Húsnæðismál – Lifðu núna

Öruggara heimili þegar aldurinn færist yfir
Flestir vilja halda í sjálfstæða búsetu sem allra lengst og helst vill fólk vera áfram á því heimili sem það hefur kosið sér. Hægt er að gera ýmislegt til þess að tryggja að það henti þótt ýmsir kvillar kunni að hrjá fólk. Því fyrr sem fasteignaeigendur hella sér í þær breytingar sem gera þarf því betra.

Byrjaðu á að skapa gott aðgengi að útidyrunum. Breikkaðu gangstíginn að húsinu, lagaðu tröppurnar og tryggðu gott handrið ef tröppur liggja að dyrunum. Komdu fyrir dyrabjöllu með myndavél. Að vita hver er fyrir utan er öryggisatriði og ýmsir hringja bjöllunni sem við kærum okkur ekki um að taka á móti.

Að búa á einni hæð er alltaf kostur. Með árunum getur orðið erfiðara að fara upp og niður stiga, fólk á erfiðara með að hreyfa sig, sumir finna fyrir svima þegar þeir eru að ganga niður á við og aðrir eru óstöðugir á fótunum. Ef húsnæði þitt er á tveimur hæðum veltu fyrir þér hvort hægt sé að útbúa svefnherbergi með baðherbergi á neðri hæðinni. Sé það ekki hægt er vert að skoða hvort hægt sé að koma fyrir léttri lyftu upp stigann. Hana má líka nota til að koma þungum hlutum upp á efri hæðina. Það er líka góð hugmynd að fjarlægja alla þröskulda.

Góð gólfefni lykilatriði

Gólfefni skipta einnig miklu máli. Flísar og parket hafa þann kost að auðvelt er að þrífa en gólfin eru hál. Í dag er hægt að fá stamari flísar og parket og eldra fólk ætti skoða þá kosti sem eru í boði.

Eitt af því sem fólk hugsar sjaldnast um er lýsing. Sjónin versnar með árunum og þá þarf að huga að því að næg og góð lýsing sé inni á heimilinu. Í sumum tilfellum nægir að skipta út perum en í öðrum er betra að bæta við ljósum. Skoðaðu einnig staðsetningu innstunga. Þegar fólk eldist er erfiðara að beygja sig niður til að stinga tækjum í samband eða taka þau úr sambandi. Algengt er að fólk fái svima við að beygja sig niður og standa upp og þá er hætta á að detta. Margir láta færa nokkrar innstungur ofar á veggina og kjósa að nota þær eingöngu.

Baðherbergið er alversti slysastaður heimilisins. Þar detta flestir, reka sig illa í eða slasa sig á annan hátt. Mottur á baðherbergi þegar fólk er orðið fullorðið eru ekki góð hugmynd nema þær séu tryggilega festar. Stórar sturtur sem hægt er að ganga beint inn í eru dásamlegur lúxus en líka nauðsynlegar þegar fólk fer að eldast. Ótal óhöpp og slys gerast þegar fólk er að fara upp úr baðinu eða stíga út úr sturtunni. Því fyrr sem fólk tekur baðherbergið í gegn og skiptir út baðkari fyrir góða sturtu því betra. Koma má fyrir stól í sturtunni og handriði á veggnum til að grípa í. Margir kjósa einnig að hækka klósettið á veggnum svo auðveldara sé að standa á fætur og svokölluð snjallklósett verða sífellt vinsælli. Þau sjá um að þrífa fólk að neðan eftir að það hefur lokið sér af. Baðherbergisflísarnar eru líka mikilvægar það ætti alltaf að velja þær með tilliti til hversu hálar þær eru.

Því fyrr því betra

Eldhúsið er næst hættulegasti staður heimilisins, kemur fast á hæla baðherbergisins. Skúffur eru mun heppilegri en skápar með tilliti til slysahættu. Mörg slys verða þegar fólk er að reyna að ná í eitthvað úr efri skápum, að teygja sig inn í skápinn til að ná í eitthvað aftast í honum eða að reisa sig upp og rekast í opna skáphurð. Skúffur eru ekki hættulausar en ólíklegra er að fólk detti við að teygja sig ofan í skúffu. Í IKEA er hægt að fá ledljósaborða sem líma má inn í skápa og skúffur og lýsa þar með upp það sem leynist þar. Glerhurðir á efri skápum eru einnig góðar því þá er minni hætta á að fólk fari að klifra upp á stóla til að kíkja eftir hvað er í efstu hillunni. Eldavélin og ofninn eru líka slysagildrur en þar gildir að umgangast þessi tæki ætíð af varúð. Nota ofnhanska, fara varlega þegar heitir pottar eru teknir af hellum og gæta þess að slökkva á þeim eftir notkun. Margir nútímaofna or eldavélar eru útbúin með ljósum sem loga meðan enn er hiti á hellum eða inni í ofninum.

Garður er yndisleg viðbót við íbúðarhúsnæði og margir njóta þess að stunda garðyrkju langt fram eftir aldri. Gott aðgengi þarf að vera að garðinum og ef þarf að ganga niður tröppur til að komast þangað gæta þess að þær séu vel merktar og skýrar. Eins er gott að fylgjast vel með hellum og jafna þær ef þær eru teknar að skekkjast. Í dag er hægt að fá létt og þægileg garðverkfæri, sláttuvélaróbóta og rafmagnsklippur sem auðvelda verkin.

