Matur – Lifðu núna

Alfredo kartöflur með parmesan
Ágústa Gísladóttir eigandi Lín Design er listakokkur og nýtur þess að standa í eldhúsinu og matbúa eitthvað gott fyrir fólkið sitt. Hún féllst á að deila með lesendum Lifðu núna nokkrum af sínum uppáhaldsuppskriftum. Hér er dásamlegt meðlæti með grillmatnum á ferð.

Rjómakenndar kartöflur sem passa fullkomlega með grilluðu lambi, nautakjöti eða kjúklingi.

Hráefni

1 kg smáar kartöflur

75 g íslenskt smjör

2–3 skalottlaukar

2–3 hvítlauksrif

500 ml rjómi

150 g rifinn parmesanostur

1–2 tsk kartöflukrydd

Flögusalt eftir smekk

Fersk steinselja til skrauts

Aðferð

1. Sjóðið kartöflurnar

Sjóðið kartöflurnar í 10–15 mínútur eða þar til þær eru rétt að verða mjúkar. Hellið vatninu af og látið þær gufa í 2–3 mínútur.

2. Brúnið kartöflurnar

Bræðið íslenska smjörið á stórri pönnu. Bætið kartöflunum út á og brúnið þær þar til þær fá fallegan gylltan lit.

3. Bætið lauknum út á

Saxið skalottlaukinn smátt og hvítlaukinn fínt. Lækkið hitann og bætið lauknum út á pönnuna. Látið mýkjast við vægan hita í 3–4 mínútur þar til laukurinn verður glær og ilmandi. Gætið þess að hvítlaukurinn brúnist ekki.

4. Kryddið

Stráið kartöflukryddi og flögusalti yfir og hrærið vel saman.

5. Gerið Alfredo-sósuna

Hellið rjómanum yfir kartöflurnar og bætið rifnum parmesanosti saman við. Látið malla við vægan hita í 5–8 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað og sósan þykknað.

6. Berið fram

Stráið ferskri steinselju yfir og berið fram heitt.

Tips

Ég mæli með að nota íslenskt smælki þegar það er fáanlegt.

Íslenskt smjör gefur réttinum einstakt og ríkulegt bragð.

Berið fram með grilluðu lambi, nautakjöti eða kjúklingi.

Rifinn parmesan og smá fersk steinselja yfir réttinn rétt áður en borið er fram gera hann enn girnilegri.

Þjóðhátíðartertur hattar og fleira fjör
Þjóðhátíðardagur Íslendinga 17. júní var hátíðisdagur á flestum heimilum. Flestir sem ólust upp á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar muna eftir að hafa verið klædd í spariföt, drengirnir vatnsgreiddir og stúlkur iðulega með hatta. Ég man eftir köflóttum drögtum sem við systur áttum og við þær voru bornir hvítir hattar með gulum blómum. Um hálsinn voru við með festar úr gulum perlum og sjaldan hef ég verið jafnánægð með útlitið og þann dag. Því miður tókst mér að detta niðri í bæ, hrufla hnéð og slíta perlufestina. Það var hræðileg sorg. Annar þjóðhátíðadagur varð minnistæður fyrir það að ég týndist og einhver góð kona fór með mig að sviðinu í Lækjargötu og mamma var kölluð upp. Mikið varð ég fegin þegar ég sá hana koma. En eitt var föst venja allan minn uppvöxt, eftir að hafa farið í skrúðgöngu og horft á skemmtiatriðin í bænum var farið heim og þar biðu tertur og heitt súkkulaði. Hér er uppskrift að nokkrum þjóðhátíðartertum.

Rice Crispies terta með karamellubráð

Botn:

100 g suðusúkkulaði

100 g karamellufyllt súkkulaði

100 g smjörlíki

4 msk. síróp

4 bollar Rice Crispies

Súkkulaðið, smjörlíkið og sírópið er brætt saman í potti, rice crispiesinu hrært saman við blönduna í pottinum og hann tekinn af um leið. Sett í form og kælt í ísskáp.

