vesturbærinn – Lifðu núna

Vesturbærinn: Húsin – Fólkið – Sögurnar
Út var að koma bókin VESTURBÆRINN – Húsin – Fólkið – Sögurnar, eftir Sigurð Helgason. Hér er víða komið við, eins og undirtitillinn gefur til kynna; fjallað er um fjölmörg hús, sem flest heyra sögunni til, minnisstætt fólk stígur fram í sviðsljósið og má þar nefna Bryndísi Zoëga, Steindór H. Einarsson, Ásdísi Steinþórsdóttur, Harald Á. Sigurðsson, Guðbjörn Jónsson (Bubba), Guðrúnu Helgadóttur, Þórarin Eldjárn, Svein Guðjónsson, Halldór fisksala, Jósefínu í Nauthól, Bóbó á Holtinu, Agga ljósmyndara, Gunnar A. Huseby, Svein Jónsson og Bjarna Felixson og er þá fátt upp talið.

Bókin fæst í öllum bókabúðum og eins í Melabúðinni og verður hér á eftir gripið aðeins niður í hana:

Haraldur Á. Sigurðsson

Árið 1919 var Íslandsmótið í knattspyrnu haldið í áttunda skiptið. Allir leikirnir fóru fram á Melavellinum og dæmdi Egill Jacobsen þá alla. KR vann þarna annan Íslandsmeistaratitil sinn en auk þess tóku þátt í mótinu Fram, Víkingur og Valur, allt Reykjavíkurfélög.

Í lokaleik mótsins mættust tvö efstu liðin, KR og Fram. Hvort lið um sig gat orðið Íslandsmeistari og þurfti KR að sigra til þess að svo yrði á meðan Fram nægði jafntefli. Þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma var staðan 3-2 fyrir KR. Þá var dæmd vítaspyrna á Vesturbæjarliðið. Stuðningsmenn beggja liðanna héldu niðri í sér andanum þegar Friðþjófur Thorsteinsson úr Fram hljóp að boltanum á vítapunktinum. Hann var ágætur skotmaður en Haraldur Á. Sigurðsson var líka ágætur markvörður og hann varði vítaspyrnuna og tryggði þar með liði sínu Íslandsmeistaratitilinn.

Haraldur var Vesturbæingur í húð og hár, fæddur að Vesturgötu 28, þann 22. nóvember 1901. Móðir hans, Þórdís Hafliðadóttir, lést þegar hann var aðeins fimm ára gamall og flutti hann þá til móðurömmu sinnar og -afa að Suðurgötu 6 og síðar til föður síns, Ásgeirs Sigurðssonar, og konu hans, Millýjar Sigurðsson, ofar í sömu götu, eða á númer 12. Hann hóf síðan búskap með konu sinni, Guðrúnu Ólafíu Hjálmarsdóttur, sem var alltaf kölluð Ollý, að Hávallagötu 1 en síðar lágu leiðir þeirra víða, meðal annars að Litlu-Drageyri í Skorradal. En Vesturbæingur var hann alltaf.

Segja má að Haraldur hafi brugðið sér í ýmis gervi og ólík á ævi sinni. Hann var liðtækur knattspyrnumarkvörður á yngri árum eins og fram hefur komið en síðar var hann allt í senn; gamanleikari, leikstjóri, rithöfundur, verslunarmaður, bóndi, náttúruunnandi og veiðimaður og margt fleira. Það var hið fyrstnefnda sem hann varð hvað þekktastur fyrir enda var hann burðarás í leiklistarlífi landsins í hartnær þrjá áratugi. „Það var dauður maður sem Haraldur gat ekki fengið til að brosa,“ skrifaði Árni Helgason í Stykkishólmi í minningargrein um þennan vin sinn.

Haraldur var kunnur af tilsvörum sínum við ýmis tækifæri. Hann var hávaxinn maður og skrokkmikill og notaði stundum vaxtarlag sitt til að vekja kátínu í kringum sig, bæði á leiksviði og annars staðar.

