tónleikar – Lifðu núna

Sköpunin kemur úr trúnni, náttúrunni og eigin reynslu
Guðrún Erlingsdóttir er alin upp í Vestmannaeyjum og segir lífið þar og náttúruna hafa mótað sig. Hún ákvað 63 ára að gefa út vínylplötu og segir að tónlistin komi til sín en lögin hennar eru bæði trúarleg og veraldleg. Ferlið allt í kringum gerð hljómdisksins og vínylplötunnar einkenndist af gleði og krafti en eiginmaður Guðrúnar var hennar stuðningur, enda segir hún að hún hefði aldrei farið út í þetta stóra verkefni án hans. Útgáfutónleikar Guðrúnar verða á Goslokahátíð í Eldheimum í Eyjum nú á föstudaginn en miða má nálgast á tix.is.

„Ég byrjaði að semja lög fyrir um 15 árum, upp úr þurru og það kom engum eins mikið á óvart mér. En þegar ég var búin að semja fyrsta lagið fann ég einhverja þörf að ég ætti að koma þessu einhvern tíma út og ekki að geyma lögin ofan í skúffu.

Hafið, rokið og náttúran í Eyjum móta

Guðrún bjó í Eyjum í 50 ár. Hún upplifði gosið og það sem því fylgdi. Náttúran, nálægðin við náttúruöflin og hafið,  hefur haft mikil áhrif á hana ásamt tónlistarhefðinni sem er Eyjamönnum í  blóð borinn. „Eftir að ég flutti ég upp á land hef ég samið minna, sköpunarkrafturinn er í rokinu og sjónum í Eyjum. Mér fannst eins og ég væri að flytja til útlanda þegar ég flutti upp á land, ég vissi ekkert hvar ég átti að leita eftir þjónustu, eða kirkju. Ég fór í HÍ og útskrifaðist úr norsku og atvinnulífsfræði 53 ára. Þá hélt ég tónleika með öllum lögunum mínum og þýðingum á textum, en einn daginn fór ég að þýða gospeltexta. Ég fór í Ástjarnarkirkju og heillaðist af kórnum en honum stjórnaði Matthías V. Baldursson. Þetta var 2014 en þegar ég var komin í kórinn spurði ég Matthías hvort hann væri til í að vera með mér á tónleikum með lögunum mínum og hann tók því vel.

Guðrún byrjaði svo að þýða gospeltexta. „Við vorum einhvern tíma að syngja gospellög á ensku og þá kom einn kórmeðlimur til mín og spurði hvort ég gæti þýtt texta á íslensku, það væri svo leiðinlegt að syngja þetta á ensku. Ég sagði já, en hafði aldrei þýtt en það er oft flókið að þýða, það þarf að passa upp á að hvert atkvæði passi við hverja nótu. Sumir textar eru auðþýddir, aðra þarf nánast að semja upp á nýtt. Ég sendi þessa þýðingu á kórstjórann og hann varð þetta litla glaður því hann hafði verið að leita að þýðanda. Næstu árin þýddi ég tæplega 30 texta,“ segir Guðrún og brosir.

Guðrún og Gylfi

Tónlistin kemur til mín

„Ég hélt aftur tónleika undir stjórn Matthíasar 2022 en þá var ég sextug og fannst tilvalið að halda upp á það með tónleikum, hver gerir það ekki,“ segir Guðrún og hlær. „Í millitíðinni var ég að semja, ekki af því að ég gerði það meðvitað heldur af því að tónlistin bara kom. Þegar það gerist má ég bara gjöra svo vel að hætta því sem ég er að gera, grípa gítarinn og semja, tónlistin tekur yfir; ég fæ hana senda. Þetta eru mest lög sem eru trúarlegs eðlis og ég segi að þetta sé náðargjöf frá Guði. Ég hef haft kjark til að stíga á svið og flytja tónlistina mína og af því er ég stolt.