Ofan á botninn

1 banani, stappaður

11/2 dl þeyttur rjómi

Hrært saman og smurt jafnt yfir botninn.

Karamellubráð

25–30 Nóatöggur, ljósar

1 dl rjómi

Brætt saman í potti við vægan hita, síðan kælt og látið leka yfir rjóma- og bananablönduna ofan á kökunni.

Eplakaka

200 g hveiti

200 g sykur

200 g smjör

2–3 epli

Hráefnin eru hnoðuð saman í skál, síðan er hluti deigsins tekinn og því þrýst í botninn á pæformi. Eplasneiðum er raðað ofan á og afgangnum af deiginu dreift þar yfir. Hægt er að bragðbæta með kanil eða múskati ef smekkur manna leyfir það. Eplakakan er bökuð við 180° C í u.þ.b. 45 mín. Kakan er borin fram heit með rjóma eða ís.

Súkkulaðidraumur

Einfaldur botn en gefa skal sér góðan tíma í að búa til kremið

Botn:

125 g smjör

360 g púðursykur

2 stk. egg

150 g suðusúkkulaði

350 g hveiti

2 tsk. lyftiduft

3 tsk. matarsóti

60 g kakó

2 1/4 dl mjólk

1 tsk. vanilludropar

Aðferð: Hrærið vel saman sykur og smjör, setjið eggin saman við eitt í einu, bræðið súkkulaðið og blandið því saman við. Setjið mjólkina í og síðan þurrefnin saman við allt og hrærið vel. Smyrjið tvö 26 sm form og bakið við 180° C í u.þ.b.  25–28 mín.

Krem

60 g kakó

500 g flórsykur

2 msk. síróp

75 g smjör

3/4 dl vatn

1/2 tsk. vanilludropar

2 msk. kaffi. (má sleppa)

Aðferð: Blandið saman kakói, flórsykri, sírópi og smjöri, setjið í pott og hitið við vægan hita. Hrærið stöðugt í á meðan. Blandið svo vatni og kaffi saman við ásamt vanilludropum. Setjið í skál og þeytið vel í u.þ.b. 10 mín. Smyrjið að lokum kreminu á botnana.

Frönsk súkkulaðikaka

175 g smjör

175 g suðusúkkulaði

180 g sykur (2dl)

3 eggjarauður

1/2–1dl heslihnetukjarnar

60 g hveiti

1 tsk. kaffiduft

3 eggjahvítur

Aðferð: Bræðið smjörið og takið pottinn af. Brjótið súkkulaðið í bita og bræðið það í heitu smjörinu. Bætið sykri og eggjarauðum í og hrærið rösklega. Sigtið hveitið og blandið það fínsöxuðum hnetukjörnunum og kaffidufti. Látið mjölblönduna í súkkulaðihræruna og blandið þessu vel saman. Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið þeim varlega saman við deigið. Smyrjið smelluform vel og stráið í það hveiti eða brauðmylsnu. Látið deigið í formið og bakið í neðstu rim í ofninum við 175–200° C í u.þ.b. 30 mín. Kælið kökuna í forminu áður en hún er tekin úr því og kæld á rist.

Ofan á kökunni

2–3 dl þeyttur rjómi

Jarðarber

Bingó-kúlur bræddar í potti með svolitlum rjóma, kælt svolítið og látið leka yfir kökuna.

Fiskur á grillið
Fiskur er hollur og góður matur. Nýjar rannsóknir vísindamanna sýna að þeir sem borða mikinn fisk eiga síður á hættu að fá brjóstakrabba eða hjartasjúkdóma og finna sjaldnar fyrir þunglyndi en hinir sem borða helst kjöt. Fisk er auðvelt og fljótlegt að matreiða og hægt að gera úr honum ótrúlega fjölbreytta rétti.