Einn af góðum vinum Haraldar var Páll Jónsson, iðulega kallaður Púlli. Það sem einkenndi hann öðru fremur var bjartsýnin, rólyndið og nægjusemin. Hann var alltaf ánægður og brá aldrei skapi, hafði sennilega ekki andstyggð á vinnu en það stappaði nærri því. Hollasta hreyfingin, sem hann vissi um, var að aka í bíl. Og uppáhaldsrétturinn hans var kjötkássa því að hana mátti borða með annarri hendi og hafa hina á meðan í vasanum. Púlli sagði líka: „Ég held að það sé best að gera ekki neitt og hvíla sig svo vel á eftir.“ Þetta kom líka frá honum: „Sá sem getur ekki sofið til hádegis hefur vonda samvisku.“

Þeir Haraldur og Púlli höfðu gaman af því að ráða krossgátur. Sátu þeir oft saman, réðu gáturnar yfir kaffibolla og hjálpuðu þá hvor öðrum við að fylla í eyðurnar.

Eitt sinn vantaði þá fjögurra stafa orð yfir „matur“ og lauk svo að báðir gáfust upp. Um kvöldið var landsleikur í knattspyrnu milli Íslendinga og Svía á Melavellinum og fóru þeir félagar þangað. Í miðjum leiknum, þegar Íslendingar voru í hörkusókn og nánast allir áhorfendur í uppnámi og hvetjandi landa sína, hnippir Púlli í Harald og segir:

„Heyrðu, Haraldur! Það er kæfa!“

Hér segir Haraldur sjálfur frá einu af ævintýrum þeirra Púlla:

„Í æsku vorum við dálítið vínhneigðir, eins og gengur og gerist. Eitt haust, er við vorum við skál, fengum við þá hugmynd að fara til Þingvalla og gera okkur glaðan dag. Þetta var um helgi og því mannmargt á sögustaðnum. Er við leituðum eftir gistingu í Valhöll var okkur sagt að öll rúm væru þegar lofuð að undanteknum tveim í átta manna herbergi. Var ekki um annað að ræða en að gera sér þau að góðu.

Um daginn var drukkið hraustlega, því að við vorum engir meðalmenn í þeim sökum, hann Púlli minn og ég, þegar við vorum upp á okkar allra besta. Er líða tók á kvöldið gerðumst við ölvaðir nokkuð og gengum því snemma til náða. Þegar við sofnuðum, þreyttir eftir dagsins önn, voru engir af herbergisfélögum okkar mættir.

Við vöknuðum snemma næsta morgun, litum í kringum okkur og sáum hrjótandi haus í hverju rúmi. Því miður var líðan okkar nú ólík því sem verið hafði kvöldið áður – mesti glansinn var farinn af tilverunni. Eins og alþjóð veit eru timburmennirnir einu íslensku iðnaðarmennirnir sem mæta ávallt stundvíslega á vinnustað og stundum svo, að óhugnanlegt verður að teljast. Umræddan morgun voru þeir óvenju árrisulir og athafnasamir. Engu var líkara en að þeir ynnu í ákvæðisvinnu eða eftir uppmælingu. Var nú aðeins eitt ráð fyrir hendi til þess að reyna að lama starfsgetu þessara þokkapilta. Það var að stramma sig af.

Er við höfðum stundað okkar skemmtilegu og þjóðlegu iðju um hríð varð Púlli þess var að járnsmiður var að skríða ofan á sænginni hans. Hann strauk járnsmiðinn burt svo að lítið bar á, enda kannski ekki alveg viss um raunverulega tilveru skriðdýrsins.

Ef tveir menn sitja að drykkju og annar sér einkennilegar pöddur en hinn ekki – þá er sjaldnast gott í efni. En innan stundar var annar járnsmiður kominn þarna og nú var ekki um að villast. Við sáum hann báðir.