Guðrún  fór í annað háskólanám og kláraði meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku 55 ára. Tíminn leið og Guðrún sem var í fullri vinnu auk þess að syngja í tveimur kórum. Rokkkór Íslands og Vox Gospel. Hún fann þó hvorki tíma né kjarkinn til að gefa út tónlistina.  „Ég var alltaf með það á bak við eyrað að gefa út lögin mín. En það ferli er flókið og sérstaklega fyrir þann sem hefur aldrei gefið út plötu eða geisladisk. Kannski vonaði ég innst inni að einhver myndi banka upp á og segja; ég skal gera þetta fyrir þig,“ segir hún.

Lagði fyrir í tónlistarsjóð

„Það gerðist ekki og fyrir fimm árum fór ég  að leggja fyrir í tónlistarsjóð, allt sem kom inn aukalega, eins og það sem ég fékk fyrir skrif, fór í sjóðinn. Svo gerðist það að  Gugga Lísa sem er frábær tónlistarkona hafði sambandi við mig  hún var að gefa út plötu og langaði að hafa á henni lag eftir mig sem heitir Drottinn, ég tilbið þig. Ég gaf henni fullt leyfi til þess og að túlka það á sinn hátt og hún gerði þetta mjög fallega. Hún lét mig fá plötuna í nóvember og þá hugsaði ég; nú ferð þú af stað, það er enginn sem gerir þetta fyrir þig, það er annaðhvort núna eða ekki.

Ég strengi aldrei áramótaheit en skrifa oft niður það sem mig langar að gera og eitt af því var að ég ætlaði að gefa út plötu 2026. Í byrjun janúar tók ég ákvörðunina. Ég hafði tekið upp báða tónleikana mína og þó að hljóðið væri ekki gott þá átti ég demóið og útsetningarnar sem flestar eru eftir Matthías. Ég sendi póst á Stúdíó Paradís sem er rekið af feðgunum Jóhanni Ásmundssyni og syni hans Ásmundi. Gugga Lísa hafði tekið sína plötu upp þar. „Soundið“ sem er á henni er það sem ég vildi hafa á minni plötu. Ég sendi öll lögin mín og textana seint að sunnudagskvöldi og eldsnemma morguninn eftir fékk ég svar: „Okkur líst vel á þetta og við tökum þetta“. Ég fór af stað þegar ég fékk svarið frá Paradís og fékk góða tónlistarmenn til liðs við mig. Þeir feðgar mixuðu og masteruðu plötuna í stúdíóinu.“

Guðrún segir að í sjávarplássi eins og Eyjum hafi fólk oft þurft að bregðast skjótt við t.d. til að nýta afla og segir að það hafi haft áhrif á sig og komið sér vel í öllu ferlinu við plötuna. „Ég tók þetta eins og eina góða sex mánaða vertíð. Ég vildi klára þetta allt fyrir vorið því mig langaði að vera með tónleika í Eldheimum á Goslokahátíð. Platan mín ber nafnið Sólarlag og er vísun í sólarlagið við Smáeyjarnar en það er hvergi fallegra en þar og sjálf hafði ég þetta útsýni í áraraðir. Titillagið heitir Sólarlag við smáeyjar. Sólarlag markar bæði upphaf og endi á degi. Ég er trúuð og trúi á Guð og ég veit að það er eitthvað gott til og það er líf eftir dauðann.“

Guðrún með plötuna Sólarlag.

Gamall draumur sem rættist

„Lögin voru gefin út á vínylplötu, geisladiski og stafrænt, sem er frekar nýlegt, þannig að það þýðir ekki fyrir fólk að segja, ég get ekki keypt því ég á ekki spilara,“ segir Guðrún glettin. „Vínylplata er allt öðruvísi en geisladiskur, það er eitthvað við það að sitja með plötuumslag í höndunum. Ég fékk með mér góða tónlistarmenn, feðgana í Paradís; Sigurgeir Sigmundsson gítarleikara og Arnór Vilbergsson, organista í Keflavík. Við byrjuðum 18. janúar að taka upp og lukum tökum 27. mars sem er svakalegur hraði. Þetta var vel skipulagt og hálfgerð sprengja. Vínylmasterinn var sendur frá Stúdíó Paradís til  Þýskalands sem gerði master-plötu og svokallaða negatívu sem var send til RPM records í Danmörku en einn af eigendunum er Íslendingur. Ég fékk ég frábæra söngvara sem hafa sungið með mér í ýmsum kórum til að syngja á Sólarlagi. Síðasta lagið á plötunni er jólalag  sem ég setti á Spotify 2021 sem Helga Möller syngur og lagið sem Gugga Lísa söng á sinni plötu fór líka á Sólarlag.

