Daglegt líf – Lifðu núna

Sumarlegra heimili á svipstundu
Þegar sumarið og birtan lífga upp á allt langar marga að flytja litadýrðina að utan inn í hús. Það er hægt á marga vegu og flestar leiðirnar eru ódýrar og skemmtilegar.

Léttu á svefnherberginu

Á sumrin er gaman að draga fram þynnri og ljósari rúmföt, teppi og púða. Með því að skipta um rúmteppi, setja litrík rúmföt utan um sængur og kodda og skreyta allt með fallegum púðum verður svefnherbergið umsvifalaust sumarlegra og skemmtilegra. Mottur, fallegir lampar og litríkir skrautmunir gera svo gæfumuninn.

Grænt og gómsætt í eldhúsið

Margir rækta kryddjurtir í eldhúsinu allt árið um kring en á sumrin er það sérstaklega skemmtilegt. Jurtirnar geta einnig verið innblástur að nýjum hugmyndum að spennandi réttum og margar gefa frá sér frískandi og góðan ilm. Mynta og sítrónumelissa eru til að mynda fyrirtaksjurtir til að skapa góðan híbýlailm og hafa auk þess þann kost að fæla flugur frá eldhúsinu.

Önnur skemmtileg hugmynd er að búa til kaffihorn með því að fá sér litríkan bakka og raða á hann kaffikrukkunni, pressukönnunni, kaffibollum og krukku með gómsætum smákökum.

Ávaxtaskálar eru önnur leið til að minna á ofgnótt og dásemdir sumarsins. Þær minna mann líka á að grípa ávexti fremur en sætindi til að nasla á yfir daginn.

Enduraðaðu öllum húsgögnum

Á sumrin fá margir meiri orku og finna til framkvæmdagleði. Þá má endurraða öllum húsgögnum heimilisins og jafnvel færa milli herbergja. Það er um að gera taka einnig fram skrautmuni sem komnir voru í geymslu og skipta þeim út eða endurskipuleggja upp nýtt allar hillur heimilisins.

Maður getur alltaf á sig blómum bætt

Sumarið er tíminn til að njóta blóma og taka þau með sér inn í hús. Villiblóm, garðblóm og blómvendir úr stórmörkuðum eru fullkomin leið til að gefa heimilinu sumarblæ og auka gleði. Það er gaman að raða blómum í vasa og ýmis trix hjálpa til við að koma þeim þannig fyrir að þau njóti sín sem best, til dæmis að strengja glært límband yfir vasann og raða blómunum þar á milli. Þá virkar vöndurinn stærri og blómin standa beinni.

Ilmurinn er indæll

Margir eru hrifnir af ilmkertum og á sumrin er gaman að velja léttari lykt eða blómailm sem fælir frá flugur og annan ófögnuð. Þar á meðal eru lavender, sítrónumelissa, piparmynta, eucalyptus, rósmarín, timían og sítrusávaxtailmur eru þar á meðal.

Þegar brúa þarf bilið
Stundum rakna sambönd og tengsl milli fólks upp eiginlega án þess að neinn taki eftir því. Samtölin verða styttri og færri, hætta að snúast um það sem skiptir báða aðila máli og verða að meiningarlausu spjalli um daginn og veginn. Oft er eftirsjá að gömlum vini og alvarlegt ef um fullorðið barn viðkomandi er að ræða eða annan fjölskyldumeðlim. Þetta getur virst óyfirstíganlegt vandamál en stundum er hægt að brúa bilið, skapa aftur andrúmsloft hlýju og nándar. Það getur verið sársaukfullt en þess virði.

Náin sambönd byggja á grunni trausts, skilnings og virðingar milli beggja. Í gegnum árin reynir á og það koma upp ásteytingarsteinar og vandamál, deilur og rifrildi en allt það þarf að leysa. Ef vandamálin ná að safnast upp, ekki er talað út um hlutina eða komist að niðurstöðu um málamiðlun getur komið að því að annar hvor aðilinn gefist upp. Þegar „Tinna“ dóttir „Stínu vinkonu“ hætti að hringja í mömmu sína nema endrum og sinnum hélt hún fyrst að stelpan væri einfaldlega mjög upptekin. Tinna var í námi, í vinnu og með tvö börn, alveg skiljanlegt að hún hefði minni tíma til að sinna mömmu sinni.

En smám saman fór Stína að taka eftir því að samtölin voru innihaldslausari en áður. Tinna var hætt að tala um líðan sína, trúa mömmu sinni fyrir draumum sínum og erfiðleikum. Öllum spurningum var svarað nánast með einsatkvæðisorðum, jú það gekk vel í skólanum, krakkarnir voru hraustir, vinnuveitandinn ágætur, lífið bara fínt. Stína vissi betur. Hún vissi að Tinna hafði áhyggjur af yngri stráknum, að verkefnin í skólanum voru stundum snúin og hún komst ekki áfram í þeim og vinnuveitandinn var sannarlega ekki ágætur.