Þótt Púlli væri rólyndur og þolinmóðasti maður veraldar þá ofbauð honum þessi óvænti átroðningur enda rann honum svo í skap að hann sló dýrið ofan af sænginni um leið og hann sagði:

„Hvaða helvítis járnsmiðir eru þetta?“

Þá reis maður upp við dogg í einu rúminu og sagði afar hæglátlega:

„Við erum úr Héðni.““

Bjarni Felixson

Í félagsblaði KR, sem gefið var út árið 1969 í tilefni af 70 ára afmæli stórveldisins, er viðtal við Bjarna Felixson, sem á sínum tíma hlaut viðurnefnið Rauða ljónið og var hann síður en svo óánægður með það, baráttuglaði vinstri bakvörðurinn. Grípum hér niður í viðtalið:

„Ég hef verið í þessu í rúman áratug og aldrei verið ánægðari með leik minn en þegar liðinu er illa tekið af áhorfendum. Sérstaklega hef ég notið þess, ef þeir hafa tekið mig fyrir, því að það hefur hert mig í baráttunni. Ég hef komist áfram á keppnisskapi og hörku og verið bestur, er við höfum átt í vök að verjast. Maður var orðinn dauðleiður á þessu árið 1959, þegar við unnum öll lið með yfirburðum.

Einkum er þó margs að minnast frá Akureyri. Árið 1960 höfðu þeir átt lélega byrjun í mótinu, eins og oftar, en áttu eftir heimaleikina síðari hluta sumars. Við áttum að fara norður og þá höfðu þeir unnið Fram fyrir skömmu. Daginn fyrir norðurför okkar var tilkynnt landslið og var „augasteinninn“ [Jón Stefánsson] þeirra utangarðs. Var nokkur ólga nyrðra af þeim sökum og þegar við komum var fullur völlur eins og venjulega.

Í fyrri hálfleik áttum við varla upphlaup. Akureyringar áttu leikinn og áhorfendur voru allæstir. Snemma í leiknum slapp einn þeirra í gegn en ég næ að renna mér á knöttinn og afstýra hættunni. Varð þá nokkur urgur meðal áhorfenda. Rétt á eftir lendir okkur aftur saman á kantinum og ég næ boltanum eftir návígi og geysist fram völlinn. Ræðst hann þá aftan að mér með þeim árangri að ég hlaut mikið sár á fæti og áminningu frá dómara en forystumaður heimamanna heimtaði að ég yrði rekinn út af. Ég lék þó áfram og barðist „eins og ljón“ og Gísli [Þorkelsson], varamarkvörður, varði meistaralega.

Eftir hálftíma leik skora Akureyringar, en Þórólfi [Beck] tókst að jafna fyrir hálfleik. Í leikhléi kom héraðslæknirinn, leit á sárið og sagði að það yrði að gera að því, en ég aftók það með öllu.

Í síðari hálfleik náðum við tökum á leiknum og sigruðum, 5:2. Þá lék ég fjær stúkunni og var þar fyrir hópur 20-30 stráka undir stjórn fyrrgreinds íþróttaleiðtoga norðanmanna. Er ekki að sökum að spyrja, að þegar séð var fyrir um úrslit, hófu þeir grjótkast að okkur.

Í miðjum hálfleiknum fékk Gísli mikið spark og leist mér þá ekki á blikuna. Meðan menn hugðu að meiðslum hans, tók ég boltann og henti honum á bak við grjóthrúgu við völlinn. Æpti þá lýðurinn: Út af með rauða tuggann! Var mörgum heitt í hamsi og í leikslok ruddust menn inn á völlinn í bræði sinni.

Ég hafði vart gengið 10 skref, eftir að flautað var af, þegar lögregluþjónar koma til mín og biðja mig að koma eins og skot. Voru þeir komnir að undirlagi héraðslæknisins og óku mér til hans í aðgerð.

En það er af félögum mínum að segja, að þegar þeir komu í rútuna, sem aka skyldi til búningsklefa annars staðar í bænum, urðu þeir þess varir að mig vantaði. Þeir þustu út á völl og fundur þar annan skóinn minn, sem ég hafði losaði mig við vegna meiðslanna, er leik lauk. Þá mælti Hörður bróðir þessi fleygu orð:

„Hérna er skórinn. Þeir eru búnir að drepa Bjarna bróður!““

Metaðsókn var á leiknum, 3964 áhorfendur mættu til að horfa á ÍBA og KR og urðu einhver blaðaskrif út af þeim skrílslátum sem þarna urðu.

