Líkamleg heilsa – Lifðu núna

Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ
Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ í dag. Opnun heimilisins er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt. Hjúkrunarheimilið er samtengt Hrafnistu Nesvöllum sem er 60 rýma hjúkrunarheimili með heildstæðri þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara.

Samhliða opnuninni var hjúkrunarheimilinu Hlévangi lokað og fluttust þrjátíu íbúar þaðan inn á nýja heimilið í desember ásamt fleiri nýjum íbúum. Heildarfjöldi rýma á hjúkrunarheimilum á Suðurnesjum er því nú orðinn 140.

Hrafnista Nesvöllum

Vandaður aðbúnaður og aukið öryggi

Nýja hjúkrunarheimilið er alls 5.444 m2 og skiptist í átta deildir með tíu einkarými á hverri deild. Við hönnun og framkvæmd var lögð áhersla á nýsköpun sem eykur öryggi og þægindi íbúa og bætir vinnuaðstöðu starfsfólks til muna. Má þar nefna nýjar lausnir fyrir baðaðstöðu, loftlyftukerfi í öllum einkarýmum, nýja tegund aðgangsstýringar, nýtt fyrirkomulag lyfjatiltektar og víðtækara sjúkrakallkerfi.

María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, segir nýja húsnæðið vera vandað þjónusturými en á sama tíma sé reynt að gera alla aðstöðu heimilislega og notalega fyrir íbúa: „Fyrstu íbúarnir fluttu inn nýverið og hafa verið að koma sér vel fyrir, en við gerum ráð fyrir að íbúar flytji inn í öll laus rými fyrir janúarlok og hlökkum til að taka vel á móti þeim.”

Meðal þeirra sem héldu erindi á opnunarhátíðinni í dag var Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem gegndi stöðu félags- og húsnæðismálaráðherra þar til fyrir skemmstu en Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, komst ekki á opnunina. Þá héldu erindi Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu.

Inga Sæland lagði áherslu á að uppbygging hjúkrunarheimila væri eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar. „Opnun þessa glæsilega hjúkrunarheimilis með 80 rýmum er skýrt merki um vilja ríkisstjórnarinnar til að tryggja öldruðum öryggi, virðingu og góð lífsskilyrði. Ég óska Reykjanesbæ, Hrafnistuheimilunum, starfsfólki hjúkrunarheimilisins við Nesvelli og íbúum þess innilega til hamingju með þennan merka áfanga.“

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sagði við opnunina að hér væri um mikilvægan áfanga í bættri þjónustu við eldra fólk að ræða. „Opnun nýs hjúkrunarheimilis að Nesvöllum styrkir verulega getu okkar til að mæta þörfum eldri borgara á Suðurnesjum. Fjölgun og endurnýjun eldri hjúkrunarrýma er lykilatriði í að tryggja örugga og góða þjónustu,“ sagði ráðherrann en fjölgun hjúkrunarrýma létti einnig undir rekstri sjúkrahúsa.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði opnun heimilisins stóran áfanga fyrir sveitarfélagið. „Þetta er afar mikilvægt verkefni fyrir Reykjanesbæ og Suðurnesið allt en nú bætast alls 50 ný hjúkrunarrými á svæðið. Með þessari framkvæmd er stigið stórt skref í að efla þjónustu við eldra fólk og mæta aukinni þörf fyrir vönduð hjúkrunarrými.“

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs. „Við erum afar þakklát fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt með því að fela okkur umsjón með framkvæmdinni. Sjö áratuga reynsla af rekstri hjúkrunarheimila hefur nýst vel og fengið að skila sér inn í umgjörðina. Þá hefur einnig reynst farsælt að treysta Sjómannadagsráði fyrir slíkum framkvæmdum, enda hefur okkur tekist að skila vönduðu verki sem lokið er innan tilskilins tíma.“

Hönnun og framkvæmd

Í febrúar 2020 var undirritaður samningur um byggingu hjúkrunarheimilisins milli þáverandi heilbrigðisráðherra og bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Upphaflega var samið um byggingu 60 rýma en síðar voru gerðir tveir viðaukasamningar um stækkun í 80 rými auk nýrra viðmiða um skipulag hjúkrunarheimila og tímalengingar samningsins. Samningurinn gerði ráð fyrir að heimilið yrði tekið í notkun fyrir árslok 2025 sem nú hefur gengið eftir.

THG arkitektar sáu um arkitektahönnun og fóru með hönnunarstjórn en ábyrgð verkfræðihönnunar var hjá Ferli verkfræðistofu. ÞG Verk sá um uppsteypu og frágang utanhúss en EYKT ehf. um frágang innanhúss. Jarðvinna var í höndum Ellerts Skúlasonar ehf. og Borgarvirki sá um frágang lóðarinnar.

Fjölgun hjúkrunarrýma

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.

Þann 19. mars 2025 var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.

Nokkrum dögum síðar mundaði ráðherra sleggju við Nauthólsveg en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.

Undir lok maímánaðar var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.

Sama dag fór ráðherra á Húsavík til að rjúfa kyrrstöðu um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.

Þann 16. júní var samkomulagið frá því í mars sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög.

Þann 1. júlí var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.

Þremur dögum síðar var skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni.

64 ný hjúkrunarrými voru tekin í notkun á Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi í 2. september.

Þann 8. janúar sl. var viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu 108 rýma hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði.

Heyra liðskiptaaðgerðir sögunni til?
Fjölmargir Íslendingar þjást af slitgigt og biðlistar eftir liðskiptaaðgerðum eru langir hér á landi. Slitgigt lýsir sér þannig að brjóskið milli liða eyðist og slitnar en það veldur því að liðurinn verður ekki eins hreyfanlegur og bólgur taka að myndast. Þessu fylgja miklir verkir.  Gigt af þessu tagi leggst oftast á hnjá- eða mjaðmaliði en einnig er þekkt að hún komi fram í öxlum og hrygg. Hingað til hefur eina ráðið til að bregðast við þessu verið að skipta um lið en nú er útlit fyrir að ný meðferð taki við.