Yfir 2000 rannsóknir hafa verið gerðar á hollustu omega-3 fitusýra sem fiskur inniheldur í ríkum mæli og niðurstöðurnar gefa óyggjandi til kynna að fátt sé hollara. Nýjustu rannsóknir benda til að í fiski einnig efni sem dragi úr líkum á að menn fái alzheimersjúkdóminn, hjartaáföll og fleiri sjúkdóma auk þess að auka mönnum bjartsýni og andlegt þrek. Erlendir næringarfræðingar eru farnir að mæla með að fiskur sé á matseðlinum minnst þrisvar í viku og segja að séu menn að hugsa um hollustu matarins  sé best að venja sig á að borða mikinn fisk.

Í sérstakri rannsókn sem gerð var á áhrifum omega-3 á brjóstakrabba kom í ljós að taki vestrænar konur inn allt að 10 g af fiskolíu á dag breyti það vefjagerð brjósta þeirra og geri hana líkari vefjagerð austurlenskra kvenna en tíðni brjóstakrabba meðal Asíubúa er aðeins þriðjungur þess sem hún er á Vesturlöndum. Til að ná þessu magni úr fæðunni þyrfti að borða lax, túnfisk, makríl eða lúðu sjö sinnum í viku en sérfræðingar segja að það sé hollara að líkaminn vinni næringuna sjálfur úr matnum en að taka inn fæðubótarefni.

Vinnur gegn vægu þunglyndi

Vægt þunglyndi er ákaflega algengt og flestir finna fyrir því einhvern tíma á ævinni. Nú hefur verið sýnt fram á að fiskát dregur úr þessum köstum og flýtir fyrir að vanlíðanin gangi yfir því í löndum þar sem meira er borðað af fiski en í henni Ameríku er hlutfallið mun lægra jafnvel allt niður í einn af hverjum tíu (í Japan). Í fiski er auk þess efni sem heitir „taurine“ og allt bendir til að það dragi úr kvíða. Þetta telja vísindamenn skýringuna á því að fiskætur sýna færri streitueinkenni en hinir.

Til eru margar gerðir omega-3 fitusýra og heitir hver sínu nafni. Ein þeirra DHA hefur hvetjandi áhrif á heilavefsfrumur og 40% minni líkur eru á að eldra fólk sem hefur mikið af DHA í líkamanum fái alzheimersjúkdóminn en þeir sama hafa minna. DHA hefur auk þess hvetjandi áhrif á framleiðslu boðefna í heilanum og fiskur inniheldur mikið af DHA.

Þarf nú lengur vitnanna við heldur ætti að vera augljóst að aðalgrillmaturinn í sumar verður lúða, lax og steinbítur. Margir kjósa einnig túnfisksteikur en þær eru algjört sælgæti. Fiskinn er gott að marínera til dæmis í legi gerðum úr sítrónusafa, ólífuolíu, hunangi og kryddi. Sesamfræ eiga sömuleiðis mjög vel við fisk og gefa gott bragð séu þau grilluð með. Það má einnig setja nokkra dropa af sesamolíu í maríneringuna. Gott er að grilla fiskbita í álbökkum, heilan fisk í þar til gerðum grindum en feitan, þéttan fisk eins og lax og lúðu má setja beint á grillið.

Næringarefni og omega-3 fitusýrur í fiski draga úr líkum á að fólk fái: alzheimersjúkdóminn, ýmsa hjartasjúkdóma, þunglyndi og brjóstakrabba. Fiskur er auk þess tiltölulega fitulítill og gómsætur matur.

Góð marínering á fisk

safi úr einni sítrónu

½ bolli ólífuolía

2 tsk. salt

1 tsk. pipar

2 – 3 tsk. hunang (eða púðursykur)

sesamfræ eftir smekk

Öllu er hrært saman og fiskurinn látinn liggja í maríneringunni í minnsta kosti 2 klst.