Ég lagði mikið upp úr plötuumslaginu þannig að ég hringdi í dóttur mína  Bjarteyju sem er listamaður og bað hana að mála fyrir mig verk af  sólarlagi við Smáeyjar sem er titillag plötunnar. Tengdasonur minn sem er grafískur hönnuður sá um art-verkið á plötunni. Önnur dóttir mín, Jóhanna Björk, syngur með mér eitt lag á á plötunni sem fjallar um barnabarnið mitt.  Á opnu plötualbúmsins eru allir textar og myndir af tónlistarmönnum og flytjendum í sem við Gylfi, maðurinn minn, tókum á meðan á ferlinu stóð.“

Guðrún við gerð plötunnar

Tilfinningaþrungin stund þegar nálin fór plötuna

„Ég sagði við Gylfa, að ég vildi ekki fara af stað nema hann væri með, við gerum allt saman og ferlið er tímafrekt og kostnaðarsamt. Gylfi var allt umlykjandi í þessu ferli, lagaði kaffið handa mannskapnum, mokaði tónlistarmennina upp úr snjónum og margt fleira.

Eftir að master-platan er tilbúin sem tekur nokkar vikur er hún send Danmerkur. Það voru gerðar tvær prufuplötur sem átti að senda til Íslands, þar sem ég þurfti að hlusta á þær og samþykkja  áður en pressun plötunnar færi fram í Danmörku en það tekur fjórar til átta vikur. Það var í boði að fara og fylgjast með ferlinu og ég sagði við Gylfa: Nú fylgjum við bara plötunni alla leið, og við pöntuðum okkur far til Danmerkur. Ég hlustaði á prufuplöturnar þar. Mér hafði verið sagt að ég myndi heyra töfra plötunnar þegar ég heyrði tónlistina af vínylplötu og það gerðist. Þegar nálin fór á vínylplötuna, brast ég í grát. Það var stór stund að heyra þetta svona. Það var mikil breyting frá því að ég var ein með gítarinn minn og kunni fjögur grip og í fullbúna plötu. Nú voru lögin mín orðin „fullorðins“. Eftir alla vinnuna þá var þetta yndisleg stund.

Framleiðsluferlið fór svo að stað og ég startaði henni í orðsins fyllstu merkingu með því að ýta á takkann á pressuvélinni. Vínylhlunkur er settur í vélina, pressaður saman og eftir hálfa mínútu er önnur hlið plötunnar tilbúin, þetta er ótrúlegt. Það þarf svo að kæla plöturnar í sólarhring áður en þær fara í umslag. Það fara 30 mm af hverri plötu og sá vínill notaður í næstu plötur. Í klassík er notaður nýr vínill, en ef það er rokk eða pönk þá er meirihlutinn notaður gamall vínill. Eftir hálfa mínútu er önnur hliðin tilbúin. Sólarlag er 19 laga heilsteypt safn og fór á tvær plötur. Það var ætlunin að gera eina plötu en efnið var svo mikið að það þurfti albúm til. Mér finnst gaman að hafa albúm sem hægt er að opna, og skoða, ég  vildi hafa þetta almennilegt.“

Tilfinningaþrungin stund þegar platan fór á fóninn.

Berskjöldun að gefa út plötu

„Ég ákváð að koma plötunni út 19. júní á afmælisdegi ömmu minnar sem ég heiti í höfuðið á en hún var eins árs þegar konur fengu kosningarétt. Mér fannst það táknrænt og líka vegna þess hve tímarnir og staða kvenna hefur breyst, við konur getum verið þakklát fyrir svo margt í dag.

