Eftirlaun – Lifðu núna

Portúgal leggur af skattfríðindi fyrir eftirlaunafólk
Portúgalar hafa í rúman áratug veitt útlendum „ellilífeyrisþegum“, sem hafa kosið að búa Í Portúgal veruleg skattfríðindi í samtals 10 ár, samkvæmt svokölluðu NHR kerfi.  Þeir sem fluttu búferlum þangað, borguðu í fyrstu engan tekjuskatt, en síðustu 4 ár hafa þeir greitt 10% skatt af tekjum sínum.  Fjármagnsskatt hafa þeir hins vegar þurft að greiða og er hann 28%, meðal annars á verðbætur. Um áramótin verða skattfríðindi þessa eftirlaunafólks aflögð Í Portúgal, nema hjá þeim sem sækja um aðgang að kerfinu fyrir 31. desember næstkomandi og fá umsóknina afgreidda fyrir 31. mars á næsta ári. Þeir geta fengið áframhaldandi skattfríðindi þar til 10 árum er náð. Nokkrir tugir Íslendinga hafa nofært sér þetta kerfi.

Losna við hærri skatta myrkur og hálku

Þeir hafa þurft að flytja lögheimili sitt til Portúgals, en samkvæmt samræmdum evrópskum reglum ber fólki að hafa lögheimili og greiða skatta þar sem það dvelur meirihluta ársins. Þannig hafa þeir Íslendingar sem hafa flutt til Portúgals, orðið að halda sig utan Íslands 184 daga ársins. Einn þessara íslensku eftirlaunamanna sagði í samtali við Lifðu núna um búsetuna ytra, að margir væru betri í skrokknum á suðlægum slóðum, þeir vildu jafnframt losna  við myrkur og hálku yfir vetrartímann og innkaupakarfan kostaði helming á við það sem hún kostar heima á Íslandi. Hiti væri líka skaplegur á þessum slóðum og færi yfirleitt ekki yfir 30 gráður.

Hefur valdið húsnæðisskorti hjá verr settum

Talið er að um 10.000 manns hafi notfært sér þetta skattfríðindakerfi í Portúgal að því er fram kom í grein í Viðskiptablaðinu, en ástæða þess að nú hefur verið ákveðið að leggja það niður, er að það hefur leitt til mikillar ásóknar erlendra ellilífeyrisþega í húsnæði þar í landi sem hefur valdið bæði mikilli hækkun húsnæðisverðs og húsaleigu. Fyrir þá verr settu hefur þetta svo þýtt húsnæðisskort. Fleiri þjóðir, svo sem Ítalía, hafa einnig boðið eldri borgurum skattaívilnanir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Forsenda þessara kostaskattakjara sem verið er að bjóða er að landið þar sem fólk býr, sé með tvísköttunarsamning við landið sem það ætlar að flytja til.

Erna Indriðadóttir skrifar

Ein greiðsla á ári frá TR er valkostur fyrir marga
Sigurjón Skúlason, verkefnastjóri uppgjörsmála TR skrifar

Í hverjum mánuði fá um 70 þúsund einstaklingar greiðslur frá TR og fyrir hluta af hópnum, það er þau sem eru með lágar greiðslur getur verið hagkvæmara að fá greitt einu sinni ári. Þannig eru réttindi viðkomandi reiknuð út einu sinni á ári á grundvelli skattframtals síðasta árs og ein greiðsla berst í kjölfarið.

Ein greiðsla á ári hentar einkum þeim sem eru með grunnframfærslu frá öðrum en TR og þeim sem eru með óreglulegar og háar fjármagnstekjur.

Til að fá eina greiðslu á ári í stað mánaðarlega þarf að sækja um á Mínum síðum TR. Helstu kostir þessa fyrirkomulags eru:

Greiðsla lífeyris er rétt þar sem réttindin eru reiknuð eftirá og byggja á skattframtali

Hvorki myndast innistæða né skuld í kjölfar uppgjörs

Tekjuáætlun er óþörf

TR vill vekja sérstaka athygli á þessum möguleika og hefur hópur viðskiptavina okkar fengið  kynningarbréf þar sem þau eru hvött til að nýta sér hann. Með því móti viljum við stuðla að því að frávikum í greiðslum til viðskiptavina okkar fækki.

Á tr.is eru frekari upplýsingar um eina greiðslu á ári og hlekkur á umsókn vegna þessa.