Hætti að hlusta á dótturina

Stína fór að velta fyrir sér hvort hún hefði sagt eitthvað til að særa dóttur sína. Hafði hún ekki sýnt nægan stuðning? Hvers vegna var komin þessi kaldi tónn í samræður þeirra og fjarlægð á milli mæðgnanna. Og Stína áttaði sig. Í stað þess að hlusta á dóttur sína hafði hún gert lítið úr áhyggjum hennar af drengnum. Hann var bara yndislegi ömmustrákurinn hennar en hvað ef hann var með ADHD eins og Tinna hélt var þá ekki betra að barnið fengi greiningu sem fyrst? Já og verkefnin, Stína hafði aldrei sýnt áhuga á náminu. Hvað var það sem olli Tinnu erfiðleikum? Af hverju stóðu sum fögin ekki opin fyrir henni? Tinna var góður námsmaður. Hafði Stína ekki nennt að setja sig inn í þetta og kannski ræða við dóttur sína um hvernig best væri að leysa úr þessu? Stína var jú, lærð í svipuðu fagi. Og vinnuveitandinn, af hverju hafði hún ekki hvatt dóttur sína til að tala við manninn, krefjast betri framkomu og vinnuaðstæðna?

Margir foreldrar kannast við þetta. Þegar börnin verða fullorðin breytumst bæði þau og við. Oft ákveðum við að einhver þurfi ekki á okkur að halda, að viðkomandi sé sjálfstæður og fullorðin og við einbeitum okkur að öðru. Hættum að rækta gömul samskiptamynstur eða þau  virka ekki alltaf jafn vel áður. Fjölskyldufræðingurinn John Gottman lýsir nánum samböndum eins og húsi. Öryggi og traust mynda grunninn, en hæðirnar byggjast upp af góðum samskiptum, gagnkvæmri virðingu og tilfinningalegum tengslum. Þegar sprungur koma í sambandið snýst málið ekki um að rífa allt húsið, heldur að gera við þar sem þess er þörf.

Límið í varanlegum samböndum

Þegar börnin flytja að heiman og hefja eigið líf er auðvelt að halda að við þekkjum þau enn út og inn. En fullorðið fólk þarf að takast á við margskonar áskoranir og ekki allar auðveldar. Allir vilja að á þá sé hlustað, eiga einhvern í lífi sínu sem alltaf er til staðar og sér hver maður er. Þegar spurt er af einlægum áhuga og hlustað af athygli finna allir muninn. Ef gefin eru ráð gefðu þau ekki til að stjórna heldur til að styðja viðkomandi í að taka næsta skref, hugsa málið til enda og finna sína lausn. Oft er gott að spyrja: „Hvernig lítur málið út í þínum augum akkúrat núna?“ eða „Segðu mér frá því sem skiptir þig mestu máli núna.“ „Hefur þú einhverjar áhyggjur einmitt núna?“ Að hlusta á fólk sýnir virðingu og opnar dyr. Þegar manneskja hlustar án þess að dæma, gefur af sér af einlægni og sýnir stuðning stuðlar það að trausti.

Gottman leggur áherslu á að gagnkvæm virðing og kærleikur sé límið í varanlegum samböndum. Þegar einhver er dapur eða vonlítill er gott að beina athyglinni að því sem gengur vel. Segja upphátt: „Ég dáist að því hvernig þú tekst á við þetta.“ Eða: „Ég kann virkilega að meta hvað þú ert umhyggjusöm/umhyggjusamur.“ „Mér finnst þú standa þig ótrúlega vel.“ Uppörvunarorð geta dregið úr spennu og gamalli togstreitu og skapað nýja nálægð.

Þegar erfitt er orðið að tala við einhvern, fjarlægð hefur myndast á milli og andrúmsloftið er ekki gott er auðvelt að draga sig í hlé. Finnast betra að láta þetta vera, bíða eftir að það lagist eða hugsa, þetta er ekki mitt mál, ég gerði mitt besta og nú verður viðkomandi bara að bjarga sér. En með því að rétta fram sáttahönd, mæta með vinarþel sýnir það vilja til að bæta úr og að þú ert ekki hrædd við að taka erfiðu samtölin líka, hlusta á gagnrýni á þig. Kærleikur er öflugur kraftur og sterk taug þegar kemur að tengslum milli manna. Jafnvel lítil skref, eins og skilaboð eða kaffibolli saman, geta opnað dyr að sáttum. Mörg fullorðin börn þora ekki að nálgast foreldra sína á ný fyrr en þau finna að foreldrarnir sýna vilja til að berskjalda sig, viðurkenna að þeim geti orðið á, biðjast fyrirgefningar af auðmýkt og löngun til að skilja viðhorf annarra og sársauka.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Kíví á dag kemur skapinu í lag
Trefjar, C-vítamín, andoxunarefni, pótassíum og fólat allt eru þetta næringarefni sem kíví-ávöxturinn inniheldur í miklum mæli. Í raun eru þessir litlu grænu boltar meðal næringaríkustu ávaxta. Að auki eru þeir gómsætir en samt þeir ávextir sem Íslendingar borða einna síst. Fyrir því eru nokkrar ástæður en við ættum kannski að tína þá oftar í poka og njóta.