Þýskir vísindamenn hafa unnið að því að þróa gel sem hægt er að sprauta inn í liðinn og þar myndar það þekju eða grunn sem leggst yfir skemmt brjóskið og vinnur að mörgu leyti svipað og það. Auk þess eru í því mólekúl sem laða að sér stofnfrumur og örva þær til að vinna og mynda nýtt brjósk. Fyrstu tilraunir á mönnum benda til að eftir aðeins tvo mánuði hafi flestir náð að mynda nýtt brjósk að einhverju leyti. Þetta er hreinlega bylting í meðferð slitgigtar en hún er algeng um allan heim bæði meðal eldra fólks og íþróttamanna. Þýsku vísindamennirnir eru langt komnir með þróun á gelinu og sérfræðingar spá því að mögulegt sé að það komi á markað og í notkun á næsta ári að sögn German Orthopaedic Research & Clinical Trials.

Á sama tíma vinnur teymi í háskólanum í Connecticut að því að þróa svipað gel sem einnig er sprautað inn í liðinn og byggir hann upp að nýju. Thanh Nguyen prófessor í vélaverkfræði og líftæknilæknisfræði leiðir rannsóknirnar og í nýlegri grein sem birtist á vefnum UConn Today segir hann að framtíðin í bæklunarlækningum muni felast í rafbylgjum og einfaldri sprautu með Piezoelectric geli. Þetta eru góðar fréttir, ekki bara fyrir þá fjölmörgu sem þjást af slitgigt heldur einnig fyrir heilbrigðiskerfið. Hér er um að ræða mun ódýrari meðferð en skurðaðgerð og allt bendir til að hún sé einnig varanlegri og áhættuminni fyrir sjúklinginn.

„Núverandi meðferðir snúast um að draga úr verkjum ekki að lækna vefina,“ segir Thanh Nguyen í viðtali við UConn Today. „Við vonum að eðlilegar hreyfingar líkams, meðal annars göngur, geti komið af stað litlum rafbylgjum sem örva brjóskið til að vaxa aftur.“ En Piezoelectric gel inniheldur grunn þrýstirafhrifa en það er efni gert úr lífhverfu plastefni, poly-L-lactic acid, nanótrefjum og magesíum oxíd nanóögnum. Við álag, eins verður við eðlilegar hreyfingar líkamans, eða þegar hleypt er hljóðbylgjum á gelið sendir það frá sér litlar rafbylgjur. Vísindamennirnir vonast til þess að þær eigi eftir að örva frumur í því brjóski sem eftir er í veika liðnum til að endurnýja sig og vaxa aftur. Tilraunir þeirra á stórum dýrum lofa góðu. Þar sem þessar bylgjur eru mjög sambærilegar við eðlilegar rafbylgjur er örva endurnýjun og uppbyggingu í mannslíkamanum er full ástæða til bjartsýni hvað þetta varðar.

Teymið sem rannsakar nýja meðferð við slitgigt.

Betri meðferð en aðrar

Fram að þessu hefur algengasta meðferð við slitgigt verið að sprauta geli inni í liðinn til að auka liðleika hans en það gel eyðist á nokkrum mánuðum og virkar aðeins fyrir hluta sjúklinga. Einnig hafa læknar reynt að verkjastilla sjúklinga með gigtarlyfjum og öðrum bólgueyðandi og verkjastillandi lyfjum. Þegar slitið er orðið mjög slæmt er engin leið önnur fær en að senda fólk í skurðaðgerð og skipta liðnum út fyrir gervilið. Tilraunir hafa verið gerðar með að sprauta stofnfrumum inn í liði en þær hafa ekki gefið góða raun og eru í raun oftast ekki viðurkenndar af opinberum heilbrigðisyfirvöldum.

Enn er þó verið að þróa Piezoelectric gelið og rannsókn Thanh Ngueyns og samstarfsmanna hans mun standa til ársins 2029. Ef áfram heldur sem horfir kann að vera að það ár muni þeir leitast við að fá leyfi til að gera tilraunir á mönnum og eftir það er mögulegt að fá gelið viðurkennt af lyfjastofnunum og síðan koma því á markað. Áður hafði Thanh Nguyen starfað með Yang Liu prófessor við Peking-háskóla að svipuðum rannsóknum. Niðurstöður rannsókna þeirra birtust í Science Translational Medicine og Nature

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Alltaf að missa jafnvægið
Hefur þú fengið svimakast nýlega eða fundist þú óstöðug/ur á fótunum? Ef svo er ertu áreiðanlega ekki ein/n um það. Ein algengasta orsök þess að eldra fólk dettur heima hjá sér er svimakast eða að það finnur fyrir jafnvægisleysi, sérstaklega þegar verið er að standa upp. Ástæðurnar þess að fólk finnur fyrir óstöðugleika eru fyrst og fremst tengdar taugakerfinu og ástandi liða.

Til að jafnvægi haldist gott þurfa augun, innra eyrað og vöðvar líkamans að vinna vel saman. Með árunum getur jafnvægiskerfi innra eyrans raskast til dæmis vegna sýkinga, sjónin breytist líka og vöðvakraftur minnkar. Allt þetta er hægt að þjálfa. Með því að gera jafnvægisæfingar á hverjum degi geta menn haldið við hæfni sinni en nokkrir sjúkdómar geta valdið skaða á jafnvægiskerfinu.

Fullorðins vatnshöfuð

Billy Joel tilkynnti árið 2018 að hann væri hættur að halda tónleika og semja lög. Ástæðan var að hann hafði fengið sjúkdóm sem kallaður er fullorðins vatnshöfuð, eða normal pressure hydrocephalus eins og það heitir á ensku. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að rými í heilanum fyllast af vökva. Billy hafði orðið fyrir því að detta á sviðinu og gangast í kjölfarið undir aðgerð til að hreinsa burtu vökvann.

Oftast þróar fólk ekki með sér þennan sjúkdóm fyrr en eftir sextugt. Þetta er sjaldgæft en helstu einkenni eru jafnvægisleysi, að eiga erfiðar með gang og stjórn á þvaglátum. Stundum fylgja hugræn vandamál sem geta líkst vitglöpum. Flestir ná að rétta sig af ef þeir hrasa um eitthvað á göngu utandyra eða jafnvel á gólfinu heima hjá sér en manneskjur með fullorðins vatnshöfuð geta það ekki. Þær geta líka átt í erfiðleikum með að snúa sér og margir lýsa því þannig að það sé eins og fæturnir séu fastir við gólfið.

Hægt er að greina sjúkdóminn með segulómun á heilanum. Ef fullorðins vatnshöfuð greinist geta læknar skorið manneskjuna upp og fjarlægt vökvann. Í sumum tilfellum er komið fyrir svokölluðum skuntum eða plaströrum sem leiða vökvann burtu úr heilanum og yfir í aðra hluta líkamans, oftast magann.