Á þér eftir að leiðast þegar þú hættir að vinna?
Þó meirihluti fólks sé spenntur að hætta starfi á vinnumarkaði þegar aldurinn færist yfiri og hlakki hreinlega til, eru ekki allir þannig stemmdir. Sumir kvíða fyrir. Á vef Bandrísku eftirlaunasamtakanna er fjallað um þetta í grein sem er hér lauslega þýdd og verulega stytt,  og rætt við fólk sem er að fara á eftirlaun og sérfræðinga sem þekkja þessi mál vel. Þá er einnig sagt frá könnunum sem sýna afstöðu fólks til starfslokanna.  Þær sýna meðal annars að 20% fólks sem er að fara á eftirlaun, hefur áhyggjur af því hvað það eigi að taka sér fyrir hendur þegar það er hætt að vinna og hvernig það eigi að fylgjast með. Fjórðungur óttast að einangrast og verða aleinn. Um helmingur fólks tengdi það  frelsi og gleði, að hætta að vinna á meðan 16% höfðu áhyggjur af að þeim ætti eftir að leiðast þegar þau hættu að vinna. 11% óttuðust að þau myndu einangrast.

Þá er í greininin fjallað um Susan, sjötuga konu sem er að fara á eftirlaun eftir að hafa unnið sem fjölmiðlafulltrúi hjá opinberri stofunun í áraraðir og Fred, sem er að hætta starfi sem skólasálfræðingur rétt rúmlega sextugur.  Hvorugt þeirra langaði til að hætta að vinna, satt að segja fundu bæði fyrir ótta þegar starfslokin nálguðust. Fred var til að mynda lengi að hafa sig í að senda inn uppsagnarbréfið.

Sálfræðiprófessorinn Louis Primavera, segir að starfið setji fólki ramma og skapi rútínu í lífinu. Menn skipuleggi sig með hliðsjón af vinnunni og starfið sé hluti af því hver við erum. „Við förum á mannamót og fólk spyr hvað við gerum. Sumir vita ekki hvað þeir eiga að segja, eða hverjir þeir eru, þegar starfið er horfið. Að missa sjálfsmyndina getur valdið miklum ótta“, segir hann.

Susan hafði unnið sem blaðamaður áður en hún réði sig sem upplýsingafulltrúa hjá því opinbera og segist hafa kviðið fyrir deginum þegar starfslokin urðu að veruleika. „Tilfinningar mínar voru afar blendnar. Þakkargjörðarhelgin var ákveðin áminning. Þriggja daga frí þegar þú ert hætt að vinna er alls ekki það sama og þriggja daga frí þegar þú ert í fullu starfi“.

Nýlegar skoðanakannanir vestra sýna að um 16% fóks sem er komið á eftirlaun vill gjarnan fara aftur að vinna. Helsta ástæðan fyrir því er að fólki leiðist.  Annar sálfræðingur sem talað er við í greininni segir að það skipti miklu máli í þessu sambandi, hversu sterkt fólk upplifi starfið sem hluta af sjálfu sér. „Það skiptir miklu fyrir velheppnuð starfslok. Þeim  sem starfið skiptir öllu máli finnst mikilvægt að vinna sem lengst. Fólk segist ekki hafa höndlað starfslokin og fer aftur að vinna og vinna getur líka verið hluti af lífinu á efri árum“, bætir hann við.

Seint og um síðir fór Fred að undirbúa starfslokin. Hann fór að velta fyrir sér hvort hann ætti að sækja um hlutastarf í annarri grein en í menntageiranum. „Mig langaði alltaf að verða leiðsögumaður“, segir hann og sér líka fram á að geta nú sinnt aldraðri móður sinni og tengdamóður meira, en konan hans er enn í fullu starfi. Gömlu konurnar eru báðar komnar yfir nírætt.

Susan er líka með alls kyns plön um eftirlaunalífið. Hún er til dæmis með hugmyndir um að taka að sér free-lance störf við ræðuskrif  og langar að snúa sér að skapandi skrifum. Hana langar líka í nám í trúarbragðafræði. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á trúmálum og vill halda heilanum virkum. „Ég sá alltaf fyrir mér að gera það í gegnum nám“, segir hún.

Susan er búin að innrétta vinnuherbergi heima hjá sér, en hún eins og svo margir aðrir vandist því í Covid faraldrinum að vinna heima og er bara nokkuð bjartsýn á að henni muni takast að skapa sér nýja og áhugverða tilveru í næsta kafla lífsins.

Ríkisstjórn og verkalýðshreyfing hunsa eldra fólk
Þorbjörn Guðmundsson

Þorbjörn Guðmundsson formaður kjaranefndar LEB skrifar

Nú er árið 2022 að baki og 2023 hafið með nýjum tækifærum og áskorunum.

Nú er rétti tíminn til að líta um öxl, meta árangur liðins árs og reyna að spá í nýtt ár.