Epli, bananar og appelsínur eru vinsælustu ávextirnir hér á landi þrátt fyrir að nú orðið fáist margir aðrir allan ársins hring. Auðvitað er ekkert að því að borða epli, appelsínur og banana daglega en það getur borgað sig að auka fjölbreytnina og benda má á að í einu kíví er jafnmikið af C-vítamíni og í einni appelsínu en kíví-ið er helmingi hitaeiningaminna. Kíví er alls ekki meðal dýrustu ávaxta á markaðnum hér svo það er sannarlega þess virði skoða það betur.

Hvað er svona merkilegt kíví?

Með því að borða kíví reglulega getum við bætt meltinguna, örvað húðfrumur til endurnýjunar, bætt svefninn og létt lundina. Allt þetta leiddi bresk rannsókn á áhrifum þess að borða eitt kíví á dag á eldra fólk í ljós. Vegna þess hve trefjaríkur ávöxturinn er getur hann hjálpað til við að losa um hægðir ef hægðatregða er að plaga fólk og evrópsk rannsókn leiddi í ljós að það hefur mun meiri og varanlegri áhrif en sveskjur hvað þetta varðar. Það er vegna þess að kíví inniheldur bæði uppleysanlegar og óuppleysanlegar trefjar og auk þess ensímið actínídín en það örvar meltinguna og hjálpar likamanum að brjóta niður prótín. Auk þess hjálpa trefjar okkur að viðhalda bakteríuflóru þarmanna og þar með ónæmiskerfi líkamans.

Áhrif þess á húðina koma fyrst og fremst til vegna C-vítamín innihaldsins en í ávextinum er einnig efni sem ýtir undir kollagen-framleiðslu en kollagen er byggingarefni húðarinnar og það sem veldur því að hún er bæði teygjanleg og sterk. Í kíví er líka E-vítamín og fjölfenól sem hjálpa til við að halda húðinni heilbrigðri og ýta undir varnir hennar gegn UV-geislum sólar. C-vítamínið í ávextinum gerir það einnig að verkum að sár gróa fljótar og betur.

Áhrif þess á svefninn eru hins vegar tilkomin vegna þess að í kíví er töluvert serótónín og það hjálpar líkamanum að framleiða melatónín, hormón sem hjálpar fólki að slaka á og sofna og einnig sofa lengi og vel. Margir íþróttamenn vita af þessu og þeir borða þess vegna eitt til tvö kíví klukkustund áður en þeir fara að sofa kvöldið fyrir keppnisdag.

Kíví léttir lund

Breska rannsóknin leiddi einnig í ljós að kíví-át væri líklegt til að létta lundina og auka lífsþorsta fólks. Sennilegast þótt vísindamönnum að þetta væri fyrir áhrif C-vítamínsins og andoxunarefnanna en þau ýta undir boðefnaframleiðslu í heilanum, þar á meðal vellíðanarboðefna og þau hafa góð áhrif á lífsgleði og orku fólks. Í venjulegu kíví er að finna um 60 mg af C-vítamíni og það nægir til að tryggja venjulegri manneskju ráðlagðan dagsskammt af því góða vítamíni.

Ef þú lesand góður hefur enn ekki sannfærst um að eitt kíví á dag geti bætt heilsuna verulega ættir þú vita að trefjarnar í því vinna gegn vondu kólesteróli eða blóðfitu. Það þarf aðeins að borða tvö kíví á dag til að ná fram 13% lækkun á trígýseríði eða blóðfitu í líkama meðaljónsins. Þegar viðbætist að kíví er ríkt af pótassíumi lækkar blóðþrýstingur einnig verulega þegar fólk borðar tvö á dag. Þetta leiddi norsk rannsókn í ljós.

Ættu einhverjir að forðast kíví?

Já, sumir ættu að láta vera að borða kívi vegna þess að það inniheldur mikið magn af K-vítamíni og pótassíumi hefur það blóðþynnandi áhrif. Fólk sem tekur blóðþynningarlyf ætti því alls ekki að borða kíví daglega en því er alveg óhætt að smakka það af og til. Kíví ofnæmi er einnig þekkt þótt það sé ekki algengt og lýsir sér í kláða í munni og hálsi. Bráðaofnæmi fyrir kíví er einnig þekkt en mjög sjaldgæft. Fólk með ofnæmi fyrir latexi, avókadói, banana og heslihnetum er líklegra en aðrir til að fá ofnæmisviðbrögð þegar það borðar kíví. Ef kíví-ið er óþroskað getur aktiníðið í ávextinum valdið óþægindum í munni og hálsi án þss að það sé endilega merki um ofnæmi. Það að kíví getur verið illa þroskað eða óþroskað er eiginlega eini ókostur þess. Ávöxturinn á ekki að vera harður viðkomu þegar hann er tekinn til neyslu heldur gefa aðeins eftir þegar fingri er þrýst á hann. Ef kíví er hart þarf að geyma það í skál í einn til tvo daga og prófa þá hvort það hafi náð þroska.