En hvers vegna er svona mikilvægt að huga að þessu fyrr en síðar? Jú, vegna þess að minnið versnar með árunum og sumir fá sjúkdóma á borð við elliglöp og alzheimers. Þá getur munað öllu að gjörþekkja heimili sitt, vera búin að festa það svo rækilega í minninu að fólk rati um þótt minnið sé farið að verða gloppótt. Allir geta líka orðið fyrir óhappi, dottið og beinbrotnað eða snúið sig illa og þá er gott að búa á heimili sem auðvelt er að ganga um með hjálpartæki á borð við hækjur og göngugrind.

Hitt og þetta um pottaplöntur
Pottaplöntur gefa heimilinu hlýlegan svip. Þær launa umönnina með því að skapa betra andrúmsloft í íbúðinni og fegurð þeirra gleður augað. Allir geta ræktað blóm. Það eina sem þarf til er að muna eftir að vökva og gefa áburð af og til. Þegar byrjað er að rækta er gott að hafa eftirfarandi í huga.

Veldu góða potta

Góðir pottar hafa eitt eða fleiri göt í botninum. Það er til að tryggja eðlilegt frárennsli vökva frá rótunum. Ef vatn liggur um of að rótunum rotna þærog jurtin deyr. Í raun og veru er hægt að planta blómum í hvaða ílát sem er og margir kjósa að planta þeim beint í leirpotta eða skálar. Þá er vikur eða steinar settir í botninn til að tryggja frárennslið. Það er líka gaman að setja saman lítinn garð í grunnum skálum. Þá þarf að tryggja að plönturnar eigi vel saman að því leyti að þær þurfi svipað birtumagn og vökvun.

Plastpottar hafa þann kost að þeir eru léttir og auðvelt að færa þá til ef á þarf að halda. Þeir eru einnig sérhannaðir til að vel renni frá þeim. Þeim má auðveldlega koma fyrir ofan í postulínspottum eða skálum og þeir drekka ekki í sig vatn þegar vökvað er eins og leirpottar gera stundum.

Val á pottamold

Fyrsta flokks gróðurmold er hægt að kaupa í gróðurhúsum og blómabúðum. Þar má einnig finna mold sem er sérhönnuð fyrir ákveðnar tegundir blóma eins og þykkblöðunga, blómstrandi blóma og fleira. Sumar gerðir innihalda ákveðið magn áburðar og almennt gildir að ekki þarf að gefa plöntunni áburð fyrstu mánuðina eftir að henni er plantað eða umpottað. Það er gott að blanda moldina sandi ef það hentar jurtinni. Sumir blanda moldina krystöllum sem draga í sig vatn og halda rakanum lengur.

Staðarval

Veldu vandlega stað fyrir hverja plöntu eftir birtustigi, raka og hita. Kynntu þér hvaðan jurtin er upprunnin áður og sjáðu til þess að hún fái næga birtu, njóti nægilegs yls og raka. Það ehntar ekki öllum plöntum að vera í eldhúsi eða á baðherbergjum þar sem mikill raki er. Sumar jurtir mega alls ekki vera í gluggakistum fyrir ofan ofn því þar er of mikill hiti. Til að mynda þurfa rósir, þar með taldar Hawaii-rósir að minnsta kosti sex klukkustundir af beinu sólarljósi á dag. Þeim hentar þess vegna best að vera við eða í glugga móti suðri. Burknar á hinn bóginn þrífast vel í skugga og þola mikinn raka.

Stórt eða lítið

Stórum pottum undir stórar plöntur er best að koma fyrir á sínum stað áður en jurtinni er plantað í þá. Þegar búið er að koma moldinni og blóminu fyrir í þeim geta þeir verið þungir og erfiðir að flytja til svo best er að breiða plast í kringum þá og vinna þannig við plöntun eða umpottun. Settu vikur, smásteina eða grisju yfir götin í botninum, síðan er potturinn fylltur að um það bil hálfu, þá er jurtinni komið fyrir og fyllt upp með mold allt í kringum. Þrýstið vel að og tryggið að moldin sé það þétt að plantan haldist vel á sínum stað og standi bein.

Vökvun

Vökvaðu jurtina vel í upprunalega pottinum um það bil klukkustund áður en þú flytur hana milli potta og einnig eftir að hún er komin á þann stað sem henni er ætlað að vera á. Færðu hana varlega úr upprunalega pottinum með því að kreista hann nokkrum sinnum þar til þú finnur að jurtin er alveg laus. Fylgstu vel með næstu daga og vökvaðu um leið og moldin er farin að þorna. Þetta hjálpar rótunum að koma sér vel fyrir á nýjum stað.

Fleiri en ein

Ef verið er að koma fleiri en einni jurt fyrir í sama potti er þeim öllum komið fyrir áður en fyllt er upp með mold allt í kringum þær. Hafið að minnsta kosti 3-5 cm bil milli jurtanna og passið að hvergi verði mold eftir á blöðunum. Ef það er strjúkið hana burtu annars getur moldin skemmt blöðin.

Kynslóðirnar búa saman á ný
Stundum er horft til þeirra tíma þegar þrjár kynslóðir bjuggu saman á heimili með ákveðinni nostalgíu. Þá er rifjað upp hvernig allir höfðu sitt hlutverk og jafnt hinir eldri sem þeir yngri nutu góðs af. Afturhvarf til þessara tíma er orðin staðreynd víða Bandaríkjunum en Accessory Dwelling Units eða ADU eru búsetuúrræði sem verið er að koma upp í mörgum ríkjum og margir kjósa að nýta sér.