Samtök eldra fólks höfðu væntingar til stjórnvalda um að árið 2022 myndi verða upphaf að  nýjum sigrum þar sem stigin yrðu skerf að bættum kjörum. En hvað var þess valdandi að eldra fólk gat gert sér vonir um að nú væri stundin runnin upp?

Í fyrsta lagi var öllum stjórnmálaflokkum kynntar áherslur eldra fólks bæði fyrir Alþingis- og sveitarstjórnarkosningar. Undirtektir voru mjög góðar og ekki hægt að skilja það með öðrum hætti en að pólitísk samstaða væri þvert á flokka. Ríkisstjórnin endurnýjaði umboð sitt og samþykkti nýjan stjórnarsáttmála þar sem því er lýst yfir að endurskoða eigi skerðingar og jaðarskatta eldra fólks.

Ríkisstjórnin hunsar eldra fólk

Nú hefur ríkisstjórnin í tvígang lagt fram fjárlagafrumvarp og Alþingi samþykkt án þess að vikið sé að því að bæta kjör eldra fólks t.d með því að draga úr skerðingum og minnka jaðarskatta. Fjárlög hverju sinni er mælikvaði á raunverulegan vilja ríkisstjórnar.

Raunveruleikinn er sá að bilið á milli lífeyris almannatrygginga og lágmarkslauna breikkar og skerðingar aukast m.a vegna  þess að frítekjumörk hækka ekki í takt við breytt verðlag.

Verkalýðshreyfingin hunsar eldra fólk

Löng hefð er fyrir því á vettvangi ASÍ að við frágang á kjarasamningum sé jafnframt horft til breytinga á lífeyri frá TR. LEB óskaði formlega eftir því við ASÍ, BSRB og BHM að í samtölum við ríkisstjórn í tengslum við frágang kjarasamninga yrði jafnframt tryggt að eldra fólk (eldri félagsmenn) njóti  sambærilegra kjarabóta og aðrir launamenn.

Nú hafa um 80% félagsmanna ASÍ gengið frá kjarasamningum og ríksstjórn kynnt aðgerðarpakka sem sitt framlag til sáttar á vinnumarkaði. Það urðu gríðarleg vonbrigði að ekki er minnst einu orði á kjör eldra fólks í pakka ríkisstjórnarinnar. Þetta gerist þrátt fyrir að ríkisstjórn og launaþegahreyfingin séu sammála um að sérstaklega beri að horfa til þeirra sem eru með lökust kjörin.

Forsætisráðherra hunsar eldra fólk

Í áramótaávarpi forsætisráðherra lagði ráðherrann sérstaka áherslu á að við gerð kjarasamninga bæri fyrst og fremst að horfa til þeirra sem eru með lökust kjörin.  Hér hefði ráðherran átt að horfa inn á við, því hópurinn sem er með lökustu kjörin er fólk sem verður að treysta fyrst og fremst á lífeyri frá TR. Þetta er líka sami stjórnmálamaðurinn sem sagði að fátækt fólk hefði ekki tíma til að bíða eftir réttlætinu.

Eldra fólk var ekki að biðja ríkisstjórnina um að fá eitthvað umfram aðra, heldur að kjarabætur yrðu sambærilegar við aðra launmenn. Verðbólga er 9.6% og allar nauðsynavörur hækka, fasteignarskattar hækka, heilbrigðisvörur og þjónusta hækka, tryggingar hækka, bensínið hækkar, húsnæðiskostnaður ríkur upp og  þessu verður eldra  fólk að mæta með sínum lága lífeyri.

Miðað við hver viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru við eðlilegum óskum eldra fólks um sambærilegar leiðréttingar á sínum kjörum og annað launafólk er að fá, er yfirlýsing forsætisráðherrans um leggja eigi áherslu á þá sem lakast standa ótrúverðug, raunaveruleikinn er annar.

Raunveruleiki eldra fólks

En hvað er eldra fólk að fá í vasann um þessi áramót til að mæta þessum miklu verðhækkunum sem verðbólgan veldur í samanburði við þá sem eru búnir að ganga frá kjarasamningum?

Ellilifeyrir frá TR hækkaði 1. janúar um 21.210 kr. og verður 307.829 kr. á mánuði og þegar  tekið hefur verið tilit til skerðinga er talan 16.145 kr fyrir skatta. Í þessu  dæmi  er tekið mið af miðgildi lífeyrsis frá lífeyrisjóði 212.256 kr. í lok ársins 2023. Gert ráð fyrir að lífeyri frá lífeyrissjóðum hækki um 5.6% og hækki á  árinu 2023 um 11.226 kr.   Þegar tekið hefur verið tillit til  skerðinga og skattgreiðslna hækka ráðstöfunartekjur eldrafólks um 17.105 kr. á árinu 2023. Sé einstaklingur með heimilsuppbót bætst við 4.055 kr. fyrir skatt.