Af hverju bragðaðist allt betur hér áður fyrr?
Er það bara ímyndun eða var allt mun bragðmeira og bragðbetra hér áður fyrr? Munið þið eftir stökkri, dásamlegri skorpu og lambalæri og hrygg? Ekki bara á örlitlum hluta lærisins heldur yfir það nánast allt. Súkkulaði sem bráðnaði í munni. Heitt kakó á köldum dögum sem yljaði að innan og dásamleg brauðsúpa. Nei, það er ekki bara ímyndun. Margt er breytt og líka bragðið af mörgum okkar uppáhaldsréttum.

Til að byrja með hafa aðferðir við kjötvinnslu breyst og fita á kjöti í verslunum er einfaldlega minni en áður þess vegna er skorpan minni og öðruvísi. Þegar Nói Síríus var seldur Norðmönnum breyttu þeir uppskriftinni að rjómasúkkulaðinu, minnkuðu kakósmjörið, þess vegna bráðnar það ekki lengur í munni heldur brotnar. Já, og ekki margir kunna lengur að gera brauðsúpu alveg eins og mamma þín gerði hana. Hún var líka eflaust að nýta afganga þannig að brauðið sem var notað þess vegna aðeins öðruvísi á bragðið.

Þetta á við um margt annað líka. Fyrirtækið sem framleiddi, Quality Street-konfektið var líka selt og margir molanna voru teknir út og aðrir settir í staðinn. Sumir fengu að halda sér en ofurlítið breyttir. Hið sama á við Hershey-súkkulaðifyrirtækið þeir hafa breytt mörgum af sínum klassísku vörum, keypt upp önnur sælgætisframleiðslufyrirtæki og breytt þeirra vörum, svo já mjög margt er breytt. Iðulega er verið að leita leiða til að auka hagkvæmni svo dýrari innhaldsefnum er skipt út fyrir önnur ódýrari.

Óhollustan tekin út

Sumt mátti reyndar breytast og verið var að auka hollustu vörunnar, taka út bragðefni sem voru beinlínis óholl, eins og með bláa ópalið og bláu M&M plöturnar. Salt er einnig óhollt fyrir okkur í of miklu magni, sem og sykur og víða hefur verið leitast við að minnka magnið af þeim hráefnum í vörunni. Auðvitað eru margvísleg matvæli enn í dag framleidd eins og þau hafa verið frá aldaöðli en sumt hefur breyst vegna þess að verið er að flýta framleiðsluferlinu. Það á t.d. við um margskonar mjólkurafurðir. Í dag fáum við ekki óhrært skyr eins og var algeng vara í mjólkurbúðum hér áður fyrr og líklega eru ekki margir sem vita hvernig skyr bragðast án sykurs og annarra bragðefna.

Auðvitað er eðlilegt að allt taki breytingum. Sumar eru til góðs meðan aðrar snúast eingöngu um verðið þjóti ekki upp úr öllu valdi eins og t.d. hefur gerst í súkkulaðiheiminum eftir verðið á kakói fór upp úr öllu valdi á heimsmarkaði. Annað snýst um að fækka handtökum og starfsfólki við framleiðsluna og þá þarf stundum að skipta út einu innihaldsefni fyrir annað bara til að vélarnar ráði betur við hlutverk sín.

Bragðlaukarnir breytast með árunum

Svo breytast bragðlaukarnir okkar með árunum og eitthvað sem var alveg mátulegt hér áður getur virkað of sætt, of rammt, of salt eða of beiskt. Við finnum líka minna bragð en áður og allur matur verður því bragðdaufari og minna spennandi. Við þetta bætist að ef fólk drekkur vín með matnum, glímir við tannholdsbólgur eða reykir þá breytir það allt saman bragði mjög mikið.

