tengdu. Stafræna hæfnihjólið er fjármagnað af DIGCOMP, stóru rannsóknarverkefni hjá

Helstu svið stafrænnar hæfni hvers einstaklings.
Skýringarmynd Stafraenhaefni.is/Center for Digital Dannelse

Evrópusambandinu, sem sett var á fót í kjölfar þess að Evrópuþingið útnefndi stafræna hæfni sem eitt af átta kjarnahæfnisviðum símenntunar. Þýðing og kostun vefsins á Íslandi er fjármögnuð af VR.

Eftir Anders Skov hjá Center for Digital Dannelse er haft að tæknin sé í stöðugri þróun og opni sífellt á nýja möguleika. „Skilgreiningin á stafrænni hæfni er því síbreytileg og skal ávallt skoðast með hliðsjón af tæknilegu samhengi nútímans og hvernig við tileinkum okkur hana í leik og starfi.“

Mælingar á stafrænni notkun og netnotkun í Evrópu snúast nú meira um að greina aðgang og notkun en raunverulega hæfni (þ.e. að mæla gæði, viðhorf og aðferðir við notkun). Það að kunna á helstu stafrænu tólin og geta bjargað sér í netumhverfi er þó aðeins fyrsta skrefið í átt að framúrskarandi stafrænni hæfni, segir Anders Skov. Þróun stafrænnar hæfni ætti að vera áframhald á kunnáttu á tæki og tól, og felist sífellt meira í hæfnisviðum sem krefjist virkrar þátttöku, samskipta, gagnrýni og skipulags.

Mikil notkun ekki ávísun á hæfni

Aukin tölvu-, snjallsíma- og netnotkun eykur ekki sjálfkrafa getu fólks til þess að nýta sér tækni á mismunandi sviðum. Mikil notkun þýðir ekki endilega að einstaklingurinn öðlist hæfni í að beita gagnrýninni hugsun við leit og mat á upplýsingum. Það er mjög einfalt að viðhalda sama hæfnistigi og halda sig við að nota eingöngu sömu forritin. Þess vegna skal ekki líta svo á að mikil tækninotkun jafngildi mikilli stafrænni hæfni, fullyrðir Anders Skov frá Center for Digital Dannelse einnig.

Ljóst er að skilgreining á stafrænni hæfni mun breytast og aðlagast áframhaldandi tækninýjungum framtíðarinnar. Anders Skov segir að Stafræna hæfnihjólið sé til þess fallið að styðja við og stuðla að frekari hæfni einstaklinga samkvæmt skilgreiningu á stafrænni hæfni og byggi á nýjustu rannsóknum og kenningum á þessu sviði.

Haldið í netheima með barnabörnunum
Það ert ekki einungis gott fyrir börnin að verja tíma með  afa og ömmu – það er líka gott fyrir afa og ömmu að vera með þeim.

Burtséð frá því að það er almennt gott að umgangast annað fólk, þá er samband  milli kynslóða sérlega mikilvægt. Að verja tíma með fólki af annarri kynslóð, gefur nefnilega innsýn í líf þeirra sem eru ekki á sama aldri og þú sjálfur. Með því móti eykst skilningurinn milli kynslóðanna, segir í grein á danska vefnum Ældre sagen.

Það er kannski ekki alltaf auðvelt að finna eitthvað til að gera með barnabörnunum. Það sem okkur þótti skemmtilegt þegar við vorum börn, hentar ekki endilega nútíma börnum. Og skjáirnir taka meira og meira pláss í daglegu lífi barnanna og leikjum þeirra.  Það gefur okkur hins vegar tækifæri til að nota áhuga þeirra á tölvuskjáum og símum, til að gera eitthvað uppbyggilegt með þeim í raunheimum, eitthvað sem allir fá eitthvað út úr.

Hér fyrir neðan eru fimm ráð um ýmislegt sem er hægt að gera saman.

Farðu í ævintýraferð með börnunum í netheimum.