Sé horft til kjarasamnings SGS  hækka taxtalaun að lágmarki um 35.000 kr. og ráðstöfunartekjur um 24.433 kr. á mánuði.

Sé hinsvegar hoft til kjarasamninga VR og iðnaðarmanna má ætla að ráðstöfunartekjur hækki á bilinu 25.745 til 42.908 kr. Auk þess hækkar orlofs- og desemberuppót um 5%.

Lægsti launataxti á almennum vinnumarkaði verður frá 1. nóvember 2022 kr. 402.235  en lífeyrir frá TR frá 1. janúar 2023  er 307.829 kr. Bilið eykst enn frekar frá því sem var.

En hvað þýðir miðgildi lífeyris frá lífeyrissjóði kr. 212.256? Það segir okkur að  helmingurinn  er með 212,256 kr. og lægra og hinn helmningurinn með 212.256 kr og hærra.  Vissuleg er all stór eldra fólks með ágætar tekjur og því ber að fagna en á móti er hópurinn sem er með mjög lágan lífeyri allt og stór og því verður að breyta.

Þessi gliðnun á milli lífeyris og launa endurspeglast í yfirlýsingu fjármála- og efnahagsráðherra sem hann birti í upphafi nýs árs. Að hans mati hækka ráðstöfunartekjur á almennum vinnumarkaði árið 2023 um 50.000 kr. á mánuði og þar af sé 8.000 kr. vegna uppfærðra viðmiða tekjuskatts sem gefur ekki rétta mynd, því gert er ráð fyrir að tekjuskattur lækki en útsvar hækki samsvarandi.

Eldra fólk er mát

Eldra fólk hefur lagt sig fram um að eiga málefnalegt samtal við stjórnvöld, lagt fram skynsamar og hóflegar tillögur um bætt kjör eldra fólks án þess að það hafi borið árangur.  Tillögurnar hafa gengið út á að lækka skerðingar og draga úr jaðarsköttum sem er í samræmi við gildandi stjórnarsáttmála.

Eldra fólk hefur leitað til verkalýðshreyfingarinnar en það hefur heldur ekki skilað árangri.

Það virðist vera pólitísk samstaða meðal stjórnarflokkana að kjör eldra fólks verði ekki bætt þrátt fyrir að ríkisstjórnin tali um að bæta eigi kjörin þeirra sem lakast standa.

Kári Stefánsson sagði í Silfrinu „Það er að minnsta kosti alveg ljóst að velferðarkerfið okkar, sem er þessi gimsteinnn sem gerir þetta samfélag, eða hefur gert það, að griðarstað í gegnum áratugina, er farið að gefa eftir. Það er orðið mjög erfitt að telja sjálfum sér trú um að fólk sé öruggt í íslensku samfélagi nema það sé tiltölulega vel fjáð.“

Þrátt fyrir orð Kára er ég sannfærður um að innst inni er forsætisráðherra ennþá þeirrar skoðunar að fátækt fólk getur ekki beðið eftir réttlætinu.

Það er engin uppgjöf hjá eldra fólki, en ljóst að endurmeta þarf leiðir og baráttuaðferðir.

Greinin birtist fyrst á KJARNANUM miðvikudaginn 11. janúar 2023

Hvernig á að snúa sér þegar kemur að töku ellilífeyris?
Þeir sem hafa búið í 40 ár á Íslandi og  eru orðnir 65 ára geta átt rétt á ellilífeyri frá Tryggingastofnun, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.  Farið var yfir það á fundi hjá TR nýlega hvernig fólk á að snúa sér þegar kemur að töku lífeyris frá stofnuninni.  Fjöldi fólks fylgdist með fundinum bæði á staðnum í Tryggingastofnun og svo í streymi frá fundinum. Sigrún Jónsdóttir sviðsstjóri samskipta bauð gestina velkomna og  sagði mikilvægt að koma upplýsingum um þessi mál til fólks og  að starfsmenn TR væru reiðubúnir að mæta hjá félagasamtökum sem vildu fá upplýsingar. „Það er bara að hafa samband“, sagði hún.

Frá fundinum

Tíu þúsund fá ekki greiðslur frá TR

Á fundinum kom fram að 39 þúsund manns fá ellilífeyri frá Tryggingastofnun. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands eru Íslendingar 67 ára og eldri rúmlega 48.700, sem þýðir að tæplega 10 þúsund manns á þeim aldri fá ekki greiðslur frá TR, oftast vegna þess að þeir hafa þegar aðrar tekjur og reglurnar eru þannig að þeir sem hafa meira en rétt tæpar 662.000 krónur á mánuði í tekjur annars staðar frá, eiga ekki rétt á ellilífeyri frá TR. Tekjumörkin eru lægri hjá þeim sem eiga líka rétt á heimilisuppbót, eða rúmar 633.000 á mánuði.