Nostalgían platar okkur líka. Það er alls ekki alltaf hægt að treysta minningum. Við þráum oft einhverja matartegund og erum með ákveðna hugmynd af því hvernig hún á að bragðast en tilfinningar okkar þegar við borðuðum þetta síðast geta blekkt og breytt því hvernig við upplifðum bragðið. Þegar rétturinn er smakkaður aftur er hann þess vegna iðulega allt öðruvísi.

En ef þú ert í hópi þeirra sem saknar gömlu góðu daganna þegar allt bragðaðist eins og það átti að bragðast er framtíðin hugsanlega björt. Víða um heim eru menn nefnilega að snúa aftur til upprunans, framleiða matinn á sama hátt og gert var þegar amma og afi voru ung, þ.e. amma og afi okkar sem nú erum ömmur og afar svo hver veit nema allt verði aftur eins og áður.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Grillaðir kjúklingaleggir í kryddlegi
12 kjúklingaleggir

Kryddlögur:

2 hvítlauksrif, pressuð

1 tsk. svartur pipar

2 tsk. villibráðarkrydd

2 msk. Dijon sinnep

½ dl balsamedik

½ tsk. salt

½ dl olía

Látið allt í skál og blandið vel.  Skerið tvisvar þversum í hvern legg svo kryddið nái vel  inn í kjötið. Látið leggina í bakka og hellið kryddleginum yfir. Látið standa minnst í þrjá tíma en helst yfir nótt. Þegar kjúklingakjöt á beini er grillað er gott að láta kjötið fyrst inn í ofn við 170 gráður í 15 – 20 mínútur og grilla svo á útigrilli. Með þessum rétti er tilvalið að bera fram grillað grænmeti eins og kúrbít, papriku og eggaldin. Það er skorið í sneiðar, penslað með olíu og grillað í smá stund. Gott er að strá svolitlu hvítlaukssalti yfir grænmetið eftir grillun.

Grilltíminn er hafinn!
Grillilmur í lofti er jafn öruggur vorboði og lóan sjálf og nú er þessi tími runninn upp. Þá er skemmtilegt að grilla hráefni sem við annars notum rafmagnstæki til að matbúa. Ein af þeim hugmyndum sem ég dusta rykið af á vorin er að grilla pítubrauð sem er ótrúlega gott að bjóða sem snakk í grillveislunni í staðinn fyrir kartöflusnakk úr pokum. Grilluð pítubrauð koma á óvart eldri sem yngri njóta.

Stökkt, kryddað pítubrauð

Pítubrauð

Tómat-chiliolía:

6 msk. ólífuolía

1 msk. tómatmauk

1 hvítlauksrif, smátt saxað

1 msk. ferskt timian eða óreganó, smátt saxað

1 tsk. þurrkað chili

1 tsk. nýmalaður svartur pipar

salt

Blandið öllu vel saman og látið standa um stund.

Rósmarín-hvítlauksolía:

6 msk. ólífuolía

2 hvítlauksrif, smátt söxuð

1 msk. ferskt rósmarín, smátt saxað

1 msk. ferskt timian, smátt saxað

1 tsk. nýmalaður svartur pipar

Blandið öllu vel saman og látið standa um stund.

Kljúfið pítubrauðin í tvennt. Penslið annan helminginn í sárið með tómat-chili olíunni og hinn helminginn með rósmarín-hvítlauksolíunni. Ristið pítubrauðin á meðalheitu grilli í 1-2 mínútur hvorum megin og byrjið þeim megin sem ópenslað er. Gott er að brjóta þau í minni bita og bera þannig fram sem snakk.

Páskamokkatertan með hnetunum!
Mokkabragðið er af mörgum kaffiunnendum talið eitt það besta í heimi. Flauelsmjúkt mokkakremið sem þekur þessa tertu getur næstum valdið yfirliði, svo bragðgott er það. Hneturnar gera svo útslagið.