Um er að ræða húsnæði sem samanstendur af tveimur sjálfstæðum einingum, önnur venjulega stærri en hin. Til þess að þetta megi verða fær fólk leyfi til að byggja sjálfstæðar einingar á lóðum sínum. Lengi hefur þekkst að eldra fólk kjósi að flytja úr húsum sínum í annað hvort íbúð í bílskúrnum eða kjallaranum og fullorðin börn þeirra flytja inn. Þau ýmist leigja eða kaupa húsin af foreldrunum. Nýungin felst í byggingarleyfinu fyrir smáhýsi.

En auk þessa er víða hægt að sækja um leyfi til að útbúa íbúð í kjallara, bílskúr eða útbyggingum tengdum húsunum ef fólk lýsir sig reiðubúið til að búa í nábýli við foreldra sína og sinna umönnun þeirra þegar og ef þeir þurfa á að halda. Þetta er hagkvæmt búsetuform fyrir ríki og sveitarfélög og gerir fólki auðvitað kleift að búa lengur heima og hinir yngri njóta góðs af starfskröftum hinna eldri meðan þeir endast. Auk þess er þetta mun ódýrari leið en flytja í þjónustuíbúðir.

Skipulagslöggjöf breytt

Víða í Bandaríkjunum voru kvaðir á lóðum sem bönnuðu nýtingu þeirra á þennan hátt. En undanfarið hefur AARP, American Association for Retired People, eða Landsamband eldri borgara þar vestra barist fyrir því að þessum hömlum verði aflétt og fólki leyft að breyta og nýta fasteignir sínar á þennan hátt. Meðlimir samtakanna telja þetta búsetuform bæði hagkvæmt og ánægjulegt. Leiga á húsnæði fyrir aldraða er í Bandaríkjunum mjög há og margir ekki í aðstöðu til að nýta sér hana.

Auk þess vilja fæstir þurfa að flytja úr sínu hverfi. Þar þekkir fólk hverja þúfu, hefur keypt inn í sömu búðinni árum saman, getur gengið á bókasafnið, er fastagestir á nærliggjandi kaffihúsi, gengur um sinn almenningsgarð og á vini í næstu húsum. Forsvarsmenn AARP töldu þetta það mikilvæg lífsgæði að þeir réðu mann til að tala máli þeirra sem vilja búa á þennan hátt hjá fylkisstjórnum, sveitarfélögum og í þinginu Washington. Til þessa hafa tuttugu ríki í bandaríska ríkjasambandinu samþykkt breytingar á skipulagslöggjöf sem auðvelda fólki að skapa sér heimili af þessu tagi.

Rök með og á móti

Markmið AARP-fulltrúanna er að skipulagslöggjöf verði breytt á þann veg að fólk þurfi ekki að fara í gegnum langdregið og erfitt ferli til að fá leyfi fyrir breytingu á húsnæði sínu eða nýtingu á lóðum á þennan hátt. Ef fólk geti sýnt fram á að byggingaráætlanir þeirra rúmist innan deiliskipulagsreglna fyrir þeirra svæði fái það byggingaleyfi án frekari tafa. Þeir sem eru á móti þessu hafa bent á að hugsanlega geti smáhýsi á lóðum eða bílskúrsíbúðir haft áhrif á verðmæti eigna annarra í nágrenninu vegna þess að þetta opni á þann möguleika að fasteignaeigendur nýti þær síðar í skammtímaleigu eða eftir að eldri kynslóðin í fjölskyldunni hættir að nýta þær. Áhyggjur af þessu tagi eru skiljanlegar en oft óþarfar. AARP-fulltrúar hafa líka bent á að hægt sé að setja skilyrði hvað varðar nýtingu á húsnæðinu þegar byggingaleyfi er veitt til dæmis banna Air BnB-leigu.

Víða í úthverfum í Bandaríkjunum eru lóðir mjög stórar og því gott pláss fyrir smáhýsi en nágrannar óttast þá að þau kunni að skyggja á útsýni þeirra eða skapi skugga á þeirra lóðum. Á móti hefur þá verið bent á að þessu geti verið alveg öfugt farið, smáhýsin skapi aukið skjól og auðvelt að haga staðsetningu þeirra að þannig að þeim sé komið fyrir þar sem minnst útsýni er að hafa.

Kostirnir séu hins vegar ótvíræðir fyrir hið opinbera. Rétt eins og hér á landi er skortur á húsnæði fyrir eldra fólk og löng bið eftir þjónustuíbúðum og hjúkrunarheimilum. Þetta úrræði gefi kost á að aðstoða fjölskyldur við að búa saman og slíkt sambýli dregur verulega úr þjónustuþörf hinna eldri og eru auk þess iðulega mjög til bóta fyrir þá yngri líka. Þeir komast fyrr í eigið húsnæði, njóta aðstoðar eldra fólksins við barnauppeldi og viðhald sameiginlegs húsnæðis og allir hafa félagsskap hverjir af öðrum.