Greiðslur frá TR eru tekjutengdar og skattskyldar

Full réttindi í almannatryggingakerfinu miðast við  samtals 40 ára búsetu hér á landi, á tímabilinu 16-67 ára. Greiðslurnar frá Tryggingastofnun eru tekjutengdar og skattskyldar. Eignir og skuldir hafa ekki áhrif á greiðslur frá TR en fjármagnstekjur hafa hins vegar áhrif. Það þarf að sækja um allar greiðslur frá TR, þær koma ekki sjálfkrafa til fólks í pósti þegar það verður 67 ára.  Það er hægt að sækja um ellilífeyri á Mínum síðum hjá TR og þar þarf einnig að fylla út tekjuáætlun. Kerfið er hins vegar flókið og það er hægt að koma í Tryggingastofnun í Hlíðarsmára í Kópavogi og fá þar frekari upplýsingar eða fara til sýslumanna á landsbyggðinni sem eru með umboð fyrir TR.

Hámarksgreiðsla til einstaklings að hámarki tæpar 360.000 krónur

Hámarksgreiðslur ellilífeyris frá TR eru núna  286.619 krónur á mánuði fyrir skatt. Þeir sem eru einhleypir og búa einir eiga rétt á svokallaðri  heimilisuppbót ofan á þessa upphæð og fá því samtals 359.046 krónur á mánuði fyrir skatt.  Hjón og sambúðarfólk á ekki rétt á heimilisuppbót. En ef maki er kominn á stofnun, getur sá sem er orðinn einn heima fengið heimilisuppbót.

Það er hægt að hefja töku lífeyris snemma og þá lækkar greiðslan varanlega frá TR, eða fresta töku lífeyris allt til 80 ára aldurs, hjá þeim sem eru fæddir 1952 og síðar, og þá hækkar greiðslan varanlega. Inní þetta allt saman spila svo frítekjumörkin, sem eru 25.000 krónur fyrir fjármagnstekjur og tekjur úr lífeyrissjóði. Sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna er 200.000 krónur á mánuði.  Eftir að frítekjumörkum er náð, skerðist ellilífeyrinn um 45%.  Tekjur umfram frítekjumörk skerða heimilisuppbót um tæp 12%.

Réttindin mismunandi og ástæða fyrir hvern og einn að kynna sér málin

Á fundinum var farið vel yfir það hvernig kerfið virkar. Sumir kunna að eiga rétt á greiðslum erlendis frá og aðrir vilja taka hálfan ellilífeyri á móti hálfum lífeyri úr lífeyrissjóði. Um áramót verða svo breytingar sem snúa að meðferð séreignasparnaðar í lífeyrissjóðunum, en það eru ekki allir lífeyrissjóðir sem greiða fólki hann. Þetta er ekki séreignasparnaðurinn sem menn hafa lagt fyrir í bönkum, svo kallaður viðbótarlífeyrissparnaður.  Fyrir flesta sem koma að lífeyrismálunum  í fyrsta sinn er þetta flókið og því ætti fólk að afla sér upplýsinga hjá TR og lífeyrissjóðunum sínum. Það sem gildir fyrir einn, þarf ekki að gilda fyrir annan.

Eldra fólk er ódýrt vinnuafl
Þessi  grein Kára Jónassonar birtist upphaflega í Fréttablaðinu miðvikudaginn 16.nóvember. Hann fjallar hér um mál sem margir af eldri kynslóðinni velta fyrir sér.

Enn á ný hafa fulltrúar verkalýðshreyfingar og  vinnumarkaðsins  sest að  samningaborðinu til að semja um kaup og kjör. Það er talað um að þeir séu nú að semja  fyrir meira en 100 þúsund manns.  Á næstunni fara svo væntanlega í gang viðræður milli ríks og sveitarfélaga við BHM og BSRB. Þá eru ótalin mörg önnur félög, eins og Blaðamannafélag Íslands, flugmannafélagið og fleiri.

En það vantar að geta eins hóps-  meira en 50 þúsund manna – sem eiga enga fulltrúa við samningaborðið, og það er eldra fólkið í samfélagi okkar, – sem á undanförnum árum hefur unnið hörðum höndum að því að byggja upp það velferðarsamfélag sem við nú búum við.