Ég sem öll lög og texta á plötunni. Flest lögin eru samin á gítar. Ég keypti mér hljómborð í Covid, lærði eitthvað smávegis á það og náði að semja tvö lög á það. Eitt lagið, var við ljóðið Storm eftir Hannes Hafstein, mér fannst lagið sem er ljúft ekki passa  beint við kvæðið. Mig langaði heldur ekki að vera með texta eftir aðra á plötunni minni. Ég ákvað þá í stúdíóinu að hafa lagið instrumental, þ.e. engin texti.. Ég breytti líka nafninu á því úr Stormi í Paradís. Það eru tvö lög tengd gosinu, Noregsfarar, en það er mitt uppgjör frá kvöldinu fyrir gosið og þar til við komum heim á ný til Eyja. Og svo Sólarlag við smáeyjar sem er minn óður til heimahaganna, ég fór í huganum yfir eyjarnar eins og dróni, það er mjög miklar Vestmannaeyjar í því  lagi, þótt ég segi sjálf frá.“

Guðrún segir að önnur platan í albúminu innihaldi trúarleg lög en hin veraldlegri en með trúarlegum tilvísunum í þeim flestum. „Tvö lögin eru reyndar þannig að þú getur hlustað á þau sem trúarleg eða veraldleg en sköpun mín kemur mikið úr trúnni og minni reynslu. Lagið Algleymi er annað lagið sem ég samdi á píanó, annars eru lögin samin á gítar. Mamma fékk alzheimer-sjúkdóminn og lagið og textinn var mín leið til að vinna úr þeirri reynslu að ganga við hlið hennar í baráttunni en ég samdi það áður en hún dó. Ég sá fyrir mér hvað yrði þegar hún myndi losna úr viðjum sjúkdómsins og textinn byrjar á spurningum: Hvar ertu, hvert fórstu, hvað dvelur þú nú? Ég saknaði hennar því hún var að hverfa  en hún var samt þarna.“

Guðrún segir það sérstaka tilfinningu að gefa út svona plötu með eigin  lögum og textum því fylgir að fólk berskjaldi sig algjörlega. „Þetta gekk ótrúlega vel, einungis sex mánuðir frá því byrjuðum og þar til útgáfutónleikarnir verða. Ég hef verið ótrúlega heppin með fólkið í kringum mig. Ég gaf tónlistarfólkinu frelsi til að setja  sína túlkun í lögin. Ég vildi  koma plötunni út, ekki velta hverju smáatriði fyrir mér. Boðskapurinn er góður, en hann er í raun kærleikur allri sinni mynd.

Ég hlakka til útgáfutónleikanna í Eyjum, Þar stígur á svið blanda af heimamönnum og öðrum tónlistarsnillingum af plötunni. Eyjarnar verða ekki teknar úr manni og það er svo mikil söng- og tónlistarmenning í Eyjum, hún er eiginlega bara í blóði Eyjamanna og ég mun segja sögurnar af lögunum mínum á tónleikunum,“ segir Guðrún full tilhlökkunar

Útgáfutónleikarnir verða á föstudag 3. júlí, kl. 18.30 í Eldheimum á Goslokahátíð í Eyjum. Miðasala er á tix.is. Platan fæst í flestum plötubúðum, Kirkjuhúsinu, Lindinni og hægt er að hafa samband við Guðrúnu á Messenger.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.

Töfrandi tónar í Grófinni í dag
Seiðandi tónleikar á Borgarbókasafninu Grófinni í dag klukkan 16:30.

Í dag, föstudaginn 27. febrúar, stígur tríó skipað Morjane Ténéré, Jóni Loga Pálmasyni og Christian Helga á stokk á Borgarbókasafninu Grófinni og heldur tónleika.