Súkkulaðisvampbotnar:

3 egg

150 g sykur

60 g hveiti

2 msk. kartöflumjöl

2 msk. kakóduft

Hitið ofninn í 200 gráður. Smyrjið meðalstórt smelluform og klæðið botninn með bökunarpappír. Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan er orðin ljós og létt. Ef það er gert þarf ekki lyftiduft. Sigtið hveiti, kartöflumjöl og kakóduft yfir og blandið varlega saman með sleikju. Hellið deiginu í formið og látið strax í ofninn, ekki láta það bíða. Bakið kökuna í 20 mínútur eða þar til hún er farin að losna aðeins frá börmunum. Látið kökuna kólna í forminu, losið hana úr því og kljúfið í tvo botna.

Marensbotn:

2 eggjahvítur

100 g sykur

2 tsk. skyndikaffiduft

50 g heslihnetuflögur

Hitið ofninn í 150 gráður. Smyrjið lausbotna tertuform, jafnstórt og notað var fyrir svampbotninn og klæðið botninn með bökunarpappír. Þeytið eggkahvíturnar þar til þær eru hálfstífar. Blandið saman sykri og skyndikaffidufti og hellið saman við eggjahvíturnar smátt og smátt og þeytið áfram þar til hvíturnar mynda stífa toppa. Blandið heslihnetuflögunum varlega saman við. Smyrjið marensinum í formið og bakið í miðjum ofni í 1 klst.

Mokkarjómi:

1 1/2 msk. skyndikaffiduft

3 msk. heitt vatn

175 g suðusúkkulaði

1/2 l rjómi

2 msk. heslihnetuflögur

Látið kaffiduftið og súkkulaðið út í vatnið í potti haldið vægum hita og hrærið stöðugt þannig að allt bráðni vel. Þetta má líka bræða í örbylgjuofni. Látið kólna. Stífþeytið rjómann og blandið súkkulaðijöfnunni saman við. Smyrjið þriðjungi af rjómanum á annan svampbotninn, leggið marensbotninn þar ofan á og smyrjið öðrum þriðjungi af rjómanum ofan á hann. Leggið svo hinn svampbotninn ofana á og afganginum af rjómanum þar ofan á. Stráið heslihnetuflögunum yfir.

Orkugefandi matur
Maturinn sem við nærumst á er uppspretta orku líkamans. Allir vita hversu mikilvægt það er að borða fjölbreytt fæði og gæta þess að fá öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Þess vegna er mjög mikilvægt að vera meðvitaður um hvað menn borða og hvar þau efni er að finna sem maður þarfnast mest.

Léttari lund

Hægt er að vinna gegn þunglyndi og depurð með mataræði. Grænmeti, ávextir, heilkorn og ýmsar mjólkurvörur innihalda næringarefni er beinlínis vinna gegn kvíða og andlegri vanlíðan. Samkvæmt rannsókn er gerð var í The Rush University Medical Center var sýnt fram á að ef þessar matartegundir voru aðaluppistaða mataræðis hjá eldra fólki minnkaði mjög tilhneiging þess til þunglyndis. Vísindamennirnir telja að hægt sé að yfirfæra þessar niðurstöður á yngra fólk lika. Grasalæknar mæla einnig með þörungatöflum eða neyslu á sölum til að vinna gegn andlegri deyfð.