Já, þessi hópur á engan fulltrúa við samningaborðið, þótt margir í honum hafi lagt mikið á sig á undanförnum árum innan sinna stéttarfélaga við að bæta kjörin. Verkalýðsfélögin mörg hver – ekki öll – hafa hreinlega þurrkað nöfn þeirra út úr bókum sínum ,ef svo mætti segja, því kröfur um bættan hag þessa hóps eru sjaldséðar í kröfugerðinni í yfirstandandi samningum.

Þá vill svo til að einmitt þessa dagana eru kjör eldra fólks til umræðu hjá háttvirtu Alþingi, og ef marka má fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir, þá er þar ekki feitan gölt að flá fyrir eldra fólk.

Það er gjarnan talað um að virkja eldri borgara til meiri atvinnuþátttöku, en þar er yfir margar hindranir að fara. Ein er sú að eftir 70 ára aldur greiðir fólk ekki í lífeyrissjóð ef það stundar launaða vinnu. Fyrirtæki og stofnanir sleppa þannig við að greiða 11,5 % af launum þeirra í sjóðina, og má því segja að eldra fólk sé ódýr vinnukraftur. Launþegarnir fá hinsvegar ekkert aukalega í sinn vasa, og þetta er atriði sem gjarnan mætti taka upp í þeim viðræðum sem nú standa yfir og fyrirhugaðar eru.

Kári Jónasson leiðsögumaður og fyrrverandi fréttamaður.

Veitir einhver óháða ráðgjöf um hvenær best er að byrja að taka út lífeyri?
Ragnar Frímann Ragnarsson starfar í álverinu á Grundartanga en það styttist í að hann fari á eftirlaun. Nokkrir vinnufélagar hans eru í svipaðri stöðu og einn þeirra sem verður 67 ára í febrúar er byrjaður að taka út lífeyri, en veltir fyrir sér hvað best sé að gera við séreignasparnaðinn.

Sjálfur sagðist Ragnar vilja kynna sér, hvenær væri skynsamlegast fyrir sig að byrja að taka lífeyrinn út. Hann hringdi í Lifðu núna til að spyrjast fyrir um hvort ekki væri einhvers staðar hægt að fá óháða fjármálaráðgjöf um þessi mál. Það varð fátt um svör hjá blaðamanni Lifðu núna, sem hafði ekki heyrt af óháðri ráðgjöf um lífeyrismálin og hvernig best væri að haga málum þegar líður að starfslokum. Hér á vefnum var hins vegar viðtal við konu sem var að komast á eftirlaun og hafði greitt í fjóra lífeyrissjóði. Þar sagði meðal annars.

„Hún er enn að vinna 69 ára gömul, en ákvað samt að hefja töku lífeyris hjá þessum fjórum sjóðum þegar hún varð 65 ára, eins og hún hafði heimild til að gera.  Hún fær 110 þúsund krónur á mánuði frá sjóðunum, sem gerir um 60.000 krónur eftir skatt. Þessum fjármunum hefur hún safnað inná bók, nokkurs konar séreignasparnaði, sem í dag er orðinn yfir 2 milljónir króna.

Hefði hún ekki gert það, hefði hún orðið af þessum peningum, en lífeyrisjóðsgreiðslur hennar hefðu aftur hækkað og orðið nokkuð hærri en þær eru núna. En þá hefðu greiðslur TR til hennar lækkað á móti og hún verið jafnsett og áður“.

Þótt hér hafi þetta dæmi verið nefnt er ljóst að það er afar misjafnt hvernig lífeyrismálin koma út og hvenær best er að hefja töku lífeyris. Það er misjafnt hvernig lífeyrisréttur fólks er og hversu miklar greiðslur það fær frá Tryggingastofnun ríkisins, ef einhverjar.

„Er einhver staður þar sem veitt er óháð fjármálaráðgjöf um þessi mál?“, sagði Ragnar og átti þá við hvort einhverjir utan lífeyrissjóðakerfisins og almannatrygginga gætu lagt óháð mat á hvað best væri fyrir hvern og einn að gera. Hann var einnig að velta fyrir sér breytingum á séreignasparnaði sem boðaður er um áramótin. „Er það kannski enn ein skerðingin?“, spurði hann.

Lifðu núna lýsir hér eftir upplýsingum um hvort einhver veiti óháða ráðgjöf fyrir þá sem nálgast starfslok og velta fyrir sér hvernig best sé að standa að málum þegar kemur að töku lífeyris?

„Bjartsýnn á að okkar mál verði tekin upp í kjarasamningum“
Forystumenn Landssambands eldri borgara sendu erindi til ASÍ og  stærstu stéttarfélaganna og óskuðu eftir að þeir ræddu um kjör eldri borgara, í samtölum sínum við stjórnvöld samhliða gerð næstu kjarasamninga. Að því búnu áttu þeir samtöl við forystumenn þessara stéttarfélaga. Þeir punktar sem LEB vill að verkalýðsleiðtogarnir taki með sér í viðræðurnar eru:

Hækka almennt frítekjumark í 200.000 krónur.