Réttstöðuþrýstingsfall

Hefur þú einhvern tíma staðið snöggt á fætur og fundið fyrir svima og jafnvægisleysi, jafnvel dottið ofan í sætið aftur? Þá hefur þú fundið fyrir réttstöðuþrýstingsfalli. Einn af hverjum fimm sem náð hefur sextugsaldri finnur einhvern tíma fyrir þessu en blóðþrýstingur fellur þá snöggt og hratt. Í sumum tilfellum er um að ræða aukaverkanir blóðþrýstingslyfja en einnig getur þetta stafað af vökvaskorti, blóðleysi, miklum verkjum og þunglyndi.

Réttstöðuþrýstingsfall getur einnig bent til að taugakerfið hafi orðið fyrir skaða vegna þess að ákveðnir hlutar heilans hafa orðið veikst eða skaðast vegna tiltekinna erfðasjúkdóma. Sjálfvirka taugakerfið sér um að halda líffærakerfum okkar gangandi þar á meðal, öndun, hjartslætti og blóðþrýstingi. Ef það veikist af einhverjum ástæðum getur blóðþrýstingur fallið hratt eða hækkað langt umfram það sem æskilegt. Ef þú finnur oft fyrir snöggu jafnvægisleysi eða svima þegar þú stendur upp, svitnar mikið eða finnur fyrir hjartsláttartruflunum ættir þú að leita læknis og biðja um rannsókn.

Útlægur taugakvilli

Peripheral neuropathy eða útlægur taugakvilli er nokkuð algengur meðal fólks yfir fimmtugt. Fólk með sykursýki þróar gjarnan með sér þennan kvilla en hann orsakast af skemmdum á litlum taugaþráðum og veldur tilfinningaleysi eða doða í fingrum og fótum. Til er í dæminu að fólk finni ekki hvort fætur þeirra snerti gólfið eða ekki. Skemmdirnar geta síðan aukist og farið að leggjast á stærri taugaþræði og þá missir fólk vöðvakraft og stjórn og tilfinningu í liðum. Af sjálfu sér leiðir að þetta eykur jafnvægisleysi og veldur tíðri svimatilfinningu.

Ef fólk hefur þróað með sér þennan kvilla ætti það að varast að bera þunga hluti eða ganga um þar sem dimmt er því hvoru tveggja eykur hættuna á að manneskjan missi jafnvægið og detti illa. Það að þurfa að einbeita sér að því að halda einhverju stöðugu eða því að sjá í myrkri minnkar enn tilfinninguna fyrir líkamanum. Ofskammtar af tilteknum vítamínum eða skortur á þeim getur einnig valdið þessum einkennum og í dag er auðvelt að athuga hvort um það sé að ræða.

Þögult heilablóðfall

Blóðþurrðarslag eða heilablóðfall vegna blóðtappa verður vegna tímabundinnar truflunar á blóðflæði til heilans. Stundum verður fólk tæplega vart við hvað er að gerast og einkennin vara í skamman tíma. Sumir kalla þetta smáheilablóðfall eða ministroke. Í flestum tilfellum valda þau ekki varanlegum skaða en það sem kallað hefur verið á ensku silent stroke eða þögult heilablóðfall veldur á hinn bóginn oftast skemmdum en fólk finnur hugsanlega ekki fyrir neinum einkennum.

Þegar manneskja fær heilablóðfall er algengt að hún lamist öðru megin í líkamanum eða finni fyrir málstoli, höfuðverk eða missi meðvitund. En margir sem hafa fengið silent stroke vita ekki einu sinni af því. Þeir fundu aldrei nein einkenni svo fer að bera á jafnvægisleysi eða erfiðleikum með gang og viðkomandi telur einhverjar allt aðrar ástæður liggja að baki. Finni menn allt í einu fyrir því að þeir eigi erfiðara með ganga upp eða niður stiga, að þeir séu orðnir hægari í hreyfingum en áður og jafnvægisleysi hafi aukist ættu þeir að íhuga þann möguleika að þeir hafi fengið silent stroke. Með því að stunda tai chi eða jóga geta menn hins vegar þjálfað upp getu sína aftur og dregið úr einkennunum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Hrotur geta verið bæði hvimleiðar og hættulegar
Kæfisvefn er ástand sem getur valdið miklum heilsufarslegum skaða sé hann ekki meðhöndlaður. Fólk með kæfisvefn nær sjaldan ef nokkurn tíma fullri hvíld þótt það sofi á næturnar og með tíð og tíma getur það beinlínis orðið hættulegt sjálfu sér og öðrum.

Manneskja með kæfisvefn verður eftir vissan tíma ófær um fulla athygli og einbeitingu við þau verk sem hún vinnur yfir daginn. Það fer að verða vart minnistruflana, viðbragðstíminn verður hægari og athyglin ekki eins skörp. Þetta hefur áhrif á hæfni manna til að keyra og dregur úr getu til að sinna ýmiss konar nákvæmnisvinnu.

Kæfisvefn er nafn á því ástand þegar hálsinn þrengist eða lokast í svefni og veldur öndunartruflunum. Einstaklingurinn veit sjaldnast af þessu en margir hrökkva upp verði öndurhléð langt. Þá getur verið erfitt að sofna aftur en kæfisvefn er mældur í stigum eftir því hve oft fólk hættir að anda og hve lengi öndunarhléin standa. Manneskja er greind með kæfisvefn þegar öndurarhlé eru fimm eða fleiri á klukkustund.

Eykur líkur á hættulegum sjúkdómum

Flestir tengja saman kæfisvefn og hrotur, enda er eitt af einkennum þessa ástands háværar hrotur, svefninn verður órólegur svefn og fólk hrekkur oft upp um miðjar nætur, sumir oft á nóttu. Ástandinu fylgir einnig tíð næturþvaglát, nætursviti auk öndunarhléanna í svefni.

Á daginn er manneskja með kæfisvefn þreytt og syfjuð. Sumir hafa standa sig að því dotta hvar sem þeir setjast niður og ef þeir fá tíma til slökunar. Þess vegna getur verið beinlínis hættulegt fyrir viðkomandi að setjast undir stýri. Einbeiting og minni sljóvgast, höfuðverkir eru tíðir og erfiðir og sumir finna fyrir munnþurrki og særindum í hálsi. Sívaxandi örmögnun veldur einnig skapsveiflum, aukinni gremju og óþolinmæði og í sumum tilfellum þunglyndi. Fólk með kæfisvefn er einnig í meiri hættu á að fá háþrýsting, hjartaáfall, hjartabilun, heilablóðfall og sykursýki.