Hótel Saga

Karen Þórsteinsdóttir var á sínum tíma umsjónarmaður einstaklingsbókana á Hótel Sögu. Hún fær nú orðið:

„Hingað kom líka einu sinni hópur af ungum mönnum sem höfðu komið til

landsins á einkaþotu. Einn þeirra kom í móttökuna og pantaði nokkrar svítur. Í

mínum huga voru þetta bara einhverjir smástrákar og mér leist ekki betur á þá

en svo að ég lét þá greiða allt fyrirfram. Um nóttina var svo eitthvert partístand

á þeim. Daginn eftir kallaði ég þá niður, talaði yfir þeim og bannaði þeim að

hafa svona mikinn hávaða. Einn þeirra gekk þá að mér ansi mannalegur og

sagði: „But I am Prince.“ Ég hafði ekki hugmynd um hver þetta var og svaraði:

„Yes, and I am a Princess.“ Eftir að strákarnir voru farnir kom í ljós að þetta

voru tónlistarmaðurinn Prince og vinir hans að skemmta sér.“

Hvers vegna á ég að fá smápeninga úr lífeyrissjóðnum?
Rannveig tilvonandi stjórnarmaður í VR

Rannveig Sigurðardóttir er kjarnakona sem hefur búið víða um land, en er fædd og uppalin vestast í vesturbænum í Reykjavík, rétt hja KR vellinum. Þar áttu afi hennar og amma hús og lóðir. Þau gáfu sonum sínum sitt hvora lóðina sem lágu að þeirra húsi og þar byggði faðir Rannveigar yfir sína fjölskyldu. „Þetta var sveit í þá daga og bæði hestar og hænsni í nágrenninu. Grandahverfið var óbyggt“, rifjar Rannveig upp.  Hún segir að mikil samheldni hafi ríkt meðal barnanna í hverfinu. Þau hafi verið á skautum á veturna, á Eiðistjörn í Eiðismýrinni.  „Á vorin nýttum við svo mýrina. Það var ekki komið vor fyrr en við börnin vorum búin að tína vatnasóleyjar  þar, til að selja í húsum á fimm og tíu aura búntið“, segir hún.

Gat ekki orðið bóndi

Rannveigu fannst yndislegt að búa á landsbyggðinni. „Ég var alltaf í sveit þegar ég var barn og unglingur og ætlaði að gerast bóndi. En svo gat ég ekki drepið skepnurnar, eða slátrað, þannig að ég gat ekki orðið bóndi“, segir hún og segist hafa verið strákastelpa þegar hún var lítil. Foreldrar hennar voru Sigurður Hallgrímsson tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu og Guðrún Karlsdóttir, sem lést árið 1959 þegar Rannveig var 5 ára og yngri systir hennar María 3ja ára. „ Hún var ættleidd  hún mamma, ég komst að því þegar ég var unglingur, en hún ólst upp hjá góðu fólki. Svo kynntist ég móðurfólkinu mínu seinna og þar passaði ég eins og flís við rass“, segir Rannveig. Seinna eignuðust þær systur hálfbróður Hallgrím.

Svona var umhorfs í Granaskjólinu þegar Rannveig var að alast þar upp

Ævintýraheimur fyrir börn í vesturbænum

Rannveig segir að vesturbærinn hafi verið alger ævintýraheimur fyrir börn. „Það var ekki búið að malbika göturnar og við vorum mjög dugleg að leika okkur í boltaleikjum. Það var bara hengd upp auglýsing á ljósastaurana, Brennibolti í kvöld, og allir mættu“. Hún segir að þau hafi tínt alls kyns drasl á gömlu öskuhaugunum og hún hafi geymt sitt í kjallaratröppunum heima hjá sér. „Pabbi var orðinn ansi leiður á því“, bætir hún við.  Heldri menn í Reykjavík voru með hesta í hesthúsunum í hverfinu sem girt var í kringum. Þeir leyfðu börnunum stundum að fara á bak við hliðið og sitja á hestunum í hesthúsið.  Stundum fóru þau á bak í leyfisleysi  og riðu berbakt og beislislaus. Fjáhús og risastórt hænsnahús voru þar sem norðurendi KR vallarins er núna. Þar keyptu íbúarnir egg og þurftu að hlíta sérstökum reglum. Það átti að banka og bíða eftir að hjónin, sem iðulega voru að vinna í hænsnahúsinu, kæmu til dyra.  „Ég var alltaf bráðlát og nennti ekki að bíða. Eitt sinn opnaði ég bara dyrnar og fékk hauslausa hænu á mig, en þá var verið að slátra með því að höggva af þeim hausana“.