Hér á landi hefur auðvitað lengi þekkst að útbúnar séu litlar íbúðir í kjöllurum, risi og bílskúr en smáhýsi hafa verið til þessa lítt notað búsetuúrræði. Kannski breytist það með þeirri stefnu að þétta byggð sem mest og fólk í grónum hverfum á höfuðborgarsvæðinu getur íhugað að flytja í smáhýsi á eigin lóð og láta börnum sínum eftir að taka yfir stærri fasteignina.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Nauðsynlegar viðgerðir trassaðar – eldra fólk nær ekki að halda við húsum sínum
Á Íslandi búa flestir í eigin húsnæði. Um áratuga skeið hefur stefna stjórnvalda verið sú að sem flestir kaupi sér þak yfir höfuðið og það verði hluti af lífeyriseign landsmanna og trygging fyrir áhyggjulausu ævikvöldi. Í sumum tilfellum er það vissulega svo en þess eru þónokkur dæmi að aldraðir búi í eigin húsnæði en hafi ekki tök á að halda því við eða taka þátt í nauðsynlegum viðgerðum á sameign fjölbýlishúsa.

Með stuttu millibili leituðu til Lifðu núna tveir aðilar er horfðust í augu við að þurfa selja húsnæði sitt vegna viðhaldskostnaðar. Í öðru tilfellinu var um að ræða konu í fjöleignahúsi en hinu karlmann í einbýlishúsi. Bæði voru nokkuð heilsuhraust og fullfær um að sjá um sig sjálf. Í tilfelli konunnar var um að ræða viðhald sem hafði verið trassað lengi en nú komið að skuldadögum. Á hennar íbúð, 63 fm, blokkaríbúð féll kostnaður upp á 7 milljónir króna. Upphæð sem konan átti ekki til og ekkert var til í hússjóði til að greiða niður þennan kostnað. Maðurinn á hinn bóginn stóð frammi fyrir því að þurfa að skipta um þak, lagnir á baðherbergi hússins voru farnar að gefa sig og ofnar hússins voru í misgóðu ásigkomulagi. Pípulagningamaður mat það svo að nokkrar milljónir þyrfti til að koma lögnunum í viðunandi horf en því fylgdi mikið rask sem kallaði á að baðherbergið allt yrði brotið upp og endurnýjað. Ofnana þyrfti að meta sér og líklegt að eitthvert rask til viðbótar kostaði að koma hitakerfi hússins í betra horf.

Þurftu að selja

Bæði maðurinn og konan neyddust til að selja húsnæði sitt með afföllum til að mæta viðgerðarkostnaðnum. Í tilfelli mannsins var kostnaðarmat pípulagningamannsins lagt til grundvallar en konan bjó að því að þegar hafði verið gert tilboð í verkið í fjölbýlishúsinu svo hægt var að draga hennar hlut í kostnaðnum frá verði íbúðarinnar. Hann býr í dag í þjónustuíbúð fyrir aldraða og fékk aðstoð frá börnunum sínum til að kaupa hana því andvirði hússins dugði ekki fyrir henni. Hún býr í dag í 58 fm stúdíóíbúð í kjallara og segist að mörgu leyti sátt. Íbúðin og húsið eru tiltölulega nýuppgerð og þótt plássið sé minna hefur íbúðin marga kosti. Aðgengi er út í garðinn og beint fyrir framan dyr úr stofu kjallaraíbúðarinnar stétt þar sem sitja má og njóta notalegra sumarkvölda. Skammt frá henni er einnig eitt af útivistarsvæðum borgarinnar og hún kýs að nota sér það. Hann telur á hins vegar lífsgæði sín verulega skert.

„Ég er í minni íbúð, lengra frá allri þeirri þjónustu sem ég sótti,“ segir hann. „Ég er einn af þeim sem fór í sund á hverjum degi en núna er ég ekki lengur í göngufæri við sundlaugina mína. Bókasafn hverfisins var nánast í næsta húsi við mig og þar sótti ég bæði áhugaverða viðburði, bækur að lesa og blöðin. Það var gott að koma þar á morgnana eftir sund og fletta blöðum, spjalla við starfsfólkið og fá sér kaffi. Oft voru gamlir kunningjar úr hverfinu á staðnum en stundum rakst ég á nýtt fólk sem var tilbúið að spjalla. Í dag finnst mér ég mun einangraðri og að af mér hafi verið tekið tækifærið til að fá að eldast á þeim stað sem ég þekkti best og vildi helst vera á.“

Ívar Halldórsson framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins

Viðhaldskostnaður fylgir fasteign

Þetta fólk er ekki þau einu sem búa í eigin skuldlausu húsnæði en allur gangur er á hvort viðkomandi geti mætt óvæntum kostnaði við viðhald ef slíkt kemur upp. Viðmælendur Lifðu núna vilja ekki láta nafn síns getið því báðum finnst ákveðin skömm að því að hafa ekki getað haldið heimilum sínum. Við leituðum til Húseigendafélagsins og spurðum Ívar Halldórsson framkvæmdastjóra félagsins hvort þetta væri eitthvað sem þeir könnuðust við.

„Það er ýmis kostnaður sem fylgir því að eiga og reka fasteign,“ segir Ívar. „Þannig hafa fagmenn nefnt að það sé gott að miða við að viðhaldskostnaður fasteignar geti verið um 1-2% af virði fasteignar á hverju ári og ekki endilega allir sem hafa tök á því að leggja til hliðar slíkar fjárhæðir. Þá kann viðhaldskostnaður eiganda einbýlis að vera nokkuð hærri en þeirra sem búa í fjölbýli – enda skiptist viðhaldskostnaður gjarnan á milli margra eigenda í fjölbýli á meðan eigandi einbýlis ber hann alfarið sjálfur.