Sumir borða kíví með hýðinu en aðrir kjósa að afhýða það. Þótt hýðið sé loðið og virki ólystugt er það bragðlítið og alls ekki óhollt. Í því er mikið af trefjum, eins og reyndar í öllu hýði, og að auki er það ríkt af fólati, E-vítamíni og fjölfenólum. En ef menn vilja gera tilraun til að borða kíví með hýðinu ættu þeir að skola það vel undir vatnsbunu frá krananum og jafnvel bursta það með hreinum bursta.

Kíví-hristingur

2 kíví

frosið mangó

1 banani

safi úr 1/2 lime

1 lófi af myntulaufum

3 msk. grísk jógúrt

2 msk. chia-fræ

Allt sett í blandarann og hann ræstur og blandað þar til blandan er mjúk.

Chia-grautur með kíví

50 g tröllahafrar

2 msk. chia-fræ

100 ml möndlumjólk

2 msk. grísk jógurt

Allt setti krukku og látið standa í ískáp yfir nótt. Tekið fram að morgni og kíví skorið í bita og blandað saman við og sett ofan á. Möndluflögur, hörfræ, graskersfræ, bananar, jarðarber og annað góðgæti er gott ofan á.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Er eyðslusemi arfgeng?
Áhugi fólks á uppruna sínum og sögu fjölskyldunnar er mismikill en yfirleitt eykst hann með árunum. Stundum koma upp atvik er beinlínis kalla á að leitað sé aftur í ættir til að finna skýringar á erfðasjúkdómum en margir telja að þar sé líka að finna ástæður viðbragða okkar við þeim atvikum sem lífið sendir og skapgerðinni.

Í flestum tilfellum þekkir fólk annað hvort móður- eða föðurætt sína betur. Einhverjar sögur hafa varðveist, oftast af dramatískum atburðum, ástarsaga langafa og langömmu, lát afa, frændinn sem fékk berkla og fleira. Þegar farið er að grúska kemur venjulega eitthvað nýtt og áhugavert í ljós. Þær Ólína Þorvarðardóttir og Nanna Rögnvaldardóttir hafa báðar grúskað í ættarsögu sinni og skrifað um formæður sínar. Þeirra leit skilaði ekki bara staðreyndum heldur einnig neistum sem náðu að kveikja elda ímyndunaraflsins. Þessar konur urðu lifandi fyrir hugskotsjónum þeirra og þær gátu sett sig inn í tilfinningalíf þeirra.

Til er gömul sögn í móðurfjölskyldu minni af forföður, stórbóndasyni, sem ekki fékk að eiga vinnukonuna sem hann varð ástfanginn af. Móðir hans neyddi hann til að sverja af sér barnið fyrir rétti. Í fjölskyldu vinkonu minnar hefur sagan af langömmunni sem missti mann sinn í sjóinn frá fimm börnum verið afkomendum hennar hvatning til að gera vel, standa sig. Hún tók inn leigjendur og kostgangara og tókst þannig að halda börnum sínum hjá sér og koma þeim til manns.

Stórbóndasonurinn sór af sér barn

Afi annarar vinkonu veiktist af berklum og barðist við heilsuleysi upp frá því. Honum tókst af fádæma dugnaði og eljusemi engu að síður að koma sér og fjölskyldu sinni vel fyrir í Hafnarfirði og öllum börnum sínum til mennta. En ekki eingöngu jákvæðir eiginleikar skila sér þannig áfram til næstu kynslóða. Samstarfskona sagði undirritaðri eitt sinn þá sögu að í fjölskyldu hennar hefði mann fram af manni erfst algjör blinda og heimska í meðferð peninga. Hún hafði nýlega komist að því að einum forfeðra hennar hafði oft græðst fé en hann jafnóðum tapað því. Þetta mynstur virtust afkomendur hans dæmdir til að endurtaka og fjölskyldan var reglulega í peningavandræðum en þess á milli hafði heppni skilað þeim háum fjárhæðum. Af einhverjum ástæðum virtust þau ekki geta lært að fara skynsamlega með og ávallt biðu blankheit handan við hornið.

Að þekkja slíkar sögur og hafa alist upp við þær er verðmætt. Það skilar þeirri tilfinningu að maður eigi arfleifð, sé tengt fortíðinni og geti ýmist breytt henni eða varðveitt.  Margir hafa einnig þá tilfinningu að þeir séu skyldugir til að virða fórnir þeirra sem á undan komu og tryggja að vinna þeirra sé ekki til einskis. Vísindamenn hafa á síðustu árum rannsakað hvernig áföll erfast og hvernig þau breyta erfðaefni manneskjunnar. Kannski liggur lykillinn að góðri heilsu barnabarna okkar í því að við skiljum eftir handa þeim aðgengilegar upplýsingar um líf okkar.