Morjane Ténéré er söngvaskáld sem sækir innblástur í þjóðlaga- og blústónlist, en nafnið Ténéré þýðir eyðimörk á tungumáli Tuareg hirðingjanna frá Norður-Afríku. Í lögum sínum kannar hún viðfangsefni eins og tengingu okkar við annað fólk, náttúru, dýr og allt það sem gerir okkur bæði lítil og risastór í senn.

Morjane er ýmislegt til lista lagt; auk þess að syngja spilar hún á gítar og semur tónlist. Ný plata frá henni, I Wish I Could Be an Angel, kemur út 17. apríl.

Morjane hefur leikið á meira en 300 tónleikum um alla Evrópu, þar sem hún nær til og hreyfir við áhorfendum með einstakri rödd sinni. Nú er röðin komin að Íslandi!

Þeir Jón Logi og Christian Helgi eru ekki síður fjölhæfir; Jón Logi leikur á bassa og kontrabassa og Christian Helgi á trommur, slagverk, flautu og hljómborð.

Það verður spennandi að heyra þetta öfluga listafólk flytja tónlist á Borgarbókasafninu Grófinni í dag, en tónleikarnir hefjast kl. 16:30.

Ókeypis er á viðburðinn.

Öll hjartanlega velkomin.

Nánar um tónleikana á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Út og suður, norður og niður
Tónleikaveisla fram undan á Borgarbókasafninu. Tríóið Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur og Leifur Gunnarsson skemmta gestum og gangandi með sögum, söng og lifandi tónlist.

Tónlistarkonurnar og systurnar Unnur Birna og Dagný Halla Björnsdætur og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson bjóða upp á tvenna tónleika þar sem söngur, fiðla, gítar og kontrabassi mætast í skemmtilegu samspili.

Tríóið ætlar að flytja lög að norðan og sunnan, rifja upp sögur og leyfa tónlistinni að leiða áhorfendur um landið þvert og endilangt. Þetta verður notaleg stund á safninu þar sem við förum bókstaflega út og suður, norður og niður!

Tónleikarnir eru hluti af hinni geysivinsælu viðburðaröð Dægurflugur í hádeginu og fara fram á Borgarbókasafninu um næstu helgi.

Fyrri tónleikar:

Borgarbókasafnið Gerðubergi

föstudagur 20. febrúar

kl. 12:15-13:00

Seinni tónleikar:

Borgarbókasafnið Spönginni

laugardagur 21. febrúar

kl. 13:15-14:00

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir, ekki síst fjölskyldur með börn í vetrarfríi!

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Kulnun og skítamix
Tónlistarkonurnar og gleðigjafarnir Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Vala Höskuldsdóttir, í hljómsveitinni Evu, mæta eldhressar í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Grófinni miðvikudaginn 3. desember kl. 17:00.

Þar munu Sigríður og Vala spjalla um hinn bráðfyndna söngleik Kosmískt skítamix sem þær hafa sýnt undanfarið við frábærar undirtektir í Tjarnarbíó.

Lagasmíðar og listsköpun, örmögnun og kvíði – allar erfiðustu tilfinningar sem manneskja getur upplifað – og ferlið að baki sýningunni verða á meðal þess sem þær stöllur ætla að ræða. Að svo búnu munu þær flytja nokkur vel valin lög fyrir gesti og gangandi.

Hljómsveitin Eva er þekkt fyrir töfrandi og líflega framkomu sem kemur áheyrendum sífellt á óvart, kitlar hláturstaugarnar og snertir hjörtun um leið.

Leikhúskaffi í Grófinni er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Tjarnarbíós, og skemmtileg viðburðaröð fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi, menningu og listum.

Ljósmyndir: Björgvin Sigurðsson

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Soffía syngur sveitasöngva
Næstkomandi föstudag og laugardag troða söngkonan Soffía Björg Óðinsdóttir og Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari upp á tónleikaröðinni Dægurflugur í hádeginu á Borgarbókasafninu. Flutt verða þekktir slagarar og lög úr smiðju Neil Young, Emilíönu Torrini, Sinead O’Connor, Leonard Cohen, John Prine og annarra stórstjarna sem höfðu mikil áhrif á Soffíu í upphafi söngferils hennar.