Þetta kann að vera umræða sem á erindi til margra, enda ekki bara eldri borgarar sem standa gjarnan fyrir þungum viðhaldskostnaði sem erfitt getur verið að standa undir.“

Fyrirhyggja nauðsynleg

Eins og fram kemur í orðum Ívars fylgir því kostnaður að eiga fasteign. Margt bendir til að Íslendingar séu ekki nógu fyrirhyggjusamir þegar kemur að slíku. Það ætti að vera sjálfsagt að reikna áætlaðan viðhaldskostnað inn í greiðslur fólks í hússjóð og eins ættu eigendur einbýli- og raðhúsa að leggja í sjóð til að mæta nauðsynlegum endurbótum. Byggingar eiga að endast meira en mannsaldur en sumar gera það ekki vegna þess að ekki er séð nægilega vel um þær. Fyrirhyggja af þessu tagi getur sparað fólki mikinn kostnað vegna þess að með því að sinna ávallt einhverju viðhaldi á fasteigninni árlega nær fólk að koma í veg fyrir skemmdir og að þegar loks er ráðist í einhverjar framkvæmdir reynist verkið stærra og erfiðara en gert var ráð fyrir.

Sumt fólk er í þeirri stöðu að hafa lítið milli handanna og því ekki fært um að sjá um eignir sínar svo vel sé. Endurgreiðslur virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna hjálpaði mörgum í þeirri stöðu við að laga margt sem hafði beðið endurnýjunar. Hins vegar er ekki auðvelt að benda á lausnir þegar kemur að viðhaldskostnaði. Ábyrgð á honum fellur ævinlega á eiganda húsa og ekki auðvelt að sjá hvernig eða hvers vegna hið opinbera ætti að styðja hann í viðleitni sinni til að sjá vel um eign sína. Sérhæfð vinna er dýr hér á landi og það er meðal þess sem gerir það freistandi að semja um svartar greiðslur til iðnaðarmanna. Varanlegt afnám virðisaukaskatts af slíkri vinnu kynni að breyta því. Sá möguleiki er svo alltaf fyrir hendi að taka lán fyrir endurbótum með veði í fasteigninni. Ef slík lán fengjust á hagstæðum kjörum gæti það breytt stöðunni fyrir marga.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Gott skipulag í svefnherberginu bætir svefninn
Svefnherbergi eru hvíldarstaðir. Þangað á að vera hægt að sækja ró og frið. Margir velja þess vegna hlýja liti á veggina, gluggatjöld í stíl og falleg rúmteppi. Litrík rúmföt lífga einnig upp á og púðar, plöntur og myndir. Það verður hins vegar að gæta þess að óreiðan verði ekki of mikil og best að halda svefnherberginu eins vel skipulögðu og hægt er.

Fallega skipulagt svefnherbergi

Hlutir hafa lag á að safnast upp. Oft er eins og að einn hlutur kalli á annan og þegar búið er að koma einhverju fyrir er öðru iðulega bætt við. Ljósmyndir af ástvinum, bækur, tímarit og skrautmunir fylla oft gluggakistur, hillur og náttborð fyrr en varir. Til að forðast að ofhlæði er ágætt að setja sér reglur, t.d. að aldrei megi vera fleiri en tvær bækur á náttborðinu, aldrei tölvur í svefnherbergi og ljósmyndir má hengja á einn vegg og búa þannig til stað fyrir minningar og njóta þess að hafa sína nánustu nærri þegar gengið er til náða.

Margir kjósa að skipta skrautmunum reglulega út. Einhverjir þrír til fjórir hlutir skreyta þá gluggakistur eða hillur en er pakkað í kassa eftir árstíðum og eitthvað annað sett upp í staðinn. Það getur líka verið skemmtilegt að færa til. Taka muni úr stofunni og setja inn í svefnherbergi og öfugt. Það er hins vegar alltaf gott að takmarka hve margir hlutir mega vera á hverjum stað. Til að fá frekari tilbreytingu er auðvelt að skipta út gluggatjöldum, rúmteppum og púðum. Eldra fólk ætti að varast að setja föt, mottur eða annað á gólfið í svefnherberginu. Gott er að hafa stól til að leggja fötin á eða koma fyrir snögum á bak við hurðina. Sumir hafa fataprest í svefnherberginu. Það getur beinlínis verið hættulegt að stíga á sokk á gólfinu og renna til þegar fara þarf á klósett á næturna eða ef lausar mottur renna undan fæti þegar gengið er um á daginn.

Fataskápurinn

Í mörgum svefnherbergjum eru fataskápar. Á mörgum heimilum eru þeir yfirfullir og þess vegna erfitt að hafa yfirsýn yfir fötin sem í þeim eru. Það er gott að fara reglulega yfir alla skápa og fara með í endurvinnslu það sem ekki passar eða þú notar sjaldan. Þá er best að taka út öll fötin og sortera í nokkrar hrúgur. Sú fyrsta ætti að vera allar þínar uppáhaldsflíkur, sú næsta það sem ekki passar og sú þriðja það sem sjaldan er notað en er þó nauðsynlegt að eiga. Þegar búið er að raða þessu svona upp er auðvelt að taka það sem út af stendur og skipta því upp í ónýtt, má henda og það sem ætti að fara í Rauða kross gáminn. Ef eitthvað af þessu fellur í flokkinn, get ekki gert upp við mig hvort ég á að eiga eða ekki, fáðu þá góðan vin í lið með þér og biddu hann að segja þér hreinskilnislega hvort þetta á heima í skápnum eður ei. Ef þú átt einhverjar hönnunarflíkur sem þér finnst þú ekki geta gefið frá þér, endilega reyndu að selja þær.

