viðburður – Lifðu núna

Framtíðin í brennidepli
Hvernig búum við okkur undir framtíðina? Hvaða færni þurfum við að tileinka okkur? Þetta verða á meðal þeirra spurninga sem leitast verður við að svara á Framtíðarfestivali sem fer af stað á Borgarbókasafninu Grófinni sunnudaginn 1. mars.

Á dagskrá hátíðarinnar verða fjölbreyttir viðburðir þar sem hugsuðir, fræðifólk, listafólk og aðrir málsmetandi aðilar fjalla um framtíðina frá ólíkum og áhugaverðum sjónarhornum. Hvernig undirbúum við okkur sem best fyrir framtíðina? Hvaða færni þurfum við að tileinka okkur? Hvernig deilum við þekkingu og hagnýtri kunnáttu hvert með öðru? Þetta eru meðal þeirra áhugaverðu spurninga sem verður varpað fram.

Gestum og gangandi gefst tækifæri til að vera með í samtalinu, leggja sitt af mörkum og taka þátt í alls kyns spennandi og fróðlegum viðburðum. Þannig verður boðið upp á vinnustofur, smiðjur, innsetningar, fjölskylduviðburði, viðgerðir á raftækjum og umræður, að ógleymdu „framtíðarsmakki“ og prófun á sérstöku efni sem hindrar símasamband(!).

Vert er að geta þess að þátttakendur í svonefndum Vonarsprota-viðburðum, þar sem meðal annnars er fengist við blómapottagerð og sáningu, fá að gjöf nýtt sáningardagatal sem hannað er af Kakkalakka Studio.

Dagatalið er sérsniðið að íslenskum aðstæðum og loftslagi og er það fyrsta sinnar tegundar sem ætlað er almenningi á Íslandi.

Viðburðirnir á hátíðinni eru fjölskylduvænir, henta öllum aldurshópum og eru allir ókeypis.

Framtíðarfestival hefur göngu sína eins og áður sagði sunnudaginn 1. mars og stendur yfir í hvorki meira né minna en fjórtán daga.

Á heimasíðu Borgarbókasafnsins má nálgast upplýsingar um alla dagskrárliði hátíðarinnar og áhugasöm geta því byrjað að leggja drög að eigin dagskrá!

Nánari upplýsingar:

www.borgarbokasafnid.is