Lágmarkslífeyrir verði aldrei lægri en lágmarkslaun á almennum vinnumarkaði.

Afnema tekjutengingu vegna atvinnutekna.

Lífeyrir og frítekjumörk hækki árlega til samræmis við launavísitölu.

Samið verði um afturvirka leiðréttingu á ellilífeyri til samræmis við hækkun verðlags.

Helgi Pétursson

Helgi Pétursson formaður Landssambandsins segir að fulltrúar LEB hafi tekið vel í þessi mál, en efnislegar viðræður um þetta muni fara fram eftir þing ASÍ sem nú stendur fyrir dyrum.  „Auðvitað erum við bjartsýn á að okkar mál verði tekin upp í samningaviðræðunum, miðað við þær jákvæðu undirtektir sem við höfum fengið og þá miklu umfjöllun sem verið hefur um bæði lífeyrismál og húsnæðismál eldri borgara. Nýlegt innlegg Stefáns Ólafssonar um kjör eldri borgara, í Kjarafréttum Eflingar, sýnir aukinn áhuga innan verkalýðshreyfingarinnar á að sinna þessum málum betur.  Ég trúi því einlæglega að okkar málefni verði tekin fyrir við gerð kjarasamninga“, segir hann og minnir á að þessi mál snerti tugþúsundir manna.

Helgi bendir á að eldri borgarar hafi nær allir verið í stéttarfélögum og greitt þar í alls kyns sjóði. Langflestir upplifi að þeir séu ekki lengur með í verkalýðshreyfingunni eftir að þeir fari á eftirlaun og finnist það hart. Það sé misjafnt eftir félögum hvort menn haldi einhverjum réttindum þar eftir að þeir ljúki formlega störfum á vinnumarkaði. „Við erum fyrst og fremst að leita stuðnings við okkar mál. Við vorum ekki hluti af lífskjarasamningnum á sínum tíma og duttum þar alveg út“, segir Helgi  og bætir við að nú séu að koma til skjalanna deildir eftirlaunafólks innan stéttarfélaganna, þannig hafi VR til dæmis stofnað öldungaráð og Sameyki sé með lífeyrisdeild.

Forysta Landssambandsins hyggst taka málið upp við stéttarfélögin á ný, eftir þing ASÍ sem nú stendur yfir.

Kjaramál eldri borgara verði ekki skilin eftir í tómarúmi
Landssamband eldri borgara hefur rætt  við forystumenn stéttarfélaganna um að verkalýðshreyfingin tryggi eldri félögum sínum  betri eftirlaunakjör samhliða gerð kjarasamninga.  Þorbjörn Guðmundsson formaður kjaranefndar LEB segir að þessari málaleitan hafi verið vel tekið. Þing ASÍ verður haldið í næstu viku og þar verður nýr forseti kjörinn. Þorbjörn segist binda vonir við að undirtektirnar verði jafn góð eftir þingið, en bankað verði aftur uppá hjá verkalýðshreyfingunni strax að því loknu. Hann segir óvissu um það hvað samið verði til langs tíma, en það sé númer eitt að lífeyrismálin verði ekki skilin eftir í tómarúmi.

Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að tryggja góð eftirlaun

Þorbjörn sem var framkvæmdastjóri Samiðnar í tvo áratugi, segir að íslenska verkalýðshreyfingin hafi mótað sér þá sýn að að hlutverk hennar sé ekki eingöngu að semja um krónur og aura, heldur beri henni einnig að sinna velferðarkerfinu. „Lífeyrissjóðirnir eru hluti af því og hreyfingin hefur talið það eitt af hlutverkum sínum að tryggja fólki góð eftirlaun meðal annars með lífeyrissjóðunum. Þetta sést áratugi aftur í tímann“, segir Þorbjörn.

Um helmingur með minna en meðallaun í landinu

„Staðan nú, ef við skoðum fólk á almennum markaði, er sú að þrátt fyrir lífeyrissjóði og almannatryggingar er stór hluti fólks sem er að fara á eftirlaun með lágan lífeyri og það gildir raunar líka um þá sem eru komnir á eftirlaun. Þetta fólk hefur verið á lágum launum og hefur borgað ákveðið hlutfall af þeim lágu launum í lífeyrissjóð og síðan bætast við skerðingarnar í almannatryggingakerfinu. Tölulegar staðreyndir sýna að helmingur þeirra sem er kominn á eftirlaun er með tekjur undir meðallaunum í landinu og hefur það bara ekki gott.  Þetta eru allt félagsmenn stéttarfélaganna og þess vegna lít ég svo á að hlutverki félaganna í  að tryggja fólki góð eftirlaun, sé ekki lokið.“, segir Þorbjörn.