Þess má geta að Soffía Björg er barnabarn hinnar þekktu söng- og leikkonu Soffíu Karlsdóttur sem söng lagið Það er draumur að vera með dáta en hvert mannsbarn á Íslandi man þann frábæra flutning.

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif. Borgarbúum gefst þar tækifæri til að njóta góðrar tónlistar í flutningi margra okkar helstu tónlistarflytjenda og spjalla við þá að tónleikum loknum. Tónleikarnir verða að þessu sinni helgaðir sveitasöngvum. Fyrri tónleikarnir fara fram á Borgarbókasafninu Gerðubergi föstudaginn 14. nóvember kl. 12:15-13:00. Þeir seinni á Borgarbókasafninu Spönginni laugardaginn 15. nóvember kl. 13:15-14:00.

Frítt er inn á tónleikana. Öll hjartanlega velkomin.

Fjölhæft tónlistarfólk Soffía Björg, sem er sveitastúlka úr Borgarfirðinum, ber marga hatta en hún starfar sem tónlistarkona, laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngkona. Hún stundaði tónlistarnám við Söngskólann í Reykjavík, FÍH og Listaháskóla Íslands og hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi, komið fram með eigin hljómsveitum og annarra og tekið að sér fjölbreytt verkefni, jafnt sem tónsmiður og flytjandi. Leifur er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar og kontrabassaleikari að mennt. Auk þess að hafa verið virkur í hljómsveitastarfi hefur Leifur skrifað og flutt eigin tónlist innan lands sem utan, gert margmiðlunarverkefni tengd tónlist og spuna, unnið að hljóðupptökum og nótnabókaútgáfu, svo fátt eitt sé nefnt. Nánari á heimasíðu Borgarbókasafnsins: www.borgarbokasafnid.is Frekari upplýsingar veita: Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 411 6106 Leifur Gunnarsson, tónlistarmaður leifurgunnarsson@gmail.com

www.borgarbokasafnid.is

Ljúfir tónar í Gerðubergi
Óhætt er að segja að ljúfir tónar muni hljóma á Borgarbókasafninu næstu tvo daga.

Tríóið Strengir flytur sígildar perlur eftir nokkra af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar á tónleikaröðinni Dægurflugur í hádeginu á Borgarbókasafninu.

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.

Að þessu sinni ætlar tríóið Strengir, sem er skipað Braga Árnasyni, Páli Sólmundi Eydal og fyrrnefndum Leifi, að flytja lög frá árunum 1964-1998 eftir ástsæla tónlistarmenn á borð við Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, KK og Villa Vill.

Fyrri tónleikarnir verða á Borgarbókasafninu Gerðubergi núna á föstudaginn 17. október kl. 13:15 og þeir seinni á Borgarbókasafninu Spönginni laugardaginn 18. október kl. 13:15.

Nánar um tónleikana á heimasíðu Borgarbókasafnsins

Fyrstu hádegistónleikar haustsins í Hafnarborg
Þriðjudaginn 9. september kl. 12 hefja hádegistónleikar í Hafnarborg göngu sína að nýju en á þessum fyrstu tónleikum vetrarins verður Hanna Þóra Guðbrandsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á dagskránni verða aríur úr óperum og óperettum eftir Mozart, Verdi, Dvořak og Lehár. Yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Ástarbænir og þakklæti“.

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akranesi árið 1996 og lagði því næst stund á söngnám við Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk stigsprófi vorið 2005. Þá hefur hún stundað söngnám í Kaupmannahöfn, Osló og Berlín í gegnum árin, auk þess að sækja meistaranámskeið og söngtíma hjá ýmsum virtum kennurum. Sumarið 2008 var Hanna Þóra valin til þess að taka þátt í söngkeppninni International Hans Gabor Belvedere Competiton, sem er ein stærsta keppni í heimi fyrir unga og upprennandi óperusöngvara. Hún hefur sungið sem einsöngvari með ýmsum kórum og við kirkjulegar athafnir. Eins hefur hún oft komið fram á vegum Íslensku óperunnar, jafnt með kór óperunnar og sem einsöngvari.