Eru bara feitir með kæfisvefn?

Offita er vissulega algeng ástæða kæfisvefns en grannt fólk getur líka þjáðst af kæfisvefni. En rannsóknir hafa sýnt að á milli 60% og 70% þeirra sem eru með kæfisvefn eru of þungir. Kæfisvefn er einnig algengari meðal karla en kvenna og tíðni hans er hærri meðal eldra fólks en yngra. Ýmsar líffræðilegar ástæður geta þó verið fyrir því hvers vegna fólk fær kæfisvefn meðal annars: Skekkja á miðnesi, kvef, ofnæmi, stór tunga, stór úfur og lítil haka.

Ef fólk með kæfisvefn neytir áfengis eða róandi lyfja leiðir það oft til þess að öndunarhléum fjölgar og þau verða lengri.

Svefnrannsókn

Til að greina kæfisvefn er gerð svefnrannsókn. Fólk fer til læknis og fær tæki með rafskautum sem það lærir að tengja við brjóstkassann. Það fer síðan heim og sefur með búnaðinn yfir nótt. Læknir fer síðan yfir þau gögn sem tækið safnaði eftir að viðkomandi skilar honum daginn eftir.

Ráð til úrbóta

Sú meðferð sem skilað hefur mestum árangri er notkun svefnöndunartækis. Tækið tryggir að öndunarvegurinn haldist opinn yfir nóttina og kemur þannig í veg fyrir öndunarhlé með tilheyrandi súrefnisskorti og truflun á svefni. Hins vegar er nú margra mánaða bið eftir slíku tæki hjá sjúkratryggingum Íslands og fólk með kæfisvefn getur búist við að þurfa að bíða í um það bil fjóra mánuði eftir þessu nauðsynlega og langþráða meðferðartæki.

Bitgómur hefur sömuleiðis reynst vel í sumum tilvikum. Tannlæknar taka mót af tönnum manna og útbúa góminn. Gómarnir eru áhrifaríkastir hjá þeim sem hafa vægan kæfisvefn.

Góð ráð

Fólk getur gert ýmislegt sjálft til að bæta svefn sinn. Alger undirstaða undir góða hvíld hjá öllum er að hafa góða svefnrútínu, sofna helst alltaf á sama tíma á kvöldin og vakna á sama tíma á morgnana. Fleira er hægt að gera, meðal annars að hreyfa sig meira yfir daginn, reyna að létta sig, borða ekki á kvöldin, venja sig á að sofa á hliðinni fremur en á bakinu, hafa góða loftræstingu í svefnherberginu, fara hvorki með tölvu né síma inn í svefnherbergið, hætta að drekka kaffi á daginn og forðast áfengisdrykkju. Ef fólk hefur grun um að það sé með kæfisvefn ætti það að leita til heimilislæknis síns sem fyrst og óska eftir svefnrannsókn.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Óþolandi kverkaskítur, hvað er til ráða?
Þegar fólk fer að eldast verða sumir varir við að slím safnast fyrir í hálsi þótt viðkomandi glími ekki við neinar sýkingar. Þeir vakna á hverjum morgni með kverkaskít sem illmögulegt virðist vera að losna við. Þetta getur verið mjög pirrandi og óþægilegt. En hver er orsökin og hvað hjálpar?

Allir hafa fengið hálsbólgu og kvefpestir þar sem mikið slím safnast fyrir í nefi og hálsi en það hverfur yfirleitt um leið og menn hafa yfirunnið öndunarfærasýkinguna. En þegar slím söfnun er viðvarandi án þess að um nein veikindi sé að ræða geta lífsstílsþættir ráðið þar miklu um. Slím er framleitt af slímhúð líkamans og hefur mikilvægu hlutverki að gegna. Slímhúðin verndar undirliggjandi vef fyrir framandi bakteríum og ögnum. Í öndunarfærin berast rykagnir og bakteríur með andrúmsloftinu sem við öndum að okkur en í stað þess að berast inn í vefina festast þær við slímið og er skilað út úr líkamanum með aðstoð bifhára.   Slímið sér einnig um að halda öndunarveginum rökum og tryggir að rétt rakastig haldist í líkamanum.

Offramleiðsla á slími

Offramleiðsla slíms getur verið merki um undirliggjandi sjúkdóm, átt sér stað vegna þátta í umhverfinu eða komið til vegna lífsstíls.  Slím í hálsi getur komið frá bæði nefi, ennis- og kinnholum, hálsi, lungum eða maga og vélinda. Í mörgum tilfellum safnast slím upp í hálsi vegna sýkingar í efri öndunarvegi af völdum kvefs, flensu, ennisholubólgu eða hálsbólgu.

Með sýkingu fylgja önnur einkenni, eins og hiti, hósti, stíflað nef og almenn slappleikatilfinning í líkamanum. Oftast hverfur af sjálfu sér eftir að veikindin eru afstaðin, en það er ekki óalgengt að það taki nokkrar vikur.

Slím vegna sjúkdóma í maga og vélinda

Bakflæðissjúkdómur veldur súru bakflæði og sýran úr maganum ertir slímhúð í hálsi og getur leitt til bólgu í vélinda. Einkenni bakflæðis eru sviðaverkir á bak við bringubeinið, brjóstsviði, mikið slím í hálsi og sú tilfinning um að vera sífellt með kökk í hálsi.

Ofnæmi getur valdið slími í hálsi

Ofnæmisviðbrögð þar sem ónæmiskerfi líkamans bregst á óeðlilegan hátt við efnum úr ytra umhverfi eru oft bundin við öndunarfæri. Þá geta komið fram einkenni eins og nefstíflur, nefrennsli og slím getur færst úr nefgöngum niður í hálsinn. Einkenni geta einnig komið í formi hósta og astma. Þá getur slím safnast fyrir í hálsi og erfitt reynst að losa það.

