vefur – Lifðu núna

Þekktu rétt þinn!
Full ástæða er til að benda fólki á að kynna sér vel vefinn island.is. Þar er að finna mjög fjölbreyttar og gagnlegar upplýsingar. Meðal annars er þar upplýsingavefur Tryggingastofnunar sem er mjög skýr og aðgengilegur. Mjög auðvelt er að nálgast alla vitneskju um réttindi sín. Nefna má að ekki vita allir að þeir gætu átt rétt á umönnunarbótum vegna veikinda maka eða dánarbótum eftir fráfall hans. Það getur munað um þessar upphæðir í erfiðum aðstæðum en fólk þarf sjálft að sækja um þær. Fólk sem dvelur á dvalarheimilum getur sótt um ráðstöfunartekjur skerðist lífeyrir þess mikið vegna þátttöku í dvalarkostnaði. Heimilisuppbót og aðstoð til að reka bíl eru einnig meðal þess sem hugsanlega gæti létt tekjulágum lífeyrisþegum lífið.

Vefurinn er ákaflega einfaldur í notkun og uppsetningu og ætti að reynast flestum auðvelt að nota hann. En eins má leita sér aðstoðar og fá einhvern til að sækja um fyrir sig.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Vefur Tryggingastofnunar flyst á island.is
Á island.is er nú orðið að finna mikið magn handhægra upplýsinga fyrir íslenska borgara og enn bætist við þann fjölda nú þegar tr.is flyst þangað. Samkvæmt fréttatilkynningu Tryggingastofnunar er þetta gert til að auðvelda fólki upplýsingaöflun og einfalda hlutina. Eftirfarandi frétt birtist inn á vefnum:

„Skýrar upplýsingar eru meðal þess sem við hjá TR leggjum áherslu á í starfi okkar. Á vefnum tr.is má finna mikið af fróðleik um réttindi og greiðslur almannatrygginga. Nú höfum við uppfært allt efnið og sett það upp á aðgengilegan hátt á vefnum Ísland.is. Þar er einnig aðgangur að Mínum síðum TR og reiknivél lífeyris sem er afar mikið notuð.  Vefurinn tr.is verður opinn til 10. apríl nk., en eftir það vísum við á Ísland.is.

Með flutningi á Ísland.is viljum við einfalda leit að upplýsingum um almannatryggingar og auðvelda notendum að finna upplýsingar um réttindi og greiðslur í kerfinu. Hluti af flutningnum á Ísland.is felst í að setja upp þjónustuvef þar sem finna má svör við algengum spurningum þannig að notendur eru leiddir áfram til að finna rétt svar. Það er mun öflugri þjónusta en við höfum getað boðið uppá hingað til og mikið framfaraspor.

Við vonum að flutningur tr.is á Ísland.is muni gagnast notendum vefsins sem allra best og bjóðum ykkur öll velkomin til TR á Ísland.is“

Við hvetjum lesendur til að kynna sér island.is og kynna sér þær leiðir sem þar eru færar til að afla sér upplýsinga um réttindi sín og skyldur.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Nóg komið af sálufélögum á netinu
Það er nauðsynlegt að nota góða beitu til að fiska þann rétta eða þá réttu ef fólk er að reyna að veiða í gegnum stefnumótasíður  á netinu. Í grein á vefnum aarp.com eru nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja nota netið til að kynnast nýjum vinum eða vinkonum. Erfiðasti hjallinn við komast á stefnumót í gegnum netið er að útbúa góða sjálfslýsingu. Er verið að koma því til skila sem fólk heldur að aðrir vilji heyra eða er verið að segja eitthvað sem fólk heldur að laði að þá sem það telur æskilega en letji þá óæskilegu.

Gott notendanafn gulli betra

Númer eitt er að búa til gott notendanafn, eitthvað sem dregur að rétta fólkið. Ekki notað eigið nafn og heldur ekki eitthvað væmið og kjánalegt. Sumir nota nafn sem dregur dám af einhverju sem þeim þykir mikilvægt og vona jafnframt að framtíðarfélaganum þyki það líka merkilegt. Þá er það lýsingin af viðkomandi persónu. Gerðu lýsingu sem er fyndin og skemmtileg aflestrar. Fólk sem er að leita að félaga á netinu er oft búið að lesa mörg hundruð lýsingar og satt best að segja eru ærið margar þeirra vægast sagt hver annarri líkar.  Hver fær ekki upp í háls ef hann heyrir að enn einn sé að leita að sálufélaga.

Hverju á að koma til skila

Komið því til skila að þið séu ánægð, heilbrigð, fyndin og vel gefin. Reynið að koma því til skila að það sé ekki verið að leita að einhverjum sem á að fullkomna mann heldur sé verið að leita að einhverjum sem gerir lífið ánægjulegra . Sá sem er fullur sjálfstrausts og þokkalega ánægður í eigin skinni er líklegri til að fá svör frá fólki sem er á sama stað í lífinu. Lýstu eiginleikum sem þú ert að leita að í öðrum en ekki það sem þú vilt forðast.

Ekki krefjast hins ómögulega

Það er fráhrindandi að sjá langa lista yfir það sem einhver vill ekki í fari annarra. Á sama hátt er fólk fráhrindandi sem er að krefjast hins ómögulega. Láttu textann þinn innihalda orð sem lýsa því hvernig þú heldur þér í góðu formi, sérstaklega utan dyra. Samkvæmt könnun tímaritsins Wired voru 380 af hverjum 1000 orðum í stefnumótalýsingum  á netinu orð eins og „útivist“, „ferðalög“, „sund“ og „skíði“ og orðið  „jóga“ kom lang oftast fyrir. Svo er gott að sýna einhverjum sem maður treystir lýsinguna og þiggja ráð hjá þeim um hvað betur mætti fara.