Fataskápa þarf að þrífa reglulega til að forðast skápalykt og leyfa þeim að standa tómum og opnum í einn dag. Þá er komið að raða inn og best að flokka fötin, t.d. buxur, toppar, peysur, skyrtur, pils, kjólar og svo framvegis. Sumir raða eftir litum eða hvað passar saman, síðan eru fötin brotin saman eða hengd upp eftir atvikum. Þetta hefur þann kost að eigandinn veit hvað er í hvaða skúffu og á slánni. Það er einnig augljóst þegar skápurinn er opnaður. Eftir að svona gott skipulag er komið á er fínt að fylgja reglunni, einn inn, annar út þ.e. ef keypt er flík verður að rýma fyrir henni með því að taka eitthvað annað úr skápnum og henda eða fara með í endurvinnslu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Á að fara í kostnaðarsamar endurbætur áður en íbúðin er seld?
Ásdís Ósk Valsdóttir

Ásdís Ósk Valsdóttir eigandi Fasteignasölunnar Húsaskjóls skrifar

Það er oft freistandi að fara í kostnaðarsamar endurbætur fyrir sölu til að auka söluverðmætið. Hins vegar er smekkur manna er svo misjafn að stundum færðu ekki einu sinni kostnaðinn til baka þar sem kaupandanum finnst þetta forljótt og vill skipta út glænýja baðherberginu. Það er mikill munur á að selja eitthvað ný endurnýjað eða gamalt ef það kemur upp galli. Ef það fer á leka á bakvið nýju flísarnar á baðinu þá berð þú ábyrgðina á þeim galla. Þú færð yfirleitt meira í vasann þegar upp er staðið með því að selja eignina aðeins ódýrara og leyfa kaupandanum að gera hana að sinni.

Er hægt að auka virði eignarinnar fyrir sölu?

Það er mjög auðvelt að auka virði eignarinnar fyrir sölu með mjög ódýrum leiðum. Laga bilaða krana, brotna hurðarhúna, festa listana, mála vegginn sem er orðinn kámugur og ljótur. Þessi atriði skila þér í raun oft hærra söluverði heldur en glænýtt eldhús. Ef smáviðhaldi er ábótavant hafa kaupendur iðulega áhyggjur af stórum viðhaldsþáttum sem sjást ekki og vilja þá greiða minna fyrir eignina.

Hefur dót áhrif á söluverð eignar?

Stundum eru rými svo yfirhlaðin að þau sjást ekki. Leyfa rýmunum að njóta sín þannig að kaupandinn eigi auðvelt með að sjá sig í þeim. Hvað ætlar þú EKKI að flytja með þér á nýja heimilið? Láttu það fara áður en þú setur á sölu. Tiltekt fyrir sölu er yfirleitt hæsta tímakaupið sem þú kemst í og ég mæli eindregið með því byrja ferlið áður en þú hringir í fasteignasalann.

Skiptir aðkoma máli fyrir sölu?

Já fyrsta sýn skiptir höfuðmáli og kaupendur keyra oft fyrir utan hús til að sjá hvernig þeim líst á umhverfið áður en þeir bóka skoðun. Það er því gott að lakka útihurðina og yfirfara útiljósin. Taka vel til í garðinum og nærumhverfinu. Slá blettinn og reita beðin. Þú vilt að kaupendum líði vel með að koma að húsinu. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég fengið símtal frá kaupanda sem afboðar skoðun vegna þess að hann keyrði framhjá húsinu um helgina og leist ekki á ytri aðkomu.

Þarf að undirbúa eign fyrir sölu?

Því betur sem eign er undirbúin því fleiri kaupendur getur þú laðað að og þá selur þú oft hraðar og á hærra verði. Með því að nýta sér alla þá þjónustu sem er í boði s.s. stílista og fagljósmyndara þá nýtur eignin sín betur og fær meiri sýnileika. Það er gífurlegt áreiti á öllum vígstöðvum í dag og við erum alltaf að berjast um athygli kaupenda. Því betri sem undirbúningurinn er því meiri athygli fáum við.

Það er yfirleitt best að selja fyrst

Með því að selja eignina sína fyrst og kaupa svo getur þú leyft þér að bíða eftir besta mögulega tilboðinu. Þú verður ekki að taka næsta tilboði þar sem þú ert komin í tímaþröng með klára kaupin á draumaeigninni. Þú verður líka betri kaupandi þar sem þú ert með færri fyrirvara og þannig eykur þú líkurnar á því að þínu tilboði verði tekið.

„Eldra fólk ætti að selja og bíða með að kaupa”
Ásdís Ósk Valsdóttir

Það er mikil óvissa á fasteignamarkaði og vextir háir þessi misserin. Margir vita ekki hvort þeir eigi að halda að sér höndum við þessar aðstæður, eða ekki. Ásdís Ósk Valsdóttir eigandi fasteignasölunnar Húsaskjóls segir að þrátt fyrir að fyrirsagnir fjölmiðla segi að markaðurinn stefni lóðbeint í frost, sé það hennar reynsla eftir 20 ár í faginu, að þetta sé oft besti tíminn til að kaupa.  „Það er meira úrval af eignum og góðir kaupendur geta oft gert góð kaup ef þeir eru alveg tilbúnir, þar sem seljendur eru oft tilbúnir að taka lægra tilboði ef það er fyrirvaralaust, það er að kaupandinn eigi hvorki eftir að selja né fara í greiðslumat”.