Slím vegna lungnasjúkdóma

Astmi er langvinnur lungnasjúkdómur sem orsakast af bólgu í öndunarvegi. Slímhúðin í öndunarfærum bregst við með því að offramleiða slím þegar hún verður fyrir áhrifum frá ofnæmisvaldandi efnum, kulda eða sýkingum. Þetta leiðir til einkenna eins og öndunarerfiðleika, hósta, önghljóðs og slíms í hálsi. Langvinn berkjubólga einkennist af viðvarandi hósta með slímframleiðslu. Langvinn lungnateppa veldur einnig með mæði og  öndunarerfiðleikum, sérstaklega við líkamlega áreynslu. Einnig er algengt að slím safnist fyrir í hálsi vegna annarra lungnasjúkdóma og má þar nefna lungnabólgu eða slímseigjusjúkdóm.

Lífstílsþættir sem hafa áhrif á slímframleiðslu

Lífsstílsþættir geta haft áhrif á slímframleiðslu. Tóbaksreykingar eru til dæmis algeng orsök mikils slíms í hálsi. Reykingamenn eru einnig í meiri hættu á að fá langvinna berkjubólgu og langvinna lungnateppu. Þurrt inniloftslag eða mengun getur einnig stuðlað að aukinni slímmyndun í hálsi. Ef þú dvelur á svæðum þar sem svifryksmengun er mikil eða miklið ryk í lofti af einhverjum ástæðum getur það ert slímhúðina og leitt til aukinnar slímmyndunar.

Mikið slím í munni og hálsi er einnig algeng aukaverkun hjá fólki sem farið hefur í geislameðferð á höfuð- eða hálssvæði.

Hvað er hægt að gera?

Slím í hálsi getur, eins og sést af ofangreindu, stafað af mörgum mismunandi kvillum eða sjúkdómum. Oft á það sér eðlilegar skýringar og tengist öndunarfærasýkingu eða þekktum langvinnum sjúkdómi. Það getur hjálpað að nota slímlosandi lyf úr apótekinu en þau geta  losað um slímið þannig að líkaminn eigi auðveldara með að koma því frá sér. Þegar um sýkingu er að ræða og hóstað upp miklu slími er mikilvægt að drekka mikið, það þynnir slímið og auðveldara verður að hósta því upp og koma því út.

Ef fólk er með viðvarandi offramleiðslu á slími í hálsi án þess að vita ástæðuna ættir það að leita til læknis. Mikilvægt er að kanna hvers vegna líkaminn framleiðir of mikið slím og hvort það geti verið vegna undirliggjandi sjúkdóms.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Hæg efnaskipti eða skjaldkirtilsvakabrestur, hvað er það?
Með aldrinum hægir á efnaskiptum hjá flestum, auk þess sem hæfni líkamans til að melta og vinna ýmis næringarefni úr fæðunni minnkar. Vanvirkni í skjaldkirtli eða skjaldvakabrestur er ein orsök hægra efnaskipta en sá kvilli er algengur hjá fólki yfir fimmtugu, sérstaklega konum. Einkennin eru hins vegar oft svo óljós og almenn að erfiðlega gengur að greina vandann og hugsanlega er hann vangreindur.

Talið er að tíunda hver kona á aldrinum 60-80 ára glími við skjaldvakabrest og hlutfallið hækkar með hækkandi aldri. Í flestum tilfellum hafa einkennin verið viðvarandi lengi og þar sem þetta gerist hægt venst fólk oft þreytunni og orkuleysinu sem fylgir og tengir það einhverju öðru. Heimilislæknar eru hins vegar mun meðvitaðri nú en áður um þennan skjúkdóm og skima þess vegna fyrir skjaldkirtilshormónum í blóðprufum leiti til þeirra sjúklingar með einkenni á borð við þreytu og orkuleysi, óútskýrða þyngdaraukningu, liðverki og depurð.

Ójafnvægi í hormónastarfsemi

Hormónið týroxín stjórnar efnaskiptum líkamans og er framleitt í skjaldkirtli. Þau hormón sem stjórna efnaskiptum líkamans sem eru T4 (týroxín) og T3 (þríjoðótýronín), einnig framleiðir skjaldkirtillinn kalsitónín sem tekur þátt í efnaskiptum beina. Stærstur hluti týroxínsins er bundinn próteinum í líkama okkar. Skjaldvakabrestur kemur fram ef skjaldkirtillinn framleiðir of lítið týroxín. Virkni í skjaldkirtli er stjórnað af heildingli, sem er aðal hormónastjórnstöð heilans og hann stjórnar magni skjaldkirtilsörvandi hormóns (TSH) í líkamnum.

Ef framleiðsla á týroxíni minnkar eykst seyting TSH til að örva skjaldkirtilinn og fá hann til að auka framleiðslu týroxíns. Algengasta orsök skjaldvakabrests er sjálfsofnæm, skjaldkirtilsbólga, sem veldur því að hormónaframleiðsla minnkar smám saman. Hjá mörgum mun hækkað magn af mótefninu and-TPO vera fyrsta merki sjúkdómsins.

Á mörkunum

Það er einnig hægt að vera á mörkum þess að þjást af skjaldvakabresti. Venjulega eru þeir sjúklingarnir án einkenna, en einhver þeirra algengust geta komið fram. Meðal lækna er umdeilt hvort ástæða sé til að veita einhvers konar meðferð við slíku eða ekki. Einkennin geta verið væg og margar konur, því þær eru í meirihluta þeirra sem þjást af þessum kvilla, finna fyrir þreytu, sljóleika og þunglyndi og glíma oft við að þær þyngjast þrátt fyrir að passa mataræði og hreyfingu ákaflega vel. En þessi einkenni þurfa ekki að vera vegna skjaldkirtilsvakabrests. Hættan er hins vegar sú að ef mæling á skjaldkirtilshormónum í blóði sýna að menn séu á mörkum þess að þjást af skjaldkirtilsvakabresti og meðhöndlun er hafin getur það leitt til þess að þeir þrói með sér sjúkdóminn en einkennin kunna að hafa stafað af öðru.

Til þess að greina rétt þarf læknirinn því að vera meðvitaður um alla þá þætti sem hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu viðkomandi sjúklings og taka blóðprufur aftur til að meta hvort ástandið sé áfram eins eða hvort það hefur breyst á þeim tíma sem liðinn er frá fyrri blóðprufunni.