Hanna Þóra hefur meðal annars sungið hlutverk Fiordilige í óperunni Cosi fan tutte eftir Mozart í Óperustúdíó Íslensku óperunnar 2008. Hanna Þóra var einnig einsöngvari í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson sem Íslenska óperan setti upp 2014. Hún fór svo með hlutverk í óperunni Skáldinu og biskupsdóttirinni eftir Alexöndru Chernyshova og Guðrúnu Ásmundsdóttur, sem var frumflutt í Hallgrímskirkju í Saurbæ vorið 2014. Þá hefur Hanna Þóra farið með sópranhlutverkið í Oratorio de Noél eftir Camille Saint-Saens og flutt „Stabat Mater“ eftir Pergolesi ásamt kammerhópnum Reykjavík Barokk. Í júlí 2015 söng Hanna Þóra hlutverk Gerhilde í Die Walküre eftir Wagner í sumardagskrá Norsku óperunnar. Hún söng svo í nýrri óperu eftir Alexöndru Cherniyshova um frú Vigdísi Finnbogadóttur, auk þess sem hún söng í tónleikaröð Classical Concert Company Reykjavík frá upphafi til enda tónleikaraðarinnar. Hún hefur sömuleiðis verið ötul í að setja upp hina ýmsu tónleika og lagt áherslu á að efla menningarlíf bæjarfélags síns, Akraness, og Vesturlands. Hún var til dæmis ein af stofnendum Söngdætra Akraness, sem er hópur söngkvenna frá Akranesi sem Akurnesingar eru farnir að þekkja vel, og jafnframt má nefna að hún var valin bæjarlistamaður Akraness árið 2011.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Staður til að blómstra – tónleikar í Hafnarborg
Föstudaginn 5. september kl. 18 mun Kvartett Söru Magnúsdóttur, orgelleikara, koma fram á Síðdegistónum í Hafnarborg. Þá gaf Sara út sína fyrstu plötu, A Place to Bloom, þann 22. ágúst síðastliðinn, með frumsaminni tónlist. Á tónleikunum mun kvartettinn flytja nýju plötuna í heild sinni, ásamt vel völdum djassslögurum.

Sara Magnúsdóttir hefur verið virk á djasssenunni í Reykjavík um árabil. Hún hefur stundað tónlistarnám í Bandaríkjunum síðustu ár og býr nú í New York en kemur reglulega til Íslands að spila á tónleikum. Með henni leika Jóel Pálsson á saxófón, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Einar Scheving á trommur. Allir hafa þeir verið atkvæðamiklir í íslensku tónlistarlífi, gefið út fjölmargar plötur og unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir sínar útgáfur.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ.

Spennandi viðburður á 17. maí
Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks bjóðum við til tónleika með gleðisveitinni Ukulellur laugardaginn 17. maí kl. 15 í Landakoti á Árbæjarsafni.

Ukulellur eru skemmtileg og dásamlega djörf hljómsveit samansett af nokkrum miðaldra hinsegin konum. Þær skemmta sér og öðrum með því að spila og syngja lög sem fjalla um líf og reynslu hinsegin fólks – oft með kaldhæðni og húmor sem hristir upp í ríkjandi viðmiðum og boxum samfélagsins.

Ókeypis inn – öll velkomin á meðan húsrúm leyfir!

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

Afrakstur frjórrar samvinnu í Hafnarborg
Sunnudaginn 23. mars kl. 20 fara fram í Hafnarborg tónleikar Bjargar Brjánsdóttur, flautuleikara og Ingibjargar Elsu Turchi, bassaleikara og tónskálds. Flutt verða ný verk sem er afrakstur frjós samstarfs þeirra á milli. Tónleikarnir eru hluti af samtímatónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðönum.