Margir kjósa að varðveita sögur fjölskyldunnar með því að skrifa niður allt sem vitað er um forfeðurna. Gamlar myndir geyma einnig merka sögu og gamlir munir. Tölvuvæðingin hefur þann kost að auðvelt er að geyma mikið magn upplýsinga en þann ókost að auðvelt er að glata þeim, annað hvort hít hinna ótal mörgu upplýsingaveita eða niður í svarthol úreltrar tækni. En séu ekki bara líkamlegir eiginleikar varðveittir í genunum heldur einnig hegðunarmynstur og lífsstílsval forfeðranna veitir það okkur frelsi til að velja að rjúfa vítahringinn svo lengi sem við horfumst í augu við söguna.

Þetta getum við skilið eftir skriflegt:

Sögurnar sem við ólumst upp við af ættingjunum og hvernig við upplifðu eldri kynslóðirnar í fjölskyldunni þegar við vorum að alast upp.

Ef við viljum ekki endurtaka mistök forfeðranna hvað viljum við þá gera í staðinn og hvernig?

Hverjar eru óskir okkar til handa börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum?

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Grátt hár hefur aldrei verið vinsælla
Silfurrefir og silfurtófur skarta nú gráum lokkum og láta algjörlega vera að lita hárið. Það er einnig þónokkuð algengt að yngra fólk kjósi að lita hárið í gráum tónum til að fá á sig virðuleikablæ. Lengi vel trúðu menn og konur því að með því að lita hárið virkuðu þau yngri en það þarf alls ekki að vera svo. Fallega klippt og stílíserað grátt hár yngir ekki síður en dökkir lokkar og ljósir liðir.

Að hætta að lita hárið er frelsandi og opnar á ótal möguleika. Það er hægt að nota skol af og til ef fólk vill lífga upp á litinn eða breyta til. Með flottri klippingu og vel útfærðri greiðslu er gráa hárið virðulegt og mikill stíll yfir því. Breytingin getur verið dálítið þreytandi því það tekur tíma að leyfa litnum að vaxa úr og hárið getur verið leiðinlega tvískipt og asnalegt á meðan en vel þess virði þegar upp er staðið. Sumir telja að grátt hár njóti sín best stutt en það er vitleysa, margar stjörnur sem kjósa að skarta gráum lokkum hafa sýnt og sannað að svo er ekki.

App til að prófa greiðsluna áður en klippt er

Nú orðið er hægt að sækja sér app sem sýnir manni hvernig mismunandi hárklipping fer við andlitið. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja appið og hlaða upp mynd af sjálfri/sjálfum þér og prófa þær greiðslur sem boðið er upp við þitt andlit. Þegar búið er að finna það sem hentar best er hægt að fara með myndina á hárgreiðslustofu og biðja snjallan hárgreiðslumeistara að klippa þig einmitt svona. En það að kjósa að leyfa hárinu vera í sínum náttúrulega lit sparar ótal stundir í stólum á hárgreiðslustofunni og langa bið með liturinn tekur sig. Þá þarf heldur ekki lengur að hafa áhyggjur hvernig gráa rótin stækkar og stækkar.

Silfurgrátt hár grípur ljósið á sérlega fallegan hátt og oft glansar grátt hár einstaklega glæsilega eða þegar blár blær kemur á hárið. Á það má líka benda að rauður varalitur passar sérlega vel við grátt hár og mjög margar konur sem leyfa silfurmakkanum að njóta sín kjósa hárrauða varaliti. Þekktust er án efa förðunarmeistarinn, Ragna Fossberg. Brúnn hörundslitur fer líka mjög vel gráhærðu fólki.

Grátt hár getur verið viðkvæmt fyrir þurrki og það hjálpar þess vegna upp á heilbrigði hársins að hætta að lita það og fólk ætti að velja vandaðar hárvörur til að viðhalda glansinum á hárinu. Ekki þvo hárið of oft og spara hárblásarann. Ef notuð eru heit tæki til að móta hárið að nota þá vernandi hárefni áður en þær eru dregnar fram. En hvort sem fólk kýs að lita hárið eða ekki geta allir verið sammála um að fólk sem líður vel í eigin skinni og er ánægt með sjálft sig nákvæmlega eins og það er aðlaðandi og skemmtilegt fólk.

Að eiga vin í systkinum sínum er mikil gæfa
Samstaða innan fjölskyldna er mismikil og sumstaðar ríkir einfaldlega sundrung en takist fólki að eignast vini í systkinum sínum er það sannkölluð gæfa. En hvað ræður því helst hvort systkini ná saman eða ekki? Sumir segja að aldursmunurinn skipti máli og þá er ýmist talað um að þau þurfi að vera nálægt hvert öðru í aldri eða að lengra verði að vera á milli. Rannsóknir sýna hins vegar að foreldrar og viðmót þeirra gagnvart börnunum ræður mestu.