Hollt hýði

Þeir sem alltaf afhýða kartöflur, epli, perur eða aðra ávexti eða skafa gulræturnar áður en þær eru borðaðar ættu hugsanlega að spara sér þá vinnu sem fer í það. Nýjar rannsóknir hafa sýnt fram á að hýði er ríkt af trefjum, andoxunarefnum og vítamínum. Hægt er að baka kartöfluhýði og búa til skifur sem eru vel ætar og einstaklega ríkar af C-vítamíni, trefjum, kalki og B-vítamíni. Hið sama gildir um hýði af gulrófum og rauðrófum. Það ætti heldur aldrei að skafa gulrætur og fullkomlega óhætt er að borða hýðið á kiwi-ávextinum, mangói og vatnsmelónu. Nýlega hefur einnig heyrst að farið sé að rækta banana með ætu hýði og sumir mæla með því að raspa hýði af banana og nota í mat. Lauka er einnig óþarft að afhýða því í hýðinu eru ýmis efni sem skila sér vel út í matinn sé því leyft að fljóta með til dæmis í steikarpottinn með lærinu, í sósusoðið og súpuna en síðan sigtað frá þegar það hefur skilað næringarefnunum. Hýði sítrusávaxta er sömuleiðis mun ríkara af C-vítamíni en mjúkt kjötið inni í þeim. Það er auk þess ákaflega bragðmikið og vel mætti hugsa sér að raspa það niður og setja út í þeytinga, súpur, salöt og pottrétti. Menn ættu þó alltaf að þrífa grænmeti vel áður en byrjað er að nýta það í matreiðslu.

Afskurðurinn nýttur

Ýmiss konar afskurður fellur einnig til þegar verið er að búa grænmeti undir matreiðslu en það er óþarfi að henda því. Mikið bragð er í hýði margra grænmetistegunda og stilka, blöð og hýði ætti því að nýta þegar það er hægt. Til að mynda má nefna að hýði gulrófna, stilkar af brokkólíi eða blómkáli, efsti hluti púrrulauks, hýði hvítlauksins og margt fleira er hægt að geyma og nýta á ýmsan hátt í matreiðslu. Margir skera þetta burtu og henda en til að forðast matarsóun en mun skynsamlegra og hollara að nýta þetta. Grænmetisafskurður er fyrirtak til að sjóða þegar verið er að búa til soð.

Hörfræ fyrir konur

Hörfræ eru einstaklega holl fyrir konur á breytingaskeiði. Þau innihalda náttúrulegt östrógen og tvær matskeiðar af hörfræjum á dag geta skipt miklu fyrir þær sem þjást á kófköstum og öðrum erfiðum kvillum tengdum breytingaskeiði. Hægt er að strá þeim yfir salatið, setja þau út búst á morgnana, blanda þeim saman við hnetublönduna og borða sem snakk eða í brauðdeigið.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Létta leiðin til að lækka matarreikninginn
Líklega er alltaf gott að vera meðvitaður um að sóa ekki og vera útsjónarsamur í innkaupum en sennilega aldrei mikilvægara en nú þegar verðbólga er viðvarandi og verð á nauðsynjavörum hækkar stöðugt. Þá er enn meiri ástæða til að vera meðvitaður um matarreikninginn og gera sitt til að halda útgjöldum í lágmarki. Hér koma nokkur góð ráð til að lækka matarútgjöldin og bæta umgengni sína við mat.

Kauptu heilan kjúkling

Kauptu ævinlega heilan kjúkling, frosinn eða ferskan. Kílóverðið er mun lægra og auðvelt að hluta hann í sundur. Ef þú kaupir kjúklinginn ferskan getur þú skipt honum í bringur, leggi, læri og vængi og eldað eina máltíð og fryst það sem eftir er. Annað ráð er að heilsteikja kjúklinginn, hreinsa afgangskjötið af beinunum þegar búið er að borð og frysta það í pokum.  Næstu vikur má síðan nota kjötið í salöt, pottrétti,  ofnrétti, samlokur eða ommelettur, þægilegt, fljótlegt og auðvelt.  Til hátíðabriðga má gera hið sama við kalkúna en maturinn af honum endist ótrúlega lengi.