Hvað eiga þeir sem vilja minnka við sig að gera?

„Þannig að ef fólk á eftir að kaupa og selja, mæli ég alltaf með því að selja fyrst og fá frekar langan afhendingartíma”, segir Ásdís. En hvað með þá sem eru að minnka við sig, hvað eiga þeir að hennar mati að gera við þessar aðstæður? „Það er ekki spurning að eldra fólk með stór einbýlishús á að nýta ástandið og selja núna og ef það getur beðið með að kaupa. Þá gæti það verið sniðugt fyrir þá sem eiga sumarbústað að vera þar í sumar eða vera erlendis í nokkra mánuði”, segir hún.

Frekari lækkanir í kortunum

Ný greiningarskýrsla er komin í loftið á vef Húsaskjóls. Fyrirsögn hennar er Markaðurinn nálgast frostmark. Hér eru helstu punktarnir úr henni:

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkaði að nafnvirði milli mánaða þrjiða mánuðinn í röð, lækkunin nemur þó aðeins 1,4% í heildina. Ef miðað er við 4 mánaða breytingu hefur verðið ekki lækkað jafn mikið á 4 mánuðum síðan árið 2010.

Í janúar voru undirritaðir innan við 300 kaupsamningar en færri kaupsamningar hafa ekki verið undirritaður í stökum mánuði síðan árið 2011.

Á sama tíma og lítið selst vex fjöldi þeirra fasteigna sem er til sölu ört. Fjöldinn hefur farið úr 450 eignum á skrá í febrúar í fyrra, í 2090 eignir á skrá í byrjun mars á þessu ári. Núverandi fasteignaverð og vaxtastig hafa því leitt til pattstöðu á fasteignamarkaðnum.

Út frá tóni peningastefnunefndar og nýjustu verðbólgutölum má vera öllum ljóst að frekari vaxtahækkanir eru framundan.

Pattstaða fasteignaverðs og vaxta mun því ekki leysast með vaxtalækkunum. Í raun benda öll ljósin í mælaborði fasteignamarkaðarins til að fasteignaverð muni lækka frekar

Hér má sjá greiningarskýrsluna í heild.

Er fasteignamarkaðurinn botnfrosinn?
Ásdís Ósk Valsdóttir

Það er ekki mat Ásdísar Valsdóttur fasteignasala hjá Húsaskjóli í Kópavogi að fasteignamarkaðurinn sé botnfrosinn. Hún segir að menn spyrji gjarnan að því á fasteignasölunni þessa dagana hvort ekki sé best að bíða með fasteignakaup og sölu á meðan markaðurinn sé að rétta úr kútnum. Hennar mat er að markaðurinn sé kominn í ákveðið jafnvægi og hjá Húsaskjóli seldust nokkrar eignir um jól og áramót.  „Það er að verða undantekning að eignir seljist yfir ásettu verði, en margar eru samt að seljast á ásettu verði eða rétt undir því“, segir hún.

Lækkun að raunvirði

Húsaskjól sendir mánaðarlega frá sér greiningar á fasteignamarkaðinum, sem hagfræðingurinn Halldór Kári Sigurðsson sér um.  Í nýjustu greiningarskýrslunni kemur fram að húsnæðisverð hafi lækkað um 0,3% í nóvember og þar með einungis hækkað um 0.7% að nafnvirði síðan í júlí og lækkað að raunvirði. Kaupsamningum hefur fækkað um fjórðung. Þá er útlit fyrir að byggðar verði 1700 íbúðir umfram langtímaþörf, á árunum 2022-2024. Þetta mun að mati skýrsluhöfundar ýta undir verðlækkanir á fasteignamarkaðinum á næstu árum.  Sjá greiningaskýrsluna hér.

Halldór Kári Sigurðsson

Best að selja fyrst og kaupa svo

Hvað sem markaðnum líður, þarf ungt fólk sem er að byrja að búa, helst að eignast húsnæði og eldra fólk sem er orðið eitt í stórum fasteignum vill gjarnan minnka við sig.  „ Ef þú átt eftir að kaupa og selja í dag þá er langfarsælast að selja fyrst og kaupa svo, þar sem þú veist þá nákvæmlega hvað þú ert með í höndunum þegar þú festir þér draumaeignina“, segir Ásdís.  „Þú ert alltaf betri kaupandi ef þú þarft ekki að gera fyrirvara um sölu og greiðslumat“.

Ef fólk hefur áhuga á að skoða markaðsverð íbúða eftir svæðum, er hægt að nýta sér nýtt forrit Húsaskjóls, Verðsaga heitir það og þar er hægt að skoða alla þinglýsta kaupsamninga frá 2006 til dagsins í dag. Það getur verið bæði gagnlegt og fróðlegt að skoða það. Sjá hér. Þá er einnig boðið upp á fría ráðgjöf hjá Húsaskjóli.

Lækkanir á fasteignaverði framundan
FFasteignasalan Húsaskjól hefur birt skýrslu sem hefur að geyma greiningu á húsnæðismarkaðinum, sem er unnin af Halldóri Kára Sigurðssyni hagfræðingi Húsaskjóls. Sjá hér.

Þar kemur fram að fasteignaverð sveiflast mikið, sérbýlisverð hefur hækkkað, en verð í fjölbýli hefur lækkað í fyrsta sinn í rúm tvö ár. Í skýrslunni kemur einnig fram að meðalsölutími er að lengjast, fjöldi þinglýstra kaupsamninga að dragast saman en nýbyggingum í sölu fjölgar töluvert. Íbúðaframboð hefur aukist um rúmlega 500 eignir á tveimur mánuðum.  Allt bendir til þess að framundan séu einhverjar lækkanir á húsnæðisverði, að því er fram kemur í skýrslunni.