Ef foreldri á sér uppáhaldsbarn og hyglir því stöðugt skapar það togstreitu innan fjölskyldunnar og getur skilið eftir sig sár sem aldrei gróa. Persónuleikar fólks eiga líka misvel saman og stundum bilið á milli einfaldlega of mikið. Það breytist ekki með aldri og þroska og ef ekki er reynt að brúa bilið á einhvern hátt vex ósamkomulagið fremur en að dragi úr því.

Ábyrgð og hvernig fólk kýs að axla hana er eitt þessara stóru vandamála. Vel þekkt er innan systkinahóps að hluti þeirra sé ábyrgur og sinni skyldum sínum á allan hátt meðan aðrir eru kærulausari og velti sínum vandamálum yfir á aðra. Eitt systkinanna er til dæmis alltaf í peningavandræðum og þiggur hjálp frá foreldrum og öðrum í fjölskyldunni án þess að endurgreiða nokkurn tíma aðstoðina. Annað systkini er hugsanlega aðsjált og leggur aldrei sitt af mörkum þegar aðrir í fjölskyldunni þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda.

Hver gefur mest af sér?

Einn er latur og er þess vegna aldrei til staðar þegar aðrir mæta til að taka til höndunum. Hann hikar samt aldrei við að fara fram á aðstoð þegar eitthvað kemur til hjá honum. Sum systkini tala ætíð vel hvert um annað og reyna að hvetja hin áfram. Aðrir tala niður til systkina sinna, draga úr þeim kjark eða skjóta á þau skotum úr launsátri þegar þeir geta.

Það góða við að alast upp í sundurleitum hópi og upplifa samskiptavandamál er að þau systkini sem ekki eiga skap saman kenna hvert öðru hvernig á ekki að haga sér gagnvart öðru fólki. Það er verðmæt lexía að læra. Ef manneskja getur sýnt göllum systkina sinna umburðarlyndi, lært að leiða hjá sér gallana og einblína á kosti þeirra gerir það okkur að betri maka, uppalanda og vini. Að auki undirbýr það okkur undir að takast á við vond samskipti á vinnustað, höfnun, lélega þjónustu stofnana og ókurteisi ókunnugra í þinn garð.

Í hugum okkar flestra er fjölskyldan griðastaður, hópur sem við tilheyrum og innan hans manneskjur sem vilja okkur vel. Þannig eru væntingarnar en margar fjölskyldur standast þær ekki og einstaklingar innan þeirra bregðast hverjir öðrum ítrekað. Stundum með því að vera ekki til staðar, stundum með því að ráðast hver á annan, stundum með því að eyðileggja fyrir öllum í kringum sig með histerískum viðbrögðum og stundum með því að tala niður til og gera lítið úr hinum.

Umburðarlyndi er lykillinn

Enginn vill þola stöðugar aðfinnslur og leiðindi frá fjölskyldu sinni. Heldur ekki að enginn geti gleymt því hafi manni einhvern tíma orðið eitthvað á eða ef þú hefur valið aðra leið í lífinu en hinir og að þeir kjósi að sýna þér lítilsvirðing vegna þess. Við getum heldur aldrei leyst vanda annarra og eigum þess vegna ekki að reyna það. Við getum verið til staðar, veitt stuðning og gefið ráð en ekki neytt aðra til að fara eftir þeim. Þegar ósætti er til staðar er alltaf fyrsta skrefið að skoða eigin framkomu og viðbrögð. Var eitthvað sem þú hefðir getað gert öðruvísi eða átt að gera öðruvísi? Enginn er fullkomin/n en ef þú ert sátt/ur við þinn hlut og sannfærð/ur um að þú hafir reynt þitt besta getur þú með góðri samvisku ákveðið að sundrungin í fjölskyldunni sé ekki af þínum völdum.

Að fyrirgefa misgerðir annarra er eitthvað sem okkur er gert að gera frá unga aldri. Snemma erum við látin biðja afsökunar verði okkur á og kennt að við eigum að iðrast ef við brjótum gegn öðrum. Sumir ganga hins vegar aldrei í gegnum iðrunarstigið og biðja aldrei afsökunar af einlægni. Við getum ekkert gert í því en við getum fyrirgefið af öllu hjarta. Í því felst ekki að viðurkenna eða samþykkja gerðir annarra gegn okkur heldur sætta okkur við að þessu fáum við ekki breytt það er liðið. Við getum notað sársaukann og sorgina til að byggja upp reynslu, þroska okkur sjálf. Ef misgerðin er það stór að við getum ekki umgengist gerandann þá stígum við til hliðar, höldum fjarlægð frá honum. Ef hún er minni þá höldum við samskiptunum opnum, gefum annað tækifæri.