Framtíðin lítur betur út en núverandi kerfi

Þorbjörn segir að því sé mikið hampað að hér sé besta lífeyriskerfi í heimi. Það þýði ekki endilega að það sé verið að tryggja eftirlaunafólki mjög góð lífskjör, miðað við hversu dýrt sé að lifa á Íslandi. „Ef maður byggi á Spáni myndi þetta duga. Við erum með besta lífeyriskerfi í heimi en það er ekki að skaffa nógu mikið, önnur kerfi skaffa aftur á móti minna“, segir hann. Þorbjörn segist vilja horfa fram á við og það sé meira atriði að móta sýnina fram á við, en velta sér uppúr fortíðinni.  Hann segir ljóst að málefni eldra fólks hafi ekki verið forgangsmál í verkalýðsfélögunum undanfarin ár. „Ég held að fólk hafi dálítið misst sýnina á þennan hóp sem hefur lítil réttindi“, segir Þorbjörn og bætir við að framtíðin líti betur út í lífeyriskerfinu en núverandi staða. „En sá sem er á lífeyri í dag er að lifa á þessu eins og það er í dag og borðar ekki það sem verður eftir 30 ár“.

Af lélegum launum  léleg eftirlaun

„Hópur eftirlaunafólks hefur það gott á eftirlaunum sem er frábært, en við höfum kannski ekki verið nógu vakandi yfir eðli lífeyrissjóðanna. Ef menn hafa verið á lélegum launum eru þeir líka á lélegum kjörum þegar þeir eru komnir á eftirlaun“, segir Þorbjörn sem er bjartsýnn á að verkalýðshreyfingin bregðist við ákalli eldra fólks um einhvers konar aðkomu að kjarasamningum. „Verkalýðshreyfingin hefur tekið það inná sitt borð að sinna velferðarkerfinu og þetta er hluti af því. Ef menn taka að sér þetta hlutverk verða þeir að sinna því“.

Ellilífeyrir hækki samkvæmt lögum
Landssamband eldri borgara hefur sent frá sér umsögn um það hvernig fjárlagafrumvarpið snertir hagsmuni umbjóðenda sinna. Aðalatriði umsagnarinnar eru þessi:

Ellilífeyrir hækki um sömu upphæð og almenn laun

Almennt frítekjumark verði hækkað

Rekstur hjúkrunarheimila verði tryggður

Framkvæmdasjóði aldraðra verði ekki veitt bráðbirgðaleyfi til að taka þátt í rekstri

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að auk leiðréttingar vegna vanáætlunar á yfirstandandi ári skuli ellilífeyrir hækka á árinu 2022 um 3,8%. Sú hækkun nemur um 10.109 kr. á mánuði en á sama tíma verða almennar launahækkanir 17.250 kr. á mánuði.

Það er skýr krafa Landssambands eldri borgara að Alþingi fari að lögum og ellilífeyrir fylgi almennri launaþróun samanber 69. gr. laga nr. 100/2007.  Hækkunin bætist við lífeyrinn eftir að upphæð hans hefur verið hækkuð um 0,8% sem er leiðrétting vegna ársins 2021.

LEB kynnti fyrir Alþingiskosningar öllum stjórnmálaflokkum áherslur sínar í 5 efnisatriðum. Þar er efst á blaði að hækka almenna frítekjumarkið í 100.000 kr. enda myndi sú breyting nýtast þeim sem eru með lægstan lífeyrinn vel.

Í frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að frítekjumark atvinnutekna hækki um 100.000 kr. á mánuði og verði á ársgrundvelli 2,4 milljónir. Hafa verður í huga að boðuð breyting í frumvarpinu hefur mjög takmörkuð áhrif á afkomu lífeyristaka þar sem einungis um tíundi hver ellilífeyrisþegi hefur einhverjar atvinnutekjur og þar af er meirihlutinn með tekjur undir núverandi frítekjumarki, 100 þús. kr. á mánuði.

LEB krefst þess að rekstur hjúkrunarheimila verði tryggður og þeim gert kleift að veita þá þjónustu sem elsta og veikasta fólkið okkar á rétt til samkvæmt gildandi lögum. Ekki er hægt að sjá í frumvarpinu að verið sé að taka á  miklum og viðvarandi  rekstrarvanda hjúkrunarheimila um land allt.

Hægt er að nálgast umsögn LEB um fjárlagafrumvarpið í fullri lengd á vef Alþingis með því að smella hér.