Steiktu kjöt- og fiskibollur

Fæsta munar mikið um að eyða hálftíma lengur við að matreiða einn dag í viku. Þess vegna er gott að búa til fiskfars eða kjötbolludeig í stórum skömmtum og elda. Bollurnar má síðan frysta í pokum og grípa til næstu vikurnar.  Flestir foreldrar kannast líka við að eiga erfitt með að fá börnin til að borða grænmeti. Bollurnar gefa líka gott færi á að koma í þau hollustu án þess að þau viti af því. Út í kjötbolludeig og fiskfars má rífa rófur, gulrætur, hvítkál eða annað grænmeti saman við. Það bæði drýgir matinn og bragðbætir hann. Enn einn kosturinn er svo að börnin borða grænmeti eldað á þennan hátt með bestu lyst.

Nýtið allt

Margir kvarta undan því að grænmeti sé dýrt hér á landi en ótrúlegu magni af því er hent á venjulegum meðalheimilum. Sumir borða t.d. eingöngu brúskana af brokkólíi og blómkáli. Stönglarnir eru góður matur líka og hægt að skera þá smátt og sjóða eða rífa niður og blanda í margskonar rétti. Salat sem er orðið ofurlítið slappt má hressa við með því að leggja það í bleyti í svolítinn tíma og hið sama gildir um tómata og paprikur. Tómatar sem eru orðnir linir henta vel í tómatsósu og hægt er að sjóða niður í krukku góða, bragðmikla sósu og geyma í eina til tvær vikur í ísskáp. Ávexti má frysta eða gera úr þeim mauk. Það má líka baka pæ og frysta. Það er alltaf gott að eiga eitthvað með kaffinu þegar gestir koma.

Kaupið inn fyrir vikuna

Mjög margir hafa lækkað matarreikninginn verulega með því að ákveða matseðil fyrir vikuna og kaupa inn í samræmi við innkaupalista. Rannsóknir hafa sýnt að ef fólk fer í verslun á hverjum degi kaupir það alltaf meira en það sem vantar og þannig léttist buddan fljótt. Mikill tímasparnaður felst líka í þessari leið því oft eyðir fólk löngum tíma í að ákveða hvað eigi að vera í matinn. Sumir hafa einnig þann háttinn á að elda matseðilinn fram í tímann og frysta. Þá þarf ekki annað en taka álbakka úr frystinum og hita í ofni.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Límónu- og pistasíukaka
Á heitu sumri er sítrusávextir eitthvað svo einstaklega viðeigandi. Þeir gefa frískandi og ferskt bragð sem hressir og svalar. Þess vegna er límonaði sívinsæll sumardrykkur. Hér er uppskrift að límónu- og pistasíuköku sem er dásamleg með kaffinu í garðinum í eftirmiðdaginn og hinn fullkomni eftirréttur þegar borðað er úti.

Límónu- og pistasíukaka

Í botninn:

140 g ósaltað smjör

120 g sykur

4 eggjarauður

300 g hveiti

Fyllingin

240 g smjör

240 g sykur

4 egg

80 g möndlur malaðar í matvinnsluvél

160 g pistasíur malaðar í matvinnsluvél

Hitið ofninn í 170° C. Þeytið saman smjöri og sykri í botninn. Bætið við eggjarauðunum einni og einni í einu, síðan hveitinu og látið blandast þar til allt er orðið samhangandi deig. Breiðið deigið út á milli tveggja hveitistráðra smjörpappírslengja með kökukefli. Leggið það síðan í smurt 20 cm springform og látið það teygja sig upp á barmana. Setjið plastfilmu yfir og kælið í minnsta kosti 15 mínútur.

Fyllingin er útbúin meðan pædeigið kólnar. Þeytið sykurinn og smjörið þar til það er orðið ljóst og létt. Bætið eggjunum við einu og einu í einu og blandið vel eftir að hverju og einu hefur verið bætt við. Hrærið síðan varlega saman við möndlunum og pistasíunum. Blandið vel og hellið síðan ofan á pædeigið í forminu. Kælið í um það bil tíu mínútur í kæliskáp, stingið síðan forminu inn í heitan ofninn og bakið í 35-40 mínútur eða þar til gullin húð hefur myndast ofan á kökunni. Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.