Amman bölvaði hressilega

Vegna veikinda móður sinnar, var Rannveig snemma send að heiman og ólst mikið upp hjá ömmu sinni og systur hennar. „Ég er að tala um kjörömmu mína. Ég hitti svo líffræðilega ömmu mína einu sinni og er það minnisstætt hvað hún bölvaði hressilega, ég hafði aldrei heyrt gamla konu bölva“.  Þær systur dvöldu einnig í smátíma á Silungapolli eftir að móðir þeirra veiktist. „Þá var mér sagt að passa Maríu systur mína og ég er enn að því“, segir Rannveig og hlær og segist vera nokkuð stjórnsöm.

Á að ræða jarðfræði og stjörnufræði við sjúklingana?

„Ég fór í tímakennslu hjá Þórði á Melhaganum og svo í Melaskóla og þaðan í Hagaskóla. Pabbi sendi okkur systurnar á námskeið í vélritun og vildi að ég færi í verslunardeildina. Hann sá fyrir sér að við færum í hefðbundin kvennastörf. Mig dreymdi um að fara í hjúkrun“, segir Rannveig. Á þessum tíma var verið að þyngja námið.  Þegar hún útskrifaðist úr Hagaskóla með ágætiseinkunn var hætt að taka inn stelpur með gagnfræðapróf í hjúkrun og gerð krafa um að þær færu í 5.bekk á hjúkrunarkjörsviði í Lindagötuskóla áður en þær sæktu um í hjúkrun.  „Ég gerði uppsteyt“, segir Rannveig,“ og spurði hvers vegna ég þyrfti að læra jarðfræði og stjörnufræði. Á ég að ræða þessar greinar við sjúklingana spurði ég“  Það var fátt um svör og svo var bætt við öðrum bekk, 6. bekk á hjúkrunarkjörsviði sem gerð var krafa um að stelpurnar tækju.  „Þá hætti ég og fór að vinna sem þerna á Esjunni“, segir hún. Um tíma ætlaði hún að verða vélstjóri, en hún var svo sjóveik að það gekk ekki upp.

Rannveig Sigurðardóttir

Barnabörnin öll yndisleg

Rannveig á fjögur börn sem eru uppkomin. Eiginmaður  hennar Atli Gíslason fyrrverandi alþingismaður á þrjá syni og samanlagt eru barnbabörnin  17. Hún segir að þeim takist að halda utanum það verkefni, en bætir við að reyndar búi þrjú barna hennar erlendis með barnabörnin.  Hún segir það hafa kosti og ókosti en vissulega missi hún sem amma svolítið af uppvexti  barnanna. „Það er yndislegt að vera amma. Ég var aldrei hrifin af börnum og ætlaði ekki að eignast mörg börn, en það sem er öðruvísi við ömmuhlutverkið er að það er hægt að skila börnunum þegar maður vill fá hvíld“.  Henni þykir gaman að vera með barnabörnunum. „Þau eru öll yndisleg og hvert með sinn karakter. Það er gaman að finna sterkan streng frá sjálfum sér í þeim“.