Lífið er ekki sanngjarnt og fólk er fólk. Sumt er gert í hugsunarleysi og alls ekki í þeim tilgangi að særa eða meiða. Í slíkum tilfellum er gott að reyna að skilja hvað rekur hinn aðilann áfram. Er hann kannski afbrýðisamur út í þig? Er hann hræddur við þig, á flótta undan sjálfum sér eða skilningssljór? Hver sem ástæðan er þá getum við ekki breytt öðrum. Hver og einn verður að taka ábyrgð á sjálfum sér og við getum eingöngu breytt eigin hugarfari og eigin líðan. Lífið er stutt og fjölskylda dýrmæt. Við getum gefið tíma, hætt að gera of miklar væntingar til ófulkomins fólks og notið lífsisn.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Dásamlegir sumardrykkir
Ávextir tilheyra sumrinu og ferskur ávaxtasafi besti svaladrykkur sem hugsast getur. Hér eru hugmyndir að nokkrum svalandi sumardrykkjum.

Ferskur safi

1 vatnsmelóna

2-3 ástríðuávextir

1 mangó eða frosið mangó í bitum.

Skerið vatnsmelónuna í sneiðar og fræhreinsið hana. Setjð kjötið í blandara og blandið þar til drykkurinn er orðinn ljós og léttur.

Þetta er endurtekið með hvern þann ávöxt sem þið kjósið. Sumir setja ofurlítið hunang út í ávaxtasafann aðrir kjósa að blanda hann með sódavatni.

Gómsætt tómatasalat
Tómatar eru fáanlegir allt árið um kring og stöðugt fjölgar tegundum í búðum hér á landi. Þeir eru dásamlegir ofan á brauð, í salöt og til að borða eina og sér. Hér er uppskrift að sumarlegu tómatasalati.

Tómatasalat

1 dós plómutómatar eða aðrir litlir tómatar

4-5 gulir tómatar

Tómatarnir eru skornir tvennt og settir í skál.

Dressing:

1 msk, balsamikedik

1/4 bolli ólífuolía

2 msk. saxaður graslaukur

1 msk. söxuð basilíka

Þetta er hrært saman og hellt yfir tómatana í skálinni. Ef fólk vill má bæta fetaosti, parmesanosti eða öðru góðgæti við salatið.

Hitt og þetta um pottaplöntur
Pottaplöntur gefa heimilinu hlýlegan svip. Þær launa umönnina með því að skapa betra andrúmsloft í íbúðinni og fegurð þeirra gleður augað. Allir geta ræktað blóm. Það eina sem þarf til er að muna eftir að vökva og gefa áburð af og til. Þegar byrjað er að rækta er gott að hafa eftirfarandi í huga.

Veldu góða potta

Góðir pottar hafa eitt eða fleiri göt í botninum. Það er til að tryggja eðlilegt frárennsli vökva frá rótunum. Ef vatn liggur um of að rótunum rotna þærog jurtin deyr. Í raun og veru er hægt að planta blómum í hvaða ílát sem er og margir kjósa að planta þeim beint í leirpotta eða skálar. Þá er vikur eða steinar settir í botninn til að tryggja frárennslið. Það er líka gaman að setja saman lítinn garð í grunnum skálum. Þá þarf að tryggja að plönturnar eigi vel saman að því leyti að þær þurfi svipað birtumagn og vökvun.

Plastpottar hafa þann kost að þeir eru léttir og auðvelt að færa þá til ef á þarf að halda. Þeir eru einnig sérhannaðir til að vel renni frá þeim. Þeim má auðveldlega koma fyrir ofan í postulínspottum eða skálum og þeir drekka ekki í sig vatn þegar vökvað er eins og leirpottar gera stundum.

Val á pottamold

Fyrsta flokks gróðurmold er hægt að kaupa í gróðurhúsum og blómabúðum. Þar má einnig finna mold sem er sérhönnuð fyrir ákveðnar tegundir blóma eins og þykkblöðunga, blómstrandi blóma og fleira. Sumar gerðir innihalda ákveðið magn áburðar og almennt gildir að ekki þarf að gefa plöntunni áburð fyrstu mánuðina eftir að henni er plantað eða umpottað. Það er gott að blanda moldina sandi ef það hentar jurtinni. Sumir blanda moldina krystöllum sem draga í sig vatn og halda rakanum lengur.

Staðarval

Veldu vandlega stað fyrir hverja plöntu eftir birtustigi, raka og hita. Kynntu þér hvaðan jurtin er upprunnin áður og sjáðu til þess að hún fái næga birtu, njóti nægilegs yls og raka. Það ehntar ekki öllum plöntum að vera í eldhúsi eða á baðherbergjum þar sem mikill raki er. Sumar jurtir mega alls ekki vera í gluggakistum fyrir ofan ofn því þar er of mikill hiti. Til að mynda þurfa rósir, þar með taldar Hawaii-rósir að minnsta kosti sex klukkustundir af beinu sólarljósi á dag. Þeim hentar þess vegna best að vera við eða í glugga móti suðri. Burknar á hinn bóginn þrífast vel í skugga og þola mikinn raka.