Einstaklingsbundnar sveiflur

Magn skjaldkirtilshormóna getur verið mismunandi yfir daginn hjá tilteknum einstakling og frábrugðin frá einstaklingi til einstaklings. Mikil streita á tilteknum tímapunkti í lífi fólks getur kallað fram ákveðna sjálfsofnæmissjúkdóma meðal annars skjaldvakabrest. Ef einstaklingur hefur þegar þróað með sér einhvern sjálfsofnæmissjúkdóm getur það líka verið áhættuþáttur hvað það varðar að fá fleiri slíka. Meðal annars má nefna að gigtarsjúkdómar flokkast undir sjálfsofnæmisskjúkdóma.

Forvarnir gegn slíkum sjúkdómum snúast í grundvallaratriðum um að velja sér heilbrigðan lífsstíl. Hvað mataræði varðar hafa sumar rannsóknir bent til þess að tiltekin glúten geti haft áhrif á efnaskipti líkamans og jafnvel kallað fram breytingar á skjaldkirtilshormónum en enn sem komið er hefur ekki tekist að sanna að svo sé.

Meðferð sniðin að hverjum og einum

Skjaldvakabrestur getur valdið einkennum frá flestum líffærum. Hversu alvarleg einkennin verða fer eftir því hversu lengi sjúkdómurinn varir og hversu hæg efnaskiptin eru orðin. Hjarta- og æðasjúkdómar vegna hækkaðs kólesteróls og blóðþrýstings koma fram. Ómeðhöndluð hæg efnaskipti geta einnig haft áhrif á heilann og vitræna starfsemi. Það getur leitt til lakara minnis og einbeitingar með einkennum sem minna nánast á snemmkomna heilabilun. Sem betur fer er það svo að sum einkennin hverfa með góðri meðferð.

Algengasta meðferð við skjaldvakabresti er að gefa týroxín í töfluformi. Eldra fólk og einstaklingar með hjartasjúkdóma verða að byrja á litlum skammti og auka skammtinn hægt. Konur sem taka týroxín eftir tíðahvörf eru í aukinni hættu á að fá beinþynningu. Því er mikilvægt að leitast við að gefa sem minnstan skammt. Of stór skammtur af týroxíni getur einnig aukið hættuna á kvíða og gáttatifi.

Flestir læknar reyna að finna meðferð sem hentar að hverjum sjúklingi og sníða hana sem mest að þörfum hans. Stundum tekur tíma að finna rétta jafnvægið og þarf að reyna fleiri en eina tegund lyfja. Skjaldkirtilsvakabrestur hefur hins vegar ekki áhrif á lífslíkur fólks og hægt er að lifa góðu lífi með sjúkdómnum svo framarlega sem rétti lyfjaskammturinn finnst.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Starfshópur skipaður um mönnunarviðmið á hjúkrunarheimilum
Í gær birtist á vef stjórnarráðsins fréttatilkynning um skipun starfshóps um mönnunarviðmið á hjúkrunarheimilum. Fréttatilkynningin fer hér á eftir:

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að móta tillögur ásamt tímasettri áætlun um það hvernig ná megi gæðaviðmiðum um mönnun á hjúkrunarheimilum hér á landi. Hópnum er ætlað að skila niðurstöðum sínum til ráðherra eigi síðar en 1. febrúar 2025. Hópurinn er skipaður á grundvelli yfirlýsingar heilbrigðisráðherra við undirritun kjarasamings Eflingar stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu 2. október síðastliðinn.

Starfshópurinn hefur m.a. til hliðsjónar fyrirliggjandi vinnu vegna umönnunar á  hjúkrunarheimilum, skýrslur þar um og viðmið embættis landlæknis frá árinu 2015.

Samhliða vinnu starfshópsins mun landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu, leggja mat á forsendur viðmiða embættis landlæknis og eftir atvikum endurskoðun þeirra, m.a. með tilliti til öryggis og gæða.

Ráðgjafafyrirtækið Gemba ehf. leiðir vinnu starfshópsins sem er svo skipaður:

Dagmar Huld Matthíasdóttir, án tilnefningar

Helga Atladóttir, án tilnefningar

Karl Óttar Einarsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu

Viðar Þorsteinsson, tilnefndur af Eflingu stéttarfélagi

Henný Hraunfjörð, tilnefnd af embætti landlæknis

Elmar Hallgríms Hallgrímsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands

Sandra B. Franks, tilnefnd af Sjúkraliðafélagi Íslands

Hjartastuðtæki um allt land verði skráð og sýnileg í kortasjá
Inn á vef Stjórnarráðs Íslands er aðgengileg skýrsla starfshóps Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og fréttatilkyning um að hjartastuðtæki um land allt verði skráð og gerð sýnileg í kortasjá. Fréttatilkynningin í heild er birt hér að neðan:

Starfshópur Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra leggur til að komið verði upp kortasjá fyrir sjálfvirk hjartastuðtæki um allt land. Markmiðið er að „fækka dauðsföllum af völdum hjartastoppa með því að bæta aðgang að sjálfvirkum hjartastuðtækjum á Íslandi og þannig stytta tíma frá hjartastoppi að stuði“ eins og segir í skýrslu hópsins til ráðherra.

Ráðherra skipaði hópinn í febrúar síðastliðnum og fól honum að undirbúa gerð aðgengilegrar kortasjár yfir staðsetningu sjálfvirkra hjartastuðtækja í smáforritinu 112.

Alls eru fimm söluaðilar sjálfvirkra hjartastuðtækja á Íslandi. Starfshópurinn leitaði eftir upplýsingum frá þeim um hvort fyrirtækin haldi skrá yfir kaupendur tækjanna, hvort hún nái yfir staðsetningu þeirra, þjónustu fyrirtækjanna um tækin og um viðhorf fyrirtækjanna til samstarfs við rekstraraðila kortasjár um staðsetningu þeirra. Öll fyrirtækin halda slíkar skrár og eru tilbúin til samstarfs við að koma upp heildstæðri kortasjá á landsvísu yfir staðsetningu þeirra. Þá þjónusta jafnframt öll fyrirtækin seld tæki og senda kaupendum áminningu um viðhald og endurnýjun rafskauta og rafhlöðu þegar á þarf að halda.

Starfshópurinn leggur til að í gagnagrunn kortasjár verði skráðar greinargóðar upplýsingar um staðsetningu tækisins, hvenær og hvernig það sé aðgengilegt og hvernig viðhaldi þess sé háttað auk þess sem skoðaður verði möguleiki á birtingu ljósmynda sem sýna staðsetningu tækja.