Bilaður jafnréttissinni

Rannveig hefur stundað margvísleg störf til sjós og lands um ævina. Hún vann verkamannavinnu, var í fiskvinnslu, skrifstofuvinnu, bankastörfum, vann á endurskoðendaskrifstofu og sem læknaritari svo nokkur starfanna séu nefnd.  Hún hefur alltaf haft áhuga á baráttu fyrir réttlæti til handa verkafólki og segist líka hafa verið „bilaður jafnréttissinni alla ævi“.  Hún er þeirrar skoðunar að jafnréttið byrji í uppeldi foreldra  á sonum sínum. „Mínir synir voru látnir gera allt á heimilinu og gera enn. Þeir elda, kaupa inn og sjá um þvotta á heimilum sínum“. Rannveig segir að pabbi hennar hafi boðið þeim systrum í veiðiferðir og að gist hafi verið í tjöldum. „Ég var alin upp eins og strákur fannst mér og varð mjög frökk sem mér fannst gott. Það er mikilvægt að segja hlutina eins og þeir eru. Ég ber virðingu fyrir konum sem gera það. En eftir að netmiðlarnir komu til, er umræðan orðin svo hatrömm og dónaleg“, segir hún og henni finnst hafa orðið ákveðið bakslag í jafnréttismálunum.  „Það voru til dæmis ekki margar konur sem stóðu upp og tjáðu sig á síðasta ársfundi ASÍ.

Fyrsta öldungaráðið í verkalýðsfélagi

Áhugi Rannveigar á réttlæti verkafólki til handa varð til þess að hún tók sæti í stjórn VR þegar Magnús L. Sveinsson var formaður. Hún hélt áfram í stjórn þegar Gunnar Páll varð formaður, en árið 2009 varð „hallarbylting“ í félaginu „Og þá duttum við öll út sem vorum þá í kjöri í stjórninni“, segir Rannveig. Nokkrum árum síðar var hún beðin um að koma aftur í stjórnina og hefur verið þar síðan.  Hún hefur verið bæði í laganefnd og sjúkrasjóði VR og er nú einnig í nýju öldungaráði sem VR stofnaði nýlega. Það er fyrsta öldungaráðið sem verkalýðsfélag hér á landi stofnar.  Henni finnst ekki eðlilegt að þegar fólk sé búið að greiða í félagið árum saman, sé bara sagt bless við það, þegar það verður 67 ára og hættir störfum á vinnumarkaði. „Markmið öldungaráðsins er að vera umræðu og samráðsvettvangur félaga VR sem eru sextugir og eldri og við erum stjórn VR til ráðgjafar í málum sem tengjast hagsmunum eldri borgara. Hvað viljum við svo gera? Við erum að reyna að finna út út því saman“, segir Rannveig.

Rannveig ásamt nýkjörnu öldungaráði VR. Myndin var tekin á aðalfundi félagsins

Lífeyrissjóðirnir stofnaðir sem viðbót

„Við horfum á okkar félagsmenn og erlendu félagana okkar og viljum passa uppá að þeir þekki rétt sinn.  Við erum með starfslokanámskeið fyrir okkar fólk, en höfum líka áhuga á að hitta yngra fólkið okkar. Það er algengt að það sé farið fram á að menn vinni sem verktakar á vinnumarkaðinum og við viljum benda unga fólkinu á að það kemur að starfslokum, líka hjá þeim, þegar fram líða stundir.  Svo er það þetta týpiska vandamál skerðingin „krónu fyrir krónu“. Það þarf að gera eitthvað róttækt í því. Lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir sem viðbót við almannatryggingakerfið, þess vegna er þetta svo óréttlátt. Þetta gengur ekki svona og við þurfum að vinna saman að leiðréttingu. Ef ríkisstjórnin stendur svona vel, hvers vegna er þá ekki farið í að bæta úr þessu?“ segir Rannveig.

Óréttlátt að fá smápeninga úr lífeyrissjóðnum

Rannveig sér fram á að það styttist í hennar starfslok, en segir að eftirlaunin verði ekki sérlega rífleg. „Fólk er búið að borga í lífeyrissjóð áratugum saman og svo fær það smápeninga í eftirlaun. Ef ég fer á lífeyri 65 ára, fæ ég innan við 200 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóðnum. En ég er heilsuhraust og get unnið. En hvers vegna á ég að fá þessa smápeninga? Mér finnst það óréttlátt“, segir hún og  það er viðbúið að hún muni snúa sér að  handavinnu þegar hún er komin á eftirlaun, því handavinnan er mikið áhugamál hjá henni. „Ég gæti ekki lifað án þess að vera að gera eitthvað í höndunum“, segir hún ákveðin.