Svokallaðar eignakeðjur eru að lengjast og fáir seljendur eru spenntir fyrir því að festast jafnvel í marga mánuði í eignakeðjum. En eignakeðja er þegar manneskja vill kaupa eign, en á eftir að selja sína og sá sem vill kaupa hana á líka eftir að selja og þannig koll af kolli. En með auknu framboði og lengingu á sölutíma verður auðveldara að finna eignir við hæfi.

Ásdís Ósk Valsdóttir eigandi Húsaskjóls mælir eindregið með því að fólk sem er að skipta um húsnæði, selji fyrst og kaupi svo. Helstu ástæður fyrir því eru að það er mögulegt að fá lengri afhendingartíma til að finna rétta eign og menn viti hvað þeir eru með í höndunum.  Þannig þurfi þeir ekki að brúa bilið með dýrri fjármögnun. “Þú verður alltaf betri kaupandi ef þú ert búinn að selja og kominn með staðfesta fjármögnun”, segir hún og bætir við að nýjar eignir sem séu að koma inn núna seljist nokkuð hratt að því gefnu að þær séu verðlagðar miðað við núerandi markað. Því sé mikilvægt fyrir seljendur að fara ekki inná markaðinn með yfirverðlagðar eignir.

Þeir sem íhuga fasteignaviðskipti geta fengið fría ráðgjöf frá Húsaskjóli um hvernig best er að snúa sér. Smellið hér til að panta ráðgjöf.

Förum ekkert fyrr en við verðum borin út lárétt
Það var mikill hugur í ungu hjónunum að byggja. Hér mundar Guðrún sögina árið 1978

Guðrún Hólmfríð Ólafsdóttir og Hersir Oddsson byrjuðu að byggja hús í Seljahverfinu í Breiðholti árið 1976 og fluttu inn í helminginn af húsinu þremur árum síðar, eða árið 1979.  Þá var ekkert í loftinu, innréttingar vantaði og engin hurð fyrir baðherberginu.  Menn kipptu sér ekki upp við slíkt fyrir 40 árum.   Þau byggðu ekki stórt, íbúðin ásamt bílskúr er um 200 fermetrar.  „Við byggðum skynsamlega, ekki of stórt og erum á einni hæð“, segja þau „ Nágrannarnir sem byggðu miklu stærra, hafa kvatt okkur með tárum þegar þeir fluttu í minna húsnæði“.

Horfa á Esjuna á hverjum morgni

Þau eru orðin tvö í húsinu, en eru ekki  í neinum hugleiðingum að minnka við sig. „Íbúðir fyrir eldri borgara eru verðlagðar alltof hátt. Það er ferlegt að steypa sér í skuldir þegar menn eru komnir á þennan aldur“, segir Hersir.  „Þó við seldum hér og færum í minna húsnæði fyrir eldri borgara, fengjum við ekkert á milli“.  Þau eru mjög ánægð í húsinu sínu og hafa „stærsta málverkið í Reykjavík“, út um borðstofugluggann. „Það fyrsta sem við gerum á morgnana er að horfa á Esjuna og sjá hvernig hún lítur út“, segir Guðrún.

Taka Austurlandið í sumar

Þau Guðrún og Hersir eru bæði komin á eftirlaun, en Guðrún var sjúkraliði á Borgarspítalanum en Hersir sem er tæknifræðingur var lengst af framkvæmdastjóri Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar. Þau segja að það sé yndislegt að vera hætt á vinnumarkaðinum.  Þau vinna í garðinum á sumrin og þegar tíðindamaður Lifðu núna leit við hjá þeim, voru þau að undirbúa ferðalag með hjólhýsi út á land. Þau voru að koma fyrir hjólagrind, til að geta tekið reiðhjólin með sér.  Þau hafa ferðast mikið um landið og ætla að taka Austurlandið í sumar. „Það eru fáir staðir á landinu sem við höfum ekki komið á“, segja þau. „Við stunduðum fjallgöngur hér áður fyrr en höfum dregið úr því, við höfum farið töluvert um hálendið“.

Guðrún og Hersir á lóðinni sinni árið 1976. Byggðin var strjál og lítill gróður

Hugsuðu sér að búa í húsinu til æviloka

Þegar Guðrún og Hersir fluttu í Seljahverfið var stundum mikil ófærð þar á veturna, en það breyttist þegar byggðin varð meiri og gróðurinn óx.  Hersir segir að það sé ekki „alvont“ að eldast á Íslandi.  Þau hafi ferðast mikið um Norðurlöndin, Bretland, Bandaríkin og Asíu. „Það er hvergi betra að vera en á Íslandi, húsnæði er til dæmis betra hér en á mörgum öðrum stöðum.  Það er heilmikið atriði að vera ánægður, maður getur verið óánægður ef maður vill hafa þann háttinn á“, segir hann.  Það hefur orðið töluverð endurnýjun í húsunum í kringum þau. „Við hugsuðum okkur frá byrjun að við myndum búa hér til æviloka og höfðum hurðaropin til dæmis það stór að það væri hægt að búa hér í hjólastól“, segir Guðrún. „Við förum ekkert fyrr en við verðum borin út lárétt“.

Greinin birtist áður hér á vefnum í júní 2016