Flest börn og unglingar eru klukkustundum saman á netinu. Það þarf hins vegar ekki að útiloka að þið getið gert eitthvað saman. Er kannski eitthvað sem þú vilt vita meira um, eða eitthvað sem þú vilt læra á netinu? Leitaðu ráða hjá barnabarninu, það getur sýnt þér hvernig þú átt að bera þig að.

Kannski getur  barnabarnið hjálpað þér að ná betri tökum á að nota Facebook, eða sýnt þér myndir á Instagram. Þú getur líka fengið barnabarnið til að sýna þér uppáhalds efnið sitt í símanum. Þar er komið efni í samræður. Hvað finnst henni eða honum skemmtilegt á netinu og hvers vegna?

Notaðu samfélagsmiðlana í eldhúsinu.

Önnur leið sem gæti verið skemmtileg og náð til barnanna, er að vekja áhuga þeirra á því sem þið eruð að gera. Það er hægt að skoða myndbönd um dýr og hlusta á tónlist á netinu, jafnvel frá því á árum áður- eða það er hægt að fá hugmyndir á samfélagsmiðlunum að kökum til að baka og mat sem er hægt að búa til.

Það eru ótal myndbönd á heimasíðu YoutTube sem sýna í smáatriðum hvernig á að baka köku eða búa til mat. Taktu fartölvuna eða spjaldtölvuna með þér inní eldhús og leyfðu barnabarninu að finna skemmtilega kökuuppskrift á YouTube, sem þið getið bakað saman.

Hér getur þú farið inná YouTube.

Tengdu gömlu dagana við nútímann

Sögur frá því í „gamla daga“ verða áhugaverðari ef þú getur tengt þær sjálfri eða sjálfum þér. Varst þú hippi á áttunda áratugnum? Segðu þeim frá þessum tíma og hvernig lífið var þá, til dæmis með því að sýna þeim myndir, myndklippur eða skreppa á safn.  Þú getur líka leyft barnabarninu að elda mat, sem var algengur þegar þú varst barn.

Lærið eitthvað saman

Barnabörnin geta lært ýmislegt af þér og þú af þeim, en þið getið líka lært ýmislegt saman. Það er til dæmis hægt að skreppa í stutt ferðalag með barnabörnin, þegar þau eiga frí í skólanum.

Ef þú hefur áhuga á matargerð, getur þú tekið að þér kennslu á matreiðslunámskeiðum í sumarfríinu og boðið barnabarninu þínu með.

Þú getur líka tekið einn dag frá, og farið með barnabörnin út í náttúruna, þar sem þið getið upplifað ýmislegt saman. Takið til dæmis spjaldtölvu með, þar sem hægt er að fletta upp ýmsum fróðleik um fuglana sem þið sjáið, um söguna og fleira.  Svo er líka hægt að hlusta á spennandi podcast saman og verða margs vísari um allt milli himins og jarðar. (Podcast er aðgengilegt á netinu og hægt að setja það upp í bæði tölvum og símum fólki oft að kostnaðarlausu. Þar er að finna margvíslegt efni, til dæmis bæði útvarps og sjónvarpsefni: skýring Lifðu núna).

Leiðbeiningar á dönsku. Svona hlustar þú á podcast

Annað sem hægt er að gera með börnum

Það er þannig ýmislegt sem hægt er að gera, þar sem þú deilir reynslu þinni og þekkingu og umgengst aðrar kynslóðir. Og Ældre sagen í Danmörku, bendir á sjálfboðavinnu fyrir eldra fólk. Það er til dæmis hægt að gefa kost á sér til að lesa með börnum í skólum eða á leikskólum. Leikskólinn er þá heimsóttur einu sinni í viku og lesið upphátt fyrir yngstu börnin. Slík sjálfboðavinna er einnig í gangi hér á landi, en líklega er það starf ekki jafn vel skipulagt og hjá frændum okkar Dönum.