Yfirskrift tónleikanna, „Blöndun/Fusione“, er fengin úr einleiksverki fyrir bassaflautu sem Ingibjörg Elsa Turchi skrifaði sérstaklega fyrir Björgu Brjánsdóttur á sínum tíma og markar upphafið á samstarfi þeirra á milli en titillinn ber jafnframt samstarfinu sterkt vitni þar sem tónlistarlegur bakgrunnur þeirra beggja þekur víðfeðmt svæði tónlistar. Hafa þær á síðustu misserum unnið saman að nýjum verkum, sem frumflutt verða af höfundum á tónleikunum í bland við þessa upphafsvörðu samstarfsins.

Aðgöngumiðar eru seldir í Hafnarborg: almennt miðaverð er 2.500 krónur og er verð fyrir eldri borgara og námsmenn 1.500 krónur.

Björg Brjánsdóttir, flautuleikari og tónskáld, vinnur með ýmsum hópum þvert á tónlistarstefnur ásamt því að semja eigin tónlist og hefur hún einbeitt sér síðastliðin ár að samstarfi við ýmis tónskáld og flutningi á nýjum einleiksverkum fyrir þverflautu. Fyrsta plata Bjargar, GROWL POWER, kom út í janúar 2024 með fjórum einleiksverkum fyrir flautur eftir Báru Gísladóttur og er önnur plata væntanleg með verkum eftir sex ólík tónskáld. Björg var tilnefnd sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022 og hefur meðal annars komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Elju kammersveit, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Íslenska flautukórnum. Hún er flautuleikari tónlistarhópsins Caput og hefur sinnt fjölmörgum hljómsveitarverkefnum, að mestu í Þýskalandi, í Noregi og á Íslandi. Björg tilheyrir flautuseptettinum viibru sem hefur unnið með Björk Guðmundsdóttur frá árinu 2016 og ferðast með henni um heiminn til að flytja tónsýningu hennar, Cornucopiu. Björg útskrifaðist af einleikarabraut frá Tónlistarháskóla Noregs vorið 2017 og hefur auk þess stundað nám í þverflautuleik við Tónlistarháskólann í Hannover, Tónlistarháskólann í München og Konunglega danska tónlistarháskólann.

Ingibjörg Elsa Turchi, bassaleikari og tónskáld, hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi á síðastliðnum árum og hefur meðal annars samið verk fyrir Sinfóníu-hljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur, auk smærri samspilshópa. Árið 2017 gaf Ingibjörg út stuttskífuna Wood/Work þar sem rafbassinn var í aðalhlutverki og í júlí 2020 kom út fyrsta plata Ingibjargar í fullri lengd, Meliae. Hlaut platan verðlaun sem plata ársins í djassflokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og tilnefningu til Hyundai Nordic Music Prize sama ár. Árið 2023 kom út hennar seinni plata í fullri lengd, Stropha, sem fékk meðal annars 4 stjörnur hjá Heimildinni, var á flestum árslistum 2023 og fékk tilnefningu á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokknum upptökustjórn ársins. Sem flytjandi hefur Ingibjörg komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Stuðmönnum og Teiti Magnússyni, bæði á tónleikum og upptökum, og tekið þátt í verki Ragnars Kjartanssonar, Kona í e-moll, í Listasafni Reykjavíkur. Ingibjörg hefur einnig leikið á bassa í hljómsveitum í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og verið í húsbandi Idol-stjörnuleitar síðastliðin tvö ár. Ingibjörg stundaði rafbassanám í Tónlistarskóla FÍH, lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslsands og lagði þar einnig stund á rytmísk kennslufræði. Einnig er hún með BA-gráður í latínu og forngrísku frá Háskóla Íslands. Ingibjörg er einn stofnenda Stelpur rokka! á Íslandi og hefur kennt þar og sinnt ýmsum verkefnum frá upphafi.

Hljóðön, samtímatónleikaröð Hafnarborgar, er sérstaklega tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir en tónleikaröðin hefur verið hluti af dagskrá Hafnarborgar síðan 2013. Tónleikarnir njóta stuðnings Tónlistarsjóðs.