Í hópnum áttu sæti fulltrúi ráðuneytisins sem var formaður hópsins, fulltrúar frá embætti landlæknis, Neyðarlínunni, Endurlífgunarráði, Rauða krossinum á Íslandi, Landspítala og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Hér má finna skýrslu starfshópsins í heild: https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Sk%c3%bdrsla%20starfsh%c3%b3ps_kortlagning%20sj%c3%a1lfvirkra%20stu%c3%b0t%c3%a6kja.pdf

Líkamsrækt fyrir konur á breytingaskeiði þarf að vera rétt
Breytingaskeið kvenna hefst yfirleitt um 45-50 ára aldur og stendur yfir í um 5-7 ár þar sem dregur verulega úr framleiðslu líkamans á kvenhormónum. Þetta er þó ekki einhlítt en líkamlegar breytingar byrja oftast nokkrum árum áður en blæðingum lýkur. Líkamlegar breytingar, og andlegar, eru margvíslegar samhliða þessu ferli. Húðin þynnist, konur þyngjast og vöðvastyrkur minnkar svo eitthvað sé nefnt. Margar konur gefa gaum að fæðunni á þessu skeiði, auka inntöku prótíns, grænmetis og ávaxta en það er vitað og gott að hafa í huga að vítamín, steinefni o.fl. er alltaf best að fá úr hreinum afurðum og beint úr fæðunni fremur en bætiefnum.

Sem betur fer upplifa ekki allar konur breytingaskeiðið sem erfitt tímabil. Margar konur eru fullar orku og finnst þær frjálsari en áður, börnin farin að heiman, meiri tími fyrir þær sjálfar, fjárhagurinn rýmri o.fl. í þeim dúr. En fyrir aðrar fylgir þessu skeiði slæm hitakóf, aukakíló, svefnvandi, minnkað sjálfstraust, skert minni og þunglyndi. Því ættu flestar konur að huga að ákveðnum þáttum á þessu skeiði til að auka lífsgæði sín í nútíð og framtíð. Einn af þeim er hreyfing. Henni er stundum líst sem allra meina bót og það er margt til í því. Hreyfing getur verið félagsleg, í gönguhóp, eða göngutúrar með vinum, golf í vinahóp – maður er jú manns gaman.

Ákveðin hreyfing getur seinkað alvarlegum sjúkdómum eins og alzheimers

En þó svo að þessi hreyfing sé góð þá dugar hún ekki til að vinna á móti breytingum sem verður á þessu skeiði, eins og vöðvarýrnun eins og oft fylgir alvarlegum veikindum t.d. Það þarf að gera ákveðnar æfingar þar sem m.a. ákefð kemur við sögu.

Líkamsrækt sem virkaði vel fyrir konur áður hentar ekki eins vel lengur og því þurfa konur að hugsa hlutina svolítið upp nýtt. Flestar konur kannast við það að fitna á breytingaskeiðinu og að lítið sem ekkert gerist þótt þær striti á hlaupabrettinu, gangi daglega eða hugi vel að því hvað þær láti ofan í sig. Konur á þessu skeiði ættu bæði að hreyfa sig rösklega í 75-140 mín. í viku en auk þess er nauðsynlegt að erfiða og lyfta lóðum.  Þá sýna rannsóknir að hreyfing þar sem ákefð kemur við sögu, eins og tennis, að taka spretti á hlaupabretti o.fl. getur seinkað ýmsum alvarlegum sjúkdómun eins og alzheimer-sjúkdómi, en konur eru líklegri til að fá hann en karlar, svo það er til mikils að vinna enda er það að eldast vinna en þess virði að rækja til að halda sem mestum lífsgæðum.

Líkamsræktarþjálfarar segja að karlmenn séu mun fljótari að ná af sér aukakílóunum en konur, þær þurfi að hafa töluvert meira fyrir því.

Lyftingar og ákefðarþjálfun eru lykilatriði

Fyrir konur á breytingaskeiðinu er lykilatriði í líkamsrækt að lyfta lóðum tvisvar til þrisvar sinnum í viku og taka spretti á hlaupabrettinu, sem sagt erfiða svolítið. Þetta þurfa þær að gera til að mæta minnkuðu estrógeni í líkamanum sem hefur áhrif á vöðvastyrkinn, beinþéttni og taugaboðefni í heila sem stjórnar minni og einbeitingu, fyrir utan að þetta er besta leiðin vilji konur stjórna þyngdinni eins og áður sagði. Öll hreyfing er góð og hefur áhrif á líkamlega og andlega vellíðan. Hún losar endorfín, sem oft er kallað gleðihormónið, út í líkamann en með styrktaræfingum eins og lyftingum eykst vöðvastyrkur og beinþéttni hins vegar og þannig minnka líkur á beinþynningu. Lyftingar hafa einnig mjög góð áhrif á brennslu í líkamanum, og betri en t.d. göngur, en stærri vöðvar brenna fleiri hitaeiningum.

Í þessu sambandi hefur verið talað um HIIT-þjálfun eða High Intensity Interval Training en það er einnig talið að slíkar æfingar hafi góð áhrif á blóðsykur, hjarta og æðakerfi og fitubrennslu. Æfingar, 20 mínútur í senn, fela í sér nokkrar lotur af sprettum á móti rólegri æfingu og þetta er endurtekið út tímann. Í byrjun er mælt með að rólegi hlutinn sem lengri en sá hraði, t.d. 60 sek. hægur á móti 30 sek. Síðan er hraði hlutinn aukinn smám saman og hægi hlutinn verður styttri. Þessar æfingar má gera í ræktinni, t.d. á þrekhjóli eða hlaupabretti en tækin þar hafa HIIT-kerfi innbyggt, eru tölvustýrð  og þar má fá aðstoð ef þarf. Svo er að sjálfsögðu hægt að gera þetta úti fyrir þá sem það kjósa en þá og nota úr eða púlsmæli ef fólk á slíkt í Garmin-úri. Ekki er mælt með að gera þessar æfingar daglega heldur tvisvar til þrisvar í viku og því upplagt að hafa með hreyfingu sem fólk hefur ánægju af, göngur, golf, jóga eða sund.

Gott að næra sig fyrir og eftir æfingar

Mælt er með að næra sig sem fyrst eftir æfingar og líkamsrækt því þá er brennslan enn hraðari en annars. Konur ættu hins vegar líka að næra sig fyrir æfingar og helst að hafa prótín og kolvetni þar. Það sama gildir um næringu eftir æfingar, prótín og kolvetni ættu að vera í næringunni, sem þarf að vera helst innan 30 mínútna. Næringin tekur þátt í að byggja upp vöðva, koma í veg fyrir fitusöfnun á kviði og til að koma í veg fyrri of mikið af kortisóli, sem er streituhormón í líkamanum.

Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna

Er hægt að ganga af sér spikið?
Hversu mörg skref þurfum við að ganga daglega til að léttast? Margir velta þessu fyrir sér og svarið við spurningunni er: Það fer eftir ýmsu.

Flestir hafa heyrt talað um hin frægu tíu þúsund skref á dag, en er þetta ekki eitthvað mismunandi eftir fólki? Jú algerlega er svarið og í þessari grein af norska vefnum Vi over 60, er reynt að skýra þetta.

Þyngdartap snýst ekki eingöngu um hreyfingu.

Eins og menn vita, er nauðsynlegt að borða færri hitaeiningar eða kaloríur en við þurfum, til að léttast. Til að gera það má nota eftirfarandi leiðir.

Að minnka inntöku á kaloríum

Að brenna fleiri kaloríum með hreyfingu,

Sambland af 1. og 2.

Oftast er þriðja leiðin sú besta, það er að borða færri kaloríur og hreyfa sig meira.

Mikil áreynsla í ræktinni eða meiri ganga

Þjálfun þar sem fólk reynir mikið á sig þannig að púlsinn fer upp, ásamt styrktarþjálfun, eru góðar aðferðir til að fækka kílóunum. Ef mönnum finnst þetta óyfirstíganleg aðferð, er hægt að byrja á því að auka hreyfinguna sem menn stunda dagsdaglega. Það er hægt að gera með því að velja stigana í stað þess að taka lyftu, eða með því að ganga fleiri skref yfir daginn.  Það er hins vegar erfitt að segja fyrir um hversu mörg skref þarf að ganga til að léttast. Við því er ekkert eitt svar.

Það fer nefnilega eftir ýmsu hveru miklu fólk brennir, til dæmis hversu hratt það gengur, hversu löng skrefin eru, hæð og þyngd þess sem gengur, aldur hans og kyn. Ef fólk gengur uppí móti brennir það meiru en það gerir ef það gengur á jafnsléttu. Það er líka hægt að ganga mörg þúsund skref án þess að léttast, ef fólk heldur áfram að borða fleiri hitaeiningar en það brennir.

Hversu mörgum kaloríum brenna 10.000 skref?

Ef  við alhæfum samt sem áður, þá brennum við flest 30 – 40 kaloríum með því að ganga 1000 skref á janfsléttu. Það þýðir að við brennum 300 til 400 kaloríum ef við tökum 10.000  skref. Það er hægt að auka brennsluna með því að auka hraðann og einnig með því að ganga uppí móti.

Með því að auka daglega brennslu um 300 til 400 kaloríur mun það til lengdar valda því að við léttumst, ef við erum ekki að borða of mikið, eða auka inntökuna af kaloríum með því að fara að háma í okkur mat, þegar við hreyfum okkur meira.

Það er viðráðanlegt fyrir flesta að ganga 5000-6000 skref á dag og það getur verið ágætt að byrja á því. Öðrum kann að þykja það of mikið. Þá er mikilvægt að muna að eitthvað er betra en ekki neitt. Alveg sama hversu mörg skref menn velja, eykst brennslan svolítið og verður meiri en ef menn sitja alltaf kyrrir á sama stað.

Ný rannsókn sýnir að það ber árangur að ganga fleiri skref

Sambandið milli krónískra sjúkdóma og fjölda skrefa sem fólk gengur yfir ákveðið tímabil, hefur verið rannsakað. Niðurstöðurnar sýndu að þáttakendur sem gengu 8200 skref á dag áttu síður á hættu að verða fitu að bráð, fá kæfisvefn, bakflæði og alvarlegt þunglyndi.

Þar að auki kom fram í rannsókninni að hættan á að þróa með sér alvarlega yfirþyngd eða offitusjúkdóm minnkaði um 64 prósent hjá þeim sem voru þéttir en gengu 6.000 – 11.000 skref á dag

Hraðinn á göngunni hefur sitt að segja

Til að gera samanburð á mismunandi hreyfingu, er hægt að flokka orkunotkunina eftir svokölluðum MET skala. Meðal orkunotkun manneskju sem liggur kyrr er skilgreind sem 1 MET (metabolsk ekvivalent). 3. MET þýðir þrisvar sinnum meiri orkunotkun en hjá manneskju í hvíld.

Meðalorkunotkunin tvöfaldast þannig við rólega göngu samanborið við hvíld og fjórfaldast við hraðari göngu, samanborið við hvíldarstöðu. Hraðinn hefur sem sagt heilmikið að segja. Þeir sem vilja fá meira út úr skrefunum sem þeir taka, geta gengið hraðar til að hækka púlsinn.

Varanlegar breytingar

Það mikilvægasta til að léttast er að gera varanlegar breytingar á mataræði og hreyfingu, breytingar sem endast út ævina. Byrjið þess vegna á því  að setja ykkur lítil en spennandi markmið.

Takið stöðuna eins og hún er í dag. Ef þið eruð ekki vön að hreyfa ykkur reglulega, er hægt að byrja á því að ganga þúsund skref og fjölga þeim svo smám saman og auka hraðann. Skiptið skrefunum upp í stuttar gönguferðir yfir daginn í stað þess að fara í eina langa gönguferð – og breytið litlu hversdagslegu athöfnunum. Takið strætó, einni stoppustöð fjær heimillinu eða farið úr strætó einni stoppustöð fyrr. Gangið stiga, takið stutta göngu í hádegishléinu. Allt skiptir þetta máli.

Borðið rétt

Til að léttast þurfum við að brenna fleiri kaloríum en við borðum. Það má líka orða það þannig að við eigum að borða og drekka minna en líkaminn þarf yfir daginn, Þá brennir hann varakaloríum sem við geymum sem fitu eða sykur.

Manneldisráð mælir með grófu kornmeti, ávöxtum, belgávöxtum, grænmeti og fiski, samhliða því að takmarka það sem við borðum af snakki, súkkulaði og öðrum sætindum.

Það er hæg að léttast með því að fylgja þessum leiðbeiningum, svo fremi þið fylgist með magninu sem þið borðið. Þið bætið nefnilega á ykkur ef þið borðið of mikið, jafnvel þó það sé hollur og góður matur.