Stórt eða lítið

Stórum pottum undir stórar plöntur er best að koma fyrir á sínum stað áður en jurtinni er plantað í þá. Þegar búið er að koma moldinni og blóminu fyrir í þeim geta þeir verið þungir og erfiðir að flytja til svo best er að breiða plast í kringum þá og vinna þannig við plöntun eða umpottun. Settu vikur, smásteina eða grisju yfir götin í botninum, síðan er potturinn fylltur að um það bil hálfu, þá er jurtinni komið fyrir og fyllt upp með mold allt í kringum. Þrýstið vel að og tryggið að moldin sé það þétt að plantan haldist vel á sínum stað og standi bein.

Vökvun

Vökvaðu jurtina vel í upprunalega pottinum um það bil klukkustund áður en þú flytur hana milli potta og einnig eftir að hún er komin á þann stað sem henni er ætlað að vera á. Færðu hana varlega úr upprunalega pottinum með því að kreista hann nokkrum sinnum þar til þú finnur að jurtin er alveg laus. Fylgstu vel með næstu daga og vökvaðu um leið og moldin er farin að þorna. Þetta hjálpar rótunum að koma sér vel fyrir á nýjum stað.

Fleiri en ein

Ef verið er að koma fleiri en einni jurt fyrir í sama potti er þeim öllum komið fyrir áður en fyllt er upp með mold allt í kringum þær. Hafið að minnsta kosti 3-5 cm bil milli jurtanna og passið að hvergi verði mold eftir á blöðunum. Ef það er strjúkið hana burtu annars getur moldin skemmt blöðin.

Kjólahönnuðir sem Katrín kann að meta
Margar konur kunna mjög vel við að klæðast kjólum. Þeir eru vissulega þægilegir og eitt af því góða við slíkan klæðnað er að auðveldlega er hægt að breyta hversdagslegum kjól í sparilklæði með réttum fylgihlutum. Ein þeirra kvenna sem ber kjóla mjög vel er Katrín hertogaynja af Cambridge. Hér eru nokkrir breskir kjólahönnuðir í miklu uppáhaldi hjá henni. Þessi vörumerki eru svokölluð „slow fashion“ eða hægunnin tíska. Það þýðir að þeir leggja sig fram um að vinna á sjálfbæran hátt. Efnin eru valin með tilliti til þess að kolefnasporið sé sem minnst, sniðin eru klassísk svo flíkin endist lengur og hún er unnin á staðnum.

Meadows

Meadows er bandarískt fyrirtæki en á sér systur í Bretlandi L F Markey. Merkið er þekkt fyrir rómantískan, gamaldags fatnað. Sniðin eru kvenleg og falleg, útsaumur algengt skraut á blússum og kjólum. Mynstruð efni, fellingar og pífur eru sömuleiðis ómissandi hjá Meadows. Þeir segja að fatalínur þeirra sæki innblástur í þjóðsögur og ævintýri.

Rat & Boa

Rat & Boa hannar fyrir djarfar nútímakonur. Vinkonurnar, Valentina Muntoni og Stephanie Cara Bennett eru stofnendur og eigendur fyrirtækisins. Þær vilja skapa kvenleg og falleg föt, kjóla sem draga fram helstu kosti kvenlíkamans og fegra hann. Einkunnarorð þeirra snúast um að skapa minningar og þær vilja styrkja konur, efla sjálfstraust þeirra og opna augu þeirra fyrir eigin fegurð. Að auk leggja þær sig fram um að velja náttúruleg efni og huga vel að umhverfisvernd í allri sinni starfsemi.

Seraphina

Tímalaus fegurð er markmið Seraphinu. Sumarlína hennar er mjúk og hlýleg. Mildir pastellitir ríkjandi, rendur og blómamynstur. Í kjól frá Seraphinu er hægt að mæta í vinnuna, fara í kokteilboðið, spássera niður í bæ og skella sér í brúðkaup. Alls staðar eiga þeir jafnvel við.

Juliet Dunn

Juliet sækir innblástur til Austurlanda og hefur hafið mussurnar til vegs og virðingar aftur. Kjólar með pífum, útsaumi og böndum minna óneitanlega á hippatímann en passa sérstaklega vel í garðpartí og á sundlaugabakkann.

Sir the Label

Sir the Label er ástralskt merki. Púffermar, stuttir toppar og lagskiptir kjólar eru áberandi í sumarlínu þeirra. Markmiðið er að búa til og skapa fatnað sem hægt er að vera í hvar sem er. Skilin milli hversdagsflíka og spariklæðnaðar eru máð út. Kjólarnir þeirra eru kvenlegir og smart.

Ephmera

Ephmera er spennnadi merki. Það var stofnað af fyrrverandi nemanda Yves Saint Laurent Nicole Banning. Hún segist heillast af sveitastíl og leitast við að gefa honum franskt yfirbragð og glæsimennsku. Þótt kjólarnir hennar séu flottir er ekkert sem slær út